Lögberg - 11.01.1945, Blaðsíða 7

Lögberg - 11.01.1945, Blaðsíða 7
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 11. JANÚAR, 1945 7 Firðir*á íslandi Stúlkur og drengir: Nú skulum við athuga kortið af íslandi. Þið takið strax eftir því að strendur íslands eru vog- skornar að vestan, norðan og austan. Þar eru allstaðar ágætar hafnir. Suðurströnd landsins er hafnlaus. Við skulum stíga á skip í Reykjavík og sigla norður. Við munum fyrst sigla yfir tvo mestu flóa landsins — Faxaflóa og vertu blessað, blessi þig blessað nafnið hans. Oröasafn. Firðir — fiords, bays, inlets, firths. strendur — coastline. vogskornar — indented. vestan — west. norðan — north. austan — east. hafnir — harbors. hafnlaus — without harbors. stíga á skip — go on board. Breiðafjörð. Finnið þá á kortinu. Þeir eru báðir breiðir og inn úr þeim skerast margir firðir, smá- ir og stórir. Næst komum við til Vest- fjarða. Þeir eru langir og djúp- ir og skerast upp að sæbröttum hlíðum og hömrum. Finnið Arnarfjörð og ísafjarðardjúp. ísafjörður er bezta höfnin á land- inu. Nú siglum við austur með Norðurströndinni og komum inn á stóran flóa. Það er Húnaflói. Inn af honum eru margir smærri firðir svo sem Hrútafjörður, sem nær lengst inn í landið. Næst fyrir austan Húnaflóa, er Skagafjörður, þá komum við til Eyjafjarðar, sem er lengsti fjörður landsins. Þá er Skjálf- andafljót og aujstast er Axa- fjörður og Þistilfjörður. Nú siglum við suður með austurströndinni. Hún er hálend ög sæbrött og margir firðir sker- ast inn í hana. Þessir firðir eru djúpir og mjóir svo að þeir mynda ágætar hafnir. Lengsti og breiðasti fjörðurinn á Austur- ströndinni er Reyðarfjörður. Finnið Vopnafjörð og Seyðis- fjörð. Islendingar bera mikla ást til átthaga sinna og síns fagra lands Stundum nefna þeir sig eftir firðinum þar sem þeir voru fæddir og kalla sig Breiðfirðinga Isfirðinga, Eyfirðinga, Vopnfirð- inga o. s. frv. Spyrjið afa ykkar og ömmu, hvaðan þau séu af landinu. Fyrir tvö hundruð árum síðan var uppi í íslandi mikill ættjarð- arvinur og skáld, sem hét Eggert Ólafsson. Hann var Breiðfirðing- ur. Hann orkti um ísland mörg undurfögur ljóð. Eitt þeirra er svona: ísland ögrum skorið eg vil nefna þig! sem á brjóstum borið °g blessað hefur mig íyrir skikkun skaparans, flóar — bays, large firths, gulfs. breiðir — broad, wide. skerast — cut, form indentations. djúpir — deep. sæbröttum — steep towards the sea. hlíðum — slopes, mountain side. hömrum — crags, rocks. smærri — smaller. nær — reaches hálend — elevated, high. mjóir — narrow. ást — love, affection. átthagar — one’s native place, birthplace. fæddur — born. var uppi — lived. ættjarðarvinur — patriot. skáld — poet. orkti — composed a poem. ljóð — poems. Klippið kortið af íslandi úr blaðinu og límið það í bækurnar ykkar. Ykkur mun ganga betur að læra ef þið hafið það við hendina. Huldukona. Hið bezta Barnaskólinn stóð í útjaðri bæjarins, byggingin var stór og fögur. — Þetta var nýtízku skólahús. í einni kennslustofunni stóð kennarinn ennþá við borð sitt. Hann hristi höfuðið gremjulega. Gráa, síða hárið á liöfði hans fauk til, gleraugun hoppuðu á nefinu. Hann kastaði stílabóka- bunka niður í skúffuna. Kennarinn leit hvössum rann- sakandi augum yfir nemenda- hópinn. “Lárus er sá eini sem hefir reiknað eins og maður. Þið hinir — 28 — eruð meiri og minni — þorskhausar.” Óánægjusuða heyrðist um all- an bekkinn, suða eins og í hund- um þegar einum úr hundahópn-, um er gefið kjötbein. Kennarinn tók ekki eftir urr- inu. Hann gekk áleiðis til dyr- anna. En hann staðnæmdist á miðri leið, leit yfir hópinn. “Not- ið tímann vel börnin góð. Það er nauðsynlegt,” sagði hann. Svo sneri hann sér að dreng í fyrstu röð og mælti: “Hérna er bókin þín, Lárus. Þú hefir fengið hæstu einkunn, sem gefin er. Þú skalt fara heim með bókina. — Klukkan hringdi. Skólatím- inn þennan dag, var liðinn. Nem- endurnir fóru út og héldu heim- leiðis. Lárus hélt bókinni í hendinni ósegjanlega ánægður og friðu: fyllti hjarta hans. Hann var dug- legasti nemandinn. Fyrir skömmu hafði kennarinn hans sagt við móður Lárusar. “Lárus skilur vel, hugsar fljótt, er næm- ur og minnisgóður. Hann er besti nemandinn minn.” Móðirin hafði þá grátið af gleði. Móðir Lárusar grét oft af sorg- um sínum. Og Lárus átti ekki æðra mið en að gleðja mömmu sína. Lárus var lítill, grannvaxinn og blóðlítill níu ára snáði með litlar kinnar, en langan háls. Aug un voru skær og gáfuleg. Hann var látlaus, næstum feiminn. Hann var í bláum, hreinum bættum fötum, með tréskó á fótunum. Hann var í hálfsokk- um og á leikfimisskóm. Úti var himininn heiður og hægur andvari. Trén höfðu felit lauf sín. Lágu laufhrúgur víða. — Lárus tölti heim á leið með reikningsbókina sína. Hann gekk sem oftast einn síns liðs. Strák- arnir stríddu honum svo oft. Þeim var flestum illa við hann vegna þess að hann var efstur í bekknum. Og þeir fyrirlitu hann fyrir kraftleysi hans. Svo þótti þeim Lárus huglaus. Hann vildi aldrei berjast við þá. Þeir nefndu hann bleyðu. Lárus leit í kringum sig. Allt sýndist hættulaust. Hann fór aft- ur að hugsa um móður sína. Hann fór að hlaupa. Hann dansaði af gleði yfir stokk og steina. Nú var hann kominn að veginum sem lá heim til hans. En á miðri götunni var stóri hundurinn hans Frans. Lárus þekkti Hektor. Eig- andi hans hafði oft verið sektað- ur fyrir hundinn. En hann lét þrátt fyrir það hundinn ganga lausan. Lárus þorði ekki að ganga fram hjá Hektor. Hann var svo hræddur við seppa. Lárus stóð á horninu og horfði á hundinn þar sem hann lá. Að hvaða gagni kom honum nú að vera efstur í bekknum. Þar sem hann var huglaús og hræddur við einn hund. Líklega væri betra að vera stór og sterkur en gáfaður. Vegurjnn var mannlaus. Það var komið rökkur. Stormurinn hafði aukist, og laufið þeyttist um allt. — Lárusi leið illa. Hann vissi að móðir hans mundi verða hrædd um drenginn sinn. Hann var líka orðinn svangur. Lárus gekk að plankagirðingu og brast í grát. Hann ætlaði að lesa Faðir- vor og Trúarjátninguna, en kunni það ekki vel. Og tárin runnu niður kinnarnar. — Lárus leit upp. Hann sá frú Schröder hina feitu. Hún var nágranna- kona hans. Hún bar marga bögla og tösku. Vindurinn gerði frúnni örðugt um gang. Hún virtist ætla að missa jafnvægið annað slag- ið. Lárus var orðinn máttlaus af sulti og ótta. Honum kom til hugar að líklega mundi Hektor frekar bíta í fætur frú Schröder en hans. — Fótleggir hans voru berir, en frúin var í heilsokk- um, svo bit hundsins yrði ekki eins sár. Lárus lyfti húfunni og bauð frú Schröder að bera töskur fyr- ir hana. Frúin varð fegin og brosti vingjarnlega. Lárus hafði alltaf augun á Hektor. Hann gat tæplega gengið fyrir hræðslu. Hundurinn kom 4 móti þeim. — Hann kom nær. — Síðast greip Lárus í pils frúarinnar. Hann svimaði og það leið yfir hann. Um kvöldið lá Lárus í rúminu með bakstra við höfuðverknum. — Hann var nokkurn veginr. kominn til sjálfs sín. Hann var búinn að borða. Frú Schröder hafði sent Lárusi sælgæti. Það var hann líka búinn með. Er móðir hans kom að rúmi hans spurði hann: “Beit Hektor frú Schröder?” “Nei, drengur minn. Hvernig kom þér það til hugar?” “Mamma, eg óskaði að hann biti frúna en ekki mig.” Móðirin horfði óttaslegin á hann og lagfærði baksturinn. “Þú ert varla búinn að ná þér eftir yfirliðið, auminginn.” “Mamma! Álítur þú það ekki allra best að vera góður maður?” Augu móðurinnar urðu vot af undrun og aðdáun. — “Jú það er rétt Lárus minn, en þú mátt ekki hugsa mikið nú.” — Vind- urinn hvein úti. Lárus breiddi yfirsængina upp yfir höfuðið. Hann var ánægður yfir því að Hektor beit ekki frúna. — Hann bað guð að gefa sér æfinlega góða samvisku. Bað hann að forða sér að gera öðr- um^ illt. Lárus skildi að gáfur og þrek voru góðar gjafir. En það, að vera góður maður, væri þó hið besta. Lárus sofnaði með þessi orð á vörunum. “Góði guð verndaðu mig frá synd og sorg. Láttu engla þína gæta mín.” Jóh. Scheving, þýddi. Fálkinn. Biskupinn og Quisling (Frh. af bls. 3) Svar biskupanna var hirðis- bréf, sem þeir sendu út og les- ið var við hverja einustu guðs- þjónustu í landinu: “Þegar stjórnin hefir meðlíðan með ó- dáðaverkum, órétti og ranskar sálarfriði manna, þá er kirkjan verndari meðvitundarinnar,” stendur þar. “Skógurinn mikli”, var kom- inn í bál, og eldurinn læsti sig landshornanna á milli. Hirðis- bréfið var lesið frá einum pré- dikunarstólnum eftir annan, þrátt fyrir það, að Nazi lögregl- an var viðstödd, með barefli í höndum, til þess að aftra því. Prentsmiðjurnar um alt landið prentuðu það í þúsundum ein- taka. Berggrav biskup sagði. “Þegar sannleikurinn verður oss heilagt mál, þá er það, að oss veitist styrkur til píslar votts.” Við þessa ósegjanlegu mót- stöðu kirkjunnar manna, urðu Nazista yfirvöldin smeik. Ótt- uðust uppreisn alþýðunnar og slökuðu á klónni með ódæðis- verk sín. Árið 1941 kunngjörði Hitler að hann væri ákveðinn í að eyði- leggja Bolshevik hættuna í heim inum og út af því fagnaðaráformi vonaðist Skancke ráðherra eftir að geta náð samvinnu aftur við kirkjuleiðtogana í Noregi, en það brást, svarið sem hann fékk við þeirri málaleitun frá Berggrav biskupi var: “Á fundi sem bisk - uparnir héldu, kom strlðspólitÍK auðvitað ekki til umræðu”. Blöð Nazistanna urðu hamslaus út af þessum undirtektum og Quisling hrópaði: “Trúin er úrelt og a eftir tímanum.” . Við þurfum ekki að láta óttann ■yfirbuga oss. 1 tvö ár hafði'Quisling látið frekar lítið á sér bera. Nú 1. febrúar, 1942, er hann gerður að einræðisherra yfir Noregi og var þess viðburðar minst með hátíða haldi miklu í Askerlíns kastal- anum í Oslo, en Oslo búar létu sig þá hátíð litlu varða. En aft- ur þann sama dag, sóttu þúsund- ir manna til Dómkirkjunnar; þegar mannfjöldinn kom að kirkjunni var einn af þjónum Quisling að syngja yfir mönn- um sínum lofgjörðar messu, þó fáir væru tilheyrendur hans. Mannfjöldinn á torginu og í göt- unum í kirkjuna beið eftir-messu sem prófasturinn Árni Fjellbu ætlaði að syngja kl. 2 e. h. En rétt áður en messa prófastsins byrjaði, kom hópur að Nazi lög- reglumönnum með barefli og bönnuðu fólki inngöngu í kirkj- una. Fólkið tók þessu með hóg- værðj. Stóð kyrt og þegjandi dáitla stund. Svo byrjaði ein- hver sálminn ógleymanlega: Vor guð er borg á bjargi traust og á augabragði tóku allar þúsundirn- ar undir og sungu með öllum þeim mætti sem þær áttu yfir að ráða: “Þótt djöflum fyllist veröld víð, þeim vinst ei oss að hrella. Því Jesú vor oss, veikum lýð, er vörn og hjálparhella.” En inni í kirkjunni söng pró- fastur messu yfir þeim fáu, sem inn komust, og agði út af þess- um orðum Péturs: “Við höfum yfirgefið allt, og fylgt þér.” Þessi textaorð urðu fyrir boði stórtíðinda í kirkjulífi Norð- manna. Stuttu eftir að Árni prófastur flutti þessa prédikun í Niðarósi var honum vikið úr embætti fyrir mótþróa hans gegn Nazistum. Á Páskadaginn 1942 fluttu 861 prestar páska prédik- un í Noregi og að guðsþjónust- unni lokinni sögðu þeir allir, að undanteknum 64, lausum embætt um sínum. Með þessari stórkost- legu og aðdáanlegu, sjálfstæðis- yfirlýsingu losuðu þeir norsku kirkjuna úr ríkisviðjunum, — þeir gjörðu meira, þeir losuðu sjálfa sig við lifibrauð sitt og heimili og ekki nóg með það, heldur var þeim öllum ljóst að þetta stórkostlega tiltæki þeirra væri líklegt að leiða til fangelsis- vistar og dauða. Einn þeirra Árni Thu, prestur frá Vestbý lét líf sitt í s. 1. júní mánuði eftir að vera búinn að vera lengri tíma í svokölluðu gæzluvarðhaldi í Grini, og mæta óhemju pynting- um, svo sem að hafa báðar hend- ur bundnar á bak sér og vera svo neyddur til að skríða á hönd- um og knjám fleiri hundruð faðma, með fötu í munni sér, er fylt var með saur böðlunum til augnayndis. En allt var þetta árangurslaust, Árni lét ekki bug- ast, og hné sem hetja í dauðann, og allir hinir prestarnir að þess- um 64 undanskildum voru sam- mála um að halda áfram á brauc sjálfsfórnarinnar, og láta enga skipa sér fyrir um það, hvernig að kenna bæri guðs orð. Friður himinsins. Fuhrer Quisling var gerður einræðisherra í Noregi 1. febr. 1942, eins og sagt er hér að fram- an. 9. apríl lætur hann taka Berggrav biskup fastan ásamt fjórum öðrum leiðtogum kirkju- ráðsins. Þeim var öllum varpað í gæzluvarðhald í Grini. Viku síðar var Berggrav biskup tek- inn og fluttur einsamall í litla kofann og skógarfangelsið, sem hann hefir setið í síðan. Frá þeim löndum Evrópu, er fríuð hafa verið undan ánauðar- okinu, kemur ein sagan eftir aðra af kirkjunnar mönnum, sem stað ið hafa á móti broddum Nazist- anna af frábærri hreysti og. af endurnýjuðum trúarstyrk fólks- ins. Hreystisögur Norðmanna hafa enn ekki verið sagðar, því þeir eru enn undir oki Nazist- anna, en þær eru til og verða sagðar þegar þeir mega frjálst mæla, samt er það vitanlegt, að þjóðræknu prestarnir norsku, sem var neitað um afnot kirkna sinna, og sem lifa nú á því litla sem söfnuðir þeirra geta miðlað þeim, hafa tífaldað tölu safnaðar fólks síns og frá Oslo kom sú frétt fyrir viku, að hinir and- legu óyfirunnu norsku menn séu á verði og vinni fjandmönnum sínum allt það ógagn er þeir megni og að þessir 50 til 60 Quisl ing prestar, messi í tómum kirkj- um. Stúlka í Noregi, ritar bróður sínum, sem er í her Breta: “Það er viðkvæði hjá Norðmönnum nú, “til þess að ókomnar kynslóð- ir fái lifað, verðum við að vera við því búin að fórna—fórna öllu og lífinu líka þegar með þarf. Þegar við erum hvorki óhult á heimilum okkar, né heldur okkar eigin landi þá er friður himins- ins einkennilega nálægur.” Allt þetta, veit og skilur Berg- grav biskup, þar sem hann situr einn nú um jólin í bjálkakofan- um litla inni í myrkviðarskógi Noregs, síðasta höggið, sem Naz- istarnir í Noregi greiða þessum sterka guðsmanni Noregs er, að varpa tveimur sonum hans, þeim Eyvindi og Dag í fangelsi á jóla- .daginn síðastliðinn. Lauslega þýtt úr Time. J. J. Bíldfell. HOMEBAKERS IfCtVt CCfH/Og, (ANADAS A TttotfPopulah COOK BOOK This 166-page GUIDE TO GOOD COOKING eontains over 800 test- ed recipes and com- plete range of cooking information . . . spiral bound, waterproof covers. More than one million copies in Cana- dian homes. MAILTHIS COUPON TO DAY Lake of the Woods Milling Co. Limited, Winnipeg ( W ) I enclose 40c (money order) íor which please send me FIVE ROSES Cook Book. Name ............................. Address ........................... IIVE ROSESFLOUR

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.