Lögberg - 24.01.1946, Page 5
»
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 24. JANÚAR, 1946
- 'AHI I AHAL
rVENNA
Bitstjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON
PIPARMEYJAR
Það eru ekki ýkjamargir ára-
tugir síðan að fólk almennt leit
niður á þær konur, sem ekki
giftust. Ef þær voru komnar
yfir þrítugt og höfðu ekki orðið
fyrir því láni, eða óláni, að eign-
ast eiginmann, var skelt á þær
í skopi titlinum piparmey. Þetta
heiti var í vissum skilningi graf-
skrift stúlkunnar; það þýddi, að
hún hafði tapað, hún var komin
á hilluna og búin að vera, því
i þá daga voru fáar stöður utan
heimilanna, sem stóðu konum til
boða. Einstaka ógiftar konur
fengu vinnu við kennslustörf og
gátu þannig verið sjálfstæðar, en
flestar urðu að sætta sig við að
hýrast á heimilum einhverra
skyldmenna sinna; vera þar sem
uokkurskonar vinnukonur og
þola háð, spott og meðaumkvun
samferðafólksins. Er engin furða
þótt þessi aðbúð gerði margar
hverjar geðstirðar og beiskar
eins og pipar, og þaðan mun
nafnið komið.
Hinsvegar datt engum í hug að
álíta það óeðlilegt þótt karl-
niaður giftist ekki. Honum voru
allir vegir færir og enginn leit
niður á hann fyrir þá sök, að
hann var einhleypur; vinsældir
hans jukust með árunum og hann
var eftirsóttur í félagslífinu.
Honum var ekki skipað í neina
sérstaka stétt. “Hann giftist
aldrei,” sagði fólkið, og það var
^.alt og sumt.
Nú er þetta alt breytt. Sá, sem
nú talar með lítilsvirðingu um
ógiftar konur, aðeins fyrir þá
sök, að þær hafa aldrei gifst, gef-
ur til kynna, að hann er langt á
eftir tímanum. Almennings-
álitið gagnvart ógiftum konum
hefir gjörbreyzt á árunum síðan
um aldamótin. Nú er ekki leng-
ur hægt að hræða stúlkur á því
að þær verði piparmeyjar, ef
þær taki seinustu kökuna af
diskinum, því nú eru þeim allir
vegir færir, engu síður en karl-
mönnum, þótt þær giftist ekki.
Nú geta þær sjálfar valið hlut-
skifti sitt í lífinu.
Konur hófu mótmæli gegn
kúgun kvenna fyrir meir en
hálfri öld síðan; þær raddir urðu
háværari eftir því, sem árin liðu;
þær kröfðust jafnréttis við karl-
menn. Árangurinn af baráttu
þeirra er sá, að nú geta konur
fengið margvíslegar stöður og
atvinnu utan heimilisins. Þótt
þær séu ekki enn búnar að ná
fullkomnu jafnrétti við karl-
menn á öllum sviðum, þá standa
þeim nú til boða allskonar störf
og stöður í viðskiftaheiminum,
þær geta orðið lögmenn, dómar-
ar, þingmenn, læknar, prestar,
kennarar, hjúkrunarkonur, o. s.
frv. og verið algerlega óháðar og
sjálfstæðar.
Fyrir þessa ástæðu er viðhorf
almennings gagnvart hinni ó-
giftu konu alt annað, heldur en
það var fýrir hálfri öld síðan.
Hún’er ekki álitin neitt afbrigði
lengur; hún er einhleyp og við
það er ekkert að athuga. Fyrir
eina eða aðra ástæðu hefir hún
ekki gifst, og það er ekki álitið
neitt tiltökumál.
Hin breyttu kjör ógiftu konu
nútímans hafa breytt henni
sjálfri. Hún.er í raun og veru
nýtt fyrirbrigði í mannfélagi
tuttugustu aldarinnar. Hún er
frámunalega vel klædd og
snyrtileg og frjálsmannleg í.
framkomu; sjálfstraust það, sem
^ún hefir öðlast, lýsir sér í svip-
krigðum og hreyfingum. Hún
veit að það sem hún er, og það
Sem hún hefir, er hennar eigin
afrek — heimili hennar, smekk-
ur hennar og skoðanir eru henn-
ar eigin.
Vegna þess að hennar áhuga-
mál eru ekki eins einskorðuð, er
hin ógifta kona nútímans oft
skemtilegri í félagsskap heldur
en hin gifta systir hennar; sjón-
deildarhringur hennar er víðari;
hún hefir meiri tíma og vilja til
þess að menta og þroska sjálfa
sig; hún á fleiri áhugamál. Og
nú er svo komið að margar kon-
ur vilja ekki breyta um nafn
þegar þær giftast, og sýnir það
bezt hve mikils álits hin ógifta
kona hefir aflað sér og hve af-
staða almennings gagnvart henni
hefir tekið miklum breytingum.
Sú var tíðin að stúlkum var það
kappsmál að fá “Mrs.” titilinn
fyrir framan nafn sitt, vegna
þess að “Miss” titillinn varð
nokkurs konar brennimark eftir
vissan aldur.
En hvað sem öllum breyting-
um á almennings skoðunum líð-
ur, þá er það nú samt öllum kon-
um eðlilegt að vilja eignast
maka, stofna heimili og ala börn.
Frá lífeðlislegu sjónarmiði séð,
er það köllun konunnar, og ef
hún einhverra orsaka vegna fer
á mis við það, veldur það henni
sársauka og vonbrigða. Það er
fagnaðarefni að nú á tuttugustu
öldinni er mannkynið loks kom-
ið á það menningarstig að kon-
an fær valið sér það hlutskifti
að vera einhleyp og taka að sér
óháða stöðu án þess að tapa
sjálfsvirðingu og virðingu sam-
félagsins. Piparmeyju heitið er
nú fallið úr málinu, og á von-
andi aldrei afturkvæmt.
•
BÓKAHILLUR
Ef þú ert eins og fólk er flest,
þá er það fyrsta, sem þú gerir
þegar þú heimsækir kunningja
þína, að ganga að bókahillunum
til þess að athuga nýjustu bæk-
urnar, sem þeim hefir áskotnast.
Margt fólk nú á dögum er tekið
upp á því að hafa bókahillur
hingað og þangað um húsið — í
dagstofunni, eldhúsinu, gangin-
um, gesta-svefnherberginu og
jafnvel í stiga-uppgöngunni.
Bækur setja vingjarnlegan og
aðlaðandi svip á heimilið.
Bókahillur geta prýtt heim-
ilið eins og fallegar myndir, og
hægt er að búa til bókahillur í
horn á herbergjunum; þar fara
þær sérstaklega vel. Þægilegt
er að hafa bókahillu fyrir ofan
eldhúsborðið eða undir glugg-
anum.
I sumum húsum eru radiators
í ganginum. Hægt er að draga
athygli frá þeim og gera gang-
inn heimilislegri með því að setja
bókahillur fyrir ofan “radiatör-
inn”.
Og hvernig væri það, að setja
lítinn bókaskáp í eitt hornið á
svefnherberginu; sem þú ætlar
gestum þínum, með vasa og
blómum, sem eru í samræmi við
veggfóðrið. E. t. v. þykir gesti
þínum gaman að líta í bók áður
en hann fer að sofa.
Börnin eiga sínar uppáhalds-
bækur. Það myndi veita þeim
mikla ánægju ef að fóðrað sæti
væri undir glugganum og bóka-
hillur beggja megin við sætið og
gluggann. Þarna myndu þau
hafa gott næði og góða birtu til
að lesa. Undir hillunum mætti
byggja skáp, sem hægt væri að
loka og þar myndu börnin
geyma leikföng sín. Bezt er að
byggja hillurnar jafnóðum og
bókaforði unglingsins stækkar,
því leiðinlegt er að sjá tómar
hillur.
Oftast eru þessir bókaskápar
án hurða. Umbúðir bókanna nú
á dögum eru svo litfagrar, að
þær prýða stofuna, þær eru því
ekki teknar af bókunum og bæk-
urnar óhreinkast ekki þótt þær
séu í opnum skápum.
Ef þér finst stofan þín of löng
og mjó, þá er gott ráð að byggja
bókahillur þvert yfir annan
endavegginn, tvö til þrjú fet
fyrir ofan gólf, þá mun stofan
sýnast styttri. Ef þér þykir svona
hillur of langar, gætir þú auð-
veldlega útbúið tveggja feta
skáp við annan enda þeirra, fyrir
tímarit og blöð, þau gera stof-
una stundum svo ruslaralega.
Þægilegt er að hafa bókahill-
ur fyrir ofan eða hjá rúminu,
sérstaklega fyrir þá, sem eiga
vanda fyrir því að verða and-
vaka.
•
Mataræði og heilbrigði
Leynt hungur
Árið 1939 og 1940 fóru fram
rannsóknir á heilsufari cana-
disku þjóðarinnar. Við þær rann-
sóknir kom það í ljós, að við
borðuðum ekki nóg af þeim
fæðutegundum, sem við þörfn-
umst til þess að vera heilbrigð.
Sex af hverjum tíu manns, sem
skoðaðir voru, áttu það á hættu
að kenna til langvarandi þreytu,
óljósra verkja og þrauta, tauga-
óstyrks, og vera móttækilegir
fyrir sjúkdóma, vegna þess að
þeir borðuðu of lítið af neðan-
greindum fæðuefnum:
1. kalkefni (calcium)
3. Vitamin A.
2. B Vitamins
4. járnefni (iron)
5. eggjahvítuefni (protein)
6. Vitamin C.
Þótt við borðum' þrjár stórar
máltíðir á dag og seðjum þann-
ig það hungur, sem við finnum
til dagsdaglega, getum við þjáðst
af leyndu hungri, ef nægileg
málmefni og fjörefni eru ekki í
fæðunni, sem við neytum.
Mjólk og mjólkurmatur
Mjólk er fullkomnasta fæðan;
hún er rík af kalkefni, B- vita-
mins og proteins, og á sumrin
er mikið af vitamin A í henni.
Það er áríðandi fyrir fólk að
muna það, ^ð ef mjólk eða ost-
ur er ekki framreiddur með mál-
tíðunum er erfitt fyrir jafnvel
fullorðið fólk að fá nægilegt
kalkefni fyrir líkamann. Full-
orðnir þurfa að drekka að minsta
kosti eitt glas af mjólk á dag,
helzt tvö og börn tvö til fjögur
glös af mjólk á dag. Mjólk er
ekki aðeins drykkur, heldur á-
gæt og nauðsynleg fæða.
Hvert einasta heimili ætti að
verja eins miklu fé til mjólkur,
rjóma og osta kaupa eins og var-
ið er fyrir kjöt og fiskmeti —
og meiru þar sem eru mörg ung
börn.
Mjólkin byggir upp vöðvana,
beinin og tennurnar og styrkir
taugakerfið. Langvarandi skort-
ur á kalkefni í líkamanum,
verður oft áberandi á efri árum,
þannig að beinin í eldra fólki
verða stökk.
Margar konur forðast að drekka
mjólk vegna þess að þær halda
að hún sé fitandi, Miklu vitur-
legra væri þeim að neita sér um
sætindi, kökur, feitt kjöt og sós-
ur, því slíkur matur er miklu
meira ^fitandi og hefir ekki að
geyma þau málmefni og fjörefni
sem eru í mjólkinni. Að minsta
kosti gætu þær drukkið áfir eða
undanrenningu. (Framh.).
Frjettablað nokkurt birti and
látsfregn Jóns Jónssonar og
komst að raun um, að fregnin
ver á misskilningi byggð. Næsta
dag kom eftirfarandi í blaðinu
í gær birtum við fyrstir blaða
dánarfregn Jóns Jónssonar. í
dag berum við fyrstir fregnina
til baka. Blað okkar er altaf
fyrst með frjettirnar.
Það var bjartsýnn maður, sem
fann upp gufuvjelina, en raun-
sæismaður, sem setti á hana ör-
yggisventil.
Tveir íslendingar, sem
hittust í Honolulu
Nýlega er komið bréf hingað
frá Manilla á Pilipseyjum frá
Geir Jónssyni, stýrimanni á
amerísku sjúkraskipi, “Chateau
Tierry”. Bréfið er til foreldra
hans, Jóns Árnasonar, skipstjóra
frá Seyðisfirði, og Guðbjargar
Guðmundsdóttur. Segir'Geir frá
ástandinu í Manillá, sem er mjög
slæmt og frá fundum sínum og
Vestur - Islendingisns Jakobs
Árnasonar, sem hann hitti í
Honolulu.
Fer hér á eftir útdráttur úr
bréfinu, með leyfi föður Geirs:
Alt í kalda koli.
“Hér í höfninni liggja 96 sokk-
in skip og borgin er öll í rúst-
um. Það er ekkert hægt að fá í
landi. Það er auðvitað hægt að
fá allskonar skran, en ekki er
örugt að kaupa neitt til að borða.
Fólk, sem fer í land, hefir með
sér vatn og kaffi, því ekki er
hættulaust að drekka vatnið í
landi.
Japanar höfðu yfirráðin í
Manilla í 2 ár og hér bjuggu
fyrir stríð 800,000 manns. En
fyrstu vikuna, sem Japanar voru
í borginni, drápu þeir 100 þús-
und manns. I einum elsta hluta
borgarinnar, sem var kallaður
“Vallarborg” bjó efnaðasta fólk-
ið. Japanarnir voru hræddir um
að þeir myndu hafa vandræði ai
þessu fólki og gerði sér þá lítið
fyrir og lokuðu þeim hluta borg-
arinnar og drápu hvern einasta
mann, karl og konu, ungan og
gamlan. Þarna bjuggu 80,000
manns. Síðan jöfnuðu þeir öllu
við jörðu . . .”
íslendingurinn í Honolulu
“Þegar við vorum í Honolulu
síðast, hitti eg íslending, sem er
fæddur í Ameríku, en foreldrar
hans eru að heiman. Hann heit-
ir Jakob Árnason og er í sjó-
hernum. Hann var á íslandi 3
ár, og var um alt land, meira að
segja á Seyðisfirði, og hann trú-
lofaðist eða giftist á Siglufirði.
Þegar hann fór frá Islandi, var
hann sendur til Kyrrahafsins og
er nú á Honolulu. Honum hund-
leiðist þar.
Hann kom um borð með ein-
hverjar fyrirskipanir til skip-
stjórans og einhvern veginn
barst það í tal, að skipstjórinn
væri sænskur. Þá sagði Jakob
honum, að hann væri íslending-
ur.
Eg var á verði uppi í brú, þeg-
ar skipstjórinn hringdi og bað
mig að koma og tala við sig.
Þegar eg kom, sagði karlinn:
“Talaðu við hann íslenzku”.
Eg vissi ekki hvað um var að
vera, en sagði þó: “Sæll og
blessaður. Ertu íslendingur?”
sagði hann. Við urðum báðir
steinhissa og vissum ekki hvort
við áttum að tala íslenzku eða
ensku. Eg hitti hann svo í landi
um kvöldið og við skemtum okk-
ur prýðilega við að tala íslenzku.
, * *
Geir Jónsson stýrimaður er 27
ára og hefir stundað sjómensku,
m. a. á Eimskipafélagsskipunum.
Síðan gekk hann á sjómanna-
skóla í New York og útskrifaðist
þaðan 20. febr. s.l.
— (Mbl. 6. des.).
Tveir Skotar sátu undir hús-
vegg og töluðu og reyktu pípur
sínar.
“Eiginlega er nú ekki mikil
ánægja af að reykja, Sandy”,
sagði Donald.
Og hvernig kemstu að þeirri
niðurstöðu?” spurði Sandy.
“Nú,ef þú ert að reykja þitt
eigið tóbak, nýtur þú þess ekki,
þegar þú gerir þjer ljóst, hvað
það er rándýrt. Og ef þú ert að
reykja tóbak einhvers annars,
seturðu svo mikið í pípuna, að
þú nærð ekki einum einasta
reyk”.
Söfaun þjóðlegs fróðleiks
og íslenzkra sögugagna
vestan hafs
I viðtali, er birtist í vestur-
íslenzku viðublöðunum fyrir
stuttu síðan, vék dr. Helgi P.
Briem, aðalræðismaður Islands
í New York að því, hver nauð-
syn bæri til að varðveita íslenzk
menningarverðmæiti, þjóðlegan
og sögulegan fróðleik, bréf og
handrit, sem til eru hér vestan
hafs, frá því að lenda í glatkist-
una; og kom hann fram með at-
hyglisverðar bendingar í því
sambandi.
Er hér um að ræða hið tíma-
bærasta og þarfasta verk, enda
hefir Þjóðræknisfélagið um all-
mörg undanfarin ár unnið að
söfnun slíkra verðmæta, þjóð-
legra og sögulegra, og haft milli-
þinganefnd starfandi að því máli
og er svo enn. Jafnframt má
geta þess, að Menntamálaráð ís-
lands og Hið íslenzka þjóðvina-
félag hafa nú einnig látið sig
þetta söfnunarmál skifta og
boðið Þjóðræknisfélaginu mikil-
væga aðstoð í því efni, sem nán-
ar verður getið annarsstaðar, og
félagið mun vafalaust notfærg
sér eftir því sem unnt er. For-
maður Menntamálaráðs er Val-
týr Stefánsson ritstjóri, en for-
seti Þjóðvinafélagsins er Bogi
Ólafsson yfirkennari.
Núverandi milliþinganefnd
Þjóðræknisfélagsins, sem hefir
söfnun þjóðlegs fróðleiks og
sögulegra gagna með höndum,
er skipuð eftirfarandi mönnum:
Séra Sigurður Ólafsson, Selkirk,
Man., formaður; séra Halldór E.
Johnson, Lundar, Man.; G. J.
Oleson, Glenboro, Man.; Gam-
alíel Thorleifsson, Garðar, N.D.;
og Páll Guðmundsson, Leslie,
Saskatchewan.
Vil eg hvetja fólk, sem slíkan
fróðleik kann að eiga í fórum
sínum, hvort sem er frásagnir,
bréf eða dagbækur, til að láta
ofantöldum nefndarmönnum það
í té, og má treysta því, að þeir
komi slíkum gögnum til varð-
veizlu með þeim hætti sem gagn-
legast og varanlegast þykir.
Richard Beck.
GAMAN 0G
ALVARA
Vinna. — Stúlka óskar eftir
hússtörfum hjá góðri fjöl-
skyidu. Getur matreitt og sjeð
um börn. (Auglýsing í Banda-
ríkjablaði.)
*
Bostonbúi var að sýna Eng-
lendingi það markverðasta í
borg sinni og sýndi honum að
lokum minnismerkið á vígvelli
þeim, sem þekktur er undir
nafninu Bunker Hill.
“Hjerna fjell Warren höfuðs-
maður”, sagði Bostonbúinn.
Englendingurinn horfði alvar
legur á hinaháu steinsúlu.
“Langt fall! Hann hefir auð-
vitað dáið?”
“Heyrðu, Hoskins, kokkurinn
var að segja mjer, að þú hafir
verið mjök drukkinn í nótt og
verið að burðast við að velta
tunnu Upp kjallaratröppurnar.
Er þetta satt?”
“Já, lávarður minn”.
“Og hvar var jeg, meðan þes-
su fór fram?”
“I tunnunni, lávarður minn”.
*
Presturinn: — Mjer þótti
leitt að sjá þig ekki í kirkju í
gær, Jón.
Jón: — Ja, prestur minn, það
var svo mikil djeskotans rign-
ing, að eiginlega var ekki hundi
út sigandi. — En jeg sendi þó
konuna mína, eins og þú sást.
M inniáV
BÉTCL
í erfðaskrám yðar
HUMPHREY
ALULLAR
TWEED LONGS
Þetta er sá tími ársins, sem
mest þörf er fyrir longs —
veljið yðar úr gráu eða brúnu
tweed. Full stærð, faldaðir
að neðan. Stærðir fyrir 8 til
18 ára.
Parið á
.95
Boys’ Clothing Section, Fifth Floor.
T. EATON C?
LIMITED
3,000 STÖÐUR
við hendi í timbur og pappírsviðar vinnustöðvum
í Sléttufylkjunum. ‘
CANADISKIR SKÓGAR KVEÐJA TIL STARFS
MENN ÓSKAST
nú þegar í vinnu
HEILSUSAMLEGT FÆÐI —
GOTT KAUP
ÁGÆTUR AÐBÚNAÐUR
Ferðalög skipulögð
Æfðir menn við góða heilsu, sitja fyrir við útivinnu.
Ráðið yður hjá næsta
National Employment Office