Lögberg - 28.07.1938, Blaðsíða 12

Lögberg - 28.07.1938, Blaðsíða 12
 12 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 21. JÚLÍ, 1938 Frá Edmonton (júlí 1938) Herra ritstjóri:— TíðarfariÖ hér hefir veriÖ hag- stætt i alt sumar. Nægilegar rign- ingar i hverjum mánuði, svo allur jarðargróður er í bezta lagi. Fréttir fá þurra beltinu í Suður-Alberta segja akra og beitilönd þar líti vel út. Þar hefir verið mikill uppskeru brestur í mörg undanfarin ár sökum þurka. Var stjónin byrjuð á því að flytja bændur og bústofn þeirra burtu þaðan, og var flest af þeim flutt til Peace River héraðsins. Nú verður ekki meira gert af því’ að sinni, því þetta góða útlit þar nú um góða uppskeru i haust, gefur fólki þar nýjar vonir um betri framtíð. Segja gamlir veðurspá- menn þar, að það mundi nægilegt votviðri á þeim slóðum í næstu sjö til tíu ár, og að þar verði góð upp- skera á því tímabili. Einn af elztu ístendingum hér, Sigfús Goodman, hefir verið veikur i nokkrar undanfarnar vikur, og virðist ekki vera á neinum veruleg- um bata vegi. Var Mr. Goodman einn af þeim allra fyrstu Islending- um, sem settust að í Alberta nýlend- unni. íslendinga klúbDurinn stóð fyrir Finnið CREEMER’S í sambandi við VÖRUGÆÐI, SNIÐ OG SANNGJARNT VERÐ Voldugasta kvenfatabúðin í norðurbænum; tilbúnir kvenfatnaðir og yfirhafn- ir, og sniðin eftir máli, býður yður að koma og litast um. 507-509 SELKIRK AVE. WINNIPEG þvi að “Basket Picnic” var hatdið í “Borden Park” 19. júní. Voru þar flestir íslendingar i borginni, sem ekki höfðu lagt á stað í lysti- túra í sumarfríinu. Fóru þar fram kapffhlaup, baseball og ýmsir leikir, svo allir skemtu sér vel. Mr. Jón Jónsson, S. Guðmundson og Mrs. Lára Benediktson sóttu fimtíu ára afmælishátíðna á Markerville 29. júni, héðan frá Ed- monton. Mrs. C. Jónasson hefir gjört opinbera trúlofun Margrétar dóttur sinnar og Dr. Frederick James Emmett, B.Sc. Giftingarathöfnin fer fram í ágúst. Mrs. C. N. Marlatt og tvær dæt- ur hennar eru í Winnipeg að heim- sækja ættfólk sitt þar, í sumarfri- inu. Miss Olive Goodman er á lysti- túr til Bozeman, Montana, að heim- sækja kunningjafólk sitt þar. Miss Goodman hefir um langt skeið unnið á skrifstofu eins stærsta heildsöluhússins hér í Edmonton. Mr. og Mrs. G. Gottfred eru kom- in til baka úr listitúr frá Californíu og ýmsum stöðum á vesturströnd- inni. Mr. Gootfred sat á allsherjar- fundi fyrir Canada og Bandaríkin, sem “Keewanis” félagið hélt í San Francisco. Mrs. P. Walinder og dóttir henn- ar Grace, frá Long Beach í Cali- forníu, hafa verið hér í heimsókn til föður síns, S. Guðmundson, og tveggja systra sinna hér í borginni, Mrs. A. R. Irvine og Mrs. Wm. I. Hraley. Lika ætlar Mrs. Walinder að heimsækja tvær systur sinar í Calgary, Mrs. Wm. Johnson og Mrs. C. E. Foster, áður en þær halda aftur heimleiðis. Miss Joyice og Kenneth Johann- son fóru til Winnipeg í skólafriinu, að heimsækja ættingja sína þar og víðar í Manitoba. Mr. og Mrs. Anderson fóru sér til skemtunar til Manitoba, að heilsa upp á kunningja sína þar víðsvegar, og líta aftur gamlar stöðvar; þau áttu þar heima um nokkurt skeið. Mr. Anderson er “Dist. Superin- tendent” fyrir “The National Ele- NJÓTID SKEMTUNAR I SELKIRK og heimsækið SELKIRK CO-OPERATIVE, LIMITED Vér seljum Gosdrykki - Isrjóma - Sætindi - Matvöru SELKIRK CO-OPERATIVE LIMITED MAIN STREET — SÍMI 289 SELKIRK ..... MANITOBA Þér getið nú fengið . . . Shea’s Drewry’s Kiewel’s Pelissier’s B JÖR 1 SKALDAN BEIIýT frá Stjórnarvínsölu búðunum, BJÓRSÖLUSTAÐN- UM á mótum Stitt Street og Central Avenue, Winnipeg Beach, eða fengið birgðirnar sendar til sumarbústaðar yðar yfir sumar- mánuðina við eftirgreindu verði: 2-tylfta kassi eða pakki af flöskubjór eð'a öli.$3.70 Fyrir tómar flöskur 40c netto.................. 3.30 1/8 kjaggi og slanga........................... 3.00 Fyrir tóman kjagga endurgreiddur .............. 1.00 1/4 kjaggi, töppunaráhald eða pumpa ........... 6.00 Fyrir tóman kjaggann við afhending ............. 2.00 ATHYGLI—Niðurborgun er fyrir endurskilun kjagga, töpp- unaráhalda eða pumpu. Sé töppunaráhaldi ekki skilað, verður að greiða 15C fyrir það. This advertisement is not inserted by the Government Liquor Control CommÍBBÍon. The Commiesion ig not responslble for statements made as to the quality of products advertlsed vator Co.,” og hefir heimili sitt í Edmonton. Prof. og Mrs. J. Jónasson frá Hannah, Alberta, eru hér í borg- inni um tima. Er próf. Jónasson “lecturer” við kennaraskólann, sem er haldinn hér árlega við Alberta há- skólann. Annars er Mr. Jónasson Sdhool Inspector og á heima í Hannah, Alberta. Þann 1. júlí lögðu af stað héðan alfarin til Victoria, B.C., Mr. og Mrs. A. R. Irvine; er hann “X-ray Technician” og hefir starfað fyrir Royal Alexandra spítalann hér í borg um nokkur undanfarin ár. Honum bauðst sama staða við sjúkrahúsið í Victoria með hærri launum, og tók hann því. Mrs. Irvine er Dorothy dóttir Mr. og Mrs. S. Guðmunds- sonar. Mrs. Guðmundsson fór með dóttur sinni og bjóst við að ílengj- ast þár, ef hún kann þar vel við sig. Mr. Axel Johnson er farinn norð- ur til Radium City, og er hann ráð- inn til að vinna þar á bátum, sem ganga þar á vötnum og ám. Ekki varð íslaust á vötnum þar norður frá svo skip gætu gengið, fyr en seinast í júní. Bjóst Mr. Johnson að verða þar fyrir norðan í tvö til þrjú ár, ef hann getur fengið vinnu í mámunum: á veturna. Þar sem hann er, eru ellefu hundruð mílur norður frá Edmonton, svo það er of 'kostnaðarsamt að, fara þar oft á milli. Stjórnmál. The Co-operative Commonwealth Federation of Canada (C.C.F.) halda sitt 5. ársþing hér í Edmon- ton 28.—29. júlí. Fundir verða haldnir á ýmsum stöðum í fylkinu j um þessar mundir, þar sem. nokkrir af atkvæðamestu ræðuskörungum flokksins flytja erindi um stjórn- mál, og til að skýra stefnuskrá flokksins. Þeir helztu af þeim eru J. M. Coldwell National Chairman fyrir C.C.F., David Lewis, secretary. Flokksforinginn J. S. Woodsworth flytur hér ræður á opinberum fund um i Edmonton. Hér er nú gott tækifæri fyrir almenning, til að fræðast um stefnuskrá C.C.F. og það stjórnarfarslega fyrirkomulag, sem. þeir halda fram. Nú er forsætisráðherrann, Aber- hart og nokkrir “yes” menn úr ráðu- neyti hans byrjaðir á að halda fundi með flokksmönnum sínum. Fyrsti af þessum fundum var hald- inn í High River í Okotoks kjör- dæminu, er það kjördæmi Mr. Aberharts. Eins og kunnugt er, þá er Mr. Aberhart ekki í miklu áliti þar. Það kjördæmi byrjaði á því síðastliðinn vetur, að víkja Mr. Aberhart frá völdum, undir þeim “Recall Act” sem Social Credit stjórnin gaf út á fyrsta stjörnar- ári sínu hér í Alberta. Var það auðsætt að þeiro mundi takast það, að setja Mr. Aberhart frá völdum, en þá kom þingið honum til lið- veizlu og nam úr gildi þetta “Re- call Act,” svo kjósendur urðu nauð- ugir að hætta við alt. Svo þegar Mr. Aberhart og hans ráðunautar komu fram á ræðupallinn, þá varð það strax ljóst að fundarmenn voru ekki komnir þar til að hlusta á neinar hrókaræður frá þeim, held- ur til að spyrja þá um ýmislegt, hvenær þeir ætluðu að uppfylla eitt- hvað af kosningaloforðum sínum. Hvenær yrðu næstu kosningar o. s. frv. Varð þeim; orðfátt, höfðingj- unum frá Edmonton, vildu tala, eins og áður, um alt annað. Þar var duglega rifist, en Aberharts-menn voru nú í miklum minnihluta, svo ekki var nein tilraun gjörð til að fleygja mönnum út, eins og þeir gjörðu í Melville í Saskatchewan. Þessi fundur endaði svoleiðis, að mikill meirihluti fundarmanna ljét í ljósi vilja sinn til að losast við þessa núvterandi stjórn sem allra fyrst. Stjórnin ætti strax að stofna til nýrra kosninga, því hún vissi að hún væri búin að tapa allri tiltrú og virðingu hjá almenningi. Næsti fundur var haldinn í Red Deer. Mr. Aberhart hafði lofast til að verða þar, en þegar til kom, sendi hann skeyti til fundarins, að hann gæti ekki komið, sökum þess að hann hefði sárar kverkar, og væri á för- um vestur á strönd til að hvíla sig. Fylkisféhirðirinn Mr. S. Low kom í stað Mr. Aberharts, en þingheimur vildi ekkert hlusta á hann, sögðust vera hér komnir til að tala við Mr. Aberhart og var Mr. Low hrópaður niður af ræðupallinum. Varð hann hinn reiðasti og sagði það væri hara að kasta perlum fyrir svín, að tala hér. Stóð þá upp einn þrekvaxinn bóndi og arkaði upp að Mr. Low og sagðist vera þar kominn til að láta hann taka til baka þessi ummæli sín og gjörði hann það strax. Svo var Mr. Low látinn vita það, að hann væri ekki velkminn á neinn ræðupall í Red Deer hér eftir. Á öðrum fundi sem þeir héldu i Benthy, voru talsverðar ýringar og andúð á móti stjórninni, og þeir einnig heimtuðu að ná tali af Mr. Áberhart. Og nú koma fréttir frá London, að Social Credit sinnar þar hafi sagt skilið við Major Douglas; sögðu að öll afskifti hans við Al- berta-stjórnina hafi verið Socia! Credit til skammar, og það' hafi gjört flokknum mikið ilt. Mr. G. F. Powell var á fundinum. Hann átti að halda þar ræðu og skýra frá afreksverkum sínum og Social Credit stjórnarinnar í Alberta, og svo sigurför Aberharts til Saskat- chewan! Hann fékk samt aldrei j orðið, þvi fundinum var hætt sökum 1 óeirðar sem: komið var i. Það er allra ósk hér i Alberta að forsætisráðherranum batni bráðlega í kverkunum, því það eru svo marg ir, sem þurfa að tala við hann. S. Gudmundson. Nú er gesturinn farinn Héðan úr borginni Winnipeg lögðu á stað til Bandaríkjanna á fimtudagsmorguninn 21. júlí, Mrs. Peter Shearer og Mrs. S. Vigfús- son; báðar áttu þær samleið og báð- ar stefndu að sama takmarkinu. Halla er nú á leið heim til sin suður til Phoenix, þar sem maður og börn bíða hennar, en um leið brá hún sér til Chicago til að sjá Júlíus og Agúst bræður sína, sem báðir eru þar bú- settir og stunda þar húsasmíðar. En Mrs. Vigfússon tók sér þessa góðu samfylgd til að geta séð dóttur sína, sem er kona Júlíusar bróður Höllu. Verða fagnaðarfundir er ástvinir finnast eftir langan aðskilnað. Lukkuóskir fylgja ykkur út í fjarlægðina frá vinum og vanda- fólki, sem bíða eftir að frétta um ferðalagið suður og líðan eftir það. Móðir þín, Halla, biður mig að skila ástarkveðju til þín og Sigríðar, Mrs. Vigfússon; hún heldur að þið hafið orðið þreyttar að sitja í bílnum; eins biður hún að heilsa heimafólk- inu. Hún er furðu hress síðan þú fórst. Það er gott að vera lánsamur með börnin; þú hefir sett hámark á flugi að koma alla leið sunnan af hala veraldarinnar til að hjálpa til að hlúa að veikri móður þinni og næstum blindri. Enginn getur sett sig í spor þeirra, sem missa sjónina ofan á annan lasleik, sem er fylgi- fiskur hárra lífdaga og erfiðs ferða- lags. En þú komst eins og engill af himnum ofan til að friða móður- hjarta, sem nú var bilað. En við komu þína fór það í sínar stelling- ar og móðir þín lifir í endurminn- ingu sinna mannvænlegu barna. Systir og móðir og við, sem nutum þeirra stunda er þú dvaldir meðal okkar, þökkum þér fyrir gleðina og hlýleikann, er þú sýndir á meðan þú varst hér á meðal okkar. Að endingu segjum við: Vertu blessuð og sæl Halla Ólafsdóttir frá Phoenix. V. Vigfússon. KVEÐJUR TIL ISLENDINGA frá SIIICLAIR’S CTEA rooms Heimatilbúnar múltíðir og fljótreiddar máltíðir við sanngjörnu verði Allar tegundir scetinda og tóbaks — Ferskir ávextir Fljót afgreiðsla SELKIRK .... MANITOBA KVEÐJUR STANDARD QARAQE Aðgerðir - Gasolía - Olíur - Partar General Motors Afgreiðsla Umboð fyrir Imperial Oil alt verk ábyrgðst SÍMI 45................SELKIRK, MAN. HAMINGJUÓSKIR til ISLENDINGA í SELKIRK OG GREND Hooker’s Lumber Yards PHONE No. 74 SELKIRK MANITOBA KVEDJUR TIL ISLENDINGA I SELKIRK OG GRENDINNI Oss er ánægja að fullnægjá þörfum yðar með % Harðvörn - Eldsneytisolíu - Málningu - Smurningsolíu Allar harðvörutegundir Selkirk Hardware A. G. BROVAN A. E. LOGAN MANITOBA AVENUE - - -. SÍMI 47 HAMINGJUOSKIR til ÍSLENDTNGA í tilefni af ÞJÓDHÁTÍÐ ÞEIRRA Vér höfum orðið þeirra forréttinda aðnjótandi að eiga viðskifti við íslenzka fiskimenn yfir lengsta tímabilið í sögu Manitobafylkis. ARMSTRONG GIMLIFISHERIES LIMITED C. E. FINLAY, Forstjóri WINNIPEG - MANITOBA Traust á Veátur-Canada N Til þess að geta haft transt á framtíðinni, er það nauðsynlegt að hafa eigi aðeins traust á framleiðsluskilypðum lands og vatna, heldur traust á íbúunum í þá átt, að þeir færi sér nátt- úrufríðindin í nyt. The Searle Grain Company, Limited, hefir sannað traust sitt á Vestur-Canada með því að byggja kornhlöður til sveita í Sléttufylkjunum þremur, 0g vér erum við því búnir að veita þeim afgreiðslu, er svo djarfmannlega starfa að akuryrkju Vesturlandsins. 1 Árborg og Riverton, bygðarlögum, sem auð- sjáanlega eiga fyrir sér góða framtíð, höfum vér kornhlöður, og vér treystum því, að oss ávalt lánist að verða þessum héruðum til upp- byggingar. Searle Grain Company Ltd. WINNIPEG CALGARY FORT WILLIAM VANCOUVER REGINA SASKATOON EDMONTON

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.