Lögberg - 29.01.1942, Page 6

Lögberg - 29.01.1942, Page 6
6 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 29. JANÚAR, 1942 Afdalalœknirinn “Eg er að tala um morð — og það væri ekki úr vegi fyrir fógetann að taka vel eftir þessu: Fyrir fáum dögum var einn af Broken Chain smölunum laminn á höfuðið til dauðs með klafakjálka, af einhverjum er við hann ræddi eins og vinur væri. Og einn Neckyokes- piltanna var kyrktur með keðjuspotta, undnum um háls honum á svo kænlegan hátt, að hvergi sáust nein merki um illa meðferð hans. Hann hefði barist um eins og viltur húnn gegn þessu, nema vegna tvenns. í fyrstu hugði hann sig vera í samræðu við kunningja sinn. I öðru lagi hitt, að vinurinn náði að spýta í handlegg honum einhverju lyfi, sem gerði hann meðvit- undarlausan, svo auðvelt var að vefja keðj- unni um háls honum mótstöðulaust. Læknir væri sá eini maður, sem slíkt hefði getað fram- kvæmt.” Griggs hafði aftur náð svo miklu jafnvægi í huga sér, að hann gat nú sagt í mjúkum radd- blæ: “Mig virðist reka minni til þess að hafa heyrt eitthvað um þessa tvo viðburði — að það væruð þér, sem kváðust hafa fundið bæði þessi lík. Og þér værið sakaður um morð austur í Rimrock.” “Þetta þarf líka einhverrar skýringar við,” sagði fógetinn og kinkaði kolli. “Einkum að því er snertir vesalings mann- tuskuna, Baldy, frá Neckyoke,” bætti Griggs við. “Hann átti þátt í því ekki alls fyrir löngu, Prescott, að sýna yður banatilræði — svo það væri ekkert undarlegt þótt þér vildið losast við hann.” “Nei, svo væri ekki,” viðurkendi Lance. “Er var og það, sem þér höfðuð í huga, þegar þér drápuð hann. Og þetta minnir okkur aftur á jarðfallsskálina og grímuriddarana þar. Og á þá staðhæfing yðar, að Miss Randall hérna væri aftur komin til bæjarins og biði þess að náttúran héldi sitt skeið hvað hana snerti. Þér rænduð henni. Komust þá að því, sem aðeins læknir gat um dæmt — jafnvel flækingslæknir eins og þér — að hún þjáðist af heiftugri botn- langabólgu. Svo þér fluttuð hana hingað aftur og yfirgáfuð hana —, með það í huga, að hún hefði ekkert tækifæri til að lifa það af, því þér feíluðust ekki til þess, að eg kæmi áftur til að ~framkvæma uppskurðiim og vilduð sjálfur ekki gera hann.” “Eg staðhæfi það, að eg gat ekki fram- kvæmt uppskurðinn,” skrækti Griggs þvínær hástöfum. “Það er ekki nokkurt satt orð í öllu þessu, nema það, eins og handleggurinn á mér —” “Með dálítilli innspýting til þess að hann sýndist bólginn og með blámabletti. Handlegg- ur yðar er alheill — alveg eins og hann var ómeiddur áður austur í Rimrock, þótt þér stað- hæfðið að hann væri brotinn, og létið hann svo verða alheilan eftir svo sem eina næturhvíld. Enginn nema læknir hefði getað dæmt um hvað að Lindu amaði; það skiljið þér, Randall.” Á andliti Randalls var vandræðalegur undrunarsvipur, eins og hann skildi naumast hvernig í öllu þessu lægi. Svo kinkaði hann kolli og sagði um leið. “Eg hygg þér hafið á réttu að standa, læknir. En það auglýsir hann sem fyrirliða grímubúnu drjólanna, er ætluðu sér í gær- kveldi að hálshöggva mig — sannar hann—” “Sannar hann manninn, sem höfundur er alls þessa djöfullega svikavefs, æsandi úlfúð- ina milli Neckyoke og Broken Chain búanna á hvern þann hátt er hann sá sér færi til þess, sem dvaldi svo austur í Rimrock um tíma tii þess að hlutast til um mitt starf og skapa mér vandræði. Hann er hin biksvarta bannfæring að verki. Og hann hefir framkvæmt ýmsar all- áhrifaríkar athafnir á þann hátt gegnum liðnu árin. Notaði son yðar sem svipinn af Danny Darrel, í því skyni að láta yður þá nóttina verða honum að bana, og þegar þér ekki gerð- uð það —” “Sem eg mætti þakka yður,” greip Randall fram í. “Þegar þér ekki gerðuð það, skaut hann sjálfur á Sam, til þess þér kæmið að honum dauðum. Er honum fiæstum hepnaðist.” Fógetinn hreyfði sig valdsmannslega. “Það er margt í öllu þesu, sem eg hefi lítinn skilning á, en það hljómar býsna alvar- lega,” þrumaði hann. “Eg hygg þér verðið, Griggs, að svara til þessara athafna. Geti þeir fært fram sönnur fyrir tíunda parti þeirra —” “Þeir geta ekki sannað neitt af þessu,” hrópaði Griggs. Hann gaut nú augunum æðis- lega um stofuna, eins og snöruð lúpulæða. “Hann spinnur þetta alt upp, sjálfum sér til afsökunar. Eg var úti allan daginn og fram á nótt, að vitja sjúklinganna —” “Þann hlutann er auðvelt að sanna,” greip Lance fram í. “Sendið tvo af mönnum yðar til herbergis hans í Atlas gistihúsinu, fógeti. Nema honum hafi hugkvæmst að eyðileggja það, þá ætti þar að finnast hálffult hulstur af vindling- um, sem innihalda marijuana í stað tóbaks. Einnig —” Ótta-æði blossaði í augum Griggs, er hann nú þaut fram að stofudyrunum, vippaði sér fram hjá einum mannanna, ýtti öðrum frá sér með ofsastyrk sturlaðs manns, dró hníf úr hulstri og rak illyrmislega í hinn þriðja, er undan hörfaði sárt særður. Úr dyrunum æpti hann seinustu ögrunarorðum sínum. “Lifi sonur yðar, Randall, þá verður hann vitfirringur. Betra hefði verið, að þér hefðið orðið honum að bana!” Hann stökk jafnskjótt fram úr dyrunum, pjakkaði villimannslega niður útistigann, hlaupandi, með fógetann og flesta af liði hans á hælum sér. Skotdrunur dundu við út í næt- urhúmið, með höstum hreim. Kuldastroka stóð inn um opnar dyrnar og Lance flýtti sér þang- að til að loka þeim, en sneri sér svo að særða manninum. Dave Randall stóð þarna og starði hálf utan við sig á það sem fram fór. Fyrst leit hann til læknisins í óða önn geranda að áverka særða mannsins, og svo aftur þangað sem Linda hvíldi. 4 “Atvikin gerast með of miklum hraða, tii þess að eg fái fylgst með þeim, hygg eg, læknir,” sagði hann, en spurði svo. “Hvernig líður manninum?” “Ekki sem verst. Stungan er slæm, en aðeins í öxlina. Verður ekki hættuleg.” “Hvað um Lindu?” “Góð von er nú um að hún nái sér aftur. Þetta var einn nákvæmaáti uppskurðurinn, sem eg hefi gert, þótt eg segi sjálfur frá.” “Og það undir líklega hinum allra erfið- ustu aðstæðum. Þér, lækhir, eruð töluverður maður. En hvaða maður er þessi Griggs, hver er Van Scoy og grímuhuldi fyrirliðinn — að maður ekki nefni hina svörtu bannfæring og ýmislegt fleira?” Lance horfði beint í augu Randalls, og bretti varirnar í háðslegu brosi. “Þetta hljómar alt heimskulega, er það ekki? En það skýrir heilmargt. Það tók mig all-langa hríð að tengja eitt og annað saman — og það voru aðallega orð þau er hann viðhafði i jarðfallshellinum um Lindu, sem gerðu mér þetta alt skiljanlegt, þegar eg fór að hugsa um þau.” Bros hans varð nú hæðnislegra. “Hver haldið þér að hann sé?” Randall hristi koll sinn. “Eg er hættur að geta hugsað nokkuð. Gæti ekki getið mér neitt til um það — nema hann sé Danny Darrel. Þótt Danny sá nú dauður fyrir aldarfjórðungi, þá væri þetta ekki mikið undarlegra en alt hitt.” “Nei, það væri alls ekkert undarle'gt. Hann lét þá fregn berast út að hann væri dauður — en svo virðist, sem það hafi verið eitt af svika- brögðum hans, þar sem nú er á því enginn vafi að hann sé einmitt Danny Darrel. Hann er holdugri, hefir breyzt mikið með aldrinum, litað hár —” Að utan heyrðist nú aftur þungl^malegt fótastaut úr stiganum, eins og manna er þunga byrði hefði meðferðis. Fógetinn hratt upp hurðinni, menn hans komu inn með þessa byrði sína og fleygðu henni viðhafnarlaust á gólfið. Dr. Griggs — að öðru nafni Danny Darrel. I Tuilugasli Kapíiuli. Nú heyrðist enn þungt fótatak í stiganum, svo snarast Mrs. Tripp inn úr stofudyrunum og sperrir upp augun með vanþóknunarsvip á andlitinu. Hún nam staðar, sperti út hvassa olnbogana á báðar hliðar meðan hún athugaði særða manninn á gólfinu og sneri sér svo gegnt Lance. “Hvað hér hefir verið að gerast, er mér ráð- gáta — og það virðist svo sem nú sé enginn tími til að bera fram spurningar,” sagði hún gremjulega. “Hann sendi mig út í erinda- gerðum sem reyndust að vera villigæsahlaupin ein — og nú liggur hann, hér sjálfur særður.” Lance kraup á gólfinu við hliðina á Griggs, en leit snöggvast upp til konunnar og mælti: “Við skýrum þetta seinna, Mrs. Tripp. Hér hefir ýmislegt verið að gerast. Ef þér vildið nú gera svo vel að hita meira vatn —” “Það skal eg gera,” flýtti Mrs. Tripp sér að segja og sneri sér óðara við til að fram- kvæma þetta. Randall starði með undrunar- svip á Lance. “Hvað ætlið þér nú að gera, læknir? Er hann enn með lífi?” spurði hann. “Já, svo má það heita, að því er virðist. Hjálpið mér til að leggja hann upp á borðið,” sagði Lance. Þeir gerðu eins og hann bað, en fógetinn var ákveðinn í því, hvernig hann liti á þetta. “Mér lízt svo á sem hann muni ekki lifa lengi — og ef helmingur þess, sem þér berið á hann er sannleikur, sem framferði hans virð- ist benda til, þá væri það nú líka bezt.” Lance rannsakaði áverkann — höfuðsæri, allmikið svipað því, sem Sam Randall hafði orðið fyrir. Ef hann nú gerði uppskurð á þessu sári Griggs, væri von um að hann lifði það af — ekki mjög mikil von, en möguleiki þó um að fá bjargað honum. Hann rétti hönd eins og ósjálfrátt eftir verkfærunum. • “Þótt skrítið sé, datt mér aldrei í hug að þetta væri Danny Darrel,” sagði Dave Randall og yfirvegaði með næmri eftirtekt andlit særða mannsins. “Hann hefir breyzt mikið á þessum árum og eg var auðvitað altaf viss um, að Danny Darrel væri dáinn. Með því að líta nú nákvæmlega í andlit honum sé eg ýms merki þess, að þetta sé vissulega hinn forni Danny:” Er Randall varð þess nú áskynja hvað læknir- inn hygðist að gera, glápti hann á þá með op- inn munninn af undrun. “Þér ætlið þó vissulega ekki að gera upp- skurð á honum — reyna að halda í honum líf- inu, eða hvað?” sagði hann. “Hví ekki það?” svaraði Lance ákveðið. “Rétt á litið er slíkt skyldustarf mitt.” “En — en — “stór-skuld og smá-ugla!” Hann! Látið hann deyja, sé hann ekki of þrjózkur til þess. Hann hefir leikið á mann- inn með ljáinn allareiðu of lengi.” Þetta virtist að vera samhuga álit allra viðstaddra, en Lance hristi höfuðið. Hann var asalaus, handstyrkur hans í eins góðu lagi og nokkru sinni fyr og rödd hans ákveðin er hann mælti nú: “Randall, yður er bezt að fá yður góðan dúr, þess þurfið þér nú við. Þið hinir ættið að gera hið sama. Mrs. Tripp verður mér til aðstoðar.” “Það geri eg vissulega,” sagði Mrs. Tripp og kinkaði kolli. “Farið þið hinir allir nú út héðan,” bætti hún við í skipandi tón. Svo stanzaði hún eitt augnablik til að horfa niður á Lindu, er mennirnir voru farnir, og við- kvæmnislegt umhyggjubros mýkti andlitssvip hennar eitt augnablik, er hún sagði enn: “Aum- ingja lambið! Hún virðist nú sofa nógu rólega! líenni leið hræðilega, þegar Dr. Griggs kom. Eg var alveg á glóðum út af henni.” “Hún fer að rakna úr svæfingardvalanum um það leyti er við ljúkum þessu verki, og hún verður þá ekki um stund eins róleg, er eg hræddur um,” sagði Lance. “Við skulum þvi byrja nú strax á þessu.” “Alt bæjarfólkið er nú vaknað, og í æstum huga út af atburðunum hér. Jæja, látum það æðrast. Eg sagði þessum fógeta að setja vörð við stigann og láta engan ónáða okkur hér, og eg lét hann skilja það, að eg myndi segja hon- um meiningu mína, ef hann gætti þessa ekki.” “Úr því svo var, þá er eg viss um að við verðum ekki fyrir nokkru ónæði,” sagði Lance og kinkaði kolli með alvörusvip. “Hann vildi kannske eiga á hættu að mæta kúlnahríð, Mrs. Tripp, en eg er viss um að því kærði hann sig ekki um að mæta.” Mrs. Tripp leit grunsamlega á Lance, og tók nákvæmlega eftir verki hans. Handatil- tektir læknisins voru hiklausar og fimlegar eins og ávalt áður, jafnvel þótt hugur hans væri einnig starfandi á öðrum sviðum. Þegar hann nú gerði sér grein fyrir því hvers hann á þessu kvöldi hefði orðið vísari, sá hann að það féll alt vel saman hvað við annað: Danny Darrel hafði kveðið upp bann- færing sína gegn mönntmum þremur, er honum var í nöp við, sem og öllu þeirra skylduliði. Og svo hafði hann með köldu blóði og ákveðn- um kænskuhuga gengið þolinmóðlega að því verki, öll liðnu árin, að láta bannfæringará- hrifin koma verklega í ljós. Fyrir Danny Darrel kom tíminn ekki til greina. Miklu fremur dró hann á langinn að láta afleiðingar bannfæringarinnar ná kulda- legum endalokum sínum. Hefnd var hið eina, sem hann lifði fyrir, og þegar hún var fúll- komnuð, myndi lífið missa fyrir honum lit- brigði sín. í nýju gerfi, ef til vill ýmiskonar á mismunandi tímabilum, lifði hann og starfaði að ætlan sinni, notaði við það aðra menn, hve- nær sem hann gat komið því við, og hafðisi sjálfur að þegar þess virtist þörf. Enn voru eftir ýmsir þræðir í þessum svikavef, sem rekja varð, en nægilegt var nú allareiðu bert til að gera atvikin skiljanleg, hugsaði Lance. Aðal unaður Danny Darrels hafði verið- sá, að halda Neckyokes- og Broken Chain-liðinu stöðugt í hvors annars hári, æsa upp haturshugann milli þeirra af nýju í hvert skifti sem svo virtist, að heilbrigð skynsemi væri í þann veginn að ná þar yfirráðunum. Og enginn hörgull var á bráðlyndum æfintýra- bubbum, sem fúsir væri til að framkvæma þær athafnir fyrir hann. Kyrð var nú aftur komin á út um bæinn. Lance rétti úr sér með feginsstunu og sneri sér við til að lauga hendur sínar. Þá var drep- ið gætilega og sem í hálfum huga á stofu- hurðina. Mrs. Tripp opnaði hana og sá þar þá standa manninn, sem fógetinn hafði sett sem vörð við stigafótinn. Þetta var lágvax- inn maður, með bogna fótleggi, löngunarsvip í bláum augum og hélubrydding á yfirskegg- inu, sem þrátt fyrir það sneri þó húfu sinni feimnislega milli glóvum .huldra handa, er hann leit framan í Mrs. Tripp. “Hú-a — húsfreyja, mig langaði aðeins til að spyrja — gæti eg komið hér inn eins og til að verma mig ögn?” sagði hann í bænar- rómi. “Eg er næstum orðinn gegnkulsa, og enginn hefir komið hér nálægt í næstum heilan klukkutíma —” “Nú, auðvitað, vesalings maður, komið strax inn í stofuna,” hrópaði Mrs. Tripp for- viða. “Mér datt ekki í hug að yður gæti orðið svona kalt. Hérna, fáið yður vænan sopa af þessu brennheita kaffi, sem eg var rétt að laga handa lækninum, og farið svo í rúmið.” “Eg verð vissulega feginn að gera það,” viðurkendi varðmaðurinn og svolgraði í sig með þökkum brennheitt kaffið úr stórum bolla. Svo gaut hann augum til Griggs. “Aha — er hann enn með lífi?” “Enn lifandi og með allgott tækifæri til að halda í líftóruna áfram,” sagði Mrs. Tripp. “Eg fullyrði það, að ekki sé betri læknir til í öllu landinu heldur en Dr. Prescott. Maðurinn get- ur framkvæmt kraftaverk, og gerir það.” “Svo virðist vera. Eg held við höfum vafalaust haft ranga hugmynd um hann þarna austur í Rimrock. Við höfðum þó brýna þörf á góðum lækni eins og honum líka þar. Eg geri naumast ráð fyrir að hann vildi fara þang- að aftur?” sagði litli varðmaðurinn. “Eg vona ekki, eftir það hvernig þið blind- ings-durgarnir breyttuð við hann. Og svo þurfum við hér efra á manni eins og honum að halda, engu sfður en fólk á nokkrum öðrum st^ð sem mér getur í huga komið.” Svo vísaði Mrs. Tripp verðinum á dyr, sneri sér að Lance og mælti enn: “Þér eruð, læknir, vita uppgefinn. Farið í rúmið. Eg skal annast um sjúklingana.” Lance laut höfði, sneri sér við, gekk hálf- reikulum sporum yfir herbergisgólfið og nam staðar við rúm Lindu. Hún hreyfði sig ögn, andvarpaði og opnaði þá augun. Eitt augna- blik voru þau sviplaus, svo skein úr þeim mjúkur bjarmi, er hún þekti Lance, og þá reyndi hún að rétta hendurnar upp til hans. Hann kom þegar auga á sársaukasvipinn í djúpi augna hennar, laut áfram í skyndi og hjúfr- aði höfuð hennar á örmum sér. “Ó, Lance,” hvíslaði hún. “Sleptu mér ekki!” “Eg mun ekki sleppa þér, kæra vina!” hvíslaði hann ástmjúkt í eyra henni. “Nei, aldrei, Linda!” “Ó, jæja, Lance,” stundi hún, “þá er alt unaðslegt.” Bráðlega staulaðist Lance svo, að boði Mrs. Tripp, til sængur í næsta herbergi. Þegar Lance vaknaði næsta morgun, hafði Mrs. Tripp til reiðu lystuga máltíð, sem hann flýtti sér að gera góð skil. Meðan hann matað- ist, horfði hún á hann með hróðurskendum velþóknunarsvip á andlitinu, en leit við og við inn í sjúkraherbergið, þar sem þau Linda og Danny Darrel enn blunduðu. “Það hefir frézt hingað, að Ape Narcross hafi farið á fætur í gær og riðið á burt leiðar sinnar, og enginn veit hvert hann fór,” sagði hún. Lance hleypti brúnum að diski sínum. Ape Narcross gat hafa verið í þjónustu Danny Dar- rels, en hvort sem svo var eða ekki, þá bjó hann yfir dökku og dýrslegu hugarfari. Og væri hann nú horfinn, þá var þess sízt að sakna. Ef til vildi hlýddi hann þeirri skipan Randalls, að nema ekki staðar fyr en hann væri kominn langt út fyrir takmörk afdala- hjarðlendanna. “Úr því þér heyrðuð um þetta, þá fenguð þér kanske einhverjar fleiri fréttir frá Neck- yoke. Hvernig líður Sam?” “Það er sagt hann virðist nú sofa rólega, í stað þess að liggja enn í eins konar svefn- sýkisdoða, eins og verið hefir.” Það vakti þó nokkra von hjá Lance. Hann stóð nú upp að loknum morgunverðinum, og fór yfir í næsta herbergið. Rétt þegar hann leit framan í Danny Darrel, veða Dr. Griggs öðru nafni, opnaði sjúki maðurinn augun. Eitt augnablik starði hann á Lance og end- urminningar-glampi birtist þá í andliti hans. Hann þuklaði á umbúðum vöfðu höfði sér og brosti ofurlítið. “Þér hafið búið vel um þetta, læknir,” sagði hann í viðurkenningartón. “Og eg hygg qg eigi yður nú líf mitt að launa. Eg er lífseigur fugl, þegar á það reynir.” “Danny!” Augu aldna læknisins urðu eins og dreymandi. “Nú er margur langur dagur liðinn hjá síðan nokkur hefir ávarpað mig með því nafni,” sagði hann hálf-vandræðalegur á svipinn. “Eg gerði út af við Danny Darrel — hinn gamla Danny — fyrir mörgum árum — og síðan hefi eg verið allur annar maður.” Hann horfði á Lance, enn eins og í óvissu.

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.