Lögberg - 30.08.1945, Qupperneq 1
PHONE 21374
*»2Sssss
T.au^ í^
A Complete
Cleaning
Institution
58. ÁRGANGUR
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 30. ÁGÚST, 1945
PHONE 21374
A -
''
1*»*** ‘ ÍÚ'P' A
or»0*
A Coiu] iJete
Clean ng
Institution
NÚMER 35
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiijiiiiiiiiiiDiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiimiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiuiuniiiiiiiiiii
Frá fjallatindum til fiskimida
niiiiiiuuuiiuiiiiiiiiiiuiuuuuiiiiiiiiiiHiuuuuuuiiiiiiiiiiiiiiuiiiiuuuiiiiiiiiniiuiiuuiiiiiiiiiiiiiiiiuuuuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiuuuuiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuuiuiiiiiiiiuiuiuiiimiiiiuiiiuuuuiiiiiiiiuiuuin
Kœrður fyrir landráð
Um þessar mundir er herrétt-
ur á Englandi að rannsaka mál
canadisks hermanns, John Gord-
on Galaher frá Windsor, Ont.
Hann er kærður um landráð.
Mun hann vera sá fyrsti Canada
maður, sem kærður hefir verið
fyrir þá sök síðan Louis Riel
var fundinn sekur.
Galaher var tekinn til fanga
af Þjóðverjum. Strangar reglu-
gerðir eru fyrir því að hermenn,
sem teknir eru til fanga, megi
ekki gefa óvinunum nokkrar
upplýsingar. Galaher er sakaður
um að hafa gefið Þjóðverjum
upplýsingar gegn mútufé. Annar
hermaður, amerískur, að nafni
Hale, er einnig kærður um land-
ráð.
Hilli
Gen. McNaughton farinn
úr ráðuneytinu
Gen. McNaughton hefir nú sagt
sig úr ráðuneyti Canada stjórn-
ar og hefir verið skipaður forseti
í “Canadián section of the
Permanent Joint Defense board”.
Leysir hann þetta starf af hendi
endurgjaldslaust.
Sem kunnugt er var Gen. Mc-
Naughton yfirforíngi yfir cana-
diska hernum á Bretlandi en síð-
ar var hann skipaður í cana-
diska ráðuneytið í stað Hon. J.
L. Ralston, sem sagði af sér. Gen.
McNaughton var í kjöri bæði í
aukakosningum og hinum al-
mennu kosningum en náði ekki
kosningu.
, sisIS
Öánægja á Bretlandi
Mikil óánægja ríkir nú á Bret-
landi yfir því hve snögglega láns
og leigulögin voru numin úr
gildi. Er talið að þettá muni
valda miklum örðugleikum og
jaínvel skorti á brýnustu nauð-
synjum; að almenningur verði
að þrengja enn meira að sér held
ur en á stríðsárunum. Þeir Lord
Halifax og Lord Keynes hafa nú
verið sendir til Bandaríkjanna
til þess að reyna að komast að
samningum við stjórnina þar að
halda áfram láns og leigu fyrir-
komulaginu þar til Bretland er
búið að koma verksmiðjuiðju
sinni og flutningum nokkurn veg
inn í það horf, sem það var í
á friðartímum.
sass
Biskup íslands fer á
biskupafund
Sigurgeir Sigurðsson biskup
fer innan fárra daga flugleiðis
um Svíþjóð til Danmerkur, en
hann ætlaði að sitja fund nor-
rænna biskupa, sem á að hefj-
ast 22. þ. m.
Það var Fuglesang-Damgaard
Sjálandsbiskup, sem boðaði til
þessa fundar og sendi biskupi
íslands boð sitt. Var þá ráðgert
að fundurinn yrði haldinn um
síðustu mánaðarmót, en honum
varð að fresta af einhverjum á-
stæðum.
Alþbl. 3. ágúst.
Hernám Japans
vel á veg komið
Fyrstu loftflotafylkingar Banda
ríkjanna komu til Japan í gær,
og lögðu hald á Atsugi flugvöll-
inn, sem liggur aðeins fáeinar
mílur frá Tokyo; er þetta í fyrsta
sinn í sögu japönsku þjóðarinn-
ar, sem erlendur her hefir stigið
fæti á jápanska grund; einskis
minsta mótþróa varð vart við
gestakomu þessa, heldur var alt
í stakri röð og reglu.
í dag lendir General McArthur
liði miklu við strendur Tokyo-
flóans, og með því hefst hið
skipulagsbundna hernám lands-
ins; áætlað er, að hernámsfylk-
ingar Bandaríkjaþjóðarinnar
muni í alt nema hálfri annari
miljón vígra manna, auk nokk-
urs liðs annarsstaðar frá af hálfu
sameinuðu þjóðanna; þess er
vænst, að uppgjafar samningarn-
ir verði formlega undirskrifað-
ir um borð í ameríska beitiskip-
inu Missouri um komandi helgi.
Kosningum frestað
Hinum almennu þingkosning-
um, sem fram áttu að fara í
Búlgaríu ú sunnudaginn var,
hefir verið frestað vegna þess,
að stjórnir Breta og Bandaríkj-
anna töldu kosningalögin þannig
úr garði gerð, að það yrði í raun
inni ákveðið fyrirfram hvaða
flokkur kæmist til valda, en
undir slíkum kringumstæðum
myndu þessi tvö stórveldi ekki
sjá sér fært að viðurkenna þá
stjórn, er þá tæki við völdum.
Magnús Sigurðsson
bankastjóri fulltrúi
islands
Þriðji ráðsfundur hjálparstofn
unar hinna sameinuðu þjóða,
UNRRA, hefst í London hinn 7.
ágúst n. k.
Fulltrúi íslands á ráðsfundin-
um verður Magnús Sigurðsson
bankastjóri.
Alþbl. 3. ágúst.
Fylkiskosningar í aðsigi
Dagblöð Winnipegborgar létu
þess getið á mánudaginn, að
nokkurn veginn mætti víst telja,
að fylkisþingið í Manitoba verði
rofið af afstöðnu aukaþinginu,
er saman kemur þann 4. sept-
ember næstkomandi, og að al-
mennar kosningar fari þar af
leiðandi fram í haust.
Pietro Mascagni látinn
Sú fregn hefur borist frá
Rómaborg, að tónskáldið Pietro
Mascagni hafi látizt þar, tæplega
83 ára að aldri.
Mascagni var fæddur í Livorno
árið 1863, í desembermánuði.
Hann var um mörg ár hljóm-
sveitarstjóri í ýmsum smábæj-
um ítalíu. Árið 1890 samdi hann
óperettuna Cavalleria Rusticana,
sem er kunn um allan heim.
Pietro Mascagni stjómaði hljóm-
sveitum til hins síðasta.
Kristján Gunnar
Anderson
Kristján Gunnar Anderson
í mars hefti Icelandic Cana-
dian, var mynd og grein, sem
skýrði frá námsferli þessa unga
manns. Vegna þess að mig lang-
ar að allir íslendingar, sem ef
til vill ekki lesa hið enska blað,
fái að vita grein á manninum,
skrifa eg þessar línur.
Foreldrar hans eru Páll A.
Anderson bílaviðgerðarmaður og
bifreiðarstöðvareigandi í bænum
Glenboro, og kona hans Guðrún.
Páll er ættaður úr Bárðardal í
Suður-Þingeyjarsýslu fæddur að
Sigurðarstöðum, sonur Andrésar
Andréssonar bónda þar og Vig-
dísar Friðriksdóttur. Foreldrar
Guðrúnar móður Kristjáns þessa,
voru Kristján Hannesson og
Hólmfríður Kristjánsdóttir í
Víðigerði í Eyjafirði. Kristján er
fæddur í Glenboro, Man., 23.
ágúst 1926. Barnaskólanám og
miðskólanám stundaði hann við
Glenboro skólann. Snemma bar
á því að hann hafði yndi af
eðlisfræði og stærðfræði. Stóð
hann jafnan þar fremstur eða
með þeim fremstu alla sína skóla-
tíð. Ekki voru þó hin fögin látin
sitja á hakanum því alt það, sem
hann beitti sér fyrir sótti hann
með stakri alúð og ástundun.
Það var því engin tilviljun að
Manitoba háskólinn veitti eftir-
tekt prófum þessa unghngs. Þau
bentu á námsmann, sem hlaut að
skara fram úr ef honum var gefið
tækifæri. Háskóli þessi veitir
námsstyrk í almennra fræða
deildinni all-rýmilega þeim sem
henni finnst þess verðugir. Og
kaus hún Kristján að enduðu
skólaárinu 1944. Námsstyxkur-
inn er $325.00 að upphæð á ári
og veitist í tvö ár samfleytt þessi
upphæð. Hér er um virðing að
ræða, sem sýnir að enn eru Is-
lendingar framarlega á sviði
náms og menta, svo að eftir þeim
er tekið. Hverjum einum slíkra
manna, sem þessa, megum vér
ekki gleyma að veita athygli og
hjálpa enn hærra. Með því auk-
um vér hróður okkar sjálfra.
Þegar svo Kristján. hóf nám
sitt í haust er leið tók hann sem
sérfræðinám rafmagns verk-
fræði. í fjölda ára síðan hann
var svolítill drengur, hefur hann
leikið sér að byggja útvarps og
viðtökutæki. Hér á árunum þeg-
ar útvarpslögin voru ekki svo
einskorðuð, sem nú, lék hann oft
það að senda hljómplötumúsik
út til nágrannanna á ýmsum
bylgjulengdum, eða þá hann
sendi þeim tóninn á íslenzku og
vissu þeir ógjörla hver var að
trufla viðtökutæki þeirra. Nú
leggur hann sig eftir náminu og
gengur vel. Er gaman til þess að
vita er ungir menn mega fá
tækifæri til að ganga þann veg,
sem þeir eru syo sem af guði
gerðir til að ganga, og er það
trúa mín að síðar munum við
heyra frá þessum unga náms-
manni á sviði því, sem hann hef-
ur sér kosið. Og það gleður oss
að hann hefur þessa viðurkenn-
ingu hlotið þegar í byrjun náms-
ferils síns.
E. H. Fáfnis.
Söngur Stefáns íslandi
íslenzkur söngvari, sem ber
nafn ættlands síns, er nú kominn
heim á æskustöðvar sínar, til
þess að syngja í sig sál gömlu
ísafoldar. Landið hefir heldur
ekki daufheyrst við söngkalli
hans. Þúsundir hafa þyrpst að
söngkvöldum Stefáns íslandi
óperusöngvara og látið heillast
af töfrafríðum tónum þessa sindr
andi söngbarka ítalskrar skól-
unar.
Stefán íslandi stendur nú á
bezta skeiði ævi sinnar. Rödd-
in er orðin sveigjanleg og ör-
ugg í efstu legu, svo að hvergi
skeikar, en stöku sinnum slær
fölva á dýptina. Stílbrigðum
nær Stefán fram, með ágætum
vel, og var hið fornítalska lag
florentíska skólans eftir Caccini
afbragðs dæmi um hreinrækt-
aðan sotto voce óperusöng í
gömlum stíl, sungið af meistara-
legri nærfærni. Hins vegar birt-
ist dramatískur kynngikraftur í
“Werthers”-aríunni eftir Mass-
enet, og bendir sú meðferð til
ý>ess ótvírætt, að Stefán kunni sig
við konungsborð óperunnar.
Hann kann og að bregða á leik
af sannfærandi strákslegum
gáska, eins og í glettingalagi
Páls ísólfssonar “Sáuð þið hana
systur mína”, og slöngva fram
kersknisfullum parlando-innskot
um, eins og í “Dansinum” eftir
Rossini. Hér hefur Stefán tekið
sér húsbóndavald gagnvart höf-
undunum og mótað fyrirætlanir
þeirra eftir eigin geði og smekk,
svo að glöggt má greina sjálf-
stæðisviðleitni hins túlkandi
songvara.
Við höfum fyllstu ástæðu tii
þess að fagna söngvara, sem lík-
legur er til að bera hróður lands
síns víða vegu með Appollovega-
bréfi llstar sinnar. — Enn á ný
getur ísland sannað hlutgengi
sitt meðal stórþjóðanna og sýnt,
að það mun í framtíðinni ekki
eingöngu hasla sér alþjóðavöll á
sviði bókmennta, heldur einnig
skipa vel sæti sitt á vettvangi
hinnar hljómandi listar. Stefáni
íslandi var og tekið kostum og
kynjum af löndum sínum sem
hinum “íslenzka Gigli,” og
ætlaði djúpur fögnuður og
hrifnin áheyrenda aldrei að
linna.
Hallgrímur Helgason.
Mbl. 2. ágúst.
Tvö vöruflutningaskip
bygð fyrir Eimskip
i Danmörku
Fyrir skömmu fékk stjórn
Eimskipafélagsins loforð frá
dönsku skipasmíðastöðinni, Bur-
meister og Wain, um að hún
smíðaði tvö Vöruflutningaskip
fyrir félagið.
Stærð skipanna verður 2600
tonn, D. W. Þó hefir ekki verið
gengið frá samningunum um
þessi viðskipti, svo að ókunnugt
er um, hve mikið þau munu
kosta og hvenær þau verða til-
búin.
Þá er í undirbúningi að fá skip
byggð í Svíþjóð og fer Jón Guð-
}
Ráðast í stórfyrirtœki
••
Roy E.'Park
Þeir Mr. Hugh L. Hannesson
og Mr. Roy E. Park, hafa alveg
nýverið keypt veiðarfæraverzl-
un þá, sem Drummondville Cot-
ton Co. Ltd. hafa rekið til margra
ára hér í borginni, og stofnað
nýtt félag, sem gengur undir
nafninu Park-Hannesson Comp-
any; mun það verða löggilt eins
fljótt og ástæður leyfa; þetta
nýja félag hefir umboð fyrir
vesturhluta Ontario fylkis, Mani-
toba, Sask., Alberta og North
West Territories; félagið verzl-
ar, eins og fyrirrennarar þess,
með hin kunnu og ágætu Blue-
nose veiðarfæri, og hafa hinir
nýju eigendur langa og raun-
hæfa æfingu í því öllu, er að
verzlun veiðarfæra lytur.
Hugh L. Hannesson
Mr. Park er íslenzkum útgerð-
armönnum og fiskimönnum að
góðu kunnur af dvöl sinni hér í
borg, er hann hafði á hendi for-
stjórastarf við Drummondville
Cotton; um nokkur undanfarin
ár hefir hann gegnt sölusljóra-
starfi fyrir félagið í Montreal.
Mr. Hugh Hannesson hefir und
anfarin ár verið framkvæmdar-
stjóri áminsts félags í þessari
borg, og unnið sér álits og trausts
hinna sífjölgandi viðskiptavina
sinna; hann er hið mesta glæsi-
menni og kunnur að drengskap.
Hugh er borinn og barnfædd-
ur í Winnipeg; sonur þeirra
merkishjónanna, Mr. og Mrs.
Jóhannes Hannesson að 523
Sherbrook Street.
brandsson á næstunni til Svíþjóð
ar til þess að undirbúa þessi
skipakaup og ganga frá samn-
ingum um þau.
Hefir stjórn félagsins leitað
fyrir sér um byggingu á skipum
í Ameríku og er beðið eftir boð-
um þaðan.
Vísir 12. júlí.
NÝ BÓK:
Andabraskið athjúpað
Joseph Duminger er einn af
fremstu töfrabragðamönnum
Ameríku. Hann hefur ritað bók
um töfrabrögð sín og í því sam-
bandi sýnir hann fram á, hvernig
sumir svokallaðir miðlar leika
sér að því að blekkja fólk og
svíkja. Hér er ekki um árás á
spíritismann sjálfan að ræða,
heldur aðeins afhjúpuð brögð
svikamiðlanna.
Bók þessi er komin út á ís-
lenzku og ber nafnið “Anda-
braskið afhjúpað”. Er bókin 131
blaðsíða að stærð, en auk þess
eru í henni 34 myndir af ýmis-
konar brögðum töframanna og
svikum miðla. Víkingsútgáfan
gefur bókina útk en prentuð er
hún í Alþýðuprentsmiðjunni.
Alþbl. 4. ágúst.
Tveir Islendingar hljóta
Isbister námsverðlaun
Isbister námsstyrknum hefir
verið úthlutað til 24 ungmenna
í Manitoba, sem útskrifuðust úr
Grade 11 við háskólan. Meðal
þeirra voru tveir íslendingar.
Irene Thorbjörg Sigurdson,
Gimli hlaut $50.00 ásamt $150.00
fyrir námsgjald. Frederick
Willard Bergman, Gimli hlaut
$150.00 fyrir námsgjald.
Dtgáfa
Nýlega var aðalfundur Hins
íslenzka bókmenntafélags hald-
inn. Á síðasta ári bættust 57 nýir
meðlimir í félagið.
Forstei félagsins, Matthías
Þórðarson, þjóðminjavörður
skýrði frá fyrirhugaðri útgáfu
starfsemi félagsins, og meðal
annars gat hann um fornbréfa
safnið. Sagði hann, að hraða
þyrfti útgáfunni eftir mætti, en
við ýmsa örðugleika væri að
stríða, m. a. prentun. Enn frem-
ur gat hann þess, að eftirtald-
ar bækur væru væntanlegar frá
félaginu: Jón Sigurðsson, sam-
tíð og saga, eftir Pál Eggert
Ólafsson. Skírnir 119. árgangur
og loks 2. hefti XIV. bindis
af fornbréfasafninu, sem ráð-
gert væri að koma út á þessu
ári.
Alþbl. 29. júlí.
sasa
Hvalveiðar Norðmanna
Talið er, að Norðmenn muni
afla alls 500 þúsund tunna af
hvallýsi á þeirri vertíð, sem nú
fer í hönd. Vertíðin mun standa
yfir frá haustinu 1945 til vors-
ins 1946. í styrjöldinni hefur
verið sökkt fyrir Norðmönnum
níu stærstu hvalveiðiskipunum
og mörgum hvalbátum.
Þá er það upplýst í Oslo, að
vegna þess, að mörg hvalveiði
skipin hafi verið tekin til annara
nota í styrjöldinni, sé ósenni-
legt, að fleiri en fimm eða sex
hvalveiðiskip, sem hafa um níu
hvalveiðibáta hvert, geti farið til
veiða að þessu sinni.
Áður, fyrir stríðið, hófst ver-
tíðin, samkvæmt samningum 8.
desember og lauk 7. marz. Nú
hafa menn orðið sammála um,
að hefja veiðar 24. nóvember og
ljúka þeim 24. marz, vegna þess,
að mikill skortur er nú á hval-
lýsi og öðru feitmeti, vegna
styrjaldarinnar.