Lögberg - 30.08.1945, Blaðsíða 8
8
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 30. ÁGÚST, 1945
0r borg og bygð
MATREIÐSLUBÓK
Kvenfélags Fyrsta lúterska
safnaðar í Winnipeg. Pantanir
sendist til: Mrs. E. W. Perry,
723 Warsaw Ave., Mrs. E. S.
Felsted, 525 Dominion Street.
Verð $1.00. Burðargjald 5c.
•
Á laugardaginn 25. ágúst, fór
fram afar fjölsótt hjónavígslu at-
höfn í lútersku kirkjunni í Lang-
ruth. Voru þá vígð í hjónaband
þau William Moore, ungur mað-
ur úr canadiska flughernum og
ungfrú Gertrude Finna Thordar-
son, einkadóttir þeirra Freemans
Thordarson og Magneu (Jónas-
son) konu hans, sem lengi hefir
búið rausnarbúi í nágrenni Lang-
ruth bæjar.
Að afstaðinni hjónavígslu fór
fram afarfjölmenn og vegleg
veizla, sem allri bygðinni virtist
boðið til, í samkomuhúsi bæjar-
ins. Ræður fluttu þar séra V. J.
Eylands, sem kvaddur hafði ver-
ið frá Winnipeg til að fram-
kvæma hjónavígsluna, og cand.
theol. Pétur Sigurgeirsson, sem
einnig var með í förinni, og mess
aði á Langruth næsta dag. Bú-
ist er við að ungu hjónin myndi
heimili í Winnipeg.
•
Á þriðjudaginn 28. ágúst
voru þau Steingrímur Johnson
frá Árnes P.O. og Kristine Gib-
son frá Riverton, gefin saman
í hjónaband af séra Valdimar J.
Eylands, að heimili hans 776
Victor St.
•
Mr. og Mrs. Albert Wathne
eru nýkomin heim úr rúmlega
viku ferðalagi til Minneapolis,
Grand Forks og fleiri borga sunn
an landamæranna.
•
Mr. Pálmi Pálmason fiðluleik-
ari, sonur þeirra Mr. og Mrs.
Sveinn Pálmason, sem nú eru bú-
sett að Winnipeg Beach, hefir
nú verið nýleystur úr herþjón-
ustu; var hann um langt skeið
í canadiska flughernum, og fór
vítt um jarðir, þar á meðal til
Palestínu og Indlands; hann er
nú, eftir nokkura dvöl hjá for-
eldrum sínum, lagður af stað
austur til Toronto.
•
Norður til Mikleyjar fóru
seinni part vikunnar, sem leið,
Dr. Richard Beck og frú, Mr. J.
Th. Beck, forstjóri Columbia
Press Ltd., og Einar P. Jónsson
og frú; ferðafólk þetta kom til
borgarinnar á sunnudagskvöldið
eftir ánægjulega ferð og ástúð-
legar viðtökur nyðra.
•
Mr. Hjörtur Lárusson hljóm-
listarkennari frá Minneapolis,
Minn., kom til borgarinnar um
miðja fyrri viku ásamt frú sinni
í heimsókn til ættingja og vina;
þau hjón fóru norður í Nýja Is-
land, og ráðgerðu að dvelja hér
um slóðir nálægt hálfsmánaðar
tíma.
•
Jon Sigurdson Chapter I.O.D.
E., heldur sinn fyrsta fund eftir
sumarfríið á fimtudaginn 6. sept.
kl. 8 e. h. í Roard Room No. 2 í
Free Press Building, Carlton St.,
Winnipeg. Það er áríðandi að
meðlipiir fjölmenni á þennan
fund.
•
Samskot í byggingarsjóð
Bandalags lúterskra kvenna
Frá Mr. og Mrs. Einar Sigvalda
son, Baldur, Man., í minningu um
Dr. Johann Marino Th. Sigvalda
son, dáinn 3. júní s. 1. $5.00.
Meðtekið með þakklæti og
samúð.
Hólmfríður Danielson,
869 Garfield Sat.,
Winnipeg, Man.
•
Síðastliðinn sunnudag lézt að
heimili tengdamóður sinnar, 652
Messuboð
Fyrsta lúterska kirkja
Séra Valdimar J. Eylands.
Sími 29 017.
Guðsþjónustur á sunnudögum.
Kl. 7 e. h. á íslenzku.
Enskar morgunguðsþjónustur
og sunnudagaskóli hefjast 9. sept.
Goulding Street hér í borginn,
Björn M. Paulson lögfræðingur
og sveitarskrifari í Bifröst, 59
ára að aldri, vinsæll og dreng-
lyndur maður; hann lætur eftir
sig ekkju, Florence, dóttur þeirra
Mr. og Mrs. G. A. Polson; kveðju-
mál fyrir Björn heitinn fóru
fram í lútersku kirkjunni í Ár-
borg í gær, en í þeim bæ höfðu
þau hjón lengi átt heima.
•
Laugardaginn 25. ágúst, voru
þau Joseph Marino Goodman og
Phyllis Lemonton, bæði til heim-
ilis í Wpg, gefin saman í hjóna-
band, að 776 Victor St., af séra
Rúnólfi Marteinssyni, í fjarveru
sóknarprestsins, séra V. J. Ey-
lands. Heimili þeirra verður í
Winnipeg.
Heimilisfang Dr. Haraldar
Sigmar, forseta kirkjufqlagsins
og fjölskyldu hans, er 995 W,
17th Ave., Vancouver, B.C.
•
. Jóns.Sigurðssonar félagið, I.O.
D.E.; efndi til heiðurssamsætis
fyrir Mrs. Sigfús Brynjólfson frá
San Francisco, Calif.; samsætið
var haldið í Homestead veitinga-
salnum á miðvikudaginn 8. þ. m.
Nú er liðið 21 ár síðan Mrs.
Brynjólfsson fluttist héðan úr
borg suður í'Bandaríki; í för með
henni var systir hennar, Mrs. J.
Bowswell, einnig frá San Franc-
isco; komu þær hingað aðallega
í heimsókn til systur sinnar, Mrs.
J. Thorp. Mrs. Brynjólfson er ein
af stofnendum Jóns Sigurðsson-
ar félagsins; Mrs. Gísli Johnson
bauð Mrs. Brynjólfson velkomna
með ræðu.
Forn mannabein grafin
úr kirkjugarði í Bæjarey
í Hnappadalssýslu
Nýlega komu þeir Jón Steffens
sen prófessor og Kristinn Eld-
járn fornfræðingur til bæjarins
með mikið af mannabeinum, sem
þeir grófu upp úr gömlum kirkju
Ambassador Beauty Salon
Nýtízku
snyrtistofa
Allar tegundir
af Permanents
íslenzka töluð á st.
257 Kennedy St.
sunnan Portage
Sími 92 716
S. H. JOHNSON, eigandi
Tbe Swan Mamifacturing Co.
Manuíacturers of
BWAN WSATTIMR-KTRIP
Winnlpeg.
Halldér M»t*>u»aiema l*aa
Slgandi
291 Jamea Itraat Pkena 22 (41
Minniát
ETCL
í erfðaskrám yðar
garði í Bæjarey í Hnappadals-
sýslu. Dvöldu þeir þar í viku og
grófu upp 11 heilar beinagrind-
ur, en auk þeirra höfðu þeir á
brott með sér fjölmargar haus-
kúpur og önnur bein, bæði úr
börnum og fullorðnum.
Mun Jón Steffenssen nota
þessi bein og beinagrindur við
mannfræðirannsóknir sínar og
við kennslu í háskólanum, en
þeir félagar fóru þennan leið-
angur á vegum háskólans, eftir
að hafa fengið leyfi biskups til
að grafa í kirkjugarðinn og eig-
anda eyjarinnar, Jóns Þórðar-
sonar bónda í Hausthúsum.
Bæjarey, þar sem kirkjugarð-
urinn er, er ein af fleiri eyjum
við Löngufjörur, sem einu
nafni nefnast Hafurfjarðareyj-
ar. Talið er að kirkja hafi stað-
ið þarna um hálfa fimmtu öld,
en ekki er vitað um hvort jarð-
að hefir verið í garðinum eftir
að kirkjan var lögð þar niður,
en það var um 1563.
Það, sem einna mesta athygli
vakti þeim Jóni Steffenssen og
Kristjáni Eldjárn, var hversu
þétt virðist hafa verið grafið í
garðinn. T. d. fundu þeir þrjár
beinagrindur hvera upp af ann-
ari í sömu gröfinni. Orsakir til
þessa geta verið þær, að jarð-
lagið hafi breytzt ört, því sandur
er í garðinum og því trúlegt
að leiðin hafi fljótt máðst og
jafnast út, eða fyllst af sand-
foki milli þeirra. — Þá fundu
þeir beinagrindur af tveim ung-
lingum, sem lagðir hafa verið í
sömu kistu, og í öðrum stað
virtist þeim að þrjú lík hefðu
verið lögð í sömu kistuna, en
eitt af þeim var kornungt barn.
Töldu þeir félagar, að þeir
hefðu grafið samtals í milli 20
og 30 grafir, en kistuleifar
fundu þeir aðeins í einni gröf-
inni. Hins vegar fundu þeir
YOU UKE n-/7 LIKES YOU
There is a
“freih up” in
every sip.
nokkur eirplötubrot, sem senni-
lega hafa verið á líkkistum.
Er þetta annar mesti beina-
uppgröftur, sem framkvæmdur
hefir verið þarna í eyjunni,
hinn var gerður nokkru eftir
síðustu aldamót, en þá gróf dr.
Vilhjálmur Stefánsson land-
könnuður um 50 beinagrindur
þarna upp og flutti þær með sér
til háskóla í Norður-Ameríku.
4
Alþbl. 5. ágúst.
108 manns fórust af
slysförum á Islandi
síðastliðið ár
Á síðastliðnu ári, árið 1944,
hafa alls farizt hér af slysförum
108 íslenzkir menn og konur, þar
af 83 í sjóslysum, en 25 ýmis-
konar slysförum í landi. Af þeim,
sem farizt hafa í sjóslysum voru
66 lögskráðir sjómenn en 17 far-
þegar.
Skrifstofa Slysavarnafélags Is-
lands hefur flokkað sjóslysin og
mun birta um þau skrá í Árbók
Slysavarnafélagsins. Af farþega
skipi, sem fórst á árinu, hafa
farist 14 skipverjar og 10 far-
þegar, botnvörpuskip fórst með
allri áhöfn, 29 manns. Af flutn-
ingaskipi, er fórst, drukknuðu
2 menn, af vélbátum yfir 12
rúmlestir, er fórust, drukkn-
uðu 15 manns; af litlum vélbát,
MOST
SUITS-COATS
DRESSES
"CELLOTONE” CLEANED
72c
CASH AND CARRY
FOR DRIVER PHONE 37 261
P£RTHfS
888 SARGENT AVE.
........... —111
HOME CARPET
CLEANERS
603 WALL ST., WINNIPEG
ViC hreinsum gólfteppi yðar
svo þau ltta Ot eins og þegar
þau voru ný. — Nfl. aftur tétt-
leika stnum og áferBarprýði.
— Við gerum við Austurlanda-
gölfteppi á fullkomnasta hátt.
Vörur viBsldptamanna trygB-
ar að fullu. — Abyggtlegt
verk. GreiB viðskipU.
PHONE 33 955
Tilvalin bókakaup
Nýjar og pptaðar skólabækur til sölu fyrir alla bekki (frá
1—12) við afar sanngjörnu verði. Einnig eru til sölu flestar
nýjar bækur um frjálslynd efni; þær bækur fást einnig til
útláns fyrir sanngjarna þóknun.
TLE BETTEK CLE
548 ELLICE AVE. Milli Furby og Langside
INGIBJÖRG SHEFLEY, eigandi
This series of advertisements is taken from the booklet “Back to Civil Life,*’
published by and available on request to the Department of Veterans’
Affairs, Commercial Building, Winnipeg. Clip and file for reference.
No. 5 — WAR SERVICE GRATUITY (Continued)
(a y Basic Gratuity
The basic gratuity is calculated as follows: $7.50 for each
30 days service in the Western Hemisphere while enlisted or
obligated to serve without territorial limitations; $15.00 for each
30 days of service overseas or in the Aleutian Islands. These
rates are applicable to all ranks.
(b) Supplementary Gratuity
The Supplementary gratuity is 7 days pay and allowances
for every six months service overseas or in the Aleutian Islands
or proportionately when the service includes periods of less
than 6 months. Pay and allowances includes all pay and allow-
ances which were being paid immediately prior to discharge,
and in any event includes lodging and provision allowance in
the case of a member of the Naval Forces and subsistence
allowance in the case of a member of the Military or Air Forces
at standard rates payable in Canada.
This space contributed, by
THE DREWRYS LIMITED
MD128
sem hvolfdi, fórst 1 maður; 14
féllu út, 8 þeirra af skipum og
6 af bryggjum.
Á árinu hafa farizt 17 skip
og bátar, samtals 2344 rúmlest-
ir, og eru það þessi skip: far-
þegaskipið Goðafoss, botnvörpu-
skipið Max Pemberton, flutn-
ingaskipið Rafn, Sæunn og Búð-
arklettur; fiskiskipin (bátar yf-
ir 12 smálestir): Njörður, Freyr,
Björn II., Óðinn, Árni Árnason,
Kolbrún og Þorgeir goði; fiski-
bátarnir (undir 12 rúmlestum)
eru þessir: Elliði, Snæfari, Ella,
Hafaldan og trillubátur frá
Djúpavogi.
Manntjón það sem orðið hef-
ur af slysförum í landi, hefur
borið að með ýmsu móti. Flest
hafa umferðaslysin orðið, eða
samtals 10, af brunasárum hafa
látist 5 manns, tvær konur, tvö
börn og einn fullorðinn karl-
maður.
Tíu slys af þeim 25, sem
orðið hafa í landi, hafa borið
að með ýmsum hætti, einn
maður varð úti, einn lézt af
rafmagnsstraum er hann fékk
við vinnu sína, einn drukknaði
í á er hann var að baða sig, einn
datt af hestbaki og beið bana,
og fleiri orsakir mætti upp
telja.
Eru þessi fjölmörgu slys
þungur skattur fyrir fámenna
þjóð. í Árbók Slysavarnafélags
ins er talið sennilegt, að flest
sjóslysin, sem orðið hafa árið
1944 hafi verið af hernaðar-
völdum og hefur því sjómanna-
stqttin og raunar þjóðin öll
fært drjúgar fórnir á altari her-
guðsins, en þá fórust eins og
áður segir 66 lögskráðir sjó-
menn og Í7 farþegar.
Á þeim sex mánuðum, sem
liðnir eru af þessu ári hafa 40
manns beðið bana af slysförum.
Af þeim hafa 28 druknað, 21
af hernaðarvöldum en 7 af öðr-
um ástæðum. 12 menn hafa
beðið bana af slysförum í landi
og 11 þeirra í umferðarslysum,
en einn maður hrapaði í fjalli
nú fyrir skömmu. Virðist svo
sem umferðaslysin ætli að fara
að verða þyngst á metunum
hér og eru þau orðin öllum al-
varlegt íhugunarefni.
Þótt 28 slys, sem orðið hafa
á þessu ári, séu færð undir sjó-
slys, þá er raunverulega ekki
nema um 7 þeirra að ræða sem
slys í venjulegri merkingu, því
eins og áður segir hefur 21
maður fafizt, er skipum var
grandað, af hernaðarvöldum.
Alþbl. 1. júlí.
Mikið verk er (ramundan og
canadiskir bændur geta gert það
Bændur reyndust starfi sínu vaxnir á stríðstímanum
með því að auka matvæla framleiðslu þjóðarinnar meir en
nokkru sinni fyr; slíkt var aðdáanlegt tillag til canadisku
stríðssóknarinnar.
En nú, að fengnum friði, bíða jafnvel enn risa-
fengnari átök framundan. í hinum þjökuðu löndum Norður-
álfunnar horfa hundrað miljónir manna, kvenna og barna
fram á hungur og volæði nema því aðeins, að þær þjóðir,
sem betur eru settar, komi til liðs við þær; í þessu efni,
verður Canada að leggja fram sinn góða skerf; þess vegna
verða canadiskir bændur að leggja meiri áherzlu á fram-
leiðsluna en nokkru sinni fyr.
Það veldur oss metnaðar, að canadiskir bændur
skuli æ meir nota Cockshutt verkfæri við framleiðslu sína;
þeim er það ljóst, að Cockshutt verkfærin eru hin fullkomn-
ustu í öllum efnum og spara þeim bæði fé og fyrirhöfn; þau
endast von úr viti.
Cockshutt ‘‘80’’ Dráttarvél skarar fram
úr; hún er vlsindalega smíðuB og þolir
hvaða áreynslu, sem er, og þess vegna
er það, að canadiskir bændur skipa
henni í öndvegi. Löng reynsla við land-
húnaðarstörf, hefir leitt I ljðs óviðjafn-
aniega yftrburði áminstrar dráttarvélar.
See Your AUTHORIZED COCKSHUTT DEALER Today!
Every Cockshutt dealer is trained to help you in your choice of
equipment. See him first and talk it over.
SERVING CANADIAN FARMERS FOR OVER 106 YEARS
COCKSHUTT
PL0W C0MPANY LIMITED
Smiths Falls dd AMTUADn Winnipeg Regina Calgary
Montreal Truro Bxl AN 1 r ORD Saskatoon Edmonton