Lögberg - 23.05.1940, Blaðsíða 4

Lögberg - 23.05.1940, Blaðsíða 4
I LÖGBERGr, FIMl'UDAGINN 23. MAl, 1940 -----------Hösöers------------------------- Gefið út hvern fimtudag af TllK COIA MBIA PRKSS, LXMITKB 6t*5 Sargent Ave., Winnipeg, Manitoba Utanáskrift ritstjórans: EDITOR LÖGBERG, 695 Sargent Ave., Winnipeg, Man. Edltor: EINAR P. JÓNSSON Verð $3.00 uin árið — Borgist fyrirfram The ‘‘Lbgberg'’ ls printed and published by The Columbia Press, Limited, 695 Sargent Avenue, Winnipeg, Manitoba PHONE 86 327 Inntak úr rœðu EFTIR WINSTON CHURGHILL Forsætisráðherra Bretlamls hins mikla. Mr. Wmston Churchill, flutti ra>ðu á sunnu- daginn, sem útvarpað var vítt nm heim; fer megin inntak hennar hér á eftir í íslenzkri þyðingu. í upphafi ræðunnar lét Mr. Churchill Jiess get.ið, að vfirstjórn banda- mannahersins hefði verið fengin í hendur Maxime Wevgand, sem næstur gekk Foch marskálki að völdum í heim.sstyrjöldinni frá 1914; hann er 74 ára að aldri, og þykir hinn mesti fullhugi.— Mr. Churchill mælti meðal annars á þessa leið : “A eftir þeirri orustu, sem nú er háð á Frakklandi, kemur önnur, er snýst um brezku eyjarnar; þær eru aleiga Bretlands, og alt, sem brezka þjóðin ann; það verður orusta, sem mannheimar lengi minnast; vér sættum oss aldrei við það, að verða fjötraðir hnappheldu erlendrar kúgunar; vér sættum oss aldrei við þá smán, er slíku væri sam- fara; vér höldum samhuga uppi látlausum bardaga, hvað sem hann kostar unz vfir lýkur, og fullkomnum sigri er náð; trú mín á táp og viljafestu hersveita vorra, er á bjargi bygð; þær eru að mestu óþreyttar enn, og í rauninni einungis byrjaðar að sýna sig; á hinn bóginn er það auðsætt, að lítið vúnst við þaðt að halda herafla vorum lengur í skjóli við múrveggi eða önnur yarnarvirki; það markmið er engan veginn fullnægjandi af vorri hálfu, að halda uppi vörn, ef það þá gæti kallast markmið; vér þurfum að sækja á brattann, láta eitt áhlaupið koma af öðru; Það er ekki fullnægjandi, að vinna þær or- ustur, sem háðar eru í dag; vér verðum að vinna orusturnar allar; vinna stríðið í heild. “Það væri skaðvænleg sjálfsblekking,” ságði Mr. Churcliill,” að loka aukunum fyrir þeirri hættu, sem vér eigum við að etja, og jafn óverjandi væri það, að örvænta um hag vorn, eða láta oss koma til hugar, að þrjár til fjórar miljónir velvopnaðra brezkra og franskra hermanna gæti orðið þurkaðar út á nokkrum dögum; barátta vor er í raun og veru ekki háð fyrir neina sérstaka þjóð, heldur mannkynið í heild. Mér er það ósegjanlegt ánægjuefni, að geta skýrt frá því, hve margfalt vér nú stöndum betur að vígi að því er loftflotann áhrærir, en í stríðsbvrjun; hefir hinn kon- unglegi loftfloti gert við góðum árangri eina árásina af annari á þýzk hergagnabúr í Bremen, Hamburg og Hannover, og sprengt til agna marga olíugeyma; borið saman við loftbátatap Þjóðverja, verður ekki annað sagt, en vort eigið tap hafi verið tiltölulega lítið. I einu leifturstríði sínu undanfarna daga, lánaðist Þjóðverjum með óhemju af flugvörgum og brynvögnum, að r\"ðja sér veg gegnum frönsk varnarvirki norðan við megin Maginot-varnarlínuna, og komast all- langt inn á Frakkland; nú hafa liðssveitir vorar hafið öfluga gagnsókn á hendur hin- um þýzka innrásarher á þessum svæðum, og tekist að.nokkru að hnekkja framgangi hans; loftfloti vor, í samstarfi við loftflotann franska, hefir veitt óvinum vorum þungar búsifjar, og á enn eftir að greiða þyngstu höggin. Fólk vort á þessum unaðsfögru eyjum, konur jafnt og menn, hlýtur óhjákvæmilega að sæta djúpum sorgum og þungum áföllum áður en sigur fæst; en eg veit, að metnaður- inn yfir djarfmannlegri framgöngu sona þeirra á vígvelli, dregur mikið úr sársauk- anum. Guð blessi hermenn vora alla, og vaki yfir velferð þeirra! Barátta vor getur orðið löng, og hörð verður hún vitaskuld líka; en hún er síðast og fyrst háð í nafni þeirra afla, sem skifta mestu máli á þessari jörð; hún er barátta fyrir lífið sjálft, frelsið og mann- lega sæmd. Þrenningarhátíðin er heilög haldin í dag; fyrir öldum voru skráð orð, er k\7öddu til stríðs og starfs hina trúu lærisveina rétt- lætisins og1 sannleikans. Brynjum oss öll til úrslitaorustunnar, því mannlegra er að berj- ast til þrautar og falla með sæmd, en að þjóð vor verði svívirt og ölturu hennar saurguð. Drottins vilji verði!” Þingsetning A fimtudaginn þann 16. þ. m., var sam- ' bandsþinginu í Ottawa stefnt til funda. Dómsforseti Mr. Duff, las í efrideildarsal boðskap konungs til þingsins, vegna þess að hinn nýskipaði landsstjóri var enn eigi kom- inn til höfuðborgarinnar; mælti Mr. Duff á Jiessa leið: “Virðulegir þingmenn beggja deilda:— Yður hefir verið stefnt saman til funda á nýkosið þing, er svo hagar til, að háð eru í heiminum ein þau bitrustu vígaferli, sem sögur fara af; undir úrslitum verður það komið, hvernig til tekst um viðhald siðmenn- ingarinnar og lýðfrjáls erfðaréttindi vors eigin stjómarfars. Frá því að þingi sleit, hefir gangur stvrjaldarinnar orðið slíkur, bardagaaðferð óvinanna slík, hættan svo augljós, að stofn- að er beinlínis til fjörráða við tilveru frjálsra þjóða; á nokkrum vikum hefir ver- öldin orðið vitni að því, að ráðist hefir verið á friðsamar lýðræðisþjóðir, Danmörku, Noreg, Holland, Belgíu og Luxembourg; alt eru þetta villimannleg hermdarverk af völd- um þýzkra Nazista; sömu örlögum hefir Finnland sætt, og landi þessarar starfsömu og hagsýnu þjóðar verið skift, þrátt fvrir einstæða og frækilega vörn hennar. Og eins og nú horfir við, er ekki unt um .það að segja, hvar græðgin ber næst niður ránsklær sínar, og útvíkkar með því orustusvæðin. Þessi harmsaga hefir margfaldað ásetn- ing vorn um það, að leggja fram alla þá krafta, er vér eigum yfir að ráða málstað bandamanna vorra og vor sjálfra til styrkt- ar; hefir stjórnin að sjálfsögðu stvrkst í þessum áformum við endurnýjað umboð sitt frá kjósendum landsins. Ráðuneytið hefir vakað á verði yfir stríðssókninni, ráð- fært sig jafnt og þétt við stjórnir Breta og Frakka, auk ]>ess sem heimsókn hermálaráð- herra vors til London og Parísar, hefir að mun stvrkt og skýrt aðstöðu hinna marg- brotnu viðfangsefna. Allar hugsanlegar upplýsingar á sviði hermála og fjármála, verða látnar þinginönnum í té *frá degi til dags og öll þau löggjafarnýmæli vandlega útlistuð, er að stríð&sókninni sjálfri og sam- félagslegu öryggi þjóðarinnar lúta. Þó störf þessa nýja þiiigs óhjákvæmi- lega hljóti í meginatriðum að lúta að ’sókn stríðsins, þá er stjórninni það þó jafnframt brennandi áhugamál, að teknar verði þegar sem allra víðta«kastar viðreisnarráðstafanir, er til framkvæmda komi að stríðinu loknu. Og með það fyrir augum, að öryggja iðn- framleiðsluna meðan stríðið stendur yfir, og trygga samfélagslega afkomu almennings að loknum vígaferlum, hefir stjórnin ákveðið að bera fram tillögu til þingsályktunar, er veiti þinginu heimild til að breyta þannig stjórnskipulögum landsins, British Nortli America Act, að á þessu þingi megi hrinda í framkvæmd löggjöf á alþjóðargrundvelli um atvinnuleysistryggingar.— Þá verður og lagt fram í þinginu álits- skjal hinnar konunglegu rannsóknarnefnd- ar, er setið hefir á rökstólum undanfarin ár til þess að kynna sér hverjum umbótum helzt vrði við komið viðvíkjandi hagfræði- legri afstöðu hinna einstöku fylkja til sam- bandsstjórnar. Fjárhagsáætlun fyrir yfir- standandi fjárhagsár, verður lögð fram eins fljótt og framast má verða. í samstiltri einingu vottar stjórn og l>ing Lady Tweedsmuir og sifjaliði hennar dýpstu samúð hinnar canadisku þjóðar. Hans Hátign konunginum, hefir þóknast að skipa jarlinn af Athlone til landsstjóra ' í Canada sem eftirmann lávarðar Tweeds- muir; með djúpum söknuði minnist Canada síns ástkæra, fráfallna landsstjóra, sem vegna skapgerðar sinnar og mannkosta, hafði unnið aðdáun allra stétta þjóðfélags- ins, og skapað sér antílegt aðalsmjfn í brezkri bókmentasögu. Glæsilegur starfs- ferill hins nýskipaða, landsstjóra, og skvldu- ra>kni þeira hjóna á vettvangi mannfélags- málanna, tryggir þeim hjartanlegar viðtökur í þessu landi. Ræðu sinni lauk Duff dómsforseti með svofeldum orðum í umboði konungs.—1 Megi sú kend verða ríkust í hugum yðar á þessari alvörutíð, að þau ábyrgðarstörf, sem canadiskir kjósendur hafa falið yður til forsjár, skuli öll af einlægni unnin í þágu frelsis og mannréttinda. Og nema því aðeins að þau illræðisöfl, sem nú ógna frjálsum þjóðum, verði kveðin niður til fulls, horfist mannkynið í augu við alþjóðaóstjórn.” Mr. Glen, libera*! þingmaður fyrir Mar- quette’ kjördæmið í Manitoba, var í einu hljóði kosinn forseti neðri deild- ar, en senator Parent frá Quebec forseti efri málstofunn- ar. Mr. King árnaði með hlýj- um orðum heilla hinum nýja þingforingja' ihaldsflokksins, Mr. R. B. Hanson, er í stuttri svar- ræðu hét stjórninni öllu hugsan- legu fylgi i stríðssókn þjóðarinn- ar þar til sigur væri unninn- Mr. Woodsworth, foringi C C.F. flokksins, vék máli sínu sérstak- lega að hinum nýkjörna forseta, Mr. Glen, og. kvaðst vænta þess í fullri alvöru, að hann léti sér ávalt og á öllum tímum hugar- haldið um rétt minnihlutaflokk- anna á þingi, og stæði vörð um þá gagnvart stjórninni. Mr. King kvaðst líta nokkuð öðrum aug- um á málið, þvi á liðnum árum hefði það ekki verið einsdæmi, að stjórnin hefði þurft á öllu sinu að halda vegna ágjafar frá minnihluta flokkunuin. Alþingi sat í 70 daga og afgreiddi 61 lög Alþingi var slitið í gær og fóru þinglausnir fram á venjulegan hátt, að öðru leyti en þvi, að nú sagði forsætisráðherra í fyrsta sifti þingi slitið í umboði ráðu- nevtis fslands. Forseti sameinaðs Alþingis, Haraldur Guðmundsson, flutti ræðu eins og venja er til við þinglausnir Forseti skýrði fyrst frá störfum þingsins. Þingið stóð að þessu sinni í 70 daga. f neðri deild voru haldnir 50 fundir, í efri deild 49 og 1 sam- einuðu þingi 25; alls 124 fundir Að lögum urðu 14 stjórnar- frumvörp, en 47 þingmannafrv., eða alls 01 lög. Alls voru. horin fram á þinginu 91 lagafrumvarp. Tveimur frumv. var vísað til rfkisstjórnarinnar, eitt afgreitt með rökstuddri dagskrá og eitt felt, en 26 frumvörp voru óút- rædd, döguðu uppi eins og það er kallað. Þingsályktunartillögur voru bornar fram 22 alls. Þar-af af- greiddar til ríkisstjórnarinnar sem ályktun alþingis 14. Ein þingsályktunartíllaga var af- greidd, með rökstuddri dagskrá einni vísað til ríkisstjórnarinn- ar og ein var feld. óútræddar voru 10. — Fyrirspurnir voru bornar lram þrjár. Einni var synjað leyfis, en svör við hin- um féllu niður- Mál til meðferðar í þinginu voru alls 121. lorseti sagði að dpmar 11111* þingið myndu vafalaust verða misjafnir, en um það myndi ekki •deilt, að þetta þing myndi verða talið merkilegt þing og oft til þess vitnað í framtíðinni sökum þeirra sögulegu ákvarðana, sem þingið hefði tekið. Forsetinn inintist á þann hild- arleik, sem nú geisar í álfunni og fórust honum þannig orð: “Styrjöldin mikla magnast enn og tekur til fleiri landa og þjóða- Áhrif hennar, hein og óbein, verða stöðugt rikari og tilfinnanlegri. Hlutleysi og frið- arvilji smárra ]>jóða er að engu haft. örlög frændþjóðanna. “Nágrannaþjóðir vorar, frænd- þjóðirnar á Norðurlöndum, sem einskis hafa annars óskað, en að gæta hlutleysis og lifa í sátt og friði við nábúa sína alla, hafa m| þrjár nauðuglega dregist inn í þenna hildarleik. Og hin fjórða híður þess milli vonar og ótta, hvort og hven.ær hún hljóti sömu örlög. Ein hefir orðið að sætta sig við nauðungarfrið, eftir fráhæra vörn gegn ofurefli, og latið hluta af landi sínu. önnur herst nú fyrir lifi sínu og sjálf- sta'ði við erlendan árásarher, sem hefir helztu borgir landsins á valdi sínu. Of hin þriðja, sam- bandsþjóð vor, hefir neyðst til þess að beygja sig fyrir vopna- valdi nábúa, sem er þritugfalt sterkari en hún. Samáð íslendinga. “Vér íslendingar erum magn- lausir áhorfendur þessa ægilega harmleiks. Vér getum aðeins vottað þessum frændþjóðum vor- um einla>ga samúð og dýpstu hluttekningu Vér höfum dáðst að afrekum þeirra, verklegum og andlegum. Hvergi hefir lýð- ræði og lýðfrelsi verið meira virt né gefið betri raun en hjá þeim . • .” “Vér fslendingar eigum enga ósk heitari þessuni frændþjóð- um vorum til handa en þá, að þeim lánist sem fyrst jið endur- heimta frið og frdlsi og óskert umráð vfir löndum sínum.” Sambandslagamálið. Forsetinn mintist á samþyktir þingsins í sambandi við sam- bandslögin og sagði: “Afleiðing þess, að sambands- þjóð vor og konungur hafa neyðst til að lúta valdi annars ríkis er sú, að þau stjórnarfars- legu tengsl, sem verið hafa á milli vor og hennar, hafa rofnað, og að konungi er ókleift að fara með það vald, sem honum er fengið í stjórnarskránni. “Þessu nýja viðhorfi varð Al- þingi að mæta. Með atkvæðum allra þingmanna, án undantekn- ingar, var því samþykt að fsland tæki i sínar hendur að svo stöddu, gæslu landheliginnar og utanríkismál, svo og að fela rík- isstjórn að fara með það vald, sem konungi er fengið með stjórnarskránni. “Æðsta vald í öllum málefn- um rikisins er nú aftur, eftir nærfelt 700 ár, fengið þjóðinni í hendur, kjörnum þingfulltrúum hennar og ineirihluta Alþingis. Samningar haldnir. “Kpnungur vor hefir ávalt fylgt í öllu ákvæðum stjórnar- skrár fslands, enda vér íslend- ingar viljað sýna og sýnt, honum fullan þegnskap. Og sambands þjóð vor hefir jafnan, síðan sambandslögin öðluðust gildi, virt ísamning þann, sem í þeim felst og staðið við hann í hvi- vetna, svo sem bezt mátti kjósa. Sama höfum vér og viljað gera “Alþingi he’fir á engan hátt viljað rjúfa, eða rofið sam- bandslagasamninginn. Honum mátti segja upp eftir örfá ár. Og sízt vildi Alþingi nota raunir sambandsþjóðarinnar til þess að ganga á gerða samninga- En atburðir, sem orðið hafa hjá sambandsþjóð vorri, henni og oss ósjálfráðir, gerðu henni ó- fært að rækja lengur sinn hluta samningsins og konungi ókleift að fara með vald sitt hér. — Hlaut því samningurinn að þessu leyti að falla niður. “En þótt hin stjórnarfarslegu tengsl milli dönsku og islenzku þjóðarinnar séu rofin, þá erum við enn bundnir sterkum bönd- um við dönsku þjóðina, böndum vináttu og margháttaðra sam- skifta, höndum frændsemi oig sameiginlegrar menningar. Og það er von vor, að hún komi sem fyrst heil og frjáls út úr þeirri eldraun, sem hún nu þol- ir.” í lok ræðu sinnar þakkaði forseti þingmönnum fyrir gott samstarf. Jakob Möller fjármálaráðh. Stóð upp og þakkaði forseta góða fundarstjórn og óskaði honum allra heilla í framtiðinni fyrir hiind þingmanna. Þingi slitið. Þá reis forsætisráðherra, Her- inann Jónasson, úr sæti sínu og mælti á þessa leið: Alþingi hefir nú lokið störf- um sínum og hefi eg því aflað mér heimildar til að slita Al- þingi. Samkvæmt ályktun Aþingis 10. apríl fól þingið ráðuneyti íslands að fara með konungs- valdið og hefi eg móttekið bréf þar að Jútandi Siðan mælti forsætisráðherra á þessa leið: “Það eru nú liðin 1010 ár síð- an alþingi fslendinga var stofn- að og þetta er 55. löggjafarþing síðan alþingi var endurreist. — Eg leyfi mér samkvæmt þvi um- boði er eg áður las, að segja alþingi slitið. Eg vil biðja al- þingismenn að minnast ættjarð- ar vorrar, fslands og hans há- tignar konungsins, með þvi að rísa úr sætum sinum. Stóð þá allur þingheimur upp nema kommúnistarnir þrir. Ingvar Pálmason, sem elztur er þingmanna mælti lengi lifi ísland og var tekið undir það af öllum þingmönnum með ferföldu húrrahrópi nema kommúnistar, sem enn sátu. —Morgunbl. 25. april. Fréttabréf Vogar, Man., 18. apríl. Þá fer nú veturinn að telja af sér. Hann hefir verið þeirra heztur, sem landar muna hér, en sagnir hafa gamlir Indíánar af slíkuin vetri eða betri. Það má kalla að snjólaust hafi verið hér í allan vetur, svo varla hefir verið sleðafæri á brautum, en aðeins á graslendi. Frostin hafa lika verið óvanalega væg, aðeins einu sinni 30 stig, en oftast um eða fyrir ofan zero. Þá er ein- kennilegast hvað oft hefir verið logn eða aðeins lítill andvari, það er svo óvanalegt hér nú á siðari árum. En þeir, sem fvrst- ir komu hingað af löndum segja að þá hafi verið logn flesta daga á vetrum. Það hefir snjóað nokkuð 28. marz, nálægt 6 þml., og aðeins einu sinni áður hefir snjóað svo mikið, um miðjan febr., sá snjór hefir legið logn- dauður, en er nú horfinn af sól- bráð.— Fiskiveiðum er nú lokið hér, þær byrjuðu illa, en entust betur en út leit fyrir. Fiskur var aldrei mikill, en verðið var með hærra móti eftir hátiðir. Munu því flestir fiskimenn hér við Manitobavatn hafa sloppið skað- laust frá veiðinni, og haft sæmi- 1 eg daglaun. Um stórgróða ,á fiskiúthaldi er ekki að tala á þessum árum, nema ef vera skyldi hjá auðfélögunum, sein sjálf annast um sölu á fiskin- um. gvo mikið er vist að þau reyna að teygja úr veiðileyfinu eins og hægt er. Heilsufar manna hefir verið með bezta móti hér í bygðinni í vetur. Aðeins meinlítið kvef, sein þó hefir ekki verið kallað “flú”, sem nú er orðið viðhafn- arnafn á kvefi. Einn maður hefir látist hér í vetur, Pétur Gíslason Hallssonar bónda hér í bygðinni. Hann var tæplega tvitugur og lézt á spítala í Win- nipeg, en líkið var flutt heim og jarðsett í grafreit bygðarinnar. , * Félagslif er hér fremur dauft að vanda. Það eru svo miklar annir hér að vetrinum, að menn mega ekki vera að þvi að skemta sér. Valda því mest fiskiveið- arnar. Þær taka alla þá menn frá heimilunum, sem hægt er að missa, og þeir eru flestir langt frá heimilunum í verskálum. Og þótt ungu mennirnir skreppi ein- stöku sinnum á danssamkomur á kvöldin þá gjörist þar sjaldan neitt sem í frásögur sé færandi. Umferð er hér lítil á vetrum nema af flutningsmönnum. All- ur fiskur hefir verið fluttur á vörubilum til Winnipeg i vetur, og vörur kaupmanna að mestu leyti til haka. Það lætur þvi ekki vel í ári hér í vetur fyrir járnbrautarfélaginu. Leiðandi menn úr öðrum sveitum, eða bæjum eru hér ætíð sjaldséðir, og þá einkum á vetrum. Það eru aðeins prest- arnir sem koma þegar þeir eru kallaðir til aukaverka. Þá hef- ir séra Guðm. Árnason haldið hér við safnaðarstarfsemi siðastl. tvö ár. Hapn er líka kallaður til flestra aukaverka, eins af þeim, sem ekki eru í hans söfnuði.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.