Lögberg - 22.06.1939, Síða 5
LÖQBEBG, FIMTUDAOINN 22. JtJNÍ, 1939
5
Aldarandinn
“Vindurinn blæs og þú heyrir
hans þyt, en þú veizt ekki hvaðan
hann kemur eða hvert hann fer.”
Nú á tímutn vita menn meira um
veðrið en þegar þessi orð voru
sögð í fyrsta sinn. Menn vita
ýmislegt nú um ferðir vindanna
fram og aftur um gufuhvolf
jarðarinnar, af hverju vindarnir
blása, hvaðan þeir koma og hvert
þeir fara, Aftur á móti mætti
segja hið sama nú um aldarand-
ann, eins og sagt var um vind-
ana þá. Vér heyrum þyt aldar-
andans og vér finnum til hans,
þegar hann strýkur oss um vang-
ann, ýmist mildur og mjúkhent-
ur eins og andblær vorsins, eða
þá grimmur og gustmikill eins
og svalvindur haustsins seml eyð-
ir öllum gróðri og slær fölva á
grundir þær, sem áður voru
grænar.
Öllum er það ljóst að aldar-
andinn er voldugur og sterkur.
Hann getur ætt yfir jörðina í
einum svip heimskautanna milli.
Hann getur sópað mannfólkinu
saman í hjarðir eins og þegar
fjárhópa hrekur undan fárviðri.
— “En þú veizt ekki hvaðati
hann kernur, eða hvert hann
fer.”
Engin bönd halda mönnunum
eins fasfc og fjötrar aldarandans.
Úr hverju eru þeir gerðir þessir
níðsterku fjötrar, sem mennirnir
hneppa á sjálfa sig? Úr hverju
eru þeir gerðir hinir gyltu hlekk-
ir ?
Efni þessara fjötra er ósýni-
legt, eins og nýju fötin keisar-
ans. Það er ósýnilegt og að þvi
er virðist óraunhæft, eins og
fjöturinn Gleipnir.
Aldarandinn er alstaðar ná-
lægur og lætur öll mannleg við-
fangsefni til sín taka. ÖIl mann-
anna verk eru að meira eða
minna leyti unnin í hans anda.
Enginn einvaldur hefir nokkurn-
tíma haft eins mikil vold eins
og hann, enginn harðstjóri hefir
komist þangað með tærnar, sem
hann hefir hælana. Og eins og
flestir harðstjórar er hann óút-
reiknanlegur og dutlungafullur.
Hann leikur á hljóðfæri sitt
meðan borgirnar brenna. Hann
hefir ánægju af því að láta
mennina dansa. Æskumanninn
með gleðina í faðmi sér og lífið
fraimmdan. Öldunginn méð
gleðina að baki sér en gröfina
framundan — og allir þar á
milli — allir dansa, og allir
dansa ef.tir hans hljóðpípu.
Þegar aldarandinn er í víga-
hug, þykir það ekkert tiltökumál
þó að mennirnir berist á bana-
spjótum. Þá heitir það hetju-
dáð að ræna þorp, brenna borgir,
rnyrða menn og svívirða konur.
Skálmöldin skiftir þá um nafn
ogí heitir gullöld, frægðaröld eða
eitthvað þessháttar. Góðvild og
kærleiksverk eru talin hæfa kon-
um einum og sá, sem ekki vill
gera á hluta annara manna, er
nefndur meinleysingi, sem er þá
um leið óvirðingarorð. Eigin-
girnin situr í hásæti. Kærleikur-
inn ískammarkróknum. Sverðið
og byssan, rándýra- og rán-
fuglamyndir prýða híbýlin og
samkunduhús þjóðarinnar ytra
og innra. Fánar og skjaldar-
merki eru skreytt með samskon-
ar djásnum. Tákn þjóðanna
benda til ráns og víga, en ekki
til ræktunar eða friðsamlegra
starfa.
Tízkan er ytra gerfi aldar-
andans. Þar speglast dutlungar
hans bezt. Eru það ekki t. d.
hlálegir dutlungar að stinga ofur-
litlum rjúkandi eldibrandi upp í
munninn á unglingunu'mi strax
og þeir komast á legg. Hvílík
ógrynni verðmæta, sem brenna í
vindlingum á hverju ári. Hundr-
uð miljóna, þúsundir miljóna í
eld og ösku. Auk þess óbeinu
afleiðingarnar: Óloft og reykja-
svæla, lungnakvillar, húsbrunar,
skógareldar — hvað er að fást
um það — einvaldurinn skipar
fyrir og mennirnir hlýða.
Stundum er hann góðlátlega
glettinn, og kippir í höfuðfötin
svo að allir hattar og húfur
hallast ofurlítið út í annan vang-
ann. Stundum sker hann allar
brækur nærskornar, stundum
pilsvíðar. Stundum lætur hann
stúlkurnar sópa strætin :með
kjólum sínum, stundum stýfir
hann þá þá um hnéð, stundum
lætur hann hár þeirra vaxa,
stundum klippir hann það af, en
altaf er það fegurst og bezt sem
hann vill.
Tízkan grípur alstaðar inn i
og er óendanlega breytileg. Hún
skráir ártalið á öll mannanna
verk. Hún setur sinn svip á
býggingarlist, tónlist, högg-
myndalist, málaralist og ritlist.
Allan iðnað, klæðaburð, heimilis-
líf, félagslíf og þjóðhætti. Breyti-
þróun aldarandans má lesa út úr
mannvirkjum liðinnar tíðar,
þeim sem varðveizt hafa og
staðist tímans tönn, og einnig af
blaðsíðum hinnar skráðu mann-
is the rare old rye
you’ve always wanted . . m.
¥// V/yV/ ■
OLD RYE WHISKY jffk 4
PRODUCT OF HIRAM WALKER & SONS, CANADA J/
DISTILLERS OF þjSS^Ujjjtól‘fíj
HIRAM WALKER'S LONDON DRY GIN ^<Smj//
No. 302—12 oz. $1.00 No. 301—25 oz. $2.15
No. 30Ó—40 oz. $3.25
Thie advertisement is not inserted by the Government Liquor Control Commission. The
Commission is not responsible for statements made as to quality of products advertised.
Choose a "GLIDER"
La§l Word in a Modern Bicycle!
British built to Eaton specifications,
and equipped with electric lamp, pump,
tool bag, wrenches and oil can. i_,atest
refinements—new, smart finishes.
Men’s Glider $27.95
Women’s Glider $27.95
Double Bar Glider $33.95
Glider “Balloon” $37.50
Glider Roadster $35.00
Juvenile Glider $27.95
BUDGET PLAN AVAILABLE
Sporting Goods Section,
Third Floor, Hargrave
<T. EATON C°u»™
kynssögu þó stutt sé og ófull-
komin.
Þegar litið er yfir þessa
breytiþróun kemur grunntónn
aldarandans í ljós á hverjum
thna. Grunntónn þessi er all-
breytilegur, en meginandstæðurn-
ar eru tvær: Vöxtur og hnignun.
Annarsvegar vorblærinn með
gróandann sem förunaut, hins-
vegar haustið með stirðnun
hríms og frera. 1 rás viðburð-
anna er vetur, sumar, vor og
haust, alveg eins og í rás misser-
anna. En árstíðir þessar taka
yfir langt tímabil í viðburðarás
lífsins og er þess vegna örðugra
mannlegri skynjun að fá yfirlit
yfir þær heldur en hinar öru
breytingar sem 'fylgja afstöðu
jarðarinnar við sólu. Þó er
mannlegt sjónarsvið það stórt
að mikinn og margbreytilegan
fróðleik má lesa út úr skauti for-
tíðarinnar um ris og hnig hinnar
siðferðilegu þróunar á umliðnum
öldum.
Fyrir þúsund árum fóru fs-
lendingar ekki vopnlausir milli
bæja. Það var ógætilegt. Búast
mátti við launsátri eða atför, alt
af gat slegið í bardaga. Þetta
var á hinni svonefndu gullöld.
Þá þótti ekkert tiltökumál þó að
maður væri veginn Mannvíg
máttu heita daglegir viðburðir.
íslendingar hafa tekið miklum
siðferðisþroska síðan. Nú er
það glcepur að verða manns bani
með ráðnum huga. Eymd og
niðurlæging miðaldanna hefir þó
að einu leyti orðið íslenzku þjóð-
inni til góðs. í þeim hreinsunar-
eldi þjáninganna brann vígahug-
ur þjóðarinnar að mestu og rís
vonandi' aldrei aftur upp af ösk-
unni. Þó lifir enn þá örlitið í
glóðinni, Enn þá er víkings-
nafnið hrósyrði Ennþá er víg-
öldin stundum nefnd gullöld.
Hvað mætti þá kalla nútíðina
þrátt fyrir alt? Ætli það yrðu
margir sem vildu skifta ef þeir
ættu kost á að flytja sig aftur
á við úr “kreppunni” 1936 og
yfir í “gullöldina” 1036?
En þótt vígöldin sé liðin undir
lok á lslandi þá er síður en svo
að henni sé enn þá aflétt. Á
tíma þeim sem yfir stendur,
geysar • nú vígöld meðal hinna
stóru þjóða. Aldarandinn er
grimmur; þessu fylgir hin mesta
óáran í mönnum, dýrum og öll-
um jurtagróðri. Náttúruinnbrot
eru nú hamröm, veðrátta víða
óhagstæð og slysfarir tíðar.
Sjúkdómar færast í aukana
Nýir kvillar gjósa upp þegar
minsb varir. Þegar vörn er
fundin við einum faraldri er
annar kominn í staðinn. Þetta
gildir jafnt um jurtir, dýr og
menn. Þó mun þetta sjúklega
ástand koma einna þyngst niður
á mönnum, enda ganga þeir all-
oft í lið með ófögnuðinum og
sýkja sjálfa sig vitandi og óaf-
vitandi, þar sem aftur á móti
jurtir og dýr lúta heilbrigðri
eðlisávísun í lifnaðarháttum,
meðan sjálfstæði þeirra er ekki
brotið á bak aftur af öðrum öfl-
um þeim sterkari.
Óáran þessari virðist fylgja al-
menn hnignun. Réttlætistilfinn-
ing sljófgast, stöðugt fækkar
þeim, sem meta betur það sem
vel er gert, og trúmenska í
verki verður urn leið sjaldgæfari.
Samkepnin harðnar, leikirnir
taka á sig hernaðarsnið. Nautna-
fýsn eykst. Drykkjuskapur
magnast og glæpir færast í vöxt.
Eistirnar dragast niður á við og
um leið verður tízkan ófögur.
Sannri fegurð og hreysti er
hnekt með sjúklegum lifnaðar-
háttum sem kosta þó offjár, en
síðan er á eftir reynt að bæta
skaðann með ýmsumi annarlegum
læknisdómum og hjákátlegu
fegrunarkáki, sem oftast er ekki
til annars en gera ilt verra, en
kostar þó stórfé. Það er jafnvel
reynt að eftirlíkja hinn heil-
brigða roða æskublóðsins með
rauðri málningu!
—Gangleri.
15. þing B.L.K.
16.—19. júni, 1939
í Fyrstu lút. kirkju, Winnipeg.
Skýrsla skrifara sýndi að 20
kvenfélög heyra til Bandalaginu;
er meðlimatala þeirra 545. Tvö
af þessurn félögum gengu i
Bandalagið á þessu þingi: Junior
Ladies’ Aid, Fyrsta lút. safnað-
ar og kvenfélag Fríkirkjusafn.,
Brú.
19. félög sendu mjög ágætar
skýrslur.
17 félög sendu fulltrúa, 28 að
tölu:
Kv. Fyrsta lút. safn. — Mrs.
Jakobína Breckman, Mrs. Kr.
Hannesson, Mrs. G. Johannson.
Mrs S.. Backman.
Junior Ladies’ Aid, Fyrsta.
lút. safn.—Mrs. B. Guttonnson,
Mrs. G. F. Jonasson, Mrs. J. G.
Snidal.
Kv. Árdal safn.—Mrs. M. M.
Jonasson, Mrs. G. Thorsteinson.
Kv,. Framsókn, Gimli — Mrs.
\Vr. Jonasson, Mrs. L. Stevens.
Kv. Björk, Lundar—Mrs. L.
Ingimundarson.
Kv Isafold — Mrs. Aldís
Peterson.
Missionary Society, Fyrsta
lút. safn.—Mrs. H. Olson.
Kv. Glenboro safn.—Mrs. Sig-
ríður Pálsson.
Kv. Fjólan, Brown-—Mrs. Jó-
hanna Qlafson, Mrs. Sigríður
Johnson.
Kv. Frelsis safn. — Kristín
Christopherson.
Kv. Freyja, Geysis P.O. —
Mrs. Helga Jacobson.
Kv. Baldursbrá — Mrs. Th.
Sveinsson.
Missionery Society, Emrnan-
uel safn. — Mrs. Ásibjörg Jó-
hannesson.
Kv. Bræðra safn., Riverton—
Mrs. E. Thorbergson, Mrs. H.
Hallson'
Kv. Herðubreiðar safn. Lang-
ruth—Mrs. J. Hannesson, Mrs.
B. Eyjólfson.
Kv. Undína, Hecla — Mrs.
Skúli Sigurgeirson.
Kv. Fríkirkju safn., Brú —
Mrs. H. C. Josephson.
Einstakir meðlimir—Mrs. E.
S. Jonítöon, Gimli; Mrs. C.
Chiswell, Gimli; Mrs. I. S.
Erickson, Arborg; Mrs. Olafson,
Garðar; Mrs. Oddson, Wpg.;
Miss S, Johnson, Árborg.
15 einstaklingar tilheyra B. L.
K., 4 af þeim gengu í Banda-
lagið á þessu þingi; voru 7 af
þeim á þingi. 5 prestkonur voru
einnig viðstaddar Mrs. Sig-
urður, forseti Selkirk kvenfélags
sat þing í boði Bandalagsins.
(Framh.)
CHILDREN’S EXHIBITION
AT THE AUDITORIUM
ART GALLERY
A visit to the exhibition of pic-
tures and designs by children now
showing in the Art Gallery, Civic
Auditorium, is at once a delight-
ful and inspiring experience. The
collection is of work done in the
special Saturday morning classes
conducted by Alex J. Musgrove
with art student assistants, in the
Art Gallery during the winter
months. Young artists from 7 to
14 years of age, are brought to-
gether each Saturday from public
and separate schools throughout
Greater Winnipeg. Over 300
attended during the season just
ended, including pupils from
Winnipeg, St. James, St. Boniface,
Norwood, Kildonan, St. Vital and
Fort Garry. These classes form
the most important educational
activity in the Gallery’s pro-
gramme and owing to the gener-
osity of the Carnegie Corporation
of New York, which through its
Canadian Committee provided a
Grant towards the work, they
have so far been free. It is hoped
by the Governing Board 4hat
citizens by becoming members of
the Art Gallery Association and
by donations, will enable it to
continue providing these free
classes for the youngsters.
The gallery is open Monday to
Friday from 2 to 5:30 p.m., and
Monday, Wednesday and Friday
evenings from 7:30 to 9:30 p.m.
during the summer months. It is
closed on Saturday and Sunday
afternoons. A. J. M.
—Það er víst ekki um annað
að gera fyrir okkur, stjórnar-
menn hér á Spáni, en að taka
inn eitur.
—Þvættingur! Við náum víst
háttum í helvíti, þó að við bíð-
um eftir Franco!