Lögberg - 05.04.1945, Síða 1

Lögberg - 05.04.1945, Síða 1
PHONE 21374 U«w'ioT IjO'1 n<l^eTS- A Complete Cleaning Institution NÚMER 14 Nafnkunnur rithöf- undur og fyrirlesari Kapteinn Peter Freuchen, ^anskur landkönnuður, vísinda- ^iaður og rithöfundur, kemur hingað til borgarinnar eftir til- hlutun Viking Club og flytur fyrirlestur í Orpheum leikhúsinu frmtudaginn 26. þ. m., kl. 8,30 e- h. Efni þessa fyrirlesturs verð- Ur “Underground Adventure” (Neðanjarðar æfintýri), og er lýsing á ástandinu í Danmörku síðan landið var hertekið og mót- stöðu sem Danir hafa veitt Þjóð- Verjum. Freuchen slapp þannig úr Dan- ^hörku að hann lét negla sig ofan í kassa, sem merktur var veiar”, var svo þessi kassi ásamt hörum kössum sendur til Stokk- ^ólms. Þaðan fór Freuchen til Lnglands og svo til Bandaríkj- anna — þar er hann nú á fyrir- lestraferð. Kapteinn Freuchen var land- stíóri yfir Thule nýlendunni á Norður-Grænlandi árið 1913—19. Alls bjó hann þar nyðra meðal ■^skimóa í 27 ár. Fyrri kona hans Var Eskimói. Nreucher hefir ritað þrjár naskur, sem fjalla um veru hans a Urænlandi, og sem lýsa einnig ninum ýmsu landkönnunarferð- Urn hans, og æfintýrum og mann- raunum sem hann lenti í á þeim ferðum. ^tro-Goldwyn-Mayer létu gera Ureyfimynd af einni bókinni ^Eskimó) og lék Freuchen sjálf- Ur aðalhlutverkið. Lions Club og Viking Club afa efnt til miðdegisverðar til eiðurs kaptein Freucher á Fort Gtarry Hotel, fimtudaginn 26. aPríl, þar fiytur Freuchen tölu Urn lifnaðarhætti á Grænlandi og shafslöndunum. Aðgöngumiðar að fyrirlestr- ^um eru til sölu hjá Björnsons °°k Store, Sargent Ave., og 1 U(3sons Bay búðinni. Verð $1 °§ 75c. SjVfÐ!N í TVENNT A^ .Kyrrahafsstríðinu er það ^0®31 annars að segja, að Banda- 1 íuherinn, sem fyrir nokkrum gum lenti á Okinawa eynni, fern hggur aðeins rúmlega þrjú ^nndruð mílur frá Japan, hefir Sniðið eyna í tvennt, án nokk- Urrar verulegrar andspyrnu af , a u japanskra herja, og náð srernur staórstu flugvöllunum, ern Japanir höfðu látið gera á vessum stöðvum. Japanska út- uarPið ber sig illa yfir tíðind- þessum, og spáir skjótri inn- ras a Japan. ÁTÖKIN AÐ VESTAN Sókn Sameinuðu herjanna að vestan inn á Þýzkaland, heldur áfram með slíkum leifturhraða, að nú eru þeir ekki nema um hundrað og fimmtíu mílur frá Berlín, og taka daglega til fanga þýzka Nazista svo þúsundum skiptir. Höfuðborgin Munster í Westphalen, er fallin sameinuðu herjunum í hendur, auk fjölda smærri bæja og þorpa. Þess fer nú ekki að verða langt að bíða, unz innrásarsveitir hinna sameinuðu þjóða að austan og vestan taki höndum saman í Berlín. KINGSTJÓRNIN FÆR TRAUSTYFIRLÝSINGU Eftir langar, og annað veifið allsnarpar umræður í sambands- þingi, varðandi undirbúning og þátttöku canadisku þjóðarinnar í þingi sameinuðu þjóðanna, sem hefst í San Francisco þann 25. þessa mánaðar, félst þingið á all- ar ráðstafanir stjórnarinnar við- víkjandi þessu mikilvæga vel- ferðarmáli, með 205 atkvæðum gegn 5. Það er nú í sjálfu sér engin ný bóla þó Kingstjórnin fái traust yfirlýsingu, en þessi síðasta, er sú lang mikilvægasta og sam- feldasta, sem hún nokkru sinni hefir hlotið, með samræmdu at- kvæðamagni svo að segja alls þingheims. Nokkrir þingmenn voru fjar- verandi, er til atkvæðagreiðsl- unnar kom, en þeir, sem atkvæði greiddu gegn traustyfirlýsing- unni, voru Duplessis-sinnay frá Quebec. Enn er ekki vitað hvernig cana diska sendinefndin til San Franc- isco verður mönnuð. SKIPTIR UM KJÖRDÆMI Blaðið Ottawa Citizen birti þá fregn á þriðjudagsmorguninn, að miklar líkur séu á, að King for- sætisráðherra hverfi frá því, að leita endurkosningar í Prince Albert kjördæminu, en muni í þess stað bjóða sig fram í Russell kjördæminu, sem er í námunda við Ottawa; telur áminst blað þessa fyrirhuguðu breytmgu í alla staði ákjósanlega fyrir Mr. King, þar sem telja megi víst, að hann, vegna San Francisco stefnunnar, verði fjarverandi, að minsta kosti nokkurn hluta kosn- ingahríðarinnar, og geti því ekki gefið sig við ferðalögum og ræðu höldum í jafn víðlendu kjördæmi sem Prince Rupert er. Enn, sem komið er, hefir for- sætisráðherra ekki staðfest þessa áminstu frétt. Á FLÓTTA ÚT ÚR HOLLANDI Hersveitir Nazista á Hollandi, eru nú á hraðflótta þaðan, riðl- aðar mjög, með daufa von um að komast inn á Þýzkaland, þó þar sé nú í rauninni ekki að miklu að hverfa; það er cana- diski herinn, sem rekur flóttann, og slakar hvergi til; það fylgir sögu, að hinir fræknu Canada- menn, hafi náð haldi á rakettu- stöðvum Nazista á Hollandi, en þaðan munu þeir hafa sent mikið af hinum mannlausu flugvélum sínum til árása á Suður-England. MANNTJÓN BANDARÍKJANNA KOMNIR í NÁND VIÐ VÍNARBORG Aftur heim til jarðríkis Samkvæmt skýrslum amer- ískra hernaðarvalda, nam mann- tjón Bandaríkjanna um síðast- liðin áramót, 564,575, og eru þá taldir fallnir, særðir, týndir og þeir, sem teknir hafa verið til fanga. Alls hafa fallið 123,317. særðir 308,293, týndir 71,796, en her- teknir 61,169. VIRÐULEG HJÓNAVÍGSLU ATHÖFN Síðari hluta laugardagsins var, voru gefin saman í hjónaband í Fyrstu lútersku kirkju að við- stöddu margmenni, þau Miss Adelaide Ingibjörg Jones og Flying Officer Marshall Don Webb. Séra Valdimar J. Eylands gifti; Mrs. Simmons söng yndis- lega einsöngva, en Miss Snjólaug Sigurðson aðstoðaði; brúðmeyj- ar voru systur brúðarinnar, þær Margrét og Einarína Jones, svara maður brúðgumans var vinur hans einn úr flughernum. Brúðurin er dóttir þeirra at- orku- og rausnarhjóna, Mr. og Mrs. Th. B. Jones í Mikley, en brúðguminn er ættaður frá Fredrickton í New Brunswick, og þangað fóru ungu hjónin brúðkaupsferð sína samdægurs. Að aflokinni kirkjuathöfninni var setin margmenn og ánægju- leg veizla á St. Regis hótelinu, þar sem ríkmannlega var veith og hvorki skorti gleði né góðan fagnað. í veizlunni fluttu ræður Mr. Kelly, aðstoðarbankastjóri við Imperial bankann hér í borginni, og frú Ingibjörg Jónsson, sem borin var og barnfædd í heima- byggð brúðarinnar. Lögberg árnar þessum glæsi- legu brúðhjónum allra heilla í framtíðinni. KREFST SJÁLFSTÆÐIS FYRIR HÖND INDLANDS Dr. H. N. Kunzru, lögsögu- maður frá Indlandi, var staddur í Winnipeg um helgina; hann er manna ákveðnastur í því, að krefjast fullkomins sjálfstæðis indversku þjóðinni til handa, og lýsti óánægju sinni yfir þeirri sendinefnd frá Indlandi, sem sækja skal þing sameinuðu þjóð- anna í San Francisco; kvað hann nefndarmenn alla vera úr hirð- liði landstjórans, en með öllu gengið fram hjá löggjafarvaldi þjóðarinnar. Dr. Kunzru áleit það viturlegast, að koma á fót- þjóðstjórn, eða stjórn, sem allir stjórnmálaflokkar landsins stæðu að, þjóðinni til viðreisnar að loknu stríði. DANZIG FALLIN Um síðustu helgi náðu Rússar fullu haldi á hinni mikjlvægu hafnarborg, Danzig, við baltiska hafið; umsát þeirra um borgina hafði staðið yfir í freklega hálf- an mánuð; en það var ekki ein- asta, að borg þessi félli rússnesk- um herskörum í hendur, heldur náðu þeir þar einnig fjörutíu og átta þýzkum kafbátum, sem þar höfðu bækistöð. Stalin marskálkur gerði per- sónulega fregn þessa heyrin- kunna á páskadaginn. Rússnesk hernaðarvöld hafa gefið út yfirlýsingu þess efnis, að rússneskar hersveitir séu nú innan við tíu mílur frá Vínar- borg; hafa þær rofið hinar fyrstu varnarlínur útjaðra bæjanna, og má víst telja, að þess verði ekki langt að bíða unz yfir ljúki með falli þessarar sögufrægu borgar. Hitíer hefir skorað á skósveina sína í Vínarborg, að verja borg- ina til hins ýtrasta, eða á meðan einn einasti þýzkur hermaður á þeim orustuvettvangi standi ofar moldu; en því sýnist almennt spáð, að þrátt fyrir það, komi Þjóðverjar þar ekki við langri vörn, með því að all-mikill hluti varnarhersins sé þeirrar skoðun- ar, og þar á meðal ýmsir foringj ar hans, að viðnám sé í rauninni algjörlega tilgangslaust. TÍU ÁRA ÁÆTLUN Einn að þingmönnum Winni- peg borgar, Mr. Rhodes Smith, hefir borið fram í fylkisþinginu frumvarp til laga, varðandi skipu lagningu lækningamiðstöðvar í Winnipeg, sem alt fylkið njóti góðs af; er hér um tíu ára áætlun að ræða viðvíkjandi undirbún- ingi og framkvæmdum þessa mikla nauðsynjamáls. Gert er ráð fyrir, að nefnd þrjátíu for- ráðamanna, hafi umsjón með starfrækslu fyrirtækisins, er til raunhæfra framkvæmda kemur; meðal þeirra, sem sæti eiga í bráðbirgðanefnd, sem nýlega hef ,ir, verið skipuð. eru þeir Dr. P. 1. T. Thorlakson, sá, er djarf- mannlegast hefir barist fyrir framkvæmdum varðandi fyrir- hugaða lækningamiðstöð, og Hon. H. A. Bergmann, háyfir- réttardómari. BANDAMENN TAKA RUHRHÉRUÐIN Svo má segja, að hin auðugu Ruhrhéruð, sem telja má að sé megin undirstaða þýzkrar hergagnaframleiðslu, séu nú að mestu í höndum sameinuðu herj- anna; hefir allur her Þjóðverja á þessu svæði, sem talið er að nemi um 150 þúsundum vígra manna, verið króaður inni, með enga minstu von um undankomu, að því er General Eisenhower segist frá. 169 MANNS Á ELLIHEIMILINU Um áramótin dvöldu á Elli- heimilinu samtals 169 manns, þar af 120 konur og 49 karlar. í skýrslu Elliheimilisins fyrir 1944, sem nýlega er komin út, sést m. a., að á undanförnum 10 árum hafa komið samtals 895 vistmenn og hafa konur jafnan verið í meirihluta, eða alls á þessum árum 583, en 312 karl- ar. Þessi 10 ár hafa 517 manns farið af heimilinu, en 333 dáið, þar af 212 konur og 121 karlmað- ur. Meðalaldur þeirra, er létust á síðastliðnu ári, var 80 ár og mánuður. Konurnar urðu að jafnaði eldri, eða 82 ár og 2 mánuðir að meðaltali, en meðal- aldur karla, sem létust á árinu, var 78 ár 2. mánuðir. Greiðsla fyrir vistmenn á Elliheimilinu hafa annast s. 1. ár: Bæjarsjóður Reykjavíkur hefir greitt fyrir 102, önnur hrepps- og bæjarfélög fyrir 13, en 19 hafa greitt fyrir sig sjálf ir og aðstandendur fyrir 35. Mbl. 14. jan. Svar við kvæðinu “Háflug” eftir Jolnn Gillespie Magee Jr. R.C.A.F Öll jarðnesk tengsli eg hef líka leyst og liðið djarft um sólskinsdjúpin heið; um sérstæð loft á sigurvængjum fleyzt. — og silfurbjálka tunglsins þvert eg sneið. Og eg hef líka vitað hvað það var að vera’ úr dauðans greipum sloppinn frjáls. — Eg sveif — mig flugið hærra’ og hærra bar unz hönd mín kendi nálægð drottins sjálfs Er þetta falska líf er liðið hjá, þig leiða skal eg inn á helgan stað, þar blærinn sveigir kornið ökrum á og unaðsröddum hvíslar — blessar það. Þar smárinn sætri angan fyllir alt og undir fæti mold, sem treystum við. Þar meira’ en nálægð guðs þú greina skalt — Hann gengur þar með okkur hlið við hlið. Eftir Robert Rutledge R.C.A.F. í Saturday Night 10. marz, 1945. Sig. Júl. Jóhannesson, þýddi. ÚTGJÖLD SAMBANDSSTJÓRNAR Samkvæmt fjárhagsáætlun, sem fjármálaráðherrann, Mr. Ilsley, lagði fram í sambands- þinginu á þriðjudaginn, nema út- gjöld þjóðarinnar 1944—45, $5,467,000,000. Foringjar aðal þingflokkanna hafa skorað á flokksbræður sína, að flýta fyrir framgapgi þessarar fjárveiting- ar, svo sem frekast má verða. MATVÆLASKORTUR íFRAKKLANDI Matvælaskortur er nú all- mikill í Frakklandi. Birgðir eru þó til allmiklar af öllu öðru en feitmeti, en ákaflegur skortur er á járnbrautarvögnum, til þess að dreifa matvælunum út um land- ið, og fer hann hraðvaxandi, þar sem herinn tekur æ fleiri af vögnum þeim, sem til eru, en engir eru smíðaðir í staðinn. Franska stjórnin hefir verið að semja við herstjórnina um að henni yrði lánaðir nokkrir vagnar til matvælaflutninga. Flutningamálaráðuneytið telur að það minnsta, sem hægt sé að komast af með af vögnum sé 15 þúsund á viku, en vikuna sem leið voru aðeins 4 þúsund vagnar til þeirra þarfa. RÚSSINN YBBIR SIG Símfregn frá Washington á miðvikudagsmorguninn hermir, að rússnesk stjórnarvöld ybbi sig við ísland vegna þess, að stjórn hins unga lýðveldis hafi ekki sagt möndulveldunum stríð á hendur; sameinuðu þjóðirnar hefðu forðað íslandi frá, að verða Þýzkum Nazistum að bráð, og með samþykki Rússa, Breta og Bandaríkjanna, hefði ísland stigið síðasta sporið í sjálfstæðis- áttina. Guðfinna frá Hömrum. Maður og mold Að ströndum útlagi aftur vék, eftir áratöf sína heimbyggð fann. Á vegleysum heims var numið nóg, hér nam hann fyrst hversu jörðin ann, og moldin talar við mann. Hún mælti svo hljótt: “Eg hlustaði vel, þegar hjarta þitt óx og festi rót sem grös mín og tré, eins og blómið blátt, er brosti í fegurð himni mót, og skein við mín gráu grjót. Eins og móðir, er leggur barn við barm og barnsfót geymir í lófa sér, eg rót þína vermdi vetrarnótt, og vor, er með söngfugl gisti hér, lét eg óma til yndis þér. Eg þakka hvern hlyn um þessi fjöll, en þú varst upprisudraumur minn, ó, maður, sem aldrei barst þitt barr, ef brostinn var rótarsproti þinn sá, er óx mér að barmi inn. Um langvegu komstu hrakinn heim, eins og hind, er særð inn í myrkrið flýr. Og æ verður grund mín grænni en fyr, og gljúfurbragurinn hreinn og nýr, þegar útlaginn aftur snýr. Á jörðu hvert strá mót röðli rís. Á rót sinni aðeins blómgast kann þín vaka og starf, þitt lán og líf, og ljóðið, sem þér á vörum brann.” Svo talaði mold við mann. Tíminn.

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.