Lögberg - 30.03.1939, Síða 4
4
LÖQ-BER/G, FIMTUDAGINN 30. MARZ, 1939
-------------- Hiigberg ---------------------------
GefiB út hvern fimtudag af
THE COGUMBIA PRESS, UIMITED
695 Sargent Ave., Winnipeg, Manitoba
Utanáskrift ritstjórans:
EDITOR LÖGBERG, 665 Sargent Ave., Winnipeg, Man.
Editor: EINAR P. JÖNSSON
Verð $3.00 um árið — Borgist fyrirfram
The "Lögberg” is printed and published by The Columbia Press,
Limited, 695 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba
PHONE 86 327
ísland
I.
Þegar stórmál eru á dagskrá hjá heimaþjóðinni örv-
ast hjartaslög Yestur-lslendingsins; ekkert það, sem
snertir menningarlega tilveru hennar lætur hann sér þá
óviðkomadi; svo á það líka að vera, og verður vonandi
um langan aldur.
Hjarta Vestur-lslendingsins sló ört um síðustu
helgi, er dagblöð Winnipegborgar, sími og útvarp, fluttu
fregnir um það, að Adolf Hitler væri fyrir hönd Þriðja
ríkisins að reyna að ná fótfestu á Islandi með því að
koma þar upp flugstöðvum; þetita vakti eigi aðeins
óhemju undrun meðal Vestur-Tslendinga sjálfra í heild,
heldur og meðal hinna mörgu vina þeirra og íslenzku
þjóðarinnar víðsvegar um þetta mikla meginland; mönn-
um var það yfir höfuð nokkurn veginn kunnugt, að
Adolf Hitler væri í seinni tíð vanari öðru en því, að
sætta sig við synjun. Hinn röggsami forsætisráðherra
íslenzku þjóðarinnar, hr. Hermann Jónasson, synjaði
kröfu Hitlers og sagði nei; er hann víst fyrsti þjóð-
leiðtoginn, og ísland fyrsta þjóðin, sem Hitler hefir
fengið afsvar hjá, og vakti fregnin um það almenna
hrifningu meðal Vestur-lslendinga.
II.
Þegar Jónas alþingismaður Jónsson var hér á ferð
í fyrra sumar. raeddi hann margt og mikið um samvinnu-
mál milli Austur og Vestur-Islendinga; féll þetta af
skiljanlegum ástæðum í frjóva jörð; eftir að hann kom
heim hefir hann margt viturlega ritað um þessi efni, og
unnið að því kappsamlega, að hrinda hugsjónum sínum
í framkvæmd. 1 síðasta tölublaði Lögbergs var birt
grein eftir hann um íslenzku blöðin vestanhafs og
þörfina á að halda þeim við lýði; er Jónas Jónsson víst
fyrsti og eini maðurinn, sem beitt hefir sér fyrir um
það, að afta vestur-íslenzku vikublöðunum kaupenda á
Tslandi svo um muni. Kafli úr ritgerðinni er á þessa
leið:
“ Vökumannafélagið hér í Reykjavík er nú að efna
til umfangsmikilla bréfaskrifta milli unglinga á Islandi
og æskulýðs af íslenzkum stofni í Ampríku.—Vökumenn
beita sér líka fyrir því, að útvega Vesturheimsblöðunum
báðum nokkra tugi borgandi kaupenda. Þeir vænta
þess að öll heÞtu fyrirtæki í landinu, bankar, verzlanir,
sjúkrahús og skólar kaupi bæði blöðin. Stjórn Vöku-
manna mun bréflega og símleiðis leita. eftir kaupendum,
en þó því eins að bæði blöðin séu keypt. ” Með þessari
nýju tilraun er oss rétt samstarfshönd yfir hafið, og
ætti slíkt að verða nokkur hvöt til aukinnar alúðar við
lífdagalenging vikublaðanna íslenzku vestan hafs.
m.
Á forsíðu þessa blaðs birtist símskeyti frá Reykja-
vík til Hjálmars A. Bergman, K.C., frá formanni utan-
ríkismálanefndar, sem í þessu tilfelli er Jónas alþingis-
maður Jónsson ;-felur skeyti þetta í sér ákveðna sönnun
þess enn, hve vinir vorir og ættbræður austanhafs láta
sér hugarhaldið um það, að verða oss að menningarjegu
liði; hefir Alþingi, samkvæmt símskeyti þessu, afgreitt
frumvarp til laga um að gefa Manitoba háskólanum
allar nýjar, íslenzkar bækur.
Með hinni höfðinglegu gjöf sinni, lagði Arnljótur
B. Ólson grundvöll að mikilvægu safni íslenzkra l)óka
við Manitoba háskólann. Og nú hefir Alþingi, fyrir at-
beina Jónasar Jónssonar, trygt framtíð sívaxandi bóka-
safns við mentastofnun jiessa. Hver veit nema við eig-
um hér annað Fiske safn í vændum? Eitthvað hlýtur að
birta yfir þjóðlífi Islendinga vestan hafs, er háskóla-
stóllinn og bókasafnið hefja lífræna starfsemi vor á
meðal.
Spor í rétta átt
Stjórnin í New Brunswick hefir lýst yfir því, að
hún ætli sér að verja miljón dölum á næstu fimm árum í
því augnamiði, að greiða veg ungum mönnum inn á svið
landbúnaðarins; gera þá að góðum og gildum bændum.
Með þessu hygst stjórnin að ráða fram úr atvinnuleys-
inu, sem sorfið hefir fast að almenningi þar eystra engu
síður en annarsstaðar. Þetta ættu fleiri fylki að taka
sér til fyrirmyndar, því við brjóst moldarinnar leysast
mörg vandamál mannkynsins.
Á krossgötum
Samkvæmt bráðarbirgðayfir-
liti hagstofunnar hefir útflutn-
ingurinn numið 2,822 þúsund
krónum í janúarmánuði. Inn-
flutt hefir verið fyrir 3,254 þús-
und krónur. I fyrra nam út-
flutningurinn 1.419 þúsund
krónum. Hefir verzlunarjöfn-
uðurinn því verið óhagstæður um
432 þúsund krónur í janúar-
mánuði í ár, en um 1,137 þús-
und krónur í fyrra. Helztu út-
flutningsliðirnir nú voru ísfiskur
fyrir 600 þúsund krónur, salt-
fiskur fyrir 500 þúsund krónur,
síldarolía fyrir 400 þúsund krón-
ur, síld fyrir 375 þúsund krónur
og síldarmjöl fyrir 280 þúsund
krónur.
-f
Ríkisstjórnin hefir ákveðið að
hefja samningaumleitanir við
stjórn Francos á Spáni urti
verzlunarviðskifti á milli land-
anna. Hefir Helgi P. Briem
verið kvaddur til þessa erind-
rekstrar ásamt Kristjáni Einars-
syni framkvæmdarstjóra. Norð-
menn hafa einnig hafið svipaða
samninga við stjórn Francos.
4
Dálitil snjókoma og allhvasst
var við suðurströndina, og þó
einkum suðvesturströndina, í
fyrrinótt, en hlánaði, þegar leið
að morgni. Norðanlands var
veður betra og úrkomulítið
Mun úrkoman lítið hafa náð
norður fyrir Seyðisfjörð að
austan og Patreksfjörð að
vestan. Nokkrar smávegis síma-
þilanir urðu. Suðurlandslínan
slitnaði af völdúm ísingar hjá
Flögu í Skaftártungu og var
sambandslaust þar fyrir austan
í gærmorgun. Á Holtavörðu-
heiði slitnaði ritsímaþráður og á
milli Kalastaðakots og Voga-
tungu urðu smávegis línubilanir.
Viðgerðum á þessum bilunum
var lokið um miðjan dag i gær.
4
í fyrravetur kostaði fræðslu-
málastjórnin einn mann til far-
kenslu í skíðaíþrótt á Vestfjörð-
um. Gafst þessi nýbreytni vel
og voru námskeiðin fjölsótt. I
vetur hefir þessi starfse'mi verið
aukin og starfa þrír menn að
þessari farkenslu á vegum
fræðslumálastjórnarinnar nú í
vetur. Halda þessir skíðakenn-
arar námskeið á Austfjörðum, i
Eyjafirði og S.uður-Þingeyjar-
sýslu og á Vestfjörðum. Byrj-
aði kenslan að þessu sinni um
eða litlu fyrir áramótin og stend-
ur hvert námskeið í 1—2 vikur.
Fræðslumálastjórnin g e 1 d u r
kennurunuin venjulegt farkenn-
arakaup, en sveitir eða skólar,
sem verða kenslunnar aðnjót-
andi, sjá um dvalarkostnað
þeirra og flutning milli kenslu-
staða.
4
Nokkrir stúdentar hafa ákveð-
ið að gangast fyrir félagshreyf-
ingu, er nái vítt u’m land og
miði að því, að gera fólki kleift
að ferðast um landið á ódýran
hátt, og hvetja fólk til ferðalaga
á reiðhjólum eða fótgangandi.
Er félagsskapur þessi nefndur
farfuglahreyfingin og eru svip-
uð samtök útbreidd víða um
lönd. Þeir, sem fyrir þessum
félagsskap beita sér, liafa í
hyggju að leita samvinnu við
ungmennafélög landsins og er
fyrirhugað að fá að nota fundar-
og samkomuhús og skólabygging-
ar sem gististaði, og búa þau
eldfærum og teppum, svo að
ferðalangar geti gist þar 'með'
litlum kostnaði. í öðrum lönd-
um hafa félög þessi víða reist
sér sína eigis gististaði. Fyrsta
farfuglafélagið var stofnað af
nemendum mentaskólans í gær.
Gengu 150 manns í þetta nýja
félag. Formaður þess var kos-
inn Kristbjörg Ólafsdóttir.
iNæstu vikur verða slík félög
stofnuð víðar.
4
Fjárveitinganefnd d a n s k a
þingsins hefir ákvarðað að veita
25 þúsund krónur á ári næstu
fimm ár til undirbúnings að
samningu íslenzkrar orðabókar
og útgáfu fornaldarsagna. Eiga
þýðingar orðanna að vera bæði
á ensku og dönsku. Hafði for-
stöðunefnd Árnasafns sótt um
50 þúsund króna árlegan styrk
til þessa. Eigi nægir þó þessi
fjárveiting nándar nærri til að
standast kostnað af þessari út-
gáfu.
—Tíminn 11. febr.
Mývatn
(Grein þessi er niðurlag á
bréfi, er Jón Halldórsson, Gam-
alíelssonar, skrifar frænda sín-
um vestra 20. apríl 1913, frá
Lincoln. Jón er fæddur í Ytri-
Neslöndum við Mývatn 21.
febrúar 1838 og flutti til Vest-
urheims 1873).
Eg ætla bara að spyrja þig að
einni spurningu, hvort þér þykir
hún nauðsynleg eða ekki. Hefir
þú séð nokkurt vatn, sem kemst
í nokkurn samjöfnuð við Mý-
vatn? Eg hefi séð nokkur vötn
hér, en hefi snúið mér frá þeifm
fullur af fýlu. Tignarlega vatn-
ið hjá Milwaukee er eins og
sjórinn hjá Húsavík, nema það
vantar Yíkurfjöllin, skeljarnar i
fjörunni og tignarlegu lognöld-
una, þegar hún kemur svo hnar-
reist inn, og þó getur hver fót-
hvatur drengur hlaupið fleiri
faðma á móti henni og komið
alveg þur til baka. Vatnið hjá
Duluth, Minn, er hér um bil
steypt i sama móti. Eg hlakk-
aði mikið til að sjá Stóra Quill
Eake, en varð fyrir stórum von-
brigðum; ekki nema einn hólmi,
sem þeir; kalla eyju, engar aðrar
tilbreytingar; maður gat þó f-
myndað sér skóginn í fjarlægð
fyrir fjöll, en það var bara í-
myndun. Sólsetrið á vatninu
Ef þér og meðlimir
tjölskyldunnar
þarfnist fjárhagslegs stuðn-
ings i lifanda lífi
S júk-raluísvistar
ekknastyrks eða
hjálpar til barnanna
örorkutryggingu
ellistyrk
eða önnur hlunnindi sam-
kvæmt félagslögum vorum, þá
gangið í félagsskapinn nú
þegar.
pér getið skrifað eftir upp-
lýsingum á íslenzku, ef þér
æskið.
The Central Canada
Benevolent Ass'n
325A MAIN STREET,
WINNIPEG
var mjög fallegt. Andirnar,
þessar fáu, sýndust hræddar að
koma út úr lónum og sefi, þegj-
andi eins og steinn. Auðvitað
var kominn sept. og nóv., en
hvað gjörði það til á Mývatni?
Meðan hávellian var, var líf í
öllti, hvort sem það hafði nokkra
rödd eða enga.
Eg gleymi aldrei umskiftunum
eftir að hafa verið allan vetur-
inn (þegar maður var ekki á
skiðum eða leggjia-skautum) með
janga kverið, niðri í piltahúsi
við frosinn glugga, í djúpri
gluggatótt, eða á hellunni milli
kúnna við daufa skjábirtu.
}l4aða munur að mega vera
sunnanundir ihaðstofustafninum
daginn eftir að vátnið leysti. Sjá
sólina koma upp á Námafjall-
inu, fjöllin spegla sig í vatninu,
sem alt moraði i öndum, ekki af
einni sort, heldur 100 tegundum;
ekki þegjandi, heldur lagði
hljótninn um alt og bergmálaði
síðan frá Smjerkletti og öðrum
smærri. Ekki voru heldur þess-
ir hópar hreyfingarlausir. Steggj-
arnir rendu sér hver á annan,
hóparnir þeyttust i loft upp með
miklum dyn, eða steyptust á kaf
eins og Grímur yEgir eða Leiru-
lækjar-Fúsi. Ekki var kvöldið
eftirbátur dagsins; þá sungu
álftirnar með hávellunum vestur
á tjörnunum. Eg hefi æði víða
farið, en ekki séð neitt líkt þessu
og aldrei fundið sömu strengi
hrærast í brjósti mér við nokk-
ura náttúrufegurð eins og daginn
eftir að vatnið leysti.
Þú heldur nú að eg sé að
Uppgötvun í bragðmildi
sem þér megið
ekki án vera!
.Sfámrn fflafáefú
OLD RYE WHISKY
PRODUCT OF HIRAM WRLRER & SOHS, CAHADA
DISTILLERS 0F THE W0RLD-FAM0US
CANADIAN CLUB WHISKY
PRICE LIST OF HIRAM WALKER BRANDS
CANADIAN CLUB WHISKY
No. 265 — 40 o*........$4 .40
No. 266 — 25 o*........3.00
SPECIAL HIGHLAND WHISKY
No 320 — 40 o*.........$3.75
No. 321 - 25 o* .......2.40
SCOTTISH CHIEF WHISKY
No. 324 - 40 o*. ......$3.75
No. 325 - 25 o*........2.40
OLD RYE WHISKY
No. 267 - 40 0« ... $3.25
No 268- 25o*..........2.15
No 269— 12 o* . . 1.00
LONDON ORY GIN
No 592 — 40 o*
No 593 - 25 o*
No 594 - 12 o*
$2.90
2.00
1.00
This íitlvertisement Is not inserted by the Government Liquor Control Coiri'
mÍHHÍon. The ComnilHsion íh not rcHiíonHÍble for HtatementH made a.s to qnallty of
produetH advertised.