Lögberg - 13.03.1947, Page 1
hraðskeyti til
LÖGBERGS
Gander, Newfoundland.
18. marz, 1947.
Um borð í flug-flaggskipinu
Reykjavík í fyrstu áætlunarferð
U1 íslands, eru General H. G.
Harris framkvæmdarstjóri Am-
erican Overseas Airlines, Hugh
S- Cummings, fulltrúi utanríkis-
fáðneytis Bandaríkjanna og frú.
Thor Thors sendihérra íslands
°S frú Ágústa. Aðalræðismaður
Helgi p. Briem, Grettir Jóhann-
son og Árni Helgason ræðis-
^enn. Gunnar Paulsson um-
boðsmaður; erindreka’r frá póst-
oiála og flugmálastjórn Banda-
rikjanna, og fjöldi blaðamanna.
Aðrir íslendingar Magnús Joch-
umsson og Georg Ostlund. Sam-
tals þrjátíu og fjórir fanþegar.
Áður en lagt var af stað, var
Hamreiddur miðdegisverður á
flugvellinum í Washington, og
köfð hátíðleg athöfn stjórnað af
General Harris. Thor Thors og
Cummings héldu ræður, en frú
Ágústa ákírði flugvélina Flagship
Heykjavík. Komum til Gander
klukkan hálf-ellefu í gærkvöld,
eftir rúmra fimm klukkutíma
flug frá New York. Búumst við
að lenda í Keflavík klukkan hálf-
tíu í fyrramálið. Aðbúnaður með
ugaetum og ferð hin ánægjuleg-
asta.
Johannson - Helgason.
♦ ♦ ♦
ÍSLENZK FLUGVÉL
FERST
Fjórir menn týna lífi
Samkvæmt skeyti frá Frétta-
stofu íslands á Reykjavík til Win-
nipeg Free Press, dagsettu þann
15. þ. m.. fórst þá um daginn und-
an norðvestur ströndum íslands,
íslenzk flugvél, með 'þeim hætti,
að hún steyptist í sjóinn; flug-
vélin sennilega eign Flugfélags
ts-ands, eftir skeytinu að dæma,
öafði átta manns innanborðs, og
fórust fjórir þeirra.
♦ ♦ ♦
Mælir með fjárveitingu
á miðvikudaginn í vikunni
sem leið, flutti Truman Banda-
ríkjaforseti harðorða ræðu í
sameinuðu þingi, þar sem hann
1 raun og veru krafðist þess, að
þingið veitti Grikkjum og Tyrkj-
um fjárhagslega aðstoð með það
ein'kum og sér í lagi fyrir augum,
að gera þessum þjóðum kleift,
að verjast áróðri og yfirgangi
russneskra kommúnista; með
hliðsjón af Grikklandi, fórust Mr.
Truman orð á þessa leið:
‘Ef til þess kæmi, að Grikkland
fapaði sjálfstæði sínu, myndi það
hafa óútreiknanleg áhrif til hins
verra á þær aðrar Evrópuþjóðir,
sem eru önnum kafnar, þrátt
fyrir al'ls konar andvíg öfl, að
halda við felsi sínu, og vinna að
því nótt sem nýtan dag, að kippa
því í lag, er ógnir síðasta stríðs
f*rðu úr skorðum. Mr. Truman
h®tti því við, að frjálst og full-
Veðja Tyrkland, væri engu síður
uauðsynlegt frelsisunnandi þjóð-
Urn, en Grikkland; þá mælti for-
seti og með því, að borgaralegir
hernaðarlegir sérfræðingar
a Handaríkjunum yrði sendir
H1 áminstra landa vegna óhjá-
semilegra öryggisráðstafana.
C. P. Paulson
Þorbjörg Paulson
Þau hjónin, Mr. og Mrs. C. P.
Paulson, á Gimli, áttu 60 ára
hjónabands afmæli, demants
brúðkaup, síðastliðinn sunnudag,
16. marz. Fullu nafni heita þau
Christian Pétursson Pau’son og
Þorbjörg Kernested. Bæði eru
þau fædd á íslandi og bæði lifðu
þau nokkuð af æsku sinni í Nýja
íslandi á landnámstíðinni. Þau
hafa dvalið á öðrum. stöðum,
meðal annars í Winnipeg, en
lengst hafa þau haft heimili í
Nýja íslandi
Lúterska safnaðankvenfélagið
“Framsókn”, sem Mrs. Paulson
stofnaði fyrir mörgum árum,
efndi til hátíðar þennan sunnu-
dag til heiðurs þeim hjónunum
á þessum afar merka degi þeirra.
Stóð félagið að öllu leyti straum
af þessu móti.
Dagurinn var yndis'legur. Sólin
baðaði útsýnið í dýrðlegu flóði
geisla sinna. Mr. og Mrs. Kelly
Sveinson, frá Winnipeg, óku í
nýjum bíl sínum til Gimli, þenn-
an dag, til að taka þátt í þessu
samsæti, og voru svo góð að
bjóða konunni minni og mér að
verða samferða. Með þeim voru
einnig þau hjónin Mr. og Mrs.
Gordon Paulson, sonur og
tengdadóttir demants brúðhjón-
anna. Ágætur akvegur, í góðu
ásigkomulagi jók skemtun ferða-
lagsins. Á Gimli höfðum við á-
nægjulegar ‘stundir á heimili
sóknarprestsiras, séra Skúla og
konu hans Sigríðar.
Samsætið var haldið á hinu
fagra heimili þeirra Paulsons
hjónanna, og hófst um kl. 3 e.h.
með stuttri guðsþjónustu, er
sóknarpresturinn stýrði. Brúð-
kaupssáimur var sunginn. Þá
las séra Skúli tvo stutta Biblíu-
kafla og séra Rúnólfur Marteins-
son flutti bæn. Séra Skúli flutti
þá demantsbrúðhjónunum vel
viðeigandi ávarp. Séra Rúnólfur
bætti þá við nokkrum orðum,
þakkaði þeim fyrir frábæran
stuðning er þau höfðu veitt hon-
um og kristindómsstarfi hans,
er hann var prestur í Nýja ís-
landi fyrstu 10 árin af öldinni.
Hann mintist ennfremur á þakk-
lætið, sem fylti sáJir þeirra fyrir
ómetanlega dýrmæta blessun
Drotins sextíu árin öll.
Næst las séra Skúli heillaóska-
skeyti, og gat hann þess, að þau
væru frá fólki í öllum stéttum, á
ýmsum stöðum. Kveðjurnar
voru frá Mr og Mrs. Kristján
Tómasson, að Hekla, Man.; Mr.
og Mrs. J. B. Skaptason, Winni-
peg; Mr. og Mrs. Edward John-
son, í Árborg; Gordon, dóttur-
syni þeirra og Evelyn Ingaldson,
og frá Tryggva, öðrum dóttur-
syni, og -Normu Ingaldson.
Svo kom ágætt bréf, með virðu-
iegum orðum um Íslendinga, frá
fylkisstjóranum R. F. McWil-
liams og frú hans. Síðast var
lesið samfagnaðarskeyti með árn-
aðaróskum frá konungi vorum,
George VI. og drotningu hans
Elizabeth.
Má vera að fleiri samfagnaðar-
skeyti hafi verið lesin.
Viðstaddir voru fullkomlega 60
manns. Þar var dóttir þeirra,
Mrs. Violet Ingaldson, ekkja
Ingimars þingmanns Ingaldson-
ar, ásamt börnum sínum, Chris-
tian, Valdínu og Andreu ásamt
mönnum þeirra, og áður voru
þau nefnd, Gordon, sonur þeirra,
og Magnea Paulson, tengdadóttir.
Mikið blómaskraut var í stof-
unum. Þar voru fagrar rósir frá
kvenfélaginu í Mikóey í viðbót
við unaðslegar rósir, sem Fram-
sókn lagði til, og svo blóm frá
fleiri gefendum.
Ekki var fæðuskortur á Gimli.
Veizlukostur var mikill og góð-
ur. Á aðalborðinu var stór og
fagurlega skreytt brúðarkaka.
Fyrir miðju borði sátu brúðhjón-
in, en við enda þess sátu konurn-
ar sem skenktu kaffið: Mrs.
Sigurgeirsson og Mrs. Scribner.
Dr. Scribner tók myndir af
brúðhjónunum og börnum þeirra.
Samsætið var að öllu leyti hið
prýðilegasta, alt fór vel, og menn
höfðu mikla skemtun af því að
ræða við margra ára vini.
Paulsons heimilið hefir ávalt
verið í fremstu röð heimila á
Gimli og þar ríkt gestrisni og
glaðværð.
Þau hjónin hafa bæði unnið
mannfélaginu til heilla og kirkj-
unni til eflingar. Áratug eftir
áratug hefir Mrs. Paulson unnið
með miklum dugnaði { sunnu-
dagasköla, kvenfélagi og söfnuði
mörg ár var hún organisti safn-
aðarins. Oft hefir hún setið á
kirkjuþingi.
Um athafnalíf Mr. Paulson’s
verður síðar birt sérstök rit-
gjörð.
Rúnólfur Marteinsson.
______________ •
Lætur af sýslan vegna
áróðurs kommúnista
J. A. Sullivan, forseti sjó-
mannasambandsins í Canada,
hefir látið af þeirri sýslan, að því
er honum sagðist frá í yfirlýs-
ingu til blaðanna, að við áróður
kommúnista innan samtaka
þeirra, er hann veitti forustu,
væri eigi lengur unandi, því alt
slí'kt væri gert á kostnað verka-
manna sjálfra, og spilti vinnufrið
þeirra og afkornu; afsögn Mr.
Sullivans og ákærur hans á hend-
ur kommúnistum, hefir vakið
geisi athygli um 'land alt, og það
því fremur, sem enginn veit hvar
hann nú er niðurkominn, því í
áminstri yfirlýsingu gaf hann
Iþað í skyn, að hann óttaðist um
að setið yrði um líf sitt.
Klögumálin ganga á víxl
Á utanríkisráðherra fundinum
í Moskvu hefir oltið á ýmsu und-
anfarna dagA og klögumálin
gengið á víxl eins og ’sagt var í
vísunni forðum. Brezki utan-
ríkisráðherrann, Mr. Bevin, bar
Rússum það á brýn, að þeir hefðu
gengið á gerða samninga, og í
ýmsum tilfellum virt að vettugi
Potsdam-samþyktirnar, og þá
einkum lútandi að því, hve margt
þýzkra fanga þeir hefðu í vörzlu
Prússlandi var Molotov harla fá-
orðum; utanríkisráðh. Frakka,
Bidault, taldi það vera megin
áhugamál sitt að gera Þýzkaland
ómyndugt til árásarhernaðar um
aldur og æfi, en hinn nýi utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna,
utan Þýzkalands; orð hefir leikið
á, að tala slíkra fanga myndi
nema nálega Iþremur miljónum;
þá vildi Mr. Bevin jafnframt fá
nokkura vitneskju um það, hvað
væri til r því, að Rússar hefði
þegar s'.egið eign sinni á verk-
smiðjur og önnur mikilvæg fríð-
indi í Austur Prúsislandi; um
fyrra atriðið kvað Molotov þann-
ig haga til, að upplýsingar varð-
andi fangafjöldann í vörzlu
þeirra, gætu þá fyrst komið til
greina, er Bretar og Bandaríkja-
menn lýstu sig fúsa til hins sama;
en um eignarnámið í Austur
Þessi fjögra kynslóða mynd
Sturlaugson-fj öls'kyldunnar var
tekin í desember mánuði síðast-
liðnum, er fjölskyldan safnaðist
saman; á myndinni getur að líta
Mrs. Asbjörn Sturlaugson, Victor
son hennar, sonardóttur hennar
Mrs. Karl A. Sederholm, jr., og
sonar-dótturson hennar, Karl A.
Sederholm III.
Þessar fjórar kynslóðir söfn-
uðust saman í áminstum mánuði
á heimili þeirra Mr. og Mrs.
Victor Sturlaugson í grend við
bæinn Langdon í North Dakota.
Foringi fjölskyldunnar er Mrs.
Ásbjörn Sturlaugson, fædd á ís-
landi og ellefu barna móðir; af
þeim eru þessi á lífi: Victor og
Sig, búsettir í Langdon, Jerry
að Snohmish, Wash., Laura
Brownson að Whitefish, Mon-
tana, Bob að Backoo, N. Dak.;
John í Hensel, N. Dak.; Steve í
Madison, Wisc., Una Thorfinn-
son 'í Rugby, Sigrid Hanson í
Olympia, Wash., og William að
Sheldon; elzti sonurinn, Jónas,
lézt árið 1928.
Una Leifur-Ásbjörnsson, var
fædd á Stokkseyri í Árnessýslu,
22. apríl 1880, og var því ekki
nema 66 ára, er hún varð langa
langamma; foreldrar hennar
voru Vernharður Jónsson og
Guðrún Gísladóttir; hún fluttist
til Bandaríkjanna með móður
sinni, sem þar lézt ekkja, árið
1883, og dvaldist fyrst hjá bróður
sínum, I. V. Leifur, að Glasston,
N. Dak.; hún vann fyrir sér í því
bygðarlagi, unz hún giftist Ás-
birni Sturlaugssyni 31. október,
í FREMSTU RÖÐ
Boróthy Vemon
Þessi stúlka, hefir í þriðja sinn
unnið fyrstu verðlaun sem ein-
söngvari í hljómlistarsamkepni
Kiwanis-félagsins í Toronto; hún
er aðeins 9 ára að aldri, og kepti
í þeim flokki stúlkna, sem eru
innan við 10 ára aldur; móðir
hennar er söngkonan góðkunna,
Rósa Hermannson-Vernon.
krafðist þess, að Rússar gengi
inn á að skipuleggja Þýzkaland
sem samstæða, hagsmunalega
heild, því án þess skapaðist þar
ólæknandi öngþveiti.
1887, og risu þau bú í Svoldar-
bygðinni; farnaðist þeim hið
bezta. Ásbjörn maður hennar
lézt í júlímánuði árið 1940. Fjór-
ar systur Mrs. Sturlaugson og
fimrn bræður hafa safnast til
feðra sinna.
Mrs. Sturlaugson hefir jafnan
tekið virkan þátt í málefnum
bygðarlaga sinna; er meðlimur
Degree of Honor reglunnar á
Mountain og lífstíðarfélagi lút-
erska safnaðarins í Svoldarbygð;
eftir lát hins ágæta manns síns,
hefir Mirs. Sturlaugson dvalið
hjá börnum sínum til skiftis.
Victor Sturlaugson, sem nú er
45 ára að aldri, er fulltrúi ann-
arar knyslóðar áminstrar fjöl-
skyldu; hann hefir síðan 1925
verið forstjóri við tilraunabú
ríkisstjórnarinnar í grernd við
Langdon, og leyst þann starfa af
hendi með frábærri rögg og
samvizkusemi; að lokinni undir-
búningsmentun í heimábygð
sinni, gekk Victor á landbúnað-
arháskólann í Fargo, og útskrif-
aðist þaðan með hinum ágætasta
vitnsiburði; hann er kvæntur
Aldísi Jobnson frá Svold og eiga
þau 9 börn. Þriðja kynslóðin er
dóttir þeirra Victors og Aldísar,
Mrs. Karl A. Sederholm, jr., í
Saí Francisco sem er 21 árs að
aldi, en sú fjórða, sonur hennar,
Karl A. Sederholm III, sem er
fæddur 27. ágúst, 1946.
Sturlaugson fjölskyldan er
vinmörg í Pembinahéraði, og hún
nýtur allsstaðar virðingar og
trausbs, hvar stm greinar hennar
hvíslast út í þjóðfélagið.
UMRÆÐUM UM STJÓRN-
ARBOÐSKAPINN LOKIÐ
Vantraustsyfirlýsing á
hendur Kingstjórninni
feld
Á miðvikudagskvöldið í vik-
unni, sem leið, lauk umræðum í
sambandsiþinginu um stjórnar-
boðskapinn; vantraustsyfirlýsing
á hendur stjórninni, er aftur-
haldsmenn, með Mr. Bracken í
fararbroddi, og C.C.F.-sinnar,
undir forustu Mr. Coldwells,
stóðu að, var feld með álitlegu
af’i atkvæða; stjórninni veittu
stuðning allir þingmenn Liberal-
flokksins, utanflokkaþingmenn,
og Social Credit. þingfylkingin
frá Alberta; báru úrslitin þess
glögg merki, hve ákveðins trausts
stjórnin nýtur af hálfu meiri-
hluta þings.
> -f -f
Fylkisútgjöld hækka
Hon. Stuart S. Garson, forsæt-
isráðherra Manitobafylkis, og
jafnframt fylkis féhirðir, lagði
fram í þinginu síðastliðinn fimtu-
dag, fjárhagsáætlun fyrir fjár-
hagsárið, sem hefst þann 1. maí
næstkomandi; áætluð útgjöld
nema 29 miljónum dollara, og
verða 9 miljónum hærri en í
fyrra; fjárveiting sú, er gengur til
ráðuneytis opinberra verka, er
áætluð hátt á sjöundu miljón
dollara, og hækkar sú upphæð
nokkuð yfir fjórar miljónir frá
því á árinu á undan; útgjöld
vegna ellistyrks hækka úr $1,-
075,900 upp í $1,396,650. Þrátt
fyrir hina miklu, áætluðu út-
gjalidahækkun, er gert ráð fyrir
ríflegum tekjuafgangi á fjárhags-
árinu.
-f -f -f
Herskylda á Bretlandi
Hermálaráðimeytið brezka hef-
ir lýst yfir iþví, að herskylda í
landinu viðhaldist að minsta
kosti til ’ársloka 1954. Fram að
þeim tíma verða allir brezkir
karlmenn frá 18 til 26 ára, að
sækja reglubundnar heræfingar
nokkurn' hluta árs.
-f -f -f
GEISILEGT SAUÐFJÁR-
TJÓN
Samkvæmt fregnum frá Lon-
don þann 12. þ. m., hefir um
1,000,000 sauðfjár í Englandi far-
ist í illviðrum síðari hluta yfir-
standandi vetrar, auk þess sem
unglambadauði hefir verið þar
meiri, en dæmi voru áður til.
-f -f -f
Sönglagasamkeppni
Fyrir nokkru síðan eru kunn
úrslit í Sönglagasamkeppni Þjóð-
kórsins.
Sigurvegarinn ungfrú Björg
Björnsdóttir frá Lóni í Keldu-
hverfi hlaut í verðlaun 1000 kr.
Hún kunni rúmlega 1300 sönglög.
Annar í kepninni varð Friðrik
Hjartar skólastjóri á Akureyri,
með tæplega 1300 sönglög.
Dr. Páll ísólfsson, stjórnandi
Þjóðkórsins, boðaði til keppni
þessarar árið 1943. Þátttakendur
voru yfir 30 að tölu. Þeir kunnu
frá 300 til rúmlega 1300 sönglög.
—Mbl. 11. febr.