Lögberg - 03.04.1947, Side 3
LÖGBERG, FIMTUÐAGINN 3. APRIL, 1947
Trúmenska við hugsjónir
Eftir PRÓFESSOR RICHARD BECK
(Ræða flutt á lokasamkomu ársþings þjóðræknisfélags
Islendinga í Vesturheimi, 26. febr.. 1947).
um bömdum blóðs og erfða. Jón
Magnússon haifði rétt að mæla
og fkomst fegurlega að orði um
hin nánu tengsl manns og mold-
ar, í kvæði sínu “Land og þjóð”:
í hinu fagra inngangskvæði að einyrkjasögu sinni um Björn á
Reyðarfelli farast Jóni skáidi Magnússyni þannig orð um svipmikla
^oguhetju sína:
fanst hann vera ímynd
þeirrar þjóðar,
sern þúsund ára raunaferil tróð
°9 dauðaplágum varðist gadds
°9 glóðar,
en 9eymdi altaf lífs síns dýrsta
sjóð
~~~~ Því gat ei brostið œttar-
stofninn sterki,
þótt striðir vindar græfu aldahöf,
fólk, sem tignar trúmenns-
kuna í verki,
það tendrar eilíf blys á sinni
9röf.”
Vaifalaust hefir skáldið hér i!es-
laukrétt sögu þjóðar vorrar.
Hún sigrandi af hólmi í
baráttunni við andvígustu og oft
ömurlegustu kjör ö 1 d um
Sartlan, af því að hún tapaði
aldrei að fullu trúnni á sjálfa
S1S og málstað sinn, en reyndist
trú hinu bezta í sjálfrd sér og
erfðum sínum, glataði aldrei
óugsjónaást sinni. Þessvegna sá
^ ú n einnrg sinn hjartfólgna
Helsisdraum rætast til fuillnustu
með endureisn lýðveldisins fyrir
tveim árum síðan.
Sagan sýnir það ótvíriætt — og
'þá ekki síst 'bráttu - og sigursaga
hinrrar íslenzku þjóðar — að
trúin, bjartsýnin, hugsjónástin,
hylta björgum úr vegi á fram-
soknanbrautinni. Einair s k á 1 d
Henediktsson fór ekki villur veg-
ar í þessum viturlegu ljóðiiínum:
Hve verður sú orka öreiga
snauð,
sem aldrei af trú er til dáða
kvödd.”
£*að skyldi í minni borið, þegar
hrammur vonleysisins leggst oss
111111 hjantarætur og sýgur oss
°rku úr æðum og taugum. Að
ganga uppgjafarstefnunni é
hönd og leggja árar í bát, er
dauði allrar félagslegrar starf-
301111 og þjóðfélagslegrar fram-
sóknar. •
í nýútkominni bók, llugsjón-
lr °9 hetjulíf, mjög athyglis-
verðri og tímabærri, kemst Pétur
^rindreiki iSiguircjþson, hinn ó-
trauðasti hugsjóna- og umbóta-
^naður, réttilega svo að orði:
‘Enginn keppir vel að marki,
nema hann sjái markið eða hafi
það ríkt í huga. Hugsjónir skapa
hetjur, hugsjónalíf og hetjulíf fer
saman. Það er því mannsins
mesta tjón, ef hann hættir að
v'°na, hættir að hlakka til, hættir
að dneyma mikla og glæsilega
draurna, sjá dásamlegar sýnir,
haettir að lifa í töfraheimi hug-
sjóna sinna, því að þá er hann
hættur að lifa, þótt enn sé hann
ehki tiil moldar borinn. Skáldið
^ephán G. Stephánsson segir:
•d lifandi dauða, hvað einkenni
er,
1 uuðveldum hendingum sagt get
e9 þér:
kólna’ ekki í frosti né klökkna
í yi,
“ð kunna’ ekki lengur að hlakka
ta.
^essi lifandi dauði, sem Kletta-
^jallaskáldið kveður um, er
hverjum dauðdaga verri. Gegn
slíkri sálarglötun er hugsjónaldf
hjartsýninnar öruggasta vörnin.
Hættum því aldrei að hlakka til
°g lifa í heimi okkar dýrðlegustu
drauma. Það er vissasta leiðin
tu dáða og hetjulífs.”
Sannarlega er hver sá maður í
tneira lagi aumkunarverður, sem
glatað hefir hæfileikanium til að
hólna í frosti og klökkna í yl”,
eins og skáldið orðar það frum-
ega og eftirminnilega, því að
slíkur maður er hættur að finna
11 ’ hann lætur sér á sama
standa um alt; hann hefir lifað
sjálfan sig og er andlega dauður.
Hamingjan forði oss öllum frá
svo ömurlegum dauðdaga, hvort
sem er í þjóðræknismálum eða
þjóðfélagsmálum, meðan við er-
um enn ofan moldar.
Og jafnvel þó að lítið sýnist
vinnast á, á hvaða menningarleg-
■um félagsskap sem er eða þjóðfé-
lagslegri umbótastarfsemi, þá er
þess að minnast, að það er hreint
ekki lítils virði, eitt sér, að halda
merki félagshugsjónarinniar eða
umbótahugsjónarinnar á lofti,
halda henni vakandi fyrir sjón-
um manna og í hugum þeirra.
Slíkir velvakendur, slíkir blys-
berar hugsjónanna, eru hverjum
menningar-félagsskap og hverju
umbótamáli hinir þörfustu þjón-
ar; og þeim og þeirra starfi á lið-
inni tíð eigurn vér það að þakka,
hvað þokast hefir áfnam á menn-
ingarbrautinni almennt talað.
Þess ber einnig að gæta, að trú-
menska við fólagslega hugsjón,
hvort heldur er á sviði þjóðrækn-
ismálanna eða í einíhverri annari
menningarlegri viðleitni, hefir
hið mesta þroskagildi fyrir ein-
staklinginn sjálfán. Það betrar
menn og göfgar, að vinna góðum
málstað; það víkkar sjóndeildar-
hringinn, 'kennir mönnum að
hugsa um annað en sjálfan sig,
kennir þeim fórnfýsi, vilji þeir á
annað borð eitthvað á sig leggja
málstaðarins vegna. Einnig vex
mönnum félagslegur þroski við
að starfa með öðrum innan á-
kveðinna félagsbanda að sam-
eigirtlegum áhugamálum, læra að
taka tillit hver til annars, að
skilja ólík sjónarmið og bera
virðingu fyrir þeim. Starfshvöt
manna og lífshvöt fær með þeim
hætti byr undir vængi.
Og fyrst eg er að tala hér um
trúmensku við hugsjónir ó víð-
tækum grundvelli, fer vel á því
að spyrja: Hvað exu göfugar
hugsjónir? Því má.. meðal ann-
ars, svara á þessa leið: Þær eru, í
ýmsum myndum og á ýmsum
sviðum, þrá mannsins til að
auðga, fegra og umba^ta heim-
inn, gera mannlífið og menning-
una fegurrd og litbrigðaríkari.
Vér þjóðræknismenn og konur
enum t. d. sannfærð um það, að
vér leggjuim drýgstan skerf til
menningar vors nýja fósturlandS,
fæðingarlands barna vorra, með
því að ávaxta af fremsta megni
vora íslenzku menningararfleifð.
Það er göfugt mankmið, sem
verðskuldar sem víðtækastan
stuðning fólks af vorum stofni
veggja megin landamæranna.
En hverfum aftur að menning-
ar- og þroskagildi háleitra hug-
sjóna alment Án slíkra leiðar
merkja, ætti mannkynið enga
menningarlega framtíð fyrir
höndum. Eg er ekki þeirrar trú-
ar, að hina svokölluðu gullöld sé
að finna einhversstaðar aftur í
grárri forneskju, heldur sé henn-
ar að leita á ónumdum morgun-
löndum í útsæ ókomins tíma,
takist oss að beina 9traumi þjóð-
félagslegrar þróunar í þann far-
veg, veg horfir til varanlegra
heilla öllum þjóðum heims, stór-
um og smáum.
Með því er eg þó vitanlega ekki
að gera lítið úr fortíðinni eða af-
rekum horfinna kynslóða, og
þeim menningarerfðum, keypt-
um við dýru verði svita, blóðs og
tára, sem vér höfum frá þeim
fengið. Slíkt er víðsfjarri mér,
enda væri það í algerðri mótsögn
við bjargfasta lífsskoðun mína.
Eg er mér vel meðvitandi þeirra
grundvallar-sanninda, að vér er-
um igömul, þá er vér erum í
heiminn borin, tengd genignum
kynslóðum þjóðar vorrar, og
sjálfri ættjörð vorri, órjúfanleg-
uLand og þjóð er orðið eitt.
Annars væri hvorugt neitt.
3ötu vora helgað hefur
hetja mörg er fallin sefur,
fyrr sem stríddi þjáð og þreytt.
Sjórinn, haginn,
heiðin, skaginn
huga barnsins að sér vefur.
Mœðra og feðra arfur er
alt, sem fyrir sjónir ber.
Öll þín sorg og öll þín tár,
öll þín kvöl í þúsund ár.
ÖU þín frægð og gæfugengi
grípur vora hjartastrengi,
hver ein minning sæt og sár.
Slungið harmi,
barm frá barmi
bergmál tímans varir lengi.
Undir logar orka hljóð:
alt, sem gerir menn að þjóð.”
Þessvegna er viðleitni vor og
barátta í þá átt að varðveita í
ilengstu lög þjóðerni vort óg
menningarerfðir í landi hér svo
mikilvæg; sú viðleitni og barátta,
því að um marg't er við ramman
reip að draga í þeim efnum, er
hvorttveggja í senn trúnaður við
vort eigið eðli og trúmenska við
göfuga hugsjón, ávöxtun dýr-
keyptra menningarerfða.
I þessu sambandi minnist eg
orðá Ólafs ríkiserfingja Norð-
manna í hátíðarræðu, í Þránd-
heirni síðastliðið sumar á fimm-
tíu ára afmæli norsku ung-
mennafélaganna, en ummæli
hans voru á þessa leið: “Tökum
ofan fyrir fortíðinni; vinnum
ötullega fyrir framtíðina.” Hér
kemur fram full virðing fyrir af-
rekum fortíðarinnar og verð-
mætum úr þeirri átt, en jafn-
hliða skilningur á kröfum fnam-
tíðarinnar og líðandi stundar. En
Klettafj allaskáld vort færði þá
hugsun í skáldlegri búning og
enn minnisstæðari, er hann
sagði:
“Láttu hug þinn aldrei eldast eða
hjartað,
vinur aftansólar sértu,
sonur morgunroðans vertu.”
Vér stöndum í þrefaldri skuld
við lífið, við fortíðina, samtíðina
og framtíðina. Stephán skáld er
að minna oss á þanh sannleika í
hinum snjöllu ljóðlínum, sem eg
vitnaði tiil. Hann er þar, með
öðrum orðum, að segja: iþó að þú,
eins og vera iber, kunnir að meta
verðmæti liðinnar tíðar, þá er
hitt enn meira um vert, að gera
þau að lírænu afli í samtíð þinni,
með því að vera í verki trúr
framsóknar-hugsjónunum, þeim
hugsjónum, sem boða mannkyn-
inu nýjan morgun. betri dag.
Skáldið áminnir oss um þetta:
Láttu ekki blys bjartsýninnar,
.framtíðartrúarinnar, eða eld á-
hugans slokkna í brjósti þér.
Hann vissi jafnvel og skóldbróð-
ir hans Hannes Hafstein, að:
“öllum hafís verri er hjartans ís,
er heltékur skyldunnar þor.
Ef hann grípur þjóð, þá er glöt-
unin vís,
þá gagnar ei sól né vor.
En sá heiti blær,
sem til hjartans nær
frá hetjanna fómarstóil,
bræðir andans ís, ’
þaðan aftur rís
fyrir ókomna tíma sól.”
Og þá erum vér aftur komin að
blysberum mannkynsins a
þroska- og menningaribraut þess,
þeim mönnum og konum, sem
voru Velvakendur og Velberg-
'klifrendur á göngu þess út úr
eyðimörkinni og inn í hið fyrir-
heitna land vona þess og drauma.
Þein eru fyrirmyndin. Dæmi
þeirra, trúmenska þeirra við hug-
sjónina og fórrtfýsi þeirra, geta
brætt andans ís, ef vér látum
hinn hlýja blæ, sem frá þeim
streymir, ná til huga vorra og
hjartna.
Eg vék að skuld vorri við sam-
tíðina. Sjaldan eða aldrei hefir
hún gert slíkar kröfur eins og
hún gerir til vor í dag, á hækk-
andi öld kjarnaorkunnar (atomic
energy). Hin mikla spurning er:
Lærum vér að beizla hana oss og
öðrum þjóðum til gagns og bless-
unar, eða verður hún aðeins að
vítisvél og eyðingar í höndum
vorum. A því veltur alt.
Eitt er víst, að aldrei hefir það
verið sannara, en einmitt nú, að:
“Hvers mann starf er vald í vel-
ferð þjóðar” og að “Manndóms-
skyldan þung á öllum er.” Skuld
vora við kröfuharða samtíð
greiðum vér áreiðanlega farsæl-
legast með því að tigna í verki
trúmenskiuna við hið bezta í
sjálfum oss, hið þrautreyndasta
og lífrænasta í ættaranfi vorum,
og við þær hugsjónir, sem miða
að alþjóðaheill, samhliða vel-
famaði þeirrar þjóðar, sem vér
erum hluti af. Eða eins og
Stephán G. orðaði það í þessum
markvissu ljóðlínum:
“Við fósturlandsins frægðarstarf,
með föðurlandsins sæmd í arf,
af höndum inna æfiþraut,
með alþjóð fyrir keppinaut.”
Með þeim hætti greiðum vér
einnig drengilegast skuld vora
við framtíðina, minnugir þess, að
af komandi kynslóðum eigum vér
og verk vori eftir að dæmast og
metast. Meðvitundin um það, að
vér fáum eigi hjá því komist að
mæta fyrir þeim dómstóli, ætti
að vera oss hvöt till þess að á-
vaxta sem viturlegast og sem
lengst þau menningarverðmæti,
sem vér höfum að erfðum hlotið,
og reynast sem trúastir þeim
hugsjónum, sem greiða veginn
þeim kynslóðum, er fylgja oss í
spor.
Eg lýk máli mínu með þessum
eggjandi erindum úr hinu fagra
og íturbugsaða ikvæði Davíðs
skálds Stefánssonar, “A vega-
mótum”:
Sé eg veg og vörður
.. vísa upp á móti.
Styrk þarf til að standa,
stikla á eggjagrjóti.
Upp í bláu bergi
blikar óskalindin.
Blessun bíður þeirra,
sem brjótast upp á tindinn.
Þar á andinn óðul,
aflið þrá til dygða.
Þaðan vísar vizkan
veg til allra bygða.
Þar er vorblá veröld
vafin sólaröldum.
Sannleikurinn sjálfur
situr þar að völdum.
Kjark þarf til að klifra
og kynnast háu bergi.
Betra er hug að hafa
og hrapa — eh fara hvergi.
Verst af öllu illu
er að vera blauður,
leita ei neins og látast
lifa — en vera dauður.
Þeirti, sem hugumheilir
hœsta marksins leita, ,
mun hinn æðsti máttur
mesta blessun veita.
Þeir, sem fremstir fara,
fjöldann áfram hvetja.
Dfþrðlegasta dauða
deyr hin bezta hetja.
Rakari einn í Buenos Aires
hefir tekið upp nýja aðferð á
rakarastofu sinni til þess að flýta
fyirir afgreiðslu. Þegar viðskipta
vinu kemur inn í stofuna er það
næsti maður á undan honum,
sem sápar 'hann.' Svo sápar hann
þann, sem kemur þar á eftir. Við-
skiptavinunum finst þetta gam-
an og raksturinn verður ódýrari.
♦
Sagt er að skegluungar drepist
í þurkum og hita; skrœlna þeir
upp og fiðrast ekki, ef bjargið,
sem þeir eru í, verður mjög heitt.
á
Business and Professional Cards
CHRISTMAS SPECIAL!!
All photos taken on approval with no obligation
— 4 Poses To Choose From —
SPECIAL PRICES Phone or Write for Appoinlmenl
UNIVEPSAL §TIJDi€$
292 KENNEDY ST. (Just North of Portage) — Phone 95 653
WEDDING AND BABY PHOTOS — OUR SPECIALTY
H. J. STEFANSSON
I.ife, Accident and Health
Insurance
Representing
THE GREAT-WEST LIFE
ASSURANCE COMPANY
Winnipeg, Man.
Phone 96)144
DR. A. V. JOHNSON
Dentist
506 SOMER8ET BUILDINO
Telephone 97 931
Home Telephone 202 191
Dr. S. J. Jóhannesson
216 RUBY STREET
(Belnt suCur af B&nning)
T&lstmi 30 877
VlBtalsttmi 3—5 eftlr hfUtsgt
DR. E. JOHNSON
304 EVELINE STREET
Selkirk, Man.
OfCire hrs. 2.30—6 p.m.
Phones: Otflce 26 — Ree 230
Talsími 95 826 Heimilis 53 893
DR. K. J. AUSTMANN
SérfræOingur i augna, eyrna, nef
og kverka sjúkdómum. .
215 Medical Arts Bldg.
I Stofutlmi: 2.00 til 5.00 e. h.
Otflce Phone Res Phone
94 762 72 409
Dr. L. A. 'Sigurd$on
526 MEDICAL ARTS BLDG.
Offloe Hours: 4 p.m.—6 p.m.
arid by appolntment
DR. ROBERT BLACK
SérfræOingur i augna, eymo,
nef og hdlssjúkdómum.
416 MEDICAL ARTS BLDG
Graham and Kennedy St.
Skrifstofuslmi 93 851
Heimastmi 42 154
----------------------------L
EYOLFSON'S DRUG
PARK RIVER, N. DAK.
islemskur tyfsali
Fðlk getur pantaö meSul og
annaS með pðstl.
Fljðt afgretttsla.
A. S. B A R D A L
848 SHERBROOK 8TREET
Selur itkktstur og annast um Ot-
farlr. Allur útbúnaður sá. beetl.
Ennfremur selur hann allskonax
minnisv&rCa og legstelna.
Skrifstofu talstml 37 324
Helmllls t&lsfml 26 444
Phone 97 291 Eve. 26 002
J. OAVIDSON
Real Estate, Financial
and Insurance
ARGUE BROS. LIMITED
Lombard Bldg., Winnipeg
PDINCE/T
MES5ENG5R SERVIOF.
ViO flytjum klstur og töskur,
húsgögn úr smtsrrl tbúCum,
og húsmunl &f SUu t«el.
68 ALBERT ST. — WINNIPEG
Stml 25 888
C. A. Johneon, Mgr.
TELEPHONE 94 358
H. J. PALMASON
and Company
Charterrd Accountants
1101 McARTHUR BUILDINO
Wlnnipeg, C&n&da
I
Phone 49 469
R&dlo Servlce SpMl&Usts
ELECTRONIC LABS.
H. THORKKL80H, Prop
The most up-to-d&te Sound
Equipment System.
130 .■'SBORNE ST.. WINNIPEG
O. F. Jon&sson, Pree. & Man. Dir
Keystone Fisheries
Limited
404 SCOTT BLOCK SlMl 95 227
Wholesale Distributora of
KRESH AND FROZEN FISH
Manitoba Fisheries
WINNIPEG. MAN
T. Bercovitch. framkv.stj
Varzla t helldsðlu meC nýjan o«
froslnn ftsk.
303 OWENA STREET
Skrlfst síml 15 355 Helma 55 4*2
Drs. H. R. and H. W.
TWEED
Tonniœfcnar
406 TORONTO GEN. TRU8TS
BUILDTNO
Cor. Portage Ave. og Smlth St.
PHONE 96 962 WINNIPBO
DR. J. A. HILLSMAN
Burgeon
308 MEDICAL ART8 BLDO
Phone 97 321
Dr. Charles R. Oke
Tannlasknir
For Appointments Phone (4 901
Office Hours í—I
«04 TORONTO GEk TRUSTS
BUILDINO
2*3 PORTAGE AVE
Winnlpeg, M&n.
SARGENT TAXI
PHONE 34 558
For Quick Reliable Bervloe
J. J. SWANSON & CO.
LIMITED
308 AVENUE BLDG WPG.
Kasteignasalar. I.olg’a hús. Ot-
vega penlngal&n og eidslbyrgú
blfreiOa&byrgC, ó. s. frv.
PHONE 97 53*
----------------------)---
Andrews, Andrews,
Thorvaldson and
Eggertson
LögfræOingar
209BANK OF NOVA SCOTIA BO
Portage og Garry 9t.
Stml 9* 291
CUNDRY PYMORE
Limited
Itrttish QuaMty FUK Netting
60 VTCTORIA ST., WINNIPEG
Phone 18 211
Mo.na.ger T. R. THORVALDSOM
l’our patronage wtU be apprecl&ted
C A N A D I A N FISH
PRODUCERS, LTD.
J H. PAG E, Managing Director
Wholosale Dlatribu tora of Frjsih
and Frotsen Ftsh.
311 CHAMBER8 STREHT
Offlce Ph. 26 328 Ree Ph T3 91T
HHáGBORG U
FUEL CO. H
DUl 21 331 NaFll) « 331