Lögberg - 10.05.1945, Page 2
2
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 10. MAÍ, 1945
Áfangastaður á flugleiðum heims
Samtal við Agnar Kofoed-Hansen
±M-
Eins og að líkum lætur, eru
flugsamgöngur milli Islands og
annara landa mjög á dagskrá
meðal manna um þessar mundir.
Leiðirnar um loftin eru að opn-
ast fyrir okkur Islendinga. Sýni-
legt orðið, að þær vonir rætast,
sem menn hafa alið í brjósti í
tvo áratugi eða lengur, að hér
á landi verða viðkomustöðvar í
langflugi milli landa.
Einn þeirra manna, sem lengst
hefir starfað að flugmálum hér á
landi, er Agnar Kofoed Hansen,
lögreglustjóri. Hann var, sem
kunnugt er, á flugmálaráðstefn-
unni í Chicago. Hann er því
manna kunnugastur meðal ís-
lendinga, hvernig viðhorfin í
þessum málum eru í dag.
Nýlega hitti eg hann að máli,
og bað hann að segja mér frá
því, hvernig hann teldi að flug-
samgöngum milli íslands og
annara landa mundi verða hag-
að í framtíðinni.
Hér á árum áður töldu menn
að það myndi ekki vera nema
stutta stund, að hilgsað yrði um
að hafa viðkomustaði á íslandi
fyrir flugvélaf, sem notaðar yrðu
til flutninga milli Evrópu og
Ameríku yfir líorðanvert Atlans-
haf, því brátt væri flugtækninni
farið svo mikið fram, að menn
hirtu ekki um að skifta flug-
leiðinni yfir hafið í 2 til 3 áfanga,
og þá yrði flogið beint milli
meginlandanna, ellegar syðri
áfangaleiðina um Bermuda og
Asoreyjar, því þar suður í góð-
viðrinu myndu flugskilvrði að
jafnaði vera betri. Nú skilst mér,
sagði eg við Agnar Kofoed-Han-
sen, að menn hafi að einhverju
leyti breytt um skoðun. Þó flug-
tækjunum fleygi fram á næstu
árum, þá munu menn ekki hverfa
frá því, að hafa millistöð á lang-
flugferðum hér á landi.
Eg bað Agnar Kofoed-Hansen,
að skýra þetta fyrir mér í stuttu
máli, komst hann að orði á þessa
leið:
“Flugleiðirnar yfir Atlanshaf
á norðurhveli eru þrjár, nyrsta
leiðin, sem liggur um Island með
viðkomu í Grænlandi, þegar svo
ber undir, beina leiðin, milli
New-Foundlands og Bretlands,
og syðsta leiðin, um Bermunda-
og Asoreyjar.
Fjöldi flugmanna er nú orðinn
kunnugur öllum þessum leiðum.
Ef flugmaður, sem þekkir þær
allar af eigin raun, er spurður
hvaða leið hann vildi helst kjósa
sér, þá mun það koma í ljós, að
álit þeirra er því nær einróma.
Þeir kjósa helst nyrstu leiðina
um ísland, sem þá hentugustu.
Ástæðan til þessarar reynslu
þeirra er m. a. sú, að þegar flogið
er svo norðarlega, þá eiga flug-
menn auðvelt með að komast upp
úr öllum óveðrum. Hér norður
frá er ekki eins langt upp í “há-
loftin”, sem við köllum, eða
stratosferuna, eins og þegar
sunnar dregur. Á norðurleiðinni
geta flugmenn komist upp úr
öllum óveðrum í 8—12 þús. feta
hæð, og fljúga þá í sólskini öll-
um skýjum ofar. En sunnar á
hnettinum þurfa þeir að fara
mikið hærra til þess að komast
yfir óveðrin.
Fyrir flugmenn er það ákaflega
mikilsvert að geta farið ofar
skýjum, því þegar flogið er í
þoku, þá hefir þokan truflandi
áhrif á allar loftskeytasendingar,
svo skeytasamband er ekki eins
tryggt milli flugmanna og land-
stöðva, eins og þegar flogið er í
bjartviðri.
Annað er það, sem gerir Asor-
eyja leiðina ótryggari og erfiðari,
en nyðri leiðirnar, að þar syðra
er veðurspá erfiðari en hér,
vegna þess að hér um slóðir eru
lægðir og stormsveipar stöðugt í
rásinni en suður frá. Lægðirnar
fara hér að mestu leyti sínar
kunnu brautir. En syðra takí
þær oft upp á því, að snúa við,
og er ekki hægt að spá þeim
dutlungum fyrir fram.
T. d. flugmenn bíða í Ber-
mudaeyjum og eru á austurleiö
með viðkomu í Asoreyjum, lægð
er nýfarin framhjá Asoreyjum,
og flugmönnum er símað, að nú
séu veðurhorfur góðar, þá hefir
reynslan sýnt, að þeir eiga það
á hættu, að sú veðurspá reynist
röng. Því þegar lægðin er ef til
vill komin stutta leið fram hjá
Asoreyjum, þá getur hún hafa
snúið við sömu leið til baka,
svo veður verður þá uppá það
versta, þegar flugmenn koma
til Asoreyja. Alt 'öðru máli er að
gegna hér norðurfrá. Hér fara
lægðirnar að mestu leyti sínar
alkunnu leiðir, og séu þær komn-
ar framhjá einhverjum stað, er
ekki hætta á, að þær skyndilega
snúi við aftur til sama lands.
En auk þess er suðurleiðih,
eyjaleiðin, langtum lengri milli
Ameríku og Evrópu en nyðri
leiðirnar.
Beina leiðin milli New Found-
lands og Bretlands hefir vitan-
lega marga kosti. Hún er styst.
Þo liggur stysta loftlínan milli
þessara landa ekki ýkja langt
fyrir sunnan Island. Svo krók-
urinn, sem farinn er til þess að
hafa viðkomu hér, er ekki mikill,
minni en menn almennt gera sér
í hugarlund.
Þegar flugvélar verða smíðað-
ar ennþá hraðfleygari en þær
eru nú, og fullkomnari á marg-
an hátt, þá má gera ráð fyrir
mikilli flugumferð eftir þessari
leið. Farþegaflugvélar, sem nú
eru smíðaðar, geta flogið 306
mílur á klst. Þegar þrýstilofst-
mótorar verða notaðir, verður
hraðinn líklega 400—500 mílur
á klst. Og þegar rakettuumbún-
aður kemur til sögunnar til þess
að auka hraðann, þá getur hann
orðið 1000 mílur á klst.
Þó alt þetta komi til sögunnar,
verður eftir sem áður hentugt
að hafa millistöð fyrir flugið hér
á landi.
Með því að hafa viðkomustað
hér, þá er hver áfangi mikið
styttri, en þegar flogið er beint
yfir hafið. Á þessari leið þarf
því ekki að taka eins mikið
bensín með sér, þegar lagt er
af stað. Þessvegna verður hag-
nýtt burðarmagn vélarinnar
meira, ef flogin er nyrsta leið-
in, og fargjöld og farmgjöld
geta því orðið ódýrari, þar sem
hægt er að taka því meiri farm,
sem áfangar verða styttri.
Enn annað kemur hér til
greina. Reynslan hefir sýnt, enda
kemur hún vel heim við fyrri
athuganir veðurfræðinga, að
rétt er að haga flugferðum yfir
norðanvert Atlanshaf nokkuð
eftir því, hvernig vindstaðan er
jafnaðarlegast. Ef flogið er beina
leið vestur um haf frá Bretlandi
til New Foundlands, þá má bú-
ast við því, að flugmenn fái mót-
byr, því á þessari leið eru vest-
lægir vindas ríkjandi. Sú flug-
leið er því mikið hentugri fyrir
þá, sem koma að vestan. Þeir
geta vænst þess að fá blásandi
byr, sem léttir þeim flugið og
eykur hraðan.
En aftur á móti liggja storm-
sveipar oft þannig, að þeir sem
fljúga héðan vestur, þeir fá byr
vesturyfir. Sé því ekki að heilsa
og flugmenn sem fara íslandsleið
ina fái andbyr, þá gerir hann
minna strik í reikninginn, þegar
áfangar eru styttri, heldur en
þegar farnir eru lengri áfangar,
eins og t. d. beina leið milli Bret-
lands og Bandaríkjanna.
Líklegt er því, að í framtíð-
inni leggi flugmenn leið sína
þannig: Að þeir fara frá Banda-
ríkjunum til Bretlands, en frá
Bretlandi um ísland til Banda-
ríkjanna. Því þá geta þeir vænst
að fá hagstæðan vind báðar leið-
ir.
— En er ekki búist við að við-
komustaður verði einnig í Græn-
landi?
— Of snemt er að segja nokk-
uð ákveðið um það ennþá, hve
mikil áherzla verður lögð á það.
vel má vera, að flugið um norð-
urleiðina verði skipulagt þannig,
að oft verði komið við á Græn-
landi. Það upplýsist ekki fyrri en
eftir styrjöldina hvernig reynst
hefir að leggja flugleiðir um
Grænland.
Sem sagt. Leiðin um ísland
verður altaf hentug vegna þess
hve áfangar eru stuttir. Hún
verður því sennilega, “ódýra
leiðin”, flugið eftir þeirri leið
tekur lengri tíma en þegar flog-
ið er beint, en fargjöld ódýrari.
Telja má víst að flutningar, sem
fara fram loftleiðis í framtíðinni
milli Evrópu og Bandaríkjanna,
fari mikið fram eftir þessari
leið.
Eigi má gleyma því, þegar
minst er á flugleiðina um Is-
land, að landið er einmitt í
stystu loftleið milli t. d. vestan-
verðra Bandaríkja og Austur-
’Evrópu. Flugferðir milli t. d.
San Francisco og Asíu geta í
framtiðinni legið um ísland, eins
og Vilhjálmur Stefánsson, land-
könnuður, hefir fyrir löngu bent
á.
Ef við ætlum að greiða fyrir
því, að Island verði viðkomu-
staður flugvéla á langleiðum um
heiminn, þá þurfum við að sjá
um, að sem fyrst verði gerður
góður flugvöllur norðanlands.
En sem komið er, er erfitt fyrir
flugmenn að setjast, þegar þoka
er á lendingarstað.
Eins og kunnugt er, kemur
það mjög sjaldan fyrir, að þoka
sé eða veður þannig, að sé ill-
lendandi fyrir flugmenn á Suður-
og Norðurlandi samtímis. Þetta
getur þó komið fyrir. Það hefi
eg reynt meðan eg stundaði hér
flug. En það er sjaldgæft og get-
ur naumast átt sér stað nema
nokkurn hluta sólarhrings í
einu.
Þegar góðir flugvellir standa
flugmönnum opnir bæði sunnan
og norðanlands, ætti það að gera
ísland svo ákjósanlegan viðkomu
stað, sem frekast yrði á kosið.
— Hvar ætti slíkur flugvöllur
að vera á Norðurlandi!
— Strax með vorinu ætti að
byrja athugun á því, hvar ætti að
velja hinum norðlenska flug-
velli stað. Lítillega var þetta
athugað í fyrra sumar. Eg tel
að hanp yrði best settur austan
Bárðardals, bæði vegna þess, að
þar er meira um jafnlendi í all-
mikilli fjarlægð frá fjallatindum,
en vestar, og vegna þess að þar
mun veðráttan að jafnaði and-
stæðust sunnlenzkri veðráttu.
Gaumgæfileg athugun verður að
skera úr því, hvaða staður yrði
valinn fyrir hinn norðlenska
flugvöll, sem notaður yrði, þeg-
ar flugvélar frá fjarlægustu
stöðvum heims leggja í framtíð-
inni leið sína um ísland.
Að lokúm þetta. Eins og nú er
ástatt hjá okkur erum við með
öllu vanbúnir að taka á móti
ferðamönnum svo nokkru nemi
— að ekki sé talað um að taka
á móti ferðamönnum í stórum
stíl. Við eigum engin frambæri-(
leg gistihús og ekkert hefir verið
gert til þess að skipuleggja dvöl
ferðamanna, sem til landsins
kunna að koma. Þetta tekur alt
langan tíma og undir þeim undir-
búningi og framkvæmdum er
komið, hvort landið okkar verð-
ur ferðamannaland eða ferða-
mannafæla.
Lesb. Mbl.
Kaupendur á íslandi
Þeir, sem eru eða vilja ger-
ast kaupendur J^ögbergs á
íslandi snúi sér til hr. Björns
Guðmundssonar, Reynimel
52, Reykjavík. Hann er gjald-
keri í Grœnmetisverzlun
ríkisins.
Öll íslenzk börn eiga að
fá fœðingargjöf
Fœðingargjafasjóður stofnaður
með það fyrir augum.
Þau hjónin Steinunn og Vil-
hjálmur Briem ákváðu 2. okt.
s. 1. að leggja í aðaldeild Söfn-
unarsjóðs íslands kr. 10.00.00,
sem skyldi verða stofnfé að
Fæðingargjafasjóði íslands. Síð-
an hefir sjóðurinn vaxið og er
nú orðinn 157 þús. krónur.
Blaðamenn hittu Vilhjálm
Briem að máli í gær á heimili
hans, en stofnendur sjóðs þessa,
hann og kona hans, hafa nú á-
kveðið að sjóðurinn skuli heyra
þjóðkirkjunni til og verður hann
undir vernd og umsjón biskups-
ins yfir Islandi. Héfir biskupinn
heitið að annast um sjóðinn fyr-
ir hönd þjóðkirkjunnar.
Fæðingargjafasjóður Islands
er stofnaður til þess að gefa
fæðingargjöf öllum þeim börn-
um, sem fæðast í landinu. Gjaf-
ir þær, sem börnunum hlotnast
á að leggja í viðskiptabækur við
erfingj arentu deild Söfnunarsj óðs
íslands. Hver bók á nafn eig-
andans.
Ekki verður byrjað að úthluta
úr sjóðnum fyrr en hann hefir
náð 2 milj. króna, en vextir og
viðbætur aðrar, er sjóðnum á-
skotnast, skulu leggjast við höf-
uðstól, þar til hann hefir náð
þeirri upphæð, en þá skal hálf-
um ársvöxtum úthlutað meðal
þeirra barna, er fæðast í land-
inu það ár. Eftir það ber hver
bók vöxtu sem aðrar innstæður
í erfingjarentudeild Söfnunar-
sjóðsins.
. I skýrslu, sem Vilhjálmur
Briem lét blaðamönnum í té,
segir m. a.:
Þar sem mörgum mun ókunn-
ugt um, hvernig erfingjarentu-
deildinni er fyrir komið og hver
tilgangur hennar er, skal hér
frá því skýrt í fáum orðum. Sá,
sem á fé í deildinni getur tekið
helming vaxta árlega til eigin-
þarfa, en hinn helmingur árs-
vaxtanna er lagður við höfuð-
stól, sem fer því hækkandi og
þá um leið ársvextirnir. Óheim-
ilt er eigandanum að gefa neitt
af innstæðunni eða rýra hana á
annan hátt. Þegar hann fellur
frá, ber að skipta féinu milli
erfingja, eftir því sem erfða-
lögin mæla fyrir. Þessi ákvæði
eru til þess gjörð, að féð nái
að dreifast, sem víðast meðal als
almennings. Til þess að skýra
sem best starf og tilgang erf-
ingjarentudeildarinnar, skal hér
tilfært eitt dæmi, sem lesa má
úr bókum deildarinnar:
Árið 1891 lagði maður einn í
epfingjarentudeildina, 1000 kr.
Inneign þessa erfði einkasonur
hans og hefir hvorugur nokkru
sinni hreift við henni. Á síðasta
nýári var innstæðan að fjárhæð
krónur 12.367,00. (Vilhjálmur
kom með fleiri dæmi, en þetta
eina verður látið nægja hér).
Framantalið dæmi mun gefa
næga skýringu á, hvaða þýðingu
erfingjarentudeildin gæti haft,
ef hún væri alment notuð. Þar
.hefðu menn öruggar tekjur þeg-
ar óhöpp ber að höndum og eins
þegar ellin færist yfir og starfs-
þrekið dvín. Eins og nú standa
sakir, eru þeir fáir, sem verða
slíkra tekna aðnjótandi, en þeg-
ar Fæðingargjafasjóðurinn hefir
starfað nokkra manns aldra, má
gera sér von um, að hann geti
veitt góðan stuðning til þess að
hver maður í þjóðfélaginu geti
sjálfur séð sér fyrir hinu allra
nauðsynlegasta: klæðum, hús-
næði, mat og drykk, þótt hann
sé orðinn ófær til vinnu.
Miklu fyrr en erfingjarentan
getur orðið einstaklingnum að
verulegu gagni, verður Fæðing-
argjafasjóðurinn orðinn þjóðinni
til nyísemdar. Með fjármagni
sínu mun hann ásamt öðrum
Sjóðsöfnum í landinu styðja með
lánveitingum að því, að koma í
framkvæmd ýmsum þeim fram-
Myndin að ofan er tekin um borð í hinu mikla herflutninga-
skipi, “Queen Mary”, þar sem brezkir og amerískir sjóliðar
eru við skotæfingar.
farafyrirtækjum, sem þjóðin hef-
ir áhuga á að unnin séu og full-
víst er um að verða landi og lýð
til hagsældar..
Fé söfnunarsjóðsins er ávaxt-
að í ýmsum lánum, svo sem fast-
eignalánum og verðbréfum veð-
deildar, ríkisskuldabréfum, hafn-
argerða- og mannvirkjalánum
ýmissa kauptúna og bæjarfélaga.
Hefir harin á undanförnum ár-
um stuðlað mjög að hagnýfum
framkvæmdum með þeim nærri
7 miljón króna höfuðstól, er hann
hefir yfir að ráða.
Rekstur Söfnunarsjóðsins er
mjög ódýr, og má því heita, að
hann greiði til innstæðueigenda
jafnháa véxti og hann tekur af
lánþegum. Með því hefir tvent
unnist. Hægt hefir verið að lána
út fé með, hóflegum rentum og
greiða skjólstæðingum hærri arð
en þeir hefðu annarsstaðar get-
að fengið, nema með talsverðri
áhættu. En auk varasjóðs Söfn-
unarsjóðsins er ríkisábyrgð fyr-
ir rekstri hans, enda ræður Al-
þingi stjórn sjóðsins, en inn-
stæðueigendur .kjósa endurskoð-
anda.
Þar sem það er sannfæring
haín og margra annara, að Fæð-
ingargjafasjóðurinn verði til því
meiri blessunar, sem hann er
betur efldur, leyfi eg mér að
snúa mér til alþjóðar með þeirri
ósk að hver og einn láti nokkuð
af hendi rakna sjóðnum til efl-
ingar.
Til gamans má geta þess að
Söfnunarsjóður Islands er nú
senn 60 ára. Hann er stofnaður
1886, þá fyrst sem einkafyrir-
tæki, en var lögfestur af Alþingi
sem ríkisstofnun 1888. — Á þess-
um árum hafa aðeins tveir menn
verið framkvæmdastjórar sjóðs-
ins, Eiríkur Briem til 1920, en
síðan Vilhjálmur bróðir hans.
Mbl. 31. jan.
Dírector
Line Blevators Farm Seryice
Growing Small Fruits
We are pleased to announce
the publication of a bulletin en-
titled “Growing Small Fruits in
the Prairie Provinces”. It is
illustrated with a series of ad-
mirable photographs most of
which are by courtesy of the
Division of Horticulture, Do-
minion Department of Agricul-
ture.
The subject matter was
written by Mr. W. R. Leslie,
Superintendent, Dominion Ex-
perimfental Station, Morden,
Manitoba. It deals with recom-
mended varieties, cultural and
harvesting methods, pests and
diseases of strawberries, rasp-
berries, currants, gooseberries,
etc. Tree fruits, such as apples,
plums and cherries, are not in-
cluded; but will, we hope, be
the subject of another bulletin
to be published in the not too
distant future.
Copies are available, free of
charge, to farriiers, and rural
teachers and pupils in the
Prairie Provinces. They may be
obtained through local Line
Elevator agents, or from Line
Elevators Farm Service, Winni-
peg or Calgary.
A Correction
In our article, “Productio*
Objectives”, published on Feb-
ruary 15th, we endeuvoured to
summarize the figures released
by the Dominion Department
of Agriculture following the
Dominion,- Provincial Confer-
enCe. Under “Increases”, we
quoted “cattle, 8%; calves,
10%”. One of our correspond-
ents points out that these par-
ticular figures relate to in-
creased marketings rather than
to production. He thinks that
“—the owners of cattle are
generally of the opinion that
production has reached a level
in the prairies, where difficul-
ties could easily arise—if ex-
tensive drought should occur”.
Þau höfðu verið gift í eitt ár
og voru ákaflega hamingjusöm.
En einn góðan veðurdag kom frú
in til morgunverðar mjög dauf
í dálkinn. Hún hafði enga matar-
lyst og gat varla komið upp einu
orði.
— Hvað gengur að þér, elskan
mín? spurði eiginmaðurinn. —
Segðu mér það, og eg skal bæta
úr því, hvað sem það er.
— Jón, sagði konan þá, ef það
kemur fyrir einu sinni enn, að
mig dreymir, að þú sért að kyssa
aðra konu, þá tala eg ekki við þig
það sem eftir er ævinnar.
Mynd þessi er frá Hollandi, þar sem hermenn eru að flytja
vopnabirgðir fyrir Typhon orustuflugvél.