Lögberg - 03.04.1947, Síða 1
PHONE 21 374
Aot
isasfc
4l>tc4
Ciea*16
I^u,vd^OB A Complete
''lleaning
I' istitution
60- argangur
WINNIPEG, FIMTUDAGINN 3. APRÍL, 1947
NÚMER 14
Hekla bregður blundi
eftir fullrar aldar værð
Uni síðustu helgi gerðust
tíðindi á íslandi, að
^ekla tók að gjósa eftir
jddarværð, og þeytti geisi-
náum strókum ösku í loft
UPP; er mælt, þótt fregnir
séu að vísu óljósar, að ösk-
unnar hafi orðið var í Dan-
j^Örku og víða um vestur-
nliita Norðurálfunnar;
iarðhitar höfðu verið mikl-
V" á íslandi um langt skeið
aður en til eldgossins kom,
°S munu umbrotin því í
Jiaun og veru ekki hafa
komið með Cdu óvart; svo
y°ru, að sögn, öskumekk-
lrnir þykkir yfir Reykjavík,
nð hádagur virtist sem hel-
uinim nótt; óttast er um, að
sPell hafi orðið mikil í land-
lnu af völdum þessa óvina-
tagnaðar, að vatn hafi
eitrast, og jarðvegur sætt
nyargvíslegum áföllum;
^anieinaða fréttastofan lét
Þess getið, að úr nærliggj-
andi sveitum við Heklu,
væri verið að flytja á brott
fólk og fénað; fregn þessi
vakti óhemju umtal meðal
"estur-íslendinga, því enn
rennur þeim blóðið til
skyldunnar að því er vel-
farnan íslands og íslenzku
þjóðarinnar viðkemur.
Að því er Þorvaldi pró-
fessor Thoroddsen segist
frá í Lýsingu Islands, varð
fyrsta Heklugos 1104; eitt
hið mesta gos var 1302; þá
rifnaði fjallið niður úr gegn
og aska féll um alt Norður-
land; fylgdi því gosi myrk-
ur miþið og landskjálftar,
svo bæir féllu. Árið 1500
var eldgangur svo mikill,
að stórir hraunsteinar bár-
ust vestur að Skálholti og
rotaðist þar maður. Árið
1597 sáust nítján eldar í
fjallinu og 1693 varð og gos
mikið, og 1766 eyddust
fimm bæir.
Seinasta Heklu-gos varð
1845; þá barst askan til
Hjaltlands og mökkurinn
varð 14,000 feta hár upp
frá fjallinu.
Winnipeg útvarpið lét
þess getið í þriðjudags
kvöldfréttunum, að víst
væri, að 17 bæir hefðu farið
í auðn af völdum eldsum-
brotanna.
Or borg og bygð
Mr. Oddur H. Oddison bygg-
lngameistari frá Chicago, var
nýlega staddur í borginni, en er
nú borfinn suður aftur.
♦
Hið eldra kvenfélag Fyrsta
ijúterska safnaðar, hefir Tea í
Baton’s Assembly Hall í Eaton’s
öúðinni þann 17 þ. m., frá kl.
^ 5 e. ih. Anðurinn gengur til
su'niarbúðanna, Sunrise Camp að
Gimli
-f
Mr. Guðm. P. Thordarson
fyrrum bakarameistari hér í
körginni, lézt á Eiliheimilinu
Hetel á Gimli síðastliðinn sunnu-
ö^g, hinn mætasti duignaðarmað-
Ur; hann lætur eftir sig ekkju og
Sex börn.
lætur eftir sig konu, Elvu Keith
Jörumdsson, hann var 51 árs að
aldri.
♦
Mr. Grettir L. Jóhannson ræð-
ismaður, kom heiim úr Islands-
förinni á sunnudagskvöldið;
gekk ferðailagið að óskum, og við-
tökurnar á Islandi eins og vænta
mátti, hinar alúðlegustu; með
Gretti ræðismanni kom hingað í
stutta heimsókn Ólafur læknir
Helgason frá Reykjavík, er dval-
ið hefir í Bandaríkjunum ffá iþví
í janúar, og stundað meðal ann-
ars framhaldsnám í New Orleans
ríkinu. Ölafur læknir dvaldi við
nám hér í borg árið 1927, og á
hér frá þeim tíma margt'vina;
er hann mikill hæfileikaimaður
og vallmenni; það var hressandi,
að endurnýja vinskap við Ólaf
lækni eftir tuttugu ár.
-f
Útför Guðmundar fór fram frá
Hyrstu lútersku kirkju á mið-
vikudaginn, undir forustu séra
VaJdimars J. Eyilands.
-f
Bldra kvenfélag Fyrsta lút-
erska safnaðar heldur fund í
saonkomusal kirkjunnar á fiimtu-
daginn þann 10. þ. m., kl. 2.30
eftir hádegi.
Hríða Jóhannesson lagði af
stað heimleiðis til Ottawa Síðast-
liðrnm föstudaig, eftir heimsókn
hl foreldra sinna að 215 Ruby St.
-f
Mr. Pétur Anderson kornkaup-
maður, Ikom heim á sunnudaginn
sunnan frá Miami, Florida, á-
sarnt frú sinni, eftir tveggja
mánaða dvöl suður þar.
-f
P^ir G. J. Oleson og Eldjárn
Johnson frá Glenboro, voru í
P°rginni á mánudaginn var.
-f
Jörundur Jörundsson, son-
nr Lofts Jörundssonar og fyrri
*°nu hans Jónínu, lézt að heim-
di sínu, 713 Langerille, Deer
Lodge, þann 31. marz s.l. Hann
Á laugardaginn 29. marz voru
þau Marta Dreyer frá Faulkner,
Man. og August Júlíus Freeman
frá Gypsumville, Man. gefin
saman í Fyrstu lútersku kirkju
af presti safnaðarins, Mr. Free-
man er sonur afhafnamannsins
góðkunna, Ásmundar Freeman,
sem lengi var bóndi við Siglunes,
Man. og Gíslínu konu hans. Að
hjónavígslunni afstaðinni fór
fram rausnarleg veizla 'hjá
Peggy’s Pantry. V'ar þangað
boðið nánustu ættingju og vin-
um brúðhjónanna. Ungu hjón-
in munu setjast að í Gypsumville.
Lögberg flliytur ungu hjónunum
innil'egar hamingjuóskir.
-f
Lundar, Manitoba,
24. marz, 1947.
Rev. V. J. Eylands,
776 Victor Street,
Winnipeg, Man.
Heiðraði vin:
Beztu þa'kkir fyrir útvarpið í
gærkvöldi, sem vakti, meðal ann-
ars, eftirfarandi hugsun:
Eins og vorsins blœrinn blíður
boðar frið um höf og lönd.
Vinarkveðja um loftið líður
leysir helsi og klakabönd.
Með kærri kveðju,
Mr. og Mrs. August Magnsson.
Inrtlagt tveir dalir.
BYGGRÆKTAR-
KONUNGUR
George C. Elias
Á landbúnaðarsýningunni, sem
'Uim þessar mundir stendur yfir
í Brandon, var George C. Elias
krýndur byggræktarkonungur
Canada; athöfnina framkvæmdi
Hon. Jarnes Gardiner, landbún-
aðarráðherra sambandsstjórnar-
innar.
Mr. Elias er 32 ára að aldri, og
rekur búslkap í Haskett-bygðinni
í Manitoiba; hann var sæmdur
■$1,000 verðlaunum.
f f f
GÓÐUR BÚSKAPUR
í lok fyrri viku lagði Hon.
Stuart S. Garson, forsætisráð-
herra Manitöbalfylkis, sem jafn-
frarnt gegnir fjármálaráðherra-
embættinu, fram fjárlagafrum-
varp sitt fyrir fjárhagsárið, sem
nú er nýbyrjað, og ber það með
sér, að áætlaður tekjuafgangur
umfram útgjöld, nemi nokkuð á
fimtu miljón dala; stendur fjár-
hagur fylkisins um þessar mund-
ir í Tneiri blóma, en við hefir
gengist 'í háa herrans tíð; áæfllað
er, að útgjöld fylkisins nemi um
tuttugu og níu miljónir dollara á
umræddu fjáhhagsári.
Manitoba á góðum og glögg-
um forustumanni á að skipa þar
sem Mr. Garson er.
Fjárveitingar til vegabóta, heil-
brigðis- og mentamála, hækka að
mun.
Frónsfundurint}, sem haldinn
var :í Goodtemþlarahúsinu síð-
astliðið mánudagskvöld, var
prýðilega sóttur og fór yfir höf-
uð hið 'bezta fram; forsæti skip-
aði prófessor T. J. Oleson; veiga-
mesta atriði skemtiSkrár, var
erindi um rithöfurtdinn Jóhann
Magnús Bjarnason, eri Mr. G. J.
Oleson ifrá Glenboro flutti; var
erin^ið gagnhugsað og hið feg-
ursta að málfari; með fið'luspili
skemti Allan Beck, sem tekið
hefir glæsilegum framförum frá
því er hann íét síðast til sín
heyra. Frú Esflher Ingja’Jdson,
Söng íslenzk lög, er vöktu unað
áheyranda, og var það einkum
íhyglisvert, hve faigurlega frúin
bar íslenzkuna fram; við hljóð-
færið voru þau frú Matthíásson
og Gunnar Erlendsson.
Nokkrar umræður fóru fram
að lokinni hinni reglubundnu
Skemtiskrá um hið vinsæla skáld,
og tóku þátt í iþeim Mr. Valdi Jó-
hannesson frá Arborgog Kristján
Bjarnason fiskivigtar eftirlits-
maður Ragnar StefánssOn las
upp kvæði eftir Jóhann Magnús,
en tveir gestir frá Islandi þeir
Ólafur l’Jæknir Helgason og Guð-
mundur Hjálmarsson, ávörpuðu
samkomugesti nokkrum orðum.
Að tilmælum Einars P. Jóns-
sonar, greiddu fundarmenn fyr-
irlesaranum þakkaratkvæði með
því að riisa úr sætum.
ATÓMSPRENGJAN
BINDUR EKKI ENDA
Á STRÍÐ
Vara-flugmarskálKur E. W.
Stedman, sá er fyrir hönd cana-
d'sku stjórnarinnar var við-
staddur tilraunasprengjur Banda
ríkja flughersins á Bikini í fyrra,
er á fyrirlestrafeðum um Vestur-
■ lartdið þessa dagana; hann flutti
einn fyrirúestra sinna fyrir at-
bfeina Canadian Club á Fort
Garry hótelinu .hér í borginni,
þann 26. marz síðastliðinn, og
komst þar meðal annars svo að
orði:
“Óttinn fæðir af sér hatur og
hatrið leiðir til stríðs; stríð verða
fyrirbygð með andlegri nýsköp-
un, andlegri þjálfun, og engu
öðru; menn vilja sem minst um
atómsprengjuna heyra vegna
þess hve afleiðingar hennar séu
ægilegar; þetta er óholl afstaða,
sem dregið getur á eftir sér ó-
þægilegan dilk; menn verða að
horfast i augu við staðreyndir og
kappkosta að skillja þær; ekki
aðeins fáir vísindamenn, heldur
allur almenningur, því með
þeim hætti einum er unt að
brynjast igegn afleiðingunum.
ÆGILEGT NÁMUSLYS
Þann 26. marz síðastliðinn vi'ldi
til ægilegt námuslys skamt frá
bænum Centralia í suðurhluta
llinoisríkis; orsakaðist þetta at
sprengingu í kolanámu einni á
þeim stöðvum, er svo var gífur-
leg, að náman hrundi saman og
lokaði inni 130 námumenn, sem
allir létu líf sitt; þetta er eitt hið
mesta slys, sem skeð hefir i
námusögu Bandaríkjanna í háa
herrans tíð.
Jafnskjótt og hlijóðbært varð
um slysið, skipaði öldungadeild
þjóðþingsins í Washington þing-
nefnd í málið til þess að grafast
fyrir um orsa'kirnar, er til þess
leiddu og 'komast að niðurstöðu
um það, hvort lögskipuðum ör-
yggisráðstöfunum Ihefði verið
framfylgt í námum iþessum, eða
hvort vanraékslu mætti að ein-
hverju leyti um kenna; ríkis-
stjómin í Illinois hefir einnig
fyrirslkipað rannsókn í málinu.
-f -f -f
KOSNINGASIGUR
Við aukakosningu til Sam-
bandslþings, sem fram fór í Mon-
treal-Cartier kjördæminu í Mon-
treal á rniánudaginn, fóru leikar
þaninig, að frambjóðandi Liber-
a&a, Mr. Maurice Hartt, gekk
sigrandi af hólmi með álitlegum
meirihluta; kjördæmi þetta losn-
aði, er fyrverandi þingmaður
þess, Fred Rose, kommúnisti, var
fundinn sekur um njósnarstarf-
semi og dæmdur í 6 ára hegn-
inganhússvist.
f -f -f
AUKIÐ ATHAFNALÍF
Endurskopulagningar ráðherra
sambandsstjórnarinnar, C. D.
Howe, hefir lýst yfir þvi í þing-
ræðu, að fésýslumenn og iðju-
höldar landsins, hafi ákveðið að
verja 53% rneira fé til ýmis kon-
ar framkvæmda í ár, en raun
varð á lí fyrra; vera má þó að
Skortur hráefna dragi að ein-
hveju leyti úr framkvæmdum.
f f f
SAMEIGINLECAR
VARNIR.
AðmíráM Chester W. Nimitz,
skýrði hermáíanefnd efri mál-
sflofu þjóðþingsins í Washington
frá í fyrri viku, að hernaðarvöld
Canada og Bandaríkjanna, hefðu
kornið sér saman um sameigin-
legt öryggis fyrirkomulag fyrir
'báðar þjóðir, er lyti að sameig-
in'legum vömum meginlands
N orður-Ameríku.
VINNUR SÉR MIKINN
< FRAMA
Ásg. Jónas Thorsteinsson, Ph.D.
Þeir menn af íslenzkum stofni
i þessu landi, sem með gáfum
sínum, ástundun og þreki, ryðja
sór braut til æðri mentunr- !
verða eigi aðeins sjálfum t,er xil
sæmdar, hðJdur vv þeir einn-
ig fögrum mer .garbjarma á
uppruna sinn og ætt; einn slíkra
manna er Asgeir Jónas Thor-
steinsson, er í desembermánuði
1946 hlaut doktorsgráðuna
Doctor of Phi'losophy, við há-y
skólann í Londbn fyrir ritgerð
um kerfisbundnar rannsóknir og
lífeðlisfræðileg sérkenni skor-
dýra; þessi hugkvæmi menta-
maður, er víst ábyggilega fyrsti
maðurinn af íslenzkum úppruna,
sem áunnið hefir sér slíka sæmd
við æðstu mentastofnun í höfuð-
borg brezka heimsveldisins.
Hinn nýi doktor er fæddur í
Winnipeg þann 2. dag septemiber
mánaðar 1917. Hann ef sonur
þeirra ihjónanna Sigurðar Þor-
steinssonar málarameistara, sem
látinn er fyrir allmörgum árum
hér í borginni, og ekkju hans frú
HaFJdórú Jónasdóttur, sem ættuð
er af Akranesi.
Snemma bar á því, að Asgeir
Jónas byggi yfir frábærum náms-
hæfileikum; honium sóttist þeg-
ar námið ágætlega við Welling-
ton og Daniel Mclntyre skólana;
hann stundaði nám við Jóns
Bjarnasonar skóla og vann þar
aðdáun kennara og skólasyst-
kina; því næst gekk hann á
kennaraskólann og gaf sig að
skólakenslu árlangt; næst lá leið-
in til Manitobaháskó’.'ans, og eftir
þrjú ár útskrifaðist hann þaðan
sem Bachelor og Science in Agri-
ouiture 1941, og fékk þá gull-
medalíu landsstjórans; árið áður
hlaut 'hanin Isbister námsverð-
launin; en þann tíma, sem hann
hafði aflögu frá náminu, vann
hann að fiskiveiðum og við bún-
aðarstörf.
Árið 1942 gekk Asgeir Jónas i
herþjónustu, og var samtals hér
í landi við sex mánaða liðsfor-
ingjanám, þrjá mánuði að Three
Rivers í Quebec, en hinn tímann
í Calgary; hann kom með her-
deild sinni till Englands í júní-
mánuði 1943 og lagði þar sflund
á ýmiskoniar hernaðarlieg fræði,
en fór eigi til vígvallar vegna
þess að eitthvað þótti athugavert
við sjón hans.
Árið 1944 bauð British Council
hæfum canadisbum mönnum, er
i herþjónustu voru, og höfðu
• j nrskipaða umdirbúnio gsment-
un, aðgang að en'skum hásköl-
um, ásamt nokkrum námsstyrk.
Ásgeir Jónas sótti þegar um
þenna styrk, og var fyrsti Can-
ada-maðurinn, sem hlaut hann;
veiting styrksins var háð val-
nefnd (Board of Selection) og
var sendifulltrúi Canadastjómar,
Hon. Vincent Massey, formaður
iþeirrar nefndar.
Af bessu, sem nú hefir sagt
verið, þótti Sfljótt sé yfir sögu
farið, má það ljóslega ráða hve
g’.iæsilegan námsferil Asgeir
Jónas á að baki sér, og mun þvi
með fullum rétti mega af hon-
um vænta hollra nytjaverka í
framflíðinni; hann er prúðmenni
hið mesta í framgöngu, góður
drengur og 'heill.
Eins og sakir standa vinnur
þessi nýi doktor að vísindarann-
sóknum við Forest Insect Labora-
tory í bænum Sault Ste. Marie
í Ontario.
Dr. Ásgeir Jónas er kvæntur
Mildred Elinore Anderson héðan
úr borginni.
-♦•-♦• -f
KONUNGUR LÁTINN
Á þriðjj'udagsmorguninn lézt
af hjartaslagi 1 Aþenuborg,
Geollg Gri'kkjakonungur; við
konungdómi hefir tekið Paul
bróðir hans, 45 ára að aldri.
MÁNAÐARMÓT
Eftir PÁLMA
Marz hefir kai’Jda krumlu,
klónna beitir hann völdum;
útjaðra vetrar víða
ver hann með gusti köldum.
Gramt er og grátt hans eðli.
geisla með flókum brýtur,
stýflar strauma með 'krapi,—
snjór hans er sjaldan hvítur.
Út yifir ákur-löndin
ólgar, með þoku-iblökin,
hrýmir um skóga og skugga,
skrifar með 'hélu á þökin.
Óværri andi’ hann blíðu-------
iðrast hann fyrir kosti:
Hóstar og hrufllar snjóinn,
'herðir svo krap með frosti.
Oft eins og ótrúr vinur,
yfirskins-svipar-ríkur,
'glaður hann gefur vonir,—
glaðari oftast svíkur.
Næðingssamur að norðan,
næstum að sunnan verri,
úrfellasamur úr austri------
illur úr stefnu hverri
\