Lögberg - 13.06.1946, Qupperneq 7
LÖGBKRG, FIMTUDAGIMN 13. JÚNÍ, 1946
7
ÁRSÞING BANDALAGS
LÚTERSKRA KVENNA
Tuttugasta og annað ársþing
B.L.K. var haldið dagana 31.
maí til 2. júní 1946, í Argylebygð.
Þingið var sett af forseta, Mrs.
Ingibjörgu J. Ólafsson, í kirkju
Immanuels safn., Baldur, kl. 3
e- h. 31. maí. Einn starfsfundur
°g einn skemtifundur voru haldn-
ir í Baldur, enn tveir starfsfund-
ir og einnskemtifundur í Glen-
b®ro. Kvenfélögin í bæjum
þessum með aðstoð kvenfélag-
anna á Brú og Grund, fram-
reiddu máltíðir og kaffi báða
dagana. Hafið þökk fyrir, Ar-
gylebúar, fyrir indælu máltíð-
irnar, fyrir gestrisnina á heim-
ilum ykkar, fyrir keyrzluna,
fyrir hlýju og vingjarnlegu við-
tökurnar á allan hátt.
Skemtifundirnir bæði kvöld-
in voru fjölsóttir og reyndust
einkar ánægjulegir og uppbyggi-
legir. Bandalagið er mjög þakk-
látt þeim sem svo mikið á sig
lögðu til þess að skemta þar. Þær
sem fluttu erindi voru: Mrs. Sig-
ríður Ragnar, N. Dakota, um
“Framfarir Kvena á íslandi;”
Miss Grace Dolmage frá “Child
Guidance Clinic”, Winnipeg, um
ýms vandamal í sembandi við
uppeldi barna; Mrs. Hrund Skúl-
ason, Geysir, um “Landnámskon-
ur Nýja Islands;” og Mrs. Fjóla
Gray um “Hugsjónir Sumarbúða
B.L.K.” þeir sem skemtu með
sÖng og hljóðfæraslætti voru:
Mr. Arni Sveinson, Baldur; Miss
Betty Peterson, Baldur, Mrs.
Ester Ingjaldson,Wpg., Séra Egill
Eafnis, N. Dakota, og sex litlar
stúlkur sem sungu svo vel í Glen-
boro. Þær, sem aðsoðuðu við
hljóðfærið voru: Mrs. Albert
Sigmar, Mrs. Rawlings og Mrs.
Eafnis.
Afar fjölmenn guðsþjónusta
fór fram á sunnudaginn 2. júni,
í kirkju Frelsis safn., Grund, þar
sem sameinaðir söngkraftar Ar-
gyle bygðar, undir forustu Mr.
Arna Sveinson, tóku þátt í hátíð-
legri athöfn. Séra Sigurður Olaf-
sson prédikaði og mintist starfs
Bandalags Lúterskra Kvenna
með hughreystandi orðum. Öll-
um gestum var veitt kaffi.
Þetta þing var það fjölmenn-
asta sem hefir verið í sögu Band-
alagsins. Full þingréttindi höfðu
eftirfarandi konur: 27 fulltrúar
frá 15 kvenfélögum, 10 meðlimir
stjórnarnefndar, 9 meðlimir sum-
arbúðanefndar, og 7 prestskonur,
þær Mrs. Ingibjörg J. Ólafsson,
Mrs. Ingiríður Jónsson, Mrs.
Lilia Eylands, Mrs. Sigríður Sig-
urgeirson, Mrs. Ingunn Martein-
son, Mrs. Ellen Fafnis og Mrs.
Sigrún Thorgrímson. Skýrslur
vor lesnar frá 12 kvenfélögum,
en 21 alls tilheyra Bandalaginu
sem telja yfir 600 meðlimi. Tvö
félög höfðu beðið um inngöngu
á árinu, þau “Sigurvon” í Húsa-
vík og yngra kvenfél. Selkirk
safn., og voru þau viðtekin og
boðin velkomin á þinginu. 1 byrj-
un þings las skrifari heillaóskir
frá Dr. H. Sigmar, Vancouver.
Öll þingstörf fóru vel og greið-
lega fram undir forustu forset-
ans, Mrs. Olafsson. Hin ýmsu
mál á dagskrá voru rædd og af-
greidd á svipaðan hátt og að
undanfömu en aðal málefnið
var: Sumarbúðir Bandalagsins,
og vil eg hér gefa ágrip af því
sem gjörst hefir því viðvíkjandi.
Þessum sumarbúðum, sem nú
eru í smíðum, var gefið nafn á
þinginu, nafnið “Sunrise Camp”
Lutheran Women’s League, og
var það samþykt í einu hljóði.
Öllum fanst það nafn til'hlýðilegt
vegna þess að staður þessi verð-
ur aðsetur að mestu leyti hinnar
yngri knyslóðar. Þessi “Sunrise
Camp” verður opnaður 1. júlí og
fer þar fram starfsskrá, sem birt
er á öðrum stað í þessu blaði og
þar er einnig skýrt frá gjaldinu
sem samþykt var á þinginu að
setja hverjum hóp sem þar mun
dvelja í sumar. Sunnudaginn
þann 7. júlí fer fram vígsla sum-
arbúðanna og eru allir boðnir
og velkomnir þangað. Kaffi-
veitingar verða þar fyrir alla.
Allir sem munu dvelja í þess-
um sumarbúðum, hvort sem það
verður langt eða skamt, mega
eiga von á góðri umönnun á all-
an hátt, jafnt andlegum sem lík-
amlega. Færir leiðtogar munu
sjá um það að allir hafi þar
skemtilega dvöl jafnt sem upp-
byggilega.
Þar sem almenningur hefir í
mörgum tilfellum lagt þá spurn-
ingu fyrir meðlimi B.L.K., hvort
börn úr öðrum trúarflokkum
mættu dvelja í sumarbúðunum,
þá var sú samþykt gjörð í einu
hljóði á þinginu að bjóða alla vel-
komna, sem vilja koma og vera í
lúterskum Camp, hvaða trúar-
flokki sem þeir tilheyra. En,
auðvitað þeir sem sækja “Leader-
ship Training Course” 9. —19.
júlí, eða “Sunday School
Teachers Rally,” 5. til 7. júlí,
verða að tilheyra lúterskum trú-
arflokki.
Umsóknir um dvöl í sumar-
búðunum skulu sendar til: Mrs.
A. H. Gray, 1125 Valour Road,
Winnipeg.
Fimm byggingar verða tilbún-
ar í enda þessa mánaðar, allar
nema minningarskálinn, sem
ekki verður mögulegt að Ijúka
við vegna skorts á efni. Þessar
byggingar eru kostaðar af eftir-
fylgjandi bygðarlögum:
1. Borðstofa og eldhús (í einu
lagi) — Islendingar í Winnipeg.
2. Annar svefnskálinn — Norð-
ur Nýja ísland undir umsjón
kvenfélaganna í Arborg, River-
ton, Geysir og Víðir, sem stofn-
uðu minningarsjóð, sem nefnist
“Blómsveigur Landnemans.”
3. Hinn svefnskálinn — Gimli
og Mikley.
4. Sjúkrahús — Langruth.
5. Hús fyrir starfsfólk — kost-
að úr aðal-byggingarsjóði B.L.K.
Minningarskálinn, sem bygður
verður seinna, er áætlað að muni
kosta um $2,700, en í minningar-
sjóðnum eru nú aðeins $1,685, en
það er óðum að bætast við hann.
Sumarbúðanefndin og bygg-
inganefndin, báðar undir for-
ustu Mrs. A. H. Gray, Wpg., hafa
sýnt frábærlegan dugnað og
sjálfsafneitun í því að koma í
framgang öllu, sem að lýtur
býggingu og útbúínaði sumar-
búðanna, á s.l. ári. Yfirsmiður-
inn, Mr. Sveinn Pálmason, með
góðri aðstoð Mr. Hrólfs Sigurðs-
sonar, hefir sýnt mesta dugnað
og framsýni í framkvæmd á
verkinu. En á bak við alt er
stjórnandi hendi Mrs. Ólafsson,
forseta B.L.K., sem umsjón hefir
með öllu viðvíkjandi sumarbúð-
unum og starfsskrá þeirra. öll
kvenfélög vinna af kappi að
safna peningum til þessa fyrir-
tækis og frjálsar gjafir koma úr
öllum áttum. Kvenfél. Sigurvon
í Húsavík stofnaði sjóð í minn-
ingu um landnema á því svæði,
og á þeim sjóð, sem nú er orðinn
allstór, að verða varið til þess
að innleiða ljósin í sumarbúðirn-
ar. Á þinginu voru afhentar
tvær rausnarlegar gjafir — $100
War Bond í minningarsjóðinn,
frá Kvenfél. Framsókn, Gimli,
til minningar um nokkra fallna
hermenn þaðan. Og á skemti-
fundinum í Glenboro, þá voru
tekin samskot, að upphæð $100,
sem gefnir voru í aðal bygging-
arsjóðinn. Séra E. H. Fáfnis tal-
aði máli B.L.K. áður en samskot-
in voru tekin og hvatti fólk til
ríflegra gjafa.
Þannig greiðist-vegurinn sum-
arbúðamáli þessu, og enn er
tækifæri til þess að veita því
styrk, ekki einungis með því að
gefa peninga heldur einnig með
því að gefa ýmsa rnuni, smáa eða
stóra, sem nauðsynlegir eru til
starfsins. Féhirðir minninga-
sjóðsins er Mrs. Anna Magnus-
son, Box 296„ Selkirk, Man. Fé-
hirðir aðal byggingasjóðsins er:
Mrs. G. W. Finnson, 505 Beverley
St.„ Winnipeg. Þeir sem ein-
hverja muni hafa til þess að gefa
skulu tilkynna Mrs. A. H. Gray,
1125 Valour Road, Wpg., eða af-
henda þá Mr. Pálmasyni,*! Sun-
rise Camp, Húsavík.
Kosningar embættismanna
fóru fram sem fylgir:
Heiðursforsetar: Mrs. Rúnólf-
ur Marteinsson, Winnipeg; Mrs.
Finnur Johnson, Winnipeg; Mrs.
Hansína Olson, Winnipeg; Mrs.
Erika Thorlakson, Seattle, Wash.
Forseti — Mrs. Ingibjörg J.
Ólafsson, Selkirk.
Vara-forseti — Mrs. Þjóðbjörg
Henrickson, Winnipeg.
Skrifari—Miss Lilja Guttorms-
son, Winnipeg. ,
B. v. skrifari — Mrs. Anna
Magnuson, Selkirk.
Féhirðir — Mrs. Gunnl. Jó-
hannson, Winnipeg.
Vara-féhirðir—Mrs. E. W. Perry.
Meðráðanefnd — Mrs. A. S<
Bardal, Winnipeg; Mrs. J. S.
Gillies, Winnipeg; Mrs. B.
Bjarnarson, Langruth; Mrs.
Anna Austman, Víðir; Mrs. G. A.
Erlendson, Árborg; Mrs. C. Nord-
man, Cypress River.
Árdís-nefnd: Ritstjórar — Mrs.
Ingibjörg J. Ólafsson, Selkirk;
Mrs. Margrét Stephensen, Win-
nipeg. Ráðskona •— Mrs. Finnur
Johnson, Winnipeg. Til aðstoð-
ar — Mrs. M. M. Jonasson, Ár-
borg, Mrs. Loa Olafsson, Árborg.
Sumarbúðanefnd — Mrs. A. H.
Gray, Winnipæg; Mrs. J. Terge-
sen, Gimli; Mrs. Florence Paul-
son, Winnip>eg; Mrs. S. Sigur-
geirson, Gimli; Mrs. K. Sigurð-
son, Sandy Hook; Mrs. H. Hall-
son, Riverton. Mrs. Paul Ander-
son, Glenboro; Mrs. K. Thor-
steinson, Baldur; Mrs. J. Finn-
bogason, Langruth; Mrs. G. W.
Finnson, Winnip>eg. Mrs. H. G.
Henrickson, Winnip>eg; Mrs. S.
Arason, Husavík; Miss M. Hall-
dorson, Gimli; Mrs. B. S. Benson,
Winnipeg; Mrs. C. Ólafsson,
Winnipeg; Mrs. F. J. Gislason,
Morden; Mrs. Ólöf Corigal, Sel-
kirk.
Kosnar erindrekar á næsta
kirkjuþing voru þær: Mrs. G. A.
Erlendson, Árborg; Mrs. S. Sig-
uxgeirsson, Gimli.
Kosnar í milliþinganefnd til
þess að yfirfara lög Bandalags-
ins: Mrs. Ingibjörg J. Ólafsson,
Mrs. A. H. Gray, Mrs. B. S. Ben-
son, Mrs. H. G. Henrickson, og
Mrs. V. J. Eýiands.
Fulltrúar á þinginu voru sem
fylgir:
1. Kvenfél. Herðubreiðarsafn.,
Langruth — Mrs. J. Finnboga-
son og Mrs. Guðný Johnson.
2. Kvenfél. Stjarnan, Árnes
— Mrs. M. Einarsson.
3. Kvenfél. Fríkirkjusafn., Brú
— Mrs. T. H. Hallgrímson.
Kvenfél. Frelsis safn., Grimd—
Mrs. Kristín Christopherson.
5. Kvenfél. Glenboro safn. —
Mrs. Kristín Oleson.
6. Kvenfél. Selkirk safn. —
Mrs. Thora Oliver, Mrs. Sigríður
Sæmundson.
7. Jr. Ladies’ Aid, Selkirk —
Mrs. Nellie Hoffman, Mrs. Ólöf
Corrigal.
8. Kvenfél. Framsókn, Gimli
— Mrs. J. Tergesen, Mrs. Helga
Johnson.
9. Kvenfél. Guðbrands safn.,
Morden — Mrs. Louise Gislason,
Miss Oddný Gislason.
10. Freyja, Geysir—Mrs. Pearl
Wold, Mrs. Ethel Thorsteinson.
11. Baldursbrá, Baldur — Mrs.
Kristín Sveinson.
12. Undína, Hekla — Mrs. K.
Tomasson.
13. Kvenfél. Árdalssafn., Ár-
borg — Mrs. M. M. Jonasson,
(Frh. á bls. 8)
MINNISBLAD
FYRIR ÞÁ, SEM SELJA VILJA ÍSLENZKAR
BÆKUR, TIMARIT, BLÖÐ, SMÁPÉSA OG
ANNAÐ SEM KOMIÐ HEFIR UT Á ISLENZKU
Vil meðal annars kaupa þessar bækur:
Bólu-Hjálmars saga
Saga Mera-Eiríks
Árbækur Ferðafél. íslands
Þyrnar, I. útg.
Minningarrit Möðruvallaskóla 1901
Bréf og ritgerðir St. G. St., I. bindi
Sýslumaðurinn í Svatrárbotnum
Kvæðakver Halld. Kiljan Laxness
Árferði á Islandi í 1000 ár.
Ferðabækur Þorv. Thoroddsen.
Lýsing Islands, Þorv. Thoroddsen.
Munkarnir á Möðruvöllum.
Svartar fjaðrir, I. útg.
Blanda, I. og II. bindi.
Rit, Jónas Hallgrímss. 1. og 5. bindi.
íslenzkar gátur, þulur og skemtan-
ir, 1.—2. hefti.
Vorljóð Gunnars Gunarssonar.
Sagnir Jaboks gamla
Þjóðsögur Jóns Þorkelssdnar 1899.
Sögur af ýmsu tagi e. Austmann.
Æfisaga Jóns Indíafara.
Friðþjófsaga, allar útg.
Perlur, tímarit.
Ferðaminninga Sv. Egilssonar, 1.
bindi, 3. hefti.
Ljóðabækur Bólu-Hjálmars
Drauma-Jói.
Tyrkjaránið á Islandi.
Tyrkjaránssaga Björns á Skarðsá.
Annálar Björns á Skarðsá.
Biskupasögur Sögufél.
Biskupasögur Bókm.fél.
Huld, gamla útgáfan.
Ben Húr.
Skúli Magnússon.
Oddur lögmaður.
Þjóðsögur Odds Björnss.
Sögusafn Þjóðólfs, I.—III. hefti.
Hlín, 2. árgangur.
Sýslumannaæfir 1.—4. bindi.
Göngu-Hrólfs ríma e. Bólu-Hjálmar
Þjóðsögur Jóns Árnasonar 1862 til
1864.
Islenzk æfintýri 1852, safnað af
Jóni Árnas. og Magnúsi Grímss.
Alþýðubók Þór. Böðvarss.
Smásögur e. Halldór Kiljan.
Alþýðubók Halld. Kiljan.
Vestfirzkar sagnir, prentað á ísa-
firði 1909.
Sögusafn Isafoldar, 4. ár.
Almanak Þjóðvinafélagsins 1827—
1927.
Sögur og kvæði, Jóh. M. Bjarnason,
Wpg. 1892.
Parmes loðinbjörn.
Hnausaför mín.
Elinóra, Gunnst. Eyjólfss.
Tíund, Gunnst. Eyjólfss.
Sögur og kvæði, Sig. Júl. Jóh. 1.—2.
Dægradvöl Gröndals.
Dægradvöl Guðm. Péturss.
Gamlar sögur, S. Sigurjónss.
Dalurinn minn.
Fríða.
Saga Páls Skálholtsbiskup»s.
Sagan af Fastusi og Ermenu.
Á Eyrinni.
Hellismannasaga 1889.
Valið.
Alfred Dreyfus.
Bessi gamli.
Elding, Torf. Hólm.
Ævintýri e. Torfh. Hólm.
Draupnir 1.—12. T. Hólm.
Góðir stofnar, J. Trausti.
Gull, E. Kvaran.
Gestrisni.
Mannamunur, J. Mýrdal.
Ólöf í Ási.
Saga hugsunar minnar.
Smásögur Jóns Trausta
Sögur frá Síberíu.
Upp við fossa.
Tólf sögur, Guðm. Friðj.
Þúsund og ein nótt, elzta útgáfan.
Þúsund og ein nótt, II. ágúfa, 1.—2.
bindi.
Þjalar-Jóns saga.
Enskubók Jóns Hjaltalíns.
Fréttir frá íslandi.
Hvers vegna? Vegna þess.
Dýravinurinn 1.—16. h.
Flóra íslands, I. útg.
Jarðabækur Árna Magnússonar.
Minningarrit íslenzkra hermanna.
Vestan um haf.
Píslarsaga séra Jóns Magnússonar,
1,—3.
Sjálfstæði Islands 1809.
Sig. Breiðfjörð e. S. G. Borgfirðing.
Sögur og kvæði e. E. Ben.
Vogar, e. E. Ben.
Hafblik e. E. Ben.
Hrannir e. E. Ben.
Æfintýri H. C. Anderss., 1. bindi.
Minningarrit séra Jóns Bjarnas.
Markland.
Bútar úr ættarsögu.
Rannsóknarferðir.
Manitoba.
Brot úr landnámssögu Nýja íslands,
1,—3.
Minningarrit 50 ára landnáms Isl.
í N. Dakota.
Jökulgöngur, e. St. G. St.
Alþingisrímur e. Vald. Ásmundss.
Andra rímur.
Þjóðræknisrímur e. S. B. Blandon.
Sagan af Nikulási leikara.
Leikrit Sveins Símonarsonar, öll.
Rímur af Ármanni og Helgu.
Rímur af Þórði hreðu.
Rímur af Gústav Adólf.
Islendingatal.
Úti á víðavangi, St. G. St.
Andvökur 1.—-3. bindi.
Rímur af Jóhanni prúða.
Sagan af Starkaði Stórvirkssyni.
Þögul leiftur.
Prentsmiðja Jóns Matthíassonar í
Wynyard.
Ætarskrá Steinunnar Jónsdóttur.
Kvæði og sögur, Jóhann G. Sig-
urðsson.
Kvæðabók Brynjólfs Sveinssonar.
Kvæðab. Ben. Gröndals.
Kviðlingar Káins.
Kvistir, Sig. Júl. Jóh.
Ljóðmæli Matth. Joch. 1.—ö. bindi.
Nýgræðingar, A St. Johnss.
Njóla Björns Gunnlaugss.
Ljóðabækur Jóns á Bægisá, 1.—2.
bindi.
Nokkur smákvæði e. Ólöfu á Hlöð-
um.
Nokkur ljóðmæli e. Guðm. Ólafsson.
Smástirni (úr öldinni).
Smámunir, Sig. Breiðfj.
Veiðiförin, Jónas Daníelsson.
Ljóðabók Þorskabíts.
Brennubragur Lúðvíks Kristjánss.
Vesturheimsk Krossmessuljóð, e.
Lúðvík Kristjánsson.
Ljóðmæli Gunnars Gíslas.
Hagalagðar, Júlíana Jónsd.
Ljóðmæli, S. E. Bened.
Úrvalsljóð e. Jónas Hallgrímss.
Hjálmarskviða o. fl.
Tíu leikrit Gutt J. Gutt.
Ljóðmæli Jóns Stefánss.
Morgunn.
Eimreiðin.
Iðunn (gamla og nýja).
Heimir.
Öldin.
Syrpa.
Breiðablik.
Saga Þ.Þ.Þ., 1.—2. árg.
Dagskrá 1.—2.
Vínland 1.—7.
Gimlungar, 1.—2.
Framfarir 1.—3.
Freyja 1.—13.
Leifur.
Selkirkingur 1.—3.
Dagsbrún, 1.—4.
Svava, 1.—10.
Kennarinn, 1.—8.
Bergmálið 1.—5.
Baldur, 1.—8.
Skuggsjá, 1.—3.
Almanök Ólafs Thorgeirss. 1.—52.
Úr heimahögum, Guðm. á Sandi.
Fjórar ritgerðir, e. Guðm. Friðj.
Alaskaför Jóns Ólafss.
Æskan, 1.—20.
Unga Island, 1.—10.
Dalarósir, Guðm. Hjaltas.
Fingrarímið.
Fornmenjar, S. J. Jóh.
íslendingar í Vatnabygðum.
Leikrit og ljóð, Sig. Péturss.
Presturinn á Vökuvöllum.
Piltur og stúlka,
Maður og kona.
Sálmar og kvæði Hallgr. Péturss.
1.—2. bindi.
Sagan af Sigurði frækna.
Sagan af Vilmundi viðutan.
Snót (gömlu útgáfumar).
Sagk Natans Ketilss.
Lófalestur, St. Sigfúss.
Ljóðabækur Bólu-Hjálmars.
Munið að glata aldrei gömlum, íslenzkum bókum, blöðum, tímaritum, smápésum eða öðru því, sem prentað hefir verið á íslenzku, sem þið kunnið
að eiga, en viljið láta af hendi, Er kaupandi að öllu slíku, jafnvel þó að um stór bókasöfn sé að ræða. Skrifið eða talið við mig sem fyrst, eftir að
þið hafið lesið auglýsinguna. og eg mun svara yður um hæl.
BJCCNSCN’S BCCI\ STCCE
702 SARGENT AVENUE, WINNIPEG, MANITOBA, CANADA