Lögberg - 28.03.1946, Side 7

Lögberg - 28.03.1946, Side 7
LÖGBERG, FIMTUDAGIMN 28. MARZ, 1946 7 Þórey Oddleifsson í Haga Fædd 2. júlí 1867 Dáin 15. okt. 1945 “Móðir, kona, meyja, meðtak lof og prís!”' Langur og bjartur æfidagur glæsilegrar og ágætrar konu átti sitt upphaf og endir á þeim tím- um sem að ofan er greint. Að vinna á meðan dagur er, í trú, von og kærleika, virðist hafa verið kjörorð hennar og lífs- stefna; slík er a.m.k heildar út- koman af dvöl hennar í Ný- íslandi, alt frá landnámstíð. Sem frábær “móðir, kona, meyja,” lifir hún í kakklátri minningu hjá sínum mörgu afkomendum og vinum. Þórey var fædd að Vatnsdals- gerði í Vopnafirði, ár og dag sem að ofan er greint. Foreldrar hennar voru Stefán Þorsteinsson, ættaður frá Ljósalandi í Vopna- firði, og Sigurborg Sigfúsdóttir, frá Hroðlaugsstöðum á Langa- nesi. Eftir tíu ára búskap í Vatns- dalsgerði, við fátæklinga kjör, snerist hugur Stefáns til Vestur- heims; og flutti hann þangað af sjálfsdáðum ásamt konu sinni og tveimur dætrum, Þóreyju og Sigríði. Með þeim hópi land- nema, sem kallaður hefir verið “stóri hópurinn,” komu þau til 'Gimli árið 1876. Eftir vetrar- dvöl þar, fluttu þau norður með Winnipeg-vatni, og nam þá Stef- án land er hann nefndi eftir fæðinganstað sínum, Ljósaland, í Hnausabygð. Eftir þriggja ára dvöl þar,.fluttu þau út í Mikley og voru þar í tvö ár, síðán tvö ár í Selkirk, en settust svo að í Winnipeg, þar sem Stefán stund- aði almenna daglaunavinnu. Snemma á æfinni kom í ljós einn megin eiginleiki Þóreyjar, viljinn til að vinna. Tólf ára gömul fór hún að ganga í vist. Eftir fermingu og fram að gift- ingu, var hún stöðugt í vist hjá enskumælandi fólki, lærði þar málið og vinnubrögð. Þótt hjá enskum væri, hélt hún ætíð sam- neyti við Islendinga, sótti ís- lenzkar messur og samkomur er hún átti kost á því. Fátækum foreldrum sínum reyndist þórey ágæt hjálp í bardaganum um lífs- viðurværi. Á þeim árum var kaupgjald mjög lágt, og erfitt uppdráttar fyrir efnalítið vinnu- fólk, en þó mun Þórey hafa ðtt heldur afgang en skuldir. Glað- iynd og fjörug var hún, en þó lítið gefin fyrir glaum og léttúð. Meiriháttar spusmál lífsins sá hún að væru alvarlegs eðlis, og hfsins gæði of dýrkeypt til þess að þeim mætti sóa. Þórey var bæði þá og síðar þrekmikil og föst í lund og trygglynd, og neyndist ætíð vönduð og trúverð- ug í lífi og starfi. Gæfuspor var það fyrir þór- eyju og Gest Oddleifsson, er þau bundust trygðaböndum og giftu sig þ. 11. nóvember 1885. Þótt bæði væru þau þá innan við tví- tugsaldur, voru þau vej, þroskuð, stórhuga og vongóð, og máttu ekki vamm sitt vita. Fyrstu tvö ár sambúðar sinnar voru þau bú- sett í Winnipeg. En ákjósanlegri °g frjálsari framtíð hugsuðu þau uð finna mætti meðal samlanda sinna í landnáminu nýja í Nýja íslandi. Samkvæmt þessari á- kvörðun, fluttu þau um haustið 1887 norður í frumskóga og keldur nýlendunnar, og settust að á Ljósalandi, þar sem þau voru vetrarltngt. Með þeim fóru og foreldrar Þóreyjar, og dvöldu hjá þeim síðan til æfiloka. Um veturinn leitaði Gestur vestur í óbygðir, þar til hann fann land sem honúm leist vel á, nam það og bygði bjálkakofa. Þangað flutti hann að vorlagi með konu og barn og tengdafor- eldra sína, og byrjaði búskap á landnámsjörð sinni að Haga, á grænum grundum hjá hægt- rennandi vötnum íslendinga- fljóts. Efnin til að byrja búskap voru afar lítil, eftir sögn: Þriggja mánaða matarforði, ein kýr, einn uxi og 75 cent í peningum. Svo var bújörðin næstum því hulin kargaskógi, með bleytu og for- arpollum á víð og dreif. Ná- grannar voru þá fáir og langt húsa á milli, óraleið til bygða og vegleysur einar til umferða. Svo voru einnig villidýr í skógum og fuglavargur, miklar vetrarhörk- ur og sumarsvækja, sem áreiðan- lega gerðu ekki líf frumbyggj- anna neitt léttara. En torfærur og erfiðleikar gátu ekki yfirbugað dugandi fólk eins og Gest og Þóreyju í Haga. Dugn- aður og drífandi vilji, ásamt hug- sjónaríkri lífsstefnu, veittu þeim þrek og þolgæði til mikilla fram- kvæmda. Á fyrstu árunum mátti Gestur oft fara langar leiðir burt frá heimilinu í atvinnuleit, og var hann þá langtímum fjarverandi. Reyndist þó Þórey því hlutskifti fullvaxin að vera bæði bóndi og húsfreyja, — að stjórna gripa- hirðingamönnum, annast um inn- anhússtörf einsömul og ala upp stóran hóp barna, auk þess að sinna með nærgætni öldruðum foreldrum sínum. Þótt heimilið væri -umfangsmikið og stórt en efnin lítil, var engum úthýst né neitað um beina sem þar bar að garði. Dæmafá hjálpfýsi ein- kendi þau Hagahjónin, svo að þau töldu sjálfsagt að hjálpa þurfandi náunga hvað sem það kostaði. Til dæmis, tóku þau inn á heim- ili sitt Pál nokkurn Gíslason, sem hafði búið um stund í ná- grenni við þau, og sóttu upp á eigin ábyrgð og kostnað mál út af landareign hans, og hjálpuðu honum þannig að ná rétti sínum. Var Páll hjá þeim til dauðadags, naut ágætrar umönnunar, og reyndist þeim einnig handhægur á heimili. í þakklætisskyni gaf Páll Þóreyju land sitt í arf; þó höfðu Gestur og Þórey aldrei farið fram á neitt endurgjald fyrir greiðann. Gestur Oddleifsson var vel- metinn og snjall bygðarhöfðingi, sem skipaði formannsstöðu í um- fangsmiklum framfarastörfum, stjórnaði oft mannfundum, og átti sæti í stjórnarnefndum í fyrirtækjum svo sem rjómabús- ins og bændaverzlunarinnar í Árborg. Góð fyrirtæki var hann ætíð fús og reiðubúinn til að styðja sem óbreyttur liðsmaður, en var oft af starfsbræðrum sín- um talinn sjálfsagður til forustu. Lá því leið manna oft að Haga heimilinu, og voru viðtökurnar þar ætíð höfðinglegar, samræður skemtilegar og samfélagið upp- byggjandi. Húsbóndinn og hús- freyjan, Gestur og Þórey Odd- leifsson, voru í öllu dásamlega samhent; og heimili þeirra var, (eins og svo vel er komist að orði í æfiminningargrein sem séra Sigurður Ólafsson ritaðt um Gest sál.), “jafnan meðfram al- faravegi, þar sem virk góðvild og hjálpsemi samfara höfðingslund ríkir og ræður — eins og jafnan átti sér stað í Haga.” Þessa göfugu éiginleika sýndu Gestur og Þórey Oddleifsson bæði utan heimilis og innan, og ekki sízt í félagslegum samtök- um bygðarinnar. Þar voru þau máttarstoðir. Lúterskum söfn- uði tilheyrðu þau æfilangt, á fyrri árum í Geysissöfnuði, en síðar í Árdagssöfnuði. Gestur var oft í safnaðarráði, og um tíma safnaðarforseti. Þórey ver vel starfandi í söfnuði og kvenfélagi. Á síðari árum og fram að æfi- lokum var hún heiðursmeðlim- ur í kvenfélagi Árdalssafnaðar, —sæmd sem félagssystur hennar veittu henni í viðurkenningar- skyni fyrir langt og áhugamikið starf í þágu félagsins. Afkomendahópur Gests og Þór- eyjar er stór og mannvænlegur. Börnin eru hér talin eftir aldurs- röð: Oddleifur, fyrrum eimlestar- stjóri (locomotive engineer), en síðar og nú járnsmiður og verk- færasali f Árborg, á fyrir konu Sigrúnu Martin frá Garði í Hnausabygð. Una, kona Guðmundar Jakob- sonar bónda í Framnesbygð. Stefanía Sigurbjörg, gift Jóni B. Pálmason, fyrrum í Riverton, en nú búsett í Athalmer, B. C. Ingibjörg Arín, Mrs. Walter Baldwin, í Winnipeg Gestur Stefán, kvæntur Minnie Koblun, í Árborg. Sigurður Óskar, býr góðu búi í Árdalsbygð, giftur Ólöfu Önnu Jónasson. Faðir hennar var Ein- ar læknir Jónasson á Gimli. Bróð- ir hennar, Einar, var áður bæjar- stjóri á Gimli, síðar fylkisþing- maður, en nú dáinn. Annar bróðir, Baldur, er bæjarskrifari á Gimli. Þórey Sigríður, ekkja eftir P e r c y C. Jonasson, fyrrum verzlunarstjóra í Árborg. Percy var af brezkum ættum, en var uppalinn af Capt. Sigtryggi Jón- asson og konu hans, og varð íslendingur í anda, góður hæfi- legamaður. Þórey lifir nú og starfar í Sudbury, Ont. Sigurberg, var keyrslumaður í Canada hernum, en nú heim- kominn til fjölskyldu sinnar í Ásborg. Kona hans er Ruby Ber- nice, dóttir Brynjólfs og Sæunnar Anderson, sem bæði eru látin, en áður voru hótel-eigendur í Árborg. Jóhannesína, gift E. Guðna Ingjaldson, áðúr búandi í Vatna- bygðum í Saskatcheæan, en nú búsett í Árborg. * Mabel Laura, kona kolbeins (Benny) Goodman; búa þau á föðurleifð hennar í Haga, og hafa þar reist nýtt og myndarlegt íbúðarhús sem þau dvelja í, en Minningarstef um Þóreyju og Gest Oddleifsson í Haga GESTUR Nú skal í óði ynna eitthvað um látinn frænda, örlítið á hann minna, áður í liði bænda vann hann og hélt þar velli, vini hann studdi glaður, - dó svo við dyr hjá elli Dáðrökur landnámsmaður. Foringi fær var talinn, framgjarn með vilja sterkum, oft var því einum falin umsjón á miklum verkum. Aðferðir út hann skýrði, yfir því stóð á verði, haglega hugur stýrði hverju því sem hann gerði. Þreklega var hann vaxinn, vekjandi rómi snjöllum, oft hér um æfidag sinn uppi á ræðupöllum; myrkur var ekki’ í máli,' mælti hann kátt á stuiídum, stappaði í aðra stáli, styrkur á manna fundum. Nú er hann Gestur genginn götuna fram til hvarfa, hvílandi friður fenginn, • fær mun hann því að" starfa, stórhuga sterkur andi starfa mun líkt og forðum, honum mun víst ei vandi að vekja upp dáð með orðum. Böðvar H. Jakobsson. J * o ÞÓREY Látin er landnámskona, lifir þó enn í hjörtum dugandi dætra’ og sona, drauma í'heimi björtum um hana ástúðlega endurminningar vakna, ekki fær tungan trega túlkað hér hvað þau sakna. Fljóð átti fáa líka, fundust þar kostir góðir, ætíð hin elskuríka umhyggjusama móðir, heimilið hennar bjarta * hýsti ei sorg né kvíða, hún var svo hlý í hjarta, húsfreyjan yndisblíða. / Löngum eg lítill drengur lagði mín spor að Haga, fanst mér það vera fengur fyr um þá æskudaga, móðurástin þá mætti mér þar, að hverju sinni, eins og mig líka ætti, ætla eg börn það finni. Því mega hjörtu hlýna, hún mun í draumalöndum vitja um vini sína, vefja þá kærleiksböndum, til þess að styrkja í stríði styðja um dimmar slóðir, víkja svo verði kvíði, vera þeim eins og móðir. Böðvar H. Jakobsson. Y ngstu lesendurnir Guðríður Veturinn, sem Þorbjörn og dóttir hans, Guðríður, voru í Herjólfsnesi, var mikið hallæri á Grænlandi. Þar í byggðinni var spákona. Bóndinn bauð henni heim í Herjólfsnes til þess að vita hvort hún gæti ekki séð hvenær hallærinu myndi létta. Þegar spákonan kom í Herjólfs nes, var henni tekið fjarska vel og alt fyrir hana gert til þess að henni gæti heppnast að spá. Hún er þar um nóttina, en næsta dag segir hún bónda að hún geti ekki spáð nema því aðeins að hún gæti fengið konu til að syngja vist kvæði. Guðríður var þá fengin til að syngja kvæðið og hún kvað það svo.fagurt og vel að spákonan komst þegar í spádómsástand. Spákonan segir nú bónda að hallæri muni létta þegar vorið komi og að fólki muni batna veikindi þau/sem hafi þjáð það um veturinn. • Þvínæst snýr spákonan sér að Guðríði og segjir henni að hún vilji launa henni aðstoð hennar, því hún geti glöggt séð forlög hennar. “Þú munt fá gjaforð hér í Grænlandi, það er sæmi- legast er, þótt þér verði það ei til langæðar, því vegir þínir liggja út til íslands og mun þar koma frá þér bæði mikil og góð ætt, og yfir þínum ættkvíslum skína bjartari geislar en eg get lýst.” v Síðan fór spákonan á annan bæ. En veðuráttan batnaði fljótt eins og hún hafði sagt. Um vorið siglir Guðríður með föður sínum til Eiríks rauða í Bröttuhlíð. Hann fók vel á móti þeim og þar kyntist Guðríður Þorsteini eldra syni Eiríks og þeim leist vel hvort á annað. Þegar Þorsteinn kom til baka úr Vínlands leit sinni, sem eg hefi áður sagt ykkur frá, þá bað hann Guðríðar og hún og faðir hennar tóku því máli vel, því Þorsteinn var af göfugustu ætt- inni í Grænlandi. Um haustið héldu þau veglegt brúðkaup í Bröttuhlíð. En um veturinn tók Þorsteinn sótt og andaðist stuttu síðar. Þannig hafði rætzt nokk- uð af spádómi spákonunnar. Orðasafn— hallæri — scarcity of food byggð — settlement spákona — fortuneteller að létta — to end að heppnast — to succeed víst — certain kvæði — verse, poem að kveða — to chant or croon spádómsástand — fortijnetelling mood. að batna — to recover veikindi — sickness aðstoð — assistance að launa — to reward glöggt — clear __ forlög — fate gjaforð — match sæmilegast — best kind, most suitable. ekki til langæðar— will not en- dure. ættkvíslir — descendants bjartari geislar — brighter rays að lýsa — to describe að kynnast — to become ac- quainted. brúðkaup — wedding andaðist — died að rætast — to come true láta þó gamla heimilið standa óskert. Barnabörn Gests og Þóreyjar eru 45 að tölu, en barnabarna- börnin 19. Fjör og gleði og sæmilega góðri heilsu hélt Þórey í góðum mæli fram til vorsins 1945, en þá varð hún að leita læknishjálpar. Um tíma lá hún á heimili dóttur sinn- ar og tengdasonar í Winnipeg, en hrestist aftur svo að hún gat farið heim aftur að Haga. Senn lagðist hún aftur á sjúkrabeð, og átti síðan ekki fótavist. Lífs- kraftar hennar fóru þverrandi, unz hinir fáú’mánuðir sem hún átti eftir ólifað, ag hinn “þögli gestur” heimsótti hana þ. 15. október s.l. að aftni dags. And- látið var friðsælt, og fyrir jafn mæta og kristna konu sem Þórey var mun það hafa verið sigur- sæl stund í fylsta máta. Jarðarförin, sem var afar fjöl- menn fór fram þ. 17. október frá heimilinu að Haga og kirkju Ár- dalssafnaðar, undir stjórn sókn- arprestsins séra B. A. Bjarna- sonar. Til hvíidar var hún lögð í hinum fagra landnema graf- reit í grend við Haga. Hlið við hlið hvíla þar jarðneskar leifar hinna mætu hjóna, Gests og Þór- eyjar Oddleifsson, sem á sam- vistar árunum hér voru samhent og samstilt í góðu og giftudrjúgu lífi og starfi. Tðknrepnt fyrir- brægði má ef til vill telja það, að jarðarfarardagar þeirra beggja hvor um sig, voru einstaklega bjartir, sólríkir og fagrir dag^r, annar um hávetur, hinn á miðju hausti. Þannig var æfidagur Gests, og þannig var æfidagur Þóreyjar einnig, hvor um sig einstaklega bjartur, sólríkur og fagur. Þannig einnig mun vænt- anlega hinn þrotlausi, eilífi dag- ur verða, sem upp yfir þau er runninn í landnáminu nýja á furðuströndum dýrðarlandsins. Blessuð sé minning Þóreyjar Oddleifsson. “Blessað sé þitt blíða bros og gullið tár.” Leiðirnar skiljast að sinni; en fagrar endurminningar lifa og varðveitast sem helgur dómur í hugum og hjörtum eftirskilinna ástvina og vina, unz samleið er hafin á ný. Þakklætisboðum á eg að skila frá börnum og öðrum aðstand- endum til vandamanna, nágranna og margra vina, fyrir samhygð og kærleika í þeirra garð, og fyrir alla aðstoð og samúð er hjálpuðu til að lina þjánmgar Þóreyjar og veita henni ánægju- legar stundir í banalegunni. — B. A. Bjamason. — Hvaða munur er á strúti og einum pakka af haframjöli? — Það get eg ekki giskað á. — Strúturinn verpir eggjum, en haframjölspakkinn fæðir lif- andi böm. + Blaðamaðurinn: — Svo þjer eruð 100 ára í dag. Hverja telj- ið þjer aðalástæðuna fyrir því, að þér hafið náð þessum aldri? Öldungurinn: — Að jeg hefi ekki bragðað hveitibrauð síðast liðinn tvö ár. — Ef þú ekki vilt giftast mér þá hengi eg mig. — En í guðanna bænum, gerðu það ekki hér. Pabbi sagði í gær, að hann vildi als ekki hafa þig hangandi hér allan daginn. + Hún: Eitt sinn sagðirðu mér, - að eg væri þér allrar veraldar- innar virði. Hann: Já, en sjáðu til, síðan hefi eg aukið miklð landafræðis- þekkingu mína. + Hættu nú að gorta af hugrekki þínu. Þegar ræningjarnir skip- uðu þér að rétta upp hendurnar, gerðirðu það tafarlaust. — Já, en eg krefti hneíana. + — Hvenær hefir systir þín eiginlega hugsað sér að gifta sig? — Altaf.

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.