Lögberg - 11.01.1945, Blaðsíða 3

Lögberg - 11.01.1945, Blaðsíða 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 11. JANÚAR, 1945 3 Biskupinn og Quisling Það fólk, sem sjálfu er ráðandi endurtekur sameiginlega í þess- ari viku boðskapinn um frið á jörðu. Maðurinn, sem eins mikið hef- ir gjört og nokkur annar, til þess að tendra ljós kristilegra vona í hjörtum fólks þess, sem í áþján var hnept í Evrópu situr nú um jólin fangi í litlum “logga” kofa í þykkum skógi fyrir norðan Oslo í Noregi, eins og hann hefir gjört aleinn í síðast liðin tvö ár. Maður þessi er Eyvindur Jósef Berggrav, sem var biskup í Oslo og erkibiskup ríkiskirkjunnar norsku. Berggrav biskup, sagði lausu biskupsumdæmi sínu í Oslo og erkibiskupsumdæmi sínu í Nor- egi, 24. febrúar, 1942. Tveimur mánuðum síðar var hann tekinn fastur að boði Quislings, spor- rakka Hitlers, og síðan hefir hann setið innan þessar vírgyrðingar, sem er 500 metrar á lengd og 200 metrar á brei'dd. Félaga hefir hann enga nema grenitrén í skóg inum, útsýn út á Oslo fjörðinn, bláleitann og kaldranalegan í fjarlægð og tólf hirðmenn (varð- menn), sem gæta hans. Um þessa varðmenn er iðulega skift, svo þeir ekki smittist af kristilegum áhrifum frá hinum glæsilega höfðingja. Einu sinni á mánuði færa varð- mennirnir biskupnum bækur, sem Nazistar hafa vandlega lesið yfir og einu sinni í viku færa þeir honum bréf frá konu hans og taka svar frá honum til baka einu sinni í viku, sem kona hans verður að lesa á lögreglustöðinni. Þar fyrir utan sér Bergrav biskup engan og talar heldur ekki við neinn. Hann eyðir tím- anum í að útleggja Nýja testa- mentið á ný norsku, höggva eldi- við, halda “logga” kofanum hreinum og matreiða fyrir sig. En þótt Eyvindur biskup verði að sitja jól þéssi einn með varð- mönnunum þá má hann vera hug rakkur því Kriststrúin, sem hann hefir endurvakið með eld- legum orðum, og ósveigjanlegu hugrekki, er hraðfara um Noreg, frá ættingjum og vinum; marg- menni var viðstatt útförina, er vitnaði um vinsældir og virðingu hinnar látnu. Lilja heitin var lögð til hinztu hvíldar í Wynyard grafreit þar sem faðir hennar og bræður bera beinin. Öll nánustu ástmenni Lilju heitinnar voru viðstödd jarðarförina, að undan- skilinni systur hennar, Mrs. Blomgren, sem búsett er í Van- couver, og gat ekki komið. Frú Lilja Barteaux var fædd þann 10. september 1910, en lézt hinn 14. júlí 1944; hún var fædd í Red Deer í Albertafylk- inu, þar sem foreldrar hennar bjuggu áður en þau komu til Wynyard byggðar; hún var þá þriggja ára að aldri. Þeim Ed- ward og Lilju heitinnar varð ekki barna auðið; höfðu enda ekk: átt langa samleið; en þó sam- leiðin væri stutt, var hún ósegj- anlega fögur; mótuð kristilegum kærleiksanda á báðar hliðar; sorg hins unga og ástríka eigin- manns, fá engin mannleg orð túlkað; slíkt getur einungis hann, faðir lífs og ljóss, sem allar undir græðir. Foreldrar Lilju heitinnar voru þau Ólafur G. Pétursson, föður- bróðir séra Friðriks Friðriks- sonar í Reykjavík og Þorbjörg Finnbogadóttir, bæði ættuð úr Skagafirði, kunn að drengskap og sönnum mannkærleika. Allir þeir, sem kynntust Lilju heitinni, elskuðu hana og virtu; hún var slíkum kostum búin, er hvarvetna vöktu órofa traust; allir kveðja hana með djúpum söknuði, en jafnframt með djúp- stæðri þökk fyrir samverustund- irnar. Guð blessi sifja'liði hennar öllu minninguna um hennar stuttu, en óumræðilega fögru ævi. Guðný Jósephson. og þjóðin hans undirokaða en óyfirunna, bergmálar þessi hreim þrungnu orð Aulén biskups í Svíþjóð: “Andi og orð Berggravs hafa læst sig frjáls. gegnum læst- ar dyr, og eru sá lifandi vottur þess, að guðsorð verður aldrei í fjötra fært.” Biskup á Hálogalandi. Eyvindur Jósef Berggrav er fæddur í Stafangur í Noregi, 25. október 1884 Hann útskrifaðist frá háskólanum í Osló 1908. Ári síðar gekk hann að eiga konu sem Katrin Slip heitir og eiga þau hjón fimm sonu. Ekki gekk Berggrav í þjónustu kirkjunnar fyrst í stað, heldur lagði fyrir sig kenslu og ritstörf. En eftir tíu ár í þeirri stöðu, tók hann prestsþjónustu hjá litlum söfn- uði í Hurdalen, um 40 mílur frá Oslo. Þeim söfnuði þjónaði hann í sex ár, en tók þá prestsþjónustu við Botofangelsið í Oslo. Árið 1929 var hann kjörinn biskup á Hálogalandi, er það biskups dæmi erfitt að mörgu leyti. Ferðalög mikil og erfið, veðrátta oft hörð sökum norður- breiddar landsins, og strjálbýli mikið. Atvinnuvegir þess norð- læga héraðs, eða fylkis, líka erf- iðir og fólk yfirleitt þurfti að beita allri orku til að hafa í sig og á. Vera biskupsins þar norður- frá var hinn harðasti lífsreynslu skóli, en hann gekk í gegnum hann meiri og betri maður, er auk þess hafði áunnið sér traust og virðingu fólks síns. Eins og vera hans við fangelsið hafði gjört hann meðlíðunarsaman, og aukið skilning hans, svo hafði vera hans í Norðurhéruðunum stælt líkama hans og styrkt lyndiseinkenni hans, sem þegar voru orðin þroskuð og vakandi. Árið 1937 var Eyvindur Berg- grav skipaður biskup í Oslo og erkibiskup í Noregi. Hann var þegar orðinn þjóðkunnur, sem áhrifa mikill starfsmaður kirkj- unnar, og rithöfundur, því hann hafði þá ritað bækur trúarlegs eðlis og “Spenningens Land” (Töfralandið). Lýsing á Háloga- landi og starfi hans þar, auk þess að vera ritstjóri Kirke og Kultur tímiritsins alkunna og alþjóða viðurkenning hlaut hann í sambandi við allsherjar kirkna sambands hreyfinguna og var kosinn forseti hins svonefnda World Alliance for International Friendship, árið 1938. Kirkjan óeinlæg og ótrú? 1 þessu nýja embætti gjörðist Berggrav þegar atkvæða- og at- hafna mikill, en árangurinn af starfi hans á því sviði varð lít- ill. Það var ekki mikið um vin- skap að ræða árið 1939. Jafnvel ekki á meðal kirkju deildanna sjálfra. Árið 1933 lét Hitler sér eftir- farandi um munn fara: “Eg lofa ykkur því, að eg gæti eyðilagt kirkjuna á nokkrum árum. Hún er óeinlæg, ótrú og rotin, að inn- an og utan.” Á árunum á milli stríðanna, gjörði kirkjan minna, en hún hefði mátt gjöra til þess að af- sanna, eða hrekja þennan áróð- ur. Eins og í mörgum Evrópu- löndum, þá var Lúterska kirkj- an í Noregi ríkiskirkja. Prestarn- ir sátu á jörðum, sem voru ríkis- eign og gafst hinum efnaminni mönnum lítið um það fyrirkomu lag. Margt af alþýðufólki þótti prestarnir þægilegir, en dálítið þóttafullir. Yngra mentafólkið gerðl gys, bæði að kirkjunni og Guði. Eldraun og endurfæðing. En þegar stríðið skall á, og fréttirnar frá hernumdu löndun- um fóru að berast út um heim- inn, þá voru það hinir hugprúðu menn kirkjunnar, — menn Guðs, sem birtan stafaði frá. Niemöller, Faulhaber og Galen á Þýzka- landi. Hlond á Póllandi, De Jong á Hollandi, Damaskinos á Grikk- landi og hinn aldraði kirkju- öldungur Gavrilo Dozich í Jugo- slavíu. Allir þessir stóðu eins og hetjur á móti Nazismanum og með þeim ótaldar fylkingar kirkjunnar manna, eins og prest- arnir 1300 að 1»lu, sem myrtir voru á Póllandi. Prestarnir tveir, sem skotnir voru til hefnda fyrir hengingarmeistarann alræmda Heydrich og presturinn á Frakk- landi, sem gaf sig fram til þess að gjöra flokkum landsmanna sinna, er veittu Nazismanum mót stöðu, aðvart, þá er þeim stafaði sérstök hætta frá athöfnum Gestapo lögreglunnar. Hann sagði: “Eg læt þá handtaka mig, því eg vil að franska þjóðin viti, að það eru til prestar líka, sem fúsir eru til þess að láta líf sitt henni til heilla. Eg bið ykkur alla um að biðja fyrir mér, að mér veitist styrkur til að þola kvalirnar.” Þó Gestapo lögregl- an sliti bæði eyrun af þessum manni, urðu bænir félaga hans sterkari en grimd kvalaranna. Hann þagði trúlega yfir öllum leyndarmálum þeirra. Kristin kirkja, sem hóf göngu sína í áþján við ljós vonarinnar, og öðlaðist þroska sinn í gegn- um þrengingar fann nýjan þrótt og samúð í þessari síðustu eld- raun. Á Hollandi, þar sem kaþólskir og prótistants hafa ekki getað setið á sáttshöfði hvor við aðra síðan á tíð siðbótarinnar, létu alla misklíð niður falla og börðust sameiginlega gegn Naz- ismanum og Gyðinga ofsóknun- um. Kirkjan í undirokuðu Evr- ópu löndunum hefir endurfæðst til nýs lífs fyrir þá sök að hún hefir ekki aðeins barist fyrir sín- um eigin tilverurétti, heldur líka tilverurétti og frelsi allra mánna Kirkjan, eða réttara sagt kirkj- unnar menn, sem áhuga litlir létu berast á tímans straumi, undir vernd ríkisvaldsins, snúa alt í einu við blaðinu, þegar ríkis- valdið stendur ráðþrota og taka ábyrgðina og leiðsöguna í sínar hendur. Leopold Belgíu konungur gafst upp og lagði niður vopnin, en hinn hugprúði kardináli Van Roey ekki. Hann lýsti opinber- lega yfir því, að kaþólska kirkj- an í Belgíu tæki aldrei höndum saman við áþján og yfirgang, bannaði hann öllum prestum í sínu umdæmi að veita nokkrum þeim sakramentið, sem klædd- ur væri herklæðum Þjóðverja. Hann lét loka æðri og lægri mentastofnunum landsins svo að nazista áhrifin næðu ekki þang- að inn. Þegar háskólalýðurinn í Evrópu, blöðin og tímaritin, rit- höfundarnir og heimsspekingarn ir voru þögnuð og þagnaðir og stóðu ráðþrota, þá voru það kirkjan — kirkjunnar menn, samkvæmt orðum Alberts Ein- steins: “sem skipuðu sér þvert í veginn fyrir Hitler.” “Guðs friður,” segir Berggrav biskup, “er ekki hugtak, sem er lokað og klárt ... eign okkar mannanna um eilífa tíð. Friður- inn er fenginn með því að fylgja Guði í stríð. Það er á þann hátt, sem hann vex og verður sannur. 1 stríðinu finnum vér friðinn.” Draumur og vakning. Berggrav biskup' hefir ekki á- valt séð þann sannleika eins skýrt og hann sér hann nú. Það var sú tíð, að hann hélt að frið- ur gæti fengist án stríðs. Fyrstu sjö dagana eftir innrás Þjóðverja á Noreg, var þar alt í uppnámi. Leitaði þá Jósef Terboven ríkis- kanzlarinn þýzk sinnaði á náðir Berggravs til þess að reyna að koma á friði og fastbundnu fyr- irkomulagi undir valdi konungs- in og Stórþingsins. Quisling var í bili ýtt til hliðar, en Berggrav biskupi, þjóni guðs, falin forusta. Hann ávarpaði þjóð sína þannig: “Þið verðið að láta þessa atburði afskiptalausa. Fólk, sem með valdi blandar sér inn í stríðið með því að fremja óhæfuverk, eða á nokkurn annan veg, gjör- ir sig sekt í ofbeldi, fremur hinn hörmulegasta glæp gagnvart þjóðbræðrum sínum.” Terboven brosti glettnislega og mælti: “Látum oss fylgja leið- togum vorum, Quisling, Hamsun, og Berggrav”. Þegar farið var að knýta nafn Berggravs, við nöfn fazista leiðtoganna, fór fólkið að nöldra um undanhald, en Berg- grav lét það ekkert á sig bíta, en sat fast við sinn keip. Adolí Hitler hafði lofað Norðmönnum fullkomnu trúfrelsi og löglega skipaða stjórn, og þá fann Berg- grav það skyldu sína, að leggja sitt fram til að friður og regla héldist. En loforð Hitlers reyndust ekki ábyggilegri í Noregi en annars staðar. Eftir fimm mánuði svifti Terboven konunginn valdi sínu, sleit þinginu, en innleiddi eða fyrirskipaði “New Era” hið nýja Nazista stjórnarfyrirkomulag í Noregi. Berggrav og kirkjulýð- ur hans, vöknuðu upp úr friðar- draum sínum og voru ekki lengi að átta sig á hvað gjöra skydi, umboðsmenn frá öllum deildum norsku kirkjunnar komu saman og mynduðu framkvæmdarnefnd frelsi norsku þjóðarinnar til varnar og orð Berggravs þrum- uðu yfir fjöll og dali Noregs: "Að Guðs vilja erum vér norskir menn gjörðir ... Hann lætur yð- ur ekki herklæðast til þess að eyðileggja eðli yðar og einkenni. Hann mun bjarga yður og frelsa, allt kristið fólk í Noregi horfir nú í sumu áttina.” En Norðmenn voru ekki enn sannfærðir um sannleiksgild; þessara orða biskupsins — að minsta kosti ekki allir. Þeir kröfðust sannana, og þeir þurftu heldur ekki lengi að bíða til þess að fá þær sannanir. Nazistastjórn in lét boð út ganga um það, að breyta skyldi hinni almennu bænabók Norðmanna, þannig, aö fella skyldi úr henni nafn kon- ungsins; en setja í staðinn nöfn Nazista valdhafanna. Berggrav þverneitaði að taka það vadboð til greina. Skógurinn mikli. Afleiðingin af þessari neitun Berggravs varð sú, að hin grimm asta ofsókn var hafin af hendi Nazista á hendur þessum mót- stöðumönnum. Ronald Fangen atkvæðamaður hinn mesti í kristilegum málum var hneptur í varðhald. Kirkjunnar menn mótmæltu því tiltæki harðlega, og fólkið í Noregi, sem heimili á nú í hinum risavöxnu skógum landsins undir berum himni, fór að tala um prestastétt landsins, sem hinn “mikla skóg”. 1 hvert sinn, sem Nazistavaldið í Noregi reyndi til þess að þrýsta lögregluvaldi Norðmanna, skól- um þeirra og dómsvaldi undir yfirráð Nazistanna mótmæltu kirkjunnar menn því kröftug- lega. Svo rétt fyrir jólin 1940, gaf Quisling stjórnin í Noregi út skipun um það, að þagmælsku- eiður Lúterskra presta þar í landi skyldi afnuminn. Eiður sá veitir Lúterskum prestum, sama rétt til þagmælsku yfir trúnað- armálum manna, eins og kaþólsk um prestum yfir syndajátningu síns kirkjufólks, og var sá réttur samviskulegur “Magna Carta” norsku kirkjunnar. Biskupar Noregs allir sjö risu upp á móti þessu og rituðu bréf til Menta- og kirkjumálaráðherra Noregs, Ragnars Skancke, og í því fordæmdu aðferð stjórnarinn ar út af ofsóknum þeim, sem hafðar voru í frammi, af her- mönnum stjórnarinnar, ofsókn- inni sjálfri á hendur mentastofn- unum landsins, með því að neyða hæstaréttar dómara landsins til þess að leggja niður embætti sín og kröfðust þess að fá að vita hvort að Noregur væri enn kristinn, eða ekki. Þegar bréf þetta barst til Skancke í hendur var Heinrich Himmler staddur í Noregi og bæði af ótta við hann og eins máske það, að honum var ant um að láta svo sýnast að sem mest ró ríkti í landinu, þá stakk hann bréfi biskupanna undir stól. Biskuparnir biðu svars í nokkr ar vikur, en þegar ekkert svar kom fóru þrír þeirra á fund Skancke og sögðu honum skýrt og skorinort að þess væri engin von að kirkjan þegði þegar orð guðs væri að vettugi virt. Skancke svaraði: “Hugsunar- laust flan nú, getur haft hinar háskalegustu afleiðingar fyrir kirkjuna.” (Frh. á bls. 7) Business and Professional Cards DR. A. BLONDAL Phyaician £ Surgeon «02 MEDICAL ARTS BLDO Sími 22 296 Heimili: 108 Chataway Sími 61 023 Dr. S. J. Johannesson 215 RUBT STREET (Beint suCur af Banninsr) Talsfmi 30 877 • Viðtalatími 3—5 e. h DR. A. V. JOHNSON Denti8t • 6 06 SOMERSET BLDG. TeUphone 8 8 12 4 Home Telephone 202 398 Dr. E. JOHNSON 304 Eveline St. Selkirk Office hrs. 2.30—6 P.M. Phone office 26. Res. 230 Fiá vini Office Phone Res. Phone 88 033 72 409 Dr. L. A. Sigurdson 166 MEDICAL ARTS BLDG. Office Hours: 4 p.m.—6 p.m. ond by appolntment DR. ROBERT BLACK Sérfræðingrur I Augna, Eyrna, nef og hálssjflkdómum 416 Medical Arts Building, Graham and Kennedy St. Skrifstofuslmi 22 251 Heimaslmi 42 154 DRS. H. R. and H. W. TWEED Tannlœknar • 406 TORONTO OEN. TRCSTS BUILDINQ Cor. Portage Ave. og Sniith St. PHONE 26 545 WINNIPÉÓ EYOLFSON’S drlg PARK RIVER, N.D. tslenzkur lyfsali Tölk getur pantaS meðul og annaS meS pösti. Fljöt afgreiSsla. A. S. BARDAL 848 SHERBROOK ST. Selur Ukkistur og annast um út- farlr. Allur fltbflnaSur sá beati. Ennfremur selur hann allskonar minnisvarSa og legstelna. Skrifstofu talslmi 86 607 Heimilis talsími 26 444 Itlei/ea Studio (pryesi PhMctyrc^kcO •< y s JjiiL OifanijatimSi Canaam 224 Notre Dame- fHONE 96 647 y Legsteinar sem skara framúr Orvals blágrýti og Manitoba marmari SkrifiS eftir verðskrd GILLIS QUARRIES. LTD. 1400 SPRUCE ST. Winnipeg, Man. HALDOR HALDORSON bygpingameistari 23 Music and Art Building Broadway and Hargrave Winnipeg, Canada Phone 21 455 J. J. SWANSON & CO. LIMITED 808 AVENUE BLDG., WPQ. • Fastelgnasalar. Leigja hfls. Út- vega peningalán og eldsábyrgC. bffrelSa&byrgS, o. s. frv. Phone 26 821 INSURE your property with HOME SECURITIES LTD. 468 MAIN ST. Leo E. Johnson A. I. I. A. Mgr. Phones Bus. 23 377 Res. 39 433 TELEPHONE 96 010 H. J. PALMASON & CO. Chartered Accountants 1101 McARTHUR BUILDING WINNIPEO, CANADA Phone 49 469 Radio Service Specíalists ELEGTRONIC LABS. H. THORKELSON, Prop. The most up-to-date Sound Equipment System. 130 OSBORNE ST., WINNIPEG ANDREWS, ANDREWS THORVALDSON AND EGGERTSON L ögfræOingar 109 Bank of Nova Scotla. Bldg Portage og Garry 8t. Sími 98 291 Blóm stundvíslega afgreidd Tffi RQSERY lto StofnaC 1905 427 Portage Ave. Winnipeg. 6IINDRY & PYMORE LTD. Brittoh Quality — Ftoh Nettlng 60 VICTORIA STREB3T Phone 98 211 Wlnnlpeg Manager. T. R. THORVALDBOS Tour patronage wlU be sppreclated G. F. Jonasson, Pres. í* Man. Dtr. S. M. Backman, Sec. Keystone Fisheries Limited 404 Scott Block Wholesale Distributors of FRESH AND FROZEN FI8H MANITOBA FISHERIES WINNIPEO, MAN. T. Bercovitch, framkv.st). Verzla ( heildsölu meO nýjan og froslnn flsk. 303 OWBNA ST. Skrlfstofuslmi 26 855 Heimaslmi 55 463 CANADIAN FISH PRODUCERS, LTD. /. B. Page, Manaplng Director Wholesale Distributo.rs of Fresh and Frozen Flsh. 311 Chambers St. Ófílce Phone S? 651. Res Phone 73 917.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.