Lögberg - 15.05.1947, Síða 1
PHONE 21 374
\\wvo^ot3
1
\>u
ftvU''
DrV
'iSí
derer° ^o*1
°*L,ra A Complele
•'lleaning
I' islitulion
•eo. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMTUDAGINN 15. MAÍ, 1947
NÚMER 20
Vongóður um frið
Truman forseti ‘lét sér nýlega
þau orð um munn fara í samtali
við blaðamenn. að þó treglega
sýnist ganga til um friðarsamn-
inga eins og sakir stæðu, sem í
raun og veru engan þyrfti- að
undra, kæmi þó að því jafnvel fyr
en margan manninn óraði fyrir,
að komið myndi á varanlegum,
eða minsta kosti langvarandi
friði í heiminum; með fjölda af
þjóðum heims flakandi í sárum
og án brýnustu lífsnauðsynja,
hefðu flestir um annað að hugsa
en nýtt stríð; hann kvást sann-
færur um það, að sterkasta aflið
í veröldinni til þess að útiloka
styrjaldir, væri lýðstjórnar fyrir-
komulagið, þó vafalaust mætti
eitt og annað að því finna, og
margt þyrfti lagfæringar við á
þeim vettvangi, engu síður en á
öðrum sviðum mannlegra at-
hafna.
■f ♦ ♦
Atómorka ti! friðarþarfa
General A. G. L. McNaughton,
formaður atómorku rannsóknar-
nefndarinnar í Canada, lýsti yfir
því í ræðu, sem hann flutti ný-
verið í félagi verkfræðinga í
Toronto, að nú í ár yrði þremur
háskólum í Canada veittur $150,-
000 styrkur til rannsókna atóm-
orkunnar í þágu læknavísind-
anna og efnafræðinnar; þeir þrír
háskólar, sem fyrir vali urðu
þessu viðvíkjandi, eru McGill
háskólinn í Montreal, háskólinn
í British Columbia og Saskat-
chewan háskólinn.
♦ ♦ f
Tjón vegna eldsvoða
Klukkan hálftíu fyrir hádegi
þann 7. þ. m., kom upp eldur í
byggingu Canadian Fish Pro-
ducers Limited, 311 Chambers
Street hér í borginni, og er tjónið
metið að því er dagblaðinu The
Winnipeg Tribune segist frá, á
$15,000. Jafnskjótt og eldsins
varð vart, var slökkilið, fyrir at-
beina forstjórans, Mr. J. H. Page,
kvatt á vettvang.
♦ ♦ ♦
Fer að engu óðslega
Verkamannastjórnin, sem situr
að völdum í Noregi um þessar
mundir, fer sér áð engu óðslega,
og hefir nú tekið þá stefnu, að
láta þjóðnýting atvinnuvega og
fyrirtækja, liggja í láginni fyrst
um sinn; sýnist stjómin þeirrar
skoðunar, að eins og enn hagi til
í iandinu, sé þjóðinni á flestu
öðru fremur þörf, en róttækum
breytingum á iðnaðar og hags-
munakerfinu.
♦ ♦ ♦
Kolaskortur
Argentína horfist í augu við
næsta tilfinnanlegan kolaskort,
og hefir Perron forseti lagt við
því strangar skorður, að kolum
verði eigi eytt að óþörfu; telur
forseti, að muni taka að minsta
kosti fimm ár, að koma kola-
birgðum þjóðarinnar á viðun-
andi grundvöll; samkvæmt fyrir-
mælum hans mega Argentínu-
búar ekki eyða meiri kolum
næsta vetur en þeir gera í sum-
ar, stjórnarskrifstofur verða
opnar 'áðeins sex klukkustundir
á dag, og eins og nú hagar til,
l^ggja eigendur fjölbýlishúsa
aðeins til heitt vatn og hita í
sex Mukkustundir á sólarhring.
VINNUR SÉR MIKINN
FRAMA
Hans Raymond Beck, B.Sc.
Þessi ungi og efnilegi maður,
sem myndin er af, hefir nýlokið
fullnaðarprófi í rafmagnsverk-
fræði við Manitobaháskólann
með ágætiseinkunn, og verið þar
að auki sæmdur gullmedalíu há-
skólans; hann er 21 árs að aldri,
sonur þeira J. Th. Beck fram-
kvæmdarstjóra og frúar hans
Arnbjargar Svanhvítar Beck.
♦ ♦ ♦
Glæsilegt framtak
Það er ekki langt um 'liðið,
síðan íslendingar stofnuðu félag
til innanlandsflugferða, en nú
eru á landinu þrjú flugfélög, sem
til samans eiga mikinn og ágæt-
an flugvélakost.
Elzta félagið er Flugfélag ís-
lands, þar næst komu Loftleiðir
og nú síðast félagið Vængir.
Nú bafa Loftleiðir 'eignast
“Skymaster”-flugvél af allra
fullkomnustu og nýjustu gerð
og ber slíkt fagurt vitni áhuga og
glæsilegu framtaki þeirra, er að
málum standa.
Nú hefir svo skipast til, sam-
kvæmt símskeyti frá forstjóra
Loftleiða, til Grettis ræðis-
manns, að flugvél þessi, sem
keypt var í New York, fer sína
fyrstu ferð um Grand Forks og
Winnipeg til íslands fyrstu vik-
una í júnímánuði næstkomandi,
og má slíkt óneitanlega til
merkisviðburða telja í flugmála-
sögu Islands.
Lögberg flytur hlutaðeigandi
flugfélagi innilegar hamingju-
óskir í tilefni af þessum merka
áfanga í starfssögu þess.
♦ ♦ ♦
Lunahækkun
Fylkisritarinn í Manitoba, Hon.
Charles E. Greenlay, hefir ný-
verið kunngert, að laun opin-
berra starfsmanna fylkisins verði
hækkuð til muna frá 1. apríl s.l.
að telja. Útgjöld vegna launa-
hækkunarinnar nema 333,000 á
ári, en góðs af henni njóta 2,300
starfsmenn hins opinbera; þetta
var sjálfsögð kjarabót, sem ekki
þoldi lengri bið.
♦ ♦ ♦
Banatilræði í Þingsal
Sá atburður gerðist í ríkisþing-
inu í Oklahoma þann 8. þ. m.,
að neðri málstofuþingmaður,
Jimie Scott, 35 ára að aldri, veitti
öldungadeildar þingmanni Tom
Anglin, banatilræði með skamm-
byssuskoti. Mr. Scott, heimkom-
inn hermaður, hafði slitið sam-
vistum við konu sína, en hún
fengið Mr. Anglin, sem er lög-
maður, til þess að annast um
málstað sinn, en út af því hafði
risið ágreiningur milli þessara
háttvirtu samþingsmanna. Mr.
Anglin er á sjúkrahúsi og þykir
ekki hættulega særður, en Mr.
Scott gengur laus gegn 5 þúsund
dala veði.
Skemtilegur fundur
Frónsfundurinn, sem haldinn
var síðastliðinn mánudag, var
einn af þeim skemtilegustu
fundum, er félagið hefir haldið
í seinni tíð. Bæði var þáð reglu-
ieg unun að hlusta á Karlakór*
inn og píanóleik Thoru Ásgeirs-
on, og svo var mikil nýjung að
eiga kost á að hlusta á kappræðu.
Báðir ræðugarparnir höfðu und-
irbúið sig vel. Kappræðuefnið
var: “Starf Þjóðræknisfélagsins
er að mestu leyti unnið í þágu
Austur-lslendinga.” Heimir Þor-
grímsson varði jákvæðu hliðina;
tókst honum furðu vel að verja
þessa fjarstæðu. Tveggja mein-
legra sögulegra villna varð vart
hjá honum: að Þjóðræknisfélag-
ið hafi vanrækt að stuðla að ís-
'lenzku námi ungdómsins, og að
aðal tilgangur með stofnun fé-
lagsins hafi verið sá, að verja
réttindi Islendinga, sem borgara
þessa lands. Annars var ræðan
skemtileg og krydduð með
fyndni.
Prófessor Tryggvi J. Oleson
gerði hinni neikvæðu hlið góð
skil. Það virðist orðin hefð hjá
mörgum, að hallmæla Þjóð-
ræknisfélaginu — að lofa einn
með því að lasta annan. í þetta
sinn fékk félagið að njóta sann-
mælis og það var hressandi.
Ræðan öll bar vott um víðfeðma
þekkingu á ís'lenzkum fræðum.
Ánægjulegt væri að mega eiga
von á að hlusta á kapræður á
fundum Fróns næsta ár; það er
hin bezta skemtun.
I. J.
♦ ♦ ♦
HÆKKUN ELLISTYRKS
Fylkisstjórnin í Manitoba hefir
hækkað ellistyrk um $5.00 á mán-
uði, og fá nú styrkþegar $30.00
um mánuðinn að meðtöldum
þeim mánuði, sem nú er að líða.
Frumvarp sambandsstjórnar
urn breytingu á ellistyrks 'lög-
gjöfinni, verður að sögn, lagt frá
í þingi á næstunni, og skýrist
málið þá betur frá öllum hlið-
um; hækkun þessi er þó nokkur
réttarbót, er eigi þoldi lengri bið.
HEIÐURSDOKTOR
í LÖGUM
Photo bv Karsh
Hon. Siuarl S. Garson
Við uppsögn Manitobaháskól-
ans á föstudaginn kemur, verður
Hon. Stuart S. Garson, forsætis-
ráðherra Manitobafylkis kjörinn
heiðursdoktor í lögum; er hann
slíkrar sæmdar löngu maklegur.
♦ ♦ ♦
SAMNINGAR TAKAST
Frá Ottawa bárust þær fregnir
á mánudaginn, að samningar
hefðu nú tekist milli sambands-
stjórnarinnar og fylkisstjórnar-
innar í Nova Scotia varðandi
skattamálin; hefir þá sambands-
þetta mikilvæga mál við öli fylk-
in, að undanskildum Ontario og
Quebec, er enn sýna sinn fyrri
mótþróa.
♦ ♦ ♦
PALESTÍNA
Eftir nokkurt þóf á fundi sam-
einuðu þjóðanna að Lake Suc-
cess, hefir sú ákvörðun verið tek-
in, að fela ellefu þjóða nefnd, að
rannsaka Palestínumálin og
leggja fram álit sitt í september
mánuði næstkomandi. Canada er
ein þessara ellefu þjóða. Rússar
vildu, að Pelstína fengi fullveldi
innan sex mánaða, en mikill
meirihluti sameinuðu þjóðanna
var því mótfallinn og var þeirr-
ar skoðunar, að lausn málsins
tæki lengri undirbúningstíma.
♦ ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
SÁ SEM ÉG LEITA
Eftir AUDREY ALEXÖNDRU BROWN
Ef hér á jörð eg hefi leitað þín,
en hvergi fundið — Brugðist vonin mín —
Ef leitin sú um hús, sem öll voru’ eins
að efni og lögun, hvergi varð til neins.
Ef sigurlaus eg leitað hef að þér
í lífigæddri veru — skyldri mér —
þó glögt eg vissi hana hræra sig:
með holdi og blóði — eins og sjálfa mig.
Já, hvernig ætti eg þig að finna þar
í þeirri alvídd rúms og eilífðar,
sem alla vega blasir móti mér,
þá mannleg dvöl á jörðu þrotin er?
Og hvernig ætti eg sál að þekkja þar,
í þessu lífi, sem mér ókunn var?
Með hvaða táknum, sem hún auðkend er,
hvort er það víst þau nægðu að benda mér?
En samt á vonarvængjum hef eg flug
— og vonin hún er næstum almáttug —
Eg út í myrkrið flýg með traust og trú —
Eg trúi því að heim mér lýsir þú.
Að eins og viti úr ólgusævi rís,
í áttir bendir, þar sem höfn er vís,
að þannig muni lýsa ljósið þitt
og leiða mig í þráða sætið mitt,
SIG. JÚL. JÓHANNESSON.
♦ ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
Úr borg og bygð
Tilkynning
Hið tuttugasta og þriðja árs-
þing Bandalags lúterskra kvenna
verður haldið í Sunrise Lutheran
Camp, Husavick, dagana 22.—24.
júní n. k. Þingið hefst með guðs-
þjónustu í hinum nýbygða minn-
ingarskála sumarbúðanna sunnu-
daginn 22. júní, kl. 2.30 (fljóti
tíminn). Við þá guðsþjónustu
verður minningarskálinn vígður.
Kvenfélögin tilheyrandi Banda-
laginu eru hér með ámint um að
kjósa þá fulltrúa, sem þeim ber
að senda. Konur eru einnig
beðnar að hafa það í huga að
hannyrðasýning fer fram á þing-
inu eins og undanfarin ár. Eru
'konur úr hinum ýmsu ‘bygðum
beðnar að senda muni á sýning-
una með fulltrúum félaganna.
Kvenfélög frá Árborg, Geysir og
Víðir annast um móttöku þing-
gesta og fulltrúa. Framkvæmd-
arnefnd Bandalagsins annast um
veitingar að lokinni guðsþjón-
ustu á sunnudaginn.
Prógram þingsins verður aug-
lýst síðar.
Ingibjörg J. Ólafsson.
forseti Bandalagsins.
♦
Heimsókn til Betel
Á sumardaginn fyrsta kom í
heimsókn til Betel kvenfélag
Minervabygðar, og færði vist-
mönnum rausnarlegar veitingar;
skemtu allir sér hið bezta við
glaðværar samræður. Forstöðu-
kona og vistmenn þakka hlutað-
eigendum innilega þessa kær-
komnu heimsókn.
♦
Ungfrú Sigríður Jochumsdótt-
ir, sem dvalið hefir árlangt hér í
borg hjá bróður sínum og tengda-
systur, þeim Mr. og Mrs. Jochum
Ásgeirsson, lagði af stað heim-
leiðis til Islands á mánudags-
kvöldið og mun sigla frá Hali-
fax rétt eftir miðjan mnáuðinn.
♦
Isleifur Helgason, einn af
frumbyggjum Árnesbygðar, and-
aðist snögglega 3. þ. m., í grend
við Prince Rupert, B.C. Þrjú
börn lifa föður sinn: ísleifur og
Guðmundur, eru búsettir í Ár-
nesi og Mrs. Innes lifir í Winni-
peg. Guðmundur bróðir hins
'látna býr í Árnesi. Útförin fór
fram frá Lútersku kirkjunni í
Árnesi, að fjölmenni viðstöddu.
Séra Skúli Sigurgeirson jarð-
söng; einnig mælti kveðjuorð
séra Sigurður Ólasson.
♦
Mr. Sigurður Sigfússon frá
Oak View, Man., er staddur í
borginni þessa dagana.
♦
The Junior Ladies Aid of the
First Lutheran Church will wind
up the season wit a Pot Luck
Luncheon on Tuesday, May 20th,
in the Church Parlors commenc-
ing at 1.30 p.m. All members are
urged to come.
♦ ■
Mr. og Mrs. Hallgrimur Sig-
urdsson frá Gimli eru stödd í
borginni þessa dagana.
♦
Mr. Gísli Einarsson frá River-
ton delur í borginni um þessar
mundir.
♦
Frá Hlíf Talcott; sem dvalið
hefir hér um slóðir í tveggja
mánaða tíma, lagði af stað suður
til New York, en leggur þaðan af
stað til íslands í heimsókn til
systkina sinna seinni part mán-
aðarins; frú Hlíf er dóttir séra
Péturs heitins Þorsteinssonar frá
Eydölum í Suður-Múlasýslu.
♦
Mrs. George Johannesson er
nýlega farin vestur til Edmon- .
ton í heimsókn til sonar síns og
tengdadóttur.
Mr. Hermann Nordal fram-
k^æmdarstjóri fyrir North
American Lumber Company að
Binscarth, Man., kom til borg-
arinnar um miðja fyrri viku
með konu sína til lækninga.
♦
Mr. Jón Mýrmann frá Síeep
Rock lagði af stað á fimtudaginn
í skemtiferð vestur til Victoria,
B. C.; hann gerði ráð fyrir að
verða um hálfsmánaðartíma í
ferðalaginu.
Hallur Jónsson, Víðir, Man.,
hefir beðið Lögberg að flytja
Jóns Sigurðssonar félaginu hjart-
ans þakkir fyrir bréf sér afhent
frá forseta þess, Mrs. Floru Ben-
son, sem bæði hafði inni að halda
fégjöf og mörg hugðnæm hlut-
tekningarorð, til hans og sonar
hans, Einars, sem á sjúkrahúsi
hefir hér um marga mánuði
dvalið. Ennfremur þakkar hann
Mrs. H. G. Hinrickson og fleiri
konum í J. S. fél. fyrir heimsókn-
ir á sjúkrahúsið til drengsins.
♦
Guitormur J. Guttormsson
flytur erindi
Á lokasamkomu Icelandic
Canadian Evening School, sem
haldin verður í Goodtemplara-
húsinu, mánudagskveldið 19.
maí, flytuir Guttormur J. Gutt-
onmsson, skáld, erindi á íslenzku
um “Frumbyggjana í Norður
Nýja íslandi.” Óþarft er að aug-
lýsa Guttorm sem ræðumann.
hann er svo vel kunnur fyrir orð-
snilli og afburða skörungsskap í
firamsetningu. Yfirleitt er hann
álitinn einn hinn allra skemti-
legasti ræðumaður, sem við eig-
um völ á.
Ennfremur verður á skemti-
skránni söngur og upplestur.
Níu ára gömul stúlka, sem er
efni í frábærlega góðan upples-
ara, fer með íslenzk ljóð. Hún
er dóttir Mr. og Mrs. F. Kristjáns-
son og heitir Unnur Ann. Hún
hefir verið nemandi á Laugar-
dagsskólanum.
Ein af okkar færu og hjálpfúsu
söngkonum, Mrs. Elma Gíslason,
syngur nokkur lög, sem samin
hafa verið af Mrs. Louise Otten-
son Gudmunds. Mrs. Gudmunds
hefir ágæta ^æfileika á tónlistar-
sviðinu, og hafa tónsmíðar henn-
ar vakið eftirtekt meðal hér-
lendra.
Mrs. Gíslason syngur þessi lög:
Sleep O, Shining Love; Song of
Seasons; Caprice; The Spinner’s
Song; þessi fjögur ljóð eru eftir
Mrs. Lauru Goodman Salverson.
Einnig syngur hún: Dagarnir,
eftir Tóm. Guðmundsson og
Mamma ætlar að . sofa, eftir
Davíð Stefánsson. Mrs. Gud-
munds vann fyrstu verðlaun
fyrir The Spinner’s Song, í tón-
listarsamkepni, sem haldin var
af California Composers Society
árið 1940, og aftur fyrstu verð-
laun 1941, fyrir Mamma ætlar að
sofna.
♦
Mr. O. Eirickson frá Oak View,
var staddur í borginni í byrjun
vikunnar.
♦
Mr. Otto Kristjánsson, bygg-
ingameistari frá Geraldton, Ont.,
er stadur í borginni um þessar
mundir, ásamt frú sinni.