Lögberg - 13.07.1944, Blaðsíða 1

Lögberg - 13.07.1944, Blaðsíða 1
57. ÁRGANGUR LÖGBERG, FIMTUDAGINN 13. JÚLÍ, 1944 v NÚMER 27 Lýkur háskólaprófi H. G. Kristjánsson, B. Sc. 1 maí-mánuði síðastliðnum, lauk þessi bráðefnilegi maður Bachelor of Science prófi með fyrstu ágætiseinkunn við Queens háskólann; hann er sonur þeirra merkishjónanna, Mr. og Mrs. Ottó Kristjánsson, sem búsett eru í Geraldton, Ont. FRA AUSTURVÍGSTÖÐVUNUM Samkvæmt símfregnum frá Moskva á þriðjudagsmorguninn, höfðu rússneskar hersveitir um- kringt borgina Vilno, og geyst- ust áfram því nær viðnámslaust yfir slétturnar í Lithuaníu; og nú bendir flest til þess, að Rúss- um muni lánast að króa af fjöl- mennar sveitir þýzkra hermanna sem bækistöð hafa í Latvíu og Estoníu. Tjást Rússar hafa orðið þess varir fyrir nokkru, að þýzkir yfirforingjar hefðu verið við það önnum kafnir, að reyna að koma undan liði sínu frá áminstum stöðvum, með því að þeim hafi ekki verið farið að lít- ast á blikuna, ef herjunum kynni að slá saman. Að því er nýjustu fregnir herma, hafa hinar rússnesku hersveitir rutt sér um 20 mílna braut vestur á bóginn á tæpum sólarhring. DE GAULE A LEIÐ TIL FRAKKLANDS Foringi hinna stríðandi Frakka de Gaulle, hefir verið í Wash- ington undanfarna daga, og set- ið þar á ráðstefnu við Roosevelt forseta; lét de Gaulle þess getið, að afstöðnum samtalsfundinum, að þeir Roosevelt forseti hefðu orðið á eitt sáttir um flest þau meginmál, er til umræðu komu, og þar á meðal það, að de Daulle skyldi flytja herstjórn sína á næstunni til einhverra þeirra héraða á Frakklandi, sem leyst hefðu verið undan oki hinna þýzku nazista. BARÁTTAN Á KYRRAHAFINU Svo að segja á hverjum einasta vettvangi baráttunnar á Kyrra- ’hafinu, hafa Japánir farið eina hrakförina annari meiri í viður- eign þeirra við Bandaríkjaher- inn; og nú allra síðast, hafa Japanir ekki átt annars úrkosta, en nema á brott allan sinn liðs- afla, er á annað borð varð undan- komu auðið frá Ukhrul vígstöðv- unum, en hafa nú bráðabirgða- bækistöð í Ongshim, sem er að- eins 16 mílur frá landamærum Birma. 17. júní í Los Angeles, California í tilefni hins langþráða og söguríka dags þann 17. júní, 1944, efndu ungir menn of konur frá íslandi sem hér dvelja, til kvöld- verðar og veizlu í einum af sam- komusölum Park Manor að 2200 W. 7th St., kl. 6,30 e. h. Er staður þessi beint á móti General Duglas MacAarthur lystigarðinum (áð- ur Westlake Park), en í þessum fagra garði stendur líkneski, sem listakonan Nína Sæmundsson hefur búið til en sem á að vera af hinum gríska guði Promethus þar sem hann er að flytja eld til jarðarinnar, en myndin er af fallegum ungum manni (nökt- um), með brennandi blys í hægri hendi en hnöttinn í vinstri; stendur myndin á fögrum palli á grænuih bala inni á milli him- in hárra pálma trjáa, þar sem þetta alt endurspeglast í blátærri tjörninni ásamt hinum marglitu ljósum, en álftir og andir með unga sína, eru þar í friði og ró í vel völdum heimi sínum. Svo að hér í hinu vestasta vestri, (orð Sigurðar skólameist- ara á Akureyri) voru börn eld- gömlu Isafoldar, ásamt vinum sínum, að fagna fengnu frelsi og uppfyltum vonum og óskum, sem hinar, nú ósýnilegu kynslóðir eft- ir kynslóðir höfðu dreymt um í vöku og svefni í aldaraðir — en í dag voru engar bjargir bann- aðar, engin sund lokuð, en allir vegir færir á sjó, landi og í lofti. Veizlustjóri var hinn ungi glæsilegi maður Júlíus Maggi Magnús, en á meðan allir gæddu sér á steiktum gæsum og öílu sem þeim tilheyrir, fór fram ál- íslenzk dagskrá, — eftir að Einar Markússon, spilaði þjóðsöngva íslands og Bandaríkjanna flutti ungur efnismaður, Gunnar Berg- mann, minni íslands, snjalla ræðu, en ljóshærð og litfríð Oddný Stefánsson, las kafla úr sögu en Halldór Þorsteinsson og Jón Friðriksson lásu ljóð, gömul og ný, en Steinþór Loftsson las magnaða draugasögu (Fróðár- undrin), Jóhannes Newton mælti fyrir minni kvenna á þann hátt að bæði menn og konur máttu vel við una. Frumsamið kvæði flutti Erlendur Johnson, en listamennirnir Guðmundur Jónsson og Einar Markússon skemtu með söng og spili við mikla aðdáun. Stanley T. Ólafs- son las uþp skeyti frá Thor Thors og annað frá Sigurgeir biskup í sambandi við komu hans til Los Angeles, en síðar um kvöldið var í einu hljóði sam- þykkt að senda skeyti til Islands og var það á þessa leið: '‘Forseti íslands, Reykjavík. íslendingar í Los Angeles halda í dag lýðveldishátíð og sameinast í einlægri hamingju- ósk til heimaþjóðarinnar í til- efni af stofnun lýðveldis á ís- landi. íslendingar í Los Angeles.” Töluvert á annað hundrað manns var þarna samankomið þar á meðal fólk, sem nýlega hef- ur komið hingað eins og t. d. Egill Halldórsson og kona hans Elín Þorláksson (Jóns Þorláks- sonar), Helga Tryggva, Dóra Kristins, Jón Friðriksson, Ás- mundur Daníelsson og Dagur Óskarsson, ennfremur Kristján Jónsson, kaupmaður og Niels Dungal prófessor, báðir gestir frá Reykjavík, en frá San Diego komu Mrs. Björgvin Guðmunds- son, Mrs. Humphrey Guðmunds- son, og Mrs. J. G. Golden, þar var líka Miss Lauga Goodman Canadamenn og Bretar taka borgina Caen í Normandy Síðastliðinn sunnudagsmorgun var það formlega tilkynnt, að Canadamenn í samvinnu við brezkar liðssveitir, hefðu náð fullu haldi á borginni Caen í Normandy, eftir langa og harð- sótta umsát; mun sigur þessi lengi sögufrægur talinn verða, og örlagaríkur fyrir sókn samein- uðu herjanna á Frakklandi; með hernámi Caen hafa sveitir hinna sameinuðu þjóða rutt úr vegi einum allra örðugasta þröskuld- inum á leið til Parísar; hvað sigur þessi hefir orðið dýrkeypt- ur er enn eigi vitað, því skýrsl- ur um það eru ókomnar fram. Þrátt fyrri harða stórskotahríð af hálfu Þjóðverja og allmikinn afla skriðdreka, hafa Canada- menn og Bretar rutt sér braut á því nær fjögra mílna vega- lengd suðvestur af Caen, og her- numið bæinn Eterville. Allmikla athygli hefir það vak- ið, að á meðal þýzkra hermanna, sem teknir voru til fanga við Caen, var fjöldi hálfþjálfaðra ungmenna. TEKNIR AÐ NÁLGAST BERLIN Að því er canadiska blaðasam bandinu segist frá, erU vega- lengdir sameinuðu herjanna til Berlín, teknar að styttast til verulegra muna; nú nafa Rússar tekið Kowell, sem liggur innan hinna gömlu landamæra Pól- lands, en þaðan erú aðeins 470 mílur til Berlínar. Borgin Caen í Normandy, sem Canadamenn nú hafa nýverið náð á vald sitt, er 635 mílur frá Berlín, og nú eru sameinuðu herirnir komnir í námunda við bæinn Ancona við Adríahafsströndina á Italíu, en þaðan eru 610 mílur til höfuð- borgar Þýzkalands. frá Winnipeg, Mrs. Matthildur Weldie (áður Bjarnason), Mrs. Talcott áður Della Peterson frá Eydölum í Breiðdal, Miss Hope Guðmundsson, Mrs. Oddný Tho Guðmundsson, Mrs. Oddný Thordarson, Mrs. Hekla Hart, Fritz Rosenberg, og Erasmus Elíasson, og margir fleiri. Fimm kvenna hljómsveit spilaði fyrir dansinum. Eini skugginn yfir veizlu þess- ari var sá að þarna átti að koma fram fyrir hönd Vestur-íslend- inga háskólakennari, Steinn W. Steinsson, en rétt áður en þau hjónin hugsuðu sér að fara á samkomuna veiktist Mrs. Steins- son snögglega, var hún flutt á sjúkrahús samstundis en andað- ist þar eftir þrjá klukkutíma. Mrs. Minnie Steinsson (fædd Hansson) var fædd í Oregon ríki, var faðir hennar danskur skip- stjóri, en móðir hennar sænsk, en með íslendingum átti hún lengi samleið og var hún ætíð sem ein af þeim bæði í Canada og Californiu. Mrs. Steinsson var elskuleg kona í sjón og reynd og í blóma lífsins, auk eiginmanns síns lætur hún eftir sig tvö börn, Bill Jr., og Geraldina. Er þungur harmur kveðinn að Steini þar sem hann á stuttum tíma hefir mist tengdamóður, eiginkonu og föður sinn Torfa Steinsson. Skúli G. Bjarnason, Los Angeles, Californía. Móður-andvarp Ó, kom þú sæti sonur minn, eg sit nú hrygg og ein, því enga lífsins fró eg finn — mín fjölga lífsins mein. * Eg bar þig æ á brjósti mér, og bjó þér skjól og hlíf. Mín hugsun var að hlúa að þér, þitt helga að vernda líf. Og er þú grézt eg grét með þér, og gaf þér hjarta mitt. Þitt gleðibros var gleði mér — ó, glaða augað þitt! En nú oss skilja helköld höf; þú hrekst um vígastig, og átt í vændum grimma gröf — ó, guð! það hrellir mig. Hvort fæ eg aftur ungan son, sem ól eg brjóst mitt við. Eg el í sálu veika von, þó vona, græt og bið. En sértu dáinn — sof í ró, þig signi drottins mund. Að sjá þig fara —! sál mín dó — ó, sú var kvala stund. Ef sefur þú í söltum mar, eg sé aldrei meir, en vona að sjá þig síðar hvar að sál vor aldrei deyr. Ó, kom! ó, kom! minn kæri son, þig kalla móður tár. Ó, góði drottinn! — gef mér von og græð mín hjartasár! S. B. Benedictsson. Dr. Beck í veizlu í Reykjavík 1 8. júní Auk Dr. Becks sézt á mynd þessari eftirgreint fólk: Frú Dóra Þórhallsdóttir, M. Krasiluikov, sendiherra Rússa, frú Ingibjörg Þorláksson, frú Anna Klemenzdóttir, frú Anna Kl. Jónsson, frú Helga Claessen og Albert Claessen; enn- fremur lögreglustjóri A. K. Hansen ásamt frú. Frá skrifstofu rœðismanns íslands í Winnipeg Reykjavík, 6. júlí 1944. Sunnudaginn 4. júlí var Dr. Beck heiðursgestur Borgfirðinga og aðalræðumaður á lýðveldishátíð og íþróttamóti þeirra að Ferju- koti er 3000 manns sóttu. Flutti hann kveðjur frá Vestur-íslending- um og sagði frá þjóðræknisstarfi þeirra. Var honum og máli hans ágætlega fagnað; hann og Vestur-íslenaingar voru hylltir í ræðu- iok með ferföldu húrra-hrópi. Um helgina heimsótti hann einnig Reykholt og fræðimanninn Kristleif Þorsteinsson á Stórakroppi, sem Vestur-íslendingum er að góðu kunnur; hann var í för með líaraldi Böðvarssyni kaupmanni á Akranesi, náfrænda Dr. Brand- sons heitins. Beck kom úr þessari för á mánudag. Á þriðjudag var hann gestur sendiherra Bandaríkjanna á fjórða júlí hátíð og síðar um daginn hjá yfirmönnum Bandaríkjahers og flota, um kvöldið flutti hann erindi í Ríkisútvarpið í tilefni af 4. júlí, mikið rómað af almenningi. Á miðvikudag 5. júlí var hann gestur við hátíðlega athöfn Háskóla íslands, þar sem hann flutti kveðjur frá Ríkisháskóla Norður-Dakota, fylkisháskóla Manitoba, og Cornell háskólanum, jafnframt flutti hann kvei^ur frá Þjóðræknisfélagi Vestur-íslend- inga. Rektor háskólans, Jón Sigurðsson, læknir stýrðí athöfninni. Samkomugestir hylltu Vestur-íslendinga, að lokum var drukkið káffi í kennarastofu háskólans. Um kvöldið hélt Þjóðræknisfélag íslendinga Dr. Beck virðu- legt samsæti á Hótel Borg, biskup Lslands, Dr. Sigurgeir Sigurðs- son, flutti aðalræðuna, aðrir sem töluðu voru, Árni Eylands forseti félagsins, Ófeigur Ófeigsson læknir, séra Jakob Jónsson, Arnfinnur Jónsson skólastjóri en Kjartan Ólafsson flutti frumort kvæði. Dr. Beck þakkaði með allangri ræðu góða samvinnu og vináttumerki af hálfu Þjóðræknisfélagsins og ræddi um framhaldandi samstarf austan hafs og vestan og mælti fyrir minni Islands. Máli hans var tekið með miklum fögnuði. Vilhjálmur Þór. Lieut-General Lea, sem tok við yfirstjórn 8. herfylkis Breta á ítalíu af Gen. Montgomery.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.