Lögberg - 13.07.1944, Blaðsíða 2
2
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 13. JÚLÍ, 1944
Framtíð Frakklands
Eftir Paul P. Moranel
Þýtt úr “The Protestant”,
af Jónbirni Gíslasyni.
Hinar margvíslegu sambands-
áætlanir Engilsaxa fyrir hönd
Frakklands að ófriðarlokum. virð
ast allar benda á að slíkt mál-,
efni sé lítilfjörlegt og létt á met-
um að þeirra dómi. Slík skoðun
er all rótgróin, ekki aðeins í Eng-
landi, heldur einnig og sérstak-
lega í Bandaríkjunum, meðal
stórblaðanna, mentalýðsins og
almúgans er sækir skoðanir sín-
ar til hærri staða. Þessi niður-
staða er bygð á álíka trúrri und-
irstöðu og þroskuðum skilningi
og þær raddir er fullvissuðu
Washington um að rússneski her-
inn stæði ekki eins lengi gegn*
nazistum og gríski herinn gjörði
á sinum tíma.
Frakkland er vissulega ekki
nægilega voldugt til að standa
einangrað og án sambands við
önnur ríki, það þarf vina og
bandamanna, og afstaða þess er
vissulega sú að það getur valið
úr vinum, jafnvel þó London og
Washington trúi því ekki. Edgar
Ansel Monre fullyrðir að Frakk-
land muni ekki skorta biðla í
þeim efnum.
í stað þess að leitast við að
útskýra hvers Frakkland þarfn-
ast mest, er réttara að rannsaka
hvað nágranna stórveldin hafa í
hyggju og hvaða boð þau bjóða.
Þrjár úrlausnir eru þá hendi
næst: 1. Heimssamband. 2. Sam-
band við Rússland. 3. Bandalag
við hinar engilsaxnesku þjóðir.
Tökum nú þessi sambönd í réttri
röð:
1. Heimssamband: Öll póli-
tísk vandamál myndu að sjálf-
sögðu verða leidd til farsællegra
lykta af fullkomnu heimssam-
bandi, þar sem hvert einstakt
ríki hefði svipuð réttindi og af-
stöðu til annara þjóða og fylki
Bandaríkjanna hafa hvert gagn-
vart öðru. Ef eg hefði nokkra
von um að slík stofnun myndað-
ist í nálægri framtíð mundi eg
með ánægju leggja frá mér penn-
ann og láta framhald þessa máls
óritað; en nýlegir viðburðir í
sambandi við Pólland, ræða
Smuts hershöfðingja, yfirlýsing
Churchills um óvilja hans til að
standa að upplausn brezka veld-
isins, pólitíska andrúmsloftið í
Washington og draumar Wall
Street og auðhringanna gagnvart
Suður-Ameríku, vekja óljósan
grun um að gallalaust heims-
samband sé ekki alveg áreiðan-
lega á bak við næsta leiti.
2. Samband við Rússland:
Jafnvel þó Rússland sé stórt og
voldugt, er þjóðin vakandi á
verði og skilur öll veðurmerki
um aðvífandi hættu. Hún man
enn kverkatök stórveldanna og
slettirekuskap þeirra gagnvart
innanlandsmáluín Rússlands eft-
ir fyrri heimsstyrjöldina. Báli
og brandi var farið um blómleg
lönd og borgir af málaliði kost-
uðu af London, París og Wash-
ington. Þessir leiðangrar mis-
heppnuðust algjörlega, nema að
því leyti að þeir steyptu þjóðinni
í enn átakanlegri eymd og veittu
henni dýpri svöðusár en sjálft
aðalstríðið hafði megnað að
gjöra.
Þar næst skáru Pólverjar upp
herör og hófu innrás í Rússland,
en voru reknir til baka alt að
hliðum Warsaw. Með aðstoð
Weygands réttu Pólverjar fylk-
ingar sínar á ný og óðu hundruð
mílna inn í Rússland og settu
þar nýja landamæralínu, á sum-
um stöðum austar en Curzon lá-
varður hafði ákveðið og viðkom-
andi þjóðir höfðu fallist á.
Einmitt þá mynduðust smárík-
in þrjú: Lithuania, Latvia og
Estonia, er voru svo haglega
sneidd af rússneska heimaland-
inu að því fornspurðu. Þá gerð-
ist Mannerheim málsvari og
leiðtogi íhaldsins í Finnlandi og
bygði hina frægu Mannerheim
varnarlínu örskot frá múrum
Leninborgar; það mannvirki var
ekki að öllu borgað með finnsk-
um peningum.
í öllu þessu umstangi og með-
fylgjandi ráðagjörðum fólust ó-
tVíræðar hótanir um nýja inn-
rás fyr eða síðar, sem Rússland
gat ekki misskilið; það var því
þvingað til að hefja strangar
varnarráðstafanir og stofna
rauða herinn þrátt fyrir andúð
sína og viðbjóð á öllu hernaðar-
fargani.
Einangrun Rússlands, af hálfu
umheimsins, hlaut að lokum
skýr og greinileg svör á árunum
1939 og 1940, þegar Rússar, —
sem nauðsynlega varúðarráð-
stöfun — lögðu undir sig að ná-
grönnunum fornspurðum, víð-
áttumikil landflæmi, alt frá
Estoníu til Bessarabíu.. En öll
sú varúð og framsýni reyndist
ófullnægjandi, vegna þess að
Hitler, eftir að hafa myndbreytt
mest allri Evrópu í þrælabúðir,
tókst að brjótast alla leið að hlið-
um Moskvaborgar.
Vjnabandalag við nágranna-
lönd, eða beint stjórnmálasam-
band er Rússlandi lífsnauðsyn,
en getur þó reynst ónóg ef til
vill. Vitanlega verður Þýzka-
land sigrað nú; en svo var einn-
ig 1918, aðeins til þess að verða
endurbygt fyrir fjármálaaðstoð
vesturálfuveldanna. Hafa þær
þjóðir tekið miklum breyting-
um? Sumir munu svara já, vegna
þess að þær eigi nú í ófriði við
Þý^kaland. En þær voru einnig
í ófriði við Þýzkaland 1914—1918
og stjórnir þeirra eru fulltrúar
sama þjóðskipulags og þess er
veitti Hitler fjárhagslega aðstoð
í ríkum mæli. flutti vopn og
vis^r til Japana, stóðu á bak við
Mannefheim með ráðum og dáð
og halda enn í hönd með Franco,
Savoy-ættinni og Flandin.
Rússar vita fullvel hve auðvelt
er að éndurbyggja Þýzkaland,
undir vilhöllu viðskifta eftirliti.
Aðal áhyggjuefni allra hugs-
andi Frakka á undanförnum ára-
tugum, hefir verið hinn voldugi
herafli hinumegin Rínarfljóts;
meðsköpuð varfærni heimtaði
vináttusamband við slíkan ná-
búa, hverrar tegundar sem hans
pólitíska eyrnamark kynni að
vera.
Samtímis því er franska lýð-
veldið stóð í nánu vina- og við-
skiftasambandi við keisara-
stjórnina í Rússlandi, er lét her-
afla sinn brjóta vægðarlaust á
bak aftur hverja frelsishreyfingu,
héldu talsmenn lýðveldisins
hverja frelsisræðuna annari
hjartnæmari. Síðan hefir stjórn-
málavald Frakklands horfið að
mestu ú^ höndum þjóðarinnar,
yfir til iðjuhöldanna og miljóna-
mæringanna, er mundu ekki
hafa verið því mótfallnir að
höndla sína eigin bændur og
verkamenn á sama hátt og keis-
arinn gjörði á sínum tíma. Árið
1914 var samband þessara tveggja
ríkja í himnalagi, en þegar Laval
tuttugu árum síðar, undirskrif-
aði hliðstætt bandalag, varð af-
leiðingin önnur — ekki sigur
við Marne, heldur ósigur við
Munich.
Yfirstétt Frakklands óttaðist
Stalin í þúsund mílna fjarlægð,
en ekki Hitler, sem var í skot-
færi.. Af þessu má ekki araga
þá ályktun að meiri hluti frönsku
þjóðarinnar hafi svikið sinn
málstað, eri hinir sönnu ættjarð-
arvinir voru dreifðir og grun-
lausir og vantaði viljaþrek, til
að hefjast handa; þá dagaði uppi
miðja vega milli afturhalds og
framsóknar og allar frarrikvæmd-
ir stóðu á milli.
Hitler kom til Parísar að boði
Petains og alt gjörbreyttist
skyndilega; klukka menningar-
innar og tímans var vægðarlaust
færð til baka um nokkrar aldir;
til að fyrirbyggja að þetta ný-
móðins tímatal kæmist aftur í
rétt horf, voru gislar skotnir,
verkamenn fluttir af landi brott
í ánauð og ættjarðarvinirnir
veiddir og drepnir sem óargadýr.
1 þessari eldskírn æðis og þján-
inga, vaknaði hin franska sál af
gjörningasvefni liðins tíma.
Við fyrstu vanmáttarmerki
nazista, mun franska þjóðin rísa
sem einn maður gegn kvölurum
sínum, að undanteknum svikur-
unum sem eru aðeins tveir af
hundraði; en einmitt þeim sömu
tveimur af hundraði mun Lon-
don og Washington leitast við að
bjarga, hvað sem það kostar;
takist það ekki er fótfesta þeirra
glötuð í Evrópu. Það er óþarfi
að taka það fram að velferð al-
þýðunnar í Ameríku heimtar alla
svikara og Hitlers vini hengda.
Sé það framkvæmt samvizku-
samlega, verður engin Laval til
að fyrirbyggja bandalag með
Frökkum og Rússum. Ef þessir
tveir af hundraði eru látnir halda
lífi og gjört mögulegt að ná völd-
um að nýju, er framtíðar ham-
ingja og friður útilokað í þess-
'ari veröld.
3. Bandalag við Engilsaxa:
Hvað hafa stjórnir engilsaxnesku
þjóðanna að bjóða Frökkum, til
að fyrirbyggja samband þeirra
við sinn eðlilegasta viðskifta-
naut? í stað þess að ákveða
Rínarfljótið sem landamæri ár-
ið 1918, var Frökkum gefið loforð
umliðveitzlu ef þörf krefði, en
með því var allri trú eftirmanna
Wilsons á framtíðar öryggi
Frakklands kollvarpað.
í byrjun þessa ófriðar sendi
England, sem er mannfleira og
auðugra < en Frakkland, liðstyrk
yfir Dofrasund, sem var minni
að vöxtum en kotríkið Belgía
hafði yfir að ráða. Við Dunqirk
komst það sem lífi hélt á skip
og skildi frönsku þjóðina eftir
í gildrunni milli svikaranna
heima fyrir og hinna aðkom-
andi fjandmanna. Þegar Paul
Reynaud bauðst til að flytja
ráðuneyti sitt, allan sjóflotann,
sem þá var óskertur og leifar
hersins til Afih'ku, ef Bandarík-
in gætu sent sér flugvélar, hlaut
hann aðeins köld svör frá Wash-
ington, og það gjörði Petain
mögulegt að undirrita samninga
við Hitler.
Þegar de Gaulle hershfðingi
ákvað að veita mótstöðu þrátt
fyrir alt og setti á stofn land-
flóttastjórn, voru London og
Washington mjög hraðvirk að
svifta hann þeim völdum og fá
þau í hendur Darlan, hinum
franska þjóðfjanda Nr. 2, og síð-
ar Peyrault, þeim er stofnaði
frönsku þrælabúðirnar. Nokkr-
um af sjóliðum de Gaulle var
varpað í fangelsi í New York,
fyrir ofmikla ættjarðarást.
Skæruherflokkum Frakka var
hvað eftir annað neitað um
handsprengjur og vélbyssur í
hinni ójöfnu baráttu við Vichy-
stjórnina og mazista.
Frakkar dá rússnesku þjóðina
fyrir fórnfýsi hennar og hið
undraverða mótstöðuafl, og
rauða herinn fyrir öll hans dýrð-
legu hreystiverk. Vitneskja
þeirra um að Rússar hafi líflátið
heimaalda föðurlandssvikara,
veldur engum aðfinslum af hálfu
ættjarðarvinanna er sitja í svelti,
samtímis því er hinar tvö hundr-
uð fjölskyldur margfalda auðæfi
sín á þeirra kostnað og sitja dýrð-
legar veizlur með trúnaðar-
mönnum Goerings. Að þeirri
landhreinsun afstaðinni, sem
Frakkland er í svo sárri þörf
fyrir, er öllum hindrunum rutt
úr vegi, gegn sambandi þeirra
og Soviet Rússlands.
Hvaða þýðingu mundi slíkt
samband hafa fyrir heiminn í
heild? Ef þessi tvö stórveldi
hefðu nokkra landvinninga í
huga, mundi það orsaka ægilega
bliku við hinn. pólitíska sjón-
deildarhring. En Frakkland hefir
aldrei verið grunað um græsku í
þeim efnum síðan Napóleon leið.
Hvað Rússum viðvíkur, nægir
að vitna til samninga þeirra við
Tékkóslóvakíu og tilboða þeirra
til Póllands og Rúmeníu.
Eftir sigur þeirra yfir Finnum,
var þeim í lófa lagið að leggja
gjörvalt landið undir sig á sama
máta og var fyrir Versalasamn-
inginn. Að þeir gjörðu slíkt ekki
var vitanlega af þeirri einföldu
ástæðu að þeir höfðu enga land-
vinninga ,í huga og kærðu sig
ekkj um að taka bólfestu þar sem
þeir voru ekki aufúsugestir; þeir
höfðu sjáanlega enga löngun til
að öðlast nýja borgara og fjand-
skap þeirra í ofanálag.
Þetta er hin raunverulega hlið
málsins og bak við hana blámar
f.yrir nýjum degi gæfu og gengis,
ekki einungis fyrir Norðurálf-
una, heldur fyrir allan heiminn
í heild.
Hin fyrsta uppskera slíks sam-
bands — ríkuleg að vísu, þrátt
fyrir sitt neikvæða eðli — verð-
ur afnám allra fascista-stjórna í
Evrópu. Fascistar eru hættu-
lausir ef árásarmáttur þeirra er
brotinn á bak aftur. Enda mundu
Junkararnir hreyfa sig hljóð-
lega og prúðmannlega og jafn-
vel gufa upp með öllu, ef á aðra
hönd þeim væri endurborið og
öflugt Frakkland og hinumegin
sigrihrósandi Rússland.
Eðlilega mundi meiri hluti
Norðurálfunnar verða fyrir mjög
sterkum áhrifum frá öðru hvoru
eða báðum þessara ríkja. Áhrif
Rússlands eru ótvíræð á Balkan-
skaganum, með fáum andan-
tekningumum; aftur á móti er
ekki líklegt að slíkra áhrifa
verði mjög vart á ítalíu, Niður-
löndunum, Spáni eða Portúgal,
þar sem tungumál, venjur og
erfikenningar tengja öll þessi
ríki við Frakkland.
Öll þessi síðastne'fndu lönd
eru líkleg til að hafa samskonar
stjórnarfar. Tollgarðar lækka
smámsaman. Voldugir herflokk-
ar verða þýðingarlausir, vegna
þess að engum er mögulegt að
ásækja grannríki sitt eða Fransk-
Rússneska sambandið.
Að tveimur eða þremur árum
liðnum, breytist skjótlega um til
batnaðar, því auðlegð landanna
verður ekki skift þannig að
fjöldinn líði hungur, samtímis
því er aðrir lifi í óhóflegum
munaði með ótakmörkuðu drott-
invaldi.
Sumir menn álíta alt þetta
draumkent hugarflug; svo er að
vísu, en það bygt á raunveruleg-
um og sögulegum afrekum leið-
toga Soviet Rússlands.
ENDIR.
DÁNARFREGW
Þann 21. júní síðastliðinn, and-
aðist að Baldur, Manitoba, öld-
ungiírinn Þorfinnur Jóhannes-
son, eftir langvarancþ lasleika.
Hann var fæddur að Flögu í
Breiðdal í Suður-Múlasýslu á
íslandi, 8. febrúar 1863. For-
eldrar hans voru þau Jóhannes
Gunnlaugson og kona hans Val-
gerður Finnbogadóttir. Ungur
misti hann föður sinn. Varð
hann þá að gerast aðal fyrirvinna
hjá ekkjunni móður sinni.
Árið 1887 kemur hann til Win-
nipeg með móður sinni og tveim
systkinum, Jóni nú bónda nálægt
Baldur, Manitoba og Helgu (Mrs.
Rúnólfson) er lézt fyrir skömmu.
Sagði Þorfinnur að það hefðu
verið vinnuhjúalögin óréttlátu,
sem hefðu fælt sig frá íslandi,
ella hefði hann aldrei þaðan
farið, því hann unni fósturjörð-
inni. Haustið sama er hann kem-
ur til Canada fer hann til Argyle
og þar þrem árum síðar giftist
hann eftirlifandi konu sinni,
Karolínu Rannveigu Andrésdótt-
ur frá Austaralandi í Axarfirði,
N.-Þingeyjarsýslu. Bjuggu þau
fyrst í Brúarbygðinni, þá tvö ár
í Winnipeg. Þaðan fóru þau til
Riverton, og dvöldust í bænum
nokkur ár, en reistu svo heimili
þar sem Akravellir heita, ekki
langt frá Sandy Bar.
Árið 1903 liggur leið þeirra enn
til Argyle. Bjuggu þau á tveim
eða þrem stöðum í bygðinni.
Lönd til landnáms voru þá upp-
tekin og aðeins um lánsjarðir að
kjósa. Haustið 1918 settust þau
svo að í Baldur, og hafa dvalið
þar síðan. Þeim hjónum varð
margra barna auðið, og eru þau
talin hér eftir aldursröð: 1. Jó-
hannes, heimili í Baldur. 2. And-
rea (Mrs. A. Björnson) nálægt
Belmont, Mán. 3. Ingólfur, óðals-
bóndi nálægt Baldur, Man. 4.
Páll, féll í seinasta stríði. 5. Krist-
rós Helga (Mrs. H. Sigurdson)
nú í Brandon, Man. 6. Ólafur, dó
í bernsku. 7. Óli Ágúst, járn-
brautar formaður við Brandon,
Man. 8. Fjóla Þórlín, dáin fyrir
ári síðan í Baldur. 9. Valgerður
(Mrs. Cameron) heimili í Hali-
fax, N.S. 10. Jónína Marta (Mrs.
W. Anderson) Ninette, Man.
11. Finnbogi, býr í Detroit, Mich.
12. Bryndór, heima í föðurhús-
um. 13. Guðný, dó í æsku. Syst-
kini Þorfinns á lífi eru þau Jón
Breiðdal bóndi norður af Baldur,
Man. og Kristbjörg (Mrs. Mar-
tin) í Baldur, Manitoba.
Jarðarförin fór fram að við-
stöddu fjölmenni íslendinga frá
heimilinu og lútersku kirkjunni
í Baldur, mánudaginn 26. júní, og
var hann lagður til hvíldar í ætt-
arreit sinn í Baldur grafreit. Sr.
E. H. Fáfnis jarðsöng. Með
Þorfinni er genginn góður ís-
lendingur. Sannur ættjarðar-
vinur, trygglyndur við alt sem
hann vissi bezt í íslenzkum þjóð-
ararfi og ættarkostum. Fastur
í lund trygglyndur og sannur
vinur vina sinna. Stálminnugur
alla æfi til hins síðasta og mikill
bókamaður og las alt, sem hann
gat lagt hönd og huga að. Hann
var einn í þeirra hópi íslenzkrar
alþýðu, sem trúir að lestur góðra
bóka sé manninum lyftistöng í
baráttu lífsins.
Frá Vancouver
Nýlega stofnuðu Islendingar í
Vancouver Lúterskan söfnuð, og
hefur alt gengið furðu vel. Nefnd
ir starfa dyggilega, og áhugi sýn-
ist að aukast. — Ein nefndin
hefir með höndum að koma í
peninga bókasafni Sigfúsar heit.
Pálsonar, (sem bjó mörg herr-
ans ár í Winnipeg) er safnið um
320 bækur flestar í góðu bandi,
eru það sögur og ljóð, safnið er
í vönduðum bókaskáp. Ekkjan
Mrs. Pálson gaf söfnuðmum
þessa rausnarlegu gjöf, og hefur
nefnd þessi ákvarðað að allir
peningar, sem safnast í þessu
tilefni, verði settir í byggingar-
sjóð, í þeirri von að undirtektir
víðsvegar verði svo styrkjandi
að með tímanum getum við eign-
ast okkar eigið kirkju heimili.
Hér gefst tækifæri fyrir sem
flesta að styrkja yngsta íslenzka
söfnuðinn í Vesturheimi, (og sam
hliða kannske að eignast bóka-
safnið) og þá er eg kominn að
því, sem eg vildi helst segja frá.
Þar sem sannur áhugi er fyrir
einhverju málefni, er auðveldara
um framkvæmdir. Okkur barst
bréf frá ungum hermanni. frá
stríðsvelli í Evrópu, innihald
bréfsins var meðal annars, að
biðja móður sína að taka á móti
$50.00 Victory Bond, taka það á
bankann, og afhenda svo pening-
ana til kirkjusjóðs nefndarinnar,
sem sitt tillag í byggingar sjóð-
inn. Það varð kyrt í salnum þegar
bréfið var lesið. Hversu dásam-
leg fyrirmynd! Ungur piltur í
fjarlægð. Hermaður á stríðsvelli.
Tekjur hermanna litlar. Finnur
tíma og hvöt til að lýsa okkur
veginn. Áhugi þessa unga manns
fyrir kristilegu starfi, vottar um
kristilegt innræti og fúsleik til
að styðja þetta verk, sem er veg-
ur lífsíns. Má vera að hermenn,
sem horfast í augu við fjarska
veruleikans, hugsi dýpra um það
sem varðar, heldur en við sem
heima sitjum.
Guð blessi þennan unga
marni, sem með þúsundum ann-
ara er að berjast til þess að
heimurinn megi lifa í friði, og
eiga sína eigin kirkju og trú.
Pilturinn er Hugh Sölvason,
sonur Mr. og Mrs. Steve Sölva-
son hér í borg, fyrrum frá Winni-
peg, það væri dr*engilegt ef sem
flestir legðu eitthvað af hendi
til styrktar þessa máls.
Látum drengskap Hugh Sölva-
sonar verða okkur fyrirmynd.
G. F. Gíslason.
I