Lögberg - 27.05.1943, Síða 8

Lögberg - 27.05.1943, Síða 8
8 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 27. MAÍ 1943. Úr borg og bygð MATREIÐSLUBÓK Kvenfélags Fyrsta lúterska safnaðar í Winnipeg. Pantanir sendist til: Mrs. E. W. Perry, 723 Warsaw Ave.; Mrs. E. S. Fefdsted, 525 Dominion $treet. Verð $1.00. Burðargjald 5c. ♦ -f ♦ "At Home". Eldri söngflokkur Fyrsta lút- erska safnaðar býður ungum og gömlum til skemtunar með sér fimtudagskvöldið 27. maí, í neðri sal kirkjunnar við Victor St. Mest af skemtiskránni er tek- ið úr lausu lofti; gamlar og nýjar endurminningar frá Is- landi. Komið og hlægið með kórn- um! Frjáls samskot. Kaffi og veitingar. Nefndin. ♦ ♦ The Junior Ladies Aid of the First Lutheran Church, will hold a Garden Party on Tues- day, June lst from 3 to 6 p. m. in the church grounds. In connection with this thgr will be a sale of bedding plants and potting plants, as weli as a sale of handicraft. Refreshments will be served and all are cordially invited to attend. * * « The Junion Ladies Aid of the First Lutheran Church will hold a supper meeting in the Church parlor at 7,30 p. m. on Tuesday, June lst. As this is the final meeting of the season a perfect attend- ance is hoped for. ♦ ♦ ♦ Samskol í útvarpssjóð Fyrstu lútersku kirkju. Meðtekíð 20. maí $5.00 frá Mr. og Mrs. J. B. Johnson, Birkinesi. Kærar þakkir. V. J. E. ♦ ♦ ♦ Hin nýja bók, Dr. R Becks "Icelandie Poems and Stories", er nú til sölu í Björnssons Book Store, 702 Sargent Ave. og kost- ar $5.50 í Canada. * * * Hjartans þakklæti viljum við undirrituð hér með votta hin- um mörgu góðu vinum okkar, sem glöddu okkur með sam- sæti og fögrum gjöfum í tilefni af giftingu okkar s. 1. mánuð. Sérstaklega viljum við þakka Dr. og Mrs. S. E. Björnson fyrir ágæta viðkynningu og allt gott okkur auðsýnt. Kjartan og Anna Marie Björn- son, Árborg Man. ♦ ♦ ♦ Bandalag Lúterskra kvenna þakkar fyrir þessar gjafir send- ar í námskeiðssjóðinn: Kvenf. Framsókn, Gimli, $20.00. Kvenf. Freyja, Geysir, $2.00. Kærar þakkir. H. D. Mrs. Magnús Johnson, Lorent Lake, Ont., er nýkomin til borg arinnar ásamt tveim börnum sínum til mánaðardvalar; hún er dóttir þeirra Mr. og Mrs. William Johnson, Ste. 11 Acadia Apt. hér í borg. ♦ ♦ ♦ Föstudaginn 7. maí voru þau Jóhann E. Péturson og Christine G. Thorvaldson gefin saman í hjónaband af séra H. Sigmar á heimili hans að Mountain N. D. ♦ ♦ ♦ Dr. Ingimundson verður í Riverton þann 1. júní. T ♦ V Friðrik Vídalín og Helga Rannveig Pálson voru gefin sam an í hjónaband þ. 8. maí á heimili Mr. og Mrs. Kbenes Pálson, Riverton, foreldra brúð- arinnar. Séra Bjarni A. Bjarna- son framkvæmdi hjónavígsluna í viðurvist margra brúðkaups- gesta. Að athöfninni afstaðinni voru fram bornar rausnarlegar veitingar, og margar fagrar og dýrmætar gjafir afhentar hjón- unum nýju og vinsælu. Brúð- guminn, sem er sonur Mr. og Mrs. Páll Vídalín í Árskógi við Riverton, starfar sem smjörgerð- armaður hjá Riverton Co- operative Creamery. ♦ ♦ ♦ Dr. Tweed verður í Árborg á fimtudaginn þann 3. jún. ♦ ♦ ♦ Dugleg og reglusöm vinnu- kona óskast í vist nú þegar; þrír fullorðnir í fjölskyldu. Upp- lýsingar veitir Mrs. T. Deacon, 1004 Yale Ave., sími 46 166. * * « Aðfaranótt síðastliðins laugar dags lézt á Almenna sjúkrahús- inu hér í borginni, frú Laufey Ross frá Moose Jaw, Sask., 49 ára að aldri; auk eiginmanns síns og tveggja sona, lætur hún eftir sig þrjú systkini, sem öll eiga hér heima, John Davidson, Mrs. H. Thorolfson og Mrs. H. Vopni. Útför frú Laufeyjar fór fram frá Fyrstu lútersku kirkju á þriðjudaginn. Séra Valdimar J. Eylands, jarðsöng. ♦ ♦ ♦ Mr. og Mrs. S. V. Sigurðson, Mr. og Mrs. Sig. Sigvaldason frá Riverton, og Mrs. Bjarni Marteinsson frá Hnausum, voru stödd í borginni í vikunni sem leið. - ♦ ♦ ♦ Vegna bilunar á setjaravél, seinkaði útkomu Lögbergs um dag í þessari viku. ♦ ♦ ♦ Mr. Paul Lincoln Sveinsson, lyffræðinemi, hefir nýlega inn- ritast í sjóherinn, og lagði af stað austur til Quebec á sunnu- daginn til fjögra mánaða undir- búnings náms undir þá grein herþjónustunnar, sem hann kaus sér. Lincoln er sonur Mrs. P. Sveinson Ste. 11 Acadia Apts., hinn gjörfulegasti efnismaður. Spring Tea. Jón Sigurðson félagið heldur “Silver Tea and sale of home cooking” í samkomusal Fyrstu Lútersku kirkju, laugardaginn 29. maí, kl. 2,30 til 5 og 8 til 10 e. h. Einnig verða til sölu plöntur, svuntur og aðrir munir (white elephant sale). Heppi- legt væri fyrir þá sem vilja kaupa rúllupylsu eða lifrar- pylsu að panta fyrirfram, hjá Mrs. J. B. Skaptason, sími 36 975. Starf Jón Sigurðson, fél. í þágu ísl. hermanna hefir ætíð verið stutt með alúð af íslend- ingum hér í borg og víðar. Fólk veit að félagið er fámennt mjög og að þetta mikilvæga starf er ekki þeirra áhuga- og ábyrgðart mál eingöngu heldur og al- mennings í heild sinni. Það er vinsamlega mælst til þess að íslendingar fjölmenni við þetta tækifæri. Jón Sigurðson fél. heldur næsta fund á heimili Mrs. A. w. McKee, 826 Banning St þriðjudaginn, 1. júní, kl. 8 að kvöldi. Gjafir í minningarsjóð Mrs. W. J. Lindal. S. Thorvaldson, M. B. E., Riverton, $25.00. Kvenfélag Herðabreiðarsafnaðar, Langruth, $5.00. Meðtekið af Mrs. J. B. Skapta- son. Frú Margrét Sigmar, kona séra H. Sigmar á Mountain, N. D., er skorin var upp fyrir nokkru, við alvarlegri innvortis meinsemd á Almenna sjúkra- húsinu hér í Joorginni, er nú komin heim, eftir að hafa feng- ið fulla heilsu; er það hinum mörgu vinum Sigmars fjölskvld- unnar hið mesta gleðiefni. ♦ ♦ ♦ Mrs. S. J. Sigmar, er nýlega farin af stað vestur til Van- couver, þar sem hún ráðgerir að dveíja í mánað.artíma hjá frændum og vinum. ♦ ♦ ♦ Frú Björg isfeld, píanókenn- ari, hefir verið kosin í fram- kvæmdanefnd félags hljómlist- arkennara Winnipeg-borgar. For Long-Lasting Smartness Men’s EATON Suits $28 .50 “Make it last”—is the' dictum these days—when buying clothes you want a suit that will not n e e d replacements soon — EATON’S recommends this nange of rich wool worsteds or rugged tweeds — for durability — their tailoring for long-lasting smart- ness. In styleful colors, patterns, models, Three-Piece Suit. If desired, Budget Plan Terms in accordance with Wartime Prices and Trade Regulations, may be arranged. Men’s Clpthing Section, The Hargrave Shops for Men, Main Floor. * T. EATON C° LIMITED NORSK VÍSINDAKONA LÁTIN. Fregnir frá Noregi herma, að nýlátin sé hin þekkta vís- indakona, Hanna Ressvold Holmsen. Lagði hún stund á grasafræði og gat sér mikinn orðstýr í þeirri fræðigrein. Hún var um skeið dósent við háskólann í Osló. Hefir hún ritað mjög mikið um sérgrein sína, og átti þar að auki frum- kvæðið að náttúrufriðunarfé- lagsskapnum í Noregi. Hún hik- aði ekki við að taka á sig per- sónulegar byrðar í þágu áhuga- mála sinna. Frú Ressvold Holm sen var 69 ára að aldri, er hún lést. Hún var einlægur föður- landsvinur, og tók nokkurn þátt í félagsmálum. Hún hafði látið af kenslu við háskólann fyrir nokkrum árum, en við vísindaiðkanir fékkst hún til dauðadags. Gœtið öryggis! Komið loðkápum yðar og klæðisyfirhöfnum í kæli- vörzlu hjá Perth’s Sími 37 261 Cleaners — Launderers Dyers — Furriers Borgið Lögberg! Messuboð Fyrsfa lúterska kirkja, Winnipeg Séra Valdimar J. Eylands, prestur 776 Victor St,—Phone 29 017 Guðsþjónusta á hverjum sunnudegi. Á ensku kl. 11 f. h. Á íslenzku kl. 7. e. h. Sunnudagaskóli kl. 12:15. Allir æfiniega velkomnir. ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ Lúterska kirkjan í Selkirk: Sunnudaginn 30. maí. Sunnudagaskóli kl. 11 árd. íslenzk messa kl. 7. síðd. S. Ólafsson. ♦ ♦ ♦ Áætlaðar messur í Gimli prestakalli: Sunnudaginn 30. maí. Messað í Árneskirkju kl. 2 síðdegis. Ferming ungmenna og altarisganga. Sunnudaginn 6. júní. Betel kl. 9,30 árd. Gimli kirkja, kl. 2. síðd. Ferming ungmenna og altaris- ganga. Allir boðnir velkomnir. S. Ólafsson. ♦ ♦ ♦ Messa í Piney. Séra Halldór E. Johnson, sem nýkominn er hingað frá Blaine, messar í Piney n. k. sunnudag á vanalegum stað og tíma á ensku og íslenzku. Eru menn þar góðfúslega beðnir að minnast þess og fjölmenna. ♦ ♦ ♦ Prestakall Norður Nýja íslands: 30. maí—Hnausa, messa og safnaðarfundur kl. 11 f. h. Riverton, safnaðarfundur kl. 2. e. h. 6. júní—Mikley, feimingar- messa og altarisganga kl. 2. e. h. B. A. Bjarnason. ♦ ♦ ♦ Á hvítasunnu, 13. júní, er hér með auglýst guðsþjónusta á ís- lenzku, í lútersku kirkjunni í Langruth. Guðsþjónustan hefst á þeim tíma sem þar er venju- legur. R. Marteinsson ♦ ♦ ♦ Messa í Upham, N. Dak., sunnudaginn 30. maí kl. 2 Memorial Service. Dedication of a Service Flag. Rev. E. H. Fáfnis. ♦ ♦ ♦ íslenzk guðsþjónusta í Vancouver. með altarisgöngu, verður ef G. 1., haldin í dönsku kirkj- uni á E. 19th Ave. og Burns St., sunnudaginn 6. júní, kl. 7,30 gð kvöldinu. Allir velkomnir. R. Marleinsson. ♦ ♦ ♦ Prestakall séra H. Sigmars. Sunnudaginn 30. maí, messa í Vídalín kl. 11 á íslenzku, og sama tíma guðsþjónusta í Pét- urskirkju, sem H. Sigmar jr. stýrir. Kl. 3. messa í Fjallakirkju prédikað á ensku. Kveldmessa á Mountain kl. 8 e. h., talað til skólans. Altarisganga, á ensku. Allir boðnir og velkomnir. ♦ ♦ ♦ ■ Messuboð. Skúli Sigurgeirsson guðfræði- stúdent, flytur guðsþjónustu á Steep Rock þhnn 30. þ. m., kl. 2. e. h., og við Reykjavík þann 6. júní, kl. 2. e. h. Báðar þessar guðsþjónustur fara fram á ís- lenzku. Ronald Ottenson, sonur þeirra Mr. og Mrs. Guðmundur Otten- son í Los Angeles, hefir nýlega vakið á sér athygli mikla fyrir skotfimi; hitti hann í mark 198 sinnum af 200. Ronald verður 18 ára í næstkon\andi nóvember mánuði, og innritast þá í ame- ríska herinn; hann er yfir sex fet á hæð, og að öllu hinn glæsi- legasti; honum kippir í kyn til afa síns, Mr. Nikulásar Ottenson sem er hin bezta skytta, og hef- ir iðkað þá íþrótt um langt áraskeið. Maí morgun Hátt á himinboga heilög sólin skín; lítur líknar-augum ' ljúflega til mín; hvar í lágu hreysi hvíla bein mín þreytt; * andinn hrjúfur hnýpir og hugsar ekki neitt. Þegar aðrir yrkja ungir listamenn, þá er sál mín þögul og þagnar máske senn. Gamlir tímar gleymast; glampa tímarhót; • roðar fyrir framtíð — fjöldans raunabót. Harma sár þó svelli sorgbitinni þjóð, síðar munu svanir syngja gleðiljóð. Rætast munu vonar — raddir — þó um síð; lífið brautu breytir — býr sér nýja tíð. , Enn þó hátt í sessi sitji auður og völd, munu örlög önnur ætluð, þung og köld, skrifuð skíru letri Skuldar bak við tjöld, þá úr læðing losnar lífsins skuldagjöld. Látum oss í athöfn krýna kristinn sið; æ sé efst á baugi að efla rétt og frið. Lærum lífs að njóta liðs þess, sem er bezt, kaup svo engin þurfum við konung eða prest. Látum frelsis-fánann blakta hátt við hún, himininn svo að bergmáli lífsins sigur-rím. Vörpum fornu fáfnýti í- gleymsku-grafar hyl, svo guð hins góða og sanna megi verða til S. B. Benedicisson. Gefin voru saman í hjóna- band þ. 6. maí s. 1. Duncan Rousseau og Jóhanna Vídalín. Séra Bjarni A. Bjarnason gifti, og fór athöfnin fram á heimili hans í Árborg. Brúðguminn er af fransk-canadizkum ættum. en brúðurin er dóttir hjónanna Páls og Friðriku Vídalín í Ár- skógi við Riverton. Heimili ungu hjónanna verður að Hnausa, Man. MINNIST BETEL í ERFÐASKRAM YÐAR Ruth Herner, Hydro, maireiðslufræðingur. Sérfræðingur í matagerð Þegar farið er nú að skamta kjöt, og aðrar nauðsyn- legar vistatakmarkanir eru í gildi, eykst vandinn við undirbúning máltíða. En til aðstoðar húsmæðrum í Winnipeg við val og tilbúning matar, hefir City Hydro tekið í þjónustu sína Miss Ruth Herner, B. Sc., sem Home Service Director. 1 viðbót við Bachelor of Science gráðuna, er Miss Herner sérfræðingur í matargerð. Æfing hennar við suðu og undirbúning máltíða, er slík, að hún er flestum betur fallin til leiðbeiningar í þeim efnum. Miss Herner hefir nýlega gefið út bækling, sem lýtur að bættri nýting kjötmetis, auk margra ann- ara hollra leiðbeininga. Þér getið fengið ókevpis eintak af þessum bæklingi milli kl. 2—5 e. h., í Model Kitchen í Boyd byggingunni. Er þér þarfnist upplýsinga um matargerð, þá símið Miss Herner, 848-138. CITY HYDRO Boyd Building — Portage og Edmonton

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.