Lögberg - 10.04.1947, Blaðsíða 7
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 10. APRÍL, 1947
7
Erfiðleikar Dana
eru miklir ennþá
Efnahagur Dana og kjör al-
mennings þar í landi eru á þann
Veg að stjórnarvöld landsins hafa
saigt það fyrir fram að þetta ár
yrði að vera “ár afneitunarinn-
fyrir alþjóð. Því að engin
séu á, að fá til landsins ýmis-
^egt af því, sem menn áður töldu
il daglegra nauðsynja.
■Ek'fiðleikaár þetta byrjaði svo
me^ kuldunum, sem staðið hafa
^ar lengur að þessu sinni, en
n°kkru sinni áður í mannaminn-
Um' Þeir, sem ver eru staddir
matbjörg en Danir, segja að
ðnum sé engin vorkunn, því að
geti borðað sig sadda. Dan-
merk hefir altaf framleitt mikla
^atvöru. Og nú er það ekki talið
nema sjálfsagt, að Danir gefi af
^atvöruframleiðslu sinni. En
Pað er enginn, sem getur eða
hjálpa þeim um kolablað eða
^iað, og þykir sumum það hart.
n svona er heimurinn í dag.
í’egar Þjóðverjar gáfust upp,
s uldaði danska ríkið Þjóðbank-
f11*11*1 8,000 milj, króna. Tekist
^lði að leggja til hliðar 2,000
j^ljónir á stríðsárunum. Var
fjárhæð lögð inn í bank-
®nn til þess að lækka skuldina.
nist er við að af ólöglegum
stríðsgróða, sem menn höfðu tek-
1 sér, verði tekinn einn miljarð
°g 1,2 miljarður fáist í auka-
®t‘tn — Það' sem eftir er af
skuldinni í Þjóðbankanum, verð-
Þjóðin svo að afborga eins og
1111 bezt getur í framtíðinni.
Búist er við, að afgreidd verð
ekjuhallalaus fjárlög. En skatt-
eru hafðir alveg óvenjulegí
am m- a. vegna þess, að stjónv
nrvöld landsins vilja ekki a?
auPmáttur almennings verð:
meiri en svo, að hann sé tilsvar-
f^ói við fáanlegar vörur í land-
lnu- kleð því móti sé séð um, a?
Verðlagið fari ekki hækkandi, er
e lirspurnin verður ekki meir
en hið mjög takmarkaða fram-
boð.
Á fyrra ári urðu Danir fyrii
y^fskonar vonbrigðum. Þa?
ekst ekki að fá til landsins þæi
e navörur, sem búist var við
erst var það, að ekki var hægt
f nauðsynleg fóðurefni, sem
^ndur þurftu, til þess að geta
ankið framleiðslu sína. Kol feng-
Ust ekki nema af skornum skamti
SVe að þjóðin hefir orðið að búa
Vl, hinn versta kulda síðustu
2ýuði. Og klæðleysi samtímís.
í að ekki var hægt að fá efni-
v°rur handa klæðaverksmiðjun-
nm. Þessu hafa Danir enn orðið
f. taka með jafnaðargeði og
®ðast enn þeim fötum, sem
áttu, þegar stríðið skall á.
a nærri geta, hvernig sá fatn-
Ur er nú orðinn útlítandi.
>3 m áramót skulduðu Danir
retum 800 miljónir króna. Nú
er ekki hægt að halda lengur á-
am að auka á þessa skuld. Og
I Vl a að minka vörukaup í Bret-
á þessu ári. Svo að enn eru
1 hkindi til að danska þjóðin
1 á þessu ári fengið fataefni
Vo að nokkru nemi.
þrátt fyrir alt þetta, má
^ 8ia að Danir séu komnir vel
Veg með endurreisnina eftir
^ernámsárin. Slénið og aðgerð-
g.e^si®> sem mest bar á fyrsta
ver?tmn eftk" uPPSÍöf Þjéð-
fall er nu ur sögunni. Verk-
aaióan er liðin hjá. — Menn
að ftrnent komnir á þþ sl^oðun,
0 ekkert geti rétt þjóðiría við,
Vin kenna' nema vinna, mikil
na‘ kTeð því á allur almenn-
Ur leggi mikið að sér, verði
]a g bæta lífskjörin áður en
Jan'gt líður.
—Mbl. 7. marz.
^óannv^i® stefntr Því. ®ð ala
Og ^n'Ó upp og gefa því frelsi
sjálf ^^tki þess er falinn í
huvSVÍrðlngu Þ®83 °S siðgæðis-
smyndum.”—Thomas Mann.
Prestsvígsla í Dómkirkjunni
Péíur Sigurgeirsson cand.
theol. vígður aðstoðarprestur
til séra Friðriks J. Rafnar
vígslubiskups á Akureyri.
* *
Síðastliðinn sunnudag, 23. þ.
mán. vígði biskupinn Pétur Sig-
urgeirsson, cand. theol. aðstoðar-
prest til séra Friðriks J. Rafnar
vígslubiskups á Akureyri. Séra
Bjarni* Jónsson vígslubiskup og
dómprófastur í Reykjavík þjón-
aði fyrir altari en prófessor As-
mundur Guðmundsson lýsti
vígslu.
Áður hafði séra Friðrik J.
Rafnar vígslubiskup sótt um og
fengið hvíld frá prestsstörfum
um eins árs skeið sökum heilsu-
brests og samkvæmt ráðleggingu
lækna. Óskaði hann eftir því að
fá cand. theol. Pétur Sigurgeirs-
son sem aðstoðarprest sinn fyrgt
um sinn um eitt ár, og hefir
kirkjustjórnin orðið við þeim til-
rhælum hans.
Séra Pétur Sigurgeirsson er
fæddur á ísafirði 2. júní 1919,
sonur Sigurgeirs Sigurðssonar
biskyips og konu hans frú Guð-
rúnar Pétursdóttur. Hann lauk
stúdentsprófi vorið 1940 og em-
bættisprófi í guðfræði við Há-
skóla Islands 1944.. Næsta haust
(1944) sigldi hann til Ameríku,
og las guðfræði við Mt. Airy
Seminary — aðal prestaskóia
lútersku kirkjunnar í Banda-
ríkjunym • og lauk þaðan prófi
sem Master of Sacred Theology
(M. S. T.) í júnímánuði 1945.
Jafnframt náminu flutti hann
mánaðarlega guðsþjónustur fyrir
Séra Pétur Sigurgeirsson
íslendinga í New York. Fór að
afloknu prófi norður til Canada
og starfaði þar um sumarið á
vegum íslenzk-lúterska kirkju-
félagsins. Næsta vetur las hann
við Stanford háskólann í Cali-
forrííu og lagði þá einkum stund
á að kynna sér blaðamensku.
Hann kom aftur heim til Is-
lands vorið 1946 og hefir síðan
starfað í Reykjavík, meðal ann-
ars við ritstjórn Kirkjublaðsins
o. fl.
Kirkjublaðið árnar honum
allra heilla og blessunar í hinu
vandasama og veglega starfi, er
hann nú hefir vígst til, jafn-
framt því sem það þakkar hon-
um hin ágætu störf í þágu blaðs-
ins undanfarinn tíma.
S. V.
—Kirkjubl. 24. febr.
Drengur bjargar þriggja ára
frænku sinni úr eldsvoða
Átta manns bjargaðist á nær-
klæðunum einum saman er íbúð-
arskáli nr. 7 í Kalbó Kamp við
Klepsveg brann til ösku aðfara-
nótt sunnudags. 1 bruna þess-
um vann 13 ára drengur, er þar
átti heima, Þórður Ólafur Þot
valdsson að nafni, það afrek ao
bjarga þriggja ára frænku sinni
úr skálanum, er hann var orðinn
alelda.
Þegar eldurinn kom upp voru
í skálanum 8 manns að Þórði
meðtöldum. Móðir Þórðar og
eldri kona, er var þar gestkom-
andi, 15 ára gömul stúlka og
fjögur ung börn hjónanna Vals
Sigurbjömssonar og konu hans
&línu Þorvaldsdóttur, systur
Þórðar. Þau hjónin voru á dans-
leik er þetta gerðist.
Móðir Þórðar, Katrín Einars-
dóttir, varð eldsins fyrst vör.
Hún vakti Þórð þegar og bað
hann hringja í slökkviliðið og
hljóp hann út á nærklæðunum
einum. Þegar hann kom aftur
var alt heimafólk komið út, nema
þriggja ára dóttir þeirra Vals og
Ólínu. Án þess að hugsa sig um
frekar hljóp Þórður inn í skál-
ann. Þrátt fyrir mikinn reyk,
tókst honum fljótlega að finna
litla barnið, sem lá í herbergi
í hinum enda skálans. Það var
þá sofandi í rúmi sínu. Þórður
greip barnið þegar í fang sér og
vafði sængurfötum um það og
hljóp til dyra. Er hann átti
skamt eftir ófarið sá hann hvar
trétexplata hafði fallið úr lofti
skálans og nær þvi lokað fyrir
útgöngudyr. Þórði tókst að
sparka hinni brennandi plötu
frá, þíinnig að hann komst út
með barnið, án þess að hann eða
það sakaði hið minsta.
Talið er víst að litla barnið
hefði brunnið inni í skálanum,
ef Þórður hefði ekki sýnt þessa
miklu karlmensku og snarræði.
Þórður er fæddur 26. febr.
1934 í Flatey á Breiðafirði. Faðir
hans,. Þorvaldur Pétursson, lézt
fyrir nokkrum árum-síðan, en
hingað til bæjarins er Þórður
nýlega fluttur ásamt móður
sinni.
1 brunanum misti fólk þetta
innbú sitt og fatnað og var það
alt óvátrygt.
Aðstaða slökkviliðsins var
mjög örðug, því ekkert vatn var
þar fyrir. Urðu slökkviliðsmenn
að fara nokkrar ferðir inn í
Kleppsholt og niður í Laugarnes
til þess að fylla vatnsgeyma bíl-
anna.
Fólk í næstu bröggum hefir
skotið skjólshúsi til bráðabirgða
yfir hið heimilislausa fólk.
—Mbl. 11. marz.
AFLAFRÉTTIR
AÐ NORÐAN
í Norðlendingafjórðungi hóf-
ust veiðar í febrúar í flestum
veiðistöðvum, þó að enn séu að-
eins fáir bátar byrjaðir á ýmsum
stöðum. Mest var útgerð frá
Siglufirði og Dalvík.
Frá Siglufirði stunduðu 3 bát-
ar róðra og fóru flest 4 sjóferðir.
Var afli þeirra frá 5—9 smál. í
sjóferð, en fiskurinn var fremur
smár og mikið af ýsu.
Frá Dalvík hafa 4 bátar stund-
að línuveiðar. og einn togveiðar.
Fóru línubátamir 8 sjóferðir og
öfluðu 3.5—7 smál. í sjóferð.
Hefir mest af fisknum verið
saltað, en eitthvað sett í hrað-
frystihús.
Frá Skagaströnd stundaði að-
eins einn bátur veiðar með línu
og aflaði vel, eða 5—6 smál. í
sjóferð og fór allS 10 sjóferðir.
Var aflinn hraðfrystur.
Frá Ólafsfirði var einungis um
útgerð opinna vélbáta að ræða á
línu og yoru þeir 4 og fóru 8
sjóferðir. Var aflinn sæmilegur.
Einn bátur hóf þaðan togveiðar,
en var rétt byrjaður.
Frá Hrísey var einnig aðallega
um að ræða útgerð opinna vél-
báta og öfluðu þeir vel og sama
er að segja um Húsavík, nema
að afli hefir verið þar rýrari.
Margir af bátunum í Norð-
lendingafjórðungi eru eins og
jafnan áður á vetrarvertíð í
Faxaflóa bæði á línu- og botn-
vörpuveiðum og ennfremur eru
nokkur skipanna á sildveiðum
sunnanlands eða í síldarflutning-
um. -Mbl. 12. marz.
S A M S K O T
í úivarpssjóð Fyrsiu
Lúiersku Kirkju
Mrs. J. M. Borgfjord, Arborg,
$2.00; S. W. Nordal, Gimli, Man.,
$1.00; Mr. og Mrs. E. J. Breið-
fjörð, Upham, N. Dak., $1.00;
S. G. Borgfjord, Lundar, Man.,
$2.00; Mrs. Emma Olson, Lundar,
Man., $1.00; Joe Gíslason, Lund-
ar, Man., $1.00; Mrs. B. Rafnkel-
son, Lundar, Man., $1.00; Mr. og
Mrs. N. R. Johnson, Lundar,
$1.00; Bjarni Jónsson, Lundar,
Man., $1.00; Mr. og Mrs. Jón Ey-
olfson, Lundar, Man., $1.00; Mr.
og Mrs. D. J Lindal, Lundar,
Man., $2.00; Mr. og Mrs. G. Rack-
man, Clarkleigh, Man, $1.00;
Mr. og Mrs. H. S. Backman,
Clarkleigh, Marí , $1.00; Mr. og
Mrs. August Magnusson, Lundar,
Man., $2.00; Miss Aðalheiður
Benedictson, Otto, Man., $1.00;
Rebekka Bjarnason, Carnp Mor-
ton, Man., $2.00; Halldór J. Thor-
geirsson, Churchbridge, Sask.,
$1.00; S. Sigurdson, Lundar,
Man., $2.00; Mrs. Margret John-
son og Henry J., Bantry, N.D.,
$2.00; H. Gunnlaugsson, Gimli,
Man. 50c; Mrs. Ásdís Hinrikson,
Gimli, Man., $1.00; Mrs. Guðný
Josephson, Gimli, Man., $1.00;
Mrs. Lovísa Benson, Gimii,
Man., $1.00; Mrs. Guðbjörg John-
son, Gimli, Man., 25c; Mrs. Guð-
rún Sigurdson, Gimli, Man., 25c;
Mrs. Sigríður Vigfússon, Girnli,
Man., 50c; Miss Margaret Svein-
son, Gimli, Man., $1.00; Mr. og
Mrs. Sigurdur Sigbjörnson,
Leslie, Sask., $1.00; Mrs. G. Hall-
dorson, Gerald, Sask., $1.00.
Kærar þakkir,
V. J. E.
UM 300 MENN STARFA
VIÐ FLUGMÁL
Á ÍSLANDI
Nú sem stendur munu um 300
Islendingar hafa atvinnu sina af
flugmálum, og eru þá meðtaldir
þeir, sem vinna í þjónustu flug-
félaganna.
Hér á landi eru nú 51 íslenzk-
ur flugmaður, 35 þeirra eru at-
vinnuflugmenn, og stunda flestir
þeirra flug, en einkaflugmenn
eru 16 og hafa 12 þeirra lært hér
heima. Þá eru hér starfandi 17
eða 18 flugvélavirkjar, og í vet-
ur komu hingað frá Bandaríkj-
unum þrír fyrstu Islendingarnir,
sem lokið hafa prófi í loftsigl-
ingafræði. Nú stunda um 12 Is-
lendingar flugnám í Bretlandi
og Bandaríkjunum, og 8 til 10
nema flugvéla-virkjun, en hér
heima stunda alt að 175 manns
flugnám sér til gagns og skemt-
unar.
Hér á landi eru nú skráðar 44
flugvélar, eða miklu fleiri en
nokkuru sinni áður. Þessar 44
flugvélar bera samtals 381 mann
að flugmönnum meðtöldum, og
eru í eigu íslenzkra flugfélaga
og einstaklinga. Einstaklingar
eiga 13 flugvélar, Flugfélag Is-
lands 10, Loftleiðir h.f. 10, Flug-
skóli Akureyrar 4, Vélflugdeild
Svifflugfélags íslands á 4 og'
flugskólinn Cumulus h.f. 3.
Islenzku flugfélögin eru tvö:
Flugfélag Islands og Loftleiðir
h.f., en auk þess hefir Flugskóli
Akureyrar ákveðið að annast
leiguflug í framtíðinni.
Um flugvelli og lendingastaði
flugvéla er það að segja, að þeir
eru skráðir yfir 100 hér á landi
og hafa allir verið notaðir eitt-
hvað, en auk þess munu vera
margir aðrir lendingarstaðir hér.
60—70 hinna skráðu lendingar-
staða eru aðeins fyrir flugvélar
af minstu gerð, eins til tveggja
sæta. Alt að fjögurra sæta flug-
vélar hafa lent á 12 til 15 stöðum,
alt að 8 til 10 flugvélar á 13 stöð-
um, og alt að 20 sæta flugvélar
hafa lent á 6 stöðum, en auk þess
eru Keflavíkurflugvöllurinn og
Reykjavökurflugvöllurinn fyrir
flugvélar af stærstu gerð.
—Vísir 11. marz.
Amerísku blaðamennirnir
fara til Þingvalla
og að Sogi
Voru í boði Blaðamanna-
félagsins að Hótel Borg í gær
og skoðuðu svo bæinn.
* *
Blaðamannafélag Islands bauð
í gær amerísku blaðamönnunum,
sem hér eru staddir, til hádegis-
verðar að Hótel Borg. Auk hinna
erlendu gesta sátu hófið Bjarni
Benediktsson, utanríkisráðherra
og Eysteinn Jónsson mentamála-
ráðherra, ennfremur Thor Thors
sendiherra, Helgi P. Briem, aðal-
ræðismaður, Grettir Jóhannsson
og Árni Helgason, ræðismenn.
Mairgir aðrir embættismenn
voru viðstaddir hófið, svo sem
Sigurgeir Sigurðsson biskup,
margir starfsmenn utanríkis-
málaráðuneytisins, borgarstjór-
inn í eykjavík og nokkrir al-
þingismenn.
Bjarni Guðmundsson blaða-
fulltrúi, formaður Blaðamanna-
félags íslands, setti hófið með
snjallri ræðu og bauð gestina vel-
komna.
Eftir að gestirnir höfðu snætt
hádegisverð fylgdu blaðamenn
þeim úm bæinn og sýndu þeim
ýms söfn og aðra merka staði og
mannvirki.
í dag fara amerísku blaða-
mennirnir í boði ríkisstjórnar-
innar austur í sveitir; koma
meðal annars að Reykjum, Þing-
velli og Ljósafossi. Þeir munu
fara héðan aftur vestur um haf
á föstudaginn.
1 gærdag kom “Flagship
Reykjavík” aftur frá Stokk-
hólmi og komu þá með henni
hingað nokkrir blaðamenn frá
Norðurlöndum.
—Alþbl. 20. marz.
Borgið Lögberg
Innköllunar menn LÖGBERGS
Amaranth, Man B. G. Kjartanson
Akra, N. Dak
Backoo, N. Dakota. •
Árborg, Man K. N. S. Fridfinnson
Árnes, Man M. Einarsson
Baldur, Man. O. Anderson
Bellingham, Wash. Árni Símonarson
Blaine, Wash Árni Símonarson
Boston, Mass 384 Newbury St. Palmi Sigurdson
Cavalier, N. Dak
Cypress River, Man O. Anderson
Churchbridge, Sask S. S. Christopherson
Edinburg, N. Dak Páll B. Olafson
Elfros, Sask Mrs. J. H. GoodmuncLson
Garðar, N. Dak Páll B. Olafson
Gerald, Sask. C. Paulson
Geysir, Man. K. N. S. Friðfinnson
Gimli, Man. O. N. Kárdal
Glenboro, Man O. Anderson
Hallson, N. Dak Páll B. Olafson
Hnausa, Man K. N. S. Fridfinnson
Husavick, Man O. N. Kárdal
Langruth, Man. John Valdimarson
Leslie, Sask Jón Ólafsson
Lundar, Man Dan. Lindal
Mountain, N. Dak Páll B. Olafson
Point Roberts, Wash. S. J. Mýrdal
Riverton, Man K. N. S. Friðfinnson
Seattle, Wash. J. J. Middal
6522 DLbble N.W., Seattle, 7, Wash.
Selkirk, Man. Mrs. V. Johnson
Tantallon, Sask J. Kr. Johnson
Vancouver, B.C F. O. Lyngdal
5975 Sherbrooke St., Vancouver, B.C.
Víðir, Man. K. N. S. Friðfinnson
Westbourne, Man Jón Valdimarson
Winnipeg Beach, Man. O. N. Kárdal
Verzlunarmennlun!
Hin mikla nývirkni, sem viðreisnarstarf-
ið útheimtir á vettvangi iðju og framtaks,
krefst hinnar fullkomnustu sérmentunar sem
völ er á; slíka mentun veita verzlunarskól-
arnir. Eftirspurn eftir verzlunarfróðum mönn-
um og konum fer mjög vaxandi.
Það getur orðið ungu fólki til verulegra
hagsmuna, að spyrjast fyrir hjá oss, munn-
lega eða bréflega, varðandi námskeið við
helztu verzlunarskóla borgarinnar.
0
THE COLUMBIA PRESS LTD.
COR. SARGENT AND TORONTO ST., WINNIPEG