Lögberg - 13.05.1943, Blaðsíða 2

Lögberg - 13.05.1943, Blaðsíða 2
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 13. MAÍ 1943. 2 Arngr. Fr. Bjarnason: Um Hannes Hafstein á ísafirði Hannes Hafstein var svo ó- venjulegur sem stjórnmála- foringi og skáld, að það er ekki að bera í bakkafullan læk, þótt nokkuð bætist við það, sem þeg- ar hefir verið um hann ritað. Þegar Hannes Hafstein kom hingað vestur 189& sem sýslu- maður í ísafjarðarsýslum og bæjarfógeti á Isafirði, var ófrið- areldur sá, er hin svonefndu Skúlamál kveiktu, hvergi nærri útdauður. Að vísu var málaferl- um þessum þá lokið hér heima. en enn liíði í gömlum glæðum haturs og sundurlyndis. Frá hendi Skúla Thoroddsens var litið svo á, að “landshöfð- ingjaritarinn”, þ. e. Hannes Halstein, heíði ranglátlega og óverðskuldað verið útnefndur sem yfirvald ísfirðinga. Skúli og nánustu vinir hans fóru í enga launkofa með hatur sjtt á landshöfðingjanum Magnúsi Stephensen. Hver einasta athöfn hans var gagnrýnd í Þjóðviljan- um, og það er eiginlega engu líkara en að alt ilt og aflagið í stjórnarfarinu væri Magnúsi Stephensen að kenna. Hannes Hafstein varð hér fyrir kuldanum í garð Magnúsar landshöfðingja strax og hann kom hingað vestur. Og þar sem mikill meginþorri bestu manna héraðsins og allur almenningur hafði eindregið fylgt Skúla að málum, má nærri geta, að að- koman hingað var bæði köld óg vandasöm. Hannes Hafstein lét það síðar í ljós, að sig hefði.bók- staflega kalið fyrstu árin, sem hann sat hér í embætti. Ekki hafði hann þó lengi stýrt málum Isfirðinga, þegar sumir hinna betri manna sáu, að þeir höfðu fengið til forustu óvenju- legan hæfileikamann og að sama skapi skemtilegan og drenglynd- an. Það var ekki aðeins í sam- kvæmum að Hafstein töfraði alla, bæði vini og óvini, heldur var hin daglega framkoma yfir- valdsins mótuð of óvenjulegum hlýleik, glæsimensku og skör- ungsskap. Það fór líka svo, að hatrið og kuldinn hvarf eins og dögg fyrir sólu. Að því studdi samfara per- sónu Hafsteins sjálfs — og má- ske eigi síður — kona hans, Ragnheiður Stefánsdóttir, sem bæði var mesta valkvendi og skörungur. Á heimili þeirra leið bæði háum og lágum vel. Þeir fundu þar óvenjulega rausn og gestrisni, glatt og hlýtt viðmót, og hjálp og huggun. Aldamótaárið fóru fram al- þingiskosningar. Margir höfðu hvatt Hannes Hafstein til þess að gefa kost á sér sem þings- mannsefni Isfirðinga, og hann varð við þeim óskum. Þeir Skúli Thoroddsen og sr. Sigurður Stefánsson í Vigur höfðu þá ver- ið þingmenn ísfirðinga óslitið langa hríð og áttu traust og mikið fylgi í héraðinu. Mátti því fyrirfram búast við, að þeim yrði ekki þokað úr sæti. Þetta fór þó á annan veg. Hannes Haf- stein náði kosningu ásamt Skúla. Það kom þá í Ijós, að margir fylgismenn Skúla kusu hann og Hannes Hafstein saman. Það réði úrslitum fyrir sr. Sigurð, og þessi kosning var hinn fvrsti opinberi vottur um það persónu- lega traust, sem Hannes Haf- stein hafði aflað sér hjá ísfirð- ingum. Kosningaróðurinn hafði verið þungur. Þó munu þeir Skúli og sr. Sigurður ekki til fulls hafa uggað að sér. Talið sig svo sjálf- sagða og örugga í þingsætunum, að aðrir kæmu þar ekki til greina. Nú vöknuðu þeir við vondan draum og hugðu á hefnd ir. Fór og svo, að Hannes Haf- stein féll við alþingiskosninguna 1902. Voru þeir Skúli og sr. Sigurður þá kosnir með miklum atkvæðamun. Margir hinna yngri manna eru þeirrar skoðunar, að stórfeldur koSningaáróður hér á landi sé nútímafyrirbæri. Sjálfsagt er þetta rétt um sum kjördæmin. En það á ekki við um Isafjörð 'og ísafjarðarsýslur. Áróðurinn við kosningarnar 1902 mun ein- hver sá harðasti, sem hér hefir verið alt til þessa. Agentarnir heimsóttu hvern einasta kjós- anda í kjördæminu og flestir voru margprófaðir, og svo áttu þingmannsefnin tal við sagg af kjósendum, einkum Skúli og Hafstein. Var þeim hægr^i um vik, þar sem báðir sátu á ísa- firði. Kosningarnar voru þá op- inberar. Kom fyrir þá eins og nú, að gefin loforð brugðust á síðustu stundu. Þó mátti telja slíkt til undantekninga. Skúli og sr. Sigurði var vel kunnugt, að stærri verslanirnar í kjör- dæminu studdu mjög kosningu þeirra Hannesar Hafstein og Matthíasar Ólafssonar verslun- arstjóra í Haukadal í Óýrafirði — sem var í framboði með hon- um. Þeir óttuðust því, að ein- hverjir fylgismenn sínir myndu glúpna á kjördegi, þegar þeir áttu að kjósa andstætt vilja verslunarstjóranna. Eftir kosningarnar 1902 taldi Hafstein örugt, að hann yrði endurkosinn, og líklegt að Matt- hías Ólafsson næði einnig kosn- ingu. Var þetta aðallega bygt á því, að þeir Skúli og sr. Sigurð- ur ættu ekkert teljandi fylgi vestan Breiðadalsheiðar. En það reyndust tálvonir. Kjördagurinn var 11. júní Tók gufuskipið Laura, sem var á leið frá Reykja vúk til ísafjarðar, Dýrfirðinga og Önfirðinga — og Auðkúlu- hreppsbúa. Reyndist fyl-gi Vest- ur-lsfirðinga er til kom nokkuð jafnskift milli Heimastjórnar- manna og Valtýinga — og mátti þá strax sjá úrslit kosninganna, því vitanlega höfðu þeir Skúli og sr. Sigurður meira fylgi en Hannes og Matthías í Norður- ísafjarðarsýslu og á ísafirði. Var ekki laust við nokkurn metnað milli Norður- og Vestur-ísfirð- inga. Vildu sumir norðanmenn síður kjósa Hannes og Matthías, þar sem hinn síðarnefndi var Vestur-ísfirðingur og lítt kunn- ur öllum almenningi norðan Breiðadalsheiðar. En það fór svo, að Hannes Hafstein komst á þing, þótt Is- firðingar feldu hann. Vorið 1903 fóru fram kosningar að nýju. Bauð Hannes Hafstein sig þá fram í Eyjafjarðarsýslu og náði þar kosningu með 21 atkvæði fram yfir Stefán í Fagráskógi. Frændur hans norður þar studdu drengilega kosningu hans. En mest mun hafa dregið um úr- slitin, að Hannes Hafstein var .þá þegar orðinn viðurkendur foringi Heimastjórnarmanna og víðkunnur af greinum í blaðinu Vestra, sem mátti telja, meðan Hannes Hafstein var á Isafirði, aðalblað Heimastjórnarflokks- ins. * * * Þegar Hannes Hafstein varð hér sýslumaður, var hann á besta skeiði. Fullur af fjöri og framkvæmdaþrá—og fyrstu til- tekjur hans sem foringja voru fyrir Isafjarðarkaupstað. Hann vildi þar sprengja þrengsli gam- als vana og kyrstöðu með nýjum framkvæmdum. Varð honum fyrst fyrri, að láta gera vatnsr- vetu fyrir bæinn. Varð áður að bjargast eingöngu við brunna- fyrst fyrir, að láta gera vatns- veitu fyrir bæinn. Varð áður að um kent. Fólk líka svo, að tauga veikin hvarf með öllu eftir að vatnsveitan var komin. Vitan- lega studdu einnigi aðrir menn að vatnsveituframkvæmdunum, og þá fyrst og fremst Þorvaldíir Jónsson héraðslæknir. En Hann- es Hafstein var foringinn og framkvæmdamaðurinn. Næstu átök Hannesar Haf- stein fyrir ísafjörð var bygging nýs barnaskóla og vegagerð frá kaupstaðnum, bæði inn í Skutils- fjörð og út í Hnífsdal. Bygging barnaskólans var gerð af miklum myndarskap, svo að skólahúsið mun hafa verið full- komnast hérlendis á þeim tíma.. Jafnframt voru skólanum trygð- ir hinir ágætustu kenslukraftar. Skólastjóri varð dr. Björn Bjarn arson frá Viðfirði, óefað og að öðrum ólöstuðum besti fræðari ungra manna hérlendis. Mér þykir rétt að geta hér eins atviks í sambandi við barna skólabygginguna, sem lýsir Hannesi Hafstein vel. Tang’s- verzlun taldi sig eiga lóð þá, sem skólinn var reistur á. Bauð Jón Laxdal verzlunarstjóri Tang’s- verzlunar að gefa lóðina undir skólann: En Hannes Hafstein vildi ekki þiggja. Taldi að í því fælist viðurkenning frá bænum um óskoraðan eignarrétt verzl- unarinnar til Riis-túnsins svo- nefnda, en um það hafði verið deilt — skólalóðin var hluti af túninu. Fékk Hannes Háfstein eignarnámsheimild fyrir lóðinni. Öll þessi verk Hannesar Haf- steins hafa borið heillaríka ávexti fyrir ísafjörð, og munu lengi bera hans menjar. Barna- skólinn er enn í notkun, með nokkurri stækkun þó. Vatns- veitan héfir líka verið stækkuð. Vegalagningin inn í fjörðinn átti þátt í þeim stakkaskiftum, sem orðið hafa úm ræktun í ná- grenni kaupstaðarins. Má hér og við bæta, að Hafstein hafði for- göngu að því, að grasblettirnir ofan við bæinn yrðu látnir á erfðafestu. Varð það fyrsti vís- irinn að túnrækt bæjarbúa, ófullkominni að vísu og hæg- fara, en fyrst er vísirinn, svo berið. Framsýni Hannesar Hafsteins kom skýrlega fram í þessum at- höfnum, samhliða þeim stórhug, sem síðar einkendi framkvæmd- ir hans sem stjórnmálaforingja. Hannes Hafstein varð flestum þeim, er áttu því láni að fagna að.kynnast honum náið, ógleym* anlegur. Á það ekki síst við hann sem stjórnmálaforingja. Eg hygg, að íslenzka þjóðin hafi ekki átt glæsilegri foringja á því sviði, að undanteknum Jóni Sigurðssyni forseta. Hér er hvorki staður né rúm til þess að rekja stjórnmálabar- áttu Hafsteins né framkvæmd- ir. Þó skal stiklað á fáeinum stærstu atriðunum. Hann á’tti frumkvæði að breytingu á skóla- kerfi landsins. Vildi hann stíga þar langt skref til meiri menn- ingar alþýðu. Hann vildi fá Al- þingi skipað bestu mönnum þjóðarinnar og að þar væri í há- vegum heill allrar þjóðarinnar, en ekki hin steinrunna og^iftur- haldss^ma hreppa- og kjördæma pólitík. I því skyni bar Hafstein fram frumvarp um breytta kjör- dæmaskipun, þar sem landinu var skift í stór kjördæmi með hlutfallskosningum. Þetta frum- varp Hafsteins um kjördæma- skipun og hlutfallskosningar var þá alveg nýtt á Norðurlöndum. Sýnir þetta m. a. hvað Hafstein var langt á undan sínum tíma og hvað mikið kappsmál honum var, að þjóðin gæti tekið fram- förum og verið öðrum til fyrir- myndar. Þá er ekki hægt að kom' ast hjá að nefna ritsímamálið, þegar minst er á stjórnmálabar- áttu Hannesar Hafsteins. Mestan m þátt ,í að samningar náðust við Stóra norræna félagið um lagn- ingu ritsíma hingað, má eflaust þakka persónulegum úhrifum hans og glæsimensku. Hafstein vissi vel, að fátt eða ekkert myndi meiri lyftistöng fyrir “stjórnfrjálsa þjóð með verslun eigin búða” en símasamband við umheiminn. Ef gamla sleifarlag- ið átti að ríkja um sambandið við umheiminn, hlaut hokrið að halda áfram. Ekkert mál hér- lendis hefir fyr né síðar hlotið hatramari andstöðu en ritsíma- málið, ef til vill stærsta fram- faramál íslendinga þar sem lið- ið tr af 20. öldinni. Nægir í því efni að minna á hinn fjölmenna og að sumu leyti skörulega bændafund Sunnlendinga og WISHT I TWERE-TD SHOW TWEM NA2IS A THING OR TWO yy.. BUV moRY Wi RIGHT OVER HERE ABE BV INVESTIN' IN A trftWA VICTORY BQNO/ W* Borgfirðinga til að mótmæla framgangi ritsímamálsms. En gifta Hannesar stýrði málinu heilu í höfn, en aldrei lagði hann sig svo fram sem þá. Enn vil eg nefna fjórða stjórnmálaafrek Hannesar Haf- steins. Það er bygging Safna- hússins. Viðleitni einstakra manna til þess*að koma upp söfnum í þágu þjóðarinnar, hafði yfirleitt mætt tómlæti og smá- sálarskap. Verst var þó húsnæð- isleysið. Margt af munum þeim og bókum, sem fengist hafði á söfnin, var skemdum undirorpið vegna húsnæðisleysis. Hafstein skildi þýðingu þessarar við- leitni. Hún varð að fá skilyrði til að vaxa og varðveitast, og það varð best gert með vandaðri byggingu fyrir söfnin, og þá fyrst og fremst Landsbókasafnið. Slík bygging var í augum al- menning og þjóðarinnar undir- strikun um þýðingu safnanna. Hún vakti skilninginn um, að söfnin væru ómetanlegt dýr- mæti, sem þjóðin yrði að hlúa að eins og hún gæti best. Andstæðingar Hannesar Haf- steins sökuðu hann um að skríða fyrir Dönum í sjálfstæðismálum íslendinga. Slíkt var Hafstein fjarri skapi; hann vildi gera veg íslands sem stærstan. Mun hann hafa litið svo á, að nauðsynleg- ast af öllu væri að vekja þjóð- ina, treysta trúna á mátt henn- ar og gæði landsins, hleypa sterk um straum nýrra framfara yfir hana, svo allir gengju samhuga til viðreisnarstarfsins. Þetta tókst líka svo, að tímabilið frá 1904—1909 er eitthvert allra mesta framfaraskeið þjóðarinn- ar, miðað við þær aðstæður, sem fyrir hendi voru. Á þessum ár- um stofnaðist vélbátaútvegur- inn og togaraflotinn. Með þeirri breytingu tóku Islendingar að sækja á hafið, í stað þess að áð- ur voru mest sótt innmiðin. Enn er sóknin til hafsins ekki full- komnuð. Verður það einmitt hlutverkið, þegar núverandi i styrjöld lýkur, að fullkomna sóknina til hafsins og stækka draumana um djarfari fram- kvæmdir, einkum hvað siglinga- flotann snertir. Er það engin goðgá, þótt íslendingar létu sig dreyma um að verða heimssigl- ingaþjóð, og gerðu þann draum að veruleika. Á fyrgreindu tímabili varð verslunin líka að mestu leyti inn lend. Þýðingu þeirrar breytingár er ekki hægt að útlista nema í löngu máli. Hún verður því ljós- ari, sem lengra líður. I stað út- lendra selstöðuverzlana, sem drotnuðu yfir viðskiptunum á þeim stöðum, sem arðvænlegast- ir þóttu, eru komnir duglegir, fjársterkir, þjóðlegir kaupmenn eða kaupfélög. Ágóði viðskift- anna er í umferð í landinu sjálfu, í stað þess að lenda í höndum útlendu eigendanna. I stuttu máli má segja, að breyt- ingin við að verslunin varð inn- lend sé svipuð og þegar ein- staklingur, sem áður var á hús- gangi, kemst til sjálfbjargar. Sambandslagadeilurnar. er hér óþarft að rekja. Eg var einn þeirra, sem þótti Uppkastið ganga of skamt. Þó verður því ekki ipeð sanngirni neitað, að Uppkastið fól í sér mikilsverð- ar viðurkennmgar frá Dana hálfu. Dimman skugga bar á heimil- isánægju Hannesar Hafsteins meðan ^iann var hér á ísafirði. Mistu þau hjón son sinn, Sig- urð, 11 ára gamlan. Var hann heitinn eftir Sigurði lektor Mel- sted, fósturföður frú Ragnheið- ar. Sveinn þessi var mannvæn- legur. Harmur foreldranna var svo sár og átakanlegur, að þá þegar mátti óra fyrir því, að hinn sterki og skörulegi maður myndi illa þola stormana og hret viðrin. Lund hans var viðkvæm sem barns. Þó varð Hannes Hafstein að reyna þetta hlutskifti í stærri mæli en flestir aðrir. I stjórn- málabaráttunni voru mörg hug- sjóna- og umbótamál hans mjs- skilin og rangsnúin — og jafn- vel flokksmenn hans. og nánir samherjar reyndu að bregða fyr- ir hann fæti eða reka rýting í bak hans, þegar verst gegndi. Hafstein var ekki baráttumaður á slíkum vettvangi. Krókaleiðir og refjar voru honum fjarri skapi. Hann trúði á hið góða í mönnunum og mátt hugsjón- anna til þess að vinna að heill og hamingju þjóðarinnar. Hannes Hafstein var sólar- barn og vormaður þjóðar sinn- ar. Honum var það engin upp- gerð, er hann mælir svo í ein- um vorvísum sínum: “Þótt að vor sé kalt víst það vekur alt, sem veit til sigurs í hjarta manns”. Þetta var hans trúarjátning. Vorið, hvað kalt sem blés, vakti alt í hjarta mansins, sem veit til meiri göfgi og fullkomn- unar. Þetta var stefnuskráin, sem hann bar fram fyrir þjóð- ina og fylgdi eftir með dugnaði og eldmóði. Mörgu kom hann til frámkvæmda, en annað varð ó- rættur draumur, fyrirheit, sem á eftir að rætast. Þrátt fyrir embættisannir og stjórnmálaumsvif var skáldgyðj- an jafn eftirlát Hannesi Haf- stein meðan hann var á ísafirði og áður og síðar. Hér orti hann margt sinna bestu ljóða. Má þar í fremstu röð nefna aldamóta- ljóðin, sem voru stefnuskrá hans um framfarir þjóðarinnar og trúarjátning, fullvissa um, að hinar spámannlegu sýnir og draumar myndu rætast, t. d. er hann kveður: Sé eg í anda knörr og vagna knúða, krafti sem vanst úr fossa þinna skrúða; stritandi vélar, starfsmenn glaða og prúða, stjórnfrjálsa þjóð með verslun eigin búða. Eða þessi fagra og göfuga trúarjátning: Sú kemur tíð, að sárin foldar gróa, sveitirnar fyllast, akrar hylja móa; brauð veitir sonum móðurmold- in frjóa, menningin vex í lundi nýrra skóga. Sumir munu segja, að þessi draumur sé enn órafjarri, sveit- irnar séu stöðugt að tæmast, en ekki að fyllast. Hið stóra bind- ur sig ekki við líðandi augna- blik, heldur framtíð, og framtíð- in mun gera þennan draum skáldsins að veruleika. Hannes Hafstein átti því láni að fagna sem ráðherra, að leggja hyrn- ingarsteininn að stærsta verk- inu til þess að láta “sárin fold- ar gróa”, þegar lögin um sand- græðslu ríkisins voru sett. Er í þessu sambandi vert að minnast frásajgnar Gunnlaugs Krist- mundssonar sandgræðslustjóra um samtal sitt við Hannes Haf- stein, er Gunnlaugur hafði feng- ið styrk til sandgræðslunáms er- lendis. Ráðherran stefnir hinum unga manni á sinn fund og tal- ar við hann um verkefnið í góðu næði, og brýnir fyrir honum, hvað verkefnið sé mikilvægt. Hér verði að leggja fram alla krafta og einbeittan hug til þess að sigur náist. Og þetta viðtal varð Gunnlaugi eins og lýsandi viti og vermandi máttur. Hús- bóndinn hafði trú á verkefninu og sigri þess og hafði falið hon- um framkvæmdirnar. Hann stóð með honum í baráttunni. Og má ekki líka minnast á WOMEN-Serve with the C.W.A.C. You are wanted — Age limits 18 to 45 Full information can be obtained from your recruiting representative Canadian Women’s Army Corps Needs You Get Into the Active Army Canada's Army Is On The March / Get in Line — Every Fit Man Needed Age limits 18 to 45 War Veterans up to 55 needed for VETERAN’S GUARD (Active) Local Recruiting Representative

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.