Lögberg - 03.10.1946, Blaðsíða 8
I
8
Or borg og bygð
Annuul Tea
Jón Sigurdson félagið heldur
hina árlegu sölu (Siver Tea and
S^le of Home Cooking) í T.
Eaton Assemhly Hall, laugar-
daginn 5. október, frá kl. 2.30
til 5 e. h. Einnig verður sala á
ýmsum munum (Novelty Table)
svo sem svimtum, smádúkum, o.
s. frv.
Munið eftir stað og tíma.
♦ ♦ ♦
Jón Sigundsson Chapter, I.O.
D.E., heldur sinn næsta fund í
Board Room 2, Free Press Bldg.,
á fimtudaginn, 3. október, kl.
8 ejh. í dag.
♦
Mr. John Duncan, bóndi frá
Sinclair, Man., tengdasonur Mr.
og Mrs. Finnur Johnson, Thel-
mo Apts., var staddur hér í
borginni; var hann á ferð til að
heimsækja ættfólk sitt í Ont-
ario.
♦
Gefið í Landnemasjóð
Gimli prestakalls —
Guðbjörg Johnson, $10.00, í
minningu um fóstundóttir sína,
Sigríði Sigurdson. — Kærar
• þakkir.
Sigríður Sigurgeirson.
♦ ♦ -f
TILKÁNNING —
Karlakór íslendinga í Winni-
peg hef'ur ársfund sinn í sam-
komusal Sambands kirkjunnar,
miðvikudags kvöldið, þann 9.
dktóber. Áríðandi að meðlimir
sæki fundinn allir, því mikils-
varðandi mál verða athuguð.
•f
Mr. og Mrs. Óskar Gíslason
frá Reykjavík P. O., Man., komu
íil borgarinnar í síðustu viku og
dvöldu hér nokkra daga. Þau
héldu aftur heim til sín um síð-
ustu helgi.
-f
í dag, fimtudag, löggðu á stað
héðan úr borginni, þeir séra
Rúnólfur Marteinsson og Victor
Jónasson, áleiðis til Cleveland,
Ohio, til að mæta á þingi United
Lutheran Church of America,
sem þar hefst 5. þ. m. og stendur
yfir 1 sjö daga; eru þeir tveir af
erindrekum íslenzka Lúterska
Kirkjufélagsins á það þing. Hin-
ir tveir erindrekamir eru, séra
Guttormur Guttormsson, Minn-
eota, og Gunnar B. Björnsson,
skattstjóri frá Minneapolis.
•f
Gifting að Moosehom.
Fimtudaginn, 26. sept., fram-
kvæmdi eg hjónavígslu á bónda-
ibýli, einar 9-10 mílur norðvest-
ur af Moosehorn, sem er myndar-
legt þorp með sömu jámbraut-
inni og Lundar, en allmikið norð-
ar. Á vagnstöðimni mætti mér
ungur maður, Walter Bittner, og
flutti mig í bíl heim til foreldra
srnna, þýzkra hjóna, Mr. og Mrs.
Bemard Bittner, sem búa á of-
angreindum stað, í stóru mynd-
arlegu, raflýstu húsi. Þau hafa
komið upp stórri fjöllskyldu.
Á undan mér var margt fólk
komið á staðinn. Að kvöldinu
MESSUBOÐ
Fyrsta Lúterska Kirkja
Valdimar J. Eylands, prestur.
Heimili: 776 Victor Street,
Sími: 29 017.
Harold J. Lupton, organisti og
söngstjóri.
308 Niagara Street.
Guðsþjónustur á hverjum
sunnudegi: á ensku kl. 11 f. h.,
á íslenzku kl. 7 e. h.
Sunnudagaskóli kl. 12.15 e. h.
Söngæfingar: Yngri flokkur-
inn—á fimtudögum. Eldri flokk-
urinn — á föstudögum.
•f
Gimli prestakall —
Sunnudaginm, 6. október —
messað að Husavick, kl. 2 e. h.;
íslenzk messa að Gimli, kl. 7
e. h. Allir boðnir velkomnir.
Skúli Sigurgeirson.
-f
Árborg-Riverton prestakall —
6. okt.—Vidir, messa ikl. 2 e. h.
Framnes, messa, kli 8.30 e. h.
13. okt. — Geysir, mes^a kl.
2 e. h.; Riverton, íslenzk messa
kl. 8 e. h.
B. A. Bjarnason.
-f ' *
Messað í Sambandskirkjunni
að Lundar, kl. 2 e. h., sunnudag-
inn 13. okt. n. k.
H E. Johnson.
•f
Guðsþjónustur við
Churchbridge í október —
Ensk messa í Concordia þ. 6.
Þakkargerðar messa og altaris-
ganga í Lögberg þ. 13., kl. 2 e. h.
Þakklætismessa í Concordia
þ. 20. og þ. 27., í Þingvallakirkju.
S. S. C.
■f •*• -f
Lúterska kirkjan í Selkirk —
Sunnudaginn, 6. okt., sunnu-
dagaskóli :kl. 11 árd. Ensk messa
kl. 7 síðd. Allir boðnir vel-
komnir.
S. Ólafsson.
um kl. 8 hófst hjónavígslan.
Brúðhjónin voru Eiríkur Hjart-
arson, bóndi í grend við Steep
Rock, Man., og Hulda Bittner,
dóttir hjónanna, þar sem veizlan
var haldin. Systkin brúðarinnar,
Edward og Alma Bittner, að-
stoðuðu brúðhjónin. Þegar þau
höfðu tekið á móti hamingju-
óskum, settist fólk til borðs, og
var þar framreidd mjög rausn-
arleg máltíð fyrir liðugt 60
manns. Fór þar alt fram með
miklum myndarskap, og skemtu
menn sér hið bezta.
Brúðguminn á bú á gæt-
is landi við Manitoba-vatn, gegnt
Steep Rock og fáar mílur þaðan.
Þar verður heimill biúðhjón-
anna.
Rúnólfur Marteinsson
-f -f -f
♦
♦
❖
❖
♦
❖ *
;; Thanhsyiviny ::
Oct. 14th, 8.30 o’clock.
Hymn.—
Scripture Reading and Prayer;
Organ Solo; Remarks from the
Chair—Rev. V. J. Eylands; Vocal
Solo—Elmer V. Nordall; Address
—Mrs. E. P. Jónsson; Selection
Þær frændsystur, Agnes og
Snjólaug Sigurðardætur, sem
dvalið hafa hér í Winnipeg í
námsfríi sínu, lögðu á stað aftur
nú 1 vikunni til framháldsriáms
í New York í vetur. Heilhuga
árnaðar óskir ættingja, vina og
kunningja fylgja þessum efni-
legu íslenzku stúlkum á menta
og menningar braut þeirra.
•f -f -f
Mr. og Mrs. Thorsteinn Oliver
frá Winnipegósis eru stödd í
borginni; er Mrs. Oliver að leita
sér lækninga við sjóndepru.
-f -f -f
—the Ghoir; Collection; Vocal
Solo—Elmer V. Nordal.
Refreshments.
♦*♦ ♦♦♦ fjf ♦♦♦ ♦♦♦
Ritstjórar Vestur - íslenzku
blaðanna, þeir Einar Páll Jóns-
son og Stefán Einarsson, ásamt
frúm sínum komu úr íslandsför
sinni á sunnudagsmorguninn var
og létu hið bezta af viðtökunum
á íslandi. Grettir ræðismaður
varð eftir suður í Bandaríkjum í
LÖGBERG, FIMTUDAGINN ,3. OKTÓBER, 1946
embættis erindum, ásamt frú
sinni, og eru þau væntanleg
hingað norður eftir nokkra daga.
-f -f -f
Gimli Campers Association,
A meeting of the above Asso-
ciation will be held in the lower
auditorium of the First Luther-
ian church, on Thursday, Octo-
ber 3rd, at 8 p.m. All those in-
terested are cordially invited to
attend.
-f ♦ ♦
Böðvar Jónsson frá Longruth
var á ferð í borginni, var að koma
með úrvaís sláturfénað á borð
Winnipegbúa, sem hann seldi
vel.
Böðvar er einn af fyrstu Is-
lendingum sem hófu byggð þar
úti, og hefir búið þar rausnar-
búi í tugi ára. Hann er enn em
og eld fjörugur, með óbilandi
stál minni.
-f -f -f
G. J. Oleson frá Glenboro er
staddur hér í borginni þessa dag-
ana. Segir hann allt hið bezta
að frétta úr sinni byggð; upp-
skera ágæt, einkum hveiti upp-
skeran; haustverk vel á veg kom-
in og vellíðan manna yfirleitt.
-f
Á mánudaginn 23. sept. voru
gefin saman í hjónaband af séra
Sigurði Ólafssyni, Thomas H. P.
Coöhrane, Lilac Apts., Winni-
peg, og Violet Stefanía Einarson,
Ste. 23 Heather Apts., Winnipeg.
Giftingar athöfnin fór fram að
931 Somerset Ave., Fort Garry,
að heimilá Mr. og Mrs. Björn
Pétursson, að viðlstödduim um
40 manns, vandamanna og vina,
er sátu þar veglega veizlu. Brúð-
guminn er af skozkum ættum,
og er Pilot Officer í R.C.A.F.,
og enn þjónandi þar. Brúðirin
er dóttir Mrs Jóhönnu Einars-
son og látins eiginmanns henn-
ar, Sigurbergs J. Einarssonar.
Mr. G. W. Balfour, og Miss Sig-
ríður Guðrún Sigmundsson að-
stoðuðu við giftinguna. Ungu
hjónin setjast að í Winnipeg.
-f -f -f
Gefin saman í hjónaband að
prestsheimilinu í Selkirk, þann
28. sept., af sóknarpresti þar:
John Henry Borley og Oddney
Júlía Johnson, bæði frá Winni-
peg. Brúðguiminn er af enskum
ættum, og stundar nám við Uni-
versity of Manitoba. Brúðirin
er dóttir Mr. og Mrs. Geiri John-
son, Árborg, Man.
■ Mr. og Mrs. G. A. Peterson,
Winnipeg, aðstoðuðu við gift-
inguna. Heimili ungu hjónanna
verður í Winnipeg.
♦ * *
Mrs. Anna Ingimundson, ekkja
Jóhanns S. Ingimundsonar, and-
aðist sunnudaginn 29. sept. að
heimili dóttur sinnar og tengda-
sonar, Mr. og Mrs. W. G. Finn-
son, 505 Beverley St., Winnipeg,
eftir stutta rúmlegu, en lamaða
heilsu hin síðari ár. Útförin er
ákveðin að fari fram á miðviku-
dag, frá Langrills útfararstofu
og kirkju Selkirk-safnaðar.
-f -f -f
Roskin íslenzk hjón geta fengið
bungalo til leigu í vestur hluta
bæjarins, sem vilja fæða og
þjóna öldruðum manni sem býr
í húsinu. — Upplýsingar 401 722.
-f -f -f
The Junior Ladies Aid of the
First Lutheran church, Victor
St., will hold their regular meet-
ing in the Church Parlors on
Tuesday, Oct. 8th, at 2.30 p.m.
A talk wil’l be given by Miss
Winnie Jessop, who returned
from Japan this year, where she
had been doing missionary work
beforte the war. All members
are urged to attend.
♦ f -f
Mrs. Ingi Brynjólfsson (Susie
Christopherson, formerly of
Grund, Argyle, Man.) and her
daughter, Mrs. Paul Ásgeirson
and daughter, have been visitors
in Winnipeg, after visiting on
the West coast and in fhe Argyle
district, left for their home in
Chicago on Monday evening.
Dr. Thorleifsson frá Brandon
hefir Tlvalið í bænum undanfar-
andi daga, en fór aftur heim til
sín í fyrradag. Hann sagði eng-
ar sérstakar fréttir þaðan að
vestan.
♦ ♦ ♦
Við imdirritaðar, óskum eftir
að komast í bréfasamband við
Vestur-lslendinga á aldrinum
16—20 ára.
Þorgerður Gunnarsdóttir,
Hverfisgötu 69,
Reykjavík, Iceland.
Þorgerður Bergsdóttir,
Jaðarsbraut 13,
Akranesi, Iceland.
♦ ♦ ♦
GÓÐA SYSTIRIN.
Margir þekkja þessa systir, og
sérstaklega Good Templarar.
Hún hélt lifandi, barnastúku á
Gimli í mörg ár, og barðist fyrir
bindindi í þeim bæ. Hún hefur
lagt fram mikið fé til þess starfs,
bæði á Gimli og margsinnis hér
í Winnipeg, fært stúkunni hér
stórgjafir, og nú síðast, þó hún
verði að taka “Taxi” til að kom-
aSt á fundi stúknanna, þá færir
hún okkur $25.00 1 sjúknasjóði
stúknanna Skuld og Heklu. Góða
Systirin er Mrs. Kristíana Chis-
well.
i Beztu þökk fyirir allt góða
starfið og allar gjafirnar.
Bróðir í Skuld.
♦ ♦ ♦
Utanáskrift S. B. Benedictsson-
ar frá Langruth, Man. er nú
“Alonsa, Man.”
Skemtisamkoma “Fróns”
Eins og sjá má af auglýsingu
í blöðunum, heldur þjóðræknis-
deildin “Frón” skemtisamkomu
þann 7. október.
Samkvæmt venju hafa fund-
arhöld og sam/komur deildarinn-
ar legið niður yfir sumartímann,
vegna ýmsra verklegra anna.
Stjórnarnefndin taldi viðeig-
andi að byrja komandi starfs-
tímabil með góðri samkomu, sem
væri við allra hæfi, jafnt ungra
sem aldraðra.
Skemtiskráin er að sjálfsögðu
sniðin fyrir alla og öllum ætluð,
en þó sérstaklega fyrir hið eldra
fólk, sem farið er að stirðna í
fimum fótaburði, eða hefir aldr-
ei kunnað hann réttann.
Dansinn er einnig fyrir alla
jafnt, en þó mun hann að venju,
verða vinsælastur meðal hins
yngra fólks, að meðtöldum
nokkrum silfurhærðum körlum
og konum sem aldrei eldast.
Til skemtiskrárinnar hefir ver-
ið sérstaklega vandað. Hún sýn-
ir sig og sannhr það sjálf. — Nafn
Guttorms skálds Guttormssonar
er eitt út af fyrir sig nægilegt
dæmi.
Annars er hvert atriðið öðru
betra, án þess að flieyri nöfn séu
nefnd.
Stjórnarnefndin óskar vitan-
lega eftir sem allra mestu fjöl-
menni — eins miklu og húsrúm
leifir.
XII.
ISLENDINGAR . . .
§ sem flytja vestur að hafi, hefðu gott af að líta inn til g
HOMEFINDER LAND sölufélagsins, sem hefir skrifstofu
1 sína á hominu á Broadway og Commercial Drive, Van- 1
couver, B.C.„ og spyrja eftir Hermann Johnson eða Len
Goodman. Þeir eru fúsir til að leiðbeina fóiki viðvíkjandi I
| verði á fasteignum og aðgengilegum byggingarsæðum.
Karlmanna klúbbur Fyrsta lút.
safnaðar í Winnipeg, sem láta
varð af reglubundnu starfi á
stríðsárunum, hóf aftur athafna-
sókn sína í gærkveldi á vel sótt-
um fundi, sem haldinn var í sam-
ikomusal kirkju safnaðarins.
Eftirfarandi embættismenn voru
kosnir: Forseti, Haraldur Sig-
urðsson; vara-forseti Adolf Jó-
hannson; skrifari og féhirðir Paul
Finnbogason; meðráðamenn:
Bamey Benson, og Don Axford.
Áhugi og eimbeittni ríkti á fund-
inum.
EKKI TÝNDUR
Fyrir nókkru síðan birtum vér
grein í Lögbergi, um Hollenzk-
an fræðimann sem fann æfar-
gamla höfuðskél af manni og
ægilega stóra, í Java, og hvarf
svo í stríðinu. Nú er þessi mað-
ur kominn í leitirnar, Dr. G. H.
R. von Koeningwald. 1 vikunni
sem leið, kom hann til New
York, eftir 30 mánaða vist í
varðfangelsi hjá Japanítum, og
kom með þessa 500,000 ára gömlu
hauskúpu með sér, og margt
fleira, sem forn- og mannfræð-
ingar hafa gaman af aðjskoða
og giíma við. Hefir hann tekið
ihinn merkilega fimd sinn á
náttúrugripa safnið í New York,
þar sem Dr. G. H. R. von Koen-
ingwald verður fyrst um sinn,
til þess, með öðrum vísindamönn
um að athuga þessa risavöxnu
hauskúpu og aðrar merkilegar
fornmenjar sem doktorinn kom
með með sér.
Skemiiiamhoma
undir umsjón deildarinnar “I’rón” verður haldin í
I.O.G.T. Hall, Sargent Avenue
MÁNUDAGSKVELDIÐ 7. OKTÓBER
Til skemtunar verður:
Tvísöngur — Mrs. T. Thorvaldson og Reg. Whillans.
Ræða —T* Guttormur skáld Guttormsson, Riverton.
Einsöngur — Mrs. T. Thorvaldson.
Kveðjur frá Islandi — Grettir konsúll Jóhannson.
Gamlir og nýir dansar til kl. 12.30
Aðgöngumiðar fást í bókabúð Davíðs Björnssonar.
Inngangur 35 cents — Byrjar kl. 8.15 e. h.
Islenzkar konur . . .
' /
Við iborgum hæsta verð fyrir heimaunna
ullarsokka og vetlinga handa fiskimönn-
um. íslenzkar konur, sem þá iðn stunda,
gerðu vel í að láta okkur vita hvað þær
gætu af hendi látið af þeirri vöru og 'hve-
nær þær gætu afhent hana.
Látið okkur vita sem fyrst, við borgum
út í hönd.
SIMI 21 844
PARK-HANNESSON
55 Arthur Street Winnipeg, Man.
Verzlunarmenntun!
Hin mikla nývirkni, sem viðreisnarstarf-
ið útheimtir á vettvangi iðju og framtaks,
krefst hinnar fullkomnustu sérmentunar sem
völ er á; slíka mentun veita verzlunarskól-
arnir. Eftirspurn eftir verzlunarfróðum mönn-
um og konum fer mjög vaxandi.
Það getur orðið ungu fólki til verulegra
hagsmuna, að spyrjast fyrir hjá oss, munn-
lega eða bréflega, varðandi námskeið við
helztu verzlunarskóla borgarinnar.
THE GOLUMBIA PRESS LTD. I
COR. SARGEIMT AND TORONTO ST., WINNIPEG
/