Lögberg - 31.08.1939, Síða 4

Lögberg - 31.08.1939, Síða 4
4 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 31. ÁGúST, 1939 -----------Högberg---------------------- Gefi8 út hvern fimtudag af THE COLUJIBIA IMtKSS, UMITKD 695 Sargent Ave., Winnlpeg, Manitoba Utanáskrift ritstjórans: EDITOR LöGBERG, 695 Sargent Ave., Winnipeg, Man. ’ Editor; EINAR P. JÓNSSON Verð $3.00 um árið — Borgist fyrirfram The “Lögberg” is printed and published by The Columbia Press, Limited, 69 5 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba » PtlONE 86 327 Minni íslands Fluit á 50 ára afmælishátíð íslemlingadagsins að Gimli, Man. 7. ágúst, 1939 Eftir scra Valdimar J. Eylands Háttvirta samkoma! “ísland ögrum skorið eg vil nefna þig, , sem á brjóstum bo-rið og blessað hefir mig; fyrir skikkun skaparans Vertu blessað, blessi þig blessað nafnið hans.” Ekkert ísleijdingadags-hald þykir fullkomið án þess að endurtekin sé af einhverjum, á einhvern hátt, þessi sígilda ástarjátning skáldsins og vísindamannsins Eggerts ólafsson- ar til íslands. Um leið og eg þakka forstöðunefnd Islend- ingadagsins þá sæmd, sem hún hefir veitt mér með því að biðja mig að flytja hér erindi, á fimmtíu ára afmælishátíð fslendingadagsins, vil eg lýsa því yfir að nefndin hefir feng- ið mér það hlutverk í hendur sem mér er flestum öðrum verkum hugljúfara, en það er að “nefna hið ögrum skorna ísland.” Að vísu hlýtur yður öllum að vera það ljóst að eg sem hefi dvalið fjarvistum frá mínum fósturjarðarströndum um margra ára skeið get ekki sagt yður neitt það um landið eða þjóðina, sem þér ekki áður vitið. Vér höfum þá líka nýlega notið, og njótum nú einnig í dag, heimsókna góðra gesta sem nýkomnir eru að heiman, sem fúsir eru til að miðla oss af þeim fróðleik, sem vér þráum um athafnalíf og áhugamál hinnar islenzku þjóðar. Margir af þeim, sem hér eru staddir heyrðu, og allir hafa lesið hina ítarlegu ræðu, sem alþingismaður og fulltrúi ríkisstjórnar íslands Thor Thors flutti fyrir skemstu á ýmsum stöðum hér vestra, og siðar var prentuð í báðum vikublöðununí íslenzku. Sú ræða var af fróðleik full, um háttu og hagi hins unga íslands. Við þann fróðleiksforða er mér ekki unt að bæta. En mér skilst að tilgangur þeirrar ræðu.'sem ávalt er haldin á þessum samkomum og kölluð er “Minni íslands” sé ekki fyrst og fremst sá, að hún sé fræðalestur, heldur að hún sé eins konar uppkveikja, eða blíður hlær, er blási að kulnuðum og stundum deyjandi glæðum á því altari í hugarheimi íslenzkra manna er helgað er þjóðernis- meðvitund þeirra, og sérstæðri arfleifð. Er vér lesum íslands minnin, sem haldinj hafa verið af ýmsum vorum mætustu mönnum um síðastliðin fimmtíu ár, verðum vér þess varir að þær eru vel-flestar vakninga og áminninga ræður. Eftir því sem fleiri af frumbyggjunum lúta hinu órjúfanlega lögmáli lífs og dauða; eftir því sem timans tönn heflar af oss hinum, sem eftir standa á meiði lífsins islenzku einkennin, eftir því sem ys og argaþras hversdags- lífsins deyfir meðvitundina um uppruna vorn, sögu og hlutverk, þurfum vér þess æ meira með að nema staðar, þótt ekki sé nema einu sinni á ári til að ylja oss við eld minninganna, og stæla viljann til framsóknar og athafna. Vissulega er það ekki ófyrirsynju að vér í dag nefnum hið “ögrum skorna fsland” og þá margvíslegu blessun, sem vér höfum þaðan hlotið, fyrir sjálfa oss.og niðja vora hér á vesturvegum, í 50 ár. Hvaðan er oss íslenzkum mönnum kominn sá hugsjóna-auður, sem vér búum yfir mörgum þjóðum fremur? Er hann ekki kominn beint úr orku- lindum íslenzks anda, úr bókmentunum sigildu, úr frásög- unni um þúsund ára reynslu heimaþjóðarinnar? Hvar höfum vér lært að meta gagnsemi, elju og áræðis, fram- takssemi og sparnaðar, heiðvirði og manndóms? Víst hafa þau fög hvergi verið betur kend en i reynsluskóla íslenzkrar alþýðu, sem vér öll teljumst til. Hvaðan er oss komin hin heillavænlega lífsskoðun, sem gerir oss þess megnuga að etja afls við “stormana, helið og hjúpinn?” Ekki veit eg hvaðan sá kraftur er til vor kominn, ef ekki úr trúmála- túlkun þeirra Hallgrims, Jóns, Valdimars og Matthíasar, og annara öndvegishölda hinnar islenzku þjóðkirkju. Hvaðan er oss komin lýðræðishugsjónin, sem liggur til grundvallar í stjórnarfari þeirra landa er vér byggjum? Hún er oss í blóðið borin og til vor komin frá alþingi hinu forna, frumstofnun lýðræðisins meðal germanskra þjóða. Vafalaust var ísland mörgum af oss hinum eldri harðhent móðir. Með klæðleysi og stundum hungri kendi það feðrum vorum, og sumum af oss sem nú lifum að vinna og spinna myrkranna á milli, og meira en það. ísland agaði oss strangt með hin ísköldu él, en ásamt því bliðu — það meinar alt vel. Reynslan ein getur úr því skorið hvort sú tilsögn sem vér hlutum í þegn- skylduskóla hversdagsstritsins verður ekki eins haldgóð til nytsemdar í líferni eins og mentunaraðferð nútímans, sem leitast við að láta æsku- lýðinn gleypa fræðsluna í sykruðum pillum, með sem allra minstri fyrirhöfn af hálfu þeirra sjálfra. Vér heima- aldir fslendingar þökkum ís- landi agann og fræðsluna. Hún varð mörgum af oss svo dýrkeypt að vér höfum engu getað gleymt. Þessi ram-ís- lenzku hátíðahöld sem fara fram árlega í hinum ýmsu bygðum íslendinga eru þá líka talandi vottur um ræktarsemi við ísland og þá arfleifð sem vér höfum þaðan flutt, þá arf- leifð, sem vér fegnir viljum gefa niðjum vorum í heiman- mund. Hver fslendingadagur, sem haldinn er í Vesturheimi gefur hrakspánum um þjóð- ernislega tortiming nýtt glóð- arauga. Hver fslendingadagur ber vott um vaxandi hróður hinnar islenzku þjóðar, og aldrei hefir hann verið meiri en nú. Dagar vanþekkingar- innar á landi og þjóð eru að hverfa með mentuðum lýð allra landa. Kona ein spurði mig fyrir nokkrum árum hversu lengi það tæki að ferð- ast með járnbrautarlest frá Oslo í Noregi til íslands. Sú kynslóð sem þannig spyr er brátt úr sögunni. fsland er komið á alheimskortið. Veldur þvi meðal annars heimssýn- ingin mikla i New York, og þátttaka fslands í henni. Hef- ir blöðum stórþjóðanna orðið tiðrætt um sýningarskála lands ins litla “nyrzt í norðurhöf- nm,’’ um prúða framkomu þjónustufólksins þar, og rögg- samlega stjórn formanns sýn- ingarnefndar, sem i dag er einn heiðursgestur vor, hr. Vilhjálmur Þór. Vér minnumst i dag fimm- tiu ára afmælis fslendinga- dagsins i Vesturheimi. Siðan að síðast var haldinn íslend- ingadagur á þessum stað hef- ir tuttugu ára fullveldis hins islenzka rikis verið minst bæði heima og hér. “Draumsjón íslendinga um fullkoúiið sjálfsforræði þjóðinni til handa rættist ekki fyr en vér höfðum haldið íslendingadag hér vestra i þrj^tíu ár. Þetta var ekki aðeins draumur for- ingjanna,- Fjölnismanna og Jóns Sigurðssonar heldur draumur allrar þjóðarinnar. Draumurinn sá vakti hörpu hennar til söngva, og knúði manndóm hennar til starfs. Nii hefir þjóðin öðlast þetta hnoss, og notið þess i tuttugu ár. En tuttugu ár er örstuttur tími í lífi heillar þjóðar. Þeg- ar litið er á afrek einnar þjóð- ar miðast timinn við það hvort mikið eða litið er gert, fremur en við sjálfan ára- fjöldann.” Hvað hefir gerst á íslandi á þessum tuttugu árum? Landið er að vísu hið sama og áður, en þjóðin hefir blátt áfram umskapast og end- urfæðst tif nýs lifs, sem kem- ur fram i margþáttaðri fram- takssemi og framsókn, sem svo er áberandi að mörgum hinna eldri manna finst árið 1918 liggja óralangt aftur i fornöld. Á ytra borðinu hefir breytingin að sjálfsögðu orðið mest á hinum verklegu svið- um. Draumsjón skáldsins er orðin að veruleika, þar sem hann segir: “Sé eg í anda knör og vagna knúða krafti, sem vanst úr fossa þinna skrúða, stritandi vélar, starfsmenn glaða og prúða, stjórnfrjálsa þjóð með verzlun eigin búða.” En það er ekki aðeins véla- menningin og verklegu fram- farirnar, sem hafa siglt í kjöl- far hins nýfengna frelsis. Hug- arfar fólksins hefir einnig breyzt. Frelsið hefir aukið fullri alin við manngildi hvers einasta íslendings, lyft höfði hans og treyst virðingu hans á sjálfum sér, gert hann “glaðan og prúðan.” Ekki er þvi að leyna að hinar marg- víslegu verklegu framfarir, sem orðið hafa innanlands á íslandi hin síðustu tuttugu árin hafa kostað þjóðina mikil átök og mikla fórn. Marga hefir sviðið undan blóðtök- unni í opinberum skyldum og sköttum sem hinar verklegu framfarir hafa útheimt. Synd væri að segja að allir hafi verið sammála um þau fram- faraspor, sem stigin hafa ver- ið, né um það hvernig þau yrðu heppilegast stigin. Veru- leg Sturlungaöld hefir ríkt í landi þar, í pólitiskum efnum. Nú er vottur þess fram kom- inn að hin unga, frjálsa þjóð hafi læknast af þeirri barna- veiki. Á eg þar við hina nýju þjóðstjórn, sem mynduð er, með fulltrúum frá öllum aðal- flokkum. Nýtur sú stjórn, að sögn, næstum einróma full- tingis þjóðarinnar og trausts. Er mvndun hennar vottur þess, að íslendingar vilja ekki aðeins brúa ár og læki, heldur jafnvel höfin sjálf, sem eru staðfest milíi sundurleitra hugsjóna og aðferða til að láta lnigsjónir rætast. Getum vér Vestur-íslendingar margt af þessu lært. F'ramtíðarhorfur íslands og íslendinga eru nú vafalaust bjartari en nokkru sinni fyr. Hér er lítil þjóð, sem er öll af einum og sama stofni. Hún nýtur fjarstöðu sinnar frá öðrum þjóðum, og fátæktar sinnar að því leyti, að hún er hennar vegna nokkurn veginn trygg fyrir ágirnd þeirra og ágengni. Það kann að virðast kynleg mótsögn að staðhæfa, að fátæktin sé nokkrum manni eða þjóð til hagnaðar, en þó mun það sannast orða, að því er ísland snertir. “Þjóð in á sér langa og að ýmsu leyti glæsilega sögu, talar eitt og sama mál, stefnir að aukn- um jöfnuði í lifskjörum þegna sinna. Tapi hún ekki trúnni á sjálfa sig, forsjón Guðs, og framleiðslumátt lands og sjáv- ar, hefir hún þau skilyrði til að bera er skapað geti göfugt og glæsilegt þjóðlíf. Hin fyrstu tuttugu ár hins islenzka ríkis kasta björtum geislum fram í myrkur hins ókomna.” Þótt hin íslenzka þjóð sé fámenn, samanborin við stórveldi heimsins, og þótt hún sé með yngstu þjóðum veraldar, að því er sjálfsforræði snertir, er hún samt að einu sérstöku leyti öllum öðrum þjóðum til fyrirmyndar. Hún er hlutlaus í öllum þjóðadeilum og vopn- laus. Á þetta benti LeGuardia borgarstjóri New York í ræðu er hann hélt á íslendingadegi heimssýningarinnar 17. júni. 1 auguin hans var “litla, vopnlausa þjóðin norður í Atlantshafi, sönn fyrirmynd allra þjóða heims, sem fórna ógrynni fjár og hlóði sinna beztu sona til verndar frelsi sinu og sjálfstæði.” Vestur-fslendingar! Finnum vér ekki til metnaðar, er vér minnumst þess, >að vér erum tengdir blóðböndum og ótal órjúfanlegum menningar- tengslunv við þessa ungu, frjálsu, framtakssöinu fyrir- myndarþjóð? Flestir meða! vor myndi svara þeirri spurn- ing játandi. Er nokkurt berg- mál þess metnaðar fyrirfinn- anlegt i hjarta hinnar íslenzku þjóðar, að því er oss snertir, er hér dveljum? Til skamms tíma hefðum vér orðið, sann- leikans vegna, að svara þeirri spurningu neitandi. Þess eru fá dæmi í sögunni að nokkur stofnþjóð hafi látið brot af sjálfri sér í annari heimsálfu jafn algjörlega afskiftalaust, og fslendingar heima hafa lát- ið oss afskiftalausa hér fyrir vestan haf. Það var eins og þjóðin léti sér á sama standa um oss, teldi oss sér óviðkom- andi, glataða ineð húð og hári. Þetta kæruleysi heimaþjóðar- innar hefir sært marga, og egnt aðra til andstöðu gegn allri þjóðernislegri viðleitni. En er litið er á þetta mál frá sjónarmiði heimaþjóðarinnar verður afstaða þessi naumast talin vítaverð. Vér flýðum land, þegar þjóðin þurfti þeirra krafta með sem vér bjuggum yfir. Burtförin olli sársauka. Vér komum aftur heim, sumir, í örstuttg heimsókn. Vér vor- um alt í einu orðnir svo stór- EATOIM’S For School Books and Supplies OutSlanding Values For School Opening! In Our Donald Street Annex ín the special large space in the Annex, you’ll find school shopping a pleasure. A wide assortment of stock; a complete range of authorized Text-Books l'or Manitoba. Conveniently arranged for speedy service - plenty of salespeople to help you choose correctly. This is the time — and the place — to shop for ALL the school books and supplies needed in your home. ^T. EATON C?,M™

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.