Lögberg - 15.05.1947, Qupperneq 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 15. MAÍ, 1947
1
Minning merkrar konu
Allir dagar eiga kvöld og engin
öfl fá því hamlað, að stundaglas-
ið renni út; fyr eða síðar dregur
að leiðarlokum fyrir allar þær
lífverur, er dagsljós líta á þess-
ari jörð; öll leiðarlok mannlegr-
ar ævi eru blandin nokkurum
sársauka, þótt með mismunandi
hætti sé; skilnaðurinn hefir ávalt
trega í för með sér, þótt hann
svipmerkist jafnframt af hljóð-
látri þökk, er aldurhnigið sam-
ferðafólk, sem lifað hafði fögru
og nytsömu lífi safnast til feðra
sinna og sameinast alfegurð ó-
dáinslanda; það þarf ekki framar
að spyrja: Vökumaður, hvað líð-
ur nóttunni, eða hvað ætli nú sé
langt til dags? Því hafa vaxið
vængir til flugs, og það hefir
runnið saman við daginn mikla.
Eg er einn þeirra mörgu, sem
kveðja með þakklátum trega frú
Sveinbjörgu Laxdal; eg var ung-
ur heiðarsveinn, er eg fyrst
kyntist henni á Vopnafirði ásamt
Grími verzlunarstjóra, manni
hennar; í litlu þorpi var kaup-
maðurinn eða verzlunarstjórinn
í höfðingjatölu; það var því, að
rninsta kosti í vitund margra,
hreint ekki svo lítið djúp staðfest
milli hans og umkomulítilla ung-
linga innan úr öræfabygðum;
kaupmanns- eða verzlunarstjóra
frúin, skipaði einnig sérstæða
virðingarstöðu í bæjarfélaginu,
ekki sízt væri hún slíkum kost-
um búin sem frú Sveinbjörg var;
mér fanst hún vera fremsta
kona bæjarins, “First lady of the
land'’ í Vopnafjarðarkaupstað;
eg kom oft á heimili þeirra Gríms
og Sveinbjargar á þeim árum, og
naut þar jafnan hinnar mestu
alúðar. t
Fru Sveinbjörg var kona fríð
sýnum og prúð í fasi; henni var
í engu fisjað saman, eins og ævi-
starf hennar í tvennum heims-
álfum ber svo glögg merki um.
Það liggur í augum uppi, hve
róttæk aðstöðubreyting það var
fyrir frú Sveinbjörgu, að flytja
úr tiltölulega hægu kaupstaðar-
lífi á íslandi og gerast landnáms-
kona í nýbygðinni við Leslie í
Saskatchewan; en það var með
hana eins og flest fólk, sem eitt-
hvað verulegt er spunnið í, að
hún þroskaðist og styrktist við
andstæðurnar í stað þess, að af-
magnast eða veiklast.
Frú Sveinbjörg Laxdal var
fædd á Seyðisfirði þann 17. dag
desembermánaðar árið 1863; voru
foreldrar hennar þau hjónin
Torfi Jónsson og María Bjarna-
dóttir og hjá þeim ólst hún upp;
hún giftist á Akureyri 1888,
Grími verzlunarmanni Laxdal,
og stofnuðu þau þá til heimilis á
Húsavik og dvöldu þar fram til
ársins 1897, er þau fluttust til
Vopnafjarðar. þar sem Grímur
tókst á hendur verzlunarstjóra-
stöðu; dvöldu þau þar alllengi við
vaxandi vinsældir unz þar kom,
að þau hurfu til Akureyrar þótt
eigi festi þau þar rætur, en hygði
í þess stað á vesturför, kom
Frú Sveinbjörg Laxdal
Grímur vestur um haf 1907 og
nam land í Lesliebygð í Saskat-
chewan, eins og áður var vikið
að, en fjölskyldan kom til móts
við hann tveimur árum síðar;
marg voru handtök landnáms-
konunnar frá Seyðisfirði í hinu
nýja umhverfi vestur á sléttum
Saskatchewan-fylkis; þau voru
ekki talin eftir, því þar var hinn
fórnfúsi móðurkærleiki að verki,
sem umvafði alt og alla; heimilis
hollustan var frú Sveinbjörgu
jafnan alt í öllu; henni var sýnt
um það, að vera góð eiginkona
og ástúðleg móðir.
Frú Sveinbjörg var um flest
mikil gæfuikona; hún naut um
langa ævi samvistar ágæts eigin-
manns, börn þeirra mönnuðust
vel, og í því var fólginn mikil-
vægur lífssigur.
Hér verða börn þeirra frú
Sveinbjargar og Gríms tilgreind
í aldursröð:
Rannveig Lund, Raufarhöfn,
Marja Björnsson, Ashern, Mani-
toba, Þórður Eggert, Kuroki,
Sask., Jóna Thorlacius, Kuroki-
Sask., Ólafur, Mt. Vernon, Wash-
irngton, Maja Eggertson, Winni-
peg, Jón Kristján skólastjóri á
Gimli og Kristín Tait, Miami,
Florida; eitt sveinbarn mistu
þessi mætu hjón; eina systur
lætur frú Sveinbjörg eftir sig,
Guðrúnu, sem nú dvelur á elli-
heimilinu Betel á Gimli.
Frú Svéinbjörg lézt á Betel
þann 23. apríl síðastliðinn og var
jarðsungin 27. s. m. Á elliheim-
ilinu mæltu fram minningarorð
þeir séra Skúli Sigurgeirsson og
séra Eyjólfur J. Melan, en í
kirkju sambandssafnaðar á
Gimli, flutti séra Eyjólfur hin
hinstu kveðjumál; jarðsett var í
Gimli grafreit, þar sem fjöldi
mikill íslenzkra Birkibeina úr
landnemasveit, nýtur værðar, að
afloknu löngu og ströngu dags-
verki. Um minningu frú Svein-
bjargar Laxdal mun jafnan bjart
verða; hún var góð kona, sem
gengið hafði langa ævi á guðs-
vegum og verið samferðasveit
sinni til fyrirmyndar að skyldu-
rækni og ástúð.
E. P. J.
Um manninn
Tilraunir hafa sýnt, að maður-
inn er máttlausastur þegar hann
vaknar á morgnana. Við morgun-
matinn styrkist hann og heldur
áfram að styrkjast þangað til kl.
2. Þá er hann fyrst “í fullu fjöri.”
Síðan dregur af honum eftir því
sem á daginn líður.
En þér vegið 70 kíló þá eru í
yður þessi efni: fita, sem nægja
mundi til þess að famleiða eina
stöng af Sólskissápu; kolefni, sem
nægja mundi í 9000 blýanta; fos-
íór, sem nægja mundi í kveiki-
efni á 2200 eldspýtur; magnesium
1 eina inntöku af salti; járn, sem
dygði í eina meðalstóra saumnál;
kalk, sem nægði til að mála hæn-
sakofa; brennisteinn, sem nægði
til að drepa flær í einum hundi;
°S að lokum eitt gallon af vatni.
Ef þér viljuð vita hvað þér get-
ið feraðst langt á einni mínútu,
Þá eru hér nokkrar tölur: Á flugi
13,610 metra, í^bifreið 10,810 m.,
með því að detta 19,200 m., á
gufuskipi 1,060 m., á reiðhjóli
948 m., á skautum 743 m., á
hlaupum 482 m., á róðrarbáti 287
m., á göngu 274 m. og á sundi 103
metra.
í heilbrigðum manni eru 25
billjónir rauðra blóðkorna. Ef
þeim væri raðað hlið við hlið,
mundu þeir þekja 3000 fermetra
svæði.
Reglulegur hjartsláttur er 72
slög á mínútu. Ef þér lifið heil-
brigður í 70 ár þá hefir hjartað
dælt 28 milljónum lítra af blóði
í gegn um æðar yðar.
Á einni mínútu andið þér að
yður 410 ferþumlungum af lofti.
Á sama tíma getið þér talað 150
orð greinilega, en ekki skrifað
nema 30—40 orð.
(Lesbók)
GUÐRON GlSLASON
Kveðja frá frænda, ort af Gutiormi J. Guttormssyni.
Þú varst mér góð sem systir, sem systir varst mér kær,
og síðan þú varst lítið barn, mér anda og hjarta nær;
við fylgdumst að í hugsun, þótt færi hvort sinn veg,
þótt fjarlægð skildi vegi, áttum samleið, þú og eg.
I frændaliði átti eg þig sem vænsta vininn að,
við vorum ekki systkin — en skyldairi en það,
því saman er við höfðum okkar sannfæringar leitt
og séð frá báðum hliðum — okkur greindi ekki á um neitt.
Og myndin þín í sálu mína greypt hún gleymist ei,
hún geymist þar í friði hvort sem lifi eg eða dey.
Og hún er það, sem dauðinn ekki megnar af að má,
hann megnar ekki að taka það 1 burt sem sálin á.
Og jafnvel þó um firamhaldslíf menn slái úr og í
og enginn viti gerla hvað er sannleikur í því.
er endurfunda að vænta fyrir handan dauðans hyl.
Ei hefir nokkur takmörk sál, sem altaf- verður til.
Business and Professional Cards
— — J,u
Thule Ship Agency Inc. 11 Broadway, New York, N.Y. uraboðsmenn fyrxr h.f. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS (The Icelandic Steamship Co. Ltd.) FLUGFÉLAG ISLANDS (The Icelandic Airways Ltd.) Vöru- og farþegaflutningur frá New York og Halifax til íslands. RUDY’S PHARMACY COR. SHERBROOK & ELLICE We Deliver Anyu'here Phone 34 403 Your Prescriptions called for and delivered. A complete line of baby needs.
H. J. STEFANSSON TAfc, Accident and Health Jnsurance Representing: THE GREAT-WEST L.1FE ASSURA’NCE COMPANY Winnipeg:, Man. Phone 96)144 Dr. S. J. Jóhannesson 215 RUBY STRKET (Betnt suBur af Bannlng) Talsimi 30 877 VlBtalstimi 3—6 eftir hádegl
♦ ♦♦♦♦♦♦♦
Söngför Einars
Einar Kri'stjánsson söngvari
mun halda nokkura konserta hér
síðari hluta mánaðarins, en um
mánaðamótin mun hann syngja
aðalhlutverkið í óratóríinu Judas
Makkabæus eftir Handel.
óratóríó þetta hefir ekki verið
flutt hér áður, en það verður
flutt á vegum Tónlistarfélags-
ins. Einar hefir hinsvegar sung-
ið nokkrum sinnum í því er-
lendis. Á konsertum sínum mun
Einar syngja lög eftir Schubert
og Brahms, auk arja og íslenzkra
laga. En viðfangsefnin verða
öll önnur en þegar hann söng hér
eftir heimkomuna í haust. Þá er
sennilegt, að Einar syngi Vetrar-
ferðina eftir Schubert, sem hann
hefir sungið hér einu sinni áður.
Þegar Einar fór utan s.l. vetur
hélt hann fyrst til Lundúna, þar
sem hann söng fjögur lög á plöt-
ur fyrir “His Master’s Voice” og
eru þær væntanlegar hingað á
næstunni. Síðan fór hann til
BRÉF TIL VÍGLUNDAR
VIGFÚSSONAR
FRÁ ÚTHLÍÐ
Kæri vinur minn!
Þú hefir verið í huga mínum
þennan morgun, svo eg tek mér
hvíld frá starfi mínu úti við, og
vil nú minnast þín í fáum penna-
línum. Fyrst er nú frá því að
segja að mér líður vel, á sál og
líkama, sem eg lofa Guð fyrir,
hátt og í hljóði. Þú veist það,
vinur minn. Eg er nú sestur að
hér í boirginni New Westminster,
B.C. Kom hér þann síðasta marz,
og settist loksins að í húsi er
dóttir mín, Mabel og Páll minn
keyptu í sameiningu. gamalt hús
með traustum veggjum og sterkri
undirstöðu. Vinsamlegt aðsetur
fyrir gamla, sem ekki líta fyrst
og fremst á prjálið. Eg hefi nóg
að iðja alla daga. Hefi lokið við
að stinga upp og sá í garðinn
minn, — sem er ekki stór eftir
ykkar mælikvarða, en getur gef-
ið af sér furðu mikið hér. Hefi
sett niður strawberries og
raspberries og strawberries farin
að blómgast; margt smávegis
komið upp, og kartöflur líka.
Já, þetta er nú blessað og gott.
Og svo á sunnudögum, geng eg
í sænsku kirkjuna hér á strætis-
horninu, og er tekið þar sem vini.
Fólkið heilsar mér, og gamla
fólkið spjallar sitt móðurmál við
mig, sem glæðir minnið mitt á
það, er eg kunni býsna vel í fyrri
daga. Ekki er þó prédikun eða
söngur á því tungumáli, heldur
ensku, því þó prestur heiti Ole-
son og sé sænskur í báðar ættir,
kann hann ekki móðurmál sitt.
Finst þar mikið á vanta fyrir
honum; en hann er mjög þægi-
legur, og hefir heimsótt mig.
Finst mér sem þeir sænsku hafi
fundið svartan sauð, úr íslenzku
haglendi. Ber hér öðruvísi við
en þá er eg gekk í kirkju með
þér í Winnipeg í tvo vetur. Þú
manst. Þar var eg algerlega
svartur sauður til flestra, nema
þín og prestsins og Arinbjamar
♦ ♦♦♦♦♦♦
Kristjánssonar
Norðurlanda, Danmerkur og
Svíþjóðar og söng m. a. við jóla-
konsert Politikens í Höfn. Að-
stoðuðu þar margir þektir lista-
menn frá ýmsum löndum
Evrópu.
í Stokkhólmi söng Einar í
óperunni og var tekið forkunnar
vel, svo að honum standa þar
opnar allar dyr, er hann fer utan
á ný. Meðan hann var þar fékk
hann tilboð um að koma til Vín-
arborgar og syngja þar, en ekki
er ráðið, hvort hann fer þangað.
Loks söng Einar í Álaborg og
voru dómarnir um söng hans þar
svo góðir, að blöðin slógu því
föstu, sem satt er, að hann sé
söngvari á heimsmælikvarða.
Líkti eitt blaðið honum við Gigli.
Má segja í fáum orðum, að þessi
för Einars til Norðurlanda hafi
verið sigurför og er hann — lítt
þektur er hann kom þangað —
viðurkendur þar söngvaxi í
fremstu röð.—Vísir 12. apríl.
Bardal. Þó mér gerði þetta lítið
til, fann eg enga hlýju eða vin-
áttumerki um það, að eg væri
velkominn í þeirra hóp. Kristnir
menn ættu að skoða alla vel-
komna í kirkju sína, þó lítilmót-
legir séu, eða skjátlast mér hér?
Hér hefi eg sagt heldur mikið,
og verið of berorður, en eg segi
það þó í góðri meiningu, og vildi
að það gæti orðið breyting á því.
Þá er nú að minnast á veðrið.
Um það tala fáir hér, heldur um
dollarinn, þessi máttugi kraftur
jarðarbúa er flestra manna aðal
áhugamál og umtalsefni. En eg
sem safna ekki auði þessa heims,
en nýt góðveðursins og gæsku
Guðs, er glaður yfir smá-centun-
um og heilsubata mínum og góð-
viðrinu.
Þú manst, að mér leið stund-
um ónotalega af brjóstveiki í
Winnipeg, og eins gerði mér er
eg átti heima í Kamloops, B.C.,
en svo brá við er eg kom hér um
jólin í vetur, að það hvarf með
öllu, og hefi eg ekki fundið til
þess síðan. Eg sit nú hér við
suðvestur gluggann í herbergi
mínu, og sé yfir “Lulu Island” og
Fraserár-mynnið og part af borg-
inni, því eg er uppi í hárri brekku
sem hafin er yfir þoku og reyk-
háfa frá sögunarmyllunum við
ána eða ármynnið. Hefi eg lítið
að lesa, nema þá er íslenzku
blöðin koma, en nú hefi eg ekki
fengið Lögberg í tvær vikur;
vona að ritstjórinn hafi ekki fatl-
ast frá starfi sínu. Hefi notið
mikillar ánægju af ferðasögu
hans um ísland og fleiru, er hann
hefir ritað í blaðið.
Óska honum og blaðinu allra
heilla og langra lifdaga.
Vil nú ekki hafa þetta lengra,
því svona löguð skrif eiga ef til
vill ekki við opinber blöð.
Heill sé þér vinur! og ham-
ingjuóskir í framtíðinni, og
gleðilegt sumar.
Þinn altaf sami vinurinn,
Krisíján Ólafsson,
frá Hábæ.
New Westminster, B.C.
30. apríl, 1947.
DR. A. V. JOHNSON
DentUt
506 SOMKRSET BUILDINO
Telephone 97 939
Home Telephone 202 398
Tabsími 95 826 Heimilis 53 893
DR. K. J. AUSTMANN
SérfrœOingur * augna, eyma, nef
og kverka sjúkdómum.
215 Medical Arts Bldg.
Stofutlmi: 2.00 til 5.00 e. h.
DR. ROBERT BLACK
BérfrcrOingvr l augna, r-gma,
nef og hdlssjúkdómum.
416 MEDICAL ARTS BUDG
Qraham and Kennedy St.
Slcrifstofuslml 93 851
Holmaslmi 42 154
EYOLFSON'S DRUG
PARK RIVER, N. DAK
Islenxkur tyfsaU
Fðlk getur pantaO meOul og
annaö me8 pösti.
Fljöt afgreiBsla.
A. S. B A R D A L
848 SHERBROOK STREBT
Selur llkklatur og annast um 4t-
farlr. Allur ötbúnaBur að. beatl.
Ennfremur seiur hann allskonar
mlnniavaxBa og legstelna.
Skrifatofu talslmi 37 924
Heimilis talslmi 25 444
Phone 97 291 Eve. 26 002
J. DAVIDSON
Real Estate, Financial
and Insurance
ARGUE BROS. LIMITED
Lombard Bldg., Winnipeg
PKINCEJ/
MESSENGER SERVICE
ViB flytjum klatur og tðakur,
hösgögn úr amnrrt IbúBum,
og húamuni af öllu tael
58 ALBERT 8T. — WINNIPEO
Slml 25 888
C. A. Johnaon, Mgr.
TELEPHONE 94 358
H. J. PALMASON
and Company
Ohwtered Accountants
1101 McARTHUR BUILDINO
Wlnnlpeg, Oanada
Phone 49 4(9
Radlo Service Speolalkata
ELECTRONIC LABS.
H. THORKSLBOH, Prop.
The moet up-to-data Sound
Equipmont Byatetn.
120 OSBORNB ST„ WINNIPBO
O. T. Jonaaeon, Prea. & Man. Dtr.
Keystone Fisheriee
Limited
404 8COTT BLOOK SlMI 99 22T
Wkoletale Distributors of
FRB8H AND FROZBN FI8H
Manitoba Fisheries
WINNIPBQ, MAN.
T. Bercovttoh. fram.kv.stj.
Varmla í heUdaölu meS nýjan og
froeinn fWk.
808 OWBNA 8TRBET
Hkrlfat afml 21 U( Heima II 4U
DR. E. JOHNSON
304 EVELINE STREET
Selkirk, Man.
Office hra. 2.30—6 p.m.
Phones: Offlce 26 — Ree. 280
Offlce Phone Res Phone
94 762 72 40»
Dr. L. A. Sigurdson
526 MEDTCAL ARTS BLDG.
Offlce Hours: 4 p.m.—6 p.m.
and by appolntnient
Drs. H. R. and H. W.
TWEED
Tannlceknar
406 TORONTO QEN. TRUST8
BUILDINQ
Cor. Portage Ave. og Smith 8t.
PHONK »6 962 WINNIPBO
DR. J. A. HILLSMAN
Burgeon
302 MEDICAL ARTS BLDQ
Plxone 97 32»
Dr. Charles R. Oke
T annlcskntr
For Appolntmenta Phone 14 III
Office Houra »—I
404 TORONTO QEN. TRUST8
BUILDINQ
283 PORTAQB AVB.
Wlnnlpeg, Man.
SARGENT TAXI
PHONE 34 555
For Qutck Keliabte Bervioe
J. J. SWANSON & CO.
LIMITED
308 AVENUE BLDQ WPG.
Fasteignaaalar. Leigja húa. Ot-
vega penlngaUin og elda&byrgf).
bifrelBa&byrgB, o. a. frv.
PHONE »7 688
Andrews, Andrewa,
Thorvaldson and
Eggertson
LOgfrceOtmgar
209BANK OF NOVA SCOTIA BO.
Portage og Qarry St.
Simi 98 211
GUNDRY PYMORE
Limited
Britísh QuaMty Fish NetMng
M VICTORIA ST„ WINNIPBQ
Phone 98 111
Uanager T. R. THORVALDMOS
Tour patronage wlU be appreoiatad
C A N A D I A N FISH
PRODUCERS, LTD.
J. H. PAOB, Managing Ðirocéor
Wboleaale Distributora of TrtUa
and Froaen Ftah.
211 CHAMBBRS STREBT
Offlce Ph. 26 319 Raa. Ph. Tl 91f
Hhagborg U
FUEL CO. n
e
DU121SÍ1 21M1