Lögberg - 10.12.1942, Page 7

Lögberg - 10.12.1942, Page 7
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 10. DESEMBER, 1942 7 Ein af okkar beztu og fegurstu bókum er Guðspjallamál Dr. Jóns Bjarnasonar. í henni er að finna trúarsterkan, hreinhjart- aðan og vel upplýstan mann. Trú, siðgæði, kaflar úr sögu mannanna í virkilegum og skáldlegum stíl. Kaflar úr sögu forfeðra vorra með aðdáanleg- um og skáldlegum stíl. Karaktér lestri á göfugum einstaklingum þar o. fl. Brot úr sálmum og ljóðum fyrri og seinni tíma. Framúrskarandi umhyggja bor- in fyrír mönnunum. Einörð á- deila á alt það, sem höfundi virðist leiða menn í burtu frá réttu marki. Loks landafræði- leg þekking á helgum sögu- stöðvum, svo ljóslega fram sett, að manni finst maður vera kom- inn þangað og að um mann andi himneskur blær. Hrein og falleg íslenzka, samt slétt og ljós. Alt þetta er knýtt í dýr- lega fagran krans, að höfði brúðarinnar: Kristinnar kirkju. Hér eru örfá sýnishorn til sönnunar máli mínu: “Eg vil með öðrum orðum, að safnaðarlýður vor allur láti, þetta tvöfalda tímatalsfyrir- komulag jarteikna fyrri sér þá lexíu hinnar Kristilegu trúar- speki, sem brýnir fyrir læri- sveinum Drottins þá heilögu skyldu, að standa sí og æ á verði og vaka yfir sjálfum sér, gjörvöllu lífi sínu, vaka með ljós hinnar guðlegu opinber- unar, í höndum sér, vaka þann- ig, að þeir æfinlega séu ferð- búnir héðan burt úr tímanum inn í eilífðina.” — 1. sd. í adv. I 2. sd. í Adventu er sterkur vitnisburður um Jesúm Krist hinn guðlega mannkynsfrelsara. og ódauðleik kristinnar kirkju. Viðurkenning á þeim mörgu mannlegu mönnum, sem borið hafa brot af sannleika til mann- anna. Gagnrýni á vantrúna. í jóladagspródikuninni finst mér þetta vera bæði falleg og sígild setning: “Og hvað þýða svo öll hin óteljandi jólaljós, sem kveikt eru hér í lágum jarðarbygðum? Þau þýða það að hinir himnesku sendiboðar, sem birtast í jólaguðspjallinu, eru áður en því er lokið orðnir algerlega óteljandi.” — í prédik- uninni er það áframhald er skýrir erindi sendiboðanna, það að þau ná til allra tíma. Aður en árslok koma í bók- inni — það er sex prédikanir, — hefir höfundur tilfært og farið prýðilega smekklega með hið djúpa sorgarljóð eftir Kristján Jónsson: Alstaðar er harmur — og yndislega haustljóðið al- kunna eftir Steingrím: Vor er inndælt — að ógleymdu ódauð- lega sálmaversinu “Eg stend til brautar búinn.” o. fl. í ljóðum. Á nýársdag kemur skynsem- in með rökfræði þess óhrekjan- andi sannleika um daglega viðurkennir^gu hins kristna heims á Jesú Kristi, jafnvel þo menn séu alls ekki að hugsa um hann. Þar er þessi djúp- sæa setning: “Tíminn er full- kominn leyndardómur.” Mann- gæðin, sem birtast í prédikun- inni milli jóla og þrettánda eru bæði auðsæ og auðfundin, sem og djúpgrundaðar útleggingar á spádómunum og framkomu þeirra. Á þrettándanum standa þessi orð: “Stjarnan er epifanía-ljós til opinberunar heiðingjum og vegsemdar Drottins lýð, ísrael. Og þessi stjarna, sem vísaði austurlenzku vitringunum veg- inn til frelsisbarnsins í Betli- hem, er eitthvert inndælasta umhugsunarefni, sem til getur verið, fyrir trúaðar sálir krist- inna manna, eins og hún líka hefir orðið skáldunum í öllum kristnum löndum marg endur- tekinn texti til að yrkja út af óteljandi dýrmæt jólaljóð.” Það skal viðurkennt hér, að þó að prédikunin á 1. sd. eftir þrettánda sé bæði falleg, merki- leg og hafi í sér fólginn mikinn sannleika, þá tekst ekki höfundi þar eins vel, a. m. k. fyrir mín- ar tilfinningar, og honum tekst víðast hvar annarsstaðar í bók- inni, þar virðist nlér Dr. Jóni Vídalíri takast mikið betur um sama málefni; enda minnist eg ekki að hafa lesið neinn íslenzk an höfund, sem hefir eins mik- inn byr undir vængi er hann talar um æskuna og barnaupp- eldi, eins og Jón Vídalín. Annar sd. eftir þrettánda verður lesandinn :<ð staldra„ hugsa sig um og athuga ýmis- legt. Hér er fyrst og fremst kennimaður, sem umfram alt annað vill reynast Guði trúr. Hann reynist það. Hann viður- kennir alt gott, sem Guð hefir skapað og vill að maðurinn njóti þess í hóflegri skemtun, sem ti! ánægju á að vera. Svo er með vínið. Höfundur ætlast til að maðurinn láti Guðs anda ríkja svo sterklega 'í eðli sínu og lífi að hann geti notið als þess, sem í sjálfu sér er gott, án þess að , skaða sig á því sem getur þar í verið hættulegt. Verið hóf- semdarmaður. Og það er í alia staði í samræmi við lunderni þessa hreinlundaða, andlega víkings, að hann tekur hart á þeim sem öðruvísi hugsa. Hann finnur djúpt og sérlega til — • annarsstaðar í bókinni, með þeim, sem þjást undir byrði sjúkdómanna og margs annars, en maður efast um að hann komi auga á dýpt áfengisböls- ins og þeirra sorga, sem það hefir valdið mönnunum.—Ef til vill gerir hann það í raun og veru, en það skyggir á samúð- ina í þessari prédikun, að hann á í höggi við samúð sína út aí aðal hjartansmáli sínu, kirkj- unni. Sannarlega hefir bæði dr. Jón Bjarnason og aðrir slíkir höfundar, rétt fyrir sqr með það, að ef að hjarta mannsins hreinsast ekki af Guðs krafti, þá er það ekki nóg að maður- inn hætti að drekka. Hitt ei líka satt að sá, se'm er ófær ó- drukkinn honum batnar síðui en svo við það að vera drukk- inn. En aldrei verður það tölum talið hve margt ágætt manns- efni hefir drukknað í Bakkusi. — Eldurinn er góður á sínum stað, hann er meira að segja ljós, en tökum á honum með berum höndum eða misbrúk- um hann á annan hátt og sjá- um hvernig fer. Það er bæði yndisleg og þrótt- mikil prédikun sú á fjórða sd. eftir þrettánda. Hin djúpa til- beiðsla, sem liggur í eðli höí- undar á höfundi lífsins og þeim er hann sendi, sem og aðdáun hans á fallegum skáldskap, er hvorutveggja augljóst. Aðdáan- legur kennimaður talar út úr þessari prédikun. Freistingin. A inngangsorðun- um í þessari prédikun — 1. sd. í föstu — sér maður hve djúpt í hjarta að freistingin í sjálfu sér, sker höf. “Hinn heilagi Guðsson, frelsari vor Jesú Krist- ur, verður fyrir freisting. Hann, líka hann, á sína freistingar- sögu. Hann líka verður að ganga í gegnum margfalda freisting.” Það er auðfundið á tóninurn í þessum orðum að höfundur finnur til með öllum, sem freist- aðir eru og það feikna djúpt. Fullkomin útskýring á því, sam- úð hans, er frekar að finna í næstu prédikun, ekki einungis freistingum, heldur og aðallega þar, sársauka mannlegs lífs yfir höfuð að tala. Yfirleitt tekið ferðast séra Jón Bjarnason mik- ið með mannlegum verum hér um jörðina, í bók sinni, fullur áhuga og samúðar með líkam- lega lífinu líka, — andans og líkamans lífi, sem á köflum er erfitt að aðskilja. Mér finst hann gera það meir að fylgja mann- inum fót fyrir fót, víðast hvar, heldur en Jón Vídalín. Sá síð- ari flýgur svo mikið fjarri jörðu. í rauninni er þessi prédikun meistaraverk hjá báðum þess- um stóru, íslenzku Jónum. 3. sd. í föstu, ættu sem flest- ir að lesa. Þar eru kaflar úr sögunni, þættir, réttara sagt, hið innra og ytra, sem athyglisverð- ir voru og vel meðhöndlaðir. Hluttekning höfundar kemur mjög greinilega í ljós á 5. sd. í föstu. Hluttekning hans með mannanna börnum og lífskjör- um þeirra. Það er áframhald af því í næstu prédikun. Passíu sálmarnir notaðir. Sem flestir ættu að lesa skír- dagsprédikunina. Þar er eitt at vorum allra stærstu nauðsynja- málum rætt, með mannúð og. mildi. — Eg veit ekki hvort öðrum finst það sama og mér, en mér virðist að prédikanirn- ar tvær, þæri á föstudaginn langa og páskadaginn séu lista- verk hvort sjálfstætt út af fyrir sig, einkum sú fyrri. Ljóð Matt- híasar eru viðhöfð í báðum á- samt fleiru. Sú á annan í pásk- um ber vott um innilega trú og djúpsæi á virkileika tilverunn- ar. Á þriðja sunnudag eftir páska, eru biblíuskýringar svo ágætar, að það ætti, sem flest alþýðufólk að lesa. “Bænin í Jesú nafni,” er, svo sem aðrar prédikanir þeirra, lærdómsrík prédikun — 5. sd. e. p. — þess ber að gæta, að þó þessi mikli kirkjuhöfðingi fari eins langt í því, að skilja móð- ur sorgir, og maður getur hugs- að að karlmaður geti gert, þá ber ekkert þarna vott um það, að það eigi að hefja móðurina til guðlegrar tilbeiðslu. Niður- lagið er þannig eða kaflar úr því: “Æfintýrið alt er eitt ó- slitið bænastríð og bænin end- ar á fórn, stórkostlegri fórn eins og þeirra, sem í neyð sinni biðja í Jesú nafni. Þér fáið ný augu eins og móðirin, ef þér biðjið í Jesú nafni. — Biðjið án afláts í Jesú nafni.” Strangan, bókstaflegan rétt- trúnað, er, eins og við mátti bú- ast, að finna í bókinni. Þrettándi sunnud. eftir trini- tatis er djúpsæ og lifandi við- reisnarprédikun. í næstu pré- dikun eru orðin: “Heiðir menn,” nægileg prédikun í sjálfu sér. Áminningarnar sem á eftir fylgja í málinu: “Ágirnd og á- hyggjur,” er jafnnauðsynlegt. Víðsýni og sanngirni eru í Sabb- atsboðinu. “Mótspyman gegn Guðs ríki,” er vert mikillar at- hygli. Fyrirgefningarskyldan er ann- að stóratriði, sem vel er grund- að þarna, og marga ábyggilega lærdóma er hægt að draga út. Þar er bent á þann göfuga mann Ingimund Vatnsdælagoða, úr fornsögum vorum og það mikla manngöfgi, sem hann sýndi banamanni sínum, man eg það er eg las gömlu sögurnar, barn að aldri hve hrifin eg var af honum, að þó megin þeirra hafi fallið mér úr minni, þá er Ingi- mundur Vatnsdælagoði á meðai þeirra, sem sátu kyrrir í minni minningu, mér þótti því meir en lítið vænt um, er eg hitti hann undir kirkjuhjálmum Jóns Bjarnasonar. Þessar fáu línur og fátæk- legu, eiga engan vegin að skoð- ast sem gagnrýni á slíkt verk sem Guðspjallamál er, heldur, sem lítilfjörleg minning dags- ins, í því skyni gerð að draga athygli að bókinni. Hún er í það heila tekið, þvílíkir “há- fjalla ataðir,” að mikið er hægt að skoða sig um þar er loft hreint og fagurt og fjölbreytt útsýni. Væri eg í hópi þeirra, sem eiga ráð á hinum “þétta leir,” þessarar jarðar myndi eg vilja gefa út Guðspjallamál 1945 í hundrað ára niinningu þessa á- gæta kirkjuhöfðingja og íslands- sonar. Leslie, Saskatchewan. 15. nóv. 1942. Rannveig Kristín Guðmunds- dóttir Sigurbjörnsson. Rússneska leyni- vopnið Eflir Dyson Carier. (Þýtt úr “Russia’s Secret Weapon”) Jónbjörn Gíslason. (Kramhald) Það sem mest er um vert er, að börnin eru í umsjón sér- frææðinga í þessum efnum, og heilbrigði þeirra er varveitt á strangvíslegan hátt, matarhæfi eftir læknis-fyrirsögn, allir kvillar og lasleiki athugaðir og upprættir; á þennan máta er varanleg undirstaða lögð undir heilbrigða framtíð. Sú ásökun, að slík barnaheim- ili éyðileggi fjölskyldulífið og heimilið, er blátt áfram hlægi- leg.. Að lokinni vinnu sækir móðirin barnið sitt og fer með það heim. (Barnaheimilin eru ætíð rétt við vinnustaðinn, svo móðirin getur séð barnið og gefið því að drekka öðru hverju) Þessar stofnanir voru reistar tii þess að gjöra heimilin styrkari en ekki veikari. Það er ekkert byltingakent við þann sið að ala börn upp. undir eftirliti hjúkrunarkvenna. Hér í okkar landi, láta efna- mennirnir barnfóstrur oft og tíðum hafa mestan veg og vanda barnagæslunnar, jafnvel í borg- aralegu félagslífi er ekki fátítt að börn alist upp án mikilla kynninga foreldranna. En þegar Rússar stofnuðu þessi heimili fyrir börn verkamanna. æpti úrvalsfólkið höggdofa af skelf- ingu “baby farms.” Umhyggja Soviet-stjórnarinn- ar fyrir börnunum kom glögg- lega í ljós. strax eftir innrás þjóðverja. Að hennar tilhlut- un kölluðu rússneskar konur skyndisamkomur, til að ræða þetta mál. Augnamiðið var að stofna víðtæk samtök til bjarg- ar þeim börnum er nazistar höfðu gjört föður og móðurlaus og mundu gjöra í náinni fram- tíð; ennfremur til hjálpar þeim er særð voru og kynnu að verða, eða andlega biluð fyrir áhrif stríðsins. Ein þessara ■ kvenna mæiti svo: “Látum okkur safna sam- an allri ást og umhyggju þjóð- arinnar og umvefja með móð- urlegri blíðu, litlu sakleysingj- ana, sem öllu hafa tapað.” Hvað átti hún við með “ást og umhyggju þjóðarinnar?” Hafði hún í huga munaðarleys- ingjahæli eða lögboðin sjúkra- hús? Nei, hún og þær voru mjög str^nglega mótfallnar slíkri ráðstöfun. Þær kröfðust þess að hvert barn skyldi tekið inn á fjölskylduheimili og alið þar upp, því þá væri nokkur von til að viðkomandi munað- arleysingi yrði þess yls aðnjót- andi, sem venjulega er að finna í faðmi friðsæls heimilislífs, þó það kæmist ef til vill ekki til jafns við fyrverandi ástúð og fórnfýsi hinna drepnu foreldra. Þær skýrskotuðu þessu máli til allrar þjóðarinnar í heild. Hundruð þúsunda feðra og mæðra svöruðu tafarlaust. Jafn- vel börn heimilanna sendu munaðarleysingjunum bréf og buðu þá velkomna sem kær- komna bræður og systur. Á skömmum tíma var öllum heim- ilislausum börnum séð fyrir góðum framtíðarheimilum. Að sjálfsögð samþykti stjórnin þess- ar ráðstafanir tafarlaust. í Rússlandi eru engir “baby farms” en í Þýzkalandi er rík- ið kallað foreldri allra óskil- getinna barna, er framleidd eru í stórum stíl; þar er helgi hjú- skaparins höfð að háði og spotti, og börnin alin upp á stofnunum ríkisins. Meðferð og uppeldi barna í Rússlandi byggist á vísindalegri reynslu; séu barnaheimilin ekki bygð á slíkri undirstöðu, eru þau talin óhæf. Vísindin sanna að ekkert kemst til jafns við elsku foreldranna, og ekkert samsvarar fyllilega heimilinu, fjölskyldunni og hjúskaparlíf- mu. Vissulega hefir fjölskyldulíf- ið í heild umskapast. Hér sem á öðrum sviðum hafa hin nýju vísindi markað stefnu ríkis- stjórnarinnar. Allir vita að heimilislífinu er víða áfátt og þúsundir unglinga og barna, eiga ill og ervið upp- eldisár; ráðríkir foreldrav þröngva vilja þeirra undir sinn. sem einvaldsherrar og harð- stjórar; í framsýn unglingsins er ótti við skort og umkomu- leysi; þjóðernis og trúmála- hleypidómar hafa sín áhrif; vilja þrekið lamað af kvillum og sjúkdómum, sem ónógra meðala og læknishjálpar er leitað við. Samtímis því er Soviet-stjórn- in endurreisti heimilið í heild. gjörði hún sérstakar ráðstafan- ir til velferðar og réttarbóta barna og unglinga; þau voru leyst úr ánauð samtímis bæna- unum, verksmiðjumönnunum, kvenfólkinu og öllu áður undir- okuðu fólki frá keisaratímun- um. Það var mestmegnis fram- kvæmt gegnum skólana. Sál- fræðingar er skilja barnshjart- að, ótta .þess og eftirlanganir. skýrðu fyrir þúsundum kennara hið nýja frelsisviðhorf barn- anna. Þeir sögðu við æskuna: “Þið eruð hinir ungu borgarar hins unga Rússlands. Synir og dætur þessa unga og uppvax- andi ríkis, þið eruð frjáls. Eng- inn getur misboðið frelsi ykkar og sjálfstæðistilfinningu. Verið óhrædd, ykkur er frjálst og heimilt að dreyma bjarta fram- tíðardrauma — og láta þá ræt- ast.” Þessi orð voru ekki töluð út í bláinn. þeim var fylgt eftir með ókeypis mentun frá barna- skóla, upp í gegnum háskóla. Þeim var fylgt eftir með alls- herjar jafnrétti til allra tæk:- færa, og sá réttur ábyrgður æfi- langt. Fáir sorgarleikir þessa heims eru átakanlegri en vonbrigði og skipbrot gáfaðs ungmennis, við lokaðar dyr tækifæranna. Það er ekki aðeins raunalegt fyrir einstaklinginn sem hlut á að máli, heldur alla þjóðina i heild. Hve marga Beethovens hefir dreymt um héfleyga tónlist á uppvaxtarárunum, en kennar- ann vantaði, hljóðfærasláttinn og slaghörpuna. Hve margir Einsteins hafa ekki verið tekn- ir úr skóla á miðri leið, af heimskum foreldrum, af því þeir gátu þá þegar orðði sæmilegir bókhaldarar. Hve margir Hald- anes hafa hætt við læknisnám, af því þjóðflokkahatur setti fyr- ir þá fótinn á læknaskólanum okkar. Hve margar Florence Nightingale hafa aldrei, alla sína æfi, losnað við stritvinnu af- skektu bændabýlanna. Rússneski unglingurinn er ekki einungis frjáls að uppfyll- ingu sinna eigin drauma, held- ur leita yfirvöldin sífelt að hæfi- leikum hans, til ræktunar og fullkomnunar, þau hvetja hann til menta, með fullvissu fyrir ótakmörkuðum tækifærum hins víðáttumikla ríkis. Athyglinni er fyrst og fremst beitt að ungdómsárum manns- ins og konunnar. Fáein minningarorð Flutt við útför Elínar Katrín Jónsdóttur, 20. júní, 1942, að Selkirk, Man. Eg bið um styrk af hæðum til þess að fara ekki með rang- mæli í þeim fáu orðum, sem eg vil tala hér. Elín Katrín Jónsdóttir, þú sannkristna og ástríka kona og móðir okkar tíu barna, sem nú eru tvö farin á undan þér, ert nú lögð hér til hinstu hvíldar, eftir langt, og vel unnið æfi- starf. Eg stend hér blindur á veik- um fótum og mun þess ekki langt að bíða að eg verð kall- aður sömu leiðina og þú ferð nú. Eg vil í einlægni taka fram hér, að margir hreinir og bjart- ir ljósgeislar hafa skinið okkur báðum til gagns, unaðar og far- sældar á þinni löngu æfileið, og þessir geislar munu halda áfram að skína um ókominn tíma und- ir lögmáli lífsins á vegum eilífð- arinnar; með þessum orðum á eg við góð og velgefin börn okkar, og afkomendur þeirra sem nú eru hér nokkur saman komin til þess að heiðra útför þína, þú hefir borið alt mótlæti með þeirri stillingu og þolgæði að fá munu dæmi tilfinnast. Eg hefi heyrt sagt, “Sérhver maður er sinnar gæfusmiður,” en lífs- reynsla mín hefir sýnt mér svo margt að eg verð að draga nokkuð í efa sannleiksgildi þess- ara orða; hin svonefnda forlaga gyðja “Verðandi” hefir reynst öllum ftiönnum of þungskilin, eins og hið fjölþætta lögmál lífsins, sem enginn botnar í, og skal eg því ekki fara lengra út í það mál. Það er ekki mitt með- færi; en eg held það sé sann- leikur, sem ekki verður borin til baka, að hverjar þær skipanir sem koma frá hásæti drottins vors hins lifandi Guðs á himn- um, þá verður þeim ekki þok- að um hársbreidd frá vilja hans og ákvörðun. Mér finst nú, sem eg sjái himinbornar ljósiklæddar ver- ur yfir og kringum rúmið þitt, sem rétta þér vinarhönd, og eg trúi því afdráttarlaust að sá tími renni upp, að þú verður af englum Guðs leidd inn á þau svið í ríki himnanna þar sem friðar sólin skín í þeim ljóma, sem almættið lætur undir henn- ar vald. Og það held eg sé hinn hreini sigur lífsins, sem ekki getur kulnað út eða dáið. Þú góða kona! Vertu nú sæl og blessuð í nafni Guðs föðurs, sonar og heilags anda. Við þökk- um þér öll fyrir dygðina og kærleikann, sem þú heíir sýnt okkur í öllum greinum bæði ljóst og leint. Stundin er komin — nú á þessari klukkustund fer þú burt af þínu elskaða heimili í heilög- um friði og ró í náðarfaðm frels- arans drottins vors Jesú Krists, sem þú hefir treyst og elskað af hreinu og einlægu hjarta alla þína æfidaga. Sveinn Skaflfeld. WÖMEN-Serve with the C.W.A.C. You are wanied — Age limiis 18 io 45 Full information can be obtained from your recruiting representative Canadian Women's Army Corps Needs You Get Into the Active Army Canada's Army Is On The March Gei in Line — Every Fii Man Needed Age limiis 18 io 45 War Veierans up io 55 needed for VETERAN’S GUARD (Active) Local Recruiiing Representative

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.