Lögberg - 28.07.1938, Blaðsíða 4
4
LÖGrBERG, FIMTUDAGINN 28. JÚLI 1938
*
Jónas Jónsson
Hingað kom til borgarinnar á mánudags-
morguninn í heimsókn til Islendinga vestan
hafs óvenju kærkominn gestur, Jónas Jóns-
son alþingismaður, fyrrum dómsmálaráð-
herra Islands og formaður Framsóknarflokks
ins á Fróni; maður, sem flestum, ef ekki öll-
um samtíðarmönnum sínum fremur, hefir
vaklið hinum róttahustu straumhvörfum í lífi
íslenzku þjóðarinnar seinustu tuttugu árin,
eða því sem næst; maður, sem yfir svo miklu
andlegu frjómagni býr, eins og glegst má ráða
af m^rgháttuðum athöfnum hans á sviði
stjórnmálaforustunnar og velli litbrigðaríkra
ritstarfa, að með fágætum telst. Lögberg
hefir áður vikið að því, að frá því er Björn
Jónsson leið, rísi Jónas Jónsson eins og klett-
ur úr hafi í blaðamensku íslands, og ætlum
vér að lítt verði um það deilt. Lögberg á
Jónasi Jónssyni margt og mikið, harla mikil-
vægt upp að unna; það hefir endurbirt fjölda
af ágætustu ritgerðum hans, svo sem minn-
ingargreinina um Matthías Jochumsson, sem
ber eins og gull af eiri af því flestu, ef ekki
öllu, sem sagt var um hið andlega jötunmenni
á aldarafmælinu. Og nú rétt fyrir skemstu
birti Lögberg hin íturhugsuðu og faguryrtu
ummadi Jónasar um Einar H. Kvaran látinn.
Islendingum vestan hafs í heild, ber og
þess ljóslega að minnast, hve ríka samúð
Jónas Jónsson hefir ávalt og á öllum tímum
auðsýnt menningarbaráttu þeirra í fjölda af
ritgerðum sínum. Og sennilega mun það ekki
ofmælt, að hann sé áhrifamestur brautryðj-
andi þeirrar vakningar heima á ættjörðu
vorri, sem nú hefir gripið um sig og í þá átt
miðar að hrinda í framkvæmd raunhæfum ráð
stöfunum til eflingar andlegu sambandi milli
íslendinga austan hafs og vestan; honum má
vafalaust flestum fremur þakka heimför
Guttorms skálds, og mun vel mega gera ráð
fyrir, að með henni hefjist nýtt tímabil í and-
legum samgöngum milli stofnþjóðarinnar og
greinanna í Vestrinu.
“Standa mun í starfsemd andans
stofninn einn með greinum tveim. ”
Þannig komst Einar Benediktsson að orði í
kvæði sínu “Vestmenn,” er hann helgaði Is-
lendingum vestan hafs við komu sína til Win-
nipeg. Þessar ljóðlínur ætlum vér að heim-
færa megi í sterkum dráttum upp á hugar-
afstöðu Jónasar Jónssonar gagnvart sam-
3tarfinu milli Islendinga, þótt sitthvoru
megin búi Atlantsála; þetta skildist oss ljós-
lega af stuttu samtali við hann á skrifstofu
vorri á mánudaginn.
Telja má það alveg víst, að Þjóðræknis-
starfsemi vor græði mikið við komu Jónasar;
raddir að heiman eru oss ávalt kærkomnar,
og þá ekki sízt, er þær koma frá munni slíks
afburðamanns, sem Jónas Jónsson er. Vér
vonum að hann finni sig heima þann stutta
tíma, sem hann dvelur vor á meðal og bjóðum
hann hjartanlega velkominn.
Mikilfengleg sönghátíð á
Mountain
Þjóðræknisdeildin í Pembinasveitinni
hafði gengist fyrir því, að Ragnar H. Ragnar
kæmi þangað seinnipart júnímánaðar til þess
að æfa þar söngflokka, einkum meðal barna
og unglinga, og varð það að ráði. Söngflokk-
ar úr þrem bygðum, Akra, Garðar og Moun-
tain undir forustu Ragnars, létu til sín hevra
á opinberum samkomum í vikunni sem leið,
og vöktu almanna aðdáun. Á laugardags-
kveldið var haldin mikilfengleg sönghátíð í
samkomuhúsi Mountainbæjar, og í raun og
veru utanhúss líka, því svo var þar mkiill
mannfjöldi samankominn, að fjarri var að
húsrýmið nægði. Alls tóku þátt í söngnum
um 180 manns, og skal þess getið sérstaklega,
að í barnaflokknum til samans úr fyrgreind-
um {>rem bygðarlögum, voru 109, börn og
unglingar; samhljóman var hin bezta og
framburður íslenzkunnar krystallstær; þjóð-
ræknisleg lífsstefna ábærileg; dauðamörk
hvergi. Til viðbótar barnasöngflokknum
skemtu á þessari eftirminnilegu sönghátíð
Dakota-íslendinganna glæsilegir söngflokkar
karla og blandaðra radda, er nutu sín hið
prýðilegasta; auk þess var skemt með ein-
söngvum, tvísöng og hljóðfæraslætti. Auð-
séð var það og heyrt á því, sem fram fór á
samkomu þessari, hve eindrægnislega hafði
verið að öllum undirbúningi unnið. Islenzka
fólkið' í North Dakota kann að starfa saman,
og þessvegna vinst því svo vel á. Að aflok-
inni megin skemtiskrá, bauð þjóðræknisdeild-
in til.veizlu í veitingasalnum, þar sem söng-
stjóranum, Ragnari H. Ragnar var opinber-
lega þakkað starf hans í þágu bygðarlaganna
og hann sæmdur forkunnarfögrum minja-
gjöfum. Þakkaði Mr. Ragnar með viðeigandi
hlýyrðum gjafirnar og velvild alla í sinn
garð. Mr. S. S. Laxdal hafði veizlustjóru
með höndum og fórst hið bezta. Nokkrir
gesta töluðu fáein orð í tilefni af sönghátíð-
inni og því merkilega þjóðræknisstarfi, er til
grundvallar lægi.
Á sunnudaginn var fjölmenn skemtisam-
koma í skemtigarði Mountain-bæjar, þar sem
þeir séra N. Stgr. Thorláksson, Valdimar
Björnsson og Gunnar B. Björnsson fluttu
ræður, auk söngs og annara skemtana, sem
fram fóru. Pembinasveitin er ávalt fögur,
en sjaldan mun hafa fegur tjaldað en í þetta
sinn.
Hvernig verður maðurinn
eftir 3000 ár?
Heimurinn getur tekið miklum breyting-
um á 3000 árum. Árið 4938 verða lífsþægind-
in vafalaust orðin miklu meiri og maður þart'
orðið minna fyrir lífinu að hafa. Einna vand-
ráðnust er sú gáta, hvernig maðurinn muni
líta út eftir 3000 ár. Nær maðurinn aukinni
líkamsfegurð og styrkleika með vaxandi
’þróttaiðkunum eða verður hann orðinn veik-
bygðari og óásjálegri, vegna þess að hann
þarf orðið að hafa minna fyrir lífinu og lífs-
baráttan herðir ekki eins mikið þrótt hans og
líkamsgetuf Fjölmargir mikilsmetnir vís-
indamenn hafa reynt að svara þessu og svör-
in orðið á ýmsa vegu. Þar hafa skifst í svart-
sýni og bjartsýni. Einn af þeim, sem tilheyr-
ir fyrri flokknum, er hinn víðkunni enski
eðlisfræðingur, Barker.
Árið 4938, segir Barker, verður maðurinn
orðinn tannlaus. Til hvers ætti hann líka að
þurfa tennurf Fæðan verður eingöngu sam-
sett í uppleysanlegum efnum, sem bráð'na í
munninum, án minstu fyrirhafnar. Það er
náttúrulögmál að menn og skepnur missa þau
hjálpartæki, sem eru orðin óþörf vegna
breyttra aðstæðna. Þessvegna þarf heldur
engan að undra það, þó menn verði orðnir
hárlausir eftir 3000 ár, því þeir hafa þá ekki
þarfnast þess um langan aldur.
Fæturnir verða þó orðnir enn sérkennilegri
að 3000 árum liðnum. Þá verður ekki nema
ein tá eftir, stóratáin. Próf. Barker leiðir að
því sterk rök, að tízkuskórnir séu þannig
gerðir, að sú áreynsla, sem áður kom á allar
tærnar, leggist nú nær eingöngu á stórutána
og þessvegna verði hinar óþarfar.
Öll líkamsbygging mannsins að 3000 ár-
um liðnum verður miklu einfaldari en nú. M.
a. heldur Barker því fram, að rifbeinin verði
færri og leiðir að því ýtarleg rök. Handa-
vinna þekkist þá ekki lengur og af þeirri á-
stæðu og ýmsum fleirum, er ekki þörf fyrir
neinar neglur, enda verða þær engar til á
þessum framtíðarmanni próf. Barkers. Menn
verða líka orðnir miklu nærsýnni þá en nú,
enda þurfa þeir þá ekki skarprar sjónar með.
Þannig hugsar próf. Barker sér manninn
að 3000 árum liðnum. Flestum mun finnast
lýsingin nokkuð ótrúleg. Vera má að Barker
sjálfur dragi hana líka í efa, og henni sé ætlað
að vera einskonar viðvörun til manna um það,
að' láta ekki hin auknu líkamsþægindi verða
til þess að draga úr andlegu þreki þeirra og
líkamshreysti. En sú hætta fylgir sannar-
lega hinum auknu l>ægindum.
—Nýja dagbl. 2. júlí.
Til íhugunar
Þeir menn einir þekkja leyndar-
dóma gæfunnar, sem aldrei hafa
komist neitt áfram i heiminum.
ZChurton Collins.
-f
Mér er illa við rökræður; þær
vekja efasemdir.
—William Hazlitt.
-f
Lífið er pilla, sem enginn getur
gleypt, nema hann reyni aÖ telja sér
trú um, að hún sé betri en hún er
í raun og veru.
—Dr. Johnson.
-♦■
I heimi, þar sem engar þjáningar
ættu sér stað, er örðugt að hugsa
sér, hvernig ýmsir fegurstu eigin-
leikar mannanna, svo sem hetjudáð,
meðaumkun, þolinmæði, fóriífýsi og
viðkvæmni, fengi notið sín.
—Leslie D. Weatherlhead.
-♦■
Ef þú vilt, að eitthvert starf sé
vel af hendi leyst, þá veldu til þess
mann, sem er önnum kafinn; aðrir
hafa aldrei tíma til neins.
—Elbert Hubbard.
-f
Bölsýnismaður er sá, sem fæst
ekki til að vera glaður í dag, af því
að hann er hræddur um, að hann
verði dapur í bragði á morgun.
—C. Mottram.
-f
Skrítinn er heimurinn. Þegar þú
ert orðinn það vel stæður, að þú
getur leyft þér að verja tveim
klukkustundum til miðdegisverðar,
skipar læknirinn þér að drekka að-
eins eitt mjólkurglas.
—A. Sherie.
-f
Ef þú kemst í öngþveiti, og alt
snýst gegn þér, svo að ekki er ann-
að sýnna, en að þú piunir láta bug-
ast, þá mundu það, að gefast aldrei
upp, því að einmitt þegar svona
stendur á, er hamingjuhjólið i þann
veginn að snúast þér í vil.
—Harriet Beeciher Stowe.
-f
Leyndardómur hamingjunnar er
ekki í því fólginn, að við gerum það,
sem okkur langar til, heldur í því, að
öðrum geðjist að því, sem við leys-
um af hendi.
—J. M. Stuart-Young.
-f
Ilvert það ráðuneyti, sem velur
opinbera starfsmenn einungis frá
pólitísku sjónarmiði, án þess að
hugsa fyrst og fremst um hæfileika
þeirra, manngildi og kunnáttu, er
ekki einungis dauðadæmt, heldur
hefir það jafnframt leitt tortímingu
yfir þjóðfélag sitt.
—George Peters.
-f
í Ameríku er sagt, að sá maður
komst áfram í lífinu, sem aldrei
gerir sama glappaskotið oftar en
einu sinni.
R. C. Morrison.
-f
Stjómkænska er sú list að láta
aðra fara þá leið, sem stjórnvitring-
urinn vildi sjálfur farið hafa.
—Charles Porter.
-f
Látleysi er fuJlkomnasta fram-
koma, sem til er. En margir eiga
erfitt með að temja sér það, vegna
þess, að þeir óttast, að aðrir álíti
það bera vott um hversdagslegt hug-
arfar.
—Jeffrey.
-f
í hvert skifti, sem stúlka barmar
sér yfir því, að hún sé ein og yfir-
gefin og öllum sé sama um sig, get-
urðu reitt þig á, að hún hefir auga
stað á þér, ungi maður.
—Sjónarmið Mexikóbúa.
-f
Vertu ekki að brjóta heilann um
hvað aðrir hugsa um þig, vegna þess
að þeir eru alls ekki að hugsa um
þig, heldur eru þeir að velta þvi
fyrir sér, hvað þú sért að hugsa um
þá. —H. S,
-f
Það eru ekki mörg hljóð, sem
vekja jafnmikla eftirvæntingu og
höggin, sem þú heyrir, þegar drepið
er á dyr hjá þér.
—Charles Lamib.
(Úr Samtíðinni)
Þrítugasti þjóðminningardagur
ISLENDINGA 1 VATNABYGÐUM
verður haldinn að Wynyard á Agricultural Grounds
föstudaginn 5 ágúst næstk.
og hefst kl. 1 e. h.
Skemtmtriði:
Ávarp forseta: Séra Jakob Jónsson.
Ávarp bæjarstjóra í Wynyard: Mayor George R. Miller
Ræðhr: Jónas Jónsson, alþingismaður.
Gústaf Kristjánsson.
Kvæði: Steindór Gunnlaugsson.
Söngur: Söngflokkur íslenzku kirkjunnar, undir stjórn
frú Sigríðar Þorsteinsson. Við hljóðfærið:
Hjörtur Halldórsson, píanóleikari.
“Male Quartette” ,
“Double Quartette”
Einsöngur: Frú Sigríður Þorsteinsson.
Einleikur á píanó: Hjörtur Halldórsson.
Inngmigseyrir fyrir fidlorðna 35c
fyrir b'órn inncm 14 ára enginn.
Að loknum þessum skemtiatriðum verða veitingar
- seldar á samkomustaðnum, og þá spilar lúðraflokkur
frá Wvnyard úti á vellinum. Til skemtunar fyrir börn
verða leikir, blaup o. s. frv.
Um kvöldið kl. 8.30 hefst dans í samkomuhúsinu.
Sérstakur inngangseyrir.
—F.h. þjóðræknisdeildarinnar
Fjallkonunnar í Wynyard
JAKOB JÓNSSON, forseti.
Samkomur Jónasar Jónssonar
JÓNAS FYRVEBANDI DÓMSMÁLARAÐIIERRA
JÓNSSON, er væntanlegur hingað til bæjar í næstu
viku sem gestur Þjóð'ræknisfélagsins. Hefir hann látið
í ljósi að hann óskaði eftir að geta heimsótt allar ís-
lenzku bygðirnar í álfunni og falið þjóðræknisnefndinni
að semja ferðaáætlun sína yfir ágústmánuð. Hefir
nefndin því ákveðið eftirfylgjandi staði, þar sem hann
verður staddur yfir fyrri hluta ágúst, og flytur erindi:
Að Hnausum (Islendingadaginn) 30. júlí
Að Gimli (Islendingadaginn) 1. ágúst
Að Churchbridge (í Þingvallabygð) 4. ágúst
Að Wynyard (íslendingadaginn) 5. ágúst
Að Markerville, Alberta 10. ágúst
1 Vancouver, B.C., 15. ágúst.
Áætlun þessi verður birt í næsta blaði og þá með
þeim breytingum sem verða kunna.
Samkomur hans í öðrum bygðarlögum innan Mani-
toba og Bandaríkjanna verða auglýstar síðar. Aðgang-
ur að hinum sérstöku fyrirlestra samkomum 35c.
Vestur á Kyrrahafsströndinni er gjört ráð fyrir
að hann flytji erindi á þessum stöðum: Pt. Roberts;
Blaine; Bellingham; Seattle og ef til vill víðar. En
allar ráðstafanir að því lútandi, svo sem auglýsingar,
ákveða samkomustaði o. fl. verða gjörðar þar vestra.
—Stjórnarnefnd Þjóðræknisfélagsins.
Ride a "Glider"
For Service,
Speed and
Saving—
For
All-Round
Satisfaction
The “Glider” is a bicycle we can thoroughly recommend
for its modern design strength of construction — and
maximum value at the price! All models have electric
lamp, tool bag, wrenches and oil can—and carry the Eaton
guarantee.
Men’s Standard Glider $29.95
Men’s Double-bar Glider $35.00
Men’s Glider Balloon $35.00
BUDGET PLAN AVAILABLE
Sporting Goods Section, Third Floor, Hargrave
*T. EATON C9-™,