Lögberg - 10.05.1945, Blaðsíða 1
- - - Norðurálfustríðinu lokið með
skilyrðislausri uppgjöf Þjóðverja - - -
Hin mikla sigurhetja Breta, Winston Churchill forsætis-
ráðherra, er talaði slíkan kjark í þjóð sína á döprustu
dögum nýafstaðinnar heimsstyrjaldar, og lýðræðisþjóð-
irnar í heild, að til einsdæma mun jafnan talið vera í
sögu mannkynsins.
Hon. Stuart Garson
Síðastliðinn mánudag, þegar
þjóðin fagnaði sigri sínum og
stríðslokum í Evrópu, komst for-
sætisráðherra Manitoba Hon.
Stuart S. Garson, meðal annars
þannig að orði í ávarpi til fylkis-
búa:
“í dag þökkum við Guði fyrir
það, að Norðurálfustyrjöldinni
er lokið með fullnaðarsigri af
hálfu sameinuðu þjóðanna; þessi
dagur skyldi fremur ætlaður
dáðum og drengilegum áformum
en hvatvíslegum mannfagnaði;
vér þökkum með hrærðum huga
hermönnum vorum fórnirnar
miklu, sem þeir hafa innt aí
hendi vor vegna og mannkyns-
ins í heild.
FAGNA FENGNU FRELSI
Fregnir frá Kaupmannahöfn
og Oslo á miðvikudagsmorgun-
inn láta þess getið, að svo mikd
hrifning hafi gripið almenning
í hvoru landinu um sig, er hljóð-
bært varð um uppgjöf Þjóð-
verja, og fólk hafi sungið og
dansað sig í svefn á strætum og
gatnamótum.
Ur borg og bygð
Karlakór íslendinga í Winni-
peg, efnir til skemtisamkomu í
Goodtemplara húsinu, mánu-
dagskvöldið 28. maí næstkom-
andi. Ágæt skemtiskrá og dans
á eftir.
Auglýst í næstu blöðum.
Nefndin.
•
Mr. J. J. Myres, óðalsbóndi fra
Mountain, N.-Dak., kom til borg-
arinnar á mánudaginn, og dvaldi
hér fram á þriðjudag.
•
Orðsending til íslendinga á
Gimli og nærliggjandi bygðum.
Þakkar og minningarguðsþjón
usta verður haldin í lútersku
kirkjunni á Gimli, sunnudaginn
þann 13. þ. m., kl. 3 e. h
Ein ræðan verður flutt á ís-
lenzku.
Skúli Sigurgeirson.
SAN FRANCISCO
Öryggisfundi sameinuðu þjóð-
anna í San Francisco, miðar vel
áfram að því er síðustu fregnir
þaðan herma; kemur í hvívetna
fram hjá fulltrúum alvarlegur
ásetningur um það, að skiljast
eigi við mál fyr en lagður hafi
verið traustur grundvöllur að
traustum alþjóðasamtökum
heimsfriðnum til tryggingar í
framtíðinni.
Allmiklum tíðindum þótti það
sæta, er hljóðbært varð um, að
rússnesk hernaðarvöld hefðu lát-
ið handtaka sextán pólska
stjórnmálaleiðtoga, og gerðu
utanríkisráðherrar Breta og
Bandaríkjanna fyrirspurn til
Molotovs um það, hvaða ástæð-
ur lægju til grundvallar hand-
tökunni; svaraði hann á þá leið,
að menn þessir hefðu setið á
svikráðum við Lublin stjórnina
og rússnesk hernaðarvöld; mál
þetta hefir ekki verið frekat
rætt, og er nú líklegt talið, að
einhver málamiðlun verði gerð
á næstunni.
Hallir þýzka Nazismans hrundar til
grunna
S
•M-f
EINNIPART VIKUNNAR, SEM LEIÐ, hafði fólk hér um slóðir,
og þá vitaskuld víða annarsstaðar lika, það á vitund, að áður
en langt um liði, myndi til stórra tíðinda draga á vettvangi
Norðurálfustyrjaldarinnar; að vísu verður það naumast með
sanni sagt, að útvarpsfregnir þessu viðvíkjandi, væru ávalt sem
Ijósastar, hvað þá heldur að þeim bæri ávalt saman; þó var eins
og og það lægi í loftinu, að tjald---------------------------------
ið væri í þann veginn að falla
við lok síðasta þáttarins;
snemma á mánudagsmorguninn
létti alþjóð manna um andar-
drátt, því þá barst sú frétt á
öldum ljósvakans út um heim all-
an, að Þjóðverjar hefðu form-
lega gefist upp, að tilhlutan
Doenitz aðmírals, hins sjálfskip-
aða ríkiskanslara Þýzkalands, ei
með furðulegum og skjótum
hætti fékk völd í hendur eftir
að Hitler týndist eða dó, og
Himmler fyrirfanst hvergi; fyrst
var það þýzki herinn á ítalíu,
sem lagði árar í bát; í kjölfar
hans sigldu svo hersveitir Þjóð-
verja í norð-vestur hluta Þýzka-
lands Frisian eyjum, Heligo-
land, Schleswig-Holstein, Hol-
landi og Danmörku; allir þessir
herskarar gáfu sig General Mont
gomery á vald, er lét þýzk hern-
aðarvöld undirskrifa uppgjafar-
skilmálana, sem prentaðir eru á
öðrum stað; næsta uppgjafarat-
höfnin var í litlum rauðmáluð-
um skóla, sem General Eisen-
hower notaði að aðalbækistöð
við borgina Reims í Frakklandi,
en hin formlega undirskrift
uppgjafarinnar og þar að lút-
andi samninga fór fram í Berlín,
sem nú er að miklu leyti í rúst-
um, og að öllu leyti á valdi
Rússa, skömmu eftir miðnætti á
aðfaranótt mánudagsins, og
stóðu að henni yfirhershöfðingj-
ar Breta, Bandaríkjanna, Rúss-
lands og Frakklands.
Á þriðjudaginn flutti hans há-
tign Georg Bretakonungur ræðu,
auk þess sem þeir Churchill for-
sætisráðherra og Trúman Banda
ríkjaforseti, tilkyntu formlega
að Norðurálfustyrjöldinni væri
lokið; einnig flutti King forsætis
ráðherra Canada, ræðu frá San
Josef Stalin
Nafn þessa sterka víkings,
verður ódauðlegt í mannkyns-
sögunni; eigi aðeins vegna hans
frábæru skipulagningar hæfi-
leika varðandi málefni rúss-
nesku þjóðarinnar heima fyrir,
heldur og engu síður fyrir óvið-
jafnanlega forustu hans í stríð-
inu gegn Þjóðverjum, sem nú
er farsællega til lykta leitt.
Francisco; allar voru ræðurnar
þrungnar af sigurfögnuði, er.
ijafnframt blandaðar djúpri al-
fvöru vegna stríðsins við Japani,
sem enn er eigi séð fyrir end-
ann á; og allir hétu þessir miklu
menn Bandaríkjaþjóðinni ein
huga stuðningi þar til yfir lyki
einnig á þeim vettvangi stríðs
sóknarinnar.
Fasisminn á talíu og Nazism
inn á Þýzkalandi, þessir sérstæðu
hermdarverkabræður, og óvin'r
mannkynsins, hafa fengið mak
leg málagjöld og sungið sitt síð-
asta vers; nýr heimur er í upp-
siglingu, heimur réttlætis og alis
herjar bræðralags.
Uppgjafarskilyrðin
Hinn nýlátni mannvinur og spámaður Bandaríkjaþjóðar-
innar, Franklin D. Roosevelt, var einn þeirra þriggja
mikilmenna, er með viturlegri forsjá lögðu grundvöll
að hruni Nazismans á Þýzkalandi. Gervalt mannkyn
stendur í hinni dýpstu þakkarskuld við hinn horfna
höfðingja, og blessar minningu hans.
MOSKVA FAGNAR SIGRI
Því var alment veitt athygli,
að Stalin var ekki einn i þeirra
hóp, sem fluttu ræður á þriðju-
daginn og tilkynntu lok Norður-
álfustyrjaldarinnar; ástæðan var
sú, að Rússar áttu þá enn í höggi
við þýzkar hersveitir í Czhecho-
slóvakiu, og eiga í rauninni enn;
en nú hefir Stalin einnig gert
heyrurn kunna hina formlegu
uppgjöf Þjóðverja, og var þeim
tíðindum tekið með geisilegum
fögnuði í Moskva, engu siður en
í öðrum borgum og byggðar-
lögum hinna sameinuðu þjóða.
ÞINGMANNSEFNI
1 SELKIRK
R. J. Wood
ÍIÉR FARA Á EFTIR uppgjafarskilyrði þau, er General Mont-
** gomery setti og þýzku herirnir í norð-vesturhluta Þýzkalands,
Hollandi og Danmörku, urðu að ganga að; samskonar skilyrðum
gengu Þjóðverjar síðar að, þar sem þeir á öðrum stöðum gáf-
ust upp:
Yfirstjórn þýzka hersins í norðvestur-hluta Þýzkalands, Frisian
eyjunum, Heligoland, Hollandi, Schleswig-Holstein og í Danmörku,
játast undir það við yfirforingja
hins 21. herfylkis sameinuðu
þjóðanna, að láta af hendi öll
vopn í áminstum löndum, og
stöðum; ná þessi fyrirmæli einn-
ig til allra þýzkra herskipa,
smárra og'stórra, á hlutaðeig-
andi svæðum; allir þessir herir
verða að gafast upp skilyrðis-
laust; allir bardagar af hálfu
þýzka hersins, hvort heldur á
landi, sjó, eða í lofti, verða að
hætta stundvíslega kl. 1 f. h.
Central Standard Time, á laugar
daginn þann 5. maí, 1945.
Þessu jafnframt er þýzkum
hernaðarvöldum gert að skyldu,
að fullnægja skilmálalaust öllum
öðrum fyrirskipunum, sem eftir
þann tíma kunna að verða gerð-
ar af hálfu hernaðarvalda hinna
sameinuðu þjóða. Óhlýðni gagn-
vart áminstum fyrirskipunum, í
hvaða formi, sem hún kemur
fram, verður skoðuð sem ský-
laust brot á áminstum uppgjaf-
arsamningum, og taka þá hern-
aðarvöld sameinuðu þjóðanna
hverjar þær ákvarðanir, er þeim
bezt þykir henta, samkvæmt við-
teknum hernaðarvenjum.
Af forsendum og innihaldi
þessara uppgjafarskilmála, taka
við endurnýjaðir skilmálar, er
hernaðarvöld sameinuðu þjóð-
anna síðar staðfesta í einu,
varðandi þýzka herinn í heild.
Áminstir uppgjafarskilmálar
eru ritaðir á ensku og þýzku, og
skal enska frumritið lagt til
grundvallar.
Komi á einhvern hátt til á-
greinings, varðandi túlkun ein-
stakra atriða uppgjafarskilmál-
ans, hafa sameinuðu þjóðirnar
þar fullkomið úrskurðarvald og
hið síðasta orð.
ELZTI ÍSLENDINGUR
VESTAN HAFS LÁTINN
Sveinbjörn Björnsson
Sveinbjörn Björnsson, elzti
íslendingur í Vesturheimi, lézt
á elliheimilinu Betel á miðviku-
daginn í vikunni, sem leið; hann
var fæddur í Berufirði þann 8.
desember 1843, og var því á öðru
ári hins ellefta tugar. Mr. Björn-
son kom vestur um haf 1882, og
bjó lengi í Norður Dakota; hann
var vistmaður á Betel síðan
1937.
Mr. Wood, frambjóðandi
Liberalflokksins í Selkirk kjör-
dæmi, er fæddur á heimilisrétt-
arlandi foreldra sinna í grend
við bæinn Teulon, árið 1886.
Hann stofnaði viðskiptafyrir-
tæki í Árborg 1910, var um eitt
skeið oddviti Bifröst-sveitar. Ár-
ið 1924 stofnaði Mr. Wood bíla-
og olíuverzlun í Teulon, sem
hann starfrækir enn.
Mr. Wood hefir alla jafnan
fylgt frjálslyndu stjórnmála-
stefnunni, og staðið þar löngum
í fylkingarbrjósti.
Canada þarfnast Liberal stjórn
ar, og Selkirk kjördæmi má til
með að eiga Liberalfulltrúa á
þingi, og þessvegna er nauðsyn-
legt, að vinna af kappi að kosn-
ingu Mr. Wood.
M
GEFA SIG UPP
Hermann Goering hinn al-
ræmdi flugmarskálkur Hitlers,
og Kesselring yfirhershöfðingi
Nazista, hafa nú báðir gefið sig
upp, og eru í gæzluvarðhaldi
hjá ameríska hernum á Þýzka-
landi.