Lögberg - 18.05.1939, Blaðsíða 2
LÖGBERGr. FIMTUDAGINN 18. MAl 1939
9
Samtíningur
Eftir Ólaf Friðriksson
Búskapur og daglegt líf Is-
lendinga í Grænlandi hefir aÖ
mörgu leyti veriÖ eins og tííSk-
aðist hjá íslendingum hér á
landi um sama leyti. Um stærÖ
búanna í Grænlandi vita menn
af f jósrústum, er enn standa þar.
Hafa básarnir verið af sömu
stærÖ og hér tíÖkaÖist. VíÖa
hefir milligerðin milli þeirra ver-
ið stórar hellur, og standa þessar
hellur sumstaðar enn i dag, eins
og upprunalega var frá þeim
gengið. Um mörg þessara fjósa
má segja, að lítið vanti á að
þau séu nothæf, annað en efsta
steinlagið og þakið.
Á stærstu bæjunum i Eystri-
bygð hafa verið tíu til tuttugu
nautgripir, en i Vestribygð hafa
búin yfirleitt verið minni. Á
biskupssetrinu Görðum, er tóft
af tveimur fjósum og hefir þar
verið rúm fyrir um hundrað
nautgripi. Við stærra f jósið var
sambygð hlaða, og er þetta
lengsta húsið sem menn vita um
í Gænlandi. Hefir það verið
sextíu og fjórar stikur á lengd.
4
Einkennilegt er að fjósarústir
eru miklu greinilegri í Græn-
landi, en rústir íbúðarhúsa, sem
flest eru ekki annað en ógreini-
legir haugar. Mun þetta stafa
af því, að meira hefir verið not-
að af timbri í íbúðarhúsin, en
meir aftur af grjóti í úthýsi, en
skipulag ibúðarhúsa hefir komið
mjög greinilega í ljós þegar
grafið hefir verið í þessa hauga.
Danski fræðimaðurinn Daniel
Brun hefir sýnt fram á, að bygg-
ingarlag hefir fylgst mjög að á
íslandi og Grænlandi, þannig að
landnemar á Grænlandi hafi í
fyrstu fylgt nákvæmlega bygg-
ingarhætti, eiíis og hann tiðk-
aðist á íslandi. En á sama tíma
og byggingarlag fer að breytast
hér, frá því að vera skálabygg-
ing, í áttina til bæjarhúsa, eins
og hafa tíðkast fram á vora
daga, fara byggingar í Grænlándi
að breytast í sömu átt. En
þetta skeður aðallega á tólftu
öldinni, og virðist benda á mjög
náið samband milli íslendinga
hér og í Grænlandi, þvi hvor
tveggju þessara byggingarað-
ferðir eru sérkennilegar fyrir
ísland, og þekkjast ekki nema í
þessum tveim löndum.
4
Elzta hús, sem rannsakað hef-
ir verið i Grænlandi, er álitið
vera skálinn í Brattahlið, sem
menn ætla að sé frá dögum Ei-
ríks rauða. Hann er sextán
stikur á lengd og fimm á breidd
með þykkum grjót- og torf-
veggjum. Hólðir hafa verið á
tveim til þrem stöðum á gólfinu.
Vatnsleiðsla hefir verið i skál-
anum. En lítif'lind, sem kemur
upp undir öðrum hliðarveggnum
hefir verið leidd eftir hellulagðri
lökaðri rennu, í steinsetta þró á
miðju gólfi, og siðan aftur í
lokaðri rennu út í vegg and-
spænis, og niður i jörðina. Hefir
verið svo vel frá þessu gengið
að vatnið rennur þama enn í
dag, þó hellurnar séu farnar
ofan af.
4
Af rústum í Islendingabygð er
einna greinilegust tvilyft skemma
úr grjóti, sem er við smáfjörð
einn, sem gengur norður úr
Rangafirði i Vestribygð, og nú
hrunið af efri hæð hússins.
Önnur bygging, sem stendur vel
er Hvalseyjarfjarðarkirkja sem
minst hefir verið á. Er hún
múruð úr kalki, sem brent hefir
verið úr skeljasandi og hefir
verið búið til þar á staðnum.
Geta má að grænlenzku stein-
húsin hafa fæst verið kölkuð.
4
Það er enginri efi á því, að
þorskurinn er lang merkilegasta
skepnan, sem við íslendingar
fáumst við, bæði á sjó og landi.
Þrátt fyrir aflaleysið i fyrra,
nam útfluttur þorskur og þorsk-
afurðir 23 til 24 milj, króna, en
alls fluttum við út fyrir tæpar
58 milj. kr. Fyrir hverjar tíu
krónur, sem landið fékk af er-
lendum gjaldeyri, fengum við
því fjórar krónur fyrir þorsk.
En rétt er 'að geta að það sem
við höfum fengið fyrir útflutta
síld, er farið að nálgast mjög
það sem við höfum fengið fyrir
þorskinn
V
Fýrir nokkrum árum var sýnd
kvikmynd hér í Reykjavik er
gerðist austur í Bagdad. Sást
þar maður rogast með heljar-
mikinn þorsk, og stóð það at-
riði leiksins svo lengi, að auðvelt
-------------------------------
var að sjá hvaða fisktegund það
var. Heyrði eg þá mann sem
eg þekti, sem sat fyrir aftan
mig, segja við sessunaut sinn,
að þetta þætti sér langmerki-
legast, að það skyldi vera þorsk-
ur þarna suður í Bagdad. En
þarna var skekkja í myndinni;
hún hafði verið leikin í Eng-
landi, og notaður sá fiskur, sem
auðveldast var að ná í þar.
4
Heimkynni þorsksins er norð-
anvert Atlantshaf, bæði að aust-
an og vestan. Hérna megin þess,
er hann frá Svalbarða suður
undir Spán, en að vestan er
hann frá Grænlandi, suður fyrir
Boston. Aðalheimkynni hans
má segja að séu þar, sem eru
aðal-gotstöðvar hans, en það er
við Lófót í Noregi, við suður-
og suðvesturströnd Skotlands, og
vestan hafs við suðausturströnd
Nýfundnalands. Þorskur er
líka í Kyrrahafi norðanverðu, og
er annarsvegar suður undir
Japan, en hinsvegar nokkuð suð-
ur á strönd Bandarikjanna vest-
anverðra. Þorskur er ekki í
Miðjarðarhafi, og hvergi á suð-
urhveli jarðar.
4
Stærsti þorskur, sem mældur
hefir verið var um 2 stikur á
lengd og vóg 75 kg., hann veidd-
ist við Nýfundnaland. Ekki er
kunnugt um að hér við land
hafi verið mældir þorskar, er
voru lengri en i/2 stika. Þorsk-
ur sem- fékst vestur á fjörðum
var aðeins 4 kg. léttari en þessi
Nýfundnalands-fiskur, en hann
var aldrei mældur.
4
Þorskurinn er átta ár að verða
kynþroska. Yngsti vertíðarfisk-
urinn hér sunnanlands er því i
ár fæddur 1931, og hefir komið
í ljós, að af fiski þeim, sem
veiðst hefir hér nú á vertíðinni,
er um f jórði hluti 8 ára, og ann-
ar fjórði hluti níu ára. Það er
því um helmingur af þeim
þorski er veiðist nú fæddur árið
1930 og 1931.
4
Ekki er vitað fyrir víst hvað
Islendingar veiða marga þorska á
ári, en það eru að minsta kosti
35 milj. En alls mun veiðast
hér við land af íslendingum og
útlendingum ekki minna en 65
milj. þorska, en sumir áætla
þetta 70—80 miljónir, en allur
þorskafli heimsins er talinn af
sömu mönnum 300—400 milj.
þorska.
4
Sagt er að í Noregi hafi fram
undir 120 þús. karlmenn at-
vinnu við fiskveiðar, en 63 þús.
hafi þær að aðalatvinnu. Mikill
hluti þessara manna stunda þó
jafnframt einhvern búnað, en
35 þús. hafa fiskiveiðar einar að
atvinnu.
4
í Noregi hafa verið miklar
umiræður um það hvort taka
skuli upp botnvörpuveiðar þar í
landi, og hefir opinber nefnd
haft málið til meðferðar. Aðal-
KAUPXÐ AVALT
LUMBER
THE EMPIRE SASH & DOOR CO. LTD.
HENRY AVENUE and ARGYLE STREET
Winnipeg, Man. - Phone 95 551
B. DALMAN
Umboðsmaðw
SELKIRK, MAN.
THE GREAT WEST LIFE ASSURANCE COMPANY