Lögberg - 15.05.1947, Qupperneq 8
8
LÓGBERG, FIMTUDAGINN 15. MAÍ, 1947
«
Or borg og bygð
Islenzkir sjúklingar, sem liggja
á sjúkrahúsum hér í borginni,
eða aðstandendur þeirra, eru
vinsamlega beðnir að síma Mrs.
George Jóhannesson, 89 208, ef
æskt er eftir heimsókn eða ís-
lenzku blöðunum.
Birt að tilstuðlan Djákna-
nefndar Fyrsta lút. safn.
•f'
Fermingarguðsþjónusta í Sam-
bandskirkjunni á Lundar, 1. júní
n. k„ kl. 2 e. h. H. E. J.
♦
Einar Guðmundur Jónsson
andaðist á elliheimilinu “Betel”
6. þ. m. Einar var fæddur að
Arnarbæli í Árnessýslu 19. maí
1852. Foreldrar hans voru séra
Guðmundur Jónsson og Guðrún
Pétursdóttir. Einar hafði lært
gullsmíði í Kaupmannahöfn, en
sökum heilsubilunar vann hann
aldrei við þessa iðn. Hann var
mest af hérlendri æfi sinni hjá
systur sinni, Mrs. Vestdal. í
íúngvallanýlendunni. Einar sál.
varð vistmaður á Betel 6. júní
1929. Eina systur, Sigríði
Bjarnason, mun hinn látni eiga
á lífi, í Vestmannaeyjum.
Einar sál. var jarðsunginn frá
Betel 8. þ. m„ af presti heimilis-
ins.
Vor-Bazaar Kvenfélags Fyrsta
lúterska safnaðar verður hald-
inn í samkomusal kirkjunnar
þann 21. þ. m., seinni part dags-
ins og að kvöldinu; verður þar
seldur heimatilbúinn matur.
FRÁ VANCOUVER, B.C.
(Frh. af bls. 4)
Mr. og Mrs Sigfús S. Berg-
mann frá Winnipeg hafa verið
hér nokkurn tíma til að sjá sig
um. Hafa þau nú ákvarðað að
taka sér bólfestu hór á Strönd-
inni, og keypt hús og lóð á Point
Roberts. Mr. Bergmann er
kunnur flestum Islendingum
fyrir bók sína “Austurlönd”, sem
hann skrifaði og gaf út um ferð
til landsins helga 1929. Var hann
á þriggja mánaða ferðalagi í
Gyðingalandi, Palestínu og víð-
ar, í Asíu og Afríku. Er hann
einn af þeim fáu íslendingum,
sem hafa ferðast á þeim slóðum.
Mr. Elías Elíasson frá Árborg,
Man., hefir verið hér um tíma í
heimsókn til dóttur sinnar og
tengdasonar, Mr. og Mrs. Óskar
Sigurdson. Mr. Elíasson dáir
tíðarfarið hér á Ströndinni, og
mundi hann kunna vel við sig
hér, ef það ætti fyrir honum að
liggja að setjast hér að. Hann
er einn af þeim öldungum, sem
'kringumstæðurnar leyfa að vera
þar sem honum sjálfum líkar
bezt.
Þann 13. apríl komu saman um
25 manns að heimili Mrs. E.
Jackson, í tilefni af því að það
var afmælisdagur Mr. Ófeigs
Sigurdsonar. Hafði Mrs. Jack-
son, sem er fóstursystir Ófeigs,
boðið þeim heim til að drekka
afmæliskaffið með honum, og
njóta rausnarlegra veitinga. Til
skemtunar var fyrst rabbað sam-
an, og svo var sungið bæði ís-
lenzkir og enskir söngvar og að-
stoðaði Mrs. Lillian Sumarliða-
son við hljóðfærið. Mr. Sigurd-
son vairð 85 ára þennan dag.
Hann er frískur og fjörugur og
er að leggja á stað til Bandaríkj-
anna sér til skemtunar, og svo
þaðan fer hann til Red Deer,
Alberta, og verður þar um tíma
í sumar. Hann og Þórarinn Guð-
mundsson hafa haft það fyrir
reglu síðan þeir hættu þar bú-
skap, að vera þar um sumar-
mánuðina. Svo koma þeir til
baka á haustin, þegar þeim fer
að verða kalt á fótunum. Eins
og öllum hér er kunnugt, er Mr.
Sigurdson ríkur af göfugmensku
og risnu. Hann gaf $500.00 í
Öldungaheimilis sjóðinn, svo gaf
hann $100.00 í byggingarsjóð
lúterska safnaðarins. Ófeigur
Sigurdson lætur aldrei standa á
MESSUBOÐ
Fyrsta Lúterska Kirkja
Valdimar J. Eylands, prestur.
Heimili: 776 Victor Street,
Sími: 29 017.
Harold J. Lupton, organisti og
söngstjóri.
308 Niágara Street.
Guðsþjónustur á hverjum
sunnudegi: á ensku kl. 11 f. h„
á íslenzku kl. 7 e. h.
Sunnudagaskóli kl. 12.15 e. h.
Söngæfingar: Yngri flokkur-
inn—á fimtudögum. Eldri flokk-
urinn — á föstudögum.
♦
Árborg-Riverlon presiakall—
18. maí—Víðir, messa og árs-
fundur kl. 2 e. h.; Árborg, íslenzk
messa og ársfundur kl. 7.30 e.h.
25. maí — Hnausa, messa og
safnaðarfundur kl. 2 e. h.; River-
ton, ensk messa og safnaðarfund-
ur kl. 8 e. h.
B. A. Bjarnason.
♦
Gimli presiakall—
Sunnudaginn 18. maí—Messa
að Mikley kl. 2 e. h. Ársfundur
safnaðarins verður haldinn að
guðsþjónustunni afstaðinni.
Allir boðnir velkomnir.
Skúli Sigurgeirson.
Lúterska kirkjan í Selkirk—
aunnudaginn 18. maí:
Ensk messa kl. 11 árd.
Sunnudagaskóli kl. 12 á hád.
Ensk trnessa kl. 7 síðd.
Allir boðnir velkomnir.
S. Ólafsson.
Þann 26. maí (annan í hvíta-
sunnu) verður messað í Guð-
brandssöfnuði. í grend við Mor-
den, Man. Messugjörð hefst kl.
3 síðd. Central Standard Time).
Allir boðnir velkomnir.
S. Ólafsson.
sér, þegar kemur til að styrkja
þarfleg fyrirtæki.
Dr. og Mrs. J. P. Pálsson frá
Calgary, hafa verið á ferð hér
og í Victoria sér til skemtunar,
og til að endurnýja kuningsskap
við marga kunningja og ná-
granna, sem hann á hér á Strönd-
inni.
Mr. Þórhallur Finnbogason frá
Langruth, Man., er nýlega kom-
inn hingað og búinn að taka sér
bólfestu í New Westminster.
Mr. og Mrs. Jónas Anderson
frá Cypress River, Man., hafa
verið hér um tíma. Þeim leizt
vel á sig hér, eins og öllum, sem
hingað koma.
Bjarni Sveinsson frá Keewatin,
Ont., hefir verið í heimsókn til
sonar síns, sem hér er búsettur,
Si/gmar Sveinsson. Er Mr. Sveins-
son nú horfinn til baka aftur,
eftir þriggja vikna dvöl hjá syni
sínum.
Mrs. S. Sveinsson frá Yorkton,
Sask., hefir verið hér um tíma,
til að heimsækja son sinn Óla
Sveinsson, og systur sína, Mrs.
J. L. Essex, og margt fleira
venzlafólk, sem hún á hér. Hún
mætti móður sinni, Mrs. Stein-
unni Loftson hér; var hún að
koma til baka frá Californíu, þar
sem hún hefir verið um nokkra
mánuði hjá dætrum sínum tveim-
ur sem hún á þar. Fór Mrs.
Sveinson með henni til Camp-
bell River, B.C., þar sem hún
verður um tíma hjá dóttur sinni
Sigríði Gunnarson, sem þar er
búsett. Mrs. Sveinsson lagði af
stað heimleiðis þann 9. þessa
mánaðar.
Miss Gerða Christopherson er
nú komin aftur heim til sín, frá
sjúkrahúsinu, og virðist vera
he'ldur á batavegi.
Lieut. Carl E. Anderson var
hér í heimsókn til foreldra sinna,
Mr. og Mrs. Guðmundur Andei-
son. Hann var.i Canada hernum
í tvö og hálft ár. Nokkuð af þeim
tíma var hann á stríðsvellinum
fyrir handan hafið. Síðan hann
varð laus úr herþjónustunni hef-
ir hann verið í fylkislögreglunni
í Norður Alberta.
Miss Björg Aðalsteinsdóttir,
útlærð hjúkrunarkona' frá ís-
landi, er að taka framhaldsnám
við almenna sjúkrahúsið hér í
borginni. Hún heldur til hjá föð-
urbróður sínum, Mr. J. Krist-
mansson, að ’258 Cambridge St.
Þann 7. maí hafði íslenzka lút.
kvenfélagið skemtisamkomu á
hinu veglega heimili Mr. og Mrs.
Jón Sigurdson. Kom þar saman
margmenni, svo þar var hús-
fyllir, þó húsið sé stórt og rúm-
gott. Til skemtunar söng íslenzki
söngflokkurinn nokkur lög. Sólós
sungu Miss Margaret Sigmar,
Mrs. Thora Thorsteinson Smith
og Mr. Smith. Við hljóðfærið
aðstoðuðu Mr Steve Sölvason og
Mrs. Lillian Sumarliðason. Var
þessu öllu gefinn góður rómur.
Seinast framreiddu konurnar
■kaffi og rausnarlegar veitingar
eins og hvern lysti.
Talsverðan tíma tóku gestirnir
til að skoða þetta nýja heimiii
Mr. og Mrs. Sigurðson. Það er
alt bygt eftir nýjustu tízku, og
er víst það kostuglegasta heimili
sem íslendngar eiga í Vancouver.
Mr. Sigurðson er víst sá um-
svifamesti íslenzkur athafna-
maður hér. Hann er eigandi að
stóru smíðaverkstæði, Sigurd-
son Mill Works, og starfrækir
hann það upp á eigin reikning.
Fyrir nokrku var mér sagt, að
hann hefði 125 manns, sem vinna
á verkstæðinu.
Eg verð fáorður um elliheimilis
málið í þetta sinn. Eg hefi samt
orð forseta nefndarinnar fyrir
því, að það gangi alt vel, þó hægt
fari, en það eru góðar og gildar
ástæður fyrir því. Það verður
efalaust ekki langt, þar til nefnd-
in skýrir frá framkvæmdúm sín-
um þar að lútandi. Vona eg það
The Swcm Manufacturing
Company
Manufacturers of
SWAN WEATHER STRIP
Halldor Methusalems Swsuo
Eigandi
281 James St. Phone 22 fril
HIÐ NÝJA
'SHORT' Coiffure
er ekki lenprur dríiumur . . heldur tízku
virkileiki! í hinu r£tta vali k Permanent,
lifíffur leyndardómur feg-urðar þesa. Við
bendum því sðrstakleg^a á okkar %
N Ý J A “HONEYCOMB”
PERMANENT
í þessu sðrstaka verði
er innifalið “recon-
ditioning shampoo”
og tízku hárgreiðsla.
$300
Ungfrú Willa Anderson, forstöðukona
þessa skrautlega hárfegrunarsals býður
alla íslenzka vini og viðskiftakonur vel-
komna á þessar nýju og þægilegu hár-
fegru narstöð var.
mm
TRU-ART Wave Shop
ENDERTON BUILDING, Portage and Hargrave
Opposite Eatons, over Mitchell Copp PHONE 97 129
Sunrise Lutheran Camp Sumarið 1947
Ársþing Bandalags Lúterskra Kvenna — 22.—24. júní.
Sunnudagaskólakennaramót — 27.—29. júní.
Unglingar yfir fermingaraldur (Leadership Course)
2.—11. júlí.
Drengir—7—14 ára — 12.—23. júlí.
Prestamót — 24.—28. júlí
Mæður (með börn 2-6 ára) — 29. júlí — 5. ágúst.
Stúlkur, 7-14 ára — 6.—15. ágúst
Óákveðið — 16.—26. ágúst.
%
Umsóknir sendist til:
Mrs. A. H. Gray, 1125 Valour Rd„ Winnipeg
Mrs. H. S. Erlendson, Árborg, Man.
Mrs. S. J. Sigurgeirson, Gimli, Man.
Mrs. S. Ólafson, Selkink, Man.
Bréf, með öllum upplýsingum verða send út bráðlega.
FLUGFERÐ til ISLANDS
frá
WINNIPEG og GRAND FORKS
“Skymaster” flugvél, eign Loftleiðir, h.f„ Reykjavík,
ísland, fer beina leið frá Winnipeg til íslands fyrstu
vikuna af júní-mánuði næstkomandi, ef canadisk
stjórnarvöld veita leyfi til þess Niðursett far,
kostar $200.00 á mann frá Winnipeg til Reykjavíkur.
Aðeins pláss fyrir 25 farþega. Frekari upplýsingar
veitir, í umboði flugfélagsins
Greiiir Leo Jobannson,
910 Palmerston Ave„ Winnipeg.
Símar 71 177 eða 28 637 (eftir kl. 6)
verði góðar fréttir. Næst þegar
eg skrifa, get eg máske ritað um
þetta málefni ítarlegar.
S. Guðmundson.
Aðstoða bændur við að bjarga
búpeningi sínum og hjálpa á
alla lund, sem hægt er.
—Mbl. 9. apríl.
INN-FLJÓTSHLÍÐIN
ER ILLA FARIN
(Frh. af bls. 5)
“Já,” sagði frú Lilja. “Ætli
Gunnar hefði snúið aftur, ef þá
hefði verið nýafstaðið Heklugos,
er hann tók sína frægu ákvörð-
un.”
Innhlíðingar í Fljótshlíð hafa
orðið fyrir þungurn búsifjum, svo
og bændur á nokkrum bæjum
efst á Rangárvöllum. Þetta ólán
■hefði eins getað skolhð á öðrum
sveitum, ef vindur nefði staðið
öðruvísi þann morgunn er Hekla
spúði sinni eyðileggingu, þess
verða landsmenn nú að minnast
og leggjast allir á eitt, að hjálpa
til að græða og hlúa að hinni
frjósömu og fallegu sveit á ný.
STORE
FUR
and
CLOTH
COATS
NOW!
Avoid risking valuable furs
to Moths, Fire and Theft—
store t h e m in Quinton’s
modern storage vaults. Call
them today!
CALL 42 361
CLEANERS • DYERS • FURRIERS
ÞINGBOÐ
Ákveðið er að ársþing Hins evangeliska lúterska
kirkjufélags Islendinga í Vesturheimi verði, ef Guð
lofár, sett í kirkju Víkursafnaðar að Mountain, N.D.,
með guðsþjónustu, altarisgöngu og þingsetningarathöfn,
föstudaginn 13. júní kl. 7.30 e. h. Gjört er ráð fyrir að
þingið endi á hádegi þriðjudaginn 17. júní.
Nákvæmari auglýsing um þingið mun söfnuðum og
viðkomandi einstaklingum og félögum berast frá skrif-
ara kirkjufélagsns, séra E. H. Fáfnis.
H. SIGMAR, forseti k ir j u f élagsins
TIL KAUPENDA
LÖGBERGS og HEIMSKRINGLU
Frá því var nýlega skýrt í báðum íslenzku blöðunum
vestan hafs, að verð æfiminninga, sem færu yfir 4 eindiálka
þumlunga, yrði framvegis reiknað 20 cents á þumlunginn;
þetta er að vísu eíkki mikilil tekju auki, en þetta getur
dregið sig saman og komið að dálitlu liði.
Aðrar auglýsingar kosta 70 cents eindálka þumlungur.
THE COLUMBIA PRESS LIMITED
THE VIKING PRESS LIMITED
-f-f-f-f-f-f-f-f-f-f-f-f-f-ff
KAUPENDUR LÖGBERGS OG
HEIMSKRINGLU Á ISLAND*
Gerið svo vel að senda mér sem fyrst greiðslu fyrir
yfinstandandi árgang, kr. 25.00 fyrir hvont blað.
Dragið ekki að greiða blöðin. Það léttir innheimtuna.
Æskilegt að gjaLdið sé sent í póstávísun. Þeir sem
eiga ógreidda eldri árganga, enu vinsamlega beðnir
að snúa sér til mín.
BJÖRN GUÐM UNDSSON
HOLTSGATA 9, REYKJAVÍK
The Following Doctors Wish to Announce They
Are Now Associated with the
KOBRINSKY CLINIC
216 KENNEDY STREET
SOLOMON KOBRINSKY, M.D.
Maternity and Diseases of Women
LOUIS KOBRINSKY, M.D., F.R.C.S.. (Edin.)
General Surgery
SIDNEY KOBRINSKY, M.D.
Internal Medicine
M. TUBBER KOBRINSKY, M.D.
Physician and Surgeon
SAM KOBRINSKY, M.D.
Physician and Surgeon
SAMUEL RUSEN, M.D.
Physician and Surgeon
Telephonc 96 391 — If \o Answer,
Cull Doctor9s Directory -- 72152