Lögberg - 30.03.1939, Side 5
LÖGKBERGr, FIMTUDAGINN 30. MAIíZ, 1939
5
stæla L. G. í Heimskringlu, en
eg vona aÖ þú finnir, að það er
frumminning frá Grímsstöðum
við Mývatn, ekki skáldleg,
heklur lítið sýnishorn af ein-
um degi, þó eg gleymdi að segja,
að eg lærði ekkert í kverinu
þann dag.
—Lesbók.
Bréf frá Matthíasi
Jochumssyni
til Björnstjerne Björnson
♦ -f
Akureyri, ísland,
io. okt. 1891.
Herra Björnstjerne Björnson,
Háttvirti herra!
Einn vinur minn, Jórt Björns-
son, biður mig um meðmæli, með
því að hann ætlar til Noregs sér
til heilsubótar, og langar hann
þá eins og hvern mentaðan ís-
lending til að sjá — páfann um
leið og Róm. Hann er gæfur
og skynsamur maður — fylgir
miinni frjálslyndu stefnu (sit
venia verbo).
Þökk, kæri B., fyrir alt yðar
starf! Mikil blessun er það að
hfa á vorum tímum. Sérstak-
lega þökk fyrir karlmensku yðar
og hetjuskap! Eg gæti kyst á
enni Dofrans, en þaðan eruð þér
út genginn eins og Pallas stökk
út úr höfði Seifs. Teljið ekki
þessi orð neinar öfgar, eg er
ekki skapaður til að skrafa
hversdagsmál við skáld — þó að
eg sé sjálfur aðeins einn hinna
smáu — en íslendingur getur
aldrei orðið heill, og enn síður
mikill maður, nema einhver al-
veg óvenjuleg atvik komi til. —
Eg hefi frá æsku okkar beggja
fylgt. yður með látlausum áhuga
— Ibsen líka, en andríki hans
skil eg ekki eins vel, sizt í hin-
um síðari sjónleikum hans — og
altaf, eða þvínær ávalt, hefi eg
glaðst af starfi yðar — eg segi
starfi, því að þér eruð grjótpáll
fyrir landinu, þér eruð enginn
hlutlaus, enginn draumóra andi,
heldur innblásinn athafnamaður,
mikill siðskörungur, og það er
það, sem tíminn þarfast. Og
svo eitt: Vér verðum að vera
trúarinnar og lífsins menn —
ekká erfikenningiarinnar og enn
siður trúarsetninganna, en vér
verðum að trúa lífinu, geta átt
heimq, verið alveg eins og heima
hjá okkur, hugsjónarlega talað,
í lífinu:
Sópist burtu synir þjóða,
sópist allir jafnt!
Það hið stóra, það hið góða,
það skal vinna samt!
kvað eg eitt sinn við vin. Hvað
eg hló, þegar eg fyrst heyrði um
hneykslið, sem varð þegar þér
og síðan Jianson sluppuð út úr
“þokunni.” Þessu spáði eg yður,
þegar eg 1872 naut þess heiðurs
að tala fáein orð við yður. —
(Eg hafði meðmiælabréf með-
ferðis, eg held frá hr. Vullum,
en þvi gleymdi eg). Þér höfð-
uð heyrt frá Askov, að eg væri
nokkuð frjálshuga í trúarefnum
og veittuð mér nokkra ofanígjöf.
Eins gerði Janson! 1874. En nú
— er alt í lagi — nema það, að
eg er enn prestur í kirkju vorri
— en kirkja vor á ekkert skylt
við umburðarleysi, og eg hefi
hvað eftir annað sagt opinber-
lega, hverju eg trúi og hverju
eg trúi ekki, og jafnframt lýst
yfir því, að eg stæði á hinum
sanna grundvelli mótmælendatrú-
ar, sem sé einstaklingshyggjunn-
ar í trúarefnum, sem einnig er
grundvöllur frjálsrar rannsókn-
ar. Að menn eins og þið í
Noregi fari of langt til andstæðu
hliðarinnar eftir “þokuna,” virð-
ist mér eðlisnauðsyn. Fyrirgef-
ið einurð mína. Síðasta póst-
skipið okkar er á förum og eg
á mörg bréf eftir. Þvi miður
er bókmentastarf mitt sama sem
ekkert, en ögn vinn eg þó, eink-
um með bréfum, fyrirlestrum,
prédikunum og tækifæriskvæð-
um. Eg er þó mildur og aldrei
hefir mér fundist eg vera eins
ungur og trúaður og nú. • Guð
er í öllu, hann er það sursum
corda, sem veitir huganum fró
alt til æfiloka. En vér verðum
að elska meðbræður vora og dýr-
in með og læna gæsku og fegurð
eins og góð og elskuleg börn.
Eg á 9 börn, flest ung, hefi átt
þrjár konur og er 56 ára gamall.
Getið þér fyrirgefið mœlgi mína?
Lifið heilir. Kveðja til Noregs
frá íslandi!
Yðar heiðrandi vinur,
Matth. Jochumsson
(Þýð. dr. Guðm. Finnbogasonar)
—Lesbók Mbl.
Jæja, tók Pétur litli meðalið
sitt eins og maður?
—Já, hann hagaði sér alveg
eins og hann væri vitlaus og
kastaði að lokum meðalaglasinu
út um gluggann.
KIRKJUGARÐURINN
ÞAR SEM JÓNAS
HALLGRIMSSON
ER GRAFINN
Bálfarir i Danmörku eru nú
orðnar svo algengar, að þriðj-
ungur þeirrá, sem falla frá í
kaupmannahöfn, fer ekki ofan í
jörðina. Útför þeirra fer fram i
bálstofu.
Afleiðingin verður sú, að hætt
verður að nota Assistents Kirke-
gaard se'mi grafreit. En þar var
þjóðskáldið Jónas Hallgrimsson
jarðsettur.
Reyndin er sú, að grafhelgi
stendur sjaldan marga manns-
aldra. Ássistents Kirkegaard
verður breytt í skrúðgarð. Leg-
steinar fara og leiðin verða jöfn-
uð við jörðu. Þetta er sama
sagan og í Reykjavík, þegar
“Bæjarfógetagarðinum” við Að-
alstræti og í Kirkjustræti var
breytt í skrúðgarð. Þar sjást
nú engin verksummerki leið-
anna.
Ajssistemts (Kirkegaard er í
þéttbýlum hluta Kaupmanna-
hafnar, og því kærkomið að fá
þar skemtigarð handa almenn-
ingi.
Morgunbl. 5. marz.
VILHJALMUR ÞÓR
A AÐ SEMJA UM
AMERISKA LANIÐ
Dr. Wright og félagi hans
voru á fundi með ríkisstjórn-
inni í gær út af lánstilboði þeirra.
Óskaði Mr. Wright eftir þvi, að
rikisstjórnin feli Vilhjálmi Þór
framkvæmdarstjóra að semja við
hinn ameríska banka um hið um-
talaða stórlán. Telur hann að
með því móti muni beinir samn-
ingar geta hafist milli ríkis-
stjórnarinnar og hins ameríska
hanka.
Munnlegt loforð hefir ríkis-
stjórnin gefið um það að hún
gæfi hinum ameríska banka á-
kveðið svar um lán þetta, áður
en hún kynni að leita til annara
uiru lán.
.Er heimildamaður blaðsins að
þessari frétt var spurður að því
hver hinn ameríski banki væri,
sagði hann að dr. Wright vildi
ekki segja frá því. En undir
eins og Vilhjálmur Þór fengi
umboð rikisstjórnarinnar til þess
að semja um lánið, þá yrði hon-
um vísað á bankann þar vestra.
Morgunbl. 10. marz.
“Það er leiðinlegt, að þér skul-
i;ð ekki kunna að spila whist,
annars gætuð þér spilað með
okkur i kvöld.”
“Því skyldi eg ekki kunna
whist! Þér hljótið að muna eftir
því, að við spiluðum saman
whist í fyrravetur?”
“Já, einmitt þess vegna veit
eg að þér kunnið ekki whist.”
♦ 4-
Frúin (æf) : Það er engu lík-
ara en að þér imyndið yður,
stúlka mín, að þér séuð frúin
hér í húsinu!
Stúlkan: Nei, það hefir mér
aldrei dottið í hug!
Frúin: Jæja, mikið var! En
munið þ álíka eftir því fram-
vegis, að hegða yður ekki eins
og skessa.
, Hafið þér reynt vort nýja
Butter-Nut Loaf?
««
Auðugt að smjörgæðum . . . Sœtt eins og hnota”
► Ópakkað ► Pakkað ► Sneitt og pakkað
Ljúft í samsetningu . . . Ljúffengt á bragðið
Sparar mikið, líka
Er ljuffengt í Sandwiclies og óviðjafnanlegt í Toast
REYNIÐ LOAF Á MORGUN!
CANADA BREAD
COMPANY LIMITED
IIRINGIÐ 39 017 OG LATIfí EINN AF VORUM 100 PRÚfíU UMBOfíSMÖNNUM HEIMSÆKJA YfíUR DAGLEGA
GrlFTINGA- OG AFMÆLISKÖKUR BÚNAR TIL SAMKVÆMT PÖNTUN FRANK HANNTBAL, Mgr.