Lögberg - 15.05.1947, Side 4
4
--------Hosberg----------------------
OefiS öt hvern fimtudíLg af
THE COLUMBIA PRESS, LIMITED
695 S’argent Ave., Winnipeg, Manitoba
Utanáskrlft ritstjórans:
EDITOR LÖGBERG
Í95 Sargrent Ave., Winnipeg, Man.
Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON
Verð $3.00 um árið—Borgist fyrirfram
The “Lög'berg'” is printed and published by
The Columbia Preea, Limited, 695 Saxgent
Avenue, Winnipeg, Manitoba, Canada.
Authorized as-Second Class Mail,
Post Office Dept., Ottawa.
PHONE il 804
Minningabrot úr
íslandsförinni 1 946
Eftir EINAR P. JÓNSSON
Eftir að úr Austurlandsförinni kom,
áttum við tveggja daga dvöl í Reykja-
vík, og þótti okkur hreint ekki svo lítið
út í það varið, því nú gafst okkur kostur
á að litast nokkuð um í höfuðborginni
og heilsa upp á marga vini: fyrri morg-
uninn var eg árla á fótum, og sagði konu
minni, sem átti von á vinum á hótelið,
að eg ætlaði að skreppa upp á Amt-
mannsstíg og bjóða gömlum vini mín-
um, séra Friðriki Friðrikssyni æsku-
lýðsleiðtoga, góðan daginn; er upp að
húsi Kristilegs félags ungra manna kom,
varð eg þess skjótt áskynja hve breytt
var orðið þar umhorfs, því nú var búið
að byggja við gamla húsið. og gera það
að öllu leyti vistlegra; eg drap á dyr, og
til dyranna kom að vörmu spori kona,
sem eg ekki þekti og spurði eg hana um
íbúð séra Friðriks, og vísaði hún mér
þangað; hurðin var í hálfa gátt; eg gerði
mig heimakominn, óð inn, eins og eg
var vanur að gera í gamla daga, og
hitti þar séra Friðrik lítið breyttan eftir
öll þessi ár; hann fagnaði mér með
þeirri hjartahlýju, sem hann jafnan er
svo auðugur að, lagði hendi á öxl mér
og sagði brosandi: “Þá hefi eg nú loks-
ins endurheimt týnda soninn; betra er
seint en aldrei. Segðu mér nú hrein-
skilnislega eins og er, hvernig líður
Hansa mínum; með Hansa átti hann við
uppeldisson sinn, Hans Sveinsson mál-
arameistara í Winnipeg; eg sagði að
hann hefði beðið mig fyrir kveðju, og
lifði að því er eg bezt vissi eins og blóm
í eggi. “Gott, ágætt, en því skreppur
strákurinn ekki heim; þetta er ekki
orðið nema stekkjarganga eins og við
kölluðum það í uppvexti mínum; eg kom
fljúgandi norðan af Steingrímsfirði í
nótt og er alveg eins og nýsleginn tú-
skildingur; eg heyrði það yfir útvarpið,
að þið hefðuð flogið heim alla leið að
vestan, og víst er um það, að ekki berð
þú utan á þér nein veruleg þreytumerki;
eg vil ekki leggja undir mig lönd nema
þá helzt í andlegum efnum, og þá eink-
um með hliðsjón af æskunni, æsku þjóð-
ar minnar; hún er ætíð jafn elskuleg; en
að leggja undir sig loftið, er annað mál,
og þegar eg gat ekki sjálfur látið mér
vaxa vængi, gerði tækni þjóðar minnar
það fyrir mig, að búa til vængi handa
mér, áttræðum galgopanum! Þú ert
gestur og eg hefi alt af orðið. En hvað
er um þig, hvernig er líðan þinni háttað;
því ætti eg að spyrja um þetta, eins og
það liggi ekki utan á þér?”
“Þú varst í Danmörku öll styrjaldar-
árin, eða var ekki svo?” spurði eg séra
Friðrik. “Hvernig fór um þig?” “Vel,
það fer altaf og alls staðar vel um mig;
en það var verst með kaffið; að síðustu
vandi eg mig á að drekka te, lútsterkt
te, og eg drekk ekki annað síðan; mér
þykir te eins gott nú og mér þótti
kaffið hér fyr meir; þú verður að skoða
með mér nýju salina í húsinu mínu, og
spila fyrir mig eitt eða tvö sálmalög, þú
ættir að geta það enn, þó nokkuð sé nú
langt um.liðið síðan þú varst organisti
hjá mér í félaginu okkar.”
Séra Friðrik er um margt einn af
hollustu áhrifamönnum íslenzku þjóð-
arinnar, þeirra, er nú standa ofar moldu;
hann vakir yfir íslenzkri æsku með föð-
urlegri umhyggju og hefir gert það í
marga tugi ára við miklum og blessun-
arríkum árangri; hann nýtur enn beztu
heilsu og fylgir fram hugðarmálum sín-
um með brennandi áhuga; hann er
sterkur, en kreddulaus trúmaður, sem
má ekki heyra það nefnt á nafn, að
jörðinni sé líkt við táradal; hún sé og
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 15. MAÍ, 1947
eigi að vera, bústaður frjálsborins fólks,
sem trúi á sígildi og eilífðarfegurð lífs-
ins.
Eg hafði dvalið um klukkustund hjá
séra Friðriki, þessum gamla og kæra
vini mínum, og það var í rauninni þó
nokkuð lengur, en ferðaáætlunin eða
dagskráin leyfði; hann bað ástúðlega
að heilsa konu minni, og þegar- við
kvö&dumst, bað hann mig þess síðastra
orða, að skila kveðju til Hansa.
Eg hraðaði mér niður á Hótel Borg
til fundar við konuna, því við höfðum
einsett okkur, að lifa saman æfintýri
á gönguför fyrir hádegið þenna undur-
fagra og sólríka dag; við gengum fyr^t
vestur í Aðalstræti í þeim tilgangi fyrst,
að heimsækja Svein Sigurðsson rit-
stjóra Eimreiðarinnar á skrifstofu hans
í bókastöðinni, sem kend er við tíma-
ritið, og var okkur samstundis vísað inn
til hans; við Sveinn vorum kunningjar
frá fornu fari og tók hann okkur hjón-
um með hinni mestu alúð; hann er ætt-
aður af Seyðisfirði, útskrifaður í guð-
fræði af háskóla íslands, en aldrei þegið
prestvígslu; en hann er áhrifamikill
kennimaður og menningarlegur leiðtogi
engu að síður; bera gagnhugsaðar og
mergjaðar ritgerðir hans í Eimreiðinni
þess ljós merki, svo sem greinakaflar
hans “Við þjóðveginn”, er í sér fela
samanþjappað yfirlit yfir helztu við-
burði og megin strauma og stefnur ís-
lenzks þjóðlífs frá mánuði til mánaðar,
frá ári til árs; það gengur enginn þess
dulinn, er ritgerðir Sveins Sigurðssonar
les, að á bak við þær standi djarfhugs-
andi sannþjóðrækinn ílsendingur, sem
veit hvað hann vill, og fer heldur ekki í
launkofa með skoðanir sínar. þótt mjög
stingi þar í stúf um hófstilta frásögn
við æsinga moldviðrið, sem svo víða í
öðrum tímaritum og blöðum þjakar
þjóðinni og glepur henni sýn.
Sveinn Sigurðsson er gott ljóðskáld
og skygn á bókmentir; mun það nokk-
urn veginn almælt, að hann sé einn hinn
allra ábyggilegasti ritdómari íslenzku
þjóðarinnar um þessar mundir. Sveinn
spurði mig margt um menn og málefni
meðal íslendinga vestan hafs, og eg
spurði hann margra gagnspurninga
líka; við töluðum saman um Austurland,
sýsluna okkar beggja, sem við unnum
báðir — og hann hafði oft svo fagurlega
lýst í hugljúfum ferðasöguköflum sín-
um; óðar en varði var konan búin að
kveðja Svein ritstjóra og fokin út í veður
og vind; hún var farin til Manchester,
og nokkrum mínútum seinna kvaddi eg
minn austfirzka vin og þakkaði honum
hugstæða samverustund. Manchester
var ekki langt í burtu; þetta var álna-
vörubúð svo að segja steinsnar frá bóka-
stöð Eimreiðarinnar, og þar starfaði
mikil vinkona okkar hjónanna, Guðrún
Jónasson, sem um eitt skeið var í þjón-
ustu Eaton’s verzlunarinnar í Winni-
peg, og urðu þar með okkur miklir fagn-
aðarfundir; nú fór að líða að miðdegis-
verðartíma; við hröðuðum ferð til
hótelsins, en þar hafði Ólafur B. Björns-
son ritstjóri á Akranesi, boðið okkur til
máltíðar; það var alt af eins og hann
ætti í okkur hjónunum hvert bein;
seinna um daginn skrapp eg upp á ríkis-
skjalasafnið til þess að heilsa upp á
fornvin minn, Benedikt Sveinsson fyrr-
um alþingismann og forseta neðri deild-
ar; okkur varð báðum orðfall; við kyst-
umst á landsvísu, en gengum svo vestur
á Arnarhvol og sátum þar dálitla stund;
við töluðum um endurreisn lýðveldisins
á íslandi og framtíðarvernd sjálfstæðis
þjóðarinnar; “nú er þetta land í annað
sinn okkar eigin eign,” sagði Benedikt,
og í augum hans bjarmaði af landvarnar
eldinum, sem eg kannaðist svo vel við
frá fyrri dögum. Benedikt kom með mér
til íbúðar okkar hjónanna á Hótel Borg
og dvaldi hjá okkur í klukkutíma; hann
vissi alt um ættir konu minnar, og mint-
ist sérstaklega á langafa hennar í föð-
urætt, Jakob á Breiðumýri, þenna fjöl-
gáfaða og sérstæða mann; fundum okk-
ar Benedikts bar ekki saman nema í
þetta eina sinn í heimsókn minni tii ís-
lands.
Hinn daginn, sem við vorum um kyrt,
eðá réttara sagt ókyrt í Reykjavík,
heimsótti eg ísafoldarprentsmiðju og
ríkisprentsmiðjuna Gutenberg; forstjóri
hinnar fyrnefndu prentsmiðju, Gunnar
Einarsson, bauð okkur hjónunum til
ríkulegs dagverðar í Sjálfstæðishúsinu
við Austurvöll, þar sem er langfegursti
veizlusalurinn á öllu landinu; sýndi hann
okkur í hvívetna frábæra vinsemd, og
vildi alt fyrir okkur gera. er verða mætti
okkur til ánægju; þegar við komum aft-
Frá VancouverB.C.
12. maí, 1947
Hér er nú alt á ferð og flugi.
Ferðafólk streymir hér inn í þús-
undatali árlega á þessum tíma
ársins, til að skemta sór við lax-
veiðar á sjónum og silungsveiðar
í ám og vötnum uppi í f jöllunum.
Svo er mikið um dýra- og fugla-
veiðar um vissan tíma ársins. Er
þessi ferðamannastraumur hing-
að stórkostleg tekjugrein fylkis-
búum árlega. Nú í ár er mikið
meira útlit fyrir fleira ferðafólk
en áður, og er mikið gert til þess
að taka vel á móti þessum gest-
um, bæði af fylkisstjórninni,
borgarstjórninni og ýrnsum öðr-
um félögum, til að sýna þeim
“góðan tíma”, því þeir borga ætíð
svika'laust fyrir brúsann. Það er
áætlað, að á þessu sumri, muni
þetta ferðafólk koma með $40,-
000,000 inn í fyikið, sem það
eyði mestmegnis hér, áður en það
fer til baka.
Það var handagangur í öskj-
unni hér síðastliðinn sunnudag
um miðnætti, því þá byrjaði
lúðufiskiverktíðin. Eitt þúsund
bátar lögðu þá af stað héðan út á
fiskimiðin, sem eru talin með
þeim beztu í heimi, hér út frá
ströndum British Columbia. Við
þetta vinna frá 5,000 til 6,000
manns. Alt sem þessi floti má
veiða af lúðu eru 53 miljón pund
yfir vertíðina, þegar það hefir
veiðst, þá verða alir að leggja
árar í bát og halda heim aftur.
Hefir stjómin strangt eftirlit
með því. Nú keppist hver skips-
höfn við að ná sem mestu í sinn
hlut, svo nú er ekki mikið um
svefn né hvíld að ræða á þeim
slóðum, allir keppast við dag og
nótt. Það er álitið að það taki
aðeins fimm vikur að veiða þessa
ákvörðuðu upphæð. Þegar þessi
veiðitími er búinn hér, þá fer
nokkuð af þessum flota norður
ur á hótelið, biðu okkar
tveir menn frá Akranesi,
þeir Einar Vestmann og
Lárus Scheving Ólafsson,
er síður en svo komu tóm-
hentir, heldur sæmdu okk-
ur alls konar minjagjöfum;
vinátta þessara manna í
okkar garð, fellur okkur
hjónunum aldrei úr minni;
seinna um daginn sátum
við vestangestir unaðslegt
afmælisboð hjá Ófeigi
lækni Ófeigssyni og frú
Ragnhildi Ásgeirsdóttur;
þetta var afmælisfagnaður
yndislegrar kjördóttur
þeirra, Salome; við vorum
þarna alveg eins og heima,
því svo var gestrisnin alúð-
leg og hjartahlý; og mikið
fagnaðarefni var það okk-
ur, að kynnast tengdafor-
eldrum Ófeigs, þeim séra
Ásgeiri Ásgeirssyni fyrrum
sóknarpresti að Hvammi í
Dölum og hans háttprúðu
frú; þó var Salome litla
stjarnan, sem alt snerist
um; sú þakkarskuld, sem
við hjónin stöndum í við
Ófeig lækni og frú Ragn-
hildi frá dvöl okkar á ís-
landi, verður aldrei að fullu
greidd, en einu vextir henn-
ar verða ævilangir hlýhug-
ir.
Þann 6. september beið
okkar mikið æfintýri, eitt
sérstæðasta og um margt
furðulegasta æfintýrið á
öllu ferðalaginu, ferð til
Geysis og Gullfoss og alla
leið norður til Hveravalla,
landnáms Fjalla-Eyvindar
og Höllu, undir forustu
póst- og símamálastjóra,
Guðmundar Hlíðdal og frú
Karólínu Hlíðdal, dóttur
Þorvaldar frá Þorvaldseyri;
við gengum snemma til
rekkju um kvöldið eftir því,
sem viðgekst í íslandsför-
inni, og hlökkuðum ósegj-
anlega mikið til næsta
morguns.
—Framh.
til Alaska, og heldur áfram veið-
um þar til haustsins. Þetta er
arðsöm atvinna þegar vel gefst.
Þessi lúðuveiði í ár er talin að
verði, með þeim prís sem nú er,
um tíu miljónir dolara. Landar
hér ættu að stofna félagsskap,
til að starfrækja þessa arðsömu
atvinnugrein.
Sambandsdeild Þjóðræknisfé-
lagsins “Ströndin”, hélt sína ár-
legu sumarmála skemtisamkomu
þann 17. apríl í Foresters Hall.
Var þessi samkoma vel sótt. Þar
var til staðar margt ferðafólk,
sem var hér um það leyti. Þess-
ar sumarmálasamkomuir, sem ís-
lendingar hafa haldið hér um
nokkur undanfarin ár hafa
verið fjölsóttar; hefir æfin-
lega verið vandað til þeirra sem
bezt. Var þessi samkoma eingin
imdantekning að því leyti, eins
og skemtiskráin ber með sér.
Skemtiskráin var þetta:
1. Ávarp forseta—Dr. H. Sigmar
12. Einsöngur — Walter Johnson
frá Blaine
3. Frumort kvæði — J. S. frá
Kaldbak
4. Einsöngur — Miss Margaret
Sigmar
5. Ræða—Dr. P. B. Guttormson
6. Einsöngur — Elías Breiðfjörð
frá Blaine
7. Ræða—Séra A. E. Kristjánson,
frá Blaine
8. Tvísöngur — Elías Breiðfjörð
og Walter Johnson
9. Dans, Fimm manna hljóm-
sveit spilaði fyrir dansinum.
Mr. Steve Sölvason og Mrs.
Lillian Sumarlidason aðstoðuðu
söngfólkið við hljóðfærið.
Þetta var sérstaklega mynd-
arleg samkoma, og menningar-
bragur á öllu sem þar fór fram.
Söngfólkið var kallað upp aftur
og aftur, svo það söng tvö og
þrjú lög hvert um sig. Aðal
ræðumaður var séra A. E. Krist-
jánson frá Blaine; talaði hann
víst um klukkutíma, án þess að
hafa nokkurn snepil til minnis.
Er hann víst okkar snjallasti
ræðumaður hér á vesturströnd-
inni. Hafi þeir Blaine búar, sem
hjálpuðu til að gjöra þessa sam-
komu eins skemtilega og hún var
fyrir alla viðstadda, kæra þökk
fyrir komuna. Mér kom það til
hugar, hvað það hefði verið
skemtilegt, ef við hefðum haft
söngkonuna þeirra Blaine búa,
Mrs. Ninna Stevens, til að syngja
fyrir okkur “Úr þeli þráð að
spinna,” og fleiri íslenzk lög, sem
henni lætur svo vel. Máske verð-
ur hægt að fá það framkvæmt
seinna.
Þann 1., 2. og 3. maí hafði fé-
lagið “The Folk Society” sitt
fyrsta “Dominion-wide Festival”
í stærsta samkomusal borgarinn-
ar. Tóku þátt í því 22 þjóðflokk-
ar og sýndu þjóðbúninga sína,
sungu þjóðsöngva sína og dans-
aði. Var þar fjölment á hverjum
degi. Tóku íslendingar þátt í
þessu hátíðahaldi, og kom þar
fram fyrir hönd okkar landanna,
söngmærin Miss Margaret Sig-
mar, í íslenzka faldbúningnum,
og söng “Draumalandið,” og
“Svanasöng á heiði.” Vakti hún
sérstaka eftirtekt fyrir söng sinn
og búning. Fréttaritarar dag-
blaðanna gátu hennar al'lir sér-
staklega. Fréttaritari blaðsins
“Vancouver Daily Sun”, hafði
þetta að segja um hana meðal
annars: “Margaret Sigmar wear-
ing snow white, blue and gold
to represent the Icelandic land-
scape, sang “The Land of
Dreams,” and “Swansong of the
Heath.” Her singing was sweet.”
Kom Miss Sigmar þarna fram
svo myndarlega, að það var henni
og okkur öl'lum til sóma.
Eg heimsótti nýlega þau Mr. og
Mrs. Jónas Pálsson á hinu nýja
heimili þeirra, sem þau eru nú
flutt í. Það er mjög snoturt
“cottage” í fallegu umhverfi
borgarinnar. Sögðust þau bæði
kunna þar vel við sig. Mr. Páls-
son var með hressara móti þenn-
an dag, og spaugsamur eins og
hann á að sér að vera. Mr. Páls-
son hefir eins góða aðbúð og
umönnun og hægt er að veita
honum. Mrs. Pálsson -lítur aðdá-
anlega vel eftir því. Eg get um
þetta hér, því eg veit það gleður
hina mörgu vini Mr. Pálssonar,
sem hann á svo víðsvegar, að
vita að honum sé látið líða eins
vel og hægt er.
Mr. og Mrs. O. W. Johnson og
sonur þeirra, eru nýkomin heim
úr skemtiferð í bíl sínum ti'l Cali-
forníu. Voru þau þrjár vikur á
því ferðalagi. f för með þeirn
voru Mr. J. H Johnson og Mrs.
Guðrún Sigurdson.
(Frh. á hls. 8)
PLAY SAFE!
Store Yoxir Fur and
Cloth Coats in Perth's
SCIENTIFIC
STORAGE VAULTS
• SAFE from MOTHS
• SAFE from FIRE
• SAFE from THEFT
• SAFE from HEAT
For Bonded Driver
Phone 37261
Perth’s
888 SARGENT AVE.
Verzlunarmenntun!
Hin mikla nývirkni, sem viðreisnarstarf-
ið útheimtir á vettvangi iðju og framtaks,
krefst hinnar fullkomnustu sérmentunar sem
völ er á; slíka mentun veita verzlunarskól-
arnir. Eftirspurn eftir verzlunarfróðum mönn-
um og konum fer mjög vaxandi.
Það getur orðið ungu fólki til verulegra
hagsmuna, að spyrjast fyrir hjá oss, munn-
lega eða bréflega, varðandi námskeið við
helztu verzlunarskóla borgarinnar.
THE COLUMBIA PRESS LTD.
COR. SARGENT AND TORONTO ST.t WINNIPEG