Lögberg - 11.06.1942, Side 6

Lögberg - 11.06.1942, Side 6
I 6 * LÖGBERG, FIMTUDAGINN 11. JÚNÍ, 1942 Á SKARÐSHEIÐUM “Einhverntíma kynnist þér ef til vill ein- hverri kvenveru með rauða vetlinga.” Philip opnaði dyrnar fyrir hana, en Joan hikaði sig, leit svo upp til hans brosandi um leið og hún steig út fyrir dyrnar. Þar stóð hún eitt augnablik og sneri baki að honum; þegar Philip lokaði hurðinni á eftir sér, þráði hann heitt að vefja Joan nú ástarörmum og halda henni þar æfinlega sem sinni eigin. En sú hugsun greip hann jafn- skjótt, að ef hann gerði þetta nú, og það væri— Um seinan. Án þess að líta við hélt Joan á stað með lútandi höfði, eins og til að yfirvega hve djúp spor hún gerði í lausamjöllina. I Þenna heiða og bjarta vetrardag héldu þau Joan og Philip svo áleiðis niður í dalinn, ríð- andi fót fyrir fót á eina hestinum sem þau höfðu nú við hendina — Philip í söðlinum, Joan á póstpokanum aftan við hann og studdi höndum sinni hvoru megin um mjaðmir hon- um sér til stuðnings. Síðustu trefjar óveðurs- ofsans voru horfnar, en fönnin lá í ávölum, há- um skafladrögum um hæðirnar, er glömpuðu skært í björtu sólarljósinu; fjallshlíðin, sem daginn áður var umvafin hringiðu hríðarofs- ans, hvíldi græn og hvít í kaldri kyrð, sem enginn hvinur eða súgshreimur barst nú um. Philip leit niður á rauðu vetiingana — hina rauðu vetlinga, sem hann hafði horft svo oft á áður og orðnir voru honum eins og unaðs- ríkt tákn Joan sjálfrar. Hann mintist þess hvernig hún lagði hönd í rauða vetlingnum á handlegg honum, þegar hann bað hana að gift- ast sér og misti svo af því haldi eins og mátt- vana; falið þá andlit sitt í rauðvetlinga-skýld - um höndum sér; og rauðu vetlinganna daginn sem þau keyrðu inn í þorpið til að kaupa yfir- höfn, og aðrar hlífar handa honum við póst- flutninginn, er seinasta óvissan um ást hans á henni hefði horfið úr huga honum — og rauðs vetlings í vandræðalegri handsveiflu, er þau stóðu við hurð híbýlisins, sem þau voru nú að yfirgefa í síðasta sinn, og hún hafði sagt honum —” “Hyggist þér að fara með póstsleðanum í fyrramálið?” sagði Joan nú alt í einu, “eða viljið þér fá hest til reiðar? Þér gætið tekið hest hér og skilið. hann eftir við járnbrautar- stöðina. Við getum látið hann fylgjast heim aftur með póstinum.” “Eg tek mér held eg far með póstinum.” “Þér mættið alveg eins vel nota hest til fararinnar.” “Eg fer með póstinum. Færi ylckur ofur- lítinn arð í farareyri eins og til breytingar I stað eintómrar — fyrirhafnar mín vegna. Eg vonast til að svona skyndileg burtför mín valdi engum töfum við póstverkið, og hvor piltanna sem er geti hæglega tekið við því af mér.” “Við látum Lee líklega taka við yðar á- fanga, og fáum okkur einhvern annan til hjálpar Malmquist við gripafóðranina.” Þau riðu á seinagangi gegnum fannfergið, nú komin á neðsta hjallann, hinn næsta við ána. Joan sagði þá alt í einu: “Eg vissi að þetta myndi fara svona.” “Hvað myndi fara svona?” “Að þér myndið fara héðan á líkan hátt eins og þyr komuð hingað. Minnist þér þess er þér sögðuð mér daginn sem við fórum um skarðið? Að þér hefðið verið á gönguför um göturnar í Chicago nálægt járnbrautarstöð, sem kom yður til að hugsa um lestaferðir, þér hefðið farið upp í fyrstu lestina, sem þar fór um og að hún hefði verið á vesturleið.” “Og eg hjálpaði við að koma verkfæra- parta kassanum'upp í vagninn.” “Já. Og Jeff Welch sagði: ‘engan farang- ur.’ ílann átti bágt með að trúa því. Endur- tók orðin hvað eftir annað. Eg held —” Hún þagnaði, en bætti við eftir ofurlítið hik: “Eg held það hafi leynst í huga mér altaf síðan, að þér færið héðan á svipaðan hátt og þér komuð hingað, á eg við. Um miðja nótt, ef svo vildi verkast; án þess líka jafnvel að kveðja nokkurn.” Philip hló. “í þetta skiftið hefi eg þó ætlað mér af til kveðjustundarinnar.” “Þér munið, þegar heim kemur, hafa marga ánægjustundina við að skýra kunningj- unum þar frá ýmsu héðan, Philip. Ef til vill — mér þætti gaman að vita hvort þér ein- hvern tíma seinna komið hingað til að gera uppdrátt að einhverskonar myndum.” “Nei. Eg skil við þenna dal fyrir fult og alt. Dvölin hér í dalnum hefir verið mér sem mikilsverð reynslustund, og nú er henni — lokið.” “Auðvitað.” Þau riðu nú út af neðsta hjallanum niður á árbakkaveginn. Þá lét Philip hestinn nema staðar. “Þarna kemur einhver,” sagði hann. Ríðandi maður sást koma upp eftir vegin- um frá sumarbrúnni. Hann hafði með sér söðl- aðan hest í taumi. “Ó, það er Bob,” sagði hún. “Hann er að leita okkar, og er með hest handa yður. Tom gamli hefir skilað sér heim, og Bob þá skilizt það, að við yrðum bæði að ríða á sama hest- inum.” Hún hrópaði svo hátt og þau veifuðu bæði til hans. Crew rétti upp og veifaði hönd til merkis um að hann tæki eftir þeim og beið þeirra svo. Þegar þau komu til hans var hann með breitt bros á andlitinu. “Eg sé að þú hefir átt kollgátuna, Joan.” Hann leit á póstpokann. “Þið eruð líka með bréfapóstinn. Færðin hef- ir víst verið býsna slæm í gær, Philip,” . “Hún hefir oft reynst mér betri. Tom hefir skilað sér heim?” “Já. Hann staulaðist heim einhvern tíma í nótt og stóð við hlöðudyrnar í morgun.” Philip fór af baki, en Joan settist í söðul- inn og Philip á hinn hestinn. Svo riðu þau öll á satð heimleiðis. “Faðir þinn er á heimleið, Joan,” sagði Crew. “Hann símaði frá O’Brians stöðinni. Og Lawrence er líka á heimleið. Eg ætlaði mér að fara inn í þorpið eða til Haights á móti Dale, en hann taldi það óþarfa að eg gerði mér þá fyrirhöfn, kvaðst ætla að leigja sér hest hjá Haight og ríða hérna megin upp með ánni þangað sem gatan upp að Lawrence-heimilinu byrjaði, til að fullvissa sig um að gamli mað- urinn næði réttri leið, eða minsta kosti til þess að vera honum sem förunautur. Svo héldi hann heim á leið yfir brúna, og komi heim einhvern tíma í kvöld. Ó-já, hann fann fyrir- taks hjarðversland.” Crew lét út úr sér hlát- urskvak. “Eg gat naumast losnað við hann á símanum. Hann hefði held eg staðið við hann í alt kvöld talandi, en það var eitthvað að sím- anum og rödd hans barst mér óljóst svo eg heyrði ekki nema sumt af því sem hann var að segja mér, en nóg þó til þess að geta nú séð landsvæðið í huganum eins vel og þó eg hefði átt þar lengi heima. Nægilegt vatn og kafgresi, vetrarbeit —” “Hvar er það?” “í Sawtooth-hæðunum einhversstaðar.” “Hvað er um elgsdýrin, Bob?” “Þau eru komin á láglendið.” Crew stöðv- aði hestana. “Við skulum fara og líta á þau. Getum komist þarna upp á hólinn.” Þau sneru af leið, og upp á langan hæða- hrygg. Joan varð fyrst til að komast upp á hæðina og beið þar þangað til Philip reið að hlið henni, benti svo út yfir víðfeðma lág- sléttuna og beitilandið er blasti við í fjar- lægðinni hinumegin árinnar. “Sjáið þetta, Philip,” sagði hún. í fyrstu kom hann aðeins auga á fjarlæg hjarðverahúsin, snævitypta heyhlaða og óljós- ar girðingaraðir er ögn stóðu upp úr fönninni. En svo alt í einu gerði hann sér grein fyrir því, að allur dalsbotninn væri sem á iði. Lengst í burtu líktist þetta dökkum smá- dílum á fönninni, en nærlendis nógu glögt til þess greina mætti að þarna væri þúsundir elgsdýraU heimahögum hjarðveranna. í sumum stöðum voru þau nokkuð á dreif, en annarsstaðar, svo sem í námunda við hey- stakka í þéttum fylkingum. “Hve mörg dýranna haldið þið að séu þarna?” spurði Philip. “Sex eða sjö þúsundir,” sagði Crew. “En verða fleiri seinna. Þessi hópur leitaði undan óveðrinu niður í dalsbotninn í gærkveldi, og yfir nóttina.” Skyndilega kom einhver sundrung að ein- um stærsta hópnum á Lindens-engjunum, ekki langt frá girðingunni, sem aðskildi þær frá landi Ivans Bole. Þá komu þau auga á fjóra ríðandi menn, all-langt hvern frá öðrum, sem voru að beina hjörðinni að heystökkum Ivans. “Hvað eru þessir menn að hafast að, Bob?” spurði Joan. “Það er einhver eftirlitsmanna dýranna og tveir hjálparar hans, og svo líklega Ivan. Þeir hittu okkur í morgun. Kváðust vilja safna eins mörgum elgsdýranna og þeir gæti á land Ivans áður en þau setjist að. Svo hægt sé að fóðra eins mörg og unt er í sama nágrenninu, þegar seinna verði byrjað á heygjöfunum.” “Sjáið þetta, þarna neðra,” sagði Joan, og brá hönd á brá er hún rýndi í áttina upp að ánni. “Hverjir skyldi þessir sex eða sjö menn vera ríðandi um dalsbotninn, rétt neðan við hjallann?” Crew dró augu í pung svo þau virtust verða eins og mjó ræma. “Ó-já, nú sé eg þá,” sagði hann og rýndi á þenna reiðmannahóp nokkur augnablik. “Eg veit ekki hverjir þarna geta verið á ferð, Joan. Ef til vill einhverjir ofan úr efri enda dalsins. Eg veit það ekki. Get ekki skilið hvaða erindi þeir gæti átt þarna.” Áljándi kapítuli. “Þaðan sem þau stóðu við á hæðinni sáu þau reiðmannahópinn stefna niður að ánni, ríða norður með henni og hverfa þar inn á milli trjánna í gilsbotninum. Þau riðu svo niður af hæðinni aftur, út á veginn og áleiðis að sumarbrúnni. “Philip ér að fara með póstinum út yfir heiðina á morgun,” sagði Joan við Crew. Crew leit á Philip. “Hvert ertu að fara?” spurði hann. “Til Chicago. Alfarinn, Bob.” “Hvers vegna?” “Snjókyngið er of mikið hérna.” “Þú átt við það, að þú ætlir ekki að koma hingað aftur?” “Já.” “Eg skil það,” sagði Crew og hló. “Nú- jæja, að lenda í svona hríðarbyl er nóg til þess að ofbjóða sumu fólki, sem hér hefir átt heima alla sína æfi. Eg lái þér þetta ekki. Þú þarft ekki að búa við slíkt, og því þá að gera það — þannig lít eg á það.” Seinasta skin kvpldsólarinnar var horfið af hæðunum, hin stutta rökkurskíma liðin hjá inn í næturhúmið, sem yfir alt hafði lagzt er þau náðu heim að hjarðvershúsunum. Þau létu inn hestana og fóru inn í eldhúsið, þaðan sem vingjarnlegur og hressandi ljósglampinn stafaði á snjóbreiðuna út um gluggann. Clarke, Malmquist og Herron sátu við borðið, þar sem Hector var að setja fyrir þá kvöldverðinn. Þau fögnuðu nýkomna fólkinu hjartanlega og glöddust sjáanlega yfir endalokum svaðil- farar Philips og árangursins af leit Joans eftir honum, en þau sögðu fátt, og það virt svo sem einhver hulin óvissu- og kvíða-tilfinning lægi á huga fólksins, sem fyrir var í eldhúsinu, er Joan og förunautar hennar komu þangað inn, þendi taugar þess og gerði því örðugt um mál- færið. “Olof,” sagði Clarke og leit til Malm- quists, “skýrðu frá því sem þér er í huga.” Ungi hjarðsveinninn virtist órór og vand- ræðalegur á svipinn. “Segðu henni það,” sagði Clarke. Hann sneri sér að Joan, og sagði enn: “Á ferð sinni með póstinn upp um dalinn í dag komst hann að nokkru, sem þú þarft að vita um, Joan.” “Jæja þá,” sagði Malmquist hikandi, “margir piltanna þar efra og alt niður til Jenkins-versins ætla sér að reka elgsdýrin burt af landi Ivans núna í nótt. Reka þau upp í hæðalandið. Þetta er bara hópur ungu hjarð- sveinanna; þeir hafa ekki haft orð á þessu við hjarðbændurna og jafnvel ekki formennina, svo ef einhver vandræði hljótist að þessu, þá geti hjarðbændurnir sagt: “Við vissum ækkert um —” “Haltu áfram,” sagði Clarke óþolinmóð- lega. “Nú, þeir vildu fá mig og Les til að ganga í þetta með sér, en okkur fanst það óhæfilegt þar sem við værum næstu nábúar Ivans og yrðum líka fyrstir fyrir ásökunum út af því. Þeir sögðust þá samt sem áður ráðast í þetta. Eitthvað tuttugu til þrjátíu þeirra eru í vit- orðinu, og sumir þeirra eru allareiðu —” “Segðu henni alt eins og það er,” skipaði Clarke. “Eg er að reyna það!” svaraði Malmquist í gremjutón. “Segðu henni þá hvað þeir hafa í hyggju heyinu viðvíkjandi.” Malmquist ypti öxlum. “Brenna það. Brenna alt hey Ivans.” Joan tylti sér þreytulega á borðsröndina, starandi frá einum piltanna til annars og huldi svo andlitið í höndum sér. “Þeir ætla að gera þetta í kvöld,” sagði Clarke til frekari skýringar, “meðan svo mörg dýranna eru á Ivans landi, þangað sem þeim var bægt í dag og meðan þau eru enn óráðin í hvar þau eigi að koma sér fyrir. Og meðan heyið og landið, sérstaklega landið, er enn í eigu Ivans, svo ekkert kæmi til stjórnarinnar kasta. Þeir ætla sér að reka dýrin þangað sem snjóþyngst er og helzt inn í gljúfragilin ef þeir geta, brenna heyið, gera heljarmikinn usla að dýrunum dg hyggja að jafnvel fæst þeirra komi aftur og margt af þeim svelta í hel. Oe enda þótt eitthvað af þeim ráfi hingað aftur, þá verði þau máttvana og þá ékkert hev eftir —” “Hjarðsveinarnir líta svo á,” sagði Herron, “að Ivan hafi unnið til þessa. Hann hafi farið á bak við alla hér og þeir séu’ bara að hefna fyrir hjarðbændurna með því að láta hann reka sig duglega á fyrir undirhyggjuna.” Joan leit til Crew. Hann ypti öxlum. “Þetta nær ekki til okkar kasta, hygg eg, Joan.” “Eg held það líka,” sagði Clarke, “en eg vildi að Joan —” “Við berum enga ábyrgð á Ivans heyi,” sagði Herron. LJÓÐAGULL Jónas Hallgrímsson— HULDULJÓÐ Niðurlag. Sólfagra mey! nú seilist yfir tinda úr svöluin austurstraumum roði skær; nú líður yfir láð úr höllu vinda léttur og hreinn og þíður morgunblær; svo var mér, Hulda! návist þín á nóttu, sem nú er Ijósið jörð á votri óttu. Vertu nú sæl! þótt sjónum mínum falin sértu, eg alla daga minnist þin; vertu nú sæl! því dagur fyllir dalinn, dunandi fossinn kallar þig til sín; hann breiðir fram af bergi hvítan skrúða, bústaður þinn er svölum drifinn úða. • Vertu nú sæl! þ\i sólin hálsa gyllir og sjónir mdnar hugarmyndin flýr; ó, Hulda kær! er fjöll og dali fyllir fjölbreyttu smiði, hvar sem lífið býr og dauðinn, sem að svo þig löngum kallar sá er þig aldrei leit um stundir allar. “Eða skollans elgsdýrunum, “bætti Malm- quist enn fremur við. Joan stóð á fætur, gekk yfir að gluggan- um, en sneri jafnskjótt þar við og kom aftur yfir að borðinu. Hún var mjög föl í kinnum. “Við verðum að koma í veg fyrir þessa fyrirætlan piltanna, ef mögulegt er,” sagði hún. “Takið nú alir eftir því, sem eg segi við ykkur: Ivan ætlar ekki að selja stjórninni land sitt.” Hún rétti út hendurnar eins og ti! áherzlu. “Hann hefir allareiðu skrifað undir samninga um að láta hana hafa hey í vetur, en lengur ekki. Heyrið þið hvað eg er að segja? Hann selur henni ekki landið. En ef hann missir heils árs heyfeng sinn, og tapi hann öðrum heystökkum sínum, sem sumir eru tveggja ára gamlir, þannig öllu heyinu, þá verður hann — allslaus. Og á þá einkis ann- ars úrkosta en að selja landið.” Hún hinkraði við og rétti fram báðar hendur með opna lófa gegnt lofti. “Skiljið þið nú hvað þessi hjarð- sveinahópur er að hafast að?” Allir sátu þegjandi nokkur augnablik. En svo sagði Crew seinlega: “Hvernig veiztu það, Joan, að hann ætli sér ekki að selja? Ivan er lýgin í blóð borin; gleymdu því ekki.” “Já,” sagði Clarke, “hvernig veiztu þetta, Joan?” “Eg veit það! Og eg vil að þið farið allir strax á stað í flýtisreið, náið í þessa pilta og segið þeim að þeir verði að láta af áformi sínu! Segið þeim að Ivan selji ekki land sitt, láti þeir hann í friði. Skýrið þeim frá því sem eg hefi verið að segja ykkur.” “Við finnum þá aldrei,” sagði Malmquist í mótmælatón. “Vitum ekki hvar þeirra sé að leita, og nú er dimm—” “Reynið! Sumir þeirra eru út við ána, því við sáum til ferða þeirra þar yfirfrá, og vorum að furða okkur á því hvað þeir væri að fara. Meðan þið gerið þetta skrepp eg yfir til Ivans og aðvara hann.” Hún lagði þegar á stað að dyrunum. “Bíddu við,” sagði Crew. “Þú mátt ekki gera það núna, Joan.” “Hvers vegna?” “Eftirlitsmennirnir eru þar núna að neyta kvöldverðar síns.” “Þeir geta þá orðið lvan að liði.” “En þessir náungar þarna hafa byssur, Ivan. Piltarnir eru líka með skotfæri að hræða elgsdýrin með. Þeir urðu að hafa eitthvað slíkt í höndunum.” “Þeir ætluðust líka til þess að við kæmum með einhverskonar byssur,” sagði Malmquist. “Eg verð að gera Ivan aðvart.” Crew stóð upp til að aftra henni útgöng- unnar. “Heyrðu, Joan, við höfum aldrei öll liðnu árin lent í nokkrum erjum, en eg get ómögu- lega látið þig gera þetta. Þú hefir rétt gengið í gegnum ýmislegt og ert í æstum huga, þarft því að hinkra við og hugsa þig um. Farir þú nú yfir til Ivans til að gera honum aðvart leiðir það áreiðanlega til einhverrar skothríðar. Við getum ekki borið ábyrgðina á að orsaka neitt slíkt.” Joan virtist alt í einu verða þreytuleg og síginaxla, en lét þó út úr sér ofurlítinn hlátur- skræk og reyndi að smeygja sér fram hjá Crew. “Lofaðu mér að komast út, Bob!” “Nei, Mér fellur það þó illa, Joan.” “Bob hefir rétt fyrir sér,” sagði Clarke. Joan leit vandræðalega til þeirra. “Ó, en því er pabbi — nú jæja, eg verð líklega að segja ykkur hvernig á stendur. Eg má til að gera Ivan aðvart, og við verðum öll að gera alt sem við getum til þess að verja heyhlaðana hans, því eg —” Hún hikaði sig eitt augnablik. “Eg hefi lofað að giftast Ivan.”

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.