Lögberg - 30.01.1947, Blaðsíða 1
PHONE 21 374
AÍ>^
oVteA
UuiO^°r„
^ s<t A Compleíe
' lleaning
I islilution
PHONE 21 374
w»°í
Ot^
S^SSSSo*
■fOB- s A Complete
Cleaníng
Instilution
60. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMTUDAGINN 30. JANÚAR, 1947
NÚMER b
VERÐSKULDUÐ VIÐURKENNING
Vegna ágæts starfs heima á Is-
landi á stríðsárunum, sem ekki
sízt var fólgið í iþví að kynna Is-
iand og hugsunarhátt Islendinga
hinum amerísku hermönnum,
hefir Valdimar K. Björnson ný-
lega verið sæmdur stórriddara-
krossi hinnar íslenzku fólkaorðu.
Formleg afhending orðunnar fór
fram í New York í byrjun des-
ember, er Valdimar og kona hans
voru þar á ferð. Tihor Thors
sendilherra afhenti þá Valdimar
orðuna. og er mynd sú er birt
er hér fyrir ofan tekin við það
taökifæri. Á myndinni eru, auk
Valdimars, Iþau kona hans Guð-
rún Jónsdóttir, Thor Thors sendi-
herra, Bjarni Benediktsson,
Leiðtogi bráðabirgðastjórnar-
innar á Indlandi, Pandit Nehru,
har fram í indverska þinginu
'þann 22. þ. m., tillögu til þings-
aiyktunar, er út á það gekk, að
Indland lýsti yfir fulikomnu
sjálfstæði sínu, og gerðist full-
veðja dýðveldi; yfirlýsingin var
samþykt í einu hljóði með því að
allur þingheimur reis á fætur;
við þetta tækifæri flutti Nehru
nálega kiukkutíma ræðu, þar sem
hann lýsti yfir því, að Indland
gæti ekki undir neinum kring-
nrnstæðum beðið lengur eftir
frelsi; biðin væri orðin langt of
löng; hann kvað þjóð sína vilja
eiga vinsamleg samskifti við all-
ar þjóðir, og þá ekki síður við
hrezku þjóðina, þótt stjórnmála-
sambandið við hana yrði rofið.
Brezkir valdamenn í London,
einkum þeir, er að Indlandsmál-
um standa, telja áminsta sjálf-
stæðisyfinlýsingíu indverska
þingsins ólöglega • markleysu.
•f -t +
BANDARÍKI
NORÐURÁLFUNNAR
Mr. Winston Churchili fyrrum
forsætisráðherra Breta, ritar nú
°g ræðir ósíköpin öll um það, að
grundvöllur verði sem allra fyrst
Ingður að stofnun Bandaríkja
Norðurálfunnar; harla skiptar
S'koðanir hafa þegar komið fram
um málið; forystumenn verka-
Ujsnnaflokksins brezka, eru sagð-
lr að vera andvígir hugmynd-
^nni og telja hana einungis póli-
físka beitu af hálfu íhaldsmanna
fil afnota Iheima fyrir.
Aðalblöð rússnesku ráðstjórn-
arrikjanna telja hugmynd Mr.
ChurchilLs með öllu óframkvæm-
anlega, og efast jafnvel um ein-
I*gnina, sem að baki hennar
hggi.
borgarstjóri í Reykjavík, Finn-
ur Jónsson, dóms og félagsráð-
herra, og Ólafur Jóhannesson,
lögfræðingur, en þeir fjórir voru
sendimenn Islands á allsherjar-
þingi hinna sameinuðu þjóða.
Valdimar Björnson og kona
hans verða gestir Þjóðræknisfé-
lags Islendinga í Vesturheimi og
deildarinnar Frón á næsta þingi
þjóðræknisfélagsins sem halda á
24.—26. febrúar n.k. Valdimar
mun flytja ræðu á Frónsmótinu.
Valdimar Björnson hefir nú
vferið endurskipaðuir íslenzkur
vara-ræðismaður í Minneapolis.
—Frétt frá ræðismannsskrif-
stofu íslands.
Mr. Randolþh Ohurchill, sonur
Winston C’hurchills fyrrum for-
sætisráðherra Breta, og um eitt
skeið þingmaður íhaldsfloikksins
í brezka þinginu, flutti ræðu á
fimtudagskvöldið var hér í borg-
inni að tilstuðlan stúdentasam-
bands Manitoba háskólans; ilét
hann þess getið, að tvenns konar
gerólík viðhorf stæði enn sem
komið værúí rauninni í vegi fyrir
aljþjóðafriði; vestrænt viðhorí
annars vegar, grundvallað á ein-
staklingsfrelsi, og viðhorf rúss-
neska kommúnismans hins veg-
ar, er teldi múghyggjuna hið
æðsta boðorð; Iþó kvað Mr.
Chur chill engan veginn voniaust,
að takast mætti að hliðra þann-
ig til, að fyrirbyggja mætti skað-
samlegan árdkstur þessara and-
vígu sjónarmiða.
-f -f 4-
FER TIL ENGLANDS
Brezk stjórnarvöld hafa boðið
frú Eleanor Roosevelt, ekkju
Franklins D. Roosevelt Banda-
ríkjaforseta, að koma til London
og afhjúpa minnisvarða yfir
mann hennar, sem brezka þjóðin
hefir með frjálsum samskotum
látið reisa við sendiherrabústað-
inn amerísfca að Grosvenor
Square.
Frú Eleanor hefir þegið boðið,
og er ráð gert fyrir, að afhjúpun-
in fari fram þann 12. apríl.
f -f f
HÆKKUN FARMGJALDA
MÓTMÆLT
Þriggja daga fundur stóð yfir
hér í borginni 4 vikunni, sem leið,
þar sem mættir voru erindrekar
hinna ýmissu Ibúnaðarmálasam-
taka í Sléttufylkjunum þremur,
og bar þar margt á góma; fund-
urinn mótmælti því stranglega,
að járnibrautarfélögunum yrði
heimiluð hækkun farmgjalda frá
því, sem nú er, og taldi alla
hækkun í þá átt. mund-u veikja
til muna efnáhagslega afstöðu
bænda í Vesturlandinu.
HAGKVÆMAR
FLUGSAMGÖNGUR
Félag eitt í Ba'ndaríkjunum,
sem Viking Travel Servicé nefn-
ist, með skrifstofur að 165 Broad-
way, New York 6, N.Y., hefir nú
tekist á hendur að ráðstafa flug-
ferðum mi’.li Bandaríkjanna, Is-
lands og hinna Norðurlandanna;
félag þetta er nákunnugt högum
og háttum áminstra þjóða, og
hefir viðurkent umboð fyrir
American Airlines og American
Overseas Airlines; aðeins full-
komnustu faiþegaflugvélar, með
allra nýjasta útbúnaði og þæg-
indum, verða notaðar til slíkra
flugferða, og verður þeim stjórn-
að af þaulreyndum sérfræðing-
um í fluglist.
Félag Iþetta getur nú ráðstaf-
að ferðum frá hvaða stað, sem
er í Bandaríkjunum og Canada,
til hvaða staðar sem er í Norður-
álfunni.
The American Overseas Air-
lines félagið hefir haldið uppi
flugferðum milli Bandaríkjanna
og Norðurálfunnar um England,
en nú hefjast þangað reglu-
bundnar flugferðir um Island.
Framkvæmdarstjóri þessa nýja
fyrirtækis, er Gunnar R. Pauls-
son í New Yonk, og sendi hann
ræðismannsskrifstofu Islands i
Winnipeg ofangreindar upplýs-
ingar.
f f f
ÆGILEG FLUGSLYS
I síðustu viku, var skýrt frá
ihvorki meira né minna en sextán
ægilegum flugslysum; sum þeirra
gerðust í Kína, önnur hér og þar
í Bandaríkjunum, en það siðasta
og umfangsmesta yfir flugvell-
inum í Kaupmannahöfn; í þvi
slysi létu lífið tuttugu og tvær
manneskjur, þar á meðal ame-
ríska söng- og kvikmyndastjarn-
an Grace Moore; þessi víðkunna
söngkona hafði verið á söngför
um Norðurálfuna undanfarna
mlánuði, hafði nýlokið söngsam-
komum í Kaupmannahöfn, og
var á leið til Svíþjóðar; þá fórst
og í flugslysi þessu Gustaf Adolí
Svíaprins, sonur sænska krón-
prinsins og næstur honurn að
ríkiserfðum; hinn látni prins,
sem var rétt fertugur að aldri,
var að koma heim úr veiðdför
frá Hollandi; hann naut mikilla
vinsælda og er harmaður af heilli
þjóð.
f -f f
LOFSAML.EG OG MAKLEG
UMMÆLI
Blaðið Winnipeg Free Press
lét þess nýlega getið, að hæfasti
maðurinn til þess að fylla það
sæti í hæztarótti Canada, er au-tt
varð við fráfall Hon A. B. Hud-
sons, væri Hon. H. A. Bergman,
dómari í áfrýjunarrétti Manitoba
fylkis; fór blaðið að makleikum
lofsamlegum orðum um skapgerð
og hæfileika Mr. Bergmans; enda
mun það mála sannast, að Mr.
Bergman sé einn hinna lærðusitu
og skarpvitrustu lögfræðinga,
sem nú eru uppi í Canada.
f f f
SAMBANDSÞINGIÐ
1 dag, fimtudag, var sambands-
þinginu í Ottawa stefnt til
funda; er þess getið til í Ottawa
fregnum, að stjómarfrumvörpin
verði að þessu sinni óvenjulega
mörg og mikilvæg; ýmis þeirra
munu lúta að afnámi af margs-
konar hömlum og takmörkunum
á vettvangi viðskiftalífsins, sem
frá stríðinu stöfuðu; hörnlur á
innflutningi Kínverja verða af-
numdar, auk þess sem þess er
vænst, að ellistyrksmálið verði
tökið til alvarlegrar íhugimar, og
var þess sízt vanþörf.
RYÐUR SÉR GLÆSILEGA
BRAUT
I. C. Ingimundson
Maður sá, er hér um ræðir, I.
C. Ingimundson, er fæddur í Sel-
kirk og hlaut þar sína fyrstu
mentun; hugur hans beindist
snemma til æðra náms, og réð
hann það af að leggja fyrir sig
mentaveginn. Mr. Ingimundson
útskrifaðist í rafunmagnsverk-
fræði af Manitoba-háskólanum
árið 1937 við hinn ágætasta orð-
stír; enda fóru saman hjá honum
frábært viijaþrek og farsælar
gáfur; að loknu námi, gekk hann
brátt í þjónustu rafiðnaðarins,
og hefir nú nýlega verið skipaður
varaforseti og aðalframkvæmd-
arstjóri við Welland Electric
Corporation í Welland, Ont. Mr.
Ingimundson er sonur Sigurðar
heitins Ingimundssonar fná Vest-
mannaeyjum og eftirlifandi konu
hans Jónínu. sem býr með dótt-
ur sinni í Winnipeg.
Mr. Ingimundson er kvæntur
Veru Anderson, dóttur þeirra
Mr. og Mrs. Th. Anderson, sem
lengi ibjuggu í Selkirk, en nú
eru búsett í Winnipeg.
Þau Mr. og Mrs. Ingimundson
komu nýlega í heimsókn hingað
til borgar ásamt þremur börnum
sínum.
f f f
MANNRÁN
Skæruliðar Gyðinga í Jerú-
salem, rændu þar nýverið tveim-
ur brezkum þegnum, dómara og
banlkastjóra, og hötfðu þá í vörzlu
í nokkra daga; var tiltæki þetta
að sögn, gert með það fyrir aug-
um, að koma í veg fyrir, að Gyð-
ingur einn, sem sakaður var um,
að ihafa verið valdur að sprengj-
um og ýmissum öðrum ófagnaði,
yrði hengdur; nú hefir þessum
tveimur mönnum verið sikilað
aftur, en máli Gyðingsins, sem
átti að hengja, verið vísað til
hæztaréttar.
f f f
SAMVINNA
ÓHUGSANLEG
Mr. Rupert Raimsay leiðtogi
Jhaldsflokksins í Saskatchewan,
gaf nýlega út yfirlýsingu þess
efnis, að samvinna við Liberala
iþar í fylkinu, væri með öllu úti-
ilokuð, vegna þrákelkni nokkurra
forráðamanna Liberalflokksins,
er þættist sjálfum sér nógir og
teldu sér vísan sigur í næstu
ifylkiskosningium.
f ♦ f
FÆR HEIMASTJÓRN
Utanrikisráðherra Breta, Mr.
Ernest Bevin, hefir gert þá yfir-
lýsingu í brezka þinginu, að
ráðuneytið hafi orðið á eitt sátt
um það, að veita Burmabúum
heimastjórn eins fljótt og því
verði komið við.
KAUPA HVEITI FRÁ
ARGENTÍNU
Frá London bárust þær fréttir
síðastliðínn föstudag, að birgða-
málaráðuneytið brezka hefði ný-
lega samið við stjórn Argentínu
um kaup á 18,000,000 mæla hveit-
is þaðan úr landi, er flutt skyldi
til Bretlands fyrri helming yfir-
standandi árs; andvirði hveitisins
greiða Bretar í peningum.
♦ ♦ ♦
SKAÐABÓT AKRÖFUR
Gríska stjórnin hefir sen.t að-
stoðar- utanrákisráðherrafundin-
um, sem um þessar mundir
stendur yfir í London erindis-
bréf, þar sem þess er krafist, að
fundurinn beiti sér fyrir um það,
að Grikkir fái greiddar sem
fyrst skaða'bótakröfur sínar á
hendur Þjóðverjum; peninga-
upplhæð sú, sem stjórnarvöld
Grikkja fer fram á, hefir enn
eigi að tful'lu verið ákveðin, en
þess er krafist, að þjóðin fái ár-
lega 500,000 smálestir kola frá
Þýzkalandi.
FÆRA SIG UPP Á
SKAFTIÐ
Það var fyrir no!kkru vitað, að
Pólland og Júgóslavía myndu
krefjast allmikilla fríðanda af
Austurríkismönnum og Þjóð-
verjum í stríðsskaðabætur, þótt
eigi hafi kröfur 1 þá'átt verið
formlega bornar fram, fyr en al-
veg nýverið. Pólverjar vilja fá
álitlega spildu af Þýzkalandi, á-
samt geisimiblu skaðabótafé, en
Júgóslavar krefjast 1,000 fer-
mílna af landareign Austurríkis,
auk greiðslu í peningum og vör-
um, er bæti upp það 11 biljón
dollara tjón, sem áætlað er að
þjóð þeirra hafi beðið af völdum
stríðsins.
Staðihæft er, að Rússar séu
þess fýsandi. að áminstar þjóðir
fái kröfum sínum framgengt, en
hitt jafnframt tálið víst, að Bret-
um og Frökkum þyki þær ganga
óþarflega. langt. Utanríkisráð-
l’nerra Austurríikismanna, Dr.
Karl Gruber, telur skaðaibóta-
kröfurnar á hendur þjóð sinni
slíka óhæfu, að hún nái ekki
nokkurri átt
♦ ffffff-f
Á HAUSTMIÐUM
Sæki eg ennþá undir kvöld
opinn stefja-mar,
bát þó slái bylgjan köld
og brjóti yfir far.
Ræ frá strönd þó Rán sé köld
og renni blint í sjó;
sætt er ennþá undir kvöld
ef aflavon er nóg.
Ef um beitu ei er greitt;
á öngulbera lóð
máske krækist eitt og eitt
eftirlegu-kóð.
Vindköld eru vasta-svið
og vetursetan þar;
út á Hymis afla-mið
eg ekki sæki mar.
Mílnatugi ness úr nánd
er naumast ræður sjór,
en þar er flatra fiska “gránd”
og flyðru dráttur stór.
Surnir árum ýfa dröfn
út á Vasta-sæ
unz að vatnar yfir höfn
og yfir heima-bæ.
Þeir eru djúpmiðs aflaklær
og eiga færi löng
og gripsælir þó gjálpi sær;
með gogginn undir röng.
Og sökkhlaðnir þeir sigla í höfn,
— um sveitir aflinn fer, —
og ódauðlega ást og nöfn
hjá alþjóð geta sér.
Inn á grunni eitthvað dregst
upp úr strauma-röst.
Hún er flestum fangatregst
firðsetan á Vöst.
Ef gæftaleysi glepur för
og gellur storma raust,
eg legg að strönd í lygna vör
og leiði knör í naust.
JÓN JÓNATANSSON.
SJÁLFSTÆÐIS- TVENNS KONAR
YFIRLÝSING VIÐHORF