Lögberg - 29.08.1946, Side 1
PHONE 21 374 • i „A
A \ÁÖ^teA
...
XJa'tin f'O'P- A Complete
Cleaning
Instilulion
59. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMTUDAGINN 29. ÁGÚST, 1946
PHONE 21 374
\vcA
L‘a -fOB- ^ A Complete
Cleaning
Institution
NÚMER 35
FRÉTTIR
LÝÐRÆÐINU MISÞYRMT
Til þess að geta útilokað 800,-
000 negra frá því að greiða at-
kvæði við “primary” kosning-
arn í Suður-Carólína 13. ágúst
s.l., tóku leiðtogar demokrata-
flokksins upp á því, að uppleysa
flokk sinn í Suður-Carolína, en
mynda í hans stað klúbb, sem
þeir gátu ráðið hverjir gengju í
og hverjir ékki, og útilokuðu alla
negra í ríkinu frá inngöngu í
klúbbinn.
Það sem næst lá fyrir að gjöra,
var að fá ríkisþingið til að fella
úr gildi öll lög í Carólína-ríkinu,
sem um kosningar hljóðuðu, og
voru þau um 141 talsins, og leiða
í lög, að stjórnmálaflokkarnir
væru ekki stjórnmálaflokkar
lengur, heldur klúbbar, sem var
gjört með þeim forsendum að
klúbbarnir væru undanskildir,
ekki aðeins sambandsríkjalögun-
um, heldur Hka hæstaréttardóm-
um, og að síðustu var samþykt að
allir, sem í klúbbinn eða klúbb-
ana gengju, yrðu að vera lesandi,
kunna að skrifa og geta útskýrt
stjórnarskrá fylkisins, og var
þetta gjört til þess að vera alveg
viss um að 90% af fólki því, sem
úti var verið að loka, gæti ekki
með neinu móti komist í tölu
kjósendanna.
Leiðtogar negranna eru ekki
ráðnir enn í 'hvað til bragðs skuli
taka. Helzt er talað um málsókn,
en mál hefir þó ekki verið hafið.
4- 4 4
FRÁ FRIÐARÞINGINU
Ef eg hefði nokkuð að segja,
þá mundi eg segja þeim öllum að
fara til helvítis. G. I. sem var
á ferð í París.
Hvað verður úr þessu? Ef halda
á áfram þessu sama heimskulega
japli, þá verður aldrei neitt úr
framkvæmdum. Við erum dauð-
þreyttir á að hlusta á sífelt garg,
garg, garg, daginn út og daginn
inn. William J. Jordan umboðs-
maður frá Nýja Sjálandi á þing-
inu og fyrrum forseti ráðstjórnar
League of Nations.
“Allir eru að reyna að maka
sinn eiginn krók. Þar er ágirnd-
in í sinni verstu mynd.” — Carl
Hambro, umboðsmaður Noregs á
friðarþinginu.
“Við erum tengd bandi bróður-
kærleikans — Kanada og Evrópu
menn — sem er órjúfanlegt. En
sú kend er ekki nógu víðtæk nú
á dögum,” sagði forsætisráðherra
Kanada, W. L. Mackenzie King,
og rendi augunum yfir hvítu
krossaraðirnar á gröfum Kanada
manna, 900 að tölu, sem féllu við
Dieppe 1942. Sneri svo alvöru-
þrungnu augnaráði til hinna
tignu frönsku manna, sem við-
staddir voru og hált áfram:
“Veitið orðum mínurn eftirtekt,
því eg veit að eg túlka vonir
allra manna í víðri veröld, og eg
vil að orð mín berist til friðar-
þingsins í París.
Eg segi við umboðsmenn þjóð-
anna þar, að æðsta skylda þeirra,
nei eina skylda þeirra sé, að
semja heiðarlegan frið, án þess
að stofna framtíðarmálum þjóð-
anna í hættu með fánýtu þrasi.”
Ný verksmiðja
Nýja leirkera og gler verk-
smiðju er verið að setja á stofn í
suðvestur Noregi, nálægt Stav-
angri, sem heita á “Stavanger
Fajansefabrikk”; á verksmiðjan
að kosta kr. 1,300,000, og ætla
Norðmenn að framleiða þar all-
ar fullkomnustu tegundir af leir-
kerum, leirtaui og gleri. Þessi
nýja leirkera verksmiðja á að
framleiða 1100 tonn af bestu og
fallegustu tegundum leirkera og
leirtaus.
Áður þurftu Norðmenn að
flytja inn 1650 tonn af þeirri
vöru árlega.
-f -f -f
F. D. R. MEMORIAL FUND
Franklin D. Roosevelt Mem-
orial Fund sem Norðmenn í
Noregi og í Bandaríkjunum
mynduðu seint á árinu liðna og
Norðmenn víðsvegar hafa styrkt
svo drengilega, hefir nú ákveðið
að senda eða réttara sagt stjórn-
arnefnd þess sjóðs hefir ákveðið
að senda fimm norska stúdenta
til framhaldsnáms í Bandaríkj-
unum í hagfræði, félagsfræði,
og fleirum fræðigreinum. Er
hugmyndin að skiftast á með
mentafólki á milli þessara
tveggja landa, sem eykur kynn-
ing og eflir samhug á meðal þess-
ara mjög svo skyldu þjóða.
-f -f f
BANDARÍKIN
Undirbúnings kosningarnar í
Bandaríkjunum eru nú bráðum
um garð gengnar. Þegar þetta er
ritað aru aðeins sex ríki, sem ekki
hafa haldið undirbúnings kosn-
ingarnar fyrir aðal þing og senat
kosningarnar í nóvember n.k.
Þau eru New York, Nevada,
Louisiana, Colorado og Connecti-
eut. í sambandi við þessar út-
nefningar, eða framboð, hefir
ekkert sérstáklega eftirtektavert
borið við, þó krókur hafi komið
á móti bragði víða. Eitt það eftir-
tektaverðasta, sem vér höfum
veitt athygli, er að Robert M.
LaFollette Jr., seinasti af hinni
nafnkunnu LaFollette fjölskyldu
í opinberri stöðu, tapaði útnefn-
ingu í Wisconsin á móti Joseph
McCarthy ný afturkomnum her-
manni, sem getið hafði sér mik-
inn orðstír fyrir hugrekki og
karlmensku.
Að sjálfsögðu fer nú kosninga-
bardaginn að harðna í Banda-
ríkjunum, enda hafa leiðtogar
flokkanna nú þegar kveðið upp
úr með slagorð og stefnur, sem
um verður barist. Formaður
demokrataflokksins í þjóðmálum,
Robert Emmet Hannegan, hefir
stílað þessa áskorun til allra
Demokrata í Bandaríkjunum:
“Látið afturhaldið ekki rjúfa
fylking vora.”
En þjóðforseti Republikana
stefnunnar, B. Carroll Reece
hamrar á hinu óguðlega demo-
kratiska sambandi (verkamanna-
félaga samibandi) sem að svipi
undarlega til Internationale fé-
lagsins.
SUÐUR-AFRÍKA
50,000 negrar, sem unnu í Rand
gullnámunum gjörðu verkfall 13.
þ. m.# og kröfðust launabóta.
Þeim voru borguð 50 cent á dag,
fæði og húsnæði, en þeir kröfðust
$2.00 í dagkaup. Námaeigend-
urnir neituðu og tóku að ráða
nýja menn í þjónustu sína. Sló
þá í hart á milli lögreglunnar,
sem hélt vernd yfir hinum ný-
ráðnu námamönnum, og verk-
fallsmanna. Sex menn voru skot-
nir og aðrir sex voru troðnir til
dauðs.
Sextán verkamannafélög og
koimmúnistaflokkurinn í Afríku
hétu verkfallsmönnum stuðningi
og fulltingi og leit út fyrir að
verkfallið mundi verða mjög al-
varlegt. Nærri eins slæmt og
verkfallið, sem þar var háð 1922,
þegar 204 verkfallsmenn voru
kærðir um landráð. En þetta
verkfall stóð ekki nema í fjóra
daga. Námaeigendurnir sömdu
heimulega við hvern og einn af
,verkfallsmönnunum og þeir tóku
aftur til vinnu. x
“Kommúnista áróður til að
leiða innlendingana og þjóðina á
veg glötunarinnar”, sagði for-
sætisráðh. Afríku, Jan Christian
Smuts.
4- -f -f
Níu þjóðir sækja um
inngöngu í þjóðbandalagið
1— Afghanistan hefir fengið
loforð fyrir inntöku.
2— Bretar, Bandaríkjamenn og
Grikkir eru mótfallnir að Al-
baníu sé veitt innganga.
3— Pólverjar og Rússar eru
mótfallnir því að Trans-Jordan
sé veitt innganga.
4— Kínar standa á móti inn-
töku Mongólíu hinnar ytri.
5— Frakkar segjast enn eiga í
erjum við Síam og þess vegna
komi ekki til mála að þeim verði
veitt innganga að svo stöddu.
6— 7—Á móti því að Pólverjum
og Irum sé veitt inntaka mæla
Rússar, og Pólverjar að því er
íra snertir.
8— SVfþjóð fékk meðmæli allra
til inntöku, nema Pólverja og
Rússa.
9— ísland — Inntökubeiðni Is-
lendinga var litin hýru auga af
öllum nema Pólverjum og Rúss-
um, sem fóru fram á að inntöku-
beiðninni væri frestað til frekari
íhugunar.
Nú hafa allar þessar umsóknir
um inngöngu í þjóðbandalagið
verið sendar til öryggisráðsins til
frekari athugunar.
4-4-4-
KANADA
Vitið þið, að þó menn hugsi
og tali um Kanada sem hveiti-
ræktarland, þá er þar framleitt
25% meira af höfrum en hveiti.
Að áður en þingfrumvörp geta
orðið að lögum, verður að sam-
þykkja þau þrisvar, í efri og
neðri deild þingsins og svo verða
þau að öðlast undirskrift land-
stjórans.
Að árið 1943 voru 1,052, þorp,
494 bæjir og 111 borgir í Kánada.
Að það eru yfir hundrað út-
varpsstöðvar í Kanada.
Að sykurhreinsunar verkstæði
í Kanada hreinsar árlega 168,-
000,000 pund af sykri, sem bú-
inn er til úr sykurrófum, og
gjörir, 15 pund á mann í Kanada.
Að árið 1943 greiddu Kanada-
menn $1,426,126,299 í skatt af
tekjum sínum.
Innflutningur fólks
Nefndin, sem fólksinnflutninga
málið til Kanada hefir haft með
höndum undanfarandi hefir nú
skilað því veiki af sér og tillögur
nefndar þeirrar eru:
1— Stjórnin í Kanada tilkynni
tafarlaust innflutninga fyrir-
komulag, sem ákveði um inn-
flutning á völdum innflytjend-
um til Kanada — fólki, sem til
iðnaðar og landbúnaðar kunni.
2— Tala slíkra innflytjenda
bindist við þá tölu fólks,
sem hagkvæmlega er hægt að
taka á móti, og einnig skal taka
flutningstæki og möguleika með
í reikninginn, i sambandi við
þann innflutning.
3— Með það í huga, að skipa
rúm og flutningstæki séu fyrir
hendi þá—
a—auglýsi Kanada stjórn inn-
flutningareglur sínar í löndum
þeim, sem valin hafa verið,
með skýring á ferðatöfum,
sem eru óhjákvæmileg.
b—að innflutninga umboðs- og
eftirlitsmenn séu tafarlaust
sendir til Evrópu, til þess að
opna þar skrifstofur, til viðtals
við væntanlega innflytjendur
og kynnast þeim sem æskjan-
legastir væru.
c—að rannsakað sé tafarlaust
frá hvaða Evrópulöndum að
innflytjendur séu helst vænt-
anlegir hvernig að ástandið sé
á meðal þess fólks, og hverjir
erfiðleikar þess helst séu.
d—Að rannsókn sé hafin í
Kanada til að ganga úr skugga
um tækifæri þau, er slíkum
innflytjendum bíði í Kanada,
að því er iðnað og landbúnað
snertir, og einnig að athuga
hvaða erfiðleikum slíkir inn-
flytjendur ættu hér helzt að
mæta.
e—Að ráðherrann, sem inn-
flutningaínálunum veitir for-
sjá, taki innflutningamálið til
athugunar og Skipulagnmgar,
og sjái um að sú skipulagning
verði tafarlaust leidd í gildi.
5—Að innflutningslögin og inn-
flutningareglur séu yfirskoðuð,
svo hægt verði, á löglegan hátt
að velja og hafna á meðal þeirra,
sem um inngöngu til Kanada
saékja, og að taka á móti þeim,
sem ákjósanlegastir þykja, og
líta eftir og aðstoða þá, unz þeir
hafa komið fótum fyrir sig í
Kanada.
4-
Kanada er 3,466,882 fermílur
að stærð. Ekki er alt þetta
geysi flæmi byggilegt, og ekki
nálægt því.
I Kanada eru taldar að vera
nú sem stendur 735,000 bygðar
bújarðir, og er ekrutala búlenda
þeirra 175,000,000.
Af þeim 175,000,000 ekrum eru
89,000,000 ræktaðar, en 53,000,000
óplægðar eða óræktaðar og þar
aðauki 33,000,000 ekra, sem búið
er á, en ónotaðar.
Það er talið að í Kanada séu
350,000,000 ekra af byggilegu
landi, en af því hefir nú þegar
verið bygðar 175,000,000, eins og
sagt er að ofan. Eru þá eftir aðr-
ar 175,000,000 ekrur, sem bíða
eftir plógnum og mannshöndinni.
Þar að auki voru í Kanada árið
1941, 32,000 bújarðir í eyði, sem
höfðu verið yfirgefnar og var
ekrutala þeirra 5,000,000.
ÞEIR ERU LÍKA MENN
Jón Jónsson var blámaður.
Hann gekk í her Bandaríkjanna
og barðist hlið við hlið með son-
um þess volduga ríkis. Nú var
hann kominn heim, — kominn
heim til Minden-bæjar, um 265
mílur norðvestur frá New
Orleans, þar sem hann fékk orð
á sig fyrir að vera óprúttinn og
kærulaus. Svo var það kvöld eitt
að hann fór inn á knæpu og varð
ölvaður og gjörðist uppvöslu-
samur. Fyrir þrem vikum síð-
an, sá hvítur kvenmaður Jón og
annan ungan blökkumann við
hús sitt, og voru þeir að reyna
að komast inn í það. Hún kveikti
ljós og mennirnir báðir höfðu sig
á burt. Lögreglan frétti um
þetta, hafði hendur í hári mann-
anna, tók þá fasta og setti þá í
tukthúsið. Þeim var haldið þar
í tvo daga, en að kveldi annars
dagsins, þegar byrjaði að skyggja
slepti fSngavörðurinn þeim, því
enginn hafði klagað þá. Úti fyr-
ir fangahúsinu voru tveir bílar,
nóttin og þögnin.
Seinna þegar fangavörðurinn
var kvaddur til sagna, sagði
hann: “Mér heyrðist eg heyra
negra hrópa: “Taktu mig ekki.”
En 'hann hugsaði ekkert meira
um það. Daginn eftir að þetta
skeði, kom Albert Harris, sem
með Jóni var, og sagðist ekkert
muna frá kvöldinu áður, annað
en, að einhver hefði sagt: “Þú
ert heiðarlegur negri, við gjörum
þér ekkert.” Hann hafði verið
barinn á höfuðið með skamm-
byssuskafti.
Eftir miðjan dag á þessum
sama degi, voru 4 veiðimenn á
ferð skamimt frá bænum, þeir
fundu Jón Jónsson; hann lá þar
við veginn dauður og hafði ver-
ið hýddur, svo að líkami hans
var eitt svöðusár frá hvirfli til
ilja. Þegar að rannsókn var
hafin út af þessu vissi enginn
peitt.
Þetta var sjöundi negrinn, sem
líflátinn var í Suðurríkjunum,
án dóms og laga, á þremur vik-
um.
4-4-4
ARGENTÍNA
Hinn nýi innflutningaráðherra
í Argentínu, Dr. Santiago N.
Peralta hefir gjört eftirfarandi
yfirlýsing í sambandi við inn-
flutning fólks til Argentínu:
Þúsund “Quislingar” frá Noregi
eru vel)komnir til Argentínu.
Stjórnmálaskoðanir Evrópu-
manna koma okkur ekkert við —
Allir Skandinavar eru velkomnir
til Argentínu.
Argentína hefir verið að semja
um innflutning á herfylkingum
Wladislau Anderes hershöfðingja
— það eru Pólverjar, sem engir
vildu móttöku veita. Þeir koma
með allan sinn herútbúnað — þar
á meðal skriðdreka sína, sem við
breytum undir eins í traktora.
Fólk það, sem inn til Argentínu
flytur verður aðallega ítalir,
Spánverjar, Skandinavar, Irar og
Arabar. Vesaldómurinn, sem
grúfir yfir stríðssárri Evrópu,
verður þar að vera. Slíkt rekalc
á ekkert erindi til Argentínu. Við
þurfum á hraustu og starfshæfu
fólki að halda, en verðum að
sneiða hjá úrættuðu þjóðflokk-
unum.”
Dr. Peralta er ekki Gyðinga-
hatari. Hann sagði: “Eg hefi ný-
lega leyft 5,000 Aröbum land-
göngu í Argentínu. Arabar og
Gyðingar eru bræður. Eg gjöri
engan mun þeirra á milli.”
BRAZILÍA
Það er enginn vegur til, til
Dess að komast undan heiftanhug
Shinto Rómei félagsmanna, sagði
Japani einn við lögregluna í
Brazilíu nú um'daginn eftir að
hún hafði tekið hann fastan, og
ástæðan var þáttaka hans í mál-
um Shinto-félagsins, sem er
leynifélag Japaníta.
Og þetta var meira en geipið
eitt, því 200,000 Japanítar, sem
búsettir eru í San Paulo hérað-
inu í Brazilíu, hafa átt við ógnir
og ofsóknir að búa — það er að
segja allir þeir, sem töluðu um
eða viðurkendu ósigur Japana,
síðastliðna sex mánuði. Þessir
japönsku imperialistar höfðu
drepið 13 af löndum sínum sem
viðurkendu ósigur heimaþjóðar
sinnar og sært aðra 13.
15. þessa mánaðar átti að gjöra
ákveðna tilraun til að ryðja þess-
um uimskiftingum úr vegi, en svo
nefndu leynifélagarnir þá, sem
ósigur Japana viðurkendu; og á
fundum félagisns var ákveðið
hverja skyldi eyðileggja í það
eða það skiftið. 15. ágúst hlupu
18 slíkra manna, sem ekkert
nema dauðinn lá fyrir, á mörk-
ina, þar sem þeim lenti í kasti við
lögregluna.
Tilraun lögreglunnar til að
stoppa þessa óhæfu, hefir ekki
haft önnur áhrif, en að aúka og
magna <grimd þessa illræmda
leynifélags.
4 4 4
NEW GLARUS
WISCONSIN
Fyrir hundrað árum síðan
komu 27 bændur frá Canton
Glarus í Sviss til Wisconsin og
mynduðu þar bygð og skírðu
hana New Glarus. Bygð þessi
óx. Þessir Svisslendingar byrj-
uðu með því að rækta korn í land-
inu nýja, en það gafst ekki vel,
svo þeir ihættu við það að mestu
og keyptu sér mjólkurkýr og síð-
an hefir bygð þeirra blómgvast
ár frá ári, hagur þeirra batnað,
og svissneska fólkinu, sem hefir
haldið fast við feðra-arf sinn
fjölgað. I bygð þeirra var bær
bygður — New Glarus — sem
telur 1086 íbúa; þar var hundrað
ára afmælis bygðar þessa fólks í
Wisconsin minst nýlega með viku
hátíðahaldi. Eitt af því merka og
einkennilega sem þar fór fram
var sýning, dramatísk sýning á
viðburðuim úr sögu New Glarus
bygðarinnar í 101 ár. I sýning
þeirri tóku 120 New Glarus búa
þátt og fólk kom úr öllum áttum
til að sjá, og líka til virðingar-
votts við fólk bygðarinnar, sem
nú er orðið bandarískar konur
og menn, þótt það enn haldi í
heiðri og beri virðingu fyrir lífs-
háttum, lífsreynslu og menningu
feðra sinna.
4 4 4
Eldur kom upp í Canada Fish
Producers byggingunni á Cham-
bers stræti hér í bænum, 23. þ.
m. og gjörði mikinn skaða bæði á
byggingunni sjálfri og eins á
vörum, sem í henni voru. Ráðs-
maður félagsins, Mr. James H.
Page áætlaði að skaðinn mundi
nema um $18,000.00. Einhver
váitrygging var bæði á bygging-
unni og vörunum.