Lögberg - 31.10.1946, Qupperneq 8
8
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 31. OKTÓBER, 1946
Or borg og bygð
Ljóðmæli Jónas A.
Sigurðsson .............$4.00
BJÖRNSSON’S BOOK STORE
0
702 Sargent Ave., Winnipeg.
Hið eldra kvenfélag Fyrsta
lúterska safnaðar heldur sinn ár-
lega Bazaar á mánudaginn þann
13. nóvember næstkomandi, verð-
ur þar margt ágætra og eigu-
legra muna á boðstólum. Frek-
ari umsösn í næsta blaði.
♦
HUGHEILAR ÞAKKIR—
Það má ekki minna vera en
við þökkum opi^berlega vinum
okkar o& samferðafólki hið yndis-
leg3- kveðjusamsæti, er okkur var
haldið í Hnausa Hall þann 25.
ágúst síðastliðinn í tilefni af
burtför okkar úr Hnausabyggð-
Við þökkum gjafirnar, ræðurn-
ar og kvæðin og allan þann hlý-
hug, er til okkar streymdi á-
minstan dag.
Með endurteknu þakklæti, o"
árnaðaróskum,
Mr. og Mrs. Gísli Sti'mundsson,
Gimli, Man.
'♦
Kristján Jóhnson, húsgagna-
smiður frá Hjarðarfelli, lézt hér
í borginni síðastliðipn föstudag,
freklega 73 ára að aldri; hann
hafði átt við Þngvaranndi van-
heilsu að búa. Kristján var gleði-
maður mikill meðan kraftar hans
entust og hlýr í viðmóti; hann
lætur eftir sig ekkju og fjórar
dætur; einnis systkini, þau Mrs.
J. J. Swanson os Alex. Johnson
söngvara.
tTtför Kristjáns fór fram frá
fyrstu lútersku kirkju á mánu-
daginn að viðstöddu fjölmenni.
Séra Valdimar J. Eylands jarð-
söng.
-f
Mr. Walter Jóhannson leikhús-
stjóri frá Pine Falls, var staddur
í borginni um síðustu helgi, á-
samt frú sinni-
-f
Mr. J. J. Thorvardson, 768 Vic-
tor Street, dvaldi á Gimli nokkra
daga í vikunni sem leið í heim-
sókn hjá ættingjum og vinum.
-f
The Junior L«dies Aid of the
First Lutheran church will hold
their Annual meeting in the
dhuroh pairlors on Tuesday, Nov.
5th at 2.30 p.m.
-f
Næsti fundur St. Heklu No.
33 I.O.G.T. verður mánudags-
kvöld, 4- nóvemiber. Prógram o»
veitin^ar. Stefán Einarson rit-
stjóri segir fréttir frá íslandi. Er
stúkunni Skuld sérstaklega boð-
ið. Allir Good Templarar Vel-
komnir.
-f
Mr. og Mrs- Gísli Sigfússon
frá Oak View, Man., voru stödd
í borginni í byrjun vikunnar.
-f
Mrs. S. W. Sigurgeirsso" frá
Riverton, kom til borgarinnar á
mánudaginn, ásamt Jóni syni
sínum.
-f
Frú Sife'ríður Sisurgeirsson,
kona séra Skúla sigurgeirssonar
á Gimli, var skorin upp á Al-
menna sjúkrahúsinu hér í borg
í byrjun fyrri viku; hún er nú
á ágætum batavegi.
-f
Eirihleypur Islendingur æsk-
ir að fá sem allra fyrst gott her-
ibergi með búsgögnum, fyrir svo
sem tveg&ja mánaða tíma. Frek-
ari upplýsinsar veittar með því
að hringja upp 21 804.
-f
The regular meeting of the Jón
Sisurdsson Ohapter I.O D.E. will
be held in Board room No. 2
Free Press Bldg., on Thursday
Eve, Nov. 7th. The Municipal
Ref-'ent and Organizing conveno1-
of the Municipal chapter will be
present. Mrs. O. Stephensen will
give a paper on her vacation
journey on the West coast.
MESSUBOÐ
Fyrsta Lúterska Kirkja
Valdimar J. Eylands, prestur.
Heimili: 776 Victor Street,
Sími: 29 017.
Harold J. Lupton, organisti og
söngstjóri.
308 Niagara Street.
Guðsþjónustur á hverjum
sunnudegi: á ensku kl. 11 f. h.,
á íslenzku kl. 7 e. h.
Sunnudagaskóli kl. 12.15 e. h.
Söngæfingar: Yngri flokkur-
inn—á fimtudögum. Eldri flokk-
urinn — á föstudögum.
Séra Rúnólfur Marteinsson
prédikar við báðar guðsþjónust-
urnar í Fyrstu lútersku kirkju,
Winnipeg á sunnudaginn kem-
ur, 3 nóvember.
-f
Gimli prestakall—
Sunnudaginn, 3. nóv., messa
að Husavick, kl. 2 e. h.; íslenzk
messa á Gimli kl- 7 e. h.
Skúli Sigurgeirson.
-f
Lúterska kirkjan í Selkirk—
Sunnudasinn 3. nóv., sunnu-
dagaskóli kl. 11 árd. Ensk messa
kr. 7 síðd. A'llir boðnir vel-
komnir.
S- Ólafsson.
-f
Árborg-Riverton prestakall
3. nóv—Geysir, messa og árs-
fundur kl. 2 e. h.; Riverton, ensk
messa og ársfundur kl. 8 e. h.
10. nóv. — Hnausa, messa og
ársfundur kl. 2 e. h.; Árborg, ís-
lenzk messa kl. 8 e. h-
B. A. Bjarnason.
Gefið til Sunrise Lutheran
Camp, af Mr. og Mrs. Ineólfi
Bjarnasyni, Gimli, $2.00 í minn-
ingu um Guðveigu Egilsson.
-f
Gefin saman í hjónaband að
heimili Mr. og Mrs. Jónasson,
Ste. 10, Livinia Court, 351 Victor
St., Winnipeg, þann 27. október,
Frank Victor Mercer, Hecla,
Man., og Ósk Jónasson, sama
staðar. Brúðguminn er af hér-
lendum ættum, en brúðirin er
dóttir Mr. og Mrs. Alexander
Jónasson, Hecla, Man. Við gift-
insuna aðstoðuðu Alexander
Jónasson og Ingibjörg Jónasson,
systkini brúðarinnar. Ágæt
veizla var setin af náhustu ætt-
in«jum, að heimili Mr. og Mrs.
J. Jónasson- séra S. Ólafsson
gifti.
-f
Gefið í Minningarsjóð
Bandalags Lúterskra Kvenna —
Bindindisstúkurnar Hekla og
Skuld, Winnipeg, $100.00, í minn-
ingu um syni meðlima er létu
líf sitt í hinum tveimur heims-
stríðum.
Með innileKu þakklæti.
Annna Magnússon,
Box 296, Selkirk, Man.
-f
%
Athugasemd—
Ofangreind upphæ® hefur áður
verið auglýst sem gjöf í bysg-
ingarsjóð Bandalagsins, þar sem
hún var send í þann sjóð af van-
gá. — Þetta leiðréttist hérmeð,
og hlutaðeigendur eru beðnir
afsökunar.
A. M.
-f
Á laugardaginn 12. okt., voru
gefin saman í hjónaband í Fyrstu
lútersku kirkju, þau Harold John-
son og Lillian Johnson. Brúð-
guminn er sonur Hel&a Jolhnson
trésmíðameistara í Winnipeg, en
brúðurin er dóttir séra Bjöms
heitins Jónssonar, dr- theol., fyrr-
um prests Fyrstu lút. safnaðar
í Winnipeg og Ingiríðar konu
hans. Er Lillian yngsta barn
María Markan Östlund —
Söngskemtun í Gl. Bíó
Frú María Markan Östlund
gistir borg vora um þessar mund-
ir eftir margra ára dvöl í þrem
heimsálfum. Hún er víðförlasta
og frægasta söngkona, sem Island
hefir átt, og hefir borist af henni
mikið frægðarorð hvar sem hún
hefir farið og sungið- Meðal
annars hlotniaðist henni sá heið-
ur að syngja við Metropolitan
óperuna í New York. Það er á-
stæða til að fagna svo góðum
gesti, er hún kemur heim aftur
og syngur fyrir landa sína, og
bjóða hana velkomna. Og skal
það einnig gjört hér.
Mönnum er enn í fersku minni
hinn glæsilegi söngur Maríu
Markan áður en hún settist að
erlendis- Það er því ekki að
undra, þó að eftirvænting reyk-
vískra áheyrenda væri spennt
til hins ítrasta nú, þegar hún lét
aiftur til sín heyra hér heima
eftir sigurför-^sína. Skorti ög
ekki neitt á að söngkonunni væri
fagnað mjög hjartanlega af troð-
fullu 'húsi áheyrenda, bæði með
dynjandi lófataki svo og heilu
blómahafi alt frá- upphafi tón-
leikanna og þar til síðasti tónn-
inn sloknaði-
Söngskráin var samansett af
aríum, þrem ísl. lögum og svo
erl. lögum. Gafst söngkonunni
nokkurt tækifæri til að sýna list
sína frá ýmsum hliðum, en eg
saknaði þarna einhvers hinna
stóru meistara í sönglagagerð-
Vœntanlega á frúin eftir að
syngja lög eftir Schuibert, Schu-
mann, Brahms eða Hugo Wolf
fyrir okkur síðar.
Framan af söngskrónni hreif
mig mest píanósöngur frúar-
innar, sem var oft mjög yndis-
legur, og vil eg sem dæmi nefna
litla íslenzka þjóðlagið “Amma
gamla,” sem Hallgrímur Helga-
son hefir útsett einkar smekk-
lega. En það mun eflaust að
einihverju leyti mega kenna um
snöggri loftlagsbreytingu, að
söngurinn naut sín ekki alltaf,
var ekki alveg hreinn á köflum,
og línurnar nokkuð óskýrar. —
Einnig bar stundum á erfiðleik-
um í dýptinni, eins og söngkon-
unni væri erfitt fyrir um suma
tónana. En það dylst engum, að
hér er á ferðinni mikil söng-
kona, gædd geysimiklum radd-
möguleikum, skapmikil og stór-
brotin. Kom það bezt fram í
tveim síðustu aríunum eftir
Verdi, einkum þó hinni fyrri úr
“Mætti örlaganna,” *sem var
sungin af mikilli snild, og minti
sú meðfer$ mig á “tinda, er
mæna að sólarglóð” líkt og
skáldið kemst að orði. Þetta var
mikiilfenglegur söngur.
Fritz Weisshappel lék undir-
Hann er traustur og góður und-
irleikari, en hér hefði hann mátt
beita sér meira á köflum, meira
við skap söngkommnar.
Frúin söng mörg aukalög og
loks “Faðir vor,” eftir Malotte.
Það hefði átt vel við, að áheyr-
endur hefðu þá risið úr sætum
í stað þess að klappa.
Forseti Islands heiðraði fræg-
ustu söngkonu Islands með nær-
veru sinni-
P. I-
Morgunbl., 22. sept.
þeirra hjóna. Heimili ungu
hjónanna verður í Winnipeg.
Sigurjón Sigurdson, frá Fagra-
dal í Geysirbygð, og Doris Mabel
Boundy, til heimilis í Árborg,
voru gefin saman í hjónaband
19. okt. s.l. í lútensku kirkjunni
í Árborg af sóknarprestinum,
séra B. A. Bjamason. Brúðkaups-
veizla var haldin í Arborg Hotel
að hjónavígslunni afstaðinni.
♦
Guðmundur Jónsson Tómas-
son, frá Riverton, og Sigurrós
Jónína Thorsteinson, frá Hnausa,
voru gefin saman í hjónaband
26. okt- s.l. Séra B. A. Bjarna-
son gifti, og fór athfnin fram á
heimili hans í Arborg, Man.
SAMSÖNGUR KARLA-
KÓRS REYKJAVÍKUR
Karlakór Reykjavíkur hefir
ekki setið auðum höndum und-
anfarið- 1 marga mánuði hefir
hann æft af kappi undir söngför
sína til Ameríku, þá mestu og
vandasömustu för, sem nokkur
íslenzkur kór hefir enn tekist á
hendur. Því fáir mimu í raun
og veru geta gjört sér fyllilega
ljóst, hver átök það kostar að
syngja opinberlega svo að segja
daglega mánuðum saman í
stónborgum Ameríku. Til þess
þarf mikið áræði, úthald og
mikla þjálfun.
Kórinn hefir að nokkru leyti
verið endurskipulagður, og hafa
nokkrar prýðilegar raddir bæst
í hópinn. Finnst mér kórinn
með ágætum og jafnvægið milli
radda hið bezta, enda þótt 2.
bassi mætti mín vegna vera
nokkru hljómmeiri og voldugri;
en eg hugsa hér í orgelsbössum,
básúnum og þess háttar blikki,
svo þetta eru kanske kenjar úr
mér.
Söngstjórinn, Sigurður Þórð-
arson, tónskáld, hefir lagt geysi
lega vinnu 1 að þjálfa kórinn og
gera úr honum nýtt hljóðfæri,
sem lætur vel að stjórn og beyg-
ir sig fullkomilega undir vilja
stjómandans. Hefir kórinn oft
vel gert og prýðilega, en nú er
hann beztur og samstiltastur, og
finnst mér hann aldrei hafa
sungið jafnvel og nú- Á stjórn-
andinn og kór heiður skilið fyr-
ir frammistöðuna í heild. Eg
hygg) eigi séu þeir norrænir
kórar margir, er tækju Karla-
kór Reykjavíkur fram nú, og er
óhætt um það, að hann mun
verða sjálfum sér og þjóðinni
til mikils sóma með söng sínum
í þessari fyrirhuguðu för.
Á söngskránni voru 32 lög, og
söng kórinn 12 þeirra, svo og
aukalög. Eg vil gera þá athuga-
semd við söngskrána í heild, að
mér finnst leitt, að ekki skuli
þar að finna nema eitt íslenzkt
þjóðlag: “Bára blá” Eg sakna
þarna fleiri íslenzkra þjóðlaga,
sem eg veit með vissu að vekja
myndu mjög mikla athygli er-
lendis, og við eigum skínandi
perlur á þessu sviði, og því ekki
að skreyta sig með þessum perl-
um úr íslenzku þjóðliífi? Aftur
á móti eru nokkur lög eftir nú-
tíma íslenzka böfunda, og sum
þeirra góð- Sérstaklega vel naut
sín t. d. “Á Sprengisandi” eftir
Sigvalda Kaldalóns í útsetningu
Einars Ralf. Er þar farið fall-
egum höndurn um þetta lag,
sem vel gæti verið þjóðlag.
Magnús Gíslason, bassi, söng
þarna einsöng mjög vel- Eg
hirði ekki að telja upp öll lögin,
sem sungin voru, læt nægja að
endurtaka það, að þau voru fram-
úrskarandi vel æfð og prýðilega
vel sungin án undantekningar.
Stefán Islandi og Guðmundur
Jónsson verða einsöngvarar í
þessari söngför. Er það ótvíræði-
legur fengur fyrir kórinn að
hafa slíka afburða söngvara í
för með sér. Stefán söng í
“Kyrie” úr “Messu” eftir Sig-
urð Þórðarson og í “Ave Maria”
eftir Sigvalda Kaldalóns, og kom
hann hér'fram sem hinn mynd-
ugi, glæsilegi söngvari sem hann
er, en þó saknaði eg þess létt-
leika — mánasilfursins — sem
gerir söng hans oft svo töfrandi.
Og svo söng hann þarna nokkrar
aukanótur í “Ave Maria,” sem
varða við lög, sérstaklega þó
sönglög.
Það má æfinlega deila um
hraða og “agogiska” meðferð í
söng. En eg mun leiða það hjá
mér nú, þó ekki sé eg söngstjór-
anum æfinlega sammála. Má
og deila um mína skoðun í þess-
um efnum. Þó vil eg segja það,
að eg held að áhrifin af blessuð-
um þjóðsöngnum okkar yrði
sterkari væri hann sunginn
nokkru hraðara. Hið lotningar-
fulla og religiösa þarf engan veg-
inn að hverfa við það.
Og svo langar mig til að mega
vera með í hópi “Fóstbræðra”
og taka undir hin fögru orð séra
Garðars Þorsteinssonar, er hann
kvaddi ykkur fyrir hönd þeirra,
og óska ykkur allira fararheilLa og
mikils framgangs í þessari miklu
söngför til Vínlands hins góða.
Það ihefir verið eins vel vandað
til þessarar farar og unt var-
Megi árangurinn af því mikla
starfi verða sá, að þið berið
hróður íslands til hinnar vold-
ugu bandarísku þjóðar og vekið
hjá Vestur-lslendingunum fagrar
entdurminningar um landið
þeirra gamla-
P. 1.
Morgunbl., 26. sept-
Hugsað fram!
Látitu hreinsa öll fötin, sem
þú þarft að Láta heins í
haust — NÚNA . . .
Ágætisverk
Hagnýttu þér tækifærið til
spamaðar með því að vitja
fata þinna í búðina sem
næst þér er.
Búðir okkar eru nú opnar
frá kl. 8 f. h. til kl. 7 e. h.
Perth’s
888 SARGENT AVE.
fl ISLEMDIIVGAR . . .
sem flytja vestur að hafi, hefðu gott af að líta inn til ■
HOMEFINDER LAND sölufélagsins, sem hefir skrifstofu jj
sína á horninu á Broadway og Commercial Drive, Van-
1 couver, B.C.„ og spyrja eftir Hermann Johnson eða Len
■ Goodman. Þeir eru fúsir til að leiðbeina fólki viðvíkjandi
1 verði á fasteignum og aðgengilegum byggingarsæðum.
ORÐSENDING
TIL KAUPENDA LÖOBERQS OG HEIMSKRINGLU A ISLANDI:
MunltS atS senda mér áskrlftargrjöld atS blöðunum fyrlr
júnllok. AthugriC, a!5 blötiin kosta nfl kr. 26.00 krantfur-
inn. Æskllegast er aö gjaldiC sé sent I pöet&vlsun.
^ BJÖRN aUÐMUNDBBON,
Reynlmel 62, Reykjavlk.
AUDITORIUM
Winnipeg
November 18 & 19
Fred M. Gee Presenls
Karlakor
Reykjavikur
MALE CHORUS DIRECT
FROM
REYKJAVIK. ICELAND
36 SINGERS
SOLOISTS:
Stefan Islandi, Tenor
Gudmundar Jonsson,
Barilone
DIRECTOR:
Sigurdur Thordarson
•
SEATS (For November 19th)
62.60, $1.95, 51.30, 90c—Now on Sale
at Celebrity Concert Series Ltd.,
383 Portage Avenue
Note: Only Seats Available for
November 18th are on Main
Floor, Rear, at 90c.
MAIL ORDERS: Send Money-Order
and Stamped, Self-Addressed En-
velope for Return of Tickets to:
Celebrity Concert Series Ltd.,
383 Portage ’Avenue
LITTLE GALLERY
id Movina!
Sale of Pictures, Paintings, Art
Gems, Petit Point, Rare and
Unusual Prints and Picture
Framing.
120% to 50% Off Regular Prices
Sale Siaris Monday, Oci. 28ih
LITTLE GALLERY
IS MOVING
INTO PERMANENT GALLERIES
317 KENNEDY ST.
Just North of City Hydro
All stock at present quarters to
be cleared at Bargain Prices.
• Framing Orders 20% off
AT THE
WISHING WELL
286 KENNEDY ST.