Lögberg - 29.08.1946, Síða 8
8
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 29. ÁGÚST, 1946
Or borg og bygð
Á föstudagskveldið 2. ágúst
s.l. heimsóttu um þrjátíu og
fimm vinir og kunningjar Mr. og
Mrs. Chas. Joseph að 512 Cathe-
dral Ave. hér í borg. Tilefni
þeirrar heimsóknar var fyrst og
fremst að árna Josephs hjónun-
um, sem eru á förum vestur að
hafi, fararheilla og svo að færa
Mrs. Joseþh sérstaka þökk og
virðingarvott fyrir hið óeigin-
gjarna og ágæta starf hennar í
þágu lúterskra félagsmála meðal
vor yfir höfuð, en ekki síst fyrir
velvilja hennar í garð kvenfé-
lags Fyrsta lúterska safnaðarins.
Þeim Joseph hjónum var færð
minningargjöf að skilnaði; svo
skemti fólk sér við sapital og
góðgerðir fram eftir kveldinu.
-f
Mr. G. J. Jonasson, Mountain,
N.D. og tveir synir hans komu
í bil til bæjarins í vikunni sem
leið; sögðu þeir vellíðan fólks í
sinni bygð. Uppskeru sögðu þeir
góða eftir ástæðum og útliti eftir
þurkana s.l. vor. Þeir feðgar
héldu heimleiðis aftur eftir mjög
stutta viðstöðu.
-f
Mr. Sigurður Baldvinsson frá
Gimli var á ferðinni í borginni
fyrir síðustu helgi.
Pálmi M. Sigurðsson frá
Boston, Mass., kom til borgarinn-
ar í vikunni sem leið. Pálmi er
gamall Winnipegbúi og á því
marga góða kunningja hér, sem
þykir gaman að sjá framan í
hann. Hann sagði vellíðan landa
þar syðra og atvinnu nóga.
Einnig sagði hann að 15 eða 16
íslenzkir kafteinar væru á tog-
urum Boston fiskiflotans við afla
nógan og orðstír ágætan. Pálmi
fór aftur suður til Boston í byrj-
un vikunnar.
♦
Bjargið íslenzku bókunuml
Alkunnugt er, að íslendingar
fluttu mikið af bókum með sér
vestur um haf, og keyptu einnig
mikið af bókum eftir að þeir
komu hingað, en af því að unga
kynslóðin les mest enskar bók-
mentir, ef hún annars les nokk-
uð, þá seljið þið mér íslenzku
bækurnar með sanngjörnu verði.
Þó bækurnar séu lausar úr bandi,
þá kas|ið þeim ekki í eldinn, eg
gjöri við þær og varðveiti þær
vel, og þegar eg er búinn að lesa
þær, gef eg þær einhverjum, sem
elskar íslenzkan fróðleik, og
“blindur er bóklaus maður.”
Gimli 20. ágúst, 1946.
Númer 60, 4. Stræti.
Sigurður Baldvinsson.
♦
Mrs. Dora Grimson frá Seattle,
hefir dvalið um tíma hér í borg-
inni í kynnisför. Hún fór að
heiman 16. júlí og til Alberta og
dvaldi í tveggja vikna tíma hjá
bróður sínum Sigurði Grímssyni
í Red Deer. Hún hélt aftur heim-
leiðis á mánudagskveldið var.
♦
Þann 24. ágúst voru gefin
saman í hjónaband í kirkju Sel-
kirk safnaðar af sóknarpresti:
Wilfred Eldon Goodman, Selkirk,
og Viola Jean Sheard, Toronto,
Ont. Við giftinguna aðstoðuðu
Mr. Alexander Ross McKenzie,
Selkirk, og Mrs. Ross McKenzie,
Selkirk. Meðan á skrásetningu
stóð, söng Mrs. Barney Stephan-
son. Brúðguminn er sonur Mr.
og Mrs. Pálmi Goodman, 732
Evaline Ave., Selkirk, en brúð-
urin er dóttir Mr. og Mrs. T. A.
Sheard, Singhampton, Ontario.
Eftir giftinguna var setin veg-
leg veizla að heimili Mrs. H.
Sturlaugson. Ungu hjónin setj-
ast að í Selkirk.
♦
The Jón Sigurdson Chapter,
I.O.D.E., will hold its first meet-
ing of the season on Thursday
evening, september 5th, at 8
o’clock in Board Room 2, of the
Free Press Building. It is im-
portant that all members be
present.
MESSUBOÐ
Fyrsta Lúterska Kirkja
Valdimar J. Eylands, prestur.
Heimili: 776 Victor Street,
Sími: 29 017.
Harold J. Lupton, organisti og
söngstjóri.
308 Niagara Street.
Sunnudaginn 3. september kl.
7 e. h., guðsþjónusta á íslenzku.
Lúterska kirkjan i Selkirk—
Sunnudaginn 1. september:
Ensk messa kl. 7 síðd.
Sunnudagaskóli byrjar þann 8.
sept. kl. 11 árdegis.
Allir boðnir velkomnir.
S. Ólafsson.
♦
Gimli prestakall—
Sunnudaginn 1. sept.—
Islenzk messa að Gimli kl. 7
eftir hádegi.
Allir boðnir velkomnir.
Skúli Sigurgeirson.
♦
Messað að Vogar sunnudaginn
1. september kl. 2 e. h.
H. E. J.
Wanted September, superior
type girl or Woman for general
housework. Evenings and two
half days a week free. Apply by
writing to Miss Eva Clare, 207
Academy Road, Winnipeg.
-f
Mr. og Mrs. Bergur Jónsson og
sonur þeirra frá Reykjavík, P.O.,
voru á ferð í bænum í vikunni.
Þau komu aðallega til að leita
syni sínum lækninga. Þau sögðu
tíðindalaust úr sinni bygð. Gras-
spretta sögðu þau að hefði verið
sæmileg en nýting góð.
-f
Mánudaginn 12. ágúst s.l. and-
aðist að Yorkton Hospital í York-
ton, Sask., Pétur Jóhann Ander-
son frá McNutt, Sask., eftir stutta
legu, 52 ára gamall, sonur Ólafs
og Guðrúnar Anderson, bæði lát-
in. Þau Ólafur og Guðrún voru
fyrstu frumbyggjar í Lögbergs-
bygðinni. Pétur sál. var .1 15 ár
póstafgreiðslumaður í McNutt.
Hann lætur eftir sig ekkju Svein-
björgu og 6 börn, einnig tvo
bræður Andrés og Thorleif og
tvær systur, Guðrúnu og Sig-
ríði. Jarðsungið var í Lögbergs
grafreit af Rev. Schroder og
Rev. S. S. Christopherson.
/ -f
Stúkan Skuld heldur sinn
fyrsta fund eftir sumarfríið 3.
september, á venjulegum stað og
tíma. Fjölmennið!
-f
Mr. Thor Gíslason frá Carman,
kom til borgarinnar í vikunni;
sagði þresking langt komna í sínu
héraði, og kornforði væri í fullu
meðallagi bæði að vöxtum og
gæðum.
-f
Died at Porterville, California,
Aug. 16th, 1946, Waldimar S.
Thorwaldson only son of Mrs.
Swain Thorwaldson of Exeter
Calif., formerly of Mointain, N.D.
W. S. T. was bom at Pembina,
N.D., July 21, 1899. Came to
Calif. in 1922. Worked in the
same bank at Porterville for
twenty-four yeafs. He was mar-
ried to an American girl, and
they had three children. As you
would say in Icelandic “Þar er
góður drengur látinn.
-f
Mr. Joe Anderson frá Chicago,
var á ferð í borginni í vikunni
til að heilsa upp á skyldmenni,
vini og kunningja. Sagði hann
alt stórtíðinda laust þar syðra.
Hann böst við að dvelja hér
norður frá til loka september
mánaðar.
Stúlka af íslenzkum ættum
er í uppsigling í Hollywood
Nóma Sigrún Fulton, sjö ára
að aldri, tekur þátt í einni af
meiriháttar myndunum, sem nú
er í smíðum á Hollywood hjá
Selznick myndafélaginu og á að
kosta $5,000,000 og heitií “Duel
in the Sun.” Taka margir af
bezt þektu leikurum í Hollywood
þátt í leiknum.
Móður amma þessarar ungu
og efnilegu stúlku var íslenzk,
Sigurlaug Jónsdóttir Sigurðsson-
ar, skagfirzk að ætt.
Foreldrar Nónu Sigrúnar eru
Mr. og Mrs. Victor Fulton og eiga
heima að 1004 Cory Ave., Holly-
wood. Þau fengu bæði mentun
sína hér á Winnipeg á Jóns
Bjarnasonar skóla, og mun margt
námsfólik þess skóla kannast við
Hazel Burton og Victor Fulton.
Wartime Prices and Trade
Board Information Branch
September
MEAT—
Coupons “Q” 1 and “Q” 2 now
valid; Coupon “Q” 3 valid Sep-
tember 5; Coupon “Q” 4 valid
September 12; Coupon “M” 51
valid September 19; Coupon “M”
52 valid September 26—Coupons
“M” 40 to “M” 50 in Book No.
5 expired August 31.
BUTTER—
Coupons “R’ 18 and “R” 19 now
valid; Coupon “R” 20 valid Sep-
tember 5; Coupon “R” 21 valid
September 12; Coupon “B” 26
valid September 26 — Coupon
value: Butter V2 pound — Cou-
pons “R” 10 to “R” 17 in Book
No. 5 expired August 31.
SUGAR—
Coupons “S” 1 to “S” 25 now
valid; Coupons “S” 26, S27, S28,
S29 and S30 valid September 19.
NOTE: New ration book No.
6 will be distri'buted during the
week of September 9 to 16.
NÝJASTA NÝTT
Nú á að fara að hætta við þarf-
asta þjóninn. Þeir falla svona
í valinn hver á fætur öðrum þess-
ir þörfustu þjónar mannanna.
Fyrir skömmu var það hesturinn
sem á valinn féll. Nú á það að
verða rakhnífurinn, sem svo lengi
hefir verið förunautur mann-
anna og aukið á yndi og ánægju
þeirra, sem á að falla i valinn.
Það er búið að finna upp áburð,
sem borinn er í skeggið, og það
þvæst svo af eins og ryk í morg-
unlauginn, og skilur eftir mjúkt
áferðarfrítt og al-hárlaust and-
litið. Þessi nýju þægindi eru
ekki enn komin í hendur almenn-
ings, — það er verið tað prófa
varanleg áhrif þess á lasburða
karla á sjúkrahúsum. Það er
minni skaði með þá, þó það fari
eitthvað öðruvísi en vonast er
eftir.
Færeyski sjálfstæðis leið-
toginn, Joannes Patursson
Látinn
Joannes Patursson, hinn ágæti
sjálfstæðisleiðtogi Færeyinga, er
látinn. Hann andaðist að heimili
sínu, kirkjubæ, aðfaranótt föstu-
dags s.l.
Nafn Joannesar Patturssonar
var kunnugt um öll Norðurlönd
og hvar sem menn höfðu vit-
neskju um sjálfstæðisbaráttu
þjóðar hans.
Á Islandi var 'hann með af-
burðum vinsæll, enda tengdur
íslendingum sterkum böndum
átti íslenzka konu og sendi sum
af börnum sínum til Islands til
náms.
Joannes Patursson fékk ekki
lifað það lengi að hann sæi draum
sinn um sjálfstæði færeysku
þjóðarinnar rætast, — en mikið
hefur áunnizt, ekki sízt fyrir ó-
þreytandi starf hans.
Þjóðviljinn mun síðar geta
þessa merka stjórnmálamanns
nánar.
Þjóðviljinn, 4. ágúst
Veður versnandi
fyrir Norðurlandi
Frá fréttaritara vorum á
Siglufirði, fimtudagskvöld
Til Ríkisberksmiðjanna hjer
hafa komið s.l. sólarhring 10 skip,
með samtals fjögur þúsund mál,
allt austan frá Rauðunúpum. Til
Rauðku haf komið sjö skip með
átta þúsund mál. Söltun síðasta
sólarhring var 1967 tunnur.
Mörg skip fengu síld í gær-
kvöldi austurfrá og hafa flest
skip, sem leggja upp hjá ríkis-
verksmiðjunum farið til Raufar-
hafnar og Krossaness. Norð- aust-
an bræla er á miðunum í dag,
rigningarsúld og ekki veiðilegt.
Morgunblaðið — 26 Júlí
íslenzkir bankamenn á
ráðstefnu í Helsingfors
DAGANA 3. til 5 ágúst n.k.
verður haldin í Helsingfors ráð-
stefna bankamanna frá Norður-
löndum. íslenskir bankamenn
senda tvo fulltrúa á ráðstefnu
þessa og eru þeir Einvarður Hall-
varðsson frá Landsbanka íslands
og Adolf Björnsson frá títvegs-
bankanum, nýlega farnir héðan.
Mun ráðstefnan ræða sameig-
inleg áhugamál bankamanna á
N orður löndum.
Verzlunarmenntun!
Hin mikla nývirkni, sem viðreisnarstarf-
ið útheimtir á vettvangi iðju og framtaks,
krefst hinnar fullkomnustu sérmentunar sem
völ er á; slíka mentun veita verzlunarskól-
arnir. Eftirspurn eftir verzlunarfróðum mönn-
um og konum fer mjög vaxandi.
Það getur orðið ungu fólki til verulegra
hagsmuna, að spyrjast fyrir hjá oss, munn-
lega eða bréflega, varðandi námskeið við
helztu verzlunarskóla borgarinnar.
Snúið yður til Floru Benson.
THE COLUMBIA PRESS LTD.
COR. SARGENT AND TORONTO ST., WINNIPEG
Stúdentaskifti milli írlands
og íslands
Hingað er kominn írskur fræði-
maður, James Conally magister,
í þeim tilgangi að greiða fyrir
stúdentaskiftum milli háskóla Is-
lands og háskóla í írlandi. —
Sagði Mr. Conally Morgunblað-
inu á gær, að fyrsti árski stúdent-
inn væri væntanlegur hingað til
lands í septembermánuði næst-
komandi og vitað væri um fjóra
íslenska stúdenta. sem hefðu hug
á því að stunda nám í írlandi.
Ráðgert er að skiftst verði á
tveimur stúdentum árlega.
Irsku stúdentarnir ætla að
leggja stund á íslenska tungu og
kynna sjer samband íra og Is-
lendinga fyr á öldum og ársk á-
hrif á sögurnar.
—(Morgunbl. 26. júlí).
Helgi Þorláksson
skipaður skólastjóri
I síðasta tölublaði Lögbirting-
arbaðsins er skýrt frá því, að
mentamálaráðuneytið hafi þann
12. þ. m. skipað Helga Þorláks-
son skólastjóra Gagnfræðaskól-
ans á Akranesi frá 1. sept. næst-
komandi að telja.
—(Þjóðviljinn 19. júlí).
Tók minna en áætlað
hafði verið
Brúarfoss lestaði frystan fisk
á Húsavík í gær, sem fara á til
Svoietríkjanna.
Á Austfjörðum tók hann
minna magn en ráð hafði verið
fyrir gert.
Á Fáskrúðsfirði tók hann lítið
og á Norðfirði ekkert, vegna þess
að frostið í fisikinum náði ekki
15 stigum eins og ráð er fyrir
gert í samningi.
—(Þjóðviljinn 19. júlí).
Rúml. 1000 nýir bílar
fluttir inn
Það mun óhætt að fullyrða
það, að síðan um áramót hafa
verið fluttir til landsins rúmlega
1000 nýir bílar. Flestir þeirra
eru fluttir inn af umboðsmönn-
um brezkra bifreiðaframleið-
enda. Þá hafa mjög margir
jeppar verið flulttir inn fyrir
milligöngu Nýbyggingarráðs.
—(Morgunbl. 2. ág.).
Varð bráðkvaddur
á hestbaki
Sáðasl. laugardag vildi það slys
til í Mosfellssveit, að maður að
nafni Sigurjón Ólafsson, til
heimilis að Bergþórsgötu 14 hér í
bæ, féll af hestbaki og var þegar
örendur. Þykir sennilegt að
Sigurjón hafi orðið bráðkvaddur.
Var hann í skemtiferð með
konu sinni og fóru þau mjög
hægt. Var vart hægt að finna
aðra ástæðu fyrir því að hann
féll af baki, en hann hefði orðið
bráðkvaddur.
Sigurjón heitinn var maður á
bezta aldursskeiði, milli fertugs
og fimtugs.
—(Þjóðviljinn 24. júlí).
The Swan Manufacturing
Company
Manufacturers of
SWAN WEATHER STRIP
Halldor Methusalems Swan
Eigandi
281 James St. Phone 22 641
TILVALIN BOKAKALP 2
Nýjar og notaðar skólaloækur til sölu fyrir alla bekki
(frá 1—12) við afar sanngjörnu verði. Einnig eru til sölu
flestar nýjar bækur um frjálslynd efni; þær bækur fást
einnig til útláns fyrir sanngjama þóknun.
THE BETTER OLE
548 ELLICE AVENUE, WINNIPEG
INGIBJÖRG SHEFLEY. (MiUi Furby og Langside)
eigandi.
Matuioba
AMERICAN BITTERN — Marsh Hen — Thunder-Pump
Stake Driver — Botaurus lentignosus
Dislinclions—With its size, general yellowish coloration
with fine vermiculation and pattern above, this bird can
be mistaken for no other Canadian species. The black
line from the sides of the face may be present or absent,
regardless of sex, age, or season.
Field Marks—As the bird rises from the reeds or grass
its long neck, dangling legs, and general yellowish
coloration are easily recognized. Its apparent size
differentiates it from other species. Rapidity of wing
beat is often a clue to difference in size when other basis
of comparison are absent. A large bird can never beat its
long wings as rapidly as a small one can.
Nesling—On the ground, in grass, hayfields, or reedgrown
marshes. Nest of grass or reeds.
Dislribulion—Across the continent, in the west, north to
Great Slave Lake, and southern Alaska, breeding
wherever found.
We can hardly say that our American Bittern “booms,”
but its note is most peculiar and is unique amongst
American bird notes. The common names, “Thunder-
pump” and “Stake-driver,” are applied in reference to
the strange noises it makes.
Economic Slaíus—The Bittern is a bog haunter and eats
frogs, crawfish, snakes, small fish, crustaceans, insects,
and probably even young birds and mice. It eats little or
no vegetable matter. Bitterns are quite harmless as a
class and may be useful.
This space contributed by
THE DREWRYS LIMITED
MD 171