Lögberg - 13.03.1947, Qupperneq 2
L.ÖGBERG, FIMTUDAGINN 20. MARZ, 1947
Vekjandi bók og göfgandi
Eftir Prófessor Richard Beck
Einræðis-frjálslyndi
Hugsjónir og hetjulíf. Eftir
Pétur Sigurðsson. Reykja-
vík, Bókaverzlun ísafold-
arprensmiðju. 1946. — 264
bls.
Þessi nýja bók Péturs Sigurðs-
sonar erindreka, Hugsjónir og
hetjulíf, er hvorttveggja í senn
vekjandi og göfgandi, eins og
sjálft heiti hennar bendir til. En
í formálanum gerir höfundur þá
grein fyrir henni, að hún sé
erindasafn, “sem ekki hefir verið
skrifað af neinni bókagerðar-
ástríðu höfundarins, heldur er
það til orðið á þeim stundum, sem
löngunin til þess að tjá sig hefir
orðið yfirsterkari þeirri hlé-
drægni, sem þarf til þess að þegja
yfir því, sem hugstæðast er.”
Jafnframt getur hann þess, að
erindin hafi verið samin, annað-
hvort til flutnings í útvarp og
við önnur tækifæri, eða þá ein-
ungis til hugarhægðar höfimdin-
um sjálfum. Hafa og eigi færri
en tíu erindanna, og mörg hin
allra merkustu, verið flutt í ís-
lenzka ríkisútvarpið.
Þessi erindi bera því vitni, sem
raunar var löngu áður vitað af
öllum, er til þekktu, að Pétur Sig-
urðsson er prýðilega ritfær mað-
ur og vel máli farinn að sama
skapi. Það er bæði mælska og
andagift í erindum eins og “Hug-
sjónir og hetjulíf”, “Island”, og
“Sólarsýn”, að nokkur dæmi séu
nefnd. Hitt varðar þó miklu
meiru, að þar lýsir sér í ríkum
mæli sú bjartsýna hugsjónaást og
hinn ríki umbótahugur, samfara
djúpstæðri og fangvíðri guðstrú,
sem svipmerkir þessi erindi um
annað fram og höfund þeirra, og
hjartahitinn er ætíð auðfundinn
að baki orðanna. Þeim ummæl-
um til staðfestingar skal hér grip-
ið niður í inngangserindi bókar-
innar, sem hún er samnefnd, og
fyr var talið:
‘íDavíð Livingstone sá í anda
upp renna'bjarma morgunroðans
yfir hinni dimmu Afríku, og
hann gerðist líka hinn mikli ljós-
beri þeirrar heimsálfu.
Florence Nightingale átti mikla
hugsjón og varð hin bjarta
stjarna hjúkrunarmálanna,
brautryðjandi mikillar siðbótar,
hetjan í hinu fríða 'liði hjúikrun-
arkvenna allra alda, — konan
með lampann.
Edison sá oft hugsjónir, er
héldu honum vakandi og matar-
lausum sólarhiring eftir sólar-
hring. Hann reis einna hæst
meðal hetja uppfinninga- og
tæknitöfranna. Hann gaf heim-
inum mikið ljós.
Það eru ekki víkingar og her-
konungar, sem skapa mannkyns-
sögu og menningu, heldur hug-
sjónamenn, spámenn, skáld, lista-
menn og spekingar.
Mesta hetjan á meðal manna
átti glæsilegustu hugsjónina.
Kristur sá í anda týndan
heim, hei'lt mannkyn ummyndast
frá dýrð til dýrðar. Hetjudáð
hans var í samræmi við hugsjón
hans. Mesta afrekið er ekki að
reiða til höggs gegn steyttum
hnefa og ráðast vopnum búinn
gegn óvini. Sá sem stjórnar geði
sínu, er betri en sá, er vinnur
borgir, segir spakmælið. Það
þarf meiri þroska, meiri karl-
mensku og hetjuhug til þess að
standa hljóður og rólegur and-
spænis lognum sakargiftum, háði
og spotti, misþyrmingum og fúl-
mannlegri framkomu, og hafa þó
góðan málstað og getu að verja
hann, en að reiða til höggs gegn
andstæðingnum.-------
Ríki þeirra hetja, sem slíka
sigra vinna, er ekki “af þessum
heimi”. Þeir lifa í hinum bjarta
og volduga heimi hugsjóna sinna.
Þess vegna syngja þeir fjötraðir
í fangelsum, ganga hugrakkir á
bálið, hræðast ekki grimd villi-
dýra, ekki kross né kvalir. —
Stefán sá himnana opna, er menn
voru að grýta hann, og ásjóna
hans ljómaði “sem engils ásjona.”
Með manninum býr slík orka,
sem enginn þekkir. En óteljandi
atburðir, fyr og síðar, hafa sýnt
og sannað, að þær orkulindir eru
ómælanlegar og ótæmandi. Oft-
ast nota menn aðeins örlítið brot
slíkra krafta, en stundum leysa
viss atvik meira og minna orku-
magn úr læðingi En hvar eru
takmörkin? Þau þekkir enginn.
Sannasta ful'lyrðingin er þessi:
“Alt getur sá sem trúna hefir”.
Sú trú, sem hér er átt við, er ekki
átrúnaður. Nei, það er trúin
sjálf — bjartsýnin, vissan, örugg-
leikinn, hugsjónin og trúin á
möguleikánn.”
Hinu fagra og efnismikla er-
indi sínu “Sólarsýn” lýkur höf-
undur með þessum orðum:
“Mennirnir þurfa að horfa mikið
til himins og verða a%iars heims
hugar og andlega sinnaðir menn;
þeir þurfa að horfa til sólar og
verða ljóssins börn, horfa til frið-
arhöfðingjans og læra af hoij-
um að semja frið á jörðu — horfa
til Guðs og verða guðsbörn.”
Síðan fjal'Ia mörg erindi um
hugsjónamenn og hetjur á ýms-
um sviðum, er sýndu ómótmæl-
anlega með lífi sínu og starfi ó-
rjúfanlegt samband hugsjóna og
hetjulífs, hugsjónaástar og fram-
sóknar. Hér segir frá Keir
Hardie, hinum ótrauða og mikil-
hæfa foringja enska verkamanna
flokksins, .hinum athafnamikla
mannvini Sir Wilfred Grenfell',
kirkjuleiðtoganum áhrifamikla
John Wesley og hinum svip-
mikla andans manni og rithöf-
undi Thomas Carlyle. Öll eru
erindi þessi glögg og skilmerki-
lega samin, og vissulega er það
hollur lestur að kynnast slíkum
aðalsmönnum andans og fylgja
þeim í spor í baráttu þeirra fyrir
umbóta-hugsjónum þeirra, klífa
með þeim marga Illubrekku á
leiðinni upp á tind andans þroska
og sigurvinninga í þágu menn-
ingarinnar. Réttilega leggur höf-
unru áherzlu á það. hversu mik-
ilvægt það sé að menn “tengist
fast stórum sálum”, og vitnar
hann í erindi sínu um Carlyle til
markvissra orða í kvæði dr. S. J.
Jóhannessonar “Vinaval”:
“Þér ungu vinir, vonir þessa
lands,
í vinakjöri takið skyn til ráða,
en forðist svipi stormi og straumi
háða,
en stórum sálum tengist fast. —
Til dáða
þær knýja fram með svipu sann-
leikans.”
0
Þá hefir höfundur auðsjáan-
lega, og að verðugu, sérstakar
mætur á hinum víðfræga kenni-
manni, og áhrifamanni í amerísk-
um kirkjumálum, dr. Harry
Emerson Fosdick, því að um
hann og kenningar hans fjalla
tvö erindi, “Harry Emerson Fos-
dick og hætta kirkjunnar” og
“Samkeppni tækni og trúar”. En
erindi þessi eru að miklu leyti út-
drættir og þýðingar úr tveim
merkisræðum þessa áhrifamikla
Drédikara, og bera talandi vott
víðsýni hans og djúpskygni,
enda fer höfundur þeim orðum
um hann, að hann sé einn þeirra
skyggnu manna, sem sjái ýmis-
egt á undan öðrum og gnæfi
hærra en fjöldinn. Undir það
mimu flestir þeir fúslega taka,
sem hlýtt hafa á dr. Fosdick í út-
varpi eða úr prédikunarstól, eða
esið hafa prédikanir hans. Þakk-
arvert er það þess vegna, að
cynna Islendingum víðsýnan og
tímabæran boðskap hans.
En jafnframt því, sem Pétur
Sigurðsson heldur hátt á lofti
logandi blysi hugsjónaástar og
ojargfastrar framtíðartrúar í
Tillög í stofnunarsjóð hins
fyrirhugaða íslenzka elli-
heimilis í Vancouver, B.C.
’ Magnea Sigurdson, Vancouver,
B.C., $5.00; Mr. og Mrs. Gunn-
laugur Holm, Steveston, B.C.,
$100.00; Mr. og Mrs. J. T. Gísla-
son, Morden, Man., $10.00; Mrs.
S. Lindell, Victoria, B.C., $2.00;
Mr. og Mrs. Gísli Jónsson, Os-
land, B.C., $25.00; íslenzka kven-
félagið “Vonin”, Markervil'le, Al-
berta, given in memory of our
Icelandic pioneer women in the
Markerville district, $50.00; Mr.
and Mrs. Kristján Einarson, Os-
land, B.C., gefið í minningu um
Hallvarð Ólafson, dáinn 1914, og
Þórhildi Ólafson, dáin 1931,
$20.00; Mr. and Mrs. Albert Bon-
nett, Vancouver, B.C., $10.00;
Vinveittur í Dawson Creek, B.C.,
$3.00; Mr. and Mrs. P. Bjarnason,
Vancouver, B.C., $10Ó.()0; Islend-
ingafélagið “Ströndin” í Van-
couver, B.C., $291.35; Miss Mar-
garet Peterson. Vancouver, B.C.,
$10.00; Mrs. Guðrún Grímson,
Vancouver, B.C., gefið í minn-
ingu um minn eiginmann Svein
Grímson, dáinn 8. júlí 1940, og
son Albert Grímson, sem fél'l 1
orustu, 26. nóv., 1943, $100.00;
Mr. and Mrs. John B. Johnson,
Churchbridge, Sask., gefið í
minningu um Einar og Ingibjörgu
Lútsdóttur Bjarnason, sem lengi
lifðu í Vollar, Sask., nú bæði dá-
in og þar jarðsett, $50.00; Magnús
Skaftfell, Vancouver, B.C., $25,00;
B. Hanson, Vancouver, B.C.,
$2.00; G. Sveinbjörnson, Van-
couver, B.C., $5.00; Helgi C. Hall-
son, New Westminster, B.C.,
$25.00; S. Guðmundson, Vancou-
ver, B.C., $10.00; Dr. and Mrs.
P. B. Guttormson, Vancouver,
B.C., $50.00.
Með þakklæti fyrír hönd
nefn^arinnar,
P. B. Guttormsson, féh.
1457 West 26th Ave.
Vancouver, B.C.
þessum athyglisverðu erindum
sínum, deilir hann djarflega á
það, sem honum þykir miður fara
í lífi og menningu þjóðar sinnar
og mannkynsins í hei'ld sinni;
hann flettir vægðarlaust ofan af
þjóðlífsveilunum og eggjar menn
lögeggjan til umbóta. Þetta
kemur eftirminnilega fram í er-
indum sem “Sællífismenn og sig-
urvegarar”, “Sagan um manninn
og heim hans,” “Framtíðarmað-
urinn og heimur hans” og “Ekki
lambahjörð, en úlfastóð.”
Hvort sem menn eru höfund-
inum sammála í málaflutningi
hans eða eigi í öllum greinum,
verður ekki annað með sanni
sagt, en að þar sé að verki ein-
lægur, áhugasamur og djarfyrtur
hugsjóna- og umbótamaður, sem
ber velferð þjóðar sinnar og
mannkynsins alls fyrir brjósti, og
flytur þau hugðarmál sín eigi
ósjaldan af spámannlegum krafti.
Séra Sigurbjörn Einarsson dósent
hafði því fyllilega rétt að mæla,
er hann komst svo að orði um
bók þessa nýlega í ritdómi í Al-
þýðublaðinu: “Það er hugmikil'l
mannvinur, sem pennanum stýr-
ir, iknúinn af þrá til þess að bæta,
fegra, farsæla mannlífið.”
Isafoldarprentsmiðja hefir
vandað til frágangs á ritinu, bæði
um pappír og prentun, og það er
prýtt mörgum mjög góðum
myndum, en þess sakna eg, að
efnisyfirlit fylgir eigi.
Hvað sem þeim smámunum líð-
ur, þá er það fullvíst, að bókin á
erindi til allra þeirra, sem láta
sig þjóðfélags- og menningarmál
nokkuru skifta, og einhvern
hinna, taki þeir hana í hönd sér
til lesturs, má ætla að hún veki
til umhugsunar um þau mál og
verði þeim áttaviti í þeim efn-
um.
Eftir SIDNEY HOOK
prófessor í heimspeki við
New York háskólann.■
•
Við erum umkringd af þeim
þokukenningum að á Rússlandi
ríki lýðræði, sem sé annarar teg-
undar, en vort, hinna vestrænu
þjóða.
Það er með öllu fráleitt að
hugsa sér, að með því að afsala
sér, eða snúa bakinu við pólitísku
lýðræði, að þá geti menn öðlast
lýðræði. sem sé annarar tegund-
ar. En samt var það tálmynd á
meðal margra, sem gengu Marx-
ista-'kenningunni á vald — eink-
um Lenin.
Henry Wallace, sem er gagn
hugsandi og hugmyndaríkur elsk-
hugi einræðis liberalanna er leik-
inn í því, að bera saman lýðræðis-
hugsjónir Bandaríkjamanna, við
iðnaðar-lýðræðið sovíetiska.
Þegar sjálfræðisrétturinn er
burtu numinn og lífstryggingin
verður að þrældómi, verkefnin
að þvingunariðn, einveran að
feluleik, heimilin að fyrirskipuð-
um fæðingar-stíum, skólarnir að
ríkisvarnarmúrum, mannfélags-
vitið að ákveðinni trúleysisstöðu,
snildin og andleg þróun að móti
ti'l að steypa í sameiginlega hugs-
anir allra, og mennirnir gerðir að
ósjálfstæðum þegnum. Sökum
þess, að eg er fyrst lýðræðissinni
og þar næst sósíalisti í þeirri
meiningu, að fullvissa mín um
ágæti lýðræðisinshugsjónarinnar
sjálfrar vegur meira í huga mér,
en aðferðir til þess að hrinda
henni í framkvæmd. Eg álít
þess vegna, að við verðum að
leggja aðaláherzluna á lýðræðis-
hugsjónina sjálfa, frekar en hag-
kvæmar framkvæmdir hennar og
þær mannfélagsbreytingar og
takmarkanir, sem hún gefur til-
efni til, sem meinar að sósíalist-
isku breytingarnar verða að
koma smátt og smátt og í fullu
samræmi við lýðræðishugsjón-
ina.
Samband okkar við aðrar
þjóðir.
Það, sem mönnum þeim, sem
með utanríkismál okkar iara, get-
ur ekki skilist, er, að kapitaliska
fyrirkomulagið í öðrum löndum
veraldarinnar er dautt, eða að
minsta kosti að dauða komið, og
verður ekki endurreist, og að það
er ekki hægt að vinna hylli fólks
í öðrum löndum til handa ríkis-
valdsstefnu Bandaríkjamanna,
sem hugsa meira um hagkvæma
verzlunarreikninga en vellíðan
fjöldans.
Eina tækifærið til þess að efla
sameiginlega þjóðamótspymu
gegn einræðinu, er að þroska og
efla lýðræðisstefnuna á borð við
Stalins fjöl-þjóða bolsevismann,
sem hefir það að markmiði að
útiloka stríð og varna því, að
Rússar nái að leggja þrælahelsi
á íbúa heimsins alla, sem er
stefna þeirra nú.
Ef að stjórnmálamenn vest-
‘rænu þjóðanna geta ekki ski'lið,
að fyrirkomulag mannfélagsins í
heiminum getur ekki til lengdar
haldist með því að helmingur
þess sé frjáls, en hinn helming-
urinn þrælar, þá skilja Rússar
það, og þeir hafa hafið ákveðnari
áróðursstefnu nú en nokkru sinni
áður, síðan að “Comintern” var
stofnuð til þess að ná alheims
yfirráðum. Og ófullkomleiki og
ranglæti okkar eigin lýðræðis
gefur þeim byr undir báða vængi.
Hér heima.
Þrátt fyrir það, þó einræðis-
liberalamir séu frekar fámennir,
þá hafa þeir svo eitrað andrúms-
loftið hér í Ameríku, að erfitt er
orðið að aðgreina vini og óvini
hins sögulega lýðræðis. . . . Það
er spaugilegt, að þó að kommún-
istunum hafi tekist að klófesta
aðal embættisvaldið innan verka-
mannahreyfingarinnar, þá hefir
mikill meirihluti verkalýðsins
komist hjá því að verða heiilaður
af sjónhverfinga áróðri sóvíet-
anna.
Þann fjölmennisstyrk, sem
kommúnistarnir eiga yfir að ráða
í Bandaríkjunum, er að finna á
meðal hinna svo kölluðu vits-
munamanna. Þann áróður er að
finna í dá'lkum dagblaðanna, í
ræðum þeirra, sem í útvörpin
tala, á meðal útgefenda bóka og
tímarita og annara sambands-
tækja, ásamt mentunarstofnan-
anna. Þegar alt þetta menning-
arvald legst á éitt, þá getur það
fjötrað almenningsálitið, eins og
því tókst að gjöra í sambandi við
Mihailovich og Chiang-Kai-Shek.
Þessir ólæknandi moðheilar,
sem í hvert sinn og Stalinisminn
er ávítaður, þjóta upp til handa
og fóta og hrópa, að hann sé sízt
verri en afturhaldið hjá Banda-
ríkjamönnum. Það, að viðhorf,
er bæta má með djarfri lýðræðis-
framsókn, sé eins skaðlegt og ó-
hæft eins og það viðhorf, sem
ekki er hið minsta tækifæri til
að hafa slík áhrif, verður að á-
iítast, eða þeir, sem þann veg eru
sinnaðir, sem óafvitandi liðs-
menn Stalinismans. . . . ÞeLr eru
ávalt reiðubúnir að taka hönd-
um saman við Stalinismann, þeg-
ar hann ræðst að lýðræðisgöllum
hinna vestrænu þjóða. Þeir þver-
neita að ljá sanngjörnum að-
finslum við einræðisstjórnarsikip-
anir Rússa eyra. Þeir trúa því, að
lýðræðisstefnan kapitaliska, eins
og hún er bezt, sé ákjósanlegri en
einræðið rússneska, þegar það
sé sem verst.
Eg lít svo á, að hin daglega við-
leitni til þess að bæta kjör og
mannfélagshei'll, sé þýðingar-
meira en snögg algjör stefnu-
breyting. Mér sýnist óráðlegt að
stofna hægfara breytingum í
háska til þess að reyna að koma á
einhliða róttækri bylting. . . . Að
taka ósigrum með jafnaðargeði,
en berjast af lífs og sálar kröft-
um fyrir þeim fegurstu tækifær-
um, og hugsjónum, sem menn
eiga, er að lifa heilbrigðu at-
hafnalífi.
Að sigrast á erfiðleikum, en
láta í staðinn verðmæti síns eig-
in manndóms, er heigulsháttur á
hæsta stigi — og gjörir aldrei
gagn. —J. J. B.
Bókin fæst í bókabúð Davíðs
Björnssonar.
$25,000.°"
i peninga verðlaunum
* —"fTæÖthlunum
l2°BlCC^mHVERs
Annað furðulegt tækifæri til þess að vinna STÓR PENINGA
VERÐLAUN, h'ljóta mikla viðurkenningu og verða frægur
fyrir malt-'bygg rækt. Það er á valdi yðar, að gera Canada
að forgönguþjóð, varðandi malt-byggs rækt. Sérhver bóndi
í viðurkendum malt-byggs héröðum í Canada, getur kept um
þessi PENINGARVERÐLAUN og fræsúthlutanina. Hefjist
nú þegar handa um byggrækt í ár. Fáið fræið nú þegar og
verið viðbúnir fyrir
HINA AÐRA ÁRLEGU
Alþjóðar byggsamkepni
FYRIR ATBEINA ÖLGERÐAR OG
M ALTIÐN AÐ ARIN S 1 CANADA
Fyrir bændur
í byggræktarhérörðum Canada
VESTUR CANADA UMDÆMI
Fyrir alla bændur í malt-byggs héröðum í Manitoba,
Saskatchewan, Alberta og Peace River byggræktar-
sveitunum í British Columbia.
PENINGAVERÐLAUN ALLS — $18,750.00
Að viðbættum 120 úthlutunum
10 mæla skrásetts fræs
(Undrunarvert nýtt Montcalm bygg)
FYRSTU VERÐLAUN - $1000.00
ÖNNUR VERÐLAUN $500.00
3. Verðlaun—$300 —4. Verðlaun—$200
1 ofangreindu felst millifylkja verðlaun
VIÐBÓTAR PENINGAVERÐLAUN
12 fylkisverðlaun - 120 umdæmaverðlaun
og
120 — 10 mæla fræsúthlutanir
Austur Canada umdæmi — $6,250 verðlaun a'lls
CANADA ÞARF MEIRA AF BÆTTU BYGGI
Með því að stuðla að endurbættri ræktun maltbyggs, vinnur
malt- og ölgerðariðnaðurinn eigi aðeins að því að fullnægja
þörfum heima fyrir, heldur og að því, að ryðja Canada á ný
til rúms á byggmarkaði heimsins. Vegna þess hve malt-
bygg er til margra hluta nauðsynlegt, til heimilisnota, iðnað-
ar, fæðu, lyfja og margs annars, hefir það mikilvæga þýðingu
fyrir iðnaðar- og hagsmunakerfi Canada.
..—1946 KEPPENDUR VEITI ATHYGLI
Listi yfir vinnendur í Alþjóðar-byggsamkepninni 1946
verður birtur að lokinni útbýtingu millifylkjaverðlauna,
á Manitoba vetrarsýningunni í Brandon, Manitoba
þann 31. marz.
ALÞJ0ÐAR BYGGSAMKEPNISNEFNDIN
Fáið fullar upplýsingar og eyðublöð
hjá næsta
BÚNAÐARMÁLA UMBOÐSMANNI
eða KORNHLÖÐU FORSTJÓRA