Lögberg - 06.02.1941, Blaðsíða 1
PHONE 86 311
Seven Lines
4 vw^*'
^l/ud1 v\U> ^ Service \
C„t. a°U and
Satisfaction
PIIONE 86 311
Seven Lines
SO<^ ^ScVtO'
Cot-
For Better
Drv Cleaning
and Laundry
56. ÁRGANGUR
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 6. FEBRÚAR, 1941
NÚMER 6
Leggiát á eitt um kaup á átríðssparnaðar skírteinum
<‘Tlme,, þykist brenna
inni með allan
sannleikann
Margir ágætir íslendingar,
aðrir en þeir, er Lögberg hefir
áður l)irt mótmæli eftir, gegn
óhróðursigreininni i “Time” frá
13. janúar s.l.,* * sendu ritstjórn
blaðsins í New York ströng mót-
mælabréf, svo sem þeir Árni G.
Eggertson, K.C., Valdimar Björn-
son, og Dr. B. H. Olson; svar
við bréfi Árna, sem hér fer á
eftir skýrir sig sjálft:
time
• he Weekly Newsmagazine.
Time and Life Building
Rockefeller Center,
New York
Publisher’s Office
January 27, 1941
Rear Mr. Eggertson:
After a reinvestigation of the
sources from which TIME drew
ihe material for the January 13,
leeland article to which vou ob-
.lected, we are convinced that
*he facts as stated were accurate.
^Ur information came from
Persons in whom we have com-
Ptete confidence and, while I
am genuinely sympathetic with
•Vour feelings in the matter, I
believe that to publish a retrac-
li°n of any kind would be to
aduiit errors whieh TIME’S
e'litors do not feel they have
c°mmitted.
Again I want to thank you for
ihe expression of your views in
Ihis matter.
Sincerely yours,
Thomas K. Krug,
Assistant to the Publisher.
Mr. A. G. Eggertson,
300 Nanton Building,
M innipeg, Manitoba,
Eanada.
Herœfingar í fjóra
mánuði
Porsætisráðherrann í Canada,
Ph Hon. W. L. Mackenzie King,
hefir tilkynt, að ákveðið hafi
verið, að heræfingar ungra
manna í landinu standi fram-
'egis yfir i fjóra mánuði, í stað
h'Játiu daga æfinga, sem fram
þessu viðgekst; hið nýja
shipulag gengur i gildi þann 15.
Inarz næstkomandi.
95 á
ara
Jón Jónsson frá Grund varð
95 ára síðastliðinn laugardag.
Hann á nú heima að Riverton
hjá Þorbjörgu dóttur sinni,
ekkju Jóhannesar kaupmanns
Sigurðssonar.
Jón er ekki sá eini, sem þess-
um háa aldri hefir náð; en að
hafa góða sjón og' heyrn, geta
bæði lesið og skrifað og vélritað
eins og hann, það er að minsta
kosti afar sjaldgæft, ef ekki eins
dæmi.
Jón á marga vini beggja meg-
in hafsins; þeir vonast til þess
að hann sitji við ritvélina sína
að fimm árum liðnum, eins
hraustur og hann er i dag.
Eg er einn af þeim inörgu, sem
þessa von eiga.
Þú varst aldrei stór né sterkur
stormi og hríðum samt ei
skeyttir;
fórst um ísa og eyðimerkur;
öðrum mönnum leiðsögn veittir.
Langan aldur högum höndum
hélzt þú bæði á öxi og penna.
Eftir þinum æfi ströndum
ótal bjartir vitar brenna.
Sig. Júl. Jóhanncsson.
Dr. W. Allison látinn
m
Síðastliðinn þriðjudag, lézt að
heimili sínu hér í börginni, Dr.
W. T. Allison, fyrrum prófessor
í enskri tungu og enskum bók-
menturn við háskóla Manitoba-
fylkis; hann var 66 ára að aldri.
Dr. Allison var með ágætum
lærður maður, gaf sig allmjög
að ritstörfum, og þótti óvenju
glöggur ritskýrandi.
BRITISH LAND GIRLS AT WORK
The Women’s Land Army of Great Britain have had a big part
jn the successful harvesting of this year’s abundant crops. In
tnis picture some stalwarts are seen stacking sugar beet for
transport to nearby sugar beet factories, which alone produce
sugar enough to supply London.
Hersveitir Banda-
manna vinna einn
sigurinn öðrum
meiri yfir ítölum
Seinnipart fyrri viku náðu
Bretar og bandamenn þeirra á
vald sitt virkisborg'inni Derna í
Libyu, ásamt allmiklum vopna-
birgðum; meginher ftala á þeim
stöðvum, hafði þó komist undan
vestur á bóginn í áttina til
Bengasi, og er nú mælt, að
brezkar hersveitir sé innan við
40 mílur frá þeitri mikilvægu
hafnarborg, sem nokkurn veginn
má telja víst, að gefist upp þá og
þegar; má þá um Mussolini
segja, að farið sé ilfinnanlega
að saxast á limina hans Björns
míns. Þá vegnar ítölum ekki
betur í Eritrea, þar sem fylking-
ar þeirra svo hafa riðlast, að þær
hrekjast án nokkurrar minstu
skipulagningar á flótta í allar
hugsanlegar áttir. Grikkir halda
áfram sigurvinningum, og eru
nú ekki nema 9 mílur frá borg-
inni Valona.
Þórarinn Jónsson frá
Háreksstöðum
látinn
Síðastliðinn föstudag barst
Gísla Jónssyni prentsmiðjustjóra
símskeyti frá Seyðisfirði þess
efnis, að þann 21. janúar síð-
astliðinn hefði látist þar í bæn-
um Þórarinn bróðir hans og
þeirra Háreksstaða-systkina, 67
ára að aldri, maður ókvæntur.
Þórarinn rak um langt skeið
matvöruverzlun í Winnipeg og
Seattle, en hvarf alfari heim til
íslands fyrir rúmum tíu árum;
í hjáverkum sinum gaf hann sig
mjög við tónlist, og samdi fjölda
sönglaga, er út komu í þremur
bindum. Albræður Þórarins í
Vesturheimi eru fsak, trésmíða-
meistari í Seattle og Gíísli hér í
borg, en hálfsystkini af seinna
hjónabandi Jóns Benjaminsson-
ar frá Háreksstöðum, Einar P.
Jónsson, ritstjóri Lögbergs, séra
Sigurjón Jónsson á Kirkjubæ í
Hróarstungu og frú Anna María
Straumfjörð í Seattle.
Veður jörðina
að knjám
Svo mikill berserksgangur
hefir runnið á Maurice Duplessis,
fyrrum forsætisráðherra þeirra
Quebec-manna, og núverandi
leiðtoga stjórnarandstæðinga í
fylkisþinginu, að í raun réttri
má segja, að hann í pólitískuin
skilningi vaði jörðina að knjám;
hann er moldösku reiður yfir
þeim samningstilraunum, senV
nú standa yfir milli Canada og
Bandaríkjanna um framkvæmd-
ir við St. Lawrence siglingaleið-
ina; telur Mr. Duplessis þetta
vera hvorki meira né minna en
stórglæp gagnvart canadisku
þjóðinni, sem leiði til þess, að ó-
hjákvæmilegt verði, að járnbraut-
arfélögin í þessu landi fari alveg
á hausinn. Og þessu jafnframt
bölsótast Mr. Duplessis yfir þvi,
að Quebec-stjórnin skyldi gera
sig seka um þá ósvinnu, að veita
sambandsstjórn að málum í sam-
bandi við löggjöf síðasta þings,
um tryggingar gegn atxinnu-
leysi.
Frá Islandi
Þing Alþýðusambandsins er
háð þessa daga hér í bænum.
Var það sett síðastliðinn þriðju-
dag og flutti forseti sambands-
ins, Stefán Jóhann Stefánsson,
setningarræðuna. Samkvæmt
skýrslum stjórnarinnar eru nú í
Alþýðusambandinu 87 stéttarfé-
lög með 12.136 meðlimum. En
auk þess eru og talin til þess 16
Alþýðuflokksfélög. Á síðasta
þingi Alþýðusambandsins voru
talin innan vébanda þess 100
stéttarfélög með 13,470 meðlim-
um. Af þeim félöigum, sem nú
eru talin til Alþýðusambandsins,
hafa þó 10 sagt sig úr því, án
þess að sambandsstjórn hafi
viljað viðurkenna þær úrsagnir.
Fulltrúar munu vera um 100 á
þinginu frá 50—60 félögum.
Helzta málið, sem fyrir þinginu
liggur, er að koma skipulagi
sambandsins í nýtt horf. Liggur
fyrir þinginu frumvarp, þar sem
ráð er fyrir þvi gert, að Alþýðu-
sambandið slitni algerlega úr
þeim tengslum, sem það hefir
eftir lögum sínum verið í við
Alþýðuflokkinn, öðrum stjórn-
málaflokkum fremur. Nokkrai
mótbárur munu hafa komið
fram gegn hinu nýja sambands-
lagafrumvarpi, og var borin fram
tillaga um að vísa því frá. Var
hun feld í gær með 71:6 at-
kvæðum. Að því búnu var frum-
varpinu vísað til annarar um-
ræðu. Má þar með telja ráðið,
að sú stefna sigri, að skilja Al-
þýðusambandið frá Alþýðu-
flokknum, þannig, að það sé
ekki með lögum nánar bundið
honum en öðrum stjórnmála-
flokkum í landinu.
* * *
Hin nýja kirkja á Akureyri,
Matthíasarkirkjan svonefnda,
verður vígð á morgun. Mun
biskup landsins, Sigurgeir Sig-
urðsson, framkvæma þá athöfn.
Elns og áður hefir verið rakið,
var byrjað að grafa kirkjugrunn-
inn árið 1938. Hefir siðan verið
af kappi unnið að kirkjusmíð-
inu, svo að þessi mikla bygging,
sem er stærsta og veglegasta
kirkjan, sem þjóðkirkjusöfnuður
hefir til umráða, er nú fullgjör
fyrir nokkru. Einskonar kveðju-
guðsþjónusta fór fram í gömlu
kirkjunni á Akureyri síðastlið-
inn sunnudag, og messaði séra
Friðrik Rafnar vigslubiskup.
Rakti hann hin helztu atriði
í sögu kirkjunnar. Alls hafa
sex prestar þjónað á Akureyri,
frá því að bærinn varð sérstakt
prestakall. Fyrsti prestur á Ak-
urejui var séra Guðmundur
Helgason árið 1880. Siðar þjón-
aði þar um skeið séra Þórhallur
Bjarnason, siðar biskup, og þá
séra Stefán Jónsson. 1887 gerð-
ist séra Matthias Jochumsson
prestur Akureyringa, en um
aldamótin kom séra Geir Sæ-
mundsson þar til embættis.
1927 varð séra Friðrik Rafnar
prestur á Akureyri og hefir verið
það síðan.
* * *
f gær var lýst í útvarpið eftir
póstbátnum Olav frá ísafirði, er
fór frá Patreksfirði aðfaranótt
fimtudags síðastliðins. óttuðust
ýmsir, að bátnum Refði eitthvað
hlekst á, þar eð hann kom eigi
til hafnar á þeim tíma, sem hans
var von. Fór Ægir og leitaði
bátsins í gær. Samkvæmt skeyti,
er komið hefir frá Ægi, lá Olav
i nótt í skarðsvík á Snæfellsnesi.
Var hríðarveður þar vestrá. All-
margt farþega vár með bátnum,
og hafði hann leitað þar afdreps.
En talstöð bátsins var biluð, svo
að ekki var unt að koma fregn-
skeyti um hvar hann væri niður-
kominn. Timanum var tjáð um
hádegið í dag, að báturinn væri
þá væntanlega á leið til Reykja-
víkur.
★ ★ *
Efnahagsyfirlit Landsbankans
31. október síðastliðinn sýnir að
seðlar í umferð hafa um síðustu
mánaðamót verið 23.3 inilj. kr.
Er það 1.2 milj. kr. meira en 30.
septembermánaðar. Bankinn hef-
ir safnað inneignum hjá erlend-
um bönkum, sem nema 26.3
milj. kr., þar af yfir 25 milj. kr.
á síðustu 12 mánuðum. I októ-
ber jukust inneignir þessar qm
8.5 milj. kr. Innstæðufé í spari
sjóði nam um síðustu mánaða-
mót 44.8 milj. kr„ og er það um
1.8 milj. kr. aukning frá fyrra
mánuði. Til samanburðar má
geta þess, að hliðstæð upphæð
nam 32 milj. kr. 31 október 1939
Lán í hlaupareikningi fara ört
minkandi. 31 október 1939
námu þau rúmum 12 milj. kr„
30. september síðastliðinn 10.4
milj. kr., og 31. október síðast-
liðinn 6.7 milj. kr.
★ * *
Á miðvikudagskvöldið var fé
lag til hjálpar lömunarveiku
fólki stofnað hér í bænum. Heiti
það “Sjálfsbjörg,” félag lamaðra
og fatlaðra. Stofnendur voru 56
—Tíminn 16. nóv
Handtaka
Brezka herstjórnin hér lét um
helgina handtaka Sigurð Bene-
diktsson póstmann, og er hann
nú í varðhaldi hjá brezka setu-
liðinu.
Sigurði er gefið að sök, að
hann hafi boðið tveimur brezk-
um sjómönnum 2,000 krónur,
ef þeir vildu koma fyrir sprengj-
um í skipi því, sem þeir eru á
og sprengja það í loft upp.
I gwrkvöldi lágu ekki fyrir
frekari upplýsinigar í máli þessu.
—Mbl. 31. des.
Véibátur sokkinn
Vélbáturinn “Goðafoss” frá
Keflavík, sem strandaði á Garðs-
skaga síðastliðinn laugardag, er
nú sokkinn á skerinu.
Vélin úr bátnum er eftir á
skerinu, en báturinn liggur í
þremur hlutum uppi í fjöru.
Þoka var svo mikil á þessum
slóðum á laugardag, að skip,
sem ætluðu að gera tilraun til að
ná bátnum út, komust aldrei
svo nærri bátnum að hann sæist.
—Mbl. 31. des.
Aðalræðumaður á næsta
Frónsmóti
Þórhallur Ásgeirsson
Svo hefir skipast til, að hr.
Þórhallur Á&geirsson, sem nú
stundar framhaldsnám við há-
skóla Minnesotaríkis, verður
aðalræðumaður á árshátíð þjóð-
ræknisdeildarinnar “Frón”, sem
fram fer þann 25. yfirstandandi
mánaðar að kveldi. Þórhallur
er glæsimenni hið mesta eins og
hann á kyn tH, og þykir prýði-
lega máli farinn, þó enn sé
kornungur að aldri. Foreldrar
hans eru þau hr. Ásgeir Ásgeirs-
son, fyrrum forsætisráðherra og
kona hans Dóra, dóttir Þórhalls
heitins Bjarnasonar biskups.
William McAdoo
látinn
Nýlátinn er í Washington,
D.C., William McAdoo, fyrrum
senator frá Californíu, og um
eitt skeið fjármálaráðherra
Bandaríkjanna, tengdasonur
Woodrow Wilsons Bandarikja-
forseta.
Ethiopía á leið til frelsi
Fyrverandi keisari Ethioj
íumanna, er nú kominn til lanc
síns, og hafa fjölmennar hei
sveitir fyrverandi þegna har
komið til liðs við hann; bendi
nú margt til, að Ethiopía, me
tilstyrk Breta, endurheim
frelsi sitt.
Eftir lestur nýrra bóka
Það hefir verið þetta ár
þröngt um sólskinsdaga,
gafst því heldur grasafár
gróður á túnum Braga.
Eftir sorta sumarið,
sem að burt er gengið,
hafa úrkasts efnivið
óðar smiðir fengið.
Unnur, Davíð, Elinborg
ótvírætt það sanna.
Grafa þau úr sorpi og sorg
syndir flakkaranna.
Hafa skift um lag og lit
ljóðin forn og bögur,
úrvalsrimur, annálsrit
og íslendinga sögur.
Páll á Hjálmstöðum.
—Lesbók.
BRITISH ROYALTY VISIT REST CENTRE FOR THE AGED
The Duchess of Kent is seen chatting to an 84-year-old ex-seaman
during a visit which the Duke and she made to a Rest Centre of
the S.O.S. Society, London.