Lögberg - 11.06.1942, Blaðsíða 1

Lögberg - 11.06.1942, Blaðsíða 1
55. ARGANGUR LÖGBERG, FIMTUDAGINN 11. JÚNÍ, 1942 NÚMER 24 Japanir ráðast á Alaska Um síðustu helgi veittust jap- anskar orustuiflugvélar að Dutch Harbor í Alaska, og vörpuðu yfir höfn og ha'fnarvirði, allmiklu af sprengjum> ekki mun þö tjón það, er af hlauzt, hafa orðið til- finnanlegt, því Bandaríkjamenn voru vel viðbúnir, og heilsuðu komumönnum fremur ónotalega nieð loftvarnahyssum sínuin. Nánar fregnir frá Dutch Hanbor eru ekki við hendi, og halda ýinsir, að þar í grendinni standi yfir sjóorusta. Hermálaráðherra Bandaríkja- stjórnar, Mr. Stimson, kvað þetta Frá Búnaðarþingi Búnaðarþing afgreiddi tvö mál á föstudaginn var. Annað mál- ið var, að þingið samþykti skipu- lagsskrá fyrir heiðursverðlauna- sjóð Búnaðarfélags fslands, en hann á að stofna af eftirstöðv- um sj-óðs, er var eign Húss- og bústjórnarfólags Suðuramtsins, en þær sjóðleifar eru í vörzlum Búnaðarfélags íslands. Hitt málið var svohljóðandi tillaga (iþingsályktunartillaga varðandi ifjárhag félagsins) : “Þar eð verðvísitala hefir hækkað verulega á síðastliðnu ári, eða síðan tillag ríkissjóðs til Búnaðarfélags íslands var á- kveðið á fjárlþgum fyrir árið 1942, verður ekki hjá því kom- ist að fara fram á það við rfkis- stjórn og Alþingi, að það A'eiti Búnaðarfélagi fslands aukafjár- veitingu til að standa straum af útgjöldum þessa árs, kr. 70,000 ■— isjötdu þúsund krónur. í þessu sambandi vill Búnað- ai'þingið taka það fram, að brvn nauðsyn ber til að bæta við nýj- um starfskröftum til leiðbein- inga um aukna framteiðslu út ttm sveitir landsins.” — (Tíminn 17 marz). ÚTSKRIFAST í HJÚKRUNARFRÆÐI Miss Jónasson Helen Margrét Jónasson er iaedd i bænum Winnipegosis i Manitoba 18. deseinber 1920, dóttir þejrra hjjönanna Aðal- hjörns heitins Jónassonar tinnb- ursmiðs frá Yztuvík á Svalbarðs- strönd við Eyjafjörð i Suður- Þiageyjarsýslu og konu hans ^igríðr Sólveigar Finnbogadótt- ui' frá Breiðuvík á Tjörnesi í Suður-Þingeyjarsýslu, og konu hans ólafar ólafsdóttur Gabríels- s°nar frá Ærlæk í Axarfirði í Norður-Þingeyjarsýslu. — Helen útskrifaðist af Victoria spítal- anum i Winnipeg 28. maí s.l. U!eð gullmedalíu verðlaunum fyrir ágætan lærdóm i vfirsetu- fræði. ekki verða mundu hina síðustu árásatilaun Japana á Bandaríkin, og þessvegna væri þjóðinni það jífsnauðsynlegt, að vaka si og æ á verði. Hrikaleg sjóorusta við Midway Island Risafengin sjóorusta hefir undanfarna daga staðið yfir i gnend við Midway Island milli japanska flotans annars vegar og þess ameríska hinsvegar. Gerðu Japanir til þess ítrekaðar tilraunir að ná fótfestu á ey þessari, en biðu þar teinn ósigur- ínn öðrum meiri. Er staðhæft, að Japanir hafi í þessari viður- eign mist tvö, ef ekki þrjú, loft- véla flutningaskip, þrjá tundur- spilla og eitt beitiskip, auk þess sem að minsta kosti fimm önnur skip at' ýmsum stærðum, hafi sætt imeiri og minni skemdum. Tjón Bandaríkjaflotans var sama og ekki neitt. Síðuálu fregnir Grimmilegar orustur standa enn yfir í eyðimörk Libyu; mannfall er sagt að vera gífur- ilegt á báðar hliðar; þó er nú svo komið, að því er síðast hefir frézt, að innrásarsveitir Þjóð- verða og ftala, hafa á ölluin svæðum verið stöðvaðar, og all- víða orðið til þess neyddar, að hörfa til baka. • Japanir hafa mjög hert á sókn gégn Kínverjum undanfarna daga, og hefir iþeim að sögn skil- að þó nokkuð áfram, svo að segja á öllum hernaðarsvæðum. Skortur á flugvélamagni stendur Kínverjum mjög fyrir þrifum. • Enn hafa hundruð manna í. Prague verið teknir af lífi vegna Reinhard Heydrich, sem skotið- var á þar í borg á dögunum, og nú er látinn af áverka, er hann þá sætti. • Á flestum vigstöðvum Rúss- lands, að Sebastopol-borg undan- skilinni, má heifa að alt standi við það sania; engar stórorustur, en daglegt rannsóknarflug vfir öllum meginvíglínum Vélbátur strandar og eyðilegst Frá Siglufirði. Klukkan 9 i fyrrakvöld reru margir bátar héðan úr Siglufirði, þar á meðal vélbáturinn “Þor- móður rammi.” Eigandi hans er Skafti Stefánsson. * Klukkan að ganga 10 um morguninn bárust fregnir hing- að þess efnis, að báturinn hefði strandað út af Skagagrunni, en allir mennirnir 5 talsins kom- ust heilu og höldnu á land. Formaður bátsins var Pétur Stefánsson. Hefir báturinn stundað fiskveiðar héðan seinni hluta vetrarins. Var hlutur hans sæmilegur. Báturinn var 11 smálestir. Er hann talinn ó- nýtur og þetta þvi tilfinnanlegur skaði fyrir eiganda og sjó- mennina, sem unnu við bátinn, •en þeir voru alls 9. Afli bátanna er mjög sæmileg- ur, eða um 4 þúsund pund. —(Ailþbl. 12. marz). Frú Oddný Sigríður Bardal Á laugardagskveldið var, lézt á Almenna sjúkrahúsinu hér i borginni, frú Oddný Bardal, kona Paul Bardals, fylkisiþingipanns; hún háði langt og istrangt sjúk- dömsstríð af völdum krabba; sjúkdóm sinn bar hún til hinstu stundar sem sönn hetja. Frú Oddný var fædd í Winni- peg þann 29. september árið 1894; voru foreldrar hennar þau Jón O. Bergson og Margrét kona hans; að. iloknu barnaskólanámi tlagði Oddný heitin fyrir sig verzlunarmientun, og vann all- lengi á skrifstofu Consumers Ice Ifélagsins, en siíðar !hjá Arctic Ice félaginu; naut hún þar sem ann- arsstaðar trausts og hylli. Árið 192(5 giftist Oddný eftir- lifandi manni sinum, Paul Bar- dal, fylkisþingulanni, þjóðkuni*- um ágætismanni; var jafnan með þeim ástríki mikið, og heim- ilið orðlagt fyrir glaðværð og risnu. Dóttir, 12 ára að aldri, Sigrid Margaret, lifir móður sína, vel gefin og yndisleg stúlka. Frú Oddný var með afbrigðum glæsileg kona, og auðkendist aí sterkum persónuleika; allir, sem kyntust henni. kveðja hana með heitum söknuði þó þyngstur sé vitaskuld harmur kveðinn að eiginmanni, dóttur, bræðrum og aldurhniginni móður. Útför Oddnýjar fór fram frá Fyrstu lútersku kirkju á þriðju- daginn, að viðstöddu afarmiklu ifjölmenni, þar á ineðal fjölda þingmanna, forsætisráðherra fylkisins og erindrekum margra opinherra stofnana. Séra Valdimar J. Eylands jarð- söng. Heimför Guttorms J. Guttormssonar Sveif til Ságuness svinnr humarr; býleistur brögnum bragi þuldi. Ossum er Egill endurborinn, Ságulands' sonr seinri tíma. Vestur of ver vaskr of farinn konr ungr, kyngi andans flytr, förull Fróns búöndum; hlýtr lof lýðs og ljóðmæringa. Hefir för farna, frægð of hlotið skald, þjóðrörir, skjöldunga niðr. Vestrænni Víkings vanr störfum; styrkir ættarbönd Óðins niðja. S. B. B. Ritgerð eftir dr. Beck vekur athygli Ritgerð eftir dr. Richard Beck um norska skáldsagnarithöfund- inn Johan Falkberget, sem kom út á nóvenibefheifti fræðiritsins “Scandinavian Studies” í Banda- rikjunum, hefir vakið inikla at- hygli meðal Norðmanna þar í landi. Vikublaðið “Decorah- Posten,” . sem er útbreiddast norskt blað i Bandarikjunum, flutti einkar vinsamlega rit- stjórnargrein um fyrnefnda rit- gerð. Hennar er einnig mjög lofsamlega minst i mánaðarritinu “Sönner af Norge,” málgagni hinna fjölmennu þjóðræknisfé- laga “Sons of Norway” i Banda- rlíkjunum og Canada. Segir um- sögnin, að ritgerðin sé sérstak- lega merkileg (“most remark- able”) og hvetur þá, er Jesið hafi verk Falkbergets, til að kynna sér hana til skilningsauka^ á höf- undinum. Miss Petrea Guðfinna Jónasson látin Á laugardagsmorguninn var, lézt að heimili sínu, (594 Banning Street hér í borginni, Miss Petrea Guðfinna Jónasson, fædd 2. júní 1877; ihún var ekki rúmföst nema fáa daga. Foreldrar henn- ar voru þau Thorlákur Jónasson frá Grænavatni, og Kristrún Pét- ursdóttir frá Reykjahlíð. Miss Jónasson naut almennra vin- sælda hvar sem iÆið" hennar tá, enda var hún af mætu og merku fólki komin í báðar ættir; hún lætur eftir sig kjörson, Njál að nafni, er hún gekk i góðrar móð- ur stað; sex systkini hennar eru á Wfi: Benedikt, Björn, Kristján, Jónas, Hólm'friður og Valgerður. útför Miss Jónasson fór fram á þriðjudaginn. Húskveðju flutti séra Egill H. Fáfnis, en kveðju- athöfn stýrði í Fyrstu lútersku kirkju, prestur safnaðarins, séra Valdimar .1. Eylands, og las síð- ustu kveðjumál í Brookside graf- reit. LÝKUR PRÓFrI HJÚKRUNARFRÆÐI Miss May ísfeld Þann 21. maí síðastliðinn, lauk próifi í hjúkrunarfræði við Al- menna spátalann hér í borg, Miss May ísfeld, dóttir þeirra Mr. og Mrs. E. A. fsfeld, 6fi8 Alverstone Sfreet. Miss fsfeld er fædd i Winni- peg þann 28. dag desembermán- aðar, árið 1917; hún var snemma sett til náms og lauk B.A. prófi við Manitoba háskólann vorið 1938; hún er gædd ágætum námshæfileikum, og hefir heldur ekki slegið slöku við. Miss ísfeld gegnir hjúkrunar- störfum við Almenna spitalann. SEBASTOPOL í HÆTTU Siðustu fregnir herma, að hin mikla hafnarborð á Krímskaga, Sebastopol, sé nú sem stendur í alvarlegri hættu; hafa Þjóðverj- ar nú samfleytt i þrjá sólar- hringa helt yfir borgina slíkum kynstrum af eldi og brennisteini, að vafasamt þykir hvort borgar- búar fái rönd við reist. Magnús Magnússon látinn Síðastliðinn laugardag lézt að heimili sínu Eyjólfsstöðum í grend við Hhausa, merkisbónd- inn Magnús Magnússon, 82 ára að aldri; rak hann jöfnum hönd- um um langt skeið, stórútgerð og landbúnað. Magnús kom til þessa lands fyrir 54 árum síðan. en átti heima á óðali sínu við Hnausa í 52 ár. K)Onu sína, Ingibjörgu, misti Magnús 1940; hann lætur eftir sig sex sonu, Jón, Svein, Jó- hannes, Oscar Einar og Guð- mund, ásamt þrem dætrum, Mrs. .1. Damelsson, Mrs. B. Holm og Jórunni, sem heima á i Winipeg. Útför Magnúsar fór fram á þriðjudaginn frá heimilinu og Breiðuvikurkirkju. Séra Sig- urður Ólafsson, með aðstoð séra B. A. Bjarnasonar, jarðsöng. Frá Minneapolis Á sunnudagskveldið þann 21. |>. m., verður íslenzkri guðsþjón- iistu útvarpað yfir St. Olaf Cof- lege stöðina WCAL i Minneapolis kl. 7—8. Séra Guttormur Gutt- ormsson prédikar. Organisti verður Pálína Bardal. Kvenna- kór í Minneapolis, undir forustu Hjartar Lárussonar, aðstoðar söngflokkinn við sálma og messusvör. Bylgjulend WCAL er 770 kilocycles. — Upp úr hádegi þenna sama dag, efnir Hecla Club, íslenzka kvenfélagið i Minneapolis til sinnar árliegu útiskemtunar, er haldin verður í skemtigarðinum við Nokomisvatn; má þar vænta fjölbreyttrar og einkar ánægju- legrar skemtunar. Mrs. Peter Thorgrimson, er forseti áminsts kvenfélags. Sjötíu ára ungur Séra Friðrik Hallgrímsson Þann 9. yfrstandandi mánaðar, átti séra Friðrik Hallgrimsson dómkirkjupréstur í ReykjaVík. sjötugsafmæli; hann gegndi prestsembætti vestan hats um tuttugu ára skeið með hinm mestu prýði, og hafði lengi með höndum skrifarastarf fyrir hið lúterska kirkjufélag Islendinga i þessu landi. Séra Friðrik er hið mesta glæsimenni, og ágætur kennimaður; á hann hér um slóðir margt trúnaðarvina frá hinni löngu dvöl sinni vor á meðal. Lögberg flytur honuni hugheilar árnaðaróskir í tilefni af þessuin merka áfanga í æfi hans. I kynnisför til Winnipeg Kingaö ..óin iil bbrgarinnar i lok fvrri viku, Miss Guðrún Stephensen, stúdent við Colum- bia háskólann í New York. Miss Stephenseiv er fædd í Winnipeg, en fluttist til íslands með for- eldrum sínum Stefáni Stephen- sen trésmið og Friðnýju konu hans; hún er frábærlega vel gef in stúlka, og hefir getið sér mikinn og ágætan orðstir við námið; hún leggur stund á upp- eldisfræði við áminstan háskóla. Miss Stephensen ráðgerði að heimsækja ættingja sína i Win- nipegosis og á Gimli. Meðan hún dvelur hér í borg, er hún til heimilis hjá Mr. og Mrs. A. Sædal, (>9fi Simcoe Street. Sími 29 654. Canada Þú ljósríka, víðfræga lýðanna skjól, sem leita að farsælli dögum, með glitrandi blómin mót geislandi sól í gróandi þjóðlífsins högum. Þín auðsæld og frelsi af öllum er virt sem örvar og bendir til þrifa, þitt nafn verður menningar blómsveigum birt í bók, sem að^aldirnar skrifa. Eg kom til þín ungur, þá vermdi mig vor með vonanna ljósi og trausti, í lifandi minning hér liggja mín spor um leið sem er gengin að hausti. Hér þáði eg marga og munhlýja gjöf, sem mótaði daganna línu, og hér á eg vinanna vöggu og gröf í vonblíða skautinu þínu. Þó halli nú deginum haustinu að með hnignandi fjörið og þrekið, eg horfi til baka með þökk fyrir það^ sem þú hefir gefið og tekið. Við forlaga mótbyr og fagnaðar hag hér fylgdi eg ástvinum mínum, og því vil eg sofna minn síðasta dag í sólríka faðminum þínum. Ó blessi þig drottinn af dygðanna sjóð um daga og komandi árin, og gefi þér máttuga mannúðar þjóð að mýkja þeim líðandi sárin. M. Markússon.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.