Lögberg - 11.06.1942, Blaðsíða 2

Lögberg - 11.06.1942, Blaðsíða 2
2 LÖGBERG. FIMTUDAGINN 11. JÚNÍ. 1942 Asía Eftir Lin Yutang. Ósýnilegir atburðir eru að ger- ast austur í Asíu um þessar mundir, atburðir, sem munu móta framtíð heimsins á ókomn- um tima, hvernig sem friðar- samningum annars verður hátt- að þegar þar að kemur. Afstaða Evrópu ríkjanna gagn- vart Asíu, verður að breytast tit stórra muna, hvort sem Japan stendur eða fellur í yfirstand- andi vopnaviðskiftum. Afstaða þeirra verður að brevtasit mjög skjótlega, sérstaklega þeirra á- ihrifamanna er setja svip og form á stjórnmálastefnu Bret- lands og Bandaríkjanna. Eg 'fyrlr mitt leyti er í enguin vafa, að Japan biður ósigur að lokum, en útlit komandi friðar er jafnvel enn skuggalegra en ó- friðurinn sjálfur. lig hefi minni áhyggjur út af stríðinu heldur en hinum sjálfsagfía eftirmála — niðurstöðu friðarsainninganna. Við höfum enn ekki minstu hug- mynd um hvernig þeim verður háttað að neinu leyti. Sterk óvissu tilfinning virðist vera ríkjandi, bæði í Lundúnum og Washington, og er hún sann- arlega ekki ótímabær að því er við kemur hugsanaruglingi stjórnmálamannanna gagnvarl spurnrngunni um framtiðar mál- efni/ Asíu. Hvaða áform eru um framtíð Kina og Indlands. Hvert er, ætti að vera, eða verður samband Bretlamts og Indlands. Skilningur Bandaríkjanna gagnvart Indlandi, er hvorki góður eða hið gagnstæða. Hann er enginn. Þar sem engin þekk- ing er fyrir hendi, er allur skiln- ingur útilokaður. Hinn eini tengiliður milli þesisara tveggja þjóða, er tO'gleður og tin. Þar sem slik fáfræði ríkir gagnvart Asíu, sem hefir inni að halda helming alls mannkynsins, er naumast hægt að búast við heil brigðri friðarmálastefnu fyrir heiminn í heild. Arrbhur Krock ritar í New York Times, sunnudaginn 11. janúar, og segir að fyrir nokkr- um mánuðum síðan, hafi þótt skemtileg fyn/dni að spyrja: “Viltu deyja fyrir gamla, kæra Dang Dong?” Þetta er ennþá gott ispausyrði meðal brezkra stjórnniálamanna, — þar á með- al Winston Ghurchill — jafnvel þó komið hafi á daginn, að það gaman er nokkuð grátt. En eins lengi og núverandi herfræði þeirra og stjórnvizka er við stýrið, verður þetta aðeins skemtilegt spaugsyrði á vörum yfirstjórnar bandamanna. En af jöfnu ljósi, og halda að óllu sé óhætt eins lengi og Lundúnaborg er óhult er þessi gainansemis hneigð þeirra í hæsta máta sorg- leg. Ef þessi spaugsemi þeirra væri ekki eins rækilega fléttuð inn í allan þeirra stríðs og lriðarmála útreikning, mundi eg reyna að hlæja með, en eg get það ekki. Það, að minni alvara og kraft- ur er lagður á Kyrrahafið en Atlantshafið í yfirstandand'. vopnaviðskiftum á sérdjúpar rætur, nefnilega þær, að hvorki Bandaríkin eða Bretland hafa breytt um stjórnmálastefnu gagnvart Asíu og eru reiðubúnir að hefja þar nýlendunám að stríðinu loknu. Vafalaust verður öll lausn þessara mála, þar á meðal form og fyrirkomulag væntanlegs frið- ar, i 'höndum forvígismanna lýð- veldis ríkjanna. Við getum ekki búist við þeiin niðurstöðum betri, eh mennirnir eru sjálfir sem skipuleggja það og fram- kvæma. Þeir skapa þá hluti i sinni eigin mynd. Elkkert fyrir- komulag og engin ráðagerð inannlegs hyggjuvits, getur orð- ið betri en höfundarnir eru, sem að málunum standa, og gefa þeim lögun og líf. Það er því hin ýtrasta nauðsyn að skygnast í barm þessara manna og sjá hvers- konar hugarfari þeir búa yfir. Eg er einn í þeirra hópi, er dáist að Winiston Churchill. Hann er maður á réttum stað. Hann er ímynd hinnar þrezku viljafestu, að berjast og sigra. Hann er þar í yfirstandandi ó- friði, sem Clemiencau var í síð- asta stríði. Hann er sá per- sónulegi kraftur, sem er vís til að stíga niður til helvitis og sigra sjálfan djöfulinn ef nauð- syn krefur. Clemiencau var bardagamaður, en miður heppilegur friðarmál- unum. Hvorki Churchill eða Clemencau, ná ineð tærnar þang- að sem Abraham Lincoln hafði hælana. Slíkan mann vantar okkur að samningaborðinu á sínum tima. Aðal von okkar hvílir á Roose- velt forsieta, hann mun komast næst Lincoln hvað snertir fram- sýni' og spámannlega andagift. Glemencau var leiknari i ref- skák en Wilson. og vann því taflið á friðarþinginu forðum. Nú vona eg að rödd Ameríku hljómi hærra og hvellara en rödd Bretlands við loka-uppgjör þess- ara mála. Eg vona að Roosevelt standi af sér storminn sem braut Wilson. Ástæða þessara óska minna og vona er sú, að Roosevelt ekki aðeins prédikar stjórnmála-vis- indi, hann framkvajmir þaú lika eftir föngum. Við þörfnumst Churehills sem bardagamanns, en vér eruin í enn brýnni þörf fyrir Roosevelt sem friðarboða. . Hugarfar Churchilis keinur glögt fram þegar hann lýsir þvi yfir í brezka þinginu að rrhe Atlantic Charter eigi als ekki að ná til Indlands. Það plagg hef- ir sögulega þýðingu, ekki ein- göngu af því að það inniheldur grunnfærar athugasemdir og á- kvæði, heldur af hinu að loforð- ið sem liggur bak við það knýr það til framkvæmda. Hver skóladrengur, sem væri beðinn að skrifa stíl um nauð- synjamál heimsins i framtiðinni, gæti auðveldlega fundið upp átta atriði lík þessum, eða fjórtán í svipuðum anda og Cordell HuII. Ef Ghurchill hefir álitið að The Atlantic Charter—isem er í raun og veru skýrsla um hugsana- fræðilega meginreglu — ætti að eiga við alt fólk, þá væri hann ekki Englendingur, ien það vill nú svo vel til að hann er sánn- ur Englendingur. Láturn okkur nú líta á dæmi er sýna hverskonar forystu við höfum. Eg skil heimsókn Ghurchitls til W*ashington, sem nauðsynja för, farna til að sam- eina enn fastar þessi tvö voldugu stórveldi. Eg skil enn íremur að einn þáttur þess samkomu- lags er skapast hefir, er að vig- stöðvarnar í Asíu eiga að sitja á hakanum fyrir þeim í Evrópu og Afríku, að minsta kosti í bráðina. Hinn stjórnvizkulegi tilgangur var að hindra Ameríku frá að senda liðsafla til Kyrra- hafsins sem svar við árásinni á Pearl Harbor, bein afleiðing þessarar ráðstefnu er fall Singa- pore. Hin einkennilega starblinda brezku stjórnarinnar á öllu er viðkemur Asiu, kemur ekki að- eins fram í hinum ófullkomnu vörnum Singapore, heldur einn- ig því með hve mikilli sjálfs- ánægju sá ófullkomlieiki er af- sakaður, og þær afsakanir sjá- anlega teknar góðar og giklar. Churchill vakti thygli á því i hinni miklu ræðu sinni í Wash- ington, að mistökin að verja Malajaskagann stöfuðu bein- línis af því að meira áríðandi hefði þótt að verja Libyu; með öðrum orðum, hér var valið milli Libyu og Singapore. í fjærveru Ghurchills skýrði Clemient Attlee þetta atriði enn nánar. <Jagnvart aðfinsluspurn- ingum i þinginu 8. janúar, út af allri tilhögun í Asíu farast New York Times svo orð: “Hann studdi mál sitt með þrí að sPyrja þingmenn hvað þeir mundu hafa sagt ef ónógar varn- ir hefðu verið í Libyu vegna þess að mikill liðsafli hiefði ver- ið fastur austur í Kiyrrahafi, eða ef vopnasendingar til Rússlands hefðu verið vanræktar, af því að þeirra var þörf á Malaja- skaganum.” Með einfaldri mælistiku á landfræðilegar fjarlægðir frá Lundúnum, var talið gefið, að ienginn Englendingur með fullu viti, teldi Singapore meira virði en Libyu. Anthony Eden studdi þessa skoðun og sagði að ástand- ið væri engri vanrækslu að kenna, heldur vel íhuguðu og ráðnu vali. Hvílikt val! Eg segi þetta ekki til að særa neinn eða erta, sem þó altaf má búast við meðal bandamanna í slíkum kringumstæðum. Við rákum okkur á það i fyrra stríðinu, að brotalamir eru ó- ihjákvæmilegar i viðbúð sam- herja, og enginn staður er jafn ófriðlegur eins og friðarþingin sjálf. Evg segi þetta 1 fyrsta lagi til að benda á hið takmarkaða hugsanaflug vissra manna, og í öðru lagi — og það er aðal at- riðið —, til að gjöra öllum ljóst, hve ýmsir atburðir í Asiu á síð- ustu áratugum og yfirstandandi ófriður, er alt samanlagt, líklegt til að hafa óheppileg áhrif á hugarfar miljónanna í Austur- úlfu. Sumir hvítir menn — þar á meðal margir mjög frjálslyndir — hafa litla hugmynd um hverj- ar hörmungar Indland, Kína og Japan líða, þegar jörðin er sprengd i loft upp undan fótum þeirra, þegar Japan dreymir um víðáttumikið og voldugt heims- veldi í Asíu þegar Kina með samansöfnuðum krafti og hug- rekki, berst fyrir lífi sínu og til- veru, jiegar Indland er vaknað af svefni og heimtar fult frelsi og sjálfstæði, sem það líka hlýt- ur að fá innan skamms. Kinverjinn er prúðmennið í Asíu, Indverjinn lieyndardómur- inn og dulspekin og Japaninn bardagamaðurinn. Látum okk- ur atihuga Kínverjann. Hann tal- ar aldrei mörg orð í bræði, en hann efir sæmilega athyglisgáfu og skilning. Hann brosir af þvi að hann skilur aðra jafn vel og sjálfan sig. Lundarfar hans veitir honum létt að hlæja og Ifyrirgefa. En hann sér ei að siður glögglega hvað fram fer. Nábúar ihans halda að tilfinning- ar hans verði ekki særðar af því hann dylur þær bak við vin- gjarnlegt yfirborð. Eg gjöri ráð fyrir þessu af þeirri ástæðu að bæði ensk og amerísk stjórnar- völd hafa margsinnis látið í ljósi ótta við að meiða japanskar til- finningar. En í síðustu fjöru- tíu ár 'hiefir ekki borið mikið á slíkri varkárni í garð Kínverja, svo mér sé kunnugt. Sönnun fyrir þessu eru olíuleyfin er viss- ar stjórnadeildi veittu Japönum fá sumrinu 1940, til marzsmán aðar 1941. Engum af þessum heiðursmönnum kom til hugar að neitun slíkra leyfa til Kina, gæti sært tilfinningar þeirra að nokkru. Kinverksir stjórnmálamenn eru viðfeldnir og samvinnugóðir og tala ekki margt Eftir síðustu fréttaskeytum að dæma eru Ástralíudniar reiðir út af stjórn- málastefnum Breta í Asíu, en að Kinverjum geti runnið í skap, er alveg óhugsandi ámælikvarða vesturrikjanna. Eg er Kínverji og sæmilega frjálslyndur. Enginn getur sak- að mig um andstöðu við Breta i orðuTii eða athöfnum. en þrátt fyrir það er eg reiður, eg er reiður út af olíuleyfunum til Japana, eg er reiður út af lok- uninni á Burma flutningabraut- inni, eg er reiður vegna þess að eg veit að Japan verður leyft að styrkja aðstöðu sína í suðvestur Kyrrahafinu ineðan vissir at- burðir eru að gerast i nánd við Lundúnaborg. Ef Japönum lukkast að sigra Burma og teppa flutninga inn í meginlandið, verða Kínverjar látnir einir um að veita þeim mótstöðu þar til Bandaríkjamenn eru reiðubúnir að hefja sókn í Kyrrahafinu. Eg er reiður vegna þess að þjóð mín hefir þolað sannarlega nægar hörmungar án þess þetta bættist við. En hver hirðir um það? Liátum okkur ekki efast um kænsku Kínverjans af þvi hann er ætið kurteis. Sé viðskifta- maður hans prúðmenni er hon- um svarað í sama tón. Sé hann hið gagnstæða, er honum veitl tilhlýðileg virðing en haldið i hæfilegri fjarlægð eins og Con- fúsíus gaf ráð til, en við sjálfan sig segir Kinverjinn: “Fjandinn hafi það ef eg skal hafa mikil mök við þennan náunga í fram- tíðinni.” Það eru öll þau geð- brigði sem hann lætur i ljósi. Hann sezt niður og brýtur heilann um hinar flóknu gátur þjóðmálanna, hann hvarflar sjónum umhverfis og festir aug- un á Ameríku, sem er óhlut- drægur góðkunningi, heilbrigður og einlægur fqlagi, dálítið léttur á bárunni og þess vegna auð- veldara að koma honum á óvart. En hann er bardagamaður ef á liggur, trúfasitur er hann af þvi hann er óhlutdrægur. Kínverjinn hefir ekki gleymt hvernig England “kurusu’d” hnn í þjóðabandalaginu í spurs- málinu um Mahsjúriu. (Eg vil mælast til að orðið “kurusu” verði tekið inn í enskar orða- bækur með sömu merkingu og “quisling”). Honum er ekki kunnugt um að “The Cliveden set” átti þar upptökin, en hann veit að England gjörði það. Kín- verjinn man einnig hvernig Eng- land “kurusu’d” hann á Versala- þinginu; samtímis því, sem leitað var til Kína sem bandamanns, var Shantung fylki gefið til Japana á laun, af því svo kall- aðar nauðsynlegar hernaðar- kringumstæður kröfðust þess. England gjörði þetta þá og gæti vel gjört slíkt altur ef nauðsyn krefði. Winston Ohurchill sjálfur “kurusu’d” Kina 1940, l>egar hann lokaði Burma brautinni, Vegna iþess að Frakkland var brotið á bak aftur og England i hættu heima fyrir. Sannleikur- inn er sá, að allir sviku alla í Evrópu á síðastliðnum tíu árum. England og b'rakkland ‘kurusu’d’ Rússa og Tékkoslóvakíu með Munioh samningunum og spánska lýðveldið gegnum alla þá styrjöld. Stalin rak Litvinoff frá em- bætti eftir Munich samningana og sveik England með þVí að semja við Hitler, af því hann sá að Ghamberlain var fráhverfur ÖIlu bandalagi. Síðan sveik Hitler Stalin., O, já, England “kurusu’d” Frakkland löngu áð- ur, vegna þess að aðal stefna Breta var að fyrirbyggja að Frakkland gæti orðið sterkasta herveldi á meginlandinu. Að siðustu sviku þeir Petain, Laval og Weygand sitt eigið land, ina frönsku þjóð. Jæja, þetta er slæmur heimur, hræðilega siðspiltur heimur. Hvað stoðar nú að draga fram svona dökkar myndir af mann- legri náttúru? Það er viður- kent að við lifum i heimi, sem er sokkinn i óvirðingu og sið- spillingu. Er nokkur breyting til batnaðar sýnileg? Hvaða vissu höfum við fyrir þvi að núverandí hervalds og landvinninga stefna verði ekki höfð í góðu gildi, þar sem svo torvelt er að fást við Japana, og jafnvel þó þeir verði sigraðir, að bandamenn bregðist ekki bandarpönnum sínum að síðustu. Sir William Robertson herfor- ingi Breta. segir í sínum frægu minningum frá 1916: “Það sein er mest áríðandi fyrir Bretland, er öfulgt og sterkt Þýzkaland.” þessi kenning var mjög rómuð af Lloyd Ceorge og kallað stjórn- vizku hámark. Hvað gæti aftraö einhverjum núverandi þerfor- ingja Breta að ná sama hámarki með því að segja: “Það sem Bretum er mest áriðandi er vold- ugt Japan.” Núverandi hernaðarráðstafanir útiloka ekki þann möguleika, að Japanir verði að mestu látnir afskiftalausir þar sem þeir nú eru, þar til reiknings skil við Hitler eru að fullu afgreidd. En það eru svik við Kina. Japan þykist vera hinn sjálf- kjörni og sjálfsagði forvígisaðili Asíu, fyrir Asíubúa. En jafnvel þó þetta sé gott slagorð, þá láta hvorki Kinar eða nein önnur þjóð í Asiu, ginnast af þ'vi. Indo- Kínabúar hata Frakka, Indverjar hata Breta og Javabúar Hollend- inga. En það haggar ekki þeirri staðreynd og þeim sann- leika að allir þessir áður töldu Asíu-búar, hata Japani meira en nokkurn hrítan mann í veröld- inni. Og þess vegna hljóta þeir að bíða ósigur að lokum. Þetta slagorð Japana er eigi að síður að festa rætur í huga og hjarta lýðsins: “Virtu aldrei góð ráð að vettugi, jafnvel þó þorpari gefi þau,” sagði Con- Ifúsíus. Þessvegna er það, að Austurlandalþjóðirnar vantar nú Asíu fyrir sjálfa sig, en ekki fyrir Japani. Breytni og öll hegðun Japana, því þeir sjá ýmsa hlutl i mis- \erzlunarsköla NÁMSSKEIÐ Það borgar sig fyrir yður að leita upplýsinga á skrifátofu Lögbergs, við- víkjandi námsskeiðum við beztu verzlunarskól- ana í Winnipeg .... Veitið þessu athygli f nú þegar. VA*AOM*AAA*M*A*MMA*A*A*A*A*A*MAAyAOAO/ er mikið þýðingarmeira en hin hljómfögru slagorð þeirra í þessu efni. Hong Kong er fallin, og hvítir menn eru á æðisflótta undan gulum og brúnum mönn- um á Malajaskaganum. Hvaða hugsanir skapast nú í brjóstum þessara mislitu, innfæddu manna? Ætla hvítu landvinn- inga mennirnir að koma til baka og vinna þessi lönd að nýju"' Hvað ætla lýðveldi Evrópu að segja Ashi-búum að þeir séu að berjast fyrir? Er nokkué, sem þeir geta haft von um að lifa fyrir í framtíðinni? Ráðgert er að gefh allri Evrópu frelsi að stríðinu loknu. En hvað er um Asíu? Hverjir eiga að fá hana? Hvers vegna eru lýðvelda leiðtogarnir svo ó- ljósir og þögulir um það efni? Lýðveldishugsjóninni gefst hér ágætt tækifæri. En það er líka mögulegt að missa það. The Atlantic Charter, lofar öllum þjóðum, undirokuðum af Hitler. fiullu frelsi. Hið sama plagg þarf að gefa öllum þjóðum und- irokuðum af Bretum, hið saina loforð, að öðrum kosti er ný ó- gæfa í framsýn, l’yrir allan hinn mentaða heim. Bók CJarence Streit, “Union Now,”* sýnir ljóslega þessa hættulegu hneigð í alþjóða bolla- legginguin; hann á sama hátt og Ghurchill útilokar Indland, en leggur allan -þunga á öryggi 'hinna enskumælandi þjóða, en hygst svo að fylla i skörðin með hinum öðrum. Streit gjörir ráð fyrir að uppreisnar-tilraunir verði bældar niður með hervaldi hins væntanlega bandalags. Þar af leiðir auðvitað að senda má ameriska sjóliða til að bæla nið- ur sjálfstæðishreyfingar Indverja í framtiðinni, Pearl Buck mælir með að Kína sé tekið ineð í reikninginn, þeg- ar talað er um “Union Now” og sýnir mieð því glöggan skilning* ekki einungis á máléfnum Kina, heldur líka á inum öðrum flókn- um framtíðar ráðgátum. Úr þvi að “Union Now” hefii’ á hyggju að skapa frjálsa veröld, undir stjórn enskumælandi manna aðeins, þá er trú mín að stofna beri önnur sambandsríki, sem til að byrja með saman- stæðu af Kína og Indlandi og teldu' 810 miljónir manna, eða þrjá 'fimtu af íbúðum alls heims- ins, eða undir vissum kringum- stæðum að Rússlandi viðbættu. og teldi þá 1 biljón manna eða helming alls mannkynsins. Þessi þrjú miklu ríki eru tengd hvert við annað landfræðilega að þvi viðbættu að Burma og Indlands flutningabrautirnar nálægja þau enn meira hvort öðru. Þetta Asíu bandalag ætti að vera með líku sniði og “Union Now,” og hafa með höndum yfirsýn allra samninga og við- skifta við Evrópu sambandsrík- in, þvi bæri að hafa innan sinna vébanda smærri ríki eins og Korea, Burma, Síam, Iraq og Japan, á sama hátt og “Union Now” ætti að innibinda Suður- Ameríku, Þýzkaland og ítalíu. Þegar takmörkun heinrsveldis hugmyndarinnar er einu sinni viðurkend af hinu enskumælandi bandalagi, þá verður auðvelt fyr- ir Kina og Indland að viðtaka sömu grundvallarhugmynd og byggja á þeirri undirstöðu ríkja- samband með sama fyrirkomu- lagi. Ef “Union Now” fær l'ast og ákveðið form og verður ekki að vlkja fyrir einhverri annari betri hugmynd, sem innilykur allar þjóðir heimsins án þjóð- ernishleypidóma, er það sann- færing inin, að Asiu bandalag sé nauðsynlegt til að skapa jafn- vægi og ábyrgjast frið bygðan á réttlæti, á þann hátt að vernda hinn hríta mann fyrir sjálfum sér. Það er nauðsynlegt að *)Me6 “Union Now," er átt við vold* Uf?t bandalíLg milli Ameríku og1 allra hvítra enskumælandi manna innan tak- marka brezka heimsveldisins.—(pýð.)

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.