Lögberg - 01.07.1948, Side 8
8
LÖGBERG FIMMTUDAGINN, 1. JÚLI, 1948
/
V
Úr borg og bygð
íslenzkir sjúklingar, sem liggja
á sjúkrahúsum hér í borginni,
eða aðstandendur þeirra. eru
vinsamlega beðnir að síma Mrs.
C. Ólafson, Ste. 1 Huth Apts.,
Maryland St., Phone 30 017, el
æskt er eftir heimsókn eða ís-
lenzku blöðunum.
Birl að tilsluðlan Djákna-
nefndar Fyrsta lút. safn.
-f
Sá hörmulegi atburður gerðist
í fyrri viku, að unglingspiltur,
Jakob Elíasson, sonur þeirra Mr.
og Mrs. Jens Elíasson, druknaði
í Rauðánni; *>róður hans og
tveimur öðrum félögum hans
varð bjargað.
Þann 19. apríl síðastliðinn lézt
í bænum Marietta í Washington-
ríkinu, Steini Goodman, 73 ára
að aldri; hann var fæddur á
Ketilsstöðum í Mýrdal í Vestur-
Skaftafellssýslu, 9. október 1874
og fluttist 9 ára að aldri með for-
eldrum sínum til Ameríku, er
fyrst settust að í Pembina,
North-Dakota. Árið 1902 kom
Mr. Goodman til Washington-
ríkis og stundaði upp frá því
búskap við Marietta. Mr. Good-
man giftist 10. janúar 1908
Ágústínu Jónsdóttur frá Geld-
ingaholti í Skagafirði, er lifir
mann sinn ásamt einni dóttur,
Mrs. Clara Johnson og þremur
sonum, Arthur, Louis ög August.
Steini Goodman var bróðir Guð-
mundar B. Goodman, er lézt í
Bellingham árið 1932. — Útför
Mr. Goodmans fór fram á fimtu-
daginn 22. apríl; jarðsett var í
Woodlawn grafreit.
The Lutheran Ladies Aid of
/Grund is presenting a Concert
in the Grund Church in Argyle
on Sunday evening, July 4th at
8:30 p.m. Featured on the
evening’s programme is séra
Eiríkur Brynjólfsson, who will
deliver the main address of the
evening in the Icelandic language
Miss Svana Sigurgeirsdóttir, a
daughter of the Bishop of Ice-
land will bring greetings from
Iceland. There will also be local
musical numbers. The Ladies
Aid will serve coffee and lunch
after the concert in the Grund
Hall. A free-will offering will be
received. — Everyone cordially
invited.
Gefið í úivarpsjóð Fyrsta lút-
erska safnaðar, maí 1948
Mr. og Mrs. F. E. Snidal, Steep
Rock, Man., $2.00; Mr. og Mrs.
Mirjniit
BETEL
í ©rfðaskrám yöar
Phone 21 101 ESTIMA^ES
FREE
J. M. INGIMUNDS0N
Asphalt Roofs antl Insulatcd
Siding — Repairs
332 SIMOOE ST. Winnipeg, Man.
M ICELAND
Scandinavia
OVERNIGHT
I
Travel the modern way and íly in
four-engine airships.
MAKE RESERVATIONS NOW, IF
PLANNING TO TRAVEL THIS
SUMMER
We will help you arrange your trip.
NO extra charge.
We also make Hotel Reservations.
For Domestic and Overseas Travci
Contact
ViKING TRAVEL SERVICE
(Gunnar Paulsson, Manager)
165 Broadway, New York City
PHONE: REctor 2-0211
O. J. Oleson, Steep Rock, Man.,
$1.00; Mr. og Mrs. E. Johnson,
Steep Rock, Man., $1.00; Mr. O.
Hjartarson, Steep Rock, Man.,
$1.00; Mr. og Mrs. Adolph
Scheske, Moosehom, Man., $1.00;
Mr. og Mrs. Sigurður Magnús-
son, Winnipegosis, Man., $2.00;
Mr. og Mrs. Benedikt Kristjáns-
son, Winnipegosis, Man., $1.00;
Mr. og Mrs. Malvin Einarson,
Winnipegosis, Man., $1.00; Mr.
August Johnson, Winnipegosis,
Man., $1.00; Mr. Bjarni Sveins-
son Davidson, Langruth, Man.,
$1.00; Oddny Gislason, Brown,
Man., $1.00; Mr. og Mrs. Sveinn
Johnson, Langruth, Man., $2.00;
Mr. og Mrs. Sig. Thordarson,
Gimli, Man., $1.00; Mr. og Mrs.
Th. Thordarson, Gimli, Man.,
$1.00; Mr. og Mrs. Johannes Pét-
ursson, Árborg, Man., $2.00; Mrs.
Margrét Jonsson, Lundar, Man.,
$1.00; Mrs. J. K. Jónsson, Lund-
ar, Man., $1.00; Mr. Einar Sig-
valdason, Baldur, Man., $1.00;
Mr. Pétur Hermann, Mountain,
N.-D., $1.00; Mr. Björn Stefáns-
son, Akra, N. D., $1.00; Mr. og
Mrs. J. K. Olafsson, Cavalier,
N. D., $1.00; Mr. og Mrs. Gunn-
laugur Pétursson, Gimli, Man.,
$2.00; Mr. og Mrs. Jon Borgfjord,
Árborg, Man., $2.00; Mr. og Mrs.
Jon Ásmundsson, Upham, N. D.,
$2.00; Mr. og Mrs. Stefan S. Ein-
arson, Upham, N. D., $2.00; Mrs.
Margrét Sveinsson, Swanson,
Upham, N. D., $1.00; Mr. og Mrs.
Jon Vidalin, Riverton, Man.,
$2.00; Vinur $1.00. — Meðtekið
með þakklæti.
Séra Eiríkur S. Brynjólfsson
776 Victor St.
♦
Mr. Þorleifur Anderson og
sonur hans Ólafur Anderson frá
Churchbridge, Sask., voru stadd-
ir í bænum í vikunni:
-f
Miss Emily Anderson frá
Chicago 111., hefir verið í borg-
inni undanfarið í heimsókn til
ættingja og vina, hún hélt aftur
heimleiðis síðastliðinn laugardag.
-f
SAMKOMA
verður haldin í samkomuhúsi
Langruth-bæjar, þriðjud., 6. júlí
kl. 8 e. h., og hefst með stuttri
guðsþjónustu, þar sem sr. Eirík-
ur S. Brynjólfsson prédikar. —
Að guðsþjónustunni lokinni
hefst fjölbreytt skemmtiskrá og
mun sr. Eiríkur flytja þar ræðu.
Allir velkomnir! Vonast er eftir
að fólk fjölmenni!
-f
Eftir þrjátíu ára íbúð í húsi
mínu, 906 Banning St., hefir
götustjórn borgarinnar þóknast
að breyta númerinu, svo hér
eftir verður það:
910 Banning St.
Þetta eru þeir, sem þurfa að
hafa einhver sambönd við mig,
beðnir að hafa í huga.
Gísli Jónsson.
-f
Séra Eiríkur Brynjólfsson
frá Útskálum, flytur ræðu í
samkomuhúsi Vidirbyggðar, að
kveldi þess 8. júlí. — Verður það
líklega síðasta tæifkærið er
fólki í Norður-Nýja-íslandi gefst
til að hlusta á hann og kveðja
þau hjón áður en þau leggja á
stað til íslands .
-f
Hj úskapur
Laugardaginn 19. júní 1948,
voru gefinn saman í hjónaband
hjónaband í Chicago 111., Norma
Margaret Alfred og John Frank
Stromayer. Heimili ungu hjón-
anna verður fyrst um sinn að
3048 No. Rutherford Ave.
-f
Dánarfregnir
Miðvikudaginn þ. 9. júní lézt
í Kansas City, Missouri í Banda-
ríkjunum, merkiskonan Sofía
Guðrún Walters, ekkja Björns
Walters fyrrum ritstjóra Heims
kringlu. Sú látna var systir síra
Soffaniusar Halldorssonar próf-
asts í Goðdölum og Viðvík. Hún
skilur eftir þrjú börn uppkom-
in, einn dreng og tvær stúlkur.
MESSUBOÐ
Fyrsta Lúterska Kirkja
Ensk messa kl. 11 f. h. — Is-
lenzk messa kl. 7e. h. — Börn,
sem ætla að sækja sunnudaga-
skólann, eru beðin að mæta í
kirkjunni kl. 12.15. — Ávarp og
söngur.
Eiríkur S. Brynjólfsson.
776 Victor St. Wpg.
+
Argyle prestakall
Sunnudaginn 4. júli, 6. sunnud.
eftir Trínitatis: Baldur kl. 11 f.h.
Brú kl. 2:30 e. h. Séra Eiríkur
Brynjólfsson prédikar við báðar
messurnar. — A.llir boðnir og
velkomnir.
Eric H. Sigmar.
-f
Gimli prestakall
4. júlí: — íslenzk messa að
Gimli kl. 7 e. h. — Allir boðnir
velkomnir.
Skúli Sigurgeirsson.
— Blöðin á Islandi eru beðin að
geta um þessa dánarfregn.
-f
Þann 24. júní lézt við Church-
bridge-pó$thús í Saskatchewan,
ekkjan Pálína Marteinsdóttir
Johnson frá Álftagerði við Mý-
vatn. Hún skilur eftir átta börn
sín uppkomin og all mörg barna
börn. — Hún var jarðsungin af
sífa S. S. Christopherson í graf-
reit Þingvallasafnaðar að við-
stöddum fjölda manns.
-f
Þann 19. júni lézt að heimili
dóttur sinnar og tengdasonar,
Mrs. Halldóra Johnson 88 ára og
10 mánaða, eftir þunga sjúk-
dómslegu; hún var jarðsett 23.
s. m., af séra R. E. Metcalfe. —
Blessuð sé minning minnar
elskuríku móðir.
Matthildur og Carl Malmquist.
-f
Mr. óg Mrs. John Ásgeirsson
komu heim í vikunni, sem leið
sunnan frá Chicago, þar sem
þau dvöldu um hríð í heimsókn
sonar síns Páls og fjölskyldu
hans. —
-f
Hjónavígslur
framkvæmdar af séra Eiríki
S. Brynjólfssyni: — Lincoln
Paul Sveinsson, lyfjafræðingur
og Thelma Elizabet Eggertson,
gefin saman í Fyrstu lútersku
kirkju, föstudaginn 25. júní. —
Foreldrar: Minnie Sveinsson og
Páll heitirm Sveinsson, fyrrum
kaupmaður í Wynyard.
Harald Edward Driscoll og
Sigríður Sesselja Anna Benson,
gift í Fyrstu lútersku kirkju
síðastliðinn laugardag. Brúðurin
er dóttir þeirra Mr. og Mrs. Ing-
ólfur Benson; hún er frænd
mörg í Mikley, og voru viðstödd
þaðan giftinguna Mr. og Mrs.
Valdi Johnson, Mrs. Siggi John-
son og Mrs. Gunnar Tómasson;
að aflokinni vígsluathöfn var
setin vegleg veizla í Empire
Hall.
Síðastliðinn laugardag voru
gefin saman í hjónaband James
Chapman og Guðrún Björnsson
frá Riverton.
• f
Valdimar Björnsson blaða-
maður frá Minneapolis, Minn.,
kom hingað til borgar á mánu-
dagskvöldið ásamt frú sinni; ætl-
uðu þau hjón* að bregða sér
norður til Mikleyjar, því Valdi-
mar hefir lengi leikið hugur á
að sjá með eigin augum hina
fögru eyju, sem er næst elzta
Islendingabyggðin í Vestur
Canada.
Um 80 manns stofnuðu í gœr
Félag hinna sameinuðu þjóða
Formaður íélagsins var kjörinn
Ásgeir Ásgeirsson alþingismaður
Um 80 manns stóðu að stofnun
Félags hinna sameinuðu þjóða
að Hótel Borg síðdegis í gær. —
Formaður félagsins var kjörinn
Ásgeirs Ásgeirsson alþingismað-
ur. —
Auk Ásgeirs Ásgeirssonar
voru kosnir í stjórn félagsins:
Ólafur Jóhannesson prófessor,
Sigurgeir Sigurðsson biskup, frú
Guðrún Pétursdóttir og Sigurð-
ur Bjarnason alþingismaður. —
í varastjórn voru kosin frú
Soffía Ingvarsdóttir, frú Sigríð-
ur Magnússon og Jónas Þor-
bergsson útvarpsstjóri.
Tilgangur félagsins er, eins og
frá var skýrt í boðsbréfi á stofn-
fund þess, að kynna hér á landi
hugsjónir bandalags hinna sam-
sameinuðu þjóða, hlutverk þess
og störf og efla samhug og sam-
vinnu þjóða í milli. Hafa þegar
verið stofnuð félög með þeim
tilgangi í fjörutíu löndum, sem
meðlimir eru í bandalagi hinna
sameinuðu þjóða.
Svo er ráð fyrir gert, að hægt
sé að stofna deildir í hinu nýja
félagi víðsvegar úti um land.
Alþbl. 9. maí.
Brúðkaup
Sylvía Ethel, yngri dóttur
þeirra Mr. og Mrs. B. Guttorm-
son og James Russel Storry,
sonur Mr. og Mrs. J. Storry, voru
gefin saman í hjónaband af séra
Eiríki S. Brynjólfsson í Fyrstu
lútersku kirkju á miðvikudaginn
23. júní. Föðurbróðir brúðarinn-
ar, séra G. Guttormson aðstoðaði
við hjónavígsluna. Giftingarvott-
ar voru systir brúðarinnar, Mrs.
Ker Wilson, Miss Viola Haldor-
son og bróðir brúðgumans, Ro-
bert B. Storry. Lítil stúlka,
Shirley Storry var blómamey.
Mr. Ker Wilson, tengdabróðir
brúðarinnar s öng, The Lord’s
Prayer og Where’er I walk, eftir
Handel. Miss Eila Buchanan lék
á piano.
Að loiknni athöfninni var
haldin fjölmenn og vegleg veizla
að Moore’s Mr. B. E. Johnson
mælti fyrir minni brúðarinnar
og flutti frumsamið kvæði; brúð-
guminn svaraði með nokkrum
vel völdum orðum. Einnig tóku
til máls þeir séra Eiríkur og
séra Guttormur. Mrs. Pearl
Johnson söng nokkur lög og var
Miss Buchanan við hljóðfærið.
Brúðhjónunum bárust mörg
heillaskeyta og las Mr. Robert
Storry þau.
Utanbæjargestir voru Rev.
and Mrs. G. Guttormson,
Minneota, Minn og sonur þeirra
og kona hans, Mr. og Mrs.
Stefán Guttormson, en hann
stundar nú nám í guðfræði við
St. Oláf’s College.
—LADIES!
Now—for that
amazing new
youahful look,
have lasting
permanent
wave at the.
GOLDEIM
Beauty Salon
J N Pcrmanents
Crcam Oil Wave, from §3.50
Cold Waves, from $4.95
Grey Halr Dyed, bleached.
No Appointments Necessary.
Docated at
ST. MAHY’S at HARGRAVE
Phone 95 902
(One Block South of Bus Depot)
♦ ♦♦♦♦♦♦
íslenzk skólastúlka
15 ára gömul óskar eftir vist
yfir sumarmánuðina á góðu
heimili, helzt í grend við Gimli.
Frekari upplýsingar fást með því
að skrifa til: Mrs. F. Broadley
Árborg, Man.
The Swan Manufacfuring Co.
Manufacturers of
SWAN WEATHER STRIP
Halldor Methusalems Swan
Eigandi
Heimili 912 Jessie Ave.
281 James Si. Phone 22 641
TIL KAUPENDA
LÖGBERGS og HEIMSKRINGLU
Frá því var nýlega skýrt í báðum íslenzku blöðunum
vestan hafs, að verð æfiminninga, sem færu yfir 4 ein-
dálka þumlunga, yrði framvegis reiknað 20 cents á
þumlunginn; þetta er að vísu ekki mikill tekju auki, en
þetta getur dregið sig saman og komið að dálitlu liði.
Fyrir samskotalista reiknast 50 cents á þumlunginn.
Aðrar auglýsingar kosta 70 cents eindálka þumlungur.
THE COLUMBIA PRESS LIMITED
THE VIKING PRESS LIMITED
I
♦ ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
S U M A R
Nú er hyggilegt að gera ráðstafanir varðandi hjálp um
uppskeru og þreskingartímann . . . og peninga til starf-
raekslu þangað til að uppskeran erseld. Peningar til þess
að fullnægja slíkum þörfum, eru ávalt til taks i Royal
bankanum. Finnið næsta útibússtjóra og ráðgist við hann
um peningalán. Spyrjist einnig fyrir hjá honum um lán
til umbóta á býli yðar til hagsmuna fyrir bóndann og
fjölskyldu hans.
THE ROYAL BANK OF CANADA
«