Lögberg - 11.06.1942, Blaðsíða 8
8
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 11. JÚNÍ. 1942
Ur borg og bygð
MATREIÐSLUBÓK
Kvenfélag Fyrsta lúterska
safnaðar í Winnipeg. Pantanir
sendist til: Mrs. E. W. Perry,
723 Warsaw Ave.; Mrs. E. S.
Feldsted, 525 Dominion Street.
Verð $1.00. Burðargjald 5c.
♦ ♦ ♦
Mrs. George Jóhannesson frá
Edmonton, er nýle.ga komin hing-
að til borgarinnar i kynnisför lil
vina sinna.
♦ t ♦
Skrifarar í söfnuðum hins ev.
lút. kirkjufélags eru vinsamlega
beðnir að senda, eins fljótt og
auðið er, nöfn erindreka, er
söfnuðirnir kjósa á kirkjuþing,
er að þessu sinni verður haldið
ií Setkirk, Man., og hefst þann
26. júní. Menn sendi nöl'n erind-
reka til Mr. J. E. Erickson, Sel-
kirk, Man.
♦ ♦ ♦
Frú Aurora Johnson, ekkja
Thos. H. Johnson, fyrrum dóms-
málaráðherra Manitobafylkis,
kom til borgarinnar um miðja
fyrri viku sunnan úr Bandaríkj-
um í heimsókn til vina og ætt-
menna; ier nú orðið langt síðan
hún heimsótti Winnipeg, og
fagna því margir komu hennar.
♦ ♦ ♦
Þakklæti
Jón Sigurdson félagið þakkar
þessum vinum fyrir peninga-
sendingar:
Fríkirkju kvenfól., Brú, $5.00;
Mrs. C. I. O. Cihiswell, Gimli,
$10.00; Mrs. Lillian Thorpe og
Mrs. Sarah Rose Edwards, i
minningu um stjúpföður sinn.
Jóhann Björnsison, Tindastól, Al-
berta, $10.00. þ
Kærar þakkir.
♦ ♦ ♦
Samkoma á Vogar: /
Föstudaginn 19. þ. m. fer
frain samkojna á Vogar i sam-
komuhúsinu þar. Þátt taka í
henni Birgir Halldórsson, með
nokkra söngva, Páll S. Pálsson
með gamanvisur, Gunnar Er-
lendsson píanóleikari, og séra
Philip Pétursson með stutt á-
varp. Bygðarmenn og þeir í
grend við Vogar eru beðnir að
veita þessu athygli, og fjöl-
menna!
♦ ♦ ♦
Á föstudaginn þann 29. maí,
8.1., heimsóttu meðlimir kvenfé-
lagsins Undina í Mikley, ásamt
mönnum sínum, hin mikilsvirtu
Reynistaðahjón, Kristján og Sig-
þóru Tómasson; var tilgangurinn
með heimsókninni einkum og sér
í lagi sá, að samgleðjast fjöl-
skyldunni yfir því, að Mr. Tóm-
asson, isem skorinn var upp á
sjúkrahúsi í vetur, og var all-
lengi sjúkur, er nú búinn að fá
fulla heilsubót; var við þetta
tækifæri glatt á hjalla, margar
ræður fluttar, og ávörp lesin.
Þau Mr. og Mrs. Thomasson
biðja Lögberg að færa vinum
þeirra alúðarþakkir fyrir hina ó-
væntu, en ánægjulegu heimsókn.
Á þriðjudaginn lézt hér i borg-
inni Jo'hn Dalman, smiður, 66
ára að aldri, fæddur í borginni
Milwaukee, árið.1876; hann læt-
ur eftir sig 6 börn. Útförin.fer
fram frá Bardals i dag (fimtu-
daginn þann 11. þ. m.) kl. 2 e.h.
♦ ♦ ♦
Föstudaginn þann 5. júní voru
gefin saman i hjónaband í Lút-
ersku kirkjunni í Selkirk, af
séra Sigurði ólafssyni, Thor-
björg Margaret Peterson og Neil
Sutherland Craig. Brúðguminn
er af skozkum ættum, en brúð-
urin er dóttir Mr. og Mrs. Jóhann
Peterson, Selkirk, Man. Gift-
ingarathöfnin fór. fram að mikl-
um mannfjölda viðstöddum, og
var hin virðulegasita. Að henni
aflokinni fjölmentu gestir á
heimili Petersons hjónanna, var
þar setin vegleg veizla. Heimili
ungu hjónanna verður í Winni-
Peg-
♦ ♦ ♦
Þrjú undanfarin sumur hefir
Bandalag lúterskra kvenna stað-
ið fyrir stuttu námsskeiði, sem
haldið hefir verið í Canadian
Sunday School Mission Camp,
sem er á vatnsbakkanum skamt
fyrir norðan Gimli Hata þar
verið kend kristin fræði og
kenslan sérstaklega ætluð ungu
fólki, sem vildi taka þátt i
sunnudagsskóla kenslu og á
annan hátt styðja að kristin-
dómsstaifsemi í sínu umhverfi.
Hefir þetta námsskeið hepnast
vijl óg orðið svo vinsælt, að sjálf-
sagt þykir að halda því áfrain,
ef nokkur kostur er á. Það sem
aðaLIega er í veginum er það, að
Bandalagið á ekki ráð á hentug-
um stað við vatnið með nægi-
legum byggingum og öðru því
sem þar til heyrir. Nú í sumar
getur Bandalagið ekki fengið
þenna stað, sem það hefir ha'ft
undanfarin sumur, því eigend-
urnir ætia að nota hann sjálfir
alt sumarið.
Hefir Bandalagið fundið til
þess, að nauðsyn bæri til, að það
eignaðist sjálft hentuga lóð og
nauðsynlegar byggingar fyrir
slíkt námsskeið, sein hér er um
að ræða. Á síðasta ársþingi
Bandalagsins var myndaðui
sjóður í þeim tilgangi að hrinda
þessari hugmynd í framkvæmd.
Síðan þessi sjóður var myndað-
ur hafa honum borist gjafir úr
ýmsum áttum og leynir sér ekki
að margir eru þessu málefni
mjög velviljaðir.
Hafa nú nokkrar konur, sem
styðja vilja þetta málefni, á-
kveðið að halda “Silver Tea” að
heimili Mr. og Mrs. S. Pálmason,
654 Banning St., nviðvikudaginn
hinn 17. þ. m., kl. 2 — 10 e. h.
Gefst fólki þar þægilegur kostur
á að styrkja gott málefni og sýna
velvild sína til þessa fyrirtækis
með því að leggja fram nokkuð
því til styrktar. Þar verður líka
gott tækifæri tiil að skemta sér
yfir kaffibollunum, eins og fs-
lendingum er títt.
Messuboð
Fyrsia lúterska kirkja
Séra Valdimar J. Eylands
prestur.
Sunnudaginn 14. júni:
Guðsþjónustur með venjuleg-
um hætti: á ensku kl. 11 f. h.
á íslenzku kl. 7 e. h.
♦ ♦ ♦
Lúterska kirkjan í Selkirk:
Sunnudaginn 14. júní:
Sunnudagaskóli kl. 11 árd.
íslenzk messa kl. 7 síðd.
Allir boðnir velkomnir.
S. ólafsson
♦ ♦ ♦
Sunnudaginn 14. júní verða
guðsþjónustur í prestakalli séra
H. Sigmar sem fylgir:—
Mountain kl. 11 f. h„ ensk
messa helguð unga fólkinu; allir
boðnir og velkomnir. — Péturs-
kirkja, kl. 2.30 e. h„ íslenzk
messa, altarisganga. Fundur á
eftir.til að kjósa á kirkjuþing.
Garðar kl. 8 e. h„ íslenzk messa.
H. S. Sigmar prédikar við mess-
ur þessar. Allir velkomnir.
♦ ♦ ♦
Gimli prestakall
Sunnudaginn 14. júni:
Betel, morgunmessa; Gimii,
ferming og altarisganga kl. 3 e.h.
B. A. Bjarnason.
+ + +
Messur í Vaínabygðum
Sunnudaginn 14 júni:
Wynvard kl. 3 e. h. — ísl.
\ Kandahar kl. 7.30 — ensk.
B. Tlieodore Sigurdson.
Eg er fœddur
fram við sjó
Eftir Jón halta.
Eg er fæddur fram við sjó,
íþar sem bára á steinum stiklar.
í stormum falla öldur miklar,
rífa upp þang og þarakló.
Þar hefur margur beinin borið,
böndin ástar sundur skorið,
alda er reis, en óðar dó.
Ægis gráta ei öldurnar
yfir hærum dauðra vona.
En góðra maka og merkra sona
geymist minning göfgunar.
Og þeir, sem ekki glata oggleyma
gullunum, seni þeir áttu heima,
gráta yfir léttúð gleymskunnar.
Lítill vildi verða stór.
Lyfti byrði altof ungur.
Urðir tróð eg, hraun og klungur.
I>ungur baggi, þunnir skór.
Uppgefinn því undir byrði,
úti varð á heiði miðri.
Því var það, að fór sem fór.
Skáldalitir, skýjafar,
Márinn flögrar fram til djúpa
Fannir kletta og skerin hjúpa.
Eitthvað fyrir eyra bar.
Lítiilsvirðing lágra sálna,
er leggja á fólkið málið álna,
og gull er lagt til grundvallar.
Við skeljabrot eg skemtun fann,
Koma og fara kostir ára.
Krappir hyljir milli bára.
“Fár að stýra knerri kann.”
Heiniska verður manni að meini,
og margur á aðra kastar steini
fyrir sama og sjálfur vann.
Eg er fæddur fram við sjó
Þar eru minjar þúsund ára,
og þar mun altaf lítil bára
hoppa um þang og þarakló.
En þegar eg kveð, þá kyssi eg
steina,
kletta, útsker, sand og hleina,
er skenktu mér af skeljum nóg.
—(Samtdðin).
Otbrotataugaveikin
á austurvígstöðvunum
og smitberi hennar
I fyrri heimsátyrjöldinni gerðu
margir gys að lúsinni, sem ekki
þjáðust af henni. Og jafnvel
þeir, sem voru svo óheppnir að
hafa fengið hana, höfðu hana i
(flimtingum. Á vesturvígstöðv-
unum, þar sem hægt var að
halda sæmilegum þrifnaði og
viðhafa aðrar varúðarráðstal-
anir, olli hún ekki öðru tjóni en
ofurllítilli hitasótt, sem venju-
lega var kallaður skotgrafahiti.
En nú á dögum þjást tugþúsund-
ir manna af taugaveiki, sem lús-
in veldur.
Napoleon, sem misti 300,000
manns í Rússlandi, misti tiu
þúsundir aif þeim úr taugaveiki.
Síðustu vikurnar hefir Adolf
Hitler fengið að horfast í augu
við rússneska vetur.inn á sama
hátt og Napoleon, og nú hefir
lúsin bæzt við.
Lúsin lifir á manna'blóði og
]>olir illa sápu. Þar sem ekki er
hægt að viðhafa neitt hreinlæti
tímgast hún mjög ört og lifir
góðu lífi. Taugaveikisfaraldur
breiðist út, þegar Iúsin sýgur
blóð úr taugaveikissjúklingum
og skriður svo yfir á aðra og
lxítur þá. Þannig berst smitið.
Venjulega deyr lúsin sjálf úr
þeim sjúkdómi, sem hún ber,
þegar hún er búin að bera hana
milli manna.
Taugaveikisbakterían er köll-
uð Rickettsia prowezeki eftir
þeim, sem bezt hafh rannsakað
taugaveikina, Howard Taylor,
Ticketts og Stanislaus Prowazek.
Þegar hin smitaða lús er að taka
til sín fæðuna, beygir hún höf-
uðið niður að skinninu, stingur
í það og byrjar að sjúga. Þá
fellur bakterian stundum niður
á húðina, og þegar maðurinn
kilórar sér, — nuddar hann ef til
vill bakteríunni ofan í skrámuna
og maðurinn er smitaður.
Eftir uin tólf daga frá smitun,
fær hinn smitaði aðkenningu af
hrolli, því næst hita og höfuð-
verk og þrautir í bak og fætur
Andardrátturinn verður tíður og
slagæðin Slær ótt, tungan hvít
og skorpin, andlitið rjótt og aug-
un blóðhlaupin. Hann fær óráð
og stundum æði. Eftir þrjá daga
eða fjóra fær hann útbrot á
hörundið og óráðið eykst. tung-
an jiornar og slagæðin finsl
varla. — Stunduin, þegar tauga-
veikisfaraldur geisar, deyja 65%
af sjúklingunum. Þá eru og
fylgikvillar tíðir.
Menn þekkja ekkert sérstakt
meðal við taugaveiki. Varnar-
ráðstafanirnar eru þær, að rak;i
Jíkamann og jivo hann upp úr
sótthreinsandi sápu og sótt-
hreinsa föt og rúm. Bólusetning
dregur úr sóttinni og leiðir hún
þá siíður til baka.
Stríð Hitlers á austurvígstöðv-
unum hefir aukið geysilega út-
breiðslu taugaveikinnar. Tölur,
sem nýlega voru birtar á hag-
skýrslu Metropolitan Life In-
surance sýna, að í Póllandi tí-
faldaðist útbreiðsla taugaveik-
innar árið 1940 frá því, sem hún
hafði verið 1939, og þrefaldaðist
árið 1941, frá jiví, sem hún hafði
verið árið 1940. Nýlega skýrði
Anthony Eden frá því í brezka
þinginu, að útbrotataugaveiki
geisaði nú um allar austurvíg-
stöðvarnar, Suðaustur-Evrópu, -
Rúmeníu og Lithauen. Gyðinga-
hverfið i Varsjá er sagt hið
mesta taugaveikisvíti. Um Pól-
land alt reyndu Þjóðverjar að
nota sér þetta í áróðursskyni.
Þeir birtu mynd af gríðarstórri
lús og ihræðilegri skopmynd af
Gyðingi og settu undir hana:
Gyðingalús, sem veldur útbrota-
taugaveiki. Um sama leyti var
sagt, að nazistarnir neyddu til
þjónustu alla Gyðingalækna.
Leynileg, þýzk útvarpsstöð
sagði, að útbrotataugaveikin
væri komin alla leið vestur til
BerWnar. — Brezka útvarpið
skýrði frá því, að yfirvöldin í
Berlín hefðu sent loftbyrgis-
Hosiery Section, Main Floo-r, Portage
*T. E ATON C?,M1TEo
stjórum í Berlín, þar sein úl-
lendir verkamenn lieita hælis,
fyrirspurnir um það, hvort bæri
á óþriifnaði í byrgjunum, eink-
um lús. Brezkar fregnir herma
einnig, að mikið sé farið að
draga úr samgöngum milli
Þýzkalands og herteknu land-
anna i austri. Þá hefir og
frétzt, að út'brotataugaveiki sé
komin upp i Afriku og á Spáni.
Jafnvel brezka stjórnin hefir
kallað lækna saman á ráðstefnu
viðvíkjandi þessum faraldri.
Þýzkir herlæknar eru vaía-
laust vel hæfir í sinu starfi, en
iþeir standa ráðþrota gagnvart
þessari veiki. Þjóðverjar eru nú
á undanhaldi fyrir Rússum —
og þeir eru á undanhaildi fyrir
lúsinni líka.— (Alþbl.). ,
S.B.S. 10 ára
í gær fylti Samband bindindis-
'félaga í skólum (S. B. S.) fvrsta
tug æskuára sinna.
Á þessum tímamótum er ekki
úr vegi að gera stuttlega grein
ifyrir tildrögum að stoifnun sam-
bandsins, srvo og að minnast
hinnar stuttu sögu þess.
Fyrsti vísir þess, að samband-
inu er Bindindisfélag Mientaskól-
ans í Rvík, sem stofnað var 1931.
Það fólag hóf göngu sína af
knýjandi nauðsyn fyrir málefn-
uin bindindisins, því að ástandið
í Mentaskólanum í þessum efn-
um var þá svo slæmt, að þess
fundust vart dæmi í mentaskól-
um á Norðurlöndum.
Gegn þessari vansæmd skólans,
hófu nokkrir ungir menn bar-
áttu undir forustu Helga heitins
Schevings. Hinn nýi iæktor
skólans, Pálmi Hanoesson, studdi
viðleitni þessara inanna af alefli,
enda h-efir hann ávalt reynst
sambandinu hinn nýtasti stuðn-
ingsmaður.
Enda þó að félagskapur þessi
þynfti að berjast á móti ævagöml-
um erfðavenjum, þá efldist hann
brátt. En þeir brautryðjendur,
sem voru að verki i Mentaskól-
anum ilétu sér það eina félag
eigi nægja, heldur sendu j>eir
öllum skólum - landsins áskorun
um að stofna bindindisfélög inn-
an sinna vébanda.
Og árangurinn varð sá, að þ.
ALMENNIJR llnlll
í HNAUSA HALL
Mánudaginn 15. júní 1942, kl. 8 síðd.
Efni fundarins, — að ræða um íslendingadags há-
tíðahald á Iðavelli við Hnausa í sumar.
Æskilegt er að menn og konur fjölmenni á fund-
inn. Allir velkomnir.
í umboði Hnausa Islendingadagsnefndar,
Jón Pálsson, ritari.
ÞINGBOÐ
Átjánda ársþing Bandalags Lúterskra Kvenna verð-
ur haldið á Gimli dagana 19., 20. og 21. júní. Þing-
setning í Gimli kirkjunni kl. 2 e. h. föstudaginn 19. júni.
Mrs. A. S. Bardal setur þingið. Starfsfundur til kl. 6.
Skemtiskrá föstudagskveld:
1. O Canada.
2. Fíólín samspil — tveir drengir.
3. Upplestur — Vigdís Sigurdson.
4. Einsöngur — Mrs. Pauline Einarson.
5. Erindi—“Heimilisiðnaður á íslandi”—Mrs. A. Wathne
6. Framsögn — Mrs. Chiswell.
7. “Sunbonnet Drill” — Litlar stúlkur.
8. Fíólín sóló — Laugi Helgason.
9. God Save the King.
Laugardaginn:
Starfsfundur frá kl. 9 til 11.45 f. h. Þá farið með
lest til Árnes. Starfsfundur í Árnes kirkju frá kl.
2 til 6 e. h.
\
Skemliskrá laugardagskveld:
1. O Canada.
2. Einsöngur — Séra E. H. Fáfnis.
3. Erindi — “Dvöl mín í París”—Mrs. E. Steinþórsson.
4. Einsöngur — Elín Árnason.
5. Píanóspil — J. Tergesen.
6. Erindi — “Hressandi lyf” — Mrs. G. Thorleifson.
7. Einsöngur — Mrs. Lincoln Johnson.
8. God Save the King.
Sunnudaginn:
Guðsþjónusta í Gimli kirkju kl. 11 f. h. Séra B. A.
Bjarnason prédikar. Klukkan eitt verður farið til
Húsavíkur til miðdegisverðar.
TIL ÞESS AÐ TRYGGJA
YÐUR SIÍJÓTA
AFGREIÐSLU
Skuluð þér ávalt kalla upp
8ÁRQENT
TAXI
PHONE
34 555 - 34 557
SARGENT and AGNES
•
TRIMP TAXI
ST. JAMES
Phone 61 111
16 inarz 1932 var kvatt til stofn-
jiings S.B.S. í bókasafni Menta-
skólans. Að ^tofnuninni. stóðu
aðeins fimm felög með 300—400
félaga. í fyrstu sambandsstjórn
áttu sæti: .Helgi Scheving,
Klemenz Tryggvason og Þórarinn
Þórarinss-on.Því miður fékk sam-
bandið eigi að njóta Helga lengi,
því hann fórst á mjög svipleg-
an hátt haustið 1934.
En þriátt fyrir að þessi ötuli
forvígismaður féll í valinn á
ungum aldri, þá voru til menn,
sein voru færir um að halda uppi
því merki, sem brautryðjandinn
hafði reist.
Með ári hverju hefir samband-
ið eflst, og er nú svo komið, að í
því eru 26 félög með samlagða
félagatölu hátt á þriðja þúsundi.
Það leikur eigi á tveim tung-
um, að starfsemi sambandsins er
þýðingarmikill þáttur í bindindis
baráttunni Því að mentun og
lærdómur er einskis virði, ef það
gerir menn eigi færari til að
mæta aðsteðjandi erfiðleikum
lífsins. En hins vegar er öllum
Ijóst, að drykkjuskapurinn dreg-
ur úr viðnámsiþrótti æskunnar,
og hún tapar virðingunni fyrir
sjálfri sér. Þess vegna getur
drykkjuskapurinn engan veginn
samrýmst því hlutverki, sem
mentaæskunni ber að inna af
hendi. Af þessum ástæðum hief-
ir sambandið eflst frá ári til árs.
—(Alþbl. 12. marz).
MINNIST BETEL
í ERFÐASKRÁM YÐAR