Lögberg - 19.08.1943, Page 7

Lögberg - 19.08.1943, Page 7
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 19. ÁGÚST, 1943 7 Minningarorð um Rannveigu, Kristján og Inga Stefánsson Rannveig Eiríksdóitir Slefánsson 30. marz 1877—18. jan. 1943 Rannveig Eiríksdóttir, kona Kristjáns Stefánssonar í Wm- nipeg andaðist að heimili þeirra 650 Banning St., 18. jan., snögg- lega og án fyrirvara, og var það öllum mikil sorgarfregn. Hún var mesta hæglætis og mann- kosta kona, og átti marga vini, sem syrgja nú lát hennar, á- samt eiginmanni, börnum og barnabörnurm Rannveig var fædd á Hræ- rekslæk í Hróarstungu, 30 marz árið 1877 Foreldrar hennar voru Eiríkur Hallson og Anna Jóns- dóttir kona hans. Systkini hennar voru mörg en flest þeirra dóu á unga aldri, og eru nú að- eins þrjú eftir á lífi. Þau eru Sigríður' kona Páls Guðmunds- sonar á Lundar, og Gísli Hallson og Stefán Hallson, seem búa báðir í grend við Vogar P. O. Annar bróðir, Niels Hallson dó a Lundar fyrir nokkrum árum Einnig dó hér ein systir, Guðrún sem var fyrri kona Halls Halls- sonar, nálægt Lundar. Hún hafði flust hingað fyrst af syst- kinunum. Hin systkinin fluttu hingað til þessa lands með föð- ur sínúm árið 1903. Bræðurnir °g faðir þeirra fóru norður til Álftavatnsbygðar, en Rannveig settist að í Winnipeg, og vann hér fyrir sér. Árið 1907 giftist hún eftirlif- andi manni sínum, Kristjáni Stefánssyni, og bjuggu þau hér Þangað til eftir spítala vist Kristjáns á Ninette hælinu þar Sem hann lá nokkra mánuði í berklaveiki. Ámeðan að hann var fjarverandi sá hún um heim- hið og börnin og leysti það verk vel af hendi. Árið 1915 kom Kristján heim af spítalanum, og fluttu þau þá út á land nálægt ^estfold. Margir vinir tóku þá saman höndum og voru þeim ^ojög hjálpsamir, sem Kristján °g Rannveig voru þeim altaf ein- Kristján Slefánsson 19. sepi. 1874—6. júní 1943 læglega þakklát fyrir. Úti á landi bjuggu þau ellefu ár, og komu þá aftur til bæjarins, og áttu hér heima úr því. Börn þeirra eru sex, fimm synir og ein dóttir. Dóttirm er Anna, sem búið hefir í heima- húsum foreldra sinna. Dreng- irnir éru Ingi, sem á heima í Fort William, giftur Fanney Vic- toriu Magnússon; Stefán í King- ston, Ont., í þjónustu í Canada hernum, ógiftur; Eiríkur, á Oak Point, giftur Láru Eggertson; Guðmundur, í Winnipeg, kvænt- ur Sigurlaugu Clöru Sigurðson. Einnig eru fjögur barnabörn. Eins og þessi börn bera öll með sér, synir hennar og dóttir- in, annaðist Rannveig sál. vei uppeldi harna sinna og rækti vel öll heimilisstörf. Vegna mann- kosta sinna, var hún virt og els- kuð af öllum sem kyntust henni og helzt af öllu af öldruðum konum sem hún var altaf sér- lega góð, og sem sóttu stöðugt heim til hennar til að -njóta góð- semi hennar og umhyggjusemi. Þær snéru sér eil hennar með öll sín vandamál, og er þær snéru heim til sín, fóru þær alt- af léttari í huga og glaðari en þegar þær komu. Ljósið sem hún breiddi umhverfis sig hafði sérlega heilnæm áhrif á þær. Hún var lengi búin að finna til heilsubilunar sem ágerðist smásaman. En samt vann hún sitt verk að svo miklu leyti sem kraftar og heilsa leyfðu. Ást- vinir hennar gerðu alt sem þeir gótu til að gera henni lít'ið létt- ara, og s. 1. haust var bygt nýtt hús, þar sem tilraun var gerð til að hafa alt sem þægilegat fyrir hana, meðal annars að hún þyrfti ekki að ganga stiga. Seint í nóvember-mánuði s. 1. var flutt í það hús og var hún mjög ham- ingjusöm í því. Börnin hennar komu öll heim um jólin og ný- og sízt af öllu við slíkum atvik- um og þessum. Móðirin, Rannveig Eiríksdótt- ir Stefánsson, dó 18. janúar s.l. Faðirinn, Kristján Stefánsson, dó 6. júní, og sonur þeirra, Ingi, dó 13. júní, aðeins 35 ára að aldri. Og nú sofa þau öll hlið við hlið, svefni eilífðarinnar, en vinirnir sem eftir eru sakna þeirra sárum söknuði, og syrgja með djúpri sorg, og helzt eftir- lifandi börn þeirra hjóna, Krist- jáns og Rannveigar, og systkmi Inga, og eiginkona hans og lítil dóttir. Kristján heitinn var sonur Stefáns Kristjánssonar í Garði, á Þistilfirði Stefánssonar. — Ingi Stefánsson 23. marz 1908—13 júní 1943 árið og barna-börnin með, sem henni þótti sérlega vænt um. Og þannig voru síðustu æfistund ir hennar gleðistundir, sem hún verðskuldaði að fullu, þar sem hún hafði breitt ljós, gleði og ánægju út til allra, sem á hennar vegi urðu. 18. janúar, án fyrirvara kvaddi hún þetta líf, uúmlega 65 ára að aldri. Þannig er æfi einnar á- gætis konu, elskuríkrar og glað- rar á enda. Útförin fór fram frá Sam- bandskirkjunni í Winnipeg — Séra Philip Pétursson jarðsöng. Líkmenn voru Friðrik Kristjáns- son, Bergthor E. Johnson, Rafnkell Bergson, Joe Sigurdson Agnar Magnússon og Björn Hall son. Við útförina var lesið kvæði í minningu um hina látnu ort af Þ. Þ. Þorsteinssyni, sam- kvæmt ósk eins vinar hennar sem túlkaði tilfinningar allra vina hennar í fögrum ljóðlínum og lét í ljós söknuð þeirra yfir missi þessarar ágætis heiðurs- konu. P. M. P. Dauðinn kemur æfinlega sem óvæntur gestur er hann ber béð- an ástvini vora, en aldrei meir en nú, þar sem hann hefir ráð- ist þrisvar inn á sama heimilið og tekið fyrst móður, og þar næst, nokkrum mánuðum seinna föður, og þremur dögum eftir jarðarför föðursins, elzta soninn. Þriévar á tæpum sex mánuðum hefir hann breitt vængi sína yfir það heimili, og borið þaðan burt móður, föður og son, sem við máttum ekki við að missa úr vorum fámenna hóp íslendinga. Vér sitjum klökk og hljóð, er vér reynum að gera grein fyrir þess- um mikla missi, og að skilja það mikla leyndarmál á bak við til- veruna, sem enginn fær skilið, L Our Printing Service úaracter and is personal in cnar^ bet. Stl”tssnp« wWCÍ1 S ^ class V. ^roducing aaS w0” f Give us tne opportumty of servinS you- •Jhe eol«m'3Ía f(C68 Kona Kristjáns í Garði hét Hólmfríður. Móðir Kristjáns sál. var Guðrún Jónatansdóttir Þorkelssonar. Jónatan, faðir hennar bjó síðast á Flautafelli á Þistilfirði. Kona Jónatans hét Guðleif Jónsdóttir. Kristján misti föður sinn þeg ar hann var aðeins sex ára að aldri, og nú er móðir hans einn ig dáin fyrir mörgum árum. Af systkinum hans eru aðeins tvö á lífi, Hólmfríður, ekkja Þorsteins Gíslasonar, sem átti heima í Tantallon, Sask. Hún hefir dvalið á Lundar nokkuð undanfarið; og bróðir, Guðmund ur, sem á heima á Vestfold þar sem hann hefir búið í meira en 40 ár. Eina systur misti hann fyrir mörgum árum, Guðleifu, sem var gift Benjamíni Einars- syni, og tvö önnur systkini dóu í æsku á íslandi. Kristján kom til þessa lands 12 ára að aldri, og fór til móður sinnar sem setst hafði að á Gimli, er hún kom hingað árið áður. Þremur árum seinna fór hann að vinna fyrir sér, og varð að sjá um sig úr því. Hann vann hjá ýmsum mönnum hér í Winnipeg og lærði smíðavinnu, sem hann levsti ætíð vel af hendi. Hann sýndi sig vera góð- ur og dyggur verkamaður, ráð- vandur og ábyggilegur, og hann vann sér traust og tiltrú allra sem kyntust honum. Árið 1907, 11. maí kvæntist hann Rannveigu Eiríksdóttur, sem, eins og áður hefir verið getið, var ættuð frá Hræreks- læk í Hróarstungu í Norður- Múlasýslu. Börn þeirra voru alls sex, sem enn eru öll á lífi, nema elzti sonur þeirra, Ingi, sem hér verður minst með nokkrum orðum. Þau sem lifa íoreldra sína og elzta bróður, eru: Anna, sem hefir búið í heima- húsum. Stefán, sem er í Canadahern- um og hefir verið staddur í Halifax. i Eiríkur, á Oak Point. Kristján, sem er í hernum, og staddur hefir verið í Barryfield, Ontario. Guðmundur, í Winnipeg. Auk þessara barna eru fjögur barnabörn. Árið 1915 flutti Kristján með fjölskyldu sína út á land vegna vanheilsu og settist að í grend við Vestfold. Hann bjó þar ell- efu ár, en eitthvað af þeim tíma lá hann á spítala. Hann var aldrei fullhraustur maður. En hann kvartaði aldrei, og lét lítið á því bera. Árið 1926 flutti hann inn til Winnipeg aftur og bjó hér úr þvá. Mikilsmetinn sæmdar- maður. Hans er saknað af öllum sem hann þektu. Á yngri árum hans hafði hann mikinn áhuga fyrir ýmsum mál- um sem íslendingar skiftu sér af, og meðal annars var eitt þeirra Goodtemplara reglan. Hann gerðist æfifélagi þess fél- agsskapar. Einnig tilheyrði hann Fyrsta íslenzka únítara söfnuðinum og vann lengi í stjómarnefnd hans. — Hann var trúhneigður maður, en kreddu- laus og óháður í trúmálum. Hann átti því þar andlega heima —Hann komst snemma að þeirri niðurstöðu að æðsta úrskurðar- valdið í þeim málum, eins og í öllum öðrum málum, yrði að vera samvizka og skynsemi ívers eins manns, og að rétt kristileg kenning ætti að miðast við anda en ekki bókstaf. Einnið á yngri árum hans, á- samt öðrum, viðurkendi hann gildi skáldskapar Stephans G. Saephanssonar, og gerðist einn kostnaðarmanna fyrstu útgáfu kvæðasafns hans, “Andvökur”. Alla æfina, eins og þetta bendir til, unni hann mjög bókmentum og öllu sem bókmentalegt gildi hafði, þó að honum veittist aldrei tækifæri að ganga menta- veginn. Hann andaðist að heimili sínu 6. júní, 69 ára að aldri og hlaut hvíld frá öllu erfiði þessa lífs. Vinir hans allir sakna ágæts vinar, og kveðja hann með þek- læti fyrir hina liðnu æfi. Útförin fór iram frá Sambands kirkjunni í Winnipeg, 11. júní, 1943. Séra Philip M. Pétursson jarðsöng. Ingi Stefánsson sonur Kristjáns heitins og Rannveigar Eiríks- dóttur konu hans, var .aðeins 35 ára að aldri en hann kvaddi þetta líf. Hann var fæddur í Winnipeg 23. marz, 1908. Hann flutti með foreldrum sínum út á land til Vestfold þegar þau fluttu þangað- 1915, og kom hingað aftur með þeim 1926, og átti heima hér í Winnipeg úr því þar til hann flutti austur til Ft. William fyrir rúmum þremur árum, í maí mánuði, 1940 Skólaganga hans var aðallega öll í Winnipeg. Hann gekk á (Greenway School og seeinna á Jóns Bjarnasonar skólann, þar sem hann útskrifaðist af mið skóla. Þar að auki gekk hann á skóla í Vestfold, og um tvö ár á Lundar, fyrstu tvö miðskóla ár hans. Seinna lærði hann bankastörf og bókhald eftir til- hlutun bankans sem hann var þá byrjaður að vinna hjá.. Þær greinar voru gefnar af Queen’s University í “extension course” formi. í fyrstu prófunum sem hann skrifaði í þessum greinum útskrifaðist hann með heiðri og var næst hæstur allra stúdenta í Canada sem þá voru að taka sömu námsgreinar, og í seinni prófunum útskrifaðist hann ein- nig með heiðri, og var þá fimti í röð, sem þykir með afbrigðum gott. Sem dæmi þess hve mikil frammistaða þeirra er rr.etin, sem þannig skara fram új má geta þess að bankinn borgar til baka öll kenslugjöld svo að nám- ið verði þeim, sem það stunda, kostnaðarlaust. einnig þeirra er hann vann hjá, og þannig, þó að hann væri þegar búinn að vinna sér tiltrú manna, hefði hann risið enn hærra og afkastað miklu og lofsverðu verki, í viðbót við það sem þegar var komið, honum sjálfum og þjóð hans til heið- urs og sóma. Vinir hans kveðja hann en geyma minningu hans. Þeir þakka guði fyrir margar fagrar endurminningar og fyrir að hafa fengið að njóta hans, vinsemdar hans og hlýleiks. Þeir sam- hryggjast ekkju hans og lítilli dóttur og rétta út vinhendur til þeirra, til að hugga og að styðja á þeim erfiðu stundum, sem hin- ir komandi dagar munu hafa í för með sér. • Kveðjuathöfnin fór fram 18. júní s. 1. frá Sambandskirkjunni í Winnipeg, að miklum fjölda viðstöddum og jarðsett var í Brookside grafreitnum við hlið föður hans og móður. Útfarar- stjóri A. S. Bardal sá um útför- ina. Þannig var Ingi heitinn í háu áliti þeirra, sem hann vann hjá, og einnig samverkamanna sinna. Og hann verðskuldaði að fullu alla viðurkenning sem hann fékk, eins og allir vita sem þektu hann. Fyrir þremur árum, 4. júlí, 1940 óvæntist hann Fanneyju Victoríu Magnússon, dóttur þeirra hjóna Jóhanns Péturs Magnússonar og Ólafar össurs dóttur, sem búa hér í Winnipeg. Þau eignuðust eina dóttur, Thoru Önnu. Á meðan að Ingi dvaldi í Ft. William, gerðist hann meðlimur frímúrara reglunnar. Og hér í Winnipeg áður en hann flutti héðan tók hann drjúgan þátt í ýmsum félagsmálum. Hann var til dæmis, í stjórnarnefnd Sam- bandssafnaðar og var gjaldkeri safnaðarins, og hann þjónaði þeirri stöðu með samvizkusemi og trúmensku. Hann tilheyrði félagsskapnum sem nefndur er Icelandic Canadian Club, og var forseti þess félagsskapar. Hann var meðlimur einnig í Þjóð- ræknisdeildinni Frón. Oss getur ekki annað en fundist að ef hann hefði fengið að lifa oð halda góðri heilsu, að hann hefði risið hátt í áliti, ekki aðeins samlanda sinna, en Theódóra Thoroddsen áttræð (Framh. frá bls. 3) Eg nefni sem dæmi grein, sem birtist í Skírni fyrir löngu síðan um skáldskap kvenna (einkum vestfirzkra) og ritgerð um íslenzka jólasiði í norsku jólahefti. í fyrnefndu grein- inni birtust nokkrar af vísum, sem allir vissu að voru eftir frú Theódóru, þó hún léti þess ekki sjálf getið. En vísur hennar eru fyrir löngu þjóðkunnar, og eitt af þeim lífsins hnossum, sem allir grípa feginshendi hvar sem til næst og biðja um meira. Freistandi væri að birta nokkr- ar hér, en til þess er ekki rúm né tími. En var Erni Arnarsyni nokkurn tíma betur þakkað en með vísunni þessari: Ekki drakk eg áfengt vín, eklki skein mér sólin, en Stjáni blái barst til mín, bjargaði mér um jólin. Margur mundi fagna því, ef að einhver vinur eða ættingi frú Thoroddsen vildi safna vís- um hennar og gefa út. Eg hef ekki trú á að hún geri það nokkurn tíma sjálf; hún hefir svo margt annað að gera. Sú bók yrði ekki síður vinsæl en Þulurnar hennar, sem komið hafa út tvisvar með teikning- um eftir Guðmund Thorsteins- son, systurson hennar, og Sig- urð, son hennar. Sögur hennar, Eins og gengur, komu út um 1920. Theódóra Thoroddsen verður minnisstæð eíkki aðeins fyrir óvenjulega hæfileika sína og gáfur, réttlætisþrá, dirfsku og hetjuhug, listfengi og orðsnilld, heldur og fyrir það, sem erfið- ara er að lýsa, hvernig hún hefir notið lífsins og lífið hefir notið hennar. Hún er nú hnigin til efri ára, gráhærð og heyrnin að daprast. En lífið er í för með henni, ungt, ferskt og gjafmilt, eins og það hefir alltaf verið. Svafa Jónsdóttir Alþbl JAFNT AF HVORU Bóndi einn fyrir austan seldi mikið af kæfu til Reykjavíkur. “Þú hlýtur að græða afar- mikið á þessu,” sagði nábúi hans við hann, “því þótt þú auglýsir að það sé kæfa úr dilkakjöti, þá hefir þú hana samt aðallega úr hrossakjöti.” “Nei, nú ýkir þú,” sagði kæfu- salinn. “Eg hefi hana ekki aðal- lega úr hrossakjöti, heldur hefi eg alveg jafnt af hvoru; eg læt eitt hagalamb móti einu hrossi.”

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.