Lögberg - 08.02.1945, Síða 8
I
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 8. FEBRÚAR, 1945
Úr borg og bygð
Heimilisiðnaðarfélagið heldur
næsta fund sinn á heimili Mrs.
J. S. Gillies, 680 Banning St.,
á miðvikudagskvöldið þann 14.
þ. m., kl. 8.
Framkvæmdarnefnd kirkju-
félagsins hélt fund hér í borg-
inni í vikunni, sem leið; af utan-
bæjarprestum og leikmönnum,
sem í nefndinni eru, sátu fund-
inn Dr. Haraldur Sigmar, séra
E. H. Fáfnis, séra Sigurður Ólafs-
son, Mr. G. J. Oleson og Victor
Sturlaugsson.
I fyrri viku voru staddir í
borginni þeir Haraldur Ólafsson
og Kristján Guðmundsson frá
Mountain, N.D., og Mr. Gísli
Björnsson frá Glenboro.
•
Mr. Th. Thordarson kaupmað-
ur á Gimli, var staddur í borg-
inni fyrri part yfirstandand^
viku.
•
At the Annual Meeting of tho
Arborg Red Cross Branch,
reports showed a very success-
ful year, with a total amount
of $1.824.95 having been raised
and sent in to Headquarters.
During the year, 569 articles of
sewing, and 54 articles of knitt-
ing were also sent in, with
donations of 12 quilts, 1 afghan,
and other articles
Two raffles sponsored by the
M.F.A. brought in $206.70, and
a picture show given by Mr.
H. Diamond netted $68.80.
Mrs. G. T. Smith, Sec.
Gjafir til Betel í jan. 1945.
Mr. Thor Guðmundson, Can-
oouver, B.C., Maxson Estate
$48.00. Mrs. J. B. Johnson, Gimli,
Man. $10.00. Mr. Fred Bjarna-
son, Winnipeg, One box Icelandic
Books. Mr. Oli Lingholt Donat-
ion$2.00. Ónefndur, frá Lundar,
Man $10.00. Mrs. Áslaug Gauti,
Mr. og Mrs. Arthur Bjarnason og
Mr. og Mrs. J. M. Ólafson, öll aó
Wynyard, Sask. “í minningu um
einlæga vinkonu, Sessilíu John-
son, konu Steingríms Johnson,
Wynyard Sask., er dó 20. des.
1944.” $5.00. Elfros Kvenfélag, “í
minningu um okkar kæra heið-
ursmeðlim, Mrs. Thorbjörgu
Guðmundson, sem nýlega er lát-
in”. $5.00.
Með vinsamlegri þökk fyrir
þessar gjafir.
J. J. Swanson, féhirðir,
308 Avenue Bldg, Wpg.
•
Kvenfélag íslenzka lúterska
safnaðarins í Vancouver et að
efna til samkomu í fundarsal
dönsku kirkjunnar á E. 19th Ave.
og Burns St. kl. 8, þriðjudags-
kvöldið 13. febrúar, sprengi-
kvöld, sagt er að þar verði ýmis-
legt til skemtunar, meðal ann-
ars söngur fyrir alla, og svo sem
að sjálfsögðu vel úti látnar góð-
gjörðir.
•
Icelandic Canadian
Evening School.
Þann 22. janúar flutti Mrs. E.
P. Jónsson ágætt erindi, “The
Colonization of Greenland and
discovery of America”. Næsta
fræðslumót verður mánudags-
kvöldið 12. febrúar í Fyrstu lút.
kirkju, þá flytur séra H. E.
Jóhnson fyrirlestur um Snorra
Sturluson, sem byrjar stundvís-
lega kl. 8.15. íslenzku kenslan
byrjar kl. 9.
Aðgangur fyrir þá sem ekki
eru innritaðir, 25c.
Munið að koma stundvíslega.
H. D.
•
Þakkarorð.
Innilegustu þakkir vil eg undir
rituð, ásamt syni mínum, biðja
íslenzku blöðin að færa öllum
hinum mörgu vinum, er veittu
okkur svo mikla hjálp og sam-
úð við fráfall okkar elskulega
eiginmanns og föður.
Virðingarfyllst,
Jónína Thorlacius,
Steveston,
Lulu Island, B.C.
•
Leiðrétting.
í ræðu minni fyrir minni
Eggerts Stefánssonar söngvara, í
síðasta blaði, höfðu fallið úr tveir
setningahlutar í byrjun annarar
málsgreinar, svo að hugsun og
samhengi raskast. Byrjun máls-
greinarinnar átti að vera á þessa
leið:
“En mér er það einnig ánægju-
efni að taka þátt í þessum mann-
fagnaði af öðrum ástæðum. Rétt
eins og við vöxum af því and-
lega og menningarlega að varð-
veita og ávaxta sem best og sem
lengst dýrkeyptar og dýrmætar
menningarerfðir okkar, ■ vöxum
við af því, o. s. frv.”
R. Beck.
•
Hon. Solon Low, leiðtogi Socia.
Credit flokksins í Canada, held-
ur almennan fund í Playhouse
Theatre þann 19. þ. rr\. Aðgang-
ur 50c. Nánar auglýst síðar.
Mr. Low er mælskumaður mik
ill, og má því víst telja, að marga
fýsi að hlusta á hann.
•
íslendingamót verður haldið í
Fargo, N.-Dak., á föstudagskvöld-
ið þann 16. þ. m., byrjað verður
með borðhaldi, sem hefst kl. 7
e. h. Að lokinni máltíð verður
skemt með ræðum, kvikmynda-
sýningu, spilum og dansi; það
fólk, sem hefir í hyggju að sækja
mót þetta, er ámint um að gera
Dr. B. K. Björnssyni aðvart, að
1215 18th Ave. N., vegna nauðsyn
legs undirbúnings við mat og
annað.
Þetta verður mikilvægt þjóð-
ræknismót, sem telja má víst að
verði afar fjölsótt.
•
(t síðasta blaði slæddist sú
missögn, að Mr. Lincoln Johnson
hefði verið kosinn féhirðir fast-
eignasala samtakanna í Winni-
peg; hann var kosinn stjórnar
nefndarmaður, en bróðir hans,
Mr. Leo Johnson, endurkjörinn
til fóhirðis.
íslenzkir sjómenn sœmdir brezkum
heiðursmerkjum
Á laugardag afhenti brezki
sendiiherrann, herra Gerala
Shephard, þremur íslendingum
“British Empire” orðuna, fyrir
björgun brezkra sjómanna úr
sjávarháska. Orðuna hlutu þeir
Einar Jónsson hafnsögumaður,
Björn Guðmundsson skipstjóri
og Jón Axel Pétursson hafnsögu-
maður.
í ræðu, er sendiherrann héJt
við þetta tækifæri, skýrði hann
svo frá atvikum, að s. 1. vetur
strandaði herskip við Lundey í
myrkri og versta veðri. Gerði
brezkur dráttarbátur nokkrar
tilraunir til að koma skipverj-
um til hjálpar, en varð jafnan
að snúa aftur, því að veðurofs-
inn var afskaplegur, vindhrað’
128 km. á klukkustund.
Skömmu síðar létti ofurlítið
og fór þá dráttarbáturinn á
vettvang aftur og sást þá skips-
höfnin af hinu strandaða skipi
í Lundey. Er þetta var tilkynnt.
fór íslenzki dráttarbáturinn
Magni á vettvang, en þá var ekki
viðlit að komast upp í eyna til
hlés við hana. Var ákveðið að
varpa akkerum áveðurs við
skipsflakið, nálægt rifinu, og
senda bát á land aftur af Magna
í skjóli hans. Voru tvær ferðir
farnar og öllum mönnum bjarg-
að. —
Einar Jónsson hafnsögumaður
stjórnaði bátnum, sem bjargaði
mönnunum í 80 knu vindhraða;
var það algerlega hugrekki hans
og leikni að þakka.
Skipstjórinn á Magna, Björn
Guðmundsson, sýndi mikið hug-
rekki við stjórn á skipi sínu.
Sker voru þarna 90 metra frá
Útvarpsguðsþjónustu verður út-
varpað frá Fyrstu lútersku
kirkju, sunnudagskvöldið 25.
febrúar kl. 7, frá stöðinni CKY.
Guðsþjónustan fer fram á ís-
lenzku. Forseti kirkjufélagsins,
Dr. Haraldur Sigmar á Mountain
flytur prédikun.
skut og 45 metra frá stefni, og
lagði hann því í mikla hættu
með því að leggja svo nærri, að
hægt væri að koma taug frá björg
unarbátnum í land.
Jón Axel Pqtursson hafnsögu-
maður sýndi einnig mikið hug-
rekki við skyldustörf sín. ,
Vísir, 7. des.
•
Ameríkumaður hitti írlending
og var að fræða hann um bú-
jarðirnar í Vilta vestrinu. — Þar
er nú landrýmið það mikið, að
menn plægja sama plógfdrið frá
því á vorin beina leið það langt
fram á sumar, að þeir uppskera
kornið í því á heimleiðinni.
— Eg trúi því vel. svaraði Ir-
inn, — því að hjá okkur er land-
rýmið víða það mikið, að þegar
nýgift hjón fara út af örkinni
til þess að leita uppi kýrnar og
mjólka þær, er algengt, að stálp-
uð börn þeirra komi heim með
nytina úr kúnum.
•
Skuldheimtumaðurinn við
stúdent: “Klæðskerinn hefir fal-
ið mér að innheimta þessa
skuld.”
Stúdentinn: “Þá má eg óska
yður til hamingju með að hafa
fengið fasta stöðu.”
ÁRSFUNDUR.
Nefndin í Norðurhluta Nýja
íslands, sem stóð fyrir lýðveldis-
hátíðinni að Iðavelli við Hnausa,
þaian 17. júní síðastliðinn, held-
ur fund á skrifstofu sveitar-
stjórnarinnar í Árborg á sunnu-
daginn þann 18. þ. m. kl. 2.30 e.
h. Fundurinn verður settur
stundvíslega á hinum tiltekna
tíma; þetta er aðalfundur hátíðar
nefndarinnar, og er fólk ámint
um að fjölmenna.
G. O. Einarsson, skrifari.
Messuboð
Fyrsta lúterska kirkja
Séra Valdimar J. Eylands,
Heimili: 776 Victor St. Sími
29 017.
Guðsþjónustur á sunnudögum.
Kl. 11 f. h. á ensku.
Kl. 12.15 sunnudagaskóli.
Kl. 7 e. h. á íslenzku.
Söngæfingar:
Yngri söngflokkurinn á fimtu-
dögum kl. 8.
Eldri söngflokkurinn á föstu-
dögum kl. 8.
•
íslenzk guðsþjónusta í Van-
couver, kl. 7.30 e. h., sunnudag-
inn, 18. febrúar í dönsku kirkj-
unni á E. 19th Ave. og Burns
St. Séra Harald Sigmar frá
Seattle flytur guðsþjónustu.
Allir velkomnir.
R. Marteinsson.
•
Lúterska kirkjan í Selkirk.
Sunnudaginn 11. febrúar.
Sunnudagaskóli kl. 11 árd.
íslenzk messa kl. 7 síðd.
Allir boðnir velkomnir.
S. Ólafsson.
•
Sunnudaginn 11. febrúar prédik-
ar séra H. Sigmar í Mountain
kl. 2. e. h.
Eftir messu verður safnaðar-
fundur ihaldinn, aðal mál þar,
prestskosning.
Fólk alvarlega og vinsamlega
beðið að fjölmenna.
•
Prestakall Norður Nýja íslands.
11. febrúar — Árborg, ensk
messa kl. 2 e. h.
B. A. Bjarnason.
•
Föstuguðsþjónustur verða
haldnar í samkomusal fyrstu lút.
kirkju á miðvikudagskvöldum
frá 14. febrúar. Samkomur þess-
ar hefjast kl. 8. — Allir velkomn-
ir.
Wartime Prices and
Trade Board
Spurt. Eg er að hugsa um að
leigja út herbergi í húsinu, sem
við búum í, og vil fá að vita
hvort eg þurfi að fylgja nokkr-
um sérstökum reglugerðum frá
W P T B
Svar. Ef þú ætlar að leggja tii
öll húsgögn, allan rúmfatnað, og
halda öllu hreinu sjálf, þá mátt
þú ákveða leiguna og þarft ekki
að tilkynna leigunefndinni. Ef
þú leigir upp á aðra skilmála,
verður þú að láta W. P. T. B
ákveða leiguna.
Spurt. Mig langar til að leigja
út tvö herbergi með húsgögnum,
eg get lagt til alt sem þarf, nema
rúmföt. Hvaða leigu má eg setja?
Svar. Ef herbergin hafa aldrei
verið leigð út fyr, þá verður þu
að fó leiguna samþykta hjá
W. P. T. B. innan þrjátíu daga
fró því leigu samningarnir eru
gerðir. Ef 30 dagar eru þegar
liðnir, þá sem allra fyrst, vegna
þess að því lengur sem þaði
dregst, því erfiðara verður það
fyrir þig að gefa leigunefndinni
fullnægjandi skýringar á þessari
vanrækslu.
Spurt. Fyrir nokkru keypti eg
fatnað í smábúð. Vegná þess að
fatnaðurinn passaði ekki vei,
skilaði eg honum aftur, en í stað
þess að fá endurborgun var mér
sagt að eg yrði að taka aðrar
vörur í staðinn. Eg fann ekkert
í búðinni, sem mig langaði til að
kaupa, og vil fá að vita hvort
verzlanir megi halda peningum
undir svona kringumstæðum.
Svar. Svona viðskipti eru al-
veg óháð öllum reglugerðum
W. P. T. B. Verzlanir fylgja sín-
RJÖMATAP?
Þá þarfnast skilvindan
aðgerðar strax.
Aukinn rj6mi borgar kostnaðinn.
Við höfum áhöld til aðgerða við
aliur skilvindur. Margviðurkend
4 0 ára þjónusta — bein viðskipti,
engir umboðsmenn né aðrir milli-
liðir. pað borgar sig að semja
um aðgerir strax. Fljðt afgreiðsla.
Kostnaðaráætlanir afgi-eiddar í
snatri. I,A.t ið oss vita hvers þér
þarhfnist og munum vér þá end-
urnýja skilvindur yðar og gera
þær að fullu starfhæfar.
T. S. PETRIE
373 Bowman Are., Winnipeg.
um eigin siðvenjum í þessum
máium.
Spurt. Við fengum bréf frá
skömtunardeildinni þar sem beð-
ið var um skömtunarbók föður
okkar, sem dó, ekki alls fyrir,
löngu. Er það nauðsynlegt að
ónáða syrgjendur á þennan hátt?
Svar. Ef skömmtunarbók þess
látna hefði verið fengin útfar-
arstjóranum eða send til Local
Ration Board með nauðsynleg-
um skýringum, þá hefðuð þið
ekki þurft að verða fyrir þessu
ónæði.
Smjörseðlar númer 95 ganga í
gildi 8. febrúar. Munið að þessn’
seðlar falla ekki lengur úr gilai
mónaðarlega. Tímabilið er ótak-
markað.
Spurningum á íslenzku, svarað
á íslenzku af Mrs. Albert
Wathne, 700 Banning St., Wpg.
The Swan Manufacturmg Co.
Manufacturers of
SWAN WEATHER-STRIP
•Winnipeg.
Halldór Methusalems Swan
Eigandi
281 James Street Phone 22 641
Ambassador Beauty Salon
Nýtízku snyrtistofa
Allar tegundir af Permanents.
Islenzka töIuC á staðnum.
257 KENNEDY STREET,
fyrir sunnan Portage
Simi »2 716
S. II. Johnson, eigandi.
“CELLOTONE” CLEANING
SPECIALS
Suits - - - 59c
(Mens 2 or 3 piece)
Dresses - - 69c
(Plain 1 piece)
CASH AND CARRY
Other Cleaning Reduced
PHONE 37 261
PERTH’S
Minniát
BETEL
í erfðaskrám yðar
Rjóma sendendur!
pÉR OETIÐ FENGIÐ pETTA FAORA
OG LITAUÐGA
ALMANAK
með því að senda rjóma yðar til City
Dairy Limited, Winnipeg.
Grlpið tækifærið og fáið þetta óviðjafnan-
lega fagra Almanak og lcynnið yður hagn.
aðinn af því, að senda rjómann til City
Dairy, Winnipeg.
Skrifið STRAX eftir þessu sérstaka,
merkiseðla Almanaki.
Vegna ánægjulegs árangurs
sendið rjóma yðar til
City Dairy Ltd., Winnipeg
NÝ BÓK
“Björninn úr Bjarmalandi”
EFTIR ÞORSTEIN Þ. ÞORSTEINSSON
Yfirlit yfir þroskasögu Rússlands og helstu heimsviðburði
í síðastliðin 25 ár.
Verð: saumuð í góðri kápu $2.50 — í bandi $3.25.
Burðargjald 10 cent
Pantanir sendist til
THE COLUMBIA PRESS LIMITED
695 SARGENT AVE.
WINNIPEG MANITOBA
"Hið fagra Canada”
Raunveruiegt Laurent-
ians útsýni, eftir hinn
fræga lita- og ljósmynd-
ara Edward Van Altena.
\/ erum samtaka um stuðning við allar líknarstofnanir
hverju nafni, sem þær nefnast, og látum ekki undir
höfuð leggjast, að kaupa stríðssparnaðar skírteini.
DREWRYS.
HOUSEHOLDERS
--- ATTENTION —
We have most of the popular brands of coal in
stock at presenl, but we cannot guarantee that
we will have them for ihe whole season.
We would advise that you order your fuel at
once, giving us as long a time as possible for
delivery. This will enable us to serve you beiter.
MCfURDY CUPPLY fO. LTD.
V/BUILDERS'O SUPPLIES V/ and COAL
Phone 23 811—23 812 1034 Arlington St.