Lögberg - 04.02.1943, Blaðsíða 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 4. FEBRÚAR 1943.
3
Eivind Berggrav biskup
Eftir prófessor Richard Beck.
“Píslarvottar með bogin bök í brjóstfylking sannleikans
standa.” í>annig farast Davíð skáldi Stefánssyni frá Fagra-
skógi orð í einu hinna stórbrotnu kvæða sinna, og aldrei
hafa þau orð verið sannari heldur en á þessum tímum. Og
á þessari öld styrjalda og kúgunar, er það einmitt aðdáunar-
verðast og vekur stærstar framtíðarvonir, hversu mikill
fjöldi manna og kvenna víðsvegar um heim hafa kosið
að þola þungar þrautir og harðar ofsóknir, fremur en að
lúta ofbeldinu og böðlum þess; slíkir menn og slíkar konur
diafa af frjálsum og fúsum vilja gerst píslarvottar sann-
leikans.
Eivind Berggrav biskup.
Glæsilegt fyrirdæmi í þeim efnum eru klerka- og
kennarastéttin í Noregi, sem staðið hafa og standa fast
saman og einhuga í harðsóttri baráttu sinni gegn hinu
erlenda hervaldi og einræði og þjónum þess, sem gera
vilja kirkjuna og skólana verkfæri og auðmjúkac undir
læjur ríkisvaldsins. Hafa ofsóknirnar þó verið stórum
grimmari á hendur kennurunum en gegn biskupunum og
prestunum, og verður blóði rituð hetjusaga hinna fyrnefndu
eigi rakin hér.
Eigi að síður er það víðkunnugt orðið, að bæði norskir
biskupar og prestar hafa verið hnepptir 1 varðhald um
lengri eða skemmra skeið og beittir kúgun á annan hátt,
en þær ofsóknir hafa aðeins aukið þeim eindrægni og
hetjuhug. Því segir Ásmundur prófessor Guðmundsson
réttilega í merkilegri og ítarlegri grein, “Stríðskirkja Nor-
egs” — Kirkjuriiið, júní—júlí, 1942 —, er sem flestir ís-
lendingar ættu að lesa: “Verða þau samtök því traustari,
sem meir reynir á og stríðið þyngist, er kirkjan hlýtur að
heyja.”
Hann segir enn fremur um norsku kirkjuna: “Foringi
hennar, Eivind Berggrav biskup, hefir reynst manna ein-
beittastur og öruggastur, kristin hetja í öllum mannraun-
um.” Þessi trúarhetja þeirra frænda vorra fær sama vitnis-
burðinn frá þeim, sem næst st.anda sjálfum atburðunum,
samherjum hans heima fyrir, og frá löndum hans utan
Noregsstranda, er best fylgjast með því, sem er að gerast
í heimalandi þeirra. Vafalaust vilja íslenskir lesendur,
ekki síst kirkjulega sinnað fólk, vita nokkur deili á þess-
um andans höfðingja og kirkjuleiðtoga; hér verður því
brugðið upp skyndimynd af honum og lýst meginþáttum
í athafnalífi hans.
Eivind Berggrav biskup, var orðinn þjóðkunnur kirkju-
höfðingi í Noregi löngu áður en Þjóðverjar hernámu land-
ið. Hann var vígður biskup í Hálogalandi árið 1929 og
biskup í Osló, og jafnframt höfuðbiskup og sjálfkjörinn
foringi norsku kirkjunnar, árið 1937.
Honum rennur presta og leiðtogablóð í æðum. Hanr.
er fæddur 25. október 1884 í Stafangri, þar sem faðir hans,
séra Otto Jensen, var þá sóknarprestur. Varð hann síðar
biskup í Hamar-biskupsdæmi, en dó stuttu seinna; þótti
hann atkvæðamikill ágætismaður, enda hefir Berggrav
sonur hans komist svo að orði um hann: “Eg verð aldrei
annað en sonur föður míns.”
Eivind Berggrav heitir því skírnarnefni Eivind Jensen,
en þegar snemma á árum tók hann sér ættarnafnið Berg-
grav. Hann ólst upp með foreldrum sínum í hinum skógi
klæddu og friðsælu sveitabyggðum í suð-austur Noregi.
Lauk hann stúdentsprófi 1903 og guðfræðiprófi 1908; en
auk þess hefir hann stundað framhaldsnám við merkis-
háskóla utan Noregs.
Hafa áhugaefni hans jafnan síðan hann lauk embættis-
Prófi verið mjög fjölþætt og starfsferill hans að sama
skapi litbrigðaríkur. Hann var framan af árum kennari og
skólastjóri, meðal annars á lýðháskólanum að Eiðsvelii
siðan sóknarprestur í sveit og því næst fangaprestur í
Osló, háskóla-fyrirlesari og prestaskóla-kennari. Ber mönn-
um saman um það, að hvort sem var í kennslustofunni,
íangaklefanum, heimsóknum, fyrirlestrasalnum, prédikun-
arstólnum eða í vinahóp, þá hafi hann ávalt verið jafn
aðlaðandi og aðkvæðamikill.
Þá hefir hann fengist mikið við blaðamennsku og rit-
stÖrf. Síðan 1909 hefir hann verið ritstjóri hins merka og
víðlesna kirkjurits “Kirke og Kultur” (Kirkja og menning),
sem hefir haft djúp og víðtæk áhrif í Noregi. Hefir það
aagt verið, og áreiðanlega með öllu ýkjulaust, að heitið á
fyrnefndu riti “Kirkja og menning”, geti staðið, sem yfir-
skrift stefnu og æfistarfs hans. Kirkjunni, í dýpstu og
sonnustu merkingu þess orðs, hefir hann skipað í öndvegi
1 öllum hinum margþættu afskiptum sínum af menningar-
'aialum á ýmsum sviðum.
Hann hefir einnig skrifað mörg rit um trúarleg og
sálfræðileg efni, öll harla athyglisverð og sum með hrein-
um snildarbrag, bæði að frumleik og þrótti hugsunar-
innar og að frásagnarhætti. Má í því sambandi nefna bók-
ina “Trúartilfinning í heilbrigðu sálarlífi” (Religiös fölelsi
i sunt sjeleliv), sem er frábærilega snjalt og hrífandi rit.
Á þeim árum, sem Berggrav var fangaprestur í Osló, frá
1925—1929, gafst honum sjaldgæft tækifæri til að rann-
saka trúar- og sálarlíf manna frá ýmsum hliðum; færði
hann sér það vel í nyt eins og rit hans bera vitni. Annars
er hann að eðlisfari gæddur ríkum skilningi á lífinu og
miklu sálarlegu innsæi.
Athyglisgáfa hans og frásagnarsnilld lýsa sér ágætlega
í hinni frægu bók hans “Hálogaland”, sem kom út í ís-
lenzkri ágætisþýðingu eftir þá prófessorana Ásmund Guð-
mundsson og Magnús Jónsson, fyrir nokkru síðan, á vegum
Prestafélags íslands. Bók þessa ritaði Berggrav á biskups-
árum sínum á Hálogalandi, í töfraríki miðnætursólarinnar;
útheimtu embættisstörf hans mikil ferðalög um þennan
hrikalega landshluta Noregs, og fékk hann með þe*m
hætti náin kynni af íbúunum, er heyja harða baráttu við
náttúruöflin norður þar, því að stormasamt er þar og vetra-
ríki mikið. Lýsir hann þessu mikilúðlega landi andstæðn-
anna með lífi og lit í bók sinni, og ekki er samúð hans
minni með mannfólkinu á þeim slóðum, enda naut hann
almennra ástsælda af þeirra hálfu. Sannaðist hér það,
sem mælt hefir verið um Berggrav biskup, að hann vær>
jafn mikið heima hjá sér í hópi skógarhöggsmanna við
varðeld þeirra og í kennslustól háskólans.
Svo hefir einn af kunnum nemendum hans, nú starf-
andi prestur, einnig sagt, að eitt, sem einkum sérkenni
Breggrav biskup sé manndómur hans og yfirlætisleysi, því
næst hið kröftuga málfar hans og hin aðsópsmikla persóna
hans. Hann hefir jafnan verið mjög þjóðlegur í kirkju-
legu starfi sínu og afstöðu, en festa hans og andlegt sjálf-
stæði hafa orðið enn þá augljósari síðan hann varð embætt-
isins vegna, er þroskað hafði foringjahæfileika hans, bein-
línis og óbeinlínis formælandi hinnar stríðandi kirkju
Noregs, gegn ríkisvaldinu. Hatur þess hefir einnig sér-
staklega bitnað á honum, og svo hættulegan telja and-
stæðingar norskrar kirkju og kristni hann, að þeir láta
tylft hermanna skiftast á um að standa vörð um skógar-
hús það, þar sem hann er hafður í varðhaldi. Hitt þarf
vart að taka fram, að trúaranda hans og hetjuhug hafa
vaxið vængir við ofsóknirnar og fangelsisvistina.
Hefir þannig sannast á Berggrav biskup sjálfum það,
sem hann ritaði í ársbyrjun 1941: “Þegar sannleikurinn
verður oss heilagur, þá gerast menn píslarvottar. Og að-
eins þá, er hlutverk manna verður þeim heilagt, verður
það afl í sálum þeirra og lætur þá vinna mestu afreks-
verk. Sama gildir um félagsskap manna.”
Það er hákristileg hugsun, og lærdómsrík, að minnast
trúfestu, hugprýði og fórnarlundar Berggravs biskups og
annara slíkra píslarvotta, er standa í brjóstfylking sann-
leikans víða um lönd og halda hreinu merki hans ótrauðir
í höndum. Sameiningin.
Wartime Prices and
Trade Board
Börn, sem verða tólf ára
fyrir fyrsta marz 1943, geta
fengið kaffi og te skömtunar-
seðla þegar nýju bókunum
verður útbýtt núna í marz-mán-
uði, samkvæmt tilkynningu frá
Wartime Prices and Trade
Board.
Skömtunar skrifstofurnar
verða samt að fá bréf, undir-
rituð af foreldrum eða eftirlits-
mönnum barnanna, þar sem
nafn barnsins er gefið til fulls
einnig fæðingardagur og ártal,
og númerið á skömtunbók þess.
Börn, sem verða tólf ára þann
fyrsta marz, eða eftir fyrsta
marz, fá ekki te eða kaffiseðla
fyr en þriðju útgáfu af skömt-
unarbókunum verður útbýtt
næsta haust.
* * *
Wartime Prices and Trade
Board hefir tilkynnt almenningi
að eftir 1. apríl 1943, fáist ekki
snið á föt, sem koma í bága við
reglugerðir viðvíkjandi fatnaði
á stríðstímum.
Fatastærð er líka takmörkuð,
og fatagerðarfélögum og öðrum
er bannað að útbýta, selja eða
búa til, snið^sem eru meira en
5% stærri — að saumum und-
anskildum — en fyrirskipunin
leyfir. Þetta hefir verið gert til
þess að fatnaðarreglugerðin í
Canada, komi ekki í bága við
Bandaríkja fyrirkomulagið.
Spurningar og svör.
Spurt. Er nokkuð hámarks-
verð á járnvörum, eggjárnum
(cutlery) eldhúsáhöldum svo sgm
pottum og pönnum eða leir-
taui?
Svar. Já. Það má ekki selja
nokkuð af þessum vörutegund-
um fyrir hærra verð en selt var
fyrir á hámarkstímabilinu 15.
september til 11. október 1941.
Ath.: Munið að það er samt
nytjatollur á sumum af þessum
vörum og að tollurinn er ekki
reiknaður með í verðinu. S. W.
Spurt. Það er hjá okkur leigj-
andi, sem nokkrum sinnum hef-
ir verið beðin að flytja út, en
hún fer ekki samt. Hún virðist
ekki eðlileg í framkomu, og er
hinum leigjendunum til skap-
raunar.
Svar. Samkvæmt lögum fylk-
isins getur þú farið til lögmanns
og fengið hjá honum sérstakt
leyfi frá héraðsdómara til þess
að taka við íbúð þessa leigjanda
án nokkurar tafar. Ástaeðan
verður að vera tekin fram.
Spurt. Hvert á maður að fara
til þess að fá undanþágu frá
inntektaskattinum, eg vann mér
ekki inn 660 dollara síðastliðið
ár.
Svar. Wartime Prices and
Trade Board hefir ekkert með
þetta að gera, en eyðublöð, sem
þú talar um fást innan næsta
mánaðar á Income Tax skrifstof
unni í Federal Bldg. Winnipeg.
Spurt. Er leyfilegt, samkvæmt
reglugerðunum, að kaupa fatnað
með afborgunum?
Svar. Lánslögin leyfa sex
mánaða lánsfrest á vanalegum
fatnaði, en 10 mánaða lánsfrest
á loðskinnskápum (fur coats) og
loðskinsskreyttum kápum. Nið-
urborgun verður í öllum til-
fellum að vera einn þriðji af
söluverðinu.
Spurt. Hvar fæst leyfi til að
kaupa nýjar landbúnaðarvélar?
Svar. Umsóknir verða að
sendast til yfirmanns þeirrar
nefndar, sem hefir með hönd-
um úthlutun á landbúnaðarvél-
um, Ross C. T. Trimble, War-
time Prices and Trade Board,
Winnipeg.
Spurt. Fæst auka skamtur af
smjöri fyrir hússtjórnarkenslu?
Svar. Enginn aukaskamtur af
kaffi, te eða smjöri er fáanleg-
ur fyrir hússtjórnarkenslu. En
sykur fæst með því að fylla
út umsóknareyðublað (Form A).
sem fæst á næstu skömtunar-
skrifstofu.
Spurt. Eg bý í smábæ, og
kaupi mjólk í flöskum, 14 potta
fyrir dollarinn. Eiga ekki mjólk-
ursalar hér, sem annarsstaðar að
lækka verðið á mjólkinni um
2 cent pottinn samkvæmt nýj-
ustu reglugerðinni?
Svar. Jú. Mjólkursalinn á að
lækka verðið við þig um 2 cent
pottinn. Á 14 pottum er þetta
28 cent. Þú borgar því mjólkur-
salanum 72 cent fyrir 14 potta,
en hann innheimtir 14x2 = 28
cent frá stjórninni. Hann fær
því alveg sama verð og áður
fyrir þessa 14 potta, en þannig,
að þú borgar 72 cent en stjórn-
in 28 cent alls einn dollar.
Spurningum á íslenzku svarað
á íslenzku af Mrs. Albert
Wathne, 700 Banning St. Wpg.
* * *
Prenlvilla.
I síðasta blaði stóð, að smjör-
seðlar 5 og 6 féllu úr gildi 28.
janúar, þetta átti að vera 28.
febrúar. S
Business and Prt ifessional Cards
WINNIPEG CLINIC Thorvaldson &
Vaughan & St. Mary’s Dr. P. H. T. Thorlakson Eggertson LögfrœOingar
Phone 22 866
• 300 NANTON BLDG.
Res. 114 GRENFELL BLVD. Talslml 97 024
Phone 62 200
J. J. SWANSON & CO. DR. A. V. JOHNSON
LIMITED Dentist
308 AVENUE BLDG, WPG.
• •
Fasteignasalar. Leigja hös. Út- vega peningalán og eldsábyrgC. bifreiðaábyrgð, o. s. frv. 506 SOMERSET BLDG. Telephone 88 124
Phone 26 821 Home Telephone 202 398
Peningar til útláns ST. REGIS HOTEL 285 SMITH ST.f WINNTPEG
Sölusamningar keyptir. Bújaröir til sölu. • Pœgilegur og rólegur bústaOur i miObiki borgarinnar
INTERNATIONAL LOAN* Herbergi $2.00 og þar yfir; með
COMPANY baðklefa $3.00 og þar yfir
304 TRUST & LOAN BLDG. Agætar máltíðir 4 0c—60c
Winnipeg Frce Parking for Guests
DR. B. J. BRANDSON DRS. H. R. and H. W.
216-220 Medical Arts Bldg. TWEED
Cor. Graham og Kennedy Sts. Tannlœknar
Phone 21 834—Office tlmar 3-4.30 •
• 406 TORONTO GEN. TRCSTS
Heimili: 214 WÁVERLEY ST. BUILDING
Phone 403 288 Cor. Portage Ave. og Smith St.
Winnipeg, Manitoba PHONE 26 545 WINNIPEO
Legsteinar sem skara framúr J A. S. BARDAL
Úrvals blágrýti 848 SHERBROOK ST.
og Manitoba marmari SkrifiO eftir verOskrá Selur llkkistur og annast um öt- farir. Allur útbúnaður sá bezti. Ennfremur selur hann allskonar
GILLIS QUARRIES, LTD. minnisvarða og legsteina.
14 00 SPRUCE ST. Skrifstofu talsími 86 607
Winnipeg, Man. Heimills talstmi 601 562
DR. A. BLONDAL DR. ROBERT BLACK Sérfræðingur I eyrna, augna, nef
Physician & Surgeon og hálssjúkdðmum
416 Medical Arts Bldg.
602 MEDICAL ARTS BLDG. Cor. Graham & Kennedv
Sími 22 296 Viðtalstlmi — 11 til 1 og 2 til 5
Heimili: 108 Chataway Stmi 61 023 Skrifstofuslmi 22 251 Heimilisslmi 401 9 91
H. A. BERGMAN, K.C. Dr. S. J. Johannesson
íslenzkur lögfræOingur 215 RUBY STREET
• \ Skrifstofa: Room 811 McArthur (Beint suður af Banning) Talslmi 3Qr877
Building, Portage Ave. P.O. Box 1656 • Viðtalstími 3—5 e. h.
Phones 95 062 og 39 043
Office Phone Res. Phone
J.A. Anderson,B A.,LL.B. 87 293 72 409
Barrister and Solicitor Dr. L. A. Sigurdson
and Notary Pitblic
109 MEDICAL ARTS BLDG.
Tryggingar af öllum tegundum.
ASHERN, MAN. Office Hours: 4 p.m.—6 p.m.
and by appolntment
J. W. MORRISON & CO. S. E. Björnson, M,D.
General Hardioare
MAL og OLfUR Lœknir og lyfsali
“Sé pað harðvara, höfum við hana” x •
SÍMI 270 — SELKIRK, MAN. ARBORG, MAN.
No. 1 Call 2 Dr. K. I. JOHNSON
DR. M. C. FLATEN Physician and Surgeon
Tannlæknir Sími 37
EDINBURG, N. DAKOTA CENTRE ST., GIMLI, MAN.
SINCLAIR'S VICTORY BOWLING
TEA ROOMS FIVE and TEN PINS
Btaðurinn par sem allir vinir Símið 206 til þess að
mœtast. tryggja aðgang
SELKIRK, MAN. SELKIRK, MANITOBA
Gilhuly’s Drug Store E. G. EIRIKSSON
THE REXALL STORE
LyfjasérfrœOingar Lyfsali
SELKIRK, MAN. CAVALIER, N. DAKOTA.
Sími 100 Nætursími 25 Slmi 24