Lögberg - 08.02.1945, Blaðsíða 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 8. FEBRÚAR, 1945
5
ÁHUGAMÁL
■WENNA
Ritstjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON
Gjafir handa sjúklingum.
“Aumingja Jóna er á sjúkra-
húsinu; við verðum að gera eitt-
hvað fyrir hana.” Þetta segjum
við, og síðan sendum við henni
hlóm, sætindi eða bók. Þetta er
nú gott og blessað ei? flestir vin-
ir hennar hugsa á líkan hátt og
senda henni það sama. Fyrstu
vikuna verður svo herbergi Jónu
eins og blómabúð, en brátt visna
blómin, búið er að iesa bækurn-
ar og borða sætindin — og Jóna
er enn veik í rúminu.
Kunningjar gera vel að senda
þessar venjulegu gjafir en þegar
bezti vinur eða bezta vinkona
nranns á í hlut, þá reynir maður
að láta ímyndunarafl sitt og
hjarta leiðbeina sér í vali gjaf-
anna, engu síður en peningaráð
9ín.
Okkur er sagt að þegar sjúkl-
ingurinn sé farinn að beina hug-
anum að öðru en sjálfum sér og
sjúkdómi sínum, þá sé hann á
góðum batavegi. Við getum flýtt
fyrir batanum, með því að gefa
honum hitt og annað smávegis.
sem dregur huga hans frá veik-
mdunum og veitir honum
ánægju.
Eitthvað til að horfa á.
Á því stígi veikindanna, sem
sjúklingurinn er of máttfarinn
hl þess að reyna á sig, má gefa
honum eitthvað skemtilegt til
þess að horfa á. Það er afar
þreytandi að horfa á veggi sjúkra
herbergisins dag eftir dag. Smá-
fiskar í lítilli glerskál er tilvalin
gjöf. Það er gaman að horfa á
hinar skjótu hreyfingar þessara
gullnu smáfiska. Ef rúmið er
Malægt glugga, mætti koma þar
fyrir íláti með mat fyrir fugla.
^uglarnir myndu sækja þangað
°g sjúklingurinn hefði ánægju
af heimsókn þessara litlu gesta.
Ef til vill gætir þú lánað eitt-
hvað, t. d. radio eða victrola.
Ef þú gætir náð í eina af hinum
myndauðugu pöntunarbókum,
Sem stóru verzlunarfélögin gefa
ut. þá væri það ágæt gjöf, betri
en venjuleg bók, iþví það er auð-
Veldara að lesa hana. Ef að vinur
þinn hefur áhuga fyrir blóma-
raekt eða garðrækt, skaltu útvega
honum litfagra fræ pöntunarbók.
f’essar og aðrar bækur, sem eru
myndauðugar munu sjúklingn-
um kærkomnar á þessu stigi.
Eitthvað til að fegra útlitið.
Hinni veiku vinkonu þinni
mun líða svo miklu betur, ef hún
Veit að hún lítur eins vel út
eins og hægt er, þú gætir gefið
henni fallegan hárborða, treyju
eða náttkjól. Koddaver eða á-
breiðu í fallegum litum gerir
nmhverfið ánægjulegra. Ef sjúkl
mgurinn er mjög veikur, myndi
ún sannarlega meta það mikils
ef hárgreiðslustúlka gæti komiö
°g lagað hárið á henni.
Eitthvað til að starfa við.
f^egar sjúklingnum farí
safnast kraftar, langar han
Þess að hafa eitthvað fyrir st
áðu í litfagurt band og pi
nýjar patterns fyrir prjó
ekluverk eða dúka til að ss
ut í.
f*á mætti útvega sjúkling
°rð, sem hægt er að setja
raman hann á rúmið, og
Svo hann geti spilað við sj;
Slg- Þannig myndi tíminn
fljott.
Sumir hafa gaman af Cross-
gátum, sem klippa má úr
oðum og líma á stinnan pappír.
, rir hafa gaman af jig-saw
Sátum.
Mörg verzlunarfélög stofna til
Samkeppni í þeim tilgangi að
auglýsa vörur sínar og veita
verðlaun. Gefðu vinkonu þinni
umbúðlir af pakka af þessari
vöru, blað, penna og frímerkt
umslag. Hver veit nema að hún
hreppi verðlaunin og þó það
verði ekki, iþá ihefur hún haft
ánægjuna af því að dreyma um
það.
Eitthvað til tilbreytingar.
í sjúkra'húsum er alt fram-
kvæmt eftir föstum reglum. Til-
breytingaleysið verður afar þreyt
andi. Hvernig væri að að safna
skrítlum og senda vini þínum
eina skrítlu á dag? Þú gætir sím-
að honum skrítluna, sagt honum
hana þegar þú heimsækir hann,
eða sent póstspjald, sem eitt,-
hvað skringilegt er prentað á.
Vinur þinn mun hlakka mikið
til þess að heyra frá þér á hverj-
um degi. Ef fleiri sjúklingar eru
í herberginu, munu þeir einnig
hafa gaman af þessu. Hláturinn
er hið bezta meðal. Það er líka
góð hugmynd að senda gátu einn
daginn og ráðningu næsta dag.
Ef til vill hefur þú ekki ráð
á því að kaupa dýrar gjafir fyrir
vinkonu þína, en þú gætir senni-
lega gert henni eitthvað til þægð-
ar og skemtunar. Hvernig væri
það að bjóða henni að kaupa
fyrir hana í búðunum, það sem
hiún þarfnast; fara á bókasafniö
og útvega henni bókina, sem
hana langar til að lesa; vera
hjá henni á vissum tíma og lesa
fyrir hana eða hjálpa henni til
að svara bréfum? Þannig gefur
þú henni part af sjálfri þér og
það er góð gjöf. En ef þú lofar
henni einhverju, verður þú að
vera viss um að efna það, því
það hefur slæm áhrif á sjúkling
að verða fyrir vonbrigðum.
Á mörgum sjúkrahúsum er
hægt að leigja síma með því að
borga lítið gjald vikulega. Það
gleður sjúklinginn mikið að geta
verið þannig í sambandi við um-
heiminn. Óvænt glaðning, eins
og bréf eða símtal er honum
meira ánægjuefni en við gerum
okkur grein fyrir.
Ef við gefum ímyndunarafli
okkar lausan tauminn, getur
okkur hugkvæmst hitt og annað,
sem mun gera sjúkrahús veru
vina okkar léttbærari og stuðla
að bata þeirra.
Kaffi og kaffi er tvennt
ólíkt
Hvernig stendur á því, að sum-
ar konur laga gott kaffi úr sama
kaffi og aðrar laga vont?
Það virðist sannarlega ekki
vandasamt verk að hella á könn-
una, og þó tekst þetta svo mjög
misjafnlega, eins og þið kannist
allar við.
I sumum húsum er kaffið allt-
af gott, í öðrum alltaf vont og í
öðrum gott annan daginn og
ódrekkandi hinn.
Hvernig má þetta vera?
Eg átti nýlega tal um þetta
við húsfreyju nokkra, sem er
ein þeirra, er alltaf lagar gott
kaffi og mikla reynslu hefir.
“Það er ein gullin regla,” sagði
þessi frú mér, “sem mér er ó-
hætt að mæla með, og hún er að
“hella á” um leið og vatnið sýð-
ur. Láta það ekki sjóðja um
stund og hella síðan á, heldur
hafa gát á því og hella á könn-
una um leið og vatnið sýður.”
Þessa reglu sendi eg svo áleiðis
til þeirra, er reyna vilja, og eg
vænti þess, að þær komizt í hóp
þeirra kvenna, sem altaf og alls
staðar er hrósað fyrir gott kaffi.
Sama regla gildir, þegar te er
lagað.
Englendingar eru sagðir
manna slyngastir við að laga te
og drekka það afar mikið. Ef
þú spyrðir þá, hvernig þeir lög-
uðu te, myndirðu fá svar eitt-
hvað á þessa leið:
— Hitaðu teketilinn, láttu í
hann eina teskeið af tei á mann
og eina að auki fyrir ketilinn.
Hafðu svo ketilinn fast við vatns-
pottinn og helltu á um leið og
sýður. —
Þetta segja þeir um teiið, en í
kaffigerð held eg að við lærum
lítið af þeim, því að þar segjast
þeir vilja læra af okkur.
Reynið nú næst, þegar þið
“'hellið á”, — eða “hellið upp á”.
eins og sumir segja, þessa gullnu
reglu og vitið, hver árangurinn
verður!
FRÖNS-MÖT
Hin tuttugasta og fimta árs-
h á t í ð þjóðræknisdeildarinnar
Frón, er rétt á bak við næsta
leiti. Þessi vinsæla samkoma
sem ætíð er haldin síðast í Feb-
rúar, er venjulega svo fjölsótt að
til vandræða hefir stefnt meó
húsrými, og stjórninni stundum
álasað fyrir óframsýni í þeim
efnum.
Til þess að fyrirbyggja þau
óþægindi, hefir stjórnarnefndin
ákveðið að halda mótið í þetta
sinn, í fyrstu lútersku kirkju á
Victor stræti, sem safnaðar-
nefndin hefir góðfúslega lánað.
Skemtiskráin fer fram í aðal
sal kirkjunnar, en veitingar í
kjallaranum. Dans verður eins
og venjulega og á sama stað og
undanfarin ár — í húsi Good
Templara á Sargent og McGee.
Nefndin vonar að þessi ný-
breytni mælist vel fyrir og fyrir-
byggi öll ólþægindi er of þröngur
stakkur veldur.
Hvað skemtiskránni viðvíkur,
skal ekki löngu máli varið, að-
eins geta þess að hún verður
prýðileg að vanda og vísast þar
til auglýsinga í íslenzku blöð-
unum.
•
Tuttugu og fimm ára aldur
eða starfsafmæli, eru allmerk
tímamót í æfi og starfsferli ein-
staklinga og stofnana. Á þeim
aldri eru allir einstaklingar
orðnir fullveðja í öllum skiln-
ingi, ef þeir annárs verða það
nokkurntama.
Þér, forystumenn þjóðræknis-
samtakanna, lítið nú um öxl eftir
aldar fjórðungs starf; rifjið upp
gamlar endurminningar og fetið
í huganum til baka fornar slóðir;
leitið upp gömul leiða- og kenni-
merki á farinni braut, og þér
munuð sjá að verk yðar og fyrir-
höfn hafa borið góðann vöxt.
Þér munið kannast við margann
þrítugann hamarinn er varð að
klýfa, ægilega boða og blindsker
er nauðsyn bar til að sneiða
fyrir, mörg einstigin er varð að
þræða og margt gjörningaveðrið
er áttayiti heilbriðrar skynsemi
fann heppilega leið út úr; þegar
þar við bættist misvindi íslenzk-
ra lyndiseinkunna, verður ekki
með fullum rétti annað sagt en
vel hafi tekist starfið. og að þér
hafið “komið, séð og sigrað.”
Fyrir mátt og atbeina þjóð-
ræknissamtakanna á liðnum ald-
arfjórðungi, hafa margir lúðir
og jafnvel slitnir þræðir er til
forna lágu frá hjartarótum ein-
staklinga beggjamegin hafsins,
er höfðu sumpart vegna fjarlægð
ar, ef til vill stundum fyrir sinnu-
leysi og gleymsku, ekki þolað
tímans tönn, vígst að nýju í
glóðum gamalla og kærra minn-
inga til nýrrar og framhaldandi
vináttu og kærleika. Þeim ein-
staklingum er hafa borið svo af-
drifarík vinaboð milli eystri og
vestri íslendinga, hvort heldur
með nærveru sinni í eigin per-
sónu, eða með ritum og ræðum,
er allur þorri manna stórlega
þakkarskyldugur.
Að hinu leitinu verður að við-
urkenna að átök þjóðræknis-
samtakanna hafa á stundum
ekki verið svo samfeld og ein-
huga sem bezt hefði mátt kjósa,
munu þar liggja til ýmsar ástæð-
ur, meðal annars, ef til vill, hin
alkunna deilugirni sem Islend-
ingar eru frægir fyrir. Það ma
gjöra of mikið af öllu og van-
brúka þannig beztu gjafir skap-
arans, en hamingjan náði oss eí
vér hættum öllum deilumálum;
þar sem engann greinir á um
neitt við neinn, ríkir andlegur
og eiMfur svefn, og allir fallast
í faðma í svefnrofunum í skoð-
analausri einingu.
Skoðanaskifting um almenn
mál, er jafn nauðsynleg félags-
legri framþróun og sjálft and-
rúmsloftið er viðhaldi lífsins, sé
slíkt innan vissra vébanda og
heill og farsæld málefnisins og
fjöldans höfð að stemnumarki.
En vonandi verðum vér aldrei
haldnir af þeim dulda ótta, er
einkennir einstaklingsframtakið
og samkeppnina—og sem stund-
um er ekki alveg ástæðulaus —
að einn kunni að öðlast fé og
frama á kostnað fjöldans, eða
vér lítum á annara vegtillur sem
vort eigið persónulega tap og
látum slíkt hamla framkvæmd-
um á sviði félagsmálanna.
Þrátt f y r i r margvíslegann
þjóðernislegann ávinning síðasta
aldarfjórðung, hafa samtökin
hlotið mörg tilfinnanleg svöðu-
sár, með fráfalli ýmsra eldri Is-
lendinga — manna og kvenna—
er voru hinar lifandi og hald-
góðu r æ t u r hins félagslega
meiðs. Verða þau töp seint að
fullu bætt, og það því fremur
sem vér höfum ekki borið gæfu
til á tímabili að vekja nægilega
athygli hinnar yngri kynslóðar
á málefnum vorum, voru þeir
kraftar því að mestu tapaðir, að
fráskyldum einstökum undan-
tekningum. En nú er sem betur
fer úr þessu bætt með sérsam-
tökum y n g r i íslendiriganna,
“The lcelandic Canadian Club. ’
Að sú vakning birtist ekki fyr,
má vel vera mistökum þjóð-
ræknisfélagsins að kenna, um
það skal ekki deilt hér, en nauð-
synlegt væri að draga þar af
réttar ályktanir á komandi tíma.
Óneitanlega væri fróðlegt að
fá glögga og sjálfstæða greinar-
gerð yfir þjóðræknishreyfing-
una frá upphafi og til þessa dags;
margur hefir ritað langt mál um
ómerkara efni. Frá hvaða hlið
sem litið er á þessi mál, mundi
ítarleg, óvilhöll og heilsiteypt
saga þessarar hreyfingar dæmast
tímabær og mörgum kærkomin.
Hversvegna grípur ekki ein-
hver frumherjinn, sem enn er
með oss, tækifærið meðan tími
er til, og skjalfestir eftir eigin
minni og reynzlu — ekki aðeins
höfuðdrætti, heldur einnig
smærri atvik og öll drög er
standa að þessari aldarfjórðungs
starfssögu ?
Vafalaust verður slíkt rit sam-
ið fyr eða síðar, en væri það
gjönt nú þegar, mundi einhve>~
framtíðar rithöfundurinn losna
við að nota þá hæpnu aðferð í
sagnaritun, að treysta of mjög
á spádómsgáfu sína og getspeki.
við uppfyllingu tapaðra og
týndra atvika, sem tíminn þá
hefði numið burt úr viðburða-
heildinni.
Sá maður sem framkvæmdi
þetta þarfaverk, yrði að sjálf-
sögðu að hafa verið nátengdur
þjóðræknishreyfingunni f r a
byrjun, og þess utan að vera
gæddur þeirri einstöku gáfu,
að geta lýst rétt og hlutdrægnis-
laust þeirri viðburðarkeðju, sem
hann sjálfur átti þátt í að mynda,
hlekk eftir hlekk. alt fram á
þennan dag.
Hjartans þökk sé goldin—ekki
einungis þeim sem hafa klofið
strauminn fjórða-part úr öld,
heldur einnig hinum er hafa
staðið afsíðis, hljóðlega og yfir-
læitislaust, en sífelt verið fyrir-
mynd í drengskap og manndómi
í hvívetna.
Jónbjörn Gíslason.
•
Atlhs.: Þó þetta sé tuttugasta
og fimta ársmót Fróns er Þjóð-
ræknisfélagið nú í vetur tuttugu
og sex ára gamalt. — J. G.
THORVALDUR. GUNNARSSON
THORWALD
12. desember s. 1., andaðist í
Stillwater, Minnesota, öldung-
urinn Þorvaldur Gunnarsson
Thorwáld, eftir tveggja ára elli-
lasileika og fjölda mánaða sjúkra-
húsvist. Var hann fæddur á
Skefilstöðum í Skagafjarðar-
sýslu, 30. des. 1853, en sonur
Gunnars Guðmundssonar og Sig-
urlaugar Þorvaldsdóttur, sem var
komin af hinni nafnkunnu Skíða
staða ætt í Laxárdál í Skaga-
firði.
Hinn 21. sept. 1884, kvæntist
hann skáldkonunni Jóhönnu
Soffíu Jóhannesardóttur, sem var
af merkum ættum komin en
fædd á Valdalæk á Vatnsnesi í
Húnavatnssýslu. Reistu þau bú
á Borgarlæk á Skaga í Skaga-
firði þar sem þau dvöldu í all-
mörg ár. En um aldamótin fluttu
þau til Canada, en fáum árum
síðar til Stillwater.
Þorvaldur og Jóhanna áttu
mörg börn. Sex dætur náðu full-
orðins aldri, en þær eru: Amalia
Hinz, í Wisconsin; Laufey Todd,
í San Francisko, Calif.; Sigrún
Olson, í Stillwater, Minnesota;
Matthildur Flowers, í Verdugo
City, Cálif.; Maria Blaine, í
Iowa. En Minerva Olson dó fyrir
nokkrum árum í Los Angeles,
California.
Með Þorvaldi er hniginn í val-
inn einn af þessum góðu og
gömlu íslenzku mönnum sinnat
tíðar, samviskusamur, vel gefinn
til sálar og Mkama, og sem að
sá vel fyrir sér og sínum, með
högum og vel vinnandi höndum
sínum. Var hann smiður góður
og formaður árum saman á opn-
um skipum, en mörg síðustu ár-
in stjórnaði hann lyftu í einni
af stærstu byggingum borgarinn-
ar. Þar sem þessi þöguli, en þó
glaðlegi maður, með hrafntinnu-
svart hár og brúnu augun, flutti
hinn margbreytilega lýð upp og
niður, sem að dyrum hans bar.
Á efri árum hafði Þorvaldur
aðhylst kaþólska trú, og í þeirri
trú andaðist hann, sáttur vio
Guð og menn með skínandi
Skagafjörðinn fyrir sálarsjónum
sínum.
Útför hans fór fram 15. des.
s. 1., í St. Miöhaels grafreitnum
í Stillwater, að fjölda manns við-
stöddum.
Skúli S. Bjarnason.
PRÝÐILEG SAMKOMA
Mánudagskvöldið 29. f. m.,
hélt deildin “Frón” almennan
skemti-og fræðslu fund í Góð-
templara húsinu. Aðsókn var
ágæt. Forseti deildarinnar Guð-
mann Levy setti fundinn og
stjórnaði honum. Þakkaði þeim
sem styrkja lestrar félag ‘Fróns’
og gat þes að tveir hefðu sent
sína $10.00 hvor til styrktar les-
trarfélaginu, þau, Mrs. Ágúst
Pálsson og Ari Magnússon, og
væri það gott fordæmi fyrir
aðra.
Séra Theodór Sigurðsson flutti
þar prýðilaga samda ræðu, sem
þrungin var af ættjarðarást og
hvatningu til eldri sem yngri
hér í landi til viðhalds íslenzkri
tungu, sem hann sagði að væri
“móðir allra norðurlanda mála."
Veit eg að allir, sem þar voru og
heyrðu séra Theodór bera hlý-
hug og þakklæti til hans fyrir
það snjalla erindi.
Einn aðal-liðurinn á dags-
skránni var “galdramaður,” sem
sýndi alskonar missýningar. Var
það nýtt á fundum Fróns og til-
breytni góð. Veit eg að margir
hafa haft gaman af þeim göldr-
um, sem hann lék þar, og væri
eg ekki hissa á því að margir ai
þeim sem þar voru, séu enn að
brjóta heilann um, hvernig hann
gerði þessa galdra.
Samkoma þessi var hin ákjós-
anlegasta í alla staði og fór hið
bezta fram. /■— D. G.
immini
iiniH'iiiHiiNHiiiiHiminKnmiiii
Samkeppni nútímans
krefst sérmentunar
Æskulýður þessa lands, engu síður en annara þjóða,
krefst sérmenntunar, eigi hann að geta staðist próf
hinnar ströngu samkeppni á vettvangi viðskiptalífsins,
og af þessari ástæðu, er verzlunarskólamenntun í raun-
inni óumflýjanleg.
Vér höfum nú til sölu nokkur námskeið við fullkomn-
ustu verzlunarskóla Vesturlandsins, sem væntanlegir
nemendur ættu að færa sér sem allra fyrst í nyt; þeir,
sem slíkt hafa í hyggju, ættu að snúa sér tafarlaust til
skrifstofu LÖGBERGS
695 Sargent Avenue, Winnipeg
og leita þar nauðsynlegra upplýsinga; það borgar sig!
■
|
I
■miMUiiaiuiMUiiHiiiMiijJMmiaiimi
i:i.;h„<«
ms
IhuHIHtl
HONEBAKERS
£e*ul$o*b
IfCHVt CO/H/OÍ,
CANADAS 7
TftoitPofiiUah.
COOK
BOOK
This 166-page GUIDE
TO GOOD COOKING
contains over 800 test-
ed recipes and com-
plete range of cooking
information . . . spiral
bound, waterproof
covers. More than one
million copies in Cana-
dian homes.
MAILTHIS C0UP0N T0 DAY
Lake of the Woods Milling Co.
Limited, Winnipeg ( W )
I enclose 40c (money order) for which
please send me FIVE ROSES Cook Book.
Address .............................
FIVE ROSES Jtl-fbkfiM FLOUR