Lögberg - 31.08.1939, Qupperneq 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 31. ÁGÚST, 1939
3
Islenzki karlakórinn
í Norður Dakota
syngur í Bismarck
Eins og margir vita er nú í
ár 50 ára afmæli Norður
Dakota ríkis. Fram að árinu
1889 var þetta umdæmi kallað
Dakota. Territory. Þá skiftist
það stóra svæði í tvent og
mynduðust tvö ríkin Norður-
og Suður Dakota, og urðu upp
frá því bæði fullveðja ríki í
sambandinu sem kallað er
Bandarílci Norður Ameríku —
“The United States of North
America.”
Viðsvegar um ríkið hafa svo
verið ýms hátíðarhöld út af
50 ára afmælinu. En aðal há-
tíðahöldin fyrir ríkið í heild
sinni fóru fram í höfuðborg-
inni, Bismarck, N.D., dagana
21,—25. ágúst.
Hinum ýmsu þjóðarbrotum,
sem eiga heima í þessu ríki,
var sérstaklega boðið að taka
þátt í þessum hátíðahöldum,
á þann hátt að koma þar fram
með þjóðlegar skemtanir, hver
fyrir hönd síns þjóðflokks.
Áttu þjóðarbrotin að koma
fram með söngva, dansleiki og
annað, sem l>æri á sér þjóð-
legan blæ. Guðmundur dóm-
ari Grímson varð ^>ess var
nokkru fyrir hátíðahöldin að
margir þjóðflokkarnir höfðu
ákvarðað að taka þessu boði,
og fanst honum það leitt að
fslendingar, sem löngum hafa
haft á sér gott orð í ríkinu
skyldu í þessu efni reynast
eftirbátar annara. Og vegna
hans mikla og velþekta þjóð-
ernisáhuga, fór hann því að
talfæra þetta við íslendinga,
hvar sem leið hans lá; og loks
fór svo, fyrir tillögur hans að
það skipaðist þannig til að
Karlakór íslendinga í Norður
Dakota lofaðist til að fara til
Bismarck og taka þátt í þess-
um hátíðahöldum fyrir hönd
íslendinga, ef hægt væri að
safna nokkru fé til að hjálpa
til með kostnað, sem ferðin
hefði i för með sér.
Þess er vert að minnast, að
það eru nálega 300 mílur til
Bismarck frá þessu umhverfi
hér, ferðin hlaut því að taka
að minsta kosti tvo daga; og
til fararinnar þurfti að minsta
kosti 8 stóra bila. Þess ber
einnig að minnast að flestir
meðlimir karlakórsins voru
um þessar mundir í sökkvandi
annríki við þreskingu, og því
alls ekki hægt um vik að
hverfa frá verkum tvo eða
þrjá daga. Rúma viku áður
en lagt var af stað komu með-
limir kórsins saman til að æfa
sig svo að segja að nóttu til,
eftir að vinna erfiða vinnu í
hitaveðri allan daginn. Var
þetta næsta erfitt, en menn
ræktu það engu að síður með
mikflli trúmensku, og má
segja, að það væri meðlimum
kórsins til inikillar sæmdar.
Hr. Ragnar H. Ragnar var
nýlega horfinn aftur til Win-
nipeg eftir sumarstörf sín hér
í þjónustu þjóðræknisdeildar-
innar. En þegar í stað lof-
aðist hann til að sleppa öllu,
sem fyrir hendi væri þar
norður frá og koma hingað
og dvelja hér alt að tveggja
vikna tíma til að æfa kórinn
og ferðast með honum til
Bismarck og stýra söngnum
þar. Alt jietta bauðst hann
til að gera án endurgjalds.
Var það vel og fallega boðið
og þakksamlega þegið.
Fljótlega eftir að karlakór-
inn hafði látið til leiðast að
fara í þessa ferð, varð það
niðurstaða þeirrar nefndar er
hafði þetta mál með höndum,
að til þess að gera þepna þátt
íslendinga í þessum hátíðar-
höldum veglegri, ætti að vera
með flokknum Fjallkona og
hirðmeyjar er tækju þátt í
skemtiskránni. Varð nefndin
einróma um það að biðja Mrs.
H. Sigmar að taka að sér
Fjallkonu-hlutverkið, og lét
hún til leiðast, þó hún væri
nýkomin heim úr löngu ferða-
lagi. Hirðmeyjarnar, sem
voru fengnar til að vera með
henni voru þær Miss Kathryn
Arason frá Mountain og Miss
Lorraine Anderson fra Bis-
marck. Miss Arason er píanisti
karlakórsins, en Miss Ander-
son hafði líka verið beðin að
syngja sóló-söng í íslenzka
prógrams - þættinum. Komu
þær báðar fram í fallegum, ís-
lenzkum búningum, — Miss
Arason í upphlut en Miss
Anderson í skautbúningi. En
þegar til þess kom að klæða
Fjallkonuna í viðeigandi' bún-
ing, var nefndin i vanda stödd.
Virtist enginn kostur á þvi, að
gera það svo sómasamlega að
vel mætti við una, nema sá
einn að fá lánaðan Fjallkonu-
búninginn hjá fslendingadags-
nefndinni í Winnipeg. Var
svo til þeirrar nefndar leitað.
Hún brást vel við og lánaði
búninginn. Kom hr. Jón Sam-
son forseti fslendingadags-
nefndarinnar með búninginn
suður samkvæmt óskum
nefndar sinnar. Fór hann
með til Bismarck og tók þátt
í athöfninni þar, og flutti síð-
an búninginn aftur til Winni-
peg. Er nefndin hér innilega
þakklát við fslendingadags-
nefndina fyrir þessa hjálp-
semi og góðfýsi, sem varð til
svo góðrar hjálpar við þátt-
töku fslendinga í þessum há-
tiðarhöldum ríkisins.
Eins og til stóð lagði hópur-
inn íslenzki frá Pembina Co.
á stað mánudagsmorguninn
21. ágúst. Munu hafa verið
um 50 manns er fóru í 11 bíl-
um. Voru það alt fslending-
ar úr Pembina Co. nema 4
menn er voru með frá Winni-
peg, — Jón J. Samson, sem
áður var nefndur, Ragnar H.
Ragnar söngstjóri, Dr. M. B.
Halldorson, sem ávalt ber
mjög hlýjan hug til þessa ríkis
og S. .1. Sigmar, sem Mr.
Ragnar hafði óskað að syngi
með flokknum við þetta tæki-
færi. Veður var hið bezta,
vegir greiðfærir og góður andi
ríkjandi hjá öllum. Ferðin
gekk vel og til Bismarck komu
allir nála'gt kl. 5—fi e, h. á
mánudagskveld.
Þegar til Bismarck kom
voru móttökur bæjarins og
júbíl-nefndarinnar þar ágætar
og bænum og nefndinni til
mikillar sæmdar. Nefndin
lagði fslendingum til Paul
Halldorson i Bismarck sem
leiðsögumann meðan þar væri
dvalið. Fæði gaf hún öllu
fólkinu sem tók þátt í pró-
gramminu, og húsnæði veitti
hún án endurgjalds meðlirn-
um karlakórsins. Hún út-
vegaði pláss i góðu gistihúsi
fyrir kvenfólk er var með í
förinni og einnig þá karlmenn,
sem voru með í ferðinni en
voru þó ekki meðlimir karla-
kórsins. Var öll aðbúð góö,
og vingjarnleg og kurtefs
framkoma þeirra er mest varð
að'umgangast. Salur í Meth-
odista kirkjunni var íslend-
ingum lánaður til að koma
saman í og æfa sig hvenær
sem þess væri óskað.
Þriðjudagurinn 22. ágúst
var dagur sem hin ýmsu þjóð-
arbrot í ríkinu áttu að taka
þátt í skemtiskrá og öðrum
hátíðarhöldum. Var sá dagur
ágætur rigningardagur í Pem-
bina Co. sem öllum þótti víst
vænt um. Ert í Bismarck var
það fádæma blíður, svalur og
sólskinsríkur dagur. Voru
landarnir allir þar á ferð og
flugi frá morgni til miðnættis.
Fyrir hádegi a>fðu þeir sig,
sem áttu að taka þátt í sþemti-
skránni, og fa>rðu sig í sina
einkennisbúninga.
Rétt eftir hádegi söng karla-
kórinn og Mrs. H. Sigmar í
útvarp KFYR stöðvarinnar í
Bismarck, samkvæmt tilmæl-
um þeirrar stöðvar. Mætti
hópurinn þar mjög alúðlegum
og góðum viðtökum eins og af
hendi borgarinnar og júbíl-
nefndarinnar. Nálægtj kl. 1.30
byrjaði skrúðför dagsins.
Tóku fslendingar þátt í henni
á þann hátt að Fjallkonan á-
samt hirðmeyjum sínum var
keyrð í fögrum, opnum bíl,
sem vár skrýddur íslenzkum
fána. Hafði júbílnefndin út-
vegað og lagt til þennan bíl.
Sat Fjallkonan í upphækkuðu
sæti og hirðmeyjarnar litið
eitt lægra til beggja handa. í
fremra sæti bilsins sátu Guð-
mundur dómari Grimson, sem
var foringi þessarar farar og
séra H. Sigmar frá Mountain.
Á undan bílnum gengu fjórir
stórir og hraustir fslendingar
úr karlakórnum. Bar einn
þeirra íslenzkan fána á stöng
með ágætu dreka-höfði er Mr.
G. B. Olgeirson hafði útbúið.
Annar bar ameríska fánann.
Hinir aðrir meðlimir karla-
kórsins gengu í fylkingu á
eftir bílnum. Að því er við
bezt vissum gengu menn um
3 mílur í þessari merkilegu
skrúðgöngu, og eru allar líkur
tiL að margar þúsundir manna
hafi horft á þessa skrúðför,
því alstaðar var múgur og
margmenni á götum borgar-
innar.
Undir eins og skrúðförin
endaði, byrjaði hið svonefnda
“All Nations’ Program.” Voru
landarnir fyrstir á þeirri skrá,
og urðu því að byrja meðan
þeir voru göngumóðir. En
það virtist ekki fá mikið á
landann! Byrjaði þáttur þessi
á þann hátt að forseti sam-
komunnar sagði nokkur orð
til skýringar um þenna þátt
íslenzku sveitarinnaú Steig
þá Fjallkonan frain og fylgdu
henni hirðmeyjar hennar. Á
eftir kom karlakórinn. Stað-
næ>mdist fylking þessi á hin-
um stóra söngpalli. Stóð Fjall-
konan fremst, hirðmeyjar
hennar lítið eitt aftar til
beggja handa, og loks kórinn
í bogamyndaðri röð á bak við.
Söng þá Fjallkonan: “ó Guð
vors lands,” og kórinn söng
undir i veikum (pianissimo)
róm. Var söngur sá fagur og
áhrifaríkur. Þá söng karla-
HAGKVÆM
HRESSING
5
STÓR GLÖS
8c
kórinn Landsýn eftir Grieg.
Næst söng Miss Lorraine
Anderson “Bí, bí og blaka.”
En að því loknu söng karla-
kórinn aftur og þá:,“Brennið
þið vitar,” eftir Pál fsólfsson
og “Áin niðar” eftir Sigurð
Þórðarson. Var þessi söngur
allur vel þeginn og lokið á
hann lofsorði af mörgum.
Þennan þátt allan varð svo
íslenzki hópurinn að endur-
taka á öðrum stað eftir nokkr-
ar mínútur, því mannfjöldinn
var svo mikill, að langt var
(Framh. á bls. 7)
i3uðincöö anb
DR. B. H. OLSON
Phones: 35 076 . 906 047
Consultation by Appointment
Only
•
Heimili: 5 ST. JAMBS PLACE
Winnipeg, Manitoba
Dr. P. H. T. Thorlakson
205 Medical Arts Bldg.
Cor. Graham og Kennedy Sts.
Phone 22 866
Res. 114 GRENFELL BLVD.
Phone 62 200
DRS. H. R. & H. W.
TWEED
Tannlceknar
•
406 TORONTO GEN. TRUSTS
BUILDING
Cor. Portage* Ave. og Smitli St.
PHONE 26 545 WINNIPEG
DR. A. V. JOHNSON
Dentist
•
506 SOMERSET BLDG.
Telephone 88 124
Home Telephone 36 888
DR. K. J. AUSTMANN
410 MEDICAL ARTS. BLDG.
Stundar eingöngu, Augna-
Eyrna-, Nef og Háls-
sjúkdöma. v
Viðtalstími 10—12 fyrir hádeg
3—5 eftir hádegi
Skrifstofusími 80 887
Heimilissími 48 551
J. T. THORSON, K.C
íslenzkur lögfrœðingur
800 GREAT WEST PERM. Bldg.
Phone 94 668
J. J. SWANSON & CO.
LIMITED
308 AVENUE BLDG., WPEG.
•
Fasteignasalar. Leigja hús. Út-
vega peningalán og eldsábyrgð af
öllu tægi.
PHONE 26 821
ST. REGIS HOTEL
285 SMITH ST., WINNIPEG
•
pœgilegur og rólegur bústaöur
í miðbiki borgarinnar
Herbergi $2.00 og þar yfir; með
baðklefa $3.00 og þar yfir.
Agætar máltlðir 40c—60c
Free Parking for Guests
1 DR. B. J. BRANDSON
1 216-220 Medical Arts Bldg.
I Cor. Graham og Kennedy Sts.
! Phone 21 834—Office tímar 3-4.30
Heimili: 214 WAVERLEY ST.
Phone 403 288
Winnipeg, Manitoba
DR. ROBERT BLACK
Sérfræðingur I eyrna, augna, nef
og hálssjúkdömum
216-220 Medical Arts Bldg.
Cor. Graham & Kennedy
Viðtalstlmi — 11 til 1 og 2 til 5
Skrifstofusími 22 251
Heimilissími 401 991
Dr. S. J. Johannesson
223 ETHELBERT ST.
Talsimi 30 877
Viðtalstími 3—5 e. h.
H. A. BERGMAN, K.C.
íslenzkur lögfrœOingur
Skrifstofa: Room 811 McArthur
Building, Portage Ave.
P.O. Box 1656
Phones 95 052 og 39 043
j LINDAL, BUHR &
STEFANSSON
j Barristers, Solicitors, Notaries, etc.
W. J. LINDAL, K.C.
A. BUHR
BJÖRN STEFÁNSSON
•
Telephone 97 621
j Offices: 325 MAIN STREET
THORVALDSON &
EGGERTSON
íslenzkir lögfrœSingar
G. S. THORVALDSON,
B.A., LL.B.
A. G. EGGERTSON, K.C., LL.B.
Skrifstofur:
705-706 Confederation Life Bldg.
SlMI 97 024
A. S. BARDAL
848 SHERBROOOKE ST.
Selur líkkistur og annast um út-
farir. Allur útbúnaður sá bezti.
Ennfremur selur hann allskonar
minnisvarða og legsteina.
Skrifstofu talsími 86 607
Heimilis talsími 601 562
/