Lögberg - 19.08.1948, Side 1
PHONE 21374
di>éte‘
Clea'
Cleaning
Inítilulion
61. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMTUDAGINN, 19. ÁGÚST, 1948
PHONE 21 374
K Complele
Cleaning
Institution
aMBnrtwiiiiiw
NÚMER 34
Einstæður mannfagnaður í landnáminu við Winnipegvatn
Dr. S. O. Thompson þingmaður Gimli
kjörðæmis hyitur ásamt frú sinni af
þúsundum á Iðavelli við Hnausa síðast-
liðinu sunnudag í tilefni af
silfurbrúðkaupi þeirra hjóna
Um all-mörg undanfarin ár hefir verið mikið um dýrðir á Iða-
velli við Hnausa, er íslendingar í nyrðri bygðum Nýja íslands hafa
haldið þar íslendingadag eða Lýðveldishátíð, og hefir þá jafnan
hvílt yíir, öllu hinn mesti myndarbragur; en á sunnudaginn var
kom saman meiri mannfjöldi á Iðavelli en dæmi voru áður til, og
þetta var í tilefni af silfurbrúðkaupi þeirra Steins O. Thompson
héraðslæknis og þingmanns Gimli kjördæmis í fylkisþinginu, og
frúar hans Thórdísar Thompson.
Mannfjöldinn mun hafa num-
ið nálægt þrem þúsundum, og
með því sett met að því er silfur
brúðkaupsfagnað áhrærir.
Skólastjórinn í Riverton, sem
er af Úkraniskum ættum, hafði
samkomustjórn með höndum og
tókst hið bezta til.
Dr. Thompson nýtur slíkra
ástsælda í héraði, að til eins-
dæma má telja, eins og þessi
mikla útihátíð í skrúðlundinum
við bakka Winnipegvatns bar
svo ljóst vitni um; hann er mað
ur djúpvitur, ráðhollur og stór-
hæfur læknir, sem að samvizku
semi í störfum á fáa sína líka þó
víða sé leitað; hann hefir getið
sér ágætan orðstír á þingi og
löngum verið lífið og sálin í
menningarmálum héraðs síns,
bæði á vettvangi heilbrigðis-
mála og íþróttamála; hann er
fæddur í Selkirk, en á rót sína
að rekja til Borgarfjarðar, kona
Dr. Thompson, frú Thórdís, er
dóttir Gunnsteins Eyjólfssonar
rithöfundar og tónskálds, fædd
í Riverton, en rekur báðar ættir
sínar til Norður-Múlasýslu; —
hún er um allt hin mesta fyrir-
myndar kona, sem tekið hefir
mikinn og giptudrjúgan þátt í
safnaðar- og heilbrigðismálum
innan vébanda héraðs síns; börn
þeirra eru hin mannvænlegustu.
Fyrir minni silfurbrúðarinnar
mælti Mr. Torey, er um fjölda
mörg ár var stöðvarstjóri C.P.R.
félagsins í Riverton, en fyrir
minni silfurbrúðgumans, G. S.
Thorvaldson, K.C., einn af þing-
mönnum Winnipegborgar í
fylkisþinginu.
Margar ræður, flestar stuttar,
voru haldnar á þessum sérstæða
mannfagnaði, er allar lutu að
hinum sérstæðu vinsældum Dr.
Thompson og frúar hans; ein
ræðan var flutt á úkraniumáli,
og var það Harry Rutko fyrrum
sveitarráðsmaður - í Bifröst, er
slíkt gerði; þeir íslendingar, sem
til máls tóku, auk silfurbrúð-
hjónanna voru: G. O. Einars
son, er flutti kvæði, Guttormur
J. Guttormsson, frú Andrea
Johnson, Gísli Sigmundsson,
Helgi Tómasson, Mikley,
Einar P. Jónsson og S.
V. Sigurðson, er í lok ræðu sinn-
ar afhenti þeim hjónum að gjöf
nýjan Fordbíl og Grandfathers
Clock. —
Mikið var um almenningssöng
undir forustu Jóhannesar Páls-
sonar hljómlistarkennara, en
með tvísöng, þrísöng og fjór-
söng, skemtu frú Lilja Thorvald
son, ungfrú Evelyn Thorvaldson,
Mr. R. Whillan og Mr. Charlie
Ross, öll frá Winnipeg, og vakti voru allir eitt!
songur þeirra að verðugu mikla
og almenna hrifningu; þeir
Fjeldsted-bræður frá Árborg
skemtu með yndislegum tví-
söng, en kornung stúlka, Miss
Björnson frá Riverton, hreif
hinn mikla mannfjölda með
sinni óvenjulega fögru og styrku
rödd. —
Símskeyti bárust heiðursgest-
unum frá þeim Hon. J. T. Thor-
son, Ottawa, Garson forsætisráð-
herra og þremur öðrum úr ráðu-
neyti hans.
Er hin reglubundna skemti-
skrá var tæmd, tók Dr. Thomp-
son til máls; ræða hans var ekki
löng, en þeim mun innihalds-
ríkari og ógleymanlegri; þakkaði
hann rrieð nokkrum klökkva þá
miklu sæmd, er þeim hjónum
væri sýnd með hinum höfðing-
legu gjöfum, og eins með hinu
mikla fjölmenni; en veigames
liðurinn í ræðu hans var sá, er
hann kunngerði, að hann hefði
ákveðið að leggja inn á banka
jafngilda upphæð við andvirði
bílsins til sjóðsstofnunar í því
augnamiði, að koma á fót sjúkra
húsi í Norður-Nýja-íslandi; var
þessari drengilegu ákvörðun
hans, eins og vænta mátti, tekið
með mikilli hrifningu af hinum
mikla mannfjölda; frú Thórdís
ávarpaði samkomuna nokkrum
hlýyrðum og var þeim tekið með
miklum fögnuði.
Að mannfagnaði þessum stóðu
víst öll þjóðernisbrot innan vé-
banda Gimli-kjördæmis, og þar
SAMTlNINGUR
Morgunvísur
Nótt burt rólar, lifna ljóð,
linast gjólu kali;
morgunsólar geislaglóð
gyllir hóla’ og dali.
Næturdrómi flúið fær,
fugla hljómar óður;
sveipar ljóma sólin skær
sæ og blóma móður.
Árdagssólar blíða brátt
burtu njólu hrekur;
breytist gjóla’ í þíðan þrátt
þey er fjólu vekur.
Social Credit-stjórnin
í Alberta endurkosin
Síðastliðinn þriðjudag fóru
fram fylkiskosningar í Alberta
og urðu úrslitin þau, að Social
Credit stjórnin, undir forustu
Hon. C. C. Manning, var endur-
kosinn með yfirgnæfandi meiri
hluta umfram alla þrjá flokkana
hina, er keptu um völd; þó fulln-
aðar úrslit séu enn eigi við
hendi, er það sýnt, að Social
Credit-sinnar hafa unnið að
að minsta kosti 46 þingsæti af
57. Þeir Mr. Prowse, leiðtogi
Liberala og Mr. Roper, foringi
C. C. F.-sinna náðu báðir endur-
kosningu. Af þessum úrslitum
kemur það glögt í ljós, hve
Social Credit fylkingin, sem
William Aberhart lagði grund-
völl að, á enn styrkar rætur í
Alberta.
Vesturveldin halda sinn fimta
fund við Molotov utanríkisráð-
herra í Moskvu, á morgun með
það fyri raugum að reyna að
ráða bót á Berlínar vandræðun-
um, hvernig sem úr ræðst.
Kvöldvísa
Óttu friður yfir fer,
eyðist kliður fagur.
Sól til viðar sigin er,
senn er liðinn dagur.
Vorvísa
Dafnar gengi, gleðihljóm
gelur mengið væna.
Dagur lengist, lifna blóm,
ljómar vengið græna.
Núlíðar reiðvísa
Áfram skríður skarpt og þýðilega,
búinn prýði bíllinn minn;
brátt hjá líður vegurjnn.
Konumissir
Önd mín virðist aflvana,
yndisstundir dvína.
Eg er æði einmana
eftir burtför þína.
Bjarlsýni
Eigi kveina ættum vér
yfir fundum kífsins,
fleiri einatt finnast mér
fagnaðsstundir lífsins.
Heilræði
Láttu Jesú lífs um skeið
leiða þig og fræða
ef þú vilt þín liggi leið
lífs til sigurhæða.
Kolbeinn Sæmundsson.
VINNA SÉR NÁMSFRAMA
EGGERT OG DAVÍÐ PETERSON
Þessir ungu sveinar, sem sjást á þessari mynd, eru þeir
bræðurnir Eggert og Davíð, synir þeirra Sveinbjarnar
Peterson járnbrautarstöðvarstjóra í Pine River, Man., og
frúar hans Sigríðar Peterson. Eggert er 15 árá en Davið 13
ára að aldri. — 1 vor, sem leið, vann Eggert Isbister verð-
laun í 1. kensluumdæmi, sem í sér fela $105 undanþágu frá
kenslugjaldi við háskóla Manitobafylkis og $50 í peningum,
en Davíð hlaut hæztu einkunn, 170 stig, af öllum nemend-
um IX. bekkjar í fylkinu utan vébanda Winnipegborgar.
Þessir.ungu námsmenn dvelja í sumar hjá ömmu sinni, frú
Svanhildi Sigurgeirsson-Eggertsson í Vogarbygðinni við
Manitobavatn. — Sveinbjörn Peterson er sonur þeirra Mr.
og Mrs. Thorsteinn Peterson, sem lengi bjuggu á mótum
Pacific Avenue og Sherbrook Street hér í borg, en nú eru
bæði látin, en frú Sigríður, fyrrum kenslukona, er dóttir
Eggerts heitins Sigurgeirssonar við Vogar og.-eftirlifandi
ekkju hans, Svanhildar; bræður frú Sigríðar eru Barney
kaupmaður, Jóhann og Davíð, allir búsettir í Vogar og
Siglunesbygðum. —
Hjálparsendingar Islendinga til
Evrópu nema samtals 28 millj.
íslendingar hluífallslega stærslu
gefendur síðari ára
Framlög Islendinga til hjálpar
starfsemi í öðrum löndum hefir
frá því byrjun styrjaldarinnar
numið um 28.5 milljónum króna,
og erum við því án ' efa lang
stærstu gefendur allra þjóða, ef
miðað er við stærð okkar. — Af
framlögum okkar hefir UNNRA
fengið stærstan hlutann, eða 9
milljónir króna, en næst koma
landssöfnunin til Norðmanna og
Dana 1944 með 4.5 milljónir, og
barnasöfnunin, sem mun nú alls
nema tæplega 4 milljónum.
Lúðvig Guðmundsson skýrði
blaðinu frá þessu í gær, og sagði
hann, að íslendingar væru án
efa langstærstu gefendur síðari
ára, er frjáls framlög borgaranna
eru talin. UNNRA styrkurinn
var beint frá ríkinu samkvæmt
alþjóðasamningum, en ýmsar
safnanir borgaranna hafa því
numið yfir 19 milljónum. — Er
þetta talið frá fyrstu söínuninni
hér í styrjaldarbyrjun, Finn-
landssöfnuninni, og hefir verið
reynt að telja allt með.
Ef athuguð er aðeins sú hjálp
sem send hefir verið héðan eftir
styrjöldina um það bil 18 millj.
eða sex á ári, verður hún 0.75
prósent af áætluðum þjóðartekj-
um íslendinga. Sést bezt, hversu
gífurlega mikið þetta er hlutfalls
lega, þegar athugað er, að Mars-
hallhjálpin er aðeins um 2 pró-
sent af þjóðartekjum Bandaríkj-
anna árlega.. Reiknaði Gylfi Þ.
Gíslason þetta lauslega út og
gat þess í fyrirlestri sínum um
Marshallhjálþina.
Lúðvig Guðmundsson sagði
blaðinu í gær, að Rauða krossin-
um bærust svo að segja stöðugt
hundruð bréfa frá Mið-Evrópu,
aðallega Þýzkalandi^ og væru
flest þeirra beiðnir um hjálp, en
einnig mörg þakkir fyrir veitta
hjálp. Er þetta svo mikið, að ekki
er hægt að sinna því nærri öllu
eða svara því. Lúðvig sagði, að
þeir fá íslendingar, sem enn
væru í Mið-Evrópulöndunum,
fengju reglulega matarpakka
frá Rauða krossinum, eins og
þeir hefðu gert frá stríðslokum.
I áðurnefndum áætlunum um
heildarhjálp Islendinga er reynt
að áætla allt það, sem ekki er ör-
ugg vissa um, til dæmis böggla-
sendingar einstaklinga, meðan
þær voru leyfðar. Voru þær áætl
aðar samkvæmt upplýsingum
frá pósthúsinu, og var þó gert
ráð fyrir, að tveir af hverjum
þrem bögglum væru ekki hjálp-
arsendingar, heldur einhvers
annars eðlis.
Alþbl., 30 maí.
Deilan um smörlíkið
Mjólkurframleiðslu ráðið í
Canada hefir gert sambands-
stjórn aðvart um það að miklar
líkur séu á, að tilfinnanleg þurð
á smjöri geti auðveldlega átt sér
stað næsta vetur, og geti þá
komið til þess, að óhjákvæmi-
legt verði að koma á fót smjör-
líkisgerð í landinu.
Fram að þessu hefir það verið
talið ólöglegt, að flytja smjörlíki
inn í landið eða búa það til; nú
hefir sambandsstjórn ákveðið
að láta hæztarétt skera úr hvort
smjörlíkisbannið sé lögum sam-
kvæmt eða ekki.
Banni létt af
Frá Ottawa bárust þær fréttir
seinni part vikunnar, sem leið,
að innan fárra daga yrði létt af
banni nautgripa héðan úr landi
og suður yfir landamærin; —
bændur í Vestur-fylkjunum
hafa lengi krafist að áminst út-
flutningsbann á nautgripum
suður til Bandaríkja yrði af-
numið, með því að tíðum hefði
borist þar hærra verð.
Hörmulegur atburður
Um fimm leytið síðastliðinn
þriðjudag, gerðist sá hörmulegi
atburður, að Halli Magnússon,
44 ára að aldri, búsettur á Gimli,
skaut á konu sína á heimili
þeirra og særði hana holundar-
sári; síðan veitti hann sér sjálf-
um banatilræði og lézt á John-
son Memorial Hospital um
kvöldið; hin særða kona er mjög
þungt haldin; var hún flutt á
sjúkrahús í Winnipeg. Er nokk-
ur von um að hún lifi áverkann
af. — Auk konu sinnar, sem Ingi
björg heitir, lætur Halli eftir
sig fjögur börn.
Mætir fyrir hönd Canada
Forsætisráðherrann, Mr. King,
mætir fyrir hönd Canada á
þingi sameinuðu þjóðanna, sem
háð verður í París í september
mánuði; þaðan fer hann svo til
London til að sitja þar fund for-
sætisráðherra brezku samveldis-
þjóðanna; í för með Mr. King
verða sérfræðingar úr utanríkis-
ráðuneytinu. —
Minna mátti
nú gagn gera
Á fimtudaginn þann 12. þ. m.
fór fram í bænum Havana á
Cuba, bankarán, sem heldur en
ekki munaði um; það var Royal
bank of Canada, sem varð fyrir
hnjaskinu; hvorki meira' né
minna en tíu menn tóku þátt í
ráninu og voru tveir þeirra 1 ein-
kennisbúningum lögreglu-
manna; fjárhæðin, sem þeir kló-
festu, nam $570,000. — Þetta er
það langmesta bankarán í sögu
þjóðarinnar á Cuba og jafnvel
þó víðar væri leitað. Ræningj-
arnir komust undan í tveimur
bílum, og hefir síðan eigi til
þeirra spurst, þrátt fyrir lát-
lausa ránnsókn fjölmennra lög-
reglufylkinga.
Dr. A. J. THORSTEINSON
Ásgeir Jónas Thorsteinson hef-
ir tekið við boði frá Manitoba
háskólanum, er skólinn bauð hon
um, sem aðstoðar prófessor í
skordýravísindum. Hann var síð-
astl. ár hjá Forest Insect Lab-
oratory er Canada-stjórnin hefir
í Sault Ste. Marie í Ontario-
fylki; en doktors nafnbót hlaut
hann á Englandi, er hann stund-
aði þar nám í sérfræðigrein sinni
um nokkur ár meðan á stríðinu
stóð og vann þá um hríð í þjón-
ustu ensku stjórnarinnar þar í
landi. Dr. A. J. Thorsteinsori er
sonur Sigurðar heit. Thorstein-
sonar og ekkju hans, Halldóru, er
lengi bjuggu í Winnipeg, og er
Mrs. Thorsteinson búsett hér
enn. Hann er kvæntur íslenzkri
konu einnig héðan úr Winnipeg,
Mildred Anderson. Lögberg ósk-
ar Dr. Thorsteinson til hamingju
með hina nýju sæmd og býður
þau hjón aftur velkomin í ís-
lenzka vinahópinnT Winnipeg.